Breski arkitektinn Richard Murphy mun halda tvo fyrirlestra hér á landi, þann fyrri í Hannesarholti mánudaginn 16. mars kl.17, þar sem hann fjallar um eigin verk í Hljóðbergi.
Richard er fæddur 1955 og lærði arkitektúr í hásjkólanum í Newcastle og Edinborg, þar sem hann kenndi einnig um 4 ára skeið. Hann býr og starfar í Endinborg og hefur rekið arkitektastofu þar í borg undir eigin nafni síðan 1991.
Hann er tvímælalaust einn þekktasti núlifandi arkitekt Skotlands. Hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir hönnun sína m.a. 19 RIBA viðurkenningar (Royal Intitut of British Architects). Hann hefur einngi verið sæmdur OBE orðunni fyrir framlag í þágu arkitetúrs á Bretlandseyjum. Þá er nýkomin er út bók um verk hans – “Of its Time and of its Place – The Work of Richard Murphy Architects”, sem gefin er út Artifice forlaginu í London.
Samhliða rekstri arkitektastofunnar hefur Richard einnig helgað sig kennslu og rannsóknum á sviði arkitektúrs og hefur kennt og haldið fyrirlestra við háskóla víða á Bretlandseyjum, í Evrópu og einnig vestanhafs. Hann hefur m.a rannsakað verk Carlo Scarpa á Ítlaíu og er í dag einn fremsti sérfræðingur í verkum hans. Í tengslum við þær rannsóknir hefur hann skrifað m.a. skrifað tvær bækur um Castellvecchio safnið í Veróna.
Fyrirlesturinn er á vegum INNI UTI ARKITEKTA.