BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20140101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180628T200000
DTEND;TZID=UTC:20180628T200000
DTSTAMP:20180502T134922Z
CREATED:20180501T125553Z
LAST-MODIFIED:20180502T134922Z
UID:10000657-1530216000-1530216000@hannesarholt.is
SUMMARY:Hulda - Hver á sér fegra föðurland?
DESCRIPTION:Hulda-Hver á sér fegra föðurland \nTónlistardagskrá í tali og tónum um líf skáldkonunnar Huldu\nHelga Kvam\, píanó og Þórhildur Örvarsdóttir\, söngur \nUnnur Benediktsdóttir Bjarklind var fæddist þann 6. ágúst 1881 og lést 10. apríl 1946. Hún skrifaði ljóð og prósa undir skáldanafninu Hulda. Eitt þekktasta ljóð hennar var ættjarðarljóðið Hver á sér fegra föðurland? úr ljóðaflokknum Söngvar helgaðir þjóðhátíðardegi Íslands 17. júní 1944\, samið í tilefni af lýðveldisstofnuninni 1944 og var annað tveggja ljóða sem vann samkeppni um hátíðarljóð. \nHelga Kvam og Þórhildur Örvarsdóttir hafa í nokkur ár starfað saman sem dúett (píanó/söngur) og haldið saman marga þematengda tónleika þar sem efnistökin eru oftar en ekki ákveðin ljóðskáld/tónskáld bæði úr klassískum grunni og heimi dægurtónlistar. Á þessum tónleikum verða flutt lög íslenskra tónskálda við texta Huldu ásamt frumflutningi á tónlist eftir Daníel Þorsteinsson sem hann sem hann samdi sérstaklega fyrir Helgu og Þórhildi fyrir þessa dagskrá. Tónlistinni er fléttað saman við frásagnir af lífi Huldu og verkum hennar. \nTónleikarnir eru styrktir af Sóknaráætlun Norðurlands eystra\, KEA\, Dagskrá Fullveldishátíðar og Listamannalaunum og unnir í samstarfi við Menningarmiðstöð Þingeyinga og Minjasafnið á Akureyri. \nAðgangseyrir á tónleikana er 3000 krónur\, eldri borgarar og öryrkjar 2000 krónur\, ókeypis inn fyrir 12 ára og yngri.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hulda-hver-a-ser-fegra-fodurland/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/05/31682463_202251160503267_6872681735050493952_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171021T150000
DTEND;TZID=UTC:20171021T150000
DTSTAMP:20171012T105942Z
CREATED:20170905T165153Z
LAST-MODIFIED:20171012T105942Z
UID:10000580-1508598000-1508598000@hannesarholt.is
SUMMARY:Minningardagskrá um Ingibjörgu Haralds
DESCRIPTION:Höfuð konunnar er… \nMinningardagskrá um Ingibjörgu Haralds\nKl. 15:00 og fram eftir degi.\nMiðasala á midi.is\nVerð: 1500\,- \n— \nNokkrar skáldkonur bjóða til samverustundar með upplestri og frásögnum í tilefni 75 ára afmælis Ingibjargar Haraldsdóttur\, skálds og þýðanda\, sem lést í nóvember s.l.  Tvær Ingibjargir hafa bæst í hópinn\, tónlistarkonurnar Ingibjörg Fríða Helgadóttir söngkona og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir píanóleikari og tónskáld munu flytja tónlist við ljóð Ingibjargar Haralds. \nIngibjörg var engu skáldi lík og afkastamikil skáldkona. Hún vann sem blaðamaður og kvikmyndagagnrýnandi á Þjóðviljanum um árabil. Frá 1981 var hún ljóðskáld og þýðandi að aðalstarfi\, en fyrsta ljóðabók hennar\, Þangað vil ég fljúga\, kom út árið 1974. Ingibjörg gaf út sex ljóðabækur\, þar af eina safnbók\, og hafa ljóð hennar verið þýdd á ungversku\, þýsku\, lettnesku\, litháísku\, búlgörsku\, rússnesku\, ensku og Norðurlandamál. Hún hlaut ýmsar viðurkenningar fyrir ritstörf sín\, meðal annars Ljóðaverðlaun Guðmundar Böðvarssonar\, Íslensku bókmenntaverðlaunin\, Menningarverðlaun DV fyrir þýðingu sína á Fávitanum eftir Dostojevskí og Íslensku þýðingarverðlaunin 2004 fyrir Fjárhættuspilarann eftir sama höfund. \nIngibjörg var einnig afkastamikill þýðandi\, aðallega úr spænsku og rússnesku. Hún þýdddi meðal annars skáldsögur eftir Dostojevskí og Búlgakov\, fjölda leikrita eftir ýmsa höfunda og þýðingar hennar á ljóðum og smásögum spænsku- og rússneskumælandi höfunda hafa birst í tímaritum og verið fluttar í útvarpi. \n— \nÞað eru kollegar hennar Auður Jónsdóttir\, Kristín Ómarsdóttir\, Kristín Steinsdóttir\, Olga Guðrún Árnadóttir\, Sigurbjörg Þrastardóttir og Vigdís Grímsdóttir sem standa fyrir viðburðinum og lesa úr verkum Ingibjargar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hofud-konunnar-er/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Samverustund
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Ingjbjörg-Haraldsdóttir-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170602T200000
DTEND;TZID=UTC:20170602T200000
DTSTAMP:20170531T153943Z
CREATED:20170305T115528Z
LAST-MODIFIED:20170531T153943Z
UID:10000208-1496433600-1496433600@hannesarholt.is
SUMMARY:Lýra norðursins og saga Auðar djúpúðgu
DESCRIPTION:Lyra fra Nord: «Unn the Deepminded – the long journey».\nSönghópurinn Lýran úr norðri „Lyra fra Nord“ segir sögu Auðar djúpúðgu í tali og tónum. \nTónleikarnir í Hannesarholti spanna helstu atriði úr ævi Auðar djúpúðgu\, eins og sagt er frá henni í Laxdælasögu. Hópurinn hefur nýlega gefið út geisladiskinn „Det som bølger uti havet\,“eða „Það sem aldan færir\,“ með lögum og ljóðum eftir Rolf Aagaton\, sem einnig leikur á lýru á tónleikunum ásamt John Vedde. Tone Holte syngur fyrir munn Auðar djúpúðgu og hefur einnig skrifað söguna í kringum tónlistina. \nFyrrnefndur geisladiskur kom út í desember 2016. Hann inniheldur bæði nýtt efni auk túlkunar á efni frá Víkingatímanum. Tónlistin er byggð á tónfræðilegum hugmyndum fólks um það hvernig víkingar tengdu við hrynjanda\, melódíu og samhljóm örfárra tóna. Hér er einnig á ferðinni tilraun til að bera fram dýpri skilning á víkingatímanum í gegnum ljóð og lag. Í umsögn um diskinn segir að flutningurinn sé kraftmikill og ástríðufullur og að rödd Tone henti tónlistinni fullkomlega. \nLyra fra nord hefur komið fram á ýmsum víkingahátíðum í Noregi um árabil og meðlimir sveitarinnar kætast mjög yfir því að geta loks flutt sögu Auðar djúpúðgu í landinu sem hún gerði að sínu. \nSaga Auðar djúpúðgu er sögð á ensku\, söngvarnir eru fluttir á norsku. \nLýrurnar sem notaðar eru við flutninginn eru báðar eftirlíkingar af ævafornum lýrum sem fundust við fornleifagröft í Svíþjóð og Noregi. \nwww.lyrafranord.no \nwww.facebook.com/lyrafranord
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lyran-ur-nordri-tonleikar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/lyra-banner1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151114T200000
DTEND;TZID=UTC:20151114T200000
DTSTAMP:20151110T134529Z
CREATED:20150912T005952Z
LAST-MODIFIED:20151110T134529Z
UID:10000402-1447531200-1447531200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Og þá kom stríðið...!"
DESCRIPTION:Dagskrá með söngvum og sögum úr Seinni Heimstyrjöldinni. \nListamenn: \nGuðrún Ásmundsdóttir\, sögumaður\nAlexandra Chernyshova\, sópran sönkona\nÁsgeir Páll Ágústsson\, baritón söngvari\nJónína Erna Arnardóttir\, píanóleikari \nVeitingastofurnar á 1.hæð verða opnar frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904. \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/og-tha-kom-stridid-4/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikhús
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/2015_nov_tonleikar_hannesarholt_og-tha-kom-stridid.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150925T200000
DTEND;TZID=UTC:20150925T200000
DTSTAMP:20150908T121851Z
CREATED:20150901T170945Z
LAST-MODIFIED:20150908T121851Z
UID:10000096-1443211200-1443211200@hannesarholt.is
SUMMARY:Hrafnar þjóðlagasveit
DESCRIPTION:Hrafnar eru hljómsveit sem hefur starfað frá árinu 2008 og er skipuð bræðrunum Georg og Vigni Ólafssonum\, bræðrunum Helga og Hermanni Inga Hermannssonum og Hlöðveri Guðnasyni. Hér eru engir nýgræðingar á ferð\, en allir eiga þeir farsælan feril í tónlistinni með vinsælum hljómsveitum gegnum tíðina.\nHrafnar gefa sig út fyrir að vera þjóðlagasveit og bendir hljóðfæraskipan hennar sannarlega í þá átt; banjó\, mandólín\, kontrabassi\, gítar\, flautur\, munnhörpur\, trommur og ásláttur allskonar. Rokkið er ekki langt undan\, enda uxu hljómsveitarmeðlimir úr grasi á tímum byltingarinnar sem Bítlarnir hrundu af stað. Hrafnar leika gjarnan Írska og Skoska tónlist\, country og bluegrass\, blues og teygja sig jafnvel lengra suður á bóginn á stundum.\nHrafnarnir eiga talsverðan sjóð eigin laga og texta og munu þeir leyfa tónlistargestum að heyra\, bæði það sem hefur verið gefið út og nýrra efni. Lög eins og Ragga\, Fríða og Rósa\, Karlinn er dauður\, Velkominn á Bísann og Stígðu ekki á strikið náðu umtalsverðri spilun á Rás 2 og komust öll í topp tíu vinsældarlista Rásar 2.\nÍ desember 2014 hófust upptökur í stúdíó Sýrland á 10 lögum sem eru í lokavinnslu og verða fljótlega verið gefin út en þar má finna lög eins og Hvert fór tíminn\, Mannlegur búfénaður\, Vesturfarar\, Þjóðarskútan og fl. Tónleikarnir verða á þjóðlegum nótum með skemmtilegu ívafi af sögum\, gríni og glensi. \nHúsið opnar kl.18.30\, léttar veitingar. Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hrafnar-thjodlagasveit/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/Hrafnar-við-Herjólfsbæ-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150917T200000
DTEND;TZID=UTC:20150917T200000
DTSTAMP:20150904T135549Z
CREATED:20150729T000155Z
LAST-MODIFIED:20150904T135549Z
UID:10000347-1442520000-1442520000@hannesarholt.is
SUMMARY:24 prelúdíur með Nathan og Rose
DESCRIPTION:„24 Prelúdíur“ er nýtt verk eftir Nathan Hall í samvinnu við píanóleikarann Rose Lachman. Verkið samanstendur af 24 stuttum þáttum\, 12 fyrir mánuði ársins frá miðaldabókum um klukkustundir og bænir og 12 þætti úr stjörnumerkjunum. Verkið byrjar á verki þess mánaðar sem það er flutt\, og rekur árið frá þeim tíma. Einnig verða flutt píanóverkin „The Well Tempered Clavier“ eftir Bach og Prelúdíur Scriabins\, auk frumsaminna verka eftir Nathan Hall. \nNathan var Fulbright styrkþegi á Íslandi veturinn 2010-11. Tónlist hans er innblásin af landslagi\, sögu og sjónlist. Hann er með doktorspróf í tónsmíðum frá Colorado Háskólanum í Boulder\, er fæddur og uppalinn í New York\, en býr í Denver\, Colorado. \nRose Lachman er frá Californiu\, en er nú búsett í Boulder\, Colorado. Hún heldur reglulega tónleika og kennir á píanó. Hún lauk nýverið doktorsprófi í píanóleik frá Colorado háskóla í Bolder\, þar sem hún var nemandi Davids Korevaar. Rose sérhæfir sig í tónlist rómantíska tímans og nýrri tónlist núlifandi tónskálda. \n24 Preludes is a new piece by Nathan Hall in collaboration with pianist Rose Lachman. The piece has 24 short movements\, 12 for the months of the year from the Medieval book of hours and prayers the Tres Riches Heures du Duc de Berry\, and 12 movements of the signs of the Zodiac. The piece begins in the month it is being played and follows the calendar through the year. The concert will also feature selections from the piano repertoire such as Bach’s Well-Tempered Clavier and Scriabin’s Preludes\, as well as original works by Hall. \nNathan Hall is a former Fulbright Fellow to Iceland in 2010-11. His music is often inspired by landscapes\, history\, and visual art. He holds his Doctoral degree in music composition from the University of Colorado at Boulder. Originally from New York\, Nathan currently lives in Denver\, Colorado. \nBorn in California\, Rose Lachman now lives in Boulder\, Colorado. She performs actively and teaches a private piano studio. She recently received her Doctorate in Musical Arts in Piano Performance from the University of Colorado at Boulder\, studying with David Korevaar. She specializes in music of the Romantic era as well as champions the creation of new works from living composers.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/24-preludiur-med-nathan-og-rose/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/07/rosenathanpromo.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150913T150000
DTEND;TZID=UTC:20150913T150000
DTSTAMP:20150908T103848Z
CREATED:20150831T153941Z
LAST-MODIFIED:20150908T103848Z
UID:10000094-1442156400-1442156400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar Notus tríó í Hannesarholti
DESCRIPTION:Notus-tríó hefur starfað saman undanfarin 6 ár og samanstendur af Pamelu De Sensi þverflautu\, Martin Frewer víólu og Ingunni Hildi Hauksdóttur píanó. Helsta hugðarefni tríósins er ný íslensk tónlist. Síðast lék tríóið á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins í mars 2014 við góðar undirtektir áheyrenda og gagnrýnenda. Í september fer tríóið í 10 daga tónleikaferð til Bretlands og Ítalíu þar sem flutt verður aðallega ný íslensk tónlist\, sem sérstaklega er samin fyrir tríóið. Einnig munu meðlimir tríósins vera með kynningu á íslenskri tónlist og tónlistarsögu\, fyrir nemendur og kennara The Accademia Nazionale di Santa Cecilia í Róm. Ferðin er styrkt af Reykjavík Loftbrú og ÚTÓN. \nEFNISSKRÁ \nELÍN GUNNLAUGSDÓTTIR (1965)  Haustvísur-hugleiðing um þrjár stemmur fyrir flautu\, víólu og píanó (2013-frumflutt 2013) Haustið líður óðum á – Fer um jörðu feigðarnótt – Laufið fýkur\, lokast blóm \nBÁRA GRÍMSDÓTTIR (1960) „Gangan langa“ fyrir flautu\, víólu og píanó (2011-frumflutt 2013) Ljósmóðir – Móðir – Ættmóðir \nSTEINGRÍMUR ÞÓRHALLSON (1974) Trio (2015-frumflutningur) \nHlé \nTATYANA NIKOLAYEVA (1924-1993) Tríó fyrir flautu\, víólu og píanó op.18 (1958) Prelude: Moderato Scherzo: Presto Monologue (solo viola): Adagio Aria: Moderato Intermezzo: Moderato Pastorale: Andante Fantasy March: Tempo do marcia Finale: Allegro ma non troppo \nMARTIN FREWER (1960) Revelation (2015-frumflutningur) Happiness – Deception – Discussion – Confusion – Cooperation \nElín Gunnlaugdóttir: Verkið Haustvísur var skrifað síðsumars og haustið 2013. Verkið skiptist í þrjá kafla og byggir hver þeirra á einni stemmu úr Silfurplötusafni Iðunnar. Heiti hvers kafla er dregið af vísunum sem oftast eru kveðnar við stemmurnar. Fyrsti kaflinn verksins ber heitið Haustið líður óðum á. Kaflinn er hægur\, en í vísunum er fjallað um veðrabrigðin sem verða á haustin\, sumarblíðan fer og kuldinn sem læðist að. Annar kaflinn ber heitið Fer um jörðu feigðarnótt. Kaflinn er hraður og ákveðinn. Vindurinn og kuldinn eira engu. Allt fölnar og deyr. Þriðji og seinasti kaflinn ber heitið Laufið þýtur lokast blóm. Verkið endar í sátt. Allt fölnar og deyr og við verðum að hlíta því. Vísa eftir Einar Bachmann sem oft er kveðin við stemmuna hljóðar svo: Laufið þýtur lokast blóm/leiðin þrýtur vinir./Glaður lít ég drottins dóm/ deyja hlýt sem hinir. \nBára Grímsdóttir: Verkið Gangan langa er tileinkað 3 konum úr Íslandssögunni sem allar gengu langar vegalengdir. Verkið er í 3 köflum – 1. Ljósmóðir\, 2. Móðir\, 3. Ættmóðir. 1. kafli vísar til Rósu Guðmundsdóttur (Skáld-Rósu) 1795-1855. Hún var yfirsetukona\, lærði fræðin fyrst hjá móður sinni á unglingsaldri\, en síðar hjá landlækni á Seltjarnarnesi\, ein fyrsta konan sem vann ljósmóðureiðinn hér á landi. Hún flutti landshorna á milli. Starfinu og flutningunum fylgdu margar og langar göngur. Haustið 1855 hóf hún síðustu göngu sína frá Trékyllisvík og var ætlunin að fara suður Arnarvatnsheiði til Hafnafjarðar en hún veiktist á leiðinni og lést á Efra Núpi í Miðfirði og er grafin þar. 2. kafli vísar til Guðríðar Símonardóttur 1598- 1682. Hún fæddist í Vestmannaeyjum. Árið 1627 hertóku sjóræningjar um 400 íslendinga og fluttu þá nauðuga suður til Alsír og seldu í þrældóm. Guðríður og ungur sonur hennar voru ein af þeim. 9 árum síðar varð hún viðskila við son sinn er hún var leyst úr ánauð. Leiðin lá til Íslands\, stefnan tekin norður\, löng ganga gegnum Frakkland\, sigling til Kaupmannahafnar þar sem sem hún hitti Hallgrím Péturson sem varð svo eiginmaður hennar. 3. kafli vísar til Guðríðar Þorbjarnardóttur (980-1050)\, konu Leif heppna Eiríksonar. Hún var landkönnuður og ein víðförlasta kona miðalda. Hún fæddist á Ísland\, bjó einnig á Grænlandi og Vínlandi. Talið er að hún sé fyrsta Evrópska konan sem fæddi barn í Ameríku. Sögur herma að hún hafi siglt átta sinnum yfir úthöf og gengið píslagöngu yfir þvera Evrópu til Rómar. Guðríður hefur oft verið nefnd “ ættmóðirin“. Má heyra drifkraftinn í lífi hennar í tónlistinni. Steingrímur Þórhallson: Notus tríóið bað mig um að semja verk fyrir tónleikaferð þeirra til Bretlands og Ítalíu og upp úr því varð til þetta verk sem er í tveimur hlutum. Sá fyrri er nokkuð dökkur og hugsaður sem átakalítil tónlist í lauslegu passacagliu formi þar sem laglínuhljóðfærin skiptast á að skreyta bassalínuna en fá aldrei að spila hana sjálf. Síðari hlutinn er hálfgert scherzo\, léttleikandi og byggist mikið upp á tvíundum og nokkuð ómstríðu samspili sólóraddanna. \nTatjana Nikolayeva fæddist í Rússlandi 1924 og var listamaður af guðs náð\, stórkostlegur píanóleikari en einnig mikilsvirtur kennari og tónskáld. Afar minnisstæðir eru tónleikar hennar í Gamla Bíói árið 1992\, þar sem hún lék m.a. 24 preludiur og fúgur eftir sinn góða vin\, D. Shostakovich\, sem á sínum tíma hafði valið hana til af frumflytja verkið. Þekktasta upptaka með leik hennar er sögð vera píanó-umritun hennar sjálfrar á Pétri og úlfinum eftir Prokofiev. Tríóið op. 18 samanstendur af átta yndislega hugmyndaríkum smámyndum. Hver og einn kafli er stuttur en ber sterkan og bragðmikinn karakter. Ekki er vitað til þess að tríóið hafi verið flutt áður hér á landi. \nMartin Frewer: Verkið Revelation er samið í byrjun árs 2015. Verkið er í 5. köflum og vísar Martin í íslenska þjóðlagaarfinn með hljómsetningu og rythmískum hugmyndum ásamt vísun í þjóðlögin Látum af hárri heiðurbrún\, Gefðu að móðurmálið mitt og Kindur jarma í korfunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-notus-trio-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/08/NotusMyndSpeglun.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150614T160000
DTEND;TZID=UTC:20150614T160000
DTSTAMP:20150614T122430Z
CREATED:20150604T234838Z
LAST-MODIFIED:20150614T122430Z
UID:10000317-1434297600-1434297600@hannesarholt.is
SUMMARY:Söngleikir að sumarlagi með Margréti Eir og Siggu Eyrúnu
DESCRIPTION:Þær stöllur Margrét Eir og Sigríður Eyrún syngja sig inn í sumarið með uppáhlds söngleikalögunum sínum.\nÁ dagskránni verða meðal annars lög úr Hárinu\, Wicked\, Chicago\, Hairspray og Showboat svo eitthvað sé nefnt.\nBáðar eru þær löngu þekktar söngkonur og leikkonur og hafa unnið saman í leikhúsunum\, þar á meðal í Þjóðleikhúsinu í Vesalingunum og Borgarleikhúsinu í uppsetningu á Mary Poppins.\nMeð þeim á tónleikunum er Karl Olgeirsson.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songleikir-ad-sumarlagi-med-margreti-eir-og-siggu-eyrunu/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/06/hausfacebookMeirSEF-2.jpg.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150613T170000
DTEND;TZID=UTC:20150613T170000
DTSTAMP:20150609T101643Z
CREATED:20150605T213211Z
LAST-MODIFIED:20150609T101643Z
UID:10000319-1434214800-1434214800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sönghópurinn Veirurnar og Eyþór Árnason - Kórperlur og Ljóðlestur
DESCRIPTION:KÓRPERLUR & LJÓÐLESTUR \nSÖNGHÓPURINN VEIRURNAR & Eyþór Árnason skáld sameina krafta sína á þessu síðdegi. Stjórnandi Veiranna er Margrét S.Stefánsdóttir. \nSönghópurinn Veirurnar mun flytja íslenskar og erlendar kórperlur og inn á milli mun sérstakur gestur kórsins Eyþór Árnason skáld lesa uppúr nýútkominni ljóðabók sinni Norður. Veirurnar verða með geisladiska til sölu við innganginn. Enginn posi á staðnum. \nSōnghópurinn Veirurnar\nSaga Veiranna er um margt ólík sögu annarra kóra. Lengi framan af aldri var hann stjórnandalaus\, æfði ákaflega stopult og hélt ekki tónleika. Kórinn á sér engu að síður 25 ára farsæla sōgu og meira en helmingur kórfélaga hefur verið með frá upphafi. Til gamans má geta þess að flestir kórfélagarnir eru í öðrum kórum s.s. Óperukórnum\, Dómkórnum\, Karlakór Rangæinga\, Karlakór Reykjavíkur\, Karlakór Selfoss\, Kirkjukór Kálfholtskirkju\, Kirkjukór Miðdalskirkju og Kirkjukór Vídalínskirkju. Veirurnar hafa gefið út tvo geisladiska Stemning og Jólastemning sem verða til sölu fyrir og eftir tónleikana. \nMargrét S. Stefánsdóttir  \nstjórnandi Sönghópsins Veiranna hóf tónlistarnám við Tónlistarskóla Skagafjarðar og síðan lá leiðin í Tónlistarskólann í Reykjavík. Hún stundaði nám hjá Rut Magnússon\, Sieglinde Kahmann og Alinu Dubik og hefur lokið einsöngvara – og söngkennaraprófi. Margrét var einnig í píanónámi hjá Jónasi Ingimundarsyni. Margrét hefur víða komið fram sem einsöngari og stjórnar Söngsveit Hveragerðis. Hún starfar jafnframt sem söng – og píanókennari við Tónlistarskóla Árnesinga. \nEyþór Árnason skáld \ner leikari og skáld. Eyþór er menntaður i leiklist frá Leiklistarskola Íslands og hefur starfað vid sviðsstjórn um árabil\, starfaði í 20 ár frá 1987 sem sviðsstjóri hjá Stöð 2 og einnig hjá Saga film þar sem hann hefur starfað við marga af stærstu sjónvarpsvidðburdum og þáttum landsins. Eyþór var ráðinn fyrsti sviðsstjóri tónlistarhússins Hörpu fyrir opnun hússins. Eyþór hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2009 fyrir fyrstu ljóðabók sína\, Hundgá úr annarri sveit. Árið 2011 sendi hann frá sér ljóðabókina Svo ég komi aftur að ágústmyrkrinu. Eyþór mun flytja ljóð úr nýútkominni bók sinni Norður. \nKórperlur sem fluttar verða eru: \nÆtti’ég hörpu\, Lítill fugl\, Sommarpsalm\, Morgun\, Eftermiddagslur og Kväll\, Moon River\, Illur lækur\,Vinur\, Drink to me only\, Londonderry Air\, Tvær stjōrnur\, An Irish blessing\, Java-Jive og Påls fuge. \nSönghópinn Veirurnar skipa: \nSópran  \nGuðmunda Birna Ásgeirsdóttir \nHafdís Ásgeirsdóttir \nHildur Júlíusdóttir \nMaría Aðalheiður Sigurðardóttir \nSigríður H. Gunnarsdóttir \nAlt  \nErla Þorsteinsdóttir \nGerður Magnúsdóttir \nKristín Sigurðardóttir \nPálína Vagnsdóttir \n  \nTenór  \nJón Ívars \nRíkharður G. Hjartarson \nSigurður Örn Sigurgeirsson \nÞorleifur Rúnar Örnólfsson \nBassi  \nEiður Ottó Guðlaugsson \nGuðmundur Bjarnason \nPálmi Hilmarsson \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songhopurinn-veirurnar-og-eythor-arnason-koraperlur-og-ljodlestur/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/06/veirurnarfyrirmidi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150521T200000
DTEND;TZID=UTC:20150521T211500
DTSTAMP:20150413T114619Z
CREATED:20150413T112750Z
LAST-MODIFIED:20150413T114619Z
UID:10000302-1432238400-1432242900@hannesarholt.is
SUMMARY:"Og þá kom stríðið..."
DESCRIPTION:Dagskrá með söngvum og sögum úr Seinni Heimstyrjöldinni. \nListamenn: \nGuðrún Ásmundsdóttir\, sögumaður\nAlexandra Chernyshova\, sópran sönkona\nÁsgeir Páll Ágústsson\, baritón söngvari\nKjartan Valdimarsson\, píanóleikari \nVeitingastofurnar á 1.hæð verða opnar frá kl.18. Borðapantanir í síma 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/og-tha-kom-stridid-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Skemmtidagskrá
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/04/image1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR