Bygging núverandi húss
Húsið við Grundarstíg 4 er byggt árið 1925 skv. fasteignaskrá en þegar litið er á dagblöð frá fyrstu áratugum 20. aldar kemur allt annað í ljós. Auglýsingar um herbergi/íbúð til leigu í nýju steinhúsi á Grundarstíg 4 má t.d. finna í dagblöðum frá 1910 og 1911.
Ýmis starfsemi í húsinu í gegnum tíðina
Upplýsingarnar hér á eftir eru engan veginn tæmandi en settar fram eftir bestu vitund. Allar leiðréttingar og viðbætur eru vel þegnar.
- 1912: Þuríður Árnadóttir Jónsson veitir tilsögn í ensku, dönsku og þýsku (augl.). Til er einnig skemmtileg fréttatilkynning um Þuríði þar sem segir m.a. “… dóttir síra Árna á Skútustöðum, auglýsti í síðasta tbl. Lögr. kenslu í ensku, dönsku og þýsku. Hún hefur dvalið erlendis og numið þar málin, verið bæði í Englandi, Danmörku og Þýskalandi, síðastl. 2 ár á skrifstofu þeirra stórkaupm. Garðars Gíslasonar & Hay í Leith, og er sögð af kunnugum mjög vel að sjer…”
- 1915: Pétur Magnússon yfirdómslögmaður á Grundarstíg 4 auglýsir mikið af jörðum til sölu bæði 1915 og 1916 (augl.)
- 1916: Fæði fæst á Grundarstíg 4 hjá Hendrikku Waage (augl.)
- 1920: Vanir fiskimenn óskast – upplýsingar á Grundarstíg 4 (augl.)
- 1923: Magnús Stefánsson er umboðsmaður fyrir miðum í happdrætti sænska ríkisins og sænskum ríkisskuldabréfum sem einnig eru happdrætti (augl.)
- 1923: Kjólar og kápur saumaðar á Grundarstíg 4 (augl.)
- 1927: Rafn Sigurðsson skipstjóri á Grundarstíg 4 auglýsir beinar ferðir frá Íslandi til N-Spánar (augl.)
- 1926: St. Gunnlaugsson lögfræðingur býr í húsinu og auglýsir (augl.)
- 1926: Hægt að kaupa ódýrt epli, appelsínur og vínber á þriðju hæð (augl.)
- 1930: Vélritun og fjölritun annast Martha Kalman, Grundarstíg 4 (augl.)
- 1940: Húsnæðismiðlari á Grundarstíg 4 auglýsir mikið þetta ár (augl.)
- 1940: Charlotte Jónsson annast áritanir á tækifærisgjafir (augl.)
- 1940: Arnfinnur Jónsson kennir ensku og þýsku (augl.)
- 1941: Miðstjórn Sósíalistaflokksins hafði um tíma skrifstofu í tveim leiguherbergjum á Grundarstíg 4, annarri hæð og auglýsti m.a. fundi þar 1941 og 1942
- 1942: Kristín Sigurðardóttir sníðir og mátar kjóla (augl.)
- 1951: Húllsaumastofa Ingibjargar Guðjónsdóttur flyst úr Bankastræti 12 á Grundarstíg 4 (augl.). Helga Finnsdóttir kaupir stofuna 1955 en 1961 flytur hún saumastofuna í Hafnarfjörð (minningargr.)
Þessa mynd af Grundarstíg 4 er að finna í umfjöllun um Sósíalistaflokkinn í Þjóðviljanum árið 1954 en ekki er ljóst hvort myndin sjálf er frá því ári eða frá því um 1940.
var _gaq = _gaq || []; _gaq.push(['_setAccount', 'UA-38855006-1']); _gaq.push(['_trackPageview']);
(function() { var ga = document.createElement('script'); ga.type = 'text/javascript'; ga.async = true; ga.src = ('https:' == document.location.protocol ? 'https://ssl' : 'http://www') + '.google-analytics.com/ga.js'; var s = document.getElementsByTagName('script')[0]; s.parentNode.insertBefore(ga, s); })();