Áfangar í sögu Reykjavíkur

Reykjavík varð ekki að borg á einum degi og þau voru mörg skrefin sem þurfti að stíga í því ferli. Hér fyrir neðan eru nefndir nokkrir áfangar sem skiptu máli fyrir ýmist Reykjavík eða landið allt á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Áfangarnir eru ekki flokkaðir sérstaklega hér heldur einungis settir í tímaröð.

1862 – Barnaskóli Reykjavíkur tekur til starfa við Hafnarstræti, 1. október 1962 undir stjórn Helga E. Helgsens guðfræðings (grein úr Mbl. 1961)

1871 – Hið íslenska þjóðvinafélag, stofnað af 17 alþingismönnum. Fyrsti forseti þess var Jón Sigurðsson.

1871 – Stúdentafélag Reykjavíkur (grein í Mbl. 1981 á 110 ára afmæli þess)

1872 – Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar stofnuð í Lækjargötu 2

1874 – Kvennaskólinn stofnaður af Þóru og Páli Melsteð

1876 – Götulýsingu komið á (olíuluktir)

1876 – Veitingahúsið og gististaðurinn Geysir stofnað af Páli Eyjólfssyni v/Skólavörðustíg (sjá tilkynningu Páls í Ísafold 1876)

1876 – Nikulás Jafetsson stofnar gisti- og veitingahús við Hlíðarhúsaveginn (sjá tilkynningu í Þjóðólfi 1876)

1876 – Læknaskóli (tilkynning um stofnun læknaskóla í Norðanfara 1876)

1877 – Bókaverslun Ísafoldar

1879 – Hótel Alexandra, Hafnarstræti 16 (sjá Hafnarstræti 16, Fornleifakönnun  frá 2001)

1879 – Hið íslenska fornleifafélag, fyrsti forseti Árni Thorsteinsson (sjá grein í Þjóðólfi frá 1879)

1880 – Lög um uppfræðingu barna í skrift og reikningi (sjá grein um Alþýðumentun í Fjalkonunni 1886)

1883 – Elliðaár brúaðar (sjá tilkynningu í Ísafold frá 1883)

1882 – Hótel Ísland reist í Aðalstræti

1885 – Góðtemplararreglurnar Verðandi og Einingin stofnaðar

1886 – Stórstúka Íslands (sjá frétt í Norðurljósinu 1886)

1890 – Fyrsta skolpleiðslan lögð í Austurstræti

1891 – Stýrimannaskólinn (sjá frétt um setningu skólans í Ísafold 1891)

1891 – Ölfusá vígð 8. september 1891 (Brúardrápa Hannesar Hafstein)

1893 – Skautafélag Reykjavíkur

1894 – Íshús reist við Reykjavíkurtjörn (sjá grein í Ísafold frá 1874)

1895 – Hjálpræðisherinn (frétt af fyrstu samkomu í Ísafold 1895)

1895 – Þjórsá brúuð – vígð af landritara Hannesi Hafstein (sjá grein í Reykvíkingi 1895)

1895-6 – Hellisheiðarvegur – vagnslóði (sjá grein í Skírni 1895)

1897 – Leikfélag Reykjavíkur

1897 – Hafin gerð vegar milli  Hafnarfjarðar og Reykjavíkur

1898 – Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi rís, Miðbæjarskólinn (Barnaskóli Reykjavíkur) og Landsbankahúsið einnig. (Um vígslu holdsveikraspítalans í Þjóðviljanum 1898, Miðbæjarskólinn 100 ára í Morgunblaðinu 1998, tilkynning um nýtt Landsbankahús í Ísaflod 1898)

1899 – Kristileg félög ungra manna og kvenna

1902 – Sögufélagið

1902 – Landakotsspítali (sjá grein í Bjarka frá 1902)

1902 – Fyrsta holræsið lagt í Reykjavík

1904 -Timburverslun Völundar stofnuð (sjá firmatilkynningar í Þjóðólfi 1904)

1905 – Innanbæjarsími milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar

1906 – Landssími Íslands stofnaður – ritsímasamband við útlönd

1906 – Reglulegar kvikmyndasýningar hefjast í Fjalakettinum

1907 – Fræðslulög – heimilin ábyrg fyrir fræðslu til 10 ára aldurs, skólaskylda 10-14 ára (6 mán)

1907 – Kleppsspítali opnaður

1908 – Matarbúð SS (sjá Huginn, auglýsingu frá 1908)

1908 – Kennaraskóli (sjá Skólablaðið frá 1908)

1908 – Lagaskóli tekur til starfa (starfaði í 3 ár en fór þá undir lagadeild Háskóla Íslands þegar hann var stofnaður 1911)

1909 – Safnahúsið (Þjóðmenningarhúsið) vígt 28. apríl, byggt fyrir landsbókasafn og landsskjalasafn. Auk þess fengu forngripasafnið og náttúrugripasafnið þar inni. Helsti frumkvöðull byggingarinnar var Hannes Hafstein ráðherra. (Grein úr Þjóðólfi um safnahúsið nýja 2. apríl 1909)

1909 – Vatnsveita Reykjavíkur tekur til starfa

1910 – Gasstöð Reykjavíkur við Hlemm

1910 – Fálkinn stofnaður formlega (en upphaf 1904) – sérverslun með reiðhjól

1911 – Háskóli Íslands stofnaður

1914 – Eimskip – samgöngubylting með strandsiglingum

1916 – Hljóðfærahús Reykjavíkur –  Útgerðarfyrirtæki Ellingsens

1921 – Elliðaárvirkjun tekin í notkun

1929 – Skipaútgerð ríkisins