Tónlistarnemum í útlöndum er boðið að halda tónleika í Hannesarholti endurgjaldslaust í jólaleyfinu. Afrakstur sölu aðgöngumiða rennur alfarið í vasa tónleikahaldara og gæti þannig hjálpað til með að standa straum af flugfargjaldinu til Íslands.

Að halda tónleika á heimaslóðum er góð reynsla fyrir ungt tónlistarfólk og styrkir tengslin við samfélagið sem ól þau af sér. Þá er ekki síður dýrmætt fyrir þá sem heima sitja að fá að fylgjast með þroskagöngu unga listafólksins.

Hljóðberg, tónleikasalur Hannesarholts, hefur afburða hljómburð og státar af Steinway flygli 211, sem er á meðal þeirra bestu í landinu. Andrúmsloftið í Hljóðbergi er heimilislegt, salurinn heldur vel utanum gesti og þar skapast mikil nánd sem býður uppá samtal milli flytjenda og gesta.

Verkefnið Tónleikar farfugla fellur vel að markmiðum Hannesarholts, en meðal þeirra er að hlúa að og skapa rými fyrir uppbyggjandi mannlíf og menningarstarfssemi. Hannesarholt fékk styrk frá Menningar-og ferðamálaráði Reykjavíkurborgar til að standa að þessu verkefni.

Áhugasamt ungt tónlistarfólk í námi erlendis er hvatt til að senda umsókn á netfangið hannesarholt@hannesarholt.is merkt Tónleikar farfugla. Umsóknarfrestur er til 15.október.

 

 

Ljósmynd: AlicePopkorn