BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160406T200000
DTEND;TZID=UTC:20160406T200000
DTSTAMP:20160203T141513Z
CREATED:20160130T004302Z
LAST-MODIFIED:20160203T141513Z
UID:10000130-1459972800-1459972800@hannesarholt.is
SUMMARY:Félag íslenskra fræða
DESCRIPTION:Höskuldur Þráinsson: Hvað getum við lært um íslensku af Vestur-Íslendingum? \nEitt af því sem málfræðingar velta fyrir sér er það hvaða áhrif menningarlegir og félagslegir þættir hafa á þróun tungumála. Félagsleg og menningarleg staða íslensku í Vesturheimi hefur auð­vitað verið allt önnur en staða íslensku hér heima. Þess vegna er áhugavert að bera þróun vesturíslensku saman við þróun heima­íslensku. Ef þróunin er mjög ólík má ætla að þar hafi menningar­legir og félagslegir þættir haft áhrif. Ef hún er mjög lík bendir það til þess að aðrir þættir hafi skipt máli\, t.d. eitthvað í málkerfinu sjálfu. Í erindinu verður sagt frá nokkrum niðurstöðum úr rann­sókna­verkefninu „Mál\, málbreytingar og menningarleg sjálfs­mynd“ sem Höskuldur Þráinsson og Birna Arnbjörnsdóttir hafa stýrt undanfarin misseri og tekin dæmi af breytingum á vestur­íslensku og heimaíslensku sem hafa í sumum tilvikum verið sam­stíga en í öðrum tilvikum ekki. \nHöskuldur er doktor í málvísindum frá Harvard­háskóla (1979) og prófessor í íslensku nútímamáli við Há­skóla Íslands frá 1980. \nAllir eru velkomnir á rannsóknarkvöld FÍF\, frítt inn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/felag-islenskra-fraeda-3/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/hoskuldur_thrainsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160224T200000
DTEND;TZID=UTC:20160224T200000
DTSTAMP:20160210T143248Z
CREATED:20160129T142957Z
LAST-MODIFIED:20160210T143248Z
UID:10000440-1456344000-1456344000@hannesarholt.is
SUMMARY:Félag íslenskra fræða - Endurfædd orð og önnur dauð
DESCRIPTION:Sölvi Sveinsson: Endurfædd orð og önnur dauð\n\nÍ erindinu verður fjallað um orðaforða fornmálsins í tengslum við bókina Endur­fædd orð og önnur dauð. Hvað ræður því að sum ágæt orð deyja\, orð sem prýði­lega mundu sóma sér í nútímamáli. Sum orð hafa endurfæðst í nýrri merk­ingu. Hvað ræður því? Segir það eitthvað að um mörg orð eru örfá dæmi í Ordbog over det norröne prosa­sprog og um mörg orð aðeins eitt dæmi? Eitt­hvað fleira hangir á spýtunni.\n\nSölvi er cand. mag. í sagnfræði og hefur lengst af starfað við kennslu og skólastjórnun\, ásamt ritstörfum.\nFyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. \nGestum gefst kostur á að snæða léttan kvöldverð í veitingastofum Hannesarholts á fyrstu hæð hússin. Kvöldverðurinn er í formi smáréttarplatta sem þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is í síðasta lagi kl 16.00 daginn fyrir. Nánari upplýsingar hér. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/felag-islenskra-fraeda-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks),Rannsóknarkvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/sölvisveins.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160120T200000
DTEND;TZID=UTC:20160120T200000
DTSTAMP:20160111T132220Z
CREATED:20160108T113303Z
LAST-MODIFIED:20160111T132220Z
UID:10000433-1453320000-1453320000@hannesarholt.is
SUMMARY:Félag Íslenskra Fræða - Dagný Kristjánsdóttir: Börn í bókum
DESCRIPTION:Hvað er barn? Þeirri spurningu hefur verið svarað misjafnlega gegnum tíðina. Í Bókabörnum sem kom út fyrir jólin er fjallað um mismunandi og breytilegar hugmyndir manna um bernskuna\, hvernig börn séu og hvernig þau ættu að vera. Fyrstu bækurnar sem ætlaðar voru íslenskum börnum voru stafrófskver og síðar komu frumsamin og þýdd ævintýri og svo koll af kolli. Fjórir fyrstu barnabókahöfundarnir og bækur þeirra eru til umræðu en hver höfundanna um sig hefur ákveðinn skilning á bernskunni.  Þessir höfundar eru Jónas Hallgrímsson\, Nonni\, Sigurbjörn Sveinsson og Jóhann Magnús Bjarnason. Þeir voru ólíkir menn en í verkum þeirra birtast flest þau þemu sem rekja má gegnum íslenska barnabókasögu allar götur síðan. \n\nDagný Kristjánsdóttir er prófessor í íslenskum bókmenntum og hlaut nýverið tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna fyrir bók sína Bókabörn.\n\nVeitingastofurnar opna kl. 18.30 fyrir þá gesti sem vilja snæða léttan kvöldverð í formi menningarplatta áður en dagskrá hefst. Menningarplatta þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síðasta lagi kl. 16.00 daginn fyrir. Nánari upplýsingar hér.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/felag-islenskra-fraeda/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/Dagný.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151125T200000
DTEND;TZID=UTC:20151125T200000
DTSTAMP:20151105T131715Z
CREATED:20150909T183941Z
LAST-MODIFIED:20151105T131715Z
UID:10000389-1448481600-1448481600@hannesarholt.is
SUMMARY:Skáldaskraf Félags íslenskra fræða
DESCRIPTION:Guðmundur Andri Thorsson og Halldór Guðmundsson munu spjalla um nýútkomnar bækur sínar\, ævisöguleg skrif og hvaðeina sem kann að bera á góma. Báðir gefa þeir út bækur fyrir þessi jól sem fjalla um fólk sem þeir þekkja vel. Bók Halldórs\, Mamúska\, fjallar um vináttu höfundar og Mamúsku sem hann kynntist á reglulegum ferðum sínum til Frankfurt. Guðmundur Andri hefur skrifað bókina Og svo tjöllum við okkur í rallið\, minningar og hugrenningar um föður hans\, Thor Vilhjálmsson\, sem hefði orðið níræður á þessu ári.\n\nVeitingastofurnar opna kl. 18.30 fyrir þá gesti sem vilja snæða léttan kvöldverð í formi menningarplatta áður en dagskrá hefst. Nánari upplýsingar um borðapantanir hér
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fraedslufundur-felags-islenskra-fraeda-3/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/halldór-og-gandri2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151028T200000
DTEND;TZID=UTC:20151028T200000
DTSTAMP:20151012T115047Z
CREATED:20150909T175729Z
LAST-MODIFIED:20151012T115047Z
UID:10000384-1446062400-1446062400@hannesarholt.is
SUMMARY:Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða
DESCRIPTION:Guðjón Ragnar Jónasson: Hommarnir og helförin.Mennirnir með bleika þríhyrninginn segir sögu ungs\, samkynhneigðs manns í fangabúðum nasista og er frægust þeirra ævisagna sem lýsa hlutskipti homma í Þriðja ríki Hitlers. Maðurinn að baki sögunni hét Josef Kohout. Árið 1939 var hann handtekinn\, ákærður fyrir „alvarlegan saurlifnað“ og dæmdur til þrælkunar\, einn af þúsundum samkynhneigðra karla sem báru bleikan þríhyrning í fangabúðum nasista. Þar þraukaði hann skelfilega vist í sex ár uns hann fékk frelsi í lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Í tvo áratugi safnaði hann kjarki til að sigrast á sársaukanum og segja sögu sína sem loks birtist á prenti árið 1972. \nÍ fyrirlestrinum fjallar þýðandinn\, Guðjón Ragnar Jónasson\, um bókina og tilurð hennar. Jafnframt kynnir hann aðra bók um skylt efni\, óútkomna þýðingu sína á ævisögu þýska læknisins og kynfræðingsins Magnusar Hirschfeld. \nGuðjón Ragnar er rithöfundur\, þýðandi og íslenskukennari við MR.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fraedslufundur-felags-islenskra-fraeda/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/Guðjón-R-sv_hv.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150930T200000
DTEND;TZID=UTC:20150930T200000
DTSTAMP:20150926T153319Z
CREATED:20150909T180359Z
LAST-MODIFIED:20150926T153319Z
UID:10000386-1443643200-1443643200@hannesarholt.is
SUMMARY:Rannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða
DESCRIPTION:Katrín Axelsdóttir: „Sögur af orðum“\nRannsóknarkvöld Félags íslenskra fræða\n\nÁ fyrsta rannsóknarkvöldi Félags íslenskra fræða á þessu haustmisseri segir Katrín Axelsdóttir frá bók sinni Sögur af orðum sem kom út á síðasta ári. Hún fjallar um beygingarþróun nokkurra fallorða sem eiga það sameiginlegt að hafa tekið miklum breytingum frá elsta skeiði. Athugunarefnin eru þessi: \nFornafnið hvorgi (nú hvorugur)\nFornafnið sjá (nú þessi)\nFornafnið einnhverr (nú einhver)\nFornöfnin hvortveggi og hvor tveggja\nFornöfnin okkar(r)\, ykkar(r) og yð(v)ar(r)\nLýsingarorðið eigin(n) \nÁ grundvelli allmikils efniviðar er reynt að rekja beygingarþróunina og skýra. Í eftirmála er athygli beint að því sem er líkt (og um leið því sem er ólíkt) í beygingarþróun orðanna. Þar er litið á atriði eins og gerðir áhrifsbreytinga\, stefnu breytinga\, hugsanleg erlend áhrif\, tíma\, tíðni og mállýskumun. \nÍ erindinu verður sagt frá tilurð bókarinnar og byggingu\, markmiðum\, verklagi\, sjónarhornum og ýmsum niðurstöðum. \nKatrín Axelsdóttir er doktor í íslenskri málfræði og aðjúnkt við Háskóla Íslands. \nFyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis. \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fraedslufundur-felags-islenskra-fraeda-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/FÍF-Katrín..jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150415T200000
DTEND;TZID=UTC:20150415T220000
DTSTAMP:20150415T191923Z
CREATED:20150415T154805Z
LAST-MODIFIED:20150415T191923Z
UID:10000249-1429128000-1429135200@hannesarholt.is
SUMMARY:Sjálfsmyndir\, ímyndir og menningarfærni. Vitnisburður kvæðahandrita frá 17. öld
DESCRIPTION:Félag íslenskra fræða Á þriðja og síðasta rannsóknarkvöldi FÍF að vori flytur Dr.Þórunn Sigurðardóttir erindið: Sjálfsmyndir\, ímyndir og menningarfærni. Vitnisburður kvæðahandrita frá 17. öld. Þórunn lýsir erindi sínu svo: Handrit sem innihalda sálma og trúarlegan kveðskap hafa löngum verið talin ætluð til iðkunar guðrækni í heimahúsum og er það vafalaust eitt meginmarkmiðið með gerð þeirra\, a.m.k. opinbert markmið ef miðað er við algenga titilsíðutexta. Í fyrirlestrinum eru færð rök fyrir því að hlutverk slíkra handrita sé bæði flóknara og víðfeðmara en titilsíður gefa til kynna og að hlutverk þeirra sé ekki eins augljóst og virðist vera við fyrstu sýn. Skoðaðar verða nokkrar kvæðabækur sem voru skrifaðar handa börnum prófastsins sr. Jóns Arasonar í Vatnsfirði\, og sumar af þeim sjálfum\, til að sýna hvernig handritin og textarnir sem þau geyma eru þáttur í myndun félagslegrar og menningarlegrar sjálfsmyndar eigendanna og um leið þeirrar ímyndar sem fólk af þeirra standi vildi hafa í samfélaginu. Kvæðahandritin voru ekki einasta í eigu auðugrar efri stéttar fjölskyldu\, sett saman henni til sálubótar og uppfræðingar\, heldur vitna þau um menningarlega færni hennar\, menningarmótun og ímyndarsköpun. Jafnframt eru þær merkilegar heimildir um bókmenntasmekk og menningarlegt andrúmsloft á heimili 17. aldar klerks sem tilheyrði einni auðugustu og valdamestu ætt landsins. Dr. Þórunn Sigurðardóttir er bókmenntafræðingur og stundar sjálfstæðar rannsóknir á fræðasviðinu. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sjalfsmyndir-imyndir-og-menningarfaerni-vitnisburdur-kvaedahandrita-fra-17-old/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Rannsóknarkvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/04/10917917_10153009321899738_2737556439903671137_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131204T200000
DTEND;TZID=UTC:20131204T220000
DTSTAMP:20131129T152951Z
CREATED:20131129T152951Z
LAST-MODIFIED:20131129T152951Z
UID:10000002-1386187200-1386194400@hannesarholt.is
SUMMARY:Skáldaskraf á aðventu.
DESCRIPTION:Félag íslenskra fræða býður til skáldaskrafs á aðventu. Tveir rithöfundar\nmæta til leiks\, lesa úr nýútkomnum bókum og spjalla við viðstadda. Gestir\nkvöldins eru Eiríkur Guðmundsson (höfundur skáldsögunnar 1983) og Þórunn\nErlu- og Valdimarsdóttir (höfundur skáldættarsögunnar Stúlka með maga).\nMörk skáldskapar\, endurminninga\, sjálfslýsinga og ættarsagna verða í\nbrennidepli. \nAllir velkomnir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/skaldaskraf-a-adventu/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/skaldaskraf2013.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR