BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240815T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240815T220000
DTSTAMP:20250207T112330Z
CREATED:20240809T153104Z
LAST-MODIFIED:20250207T112330Z
UID:10001002-1723752000-1723759200@hannesarholt.is
SUMMARY:Romain Collin\, S. Carey og rafhljómsveitin Foss í Hannesarholti
DESCRIPTION:Romain Collin\, píanóleikari og tónskáld\, heldur tónleika í tveimur þáttum í Hannesarholti 15 ágúst. Kl.20 \nRomain heldur til í New York og hefur í tvígang verið tilnefndur til Grammy verðlauna. Hann hefur komið til Íslands ítrekað síðan 2019 og hefur haldið þrennar tónleikaraðir í Hannesarholti og í Vík í Mýrdal. \nFyrir hlé leikur hann með söngvaranum og lagahöfundinum S.Carey\, sem ferðast líka um heiminnn sem trommari og er einn af stofnmeðlinum hljómsveitarinnar Bon Iver. Collin og Carey héldu saman tónleika síðasta vetur á Íslandi og hittast nú aftur á einstöku tónleikakvöldi í Gamla bíói. \nEftir hlé kynnir Romain rafhljómsveit sína FOSS\, verkefni sem hann skapaði í einangrun á Íslandi í heimsfaraldrinum. FOSS er þekkt fyrir að blanda saman „vintage“ og framsækinni tækni og hefur þróast yfir í kvikmyndaverk sem skapar kraftmikla sjónræna-og hljómræna upplifun með því að blanda stórbrotinni kvikmyndun við lifandi elektrónískan tónlistarflutning. Hér er um einstakan viðburð að ræða. \nCheck out FOSS: \nhttps://www.youtube.com/watch?v=J97xpiOhZME \nhttps://www.youtube.com/watch?v=dfIRxp0yI9M \nCheck out S. Carey \nhttps://www.youtube.com/watch?v=mpdZZhRBnOg \nhttps://www.youtube.com/watch?v=vayNV5c6thg \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/romain-collin-s-carey-og-rafhljomsveitin-foss-i-gamla-bioi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/rett-mynd-Romain-scaled-e1723565465238.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180517T200000
DTEND;TZID=UTC:20180517T200000
DTSTAMP:20180517T104550Z
CREATED:20180326T165520Z
LAST-MODIFIED:20180517T104550Z
UID:10000651-1526587200-1526587200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Önnu Sigríði Pálsdóttur og Önnu Sigríði Helgadóttur
DESCRIPTION:Móðirin er yfirskrift kvöldstundar með nöfnunum Önnu Sigríði Pálsdóttur sóknarpresti og Önnu Sigríði Helgadóttur söngkonu. Móðirin í öllum myndum\, í fortíð og nútíð\, María guðsmóðir og mæður okkar allra. \nSéra Anna Sigríður Pálsdóttir fyrrum Dómkirkjuprestur hefur átt farsælan feril sem prestur og ráðgjafi. Hún hefur meðal annars sinnt ráðgjöf til aðstandenda áfengis-og fíkniefnaneytenda\, haldið vinsæl námskeið um meðvirkni og sálgæslu fyrir fólk í sorg og skilnaðarferli. \nAnna Sigríður Helgadóttir söngkona hefur sungið með fjölda kóra og tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi\, s.s. einsöngstónleikum\, djasstónleikum\, óperu- og óperettuuppfærslum\, kirkjutónleikum\, gospeltónleikum o.fl.\, á Íslandi\, í Danmörku\, Svíþjóð\, á Ítalíu og í Bandaríkjunum. Árið 2000 söng hún hlutverk Biöncu í uppfærslu Íslensku Óperunnar á óperunni “The rape of Lucretia” eftir Benjamin Britten og árið 2002 söng hún hlutverk Mary í uppfærslu Listahátíðar á óperunni “Hollendingurinn fljúgandi” eftir Richard Wagner.  \nFrá 2001 til 2012 starfaði Anna Sigríður sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna í Reykjavík\, þar sem hún söng við athafnir\, stjórnaði kór og hafði umsjón með tónlistarlífinu í kirkjunni. Hún söng í mörg ár með sönghópnum Hljómeyki og er ein af sönghópnum Emil og Anna Sigga og Bjargræðiskvartettsins. Að auki hefur hún starfað sem söngkona og sungið víða s.s. við kirkjuathafnir\, tónleika og margs konar uppákomur. \nFyrir þá sem vilja mæta snemma er boðið uppá gleðistund (happy-hour) í veitingastofunum frá 17-19\, lifandi tónlist með Pálmari Ólasyni frá 18.30-20 og matseðil kvöldsins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-onnu-sigridi-palsdottur-og-onnu-sigridi-helgadottur/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/ÖnnuSiggur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180408T140000
DTEND;TZID=UTC:20180408T140000
DTSTAMP:20180407T111614Z
CREATED:20180326T164454Z
LAST-MODIFIED:20180407T111614Z
UID:10000649-1523196000-1523196000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman með Hauki Heiðari\, Halldóri og Hauki Heiðari
DESCRIPTION:Feðgarnir Haukur Heiðar Ingólfsson og synir hans Halldór og Haukur Heiðar Haukssynir leiða samsöng í Hannesarholti sunnudaginn 8. apríl kl. 14. Haukur Heiðar Ingólfsson heimilislæknir og píanóleikari hefur um áratuga skeið glatt Íslendinga með píanóleik sínum\, bæði á ferð og flugi um landið með Ómari Ragnarssyni og með fáguðum kvöldverðartónum. Geisladiskar hans með sígildum dægurlögum\, jafnt leiknum sem sungnum\, hafa notið mikilla vinsælda. Synirnir tveir hafa getið sér gott orð fyrir söng\, hvor á sínu sviði. Haukur Heiðar yngri er þjóðkunnur sem söngvari hinnar vinsælu hljómsveitar Diktu\, en Halldór hefur um árabil sungið með Mótettukór Hallgrímskirkju og fleiri kórum. Á söngskrá feðganna er fjölbreytt blanda af þekktum og skemmtilegum dægurlögum\, sænskum vísum og söngvum um vorið. \nTextar birtast á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 krónur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-hauki-heidari-halldori-og-hauki-heidari/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/Haukur-Heiðar-Ingólfsson.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR