Þerriblaðsvísur VII eftir Hannes Hafstein

Hannes Hafstein orti a.m.k. sextán vísur í kringum aldamótin 1900 sem kallaðar eru Þerriblaðsvísur og fjalla allar um “pennann, blekið og þerriblaðið”. Þær eru í raun stæling á skáldskaparstíl annarra. Hér yrkir Hannes í anda Páls Ólafssonar.

VII
Þerripappír þóknast mér
því hann drekkur, eins og ég.
Blekaður því hann einatt er.
Allt er þetta’ á sama veg.

Sjá einnig:

Þerriblaðsvísur I
Þerriblaðsvísur II
Þerriblaðsvísur III
Þerriblaðsvísur IV
Þerriblaðsvísur V
Þerriblaðsvísur VI