BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240430T200000
DTEND;TZID=UTC:20240430T210000
DTSTAMP:20260616T080118
CREATED:20240408T200048Z
LAST-MODIFIED:20240429T121923Z
UID:10000852-1714507200-1714510800@hannesarholt.is
SUMMARY:Move - Kvartett Óskars Guðjónssonar í Hannesarholti á alþjóðlega jassdaginn
DESCRIPTION:Í tilefni alþjóðlega jazzdagsins 30. apríl næstkomandi býður Move\, hljómsveit Óskars Guðjónssonar\, til hátíðar í Hannesarholti. Hljómsveitina skipa auk Óskars Eyþór Gunnarsson píanisti\, Matthías Hemstock trommuleikari og Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson kontrabassaleikari. \nHvað rekur saxófónleikara áfram í því að vilja hittast helst tvisvar í viku með vinum sínum og æfa og æfa og æfa og æfa? Endursemja lögin aðeins og æfa síðan meira? \n„Undanfarin sjö ár hefur Move verið að vinna að einhverju sem við vitum ekki alveg hvað er en allir finnum við að okkur langar að vinna að sameiginlegu markmiði. Hvert það markmið er nákvæmlega hefur vafist fyrir kvartettinum. Okkur langar að dvelja áreynslulaust inni í heimi tónsmíðanna og í þeim frjálsa heimi sem skapast með spuna en líka helst að öll lög eigi sér nýjan heim á hverjum degi og að hver sá hinn frjálsi spuni eigi sér nýtt lag á degi hverjum. \nSjö árum eftir stofnun hljómsveitarinnar eða nánar tiltekið 14. febrúar sl. urðu kaflaskil í samleik okkar. Þar náðum við að sleppa tökunum á því sem við kunnum og hefja leit að því sem við kunnum ekki í sameiningu. Til þess hefur þurft hundruði ef ekki næstum þúsund klukkustundir í samveru bæði við leik og störf. Sú samvera hefur verið nauðsynleg til þess að kanna allt sem við viljum kunna\, leita að því sem við vissum ekki að við vildum kunna og kanna hvað dregur fram hið ýtrasta í fari hvors annars. Þrýstirpróf á sér stað því ekki er nóg að æfa og spila saman. Stóra kennslustundin hefur verið samhlustun á æfingar og tónleika til þess að finna hvert ferðalagið tekur mann án hljóðfæris. \nÓheft frelsi í eigin túlkun eykst eftir því sem traust vináttuböndin þéttast við samveru og skilning á þörfum hvers og eins. Það skemmtilegasta í ferðalaginu er eftirvæntingin fyrir næstu sjö árum af því sem virðist það sama\, er alltaf nýtt ef leitað er.” – Óskar Guðjónsson\, mars 2024 \nTónleikarnir hefjast kl 20 og miðaverð er 5.900 kr. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/move-kvartett-oskars-gudjonssonar-i-hannesarholti-a-althjodlega-jassdaginn/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Jazzveisla
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Q_OskarGudjonssontrio.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240420T200000
DTEND;TZID=UTC:20240420T210000
DTSTAMP:20260616T080118
CREATED:20240409T213231Z
LAST-MODIFIED:20240424T092142Z
UID:10000856-1713643200-1713646800@hannesarholt.is
SUMMARY:Á inniskónum: Floni & Magnús Jóhann
DESCRIPTION:Á inniskónum er spjalltónleikaröð Magnúsar Jóhanns píanóleikara þar sem hann fær til sín gesti víðsvegar að úr tónlistarlífi Íslendinga. Magnús setur tónlist viðmælenda sinna í nýjan búning með dyggri aðstoð hljóðgervla\, trommuheila og hljómborða af ýmsum toga og spyr þá svo spjörunum úr. Gestur Magnúsar þann 20. apríl er rapparinn Floni en hann hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins frá því að hann hóf að gefa út tónlist árið 2017. Undanfarin misseri hafa þeir unnið hörðum höndum að því að klára nýja breiðskífu Flona\, Flona III. Þeir munu telja í ný lög af plötunni auk eldri slagara og tala um sköpunarferlið og feril Flona. \nMiðaverð er 5.900 kr og tónleikarnir hefjast klukkan 20:00. Húsið opnar 19:30 og gengið er inn í Hljóðberg í Hannesarholti af Skálholtsstíg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-inniskonum-floni-magnus-johann/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/MagnusogFloni.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210620T140000
DTEND;TZID=UTC:20210620T150000
DTSTAMP:20260616T080118
CREATED:20210526T112221Z
LAST-MODIFIED:20210526T112221Z
UID:10000846-1624197600-1624201200@hannesarholt.is
SUMMARY:KAMMERHÓPURINN JÖKLA BLÆS SUMARVINDA
DESCRIPTION:Kammerhópurinn Jökla kveður sér hljóðs sumarið 2021 með tónleikum þar sem koma fram tveir framúrskarandi tréblásaraleikarar úr íslensku tónlistarlífi og leika með okkur blásarakvartetta eftir B.Britten\, J.C.Bach og Crusell. Þar ber hæst tvo óbókvartetta sem Julia Hantschel\, leiðandi óbóleikari SÍ leikur með okkur\, eftir B.Britten og J.C.Bach. Einnig mun Grímur Helgason\, klarinettuleikari SÍ leika með okkur klarinettkvartett eftir B.H. Crusell. Að endingu mun kammerhópurinn einnig frumflytja glænýtt verk eftir Gísla Magnússon tónskáld. Guðrún Hrund Harðardóttir víóluleikari verður okkur einnig til halds og traust á mjúka miðsviðinu. \nHugmyndin að Kammerhópnum Jöklu kom frá Guðnýju Jónasdóttur sellóleikara og Gunnhildi Daðadóttur fiðluleikara á vormánuðum 2020 en loksins kemur hópurinn með ferskan andvara inn í íslenskt tónlistarlíf að lokinni Covid-dvöl. Hópurinn leggur áherslu á samstarf við íslensk tónskáld\, leikur sér með íslenskan þjóðlagaarf og opnar fyrir nána samvinnu í litlum kammerhópum. Hljóðfæraleikarar hafa allir sannreynt getu sína og leika í Sinfóníuhljómsveit Íslands en þykir mikilvægt að geta tekið þátt í íslenskri tónlistarmenningu með öðru sniði. Blönduð hljóðfæraskipan gerir okkur kleift að leika sjaldheyrð tónverk úr allri tónlistarsögunni í bland við nýja á tónleikum. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kammerhopurinn-jokla-blaes-sumarvinda/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/ff056e3c-36ac-4a39-abe1-47b00e010720.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210618T200000
DTEND;TZID=UTC:20210618T210000
DTSTAMP:20260616T080118
CREATED:20210604T100846Z
LAST-MODIFIED:20210604T101056Z
UID:10000498-1624046400-1624050000@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNLEIKAR INGÓLFUR STEINSSON - BERNSKUBREK
DESCRIPTION:Ingólfur Steinsson kynnir plötu sína\, Bernskubrek\, á tónleikum í Hannesarholti\, klukkan 20 föstudaginn 18. júní næstkomandi. Lögin á plötunni fjalla um æskuárin á Seyðisfirði þar sem Ingólfur fæddist og ólst upp. Horft er til sjötta og sjöunda áratugarins og uppvaxtarárin skoðuð með augum hins fullorðna. Einnig er reynt að ganga inn í hugarheim æskunnar og lýsa henni með augum barnsins. Flest eiga lögin rætur í þjóðlögum og þjóðlagarokki.\nIngólfur hefur gefið út nokkra diska með eigin efni en á árum áður var hann meðlimur í hljómsveitinni Þokkabót.\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-ingolfur-steinsson-bernskubrek/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/06/P1020647-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210610T200000
DTEND;TZID=UTC:20210610T210000
DTSTAMP:20260616T080118
CREATED:20210512T130228Z
LAST-MODIFIED:20210527T104621Z
UID:10000842-1623355200-1623358800@hannesarholt.is
SUMMARY:GRÍN FYRIR GRENSÁS
DESCRIPTION:Hannesarholt og á-rás fyrir Grensás kynna sýninguna Grín fyrir Grensás ( Kolsvart – Sex\, Drugs and Rock&Roll) þar sem Valdimar Sverrisson ljósmyndari slær á G-streng og aðra létta strengi um  það að greinast með heilaæxli á stærð við sítrónu og missa sjónina í kjölfarið.  Valdimar vaknaði upp við vondan draum á Grensásdeild Landspítalans þegar hann áttaði sig á að hann hafði ekki enn látið gamlan draum rætast um að gerast uppistandari. Það  var því ekki eftir neinu að bíða með að ganga í verkið og verður afraksturinn fluttur í Hannesarholti\, bæði uppistand og grínmyndbönd  þar sem fram koma Ari Eldjárn og Örn Árnason auk fjölda annarra úr stafrófinu frá A til Ö. Því eins og Valdimar segir sjálfur: Að búa til myndband er það minnsta sem blindur maður getur gert. \n100% af aðgangseyri rennur til Grensás. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/grin-fyrir-grensas/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/179071720_279613317212050_8904422076095886997_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210603T200000
DTEND;TZID=UTC:20210603T210000
DTSTAMP:20260616T080118
CREATED:20210507T110053Z
LAST-MODIFIED:20210518T160602Z
UID:10000841-1622750400-1622754000@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNAR OG LJÓÐ VALGERÐAR Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Valgerður Jónsdóttir\, tónlistarkona frá Akranesi\, á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlistinni og á orðið mikið safn laga og texta sem hún hefur samið gegnum tíðina.\nÁ dagskrá tónleikanna verður fjölbreytt blanda af tón- og textasmíðum Valgerðar en hún hefur bakgrunn í klassískri tónlist sem og popp og þjóðlagatónlist og endurspeglast þessi áhrif í tónlist hennar. Valgerður syngur og leikur á píanó/gítar en með sér á tónleikunum hefur hún frábæran hóp samstarfsfólks sem hún hefur unnið með áður við ýmis tónlistartengd verkefni. Þá verða flutt nokkur íslensk þjóðlög í bland við frumsömdu lögin. Gaman er að geta þess að á tónleikunum verður flutt lag Valgerðar\, Áraskiptin 1901-1902\, sem hún samdi við ljóð Hannesar Hafstein\, en lagið hlaut 1. verðlaun í Lagakeppni Hannesarholts haustið 2020.\nMeð Valgerði á tónleikunum leika:\nÞórður Sævarsson gítar\nSylvía Þórðardóttir harmonikka\, ukulele og söngur\nSveinn Arnar Sæmundsson píanó\nArnar Óðinn Arnþórsson trommur\nSveinn Rúnar Grímarsson bassi\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonar-og-ljod-valgerdar-i-hannesarholti/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/Valgerdur-800x600-1.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210529T180000
DTEND;TZID=UTC:20210529T220000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210525T142143Z
LAST-MODIFIED:20210526T153423Z
UID:10000843-1622311200-1622325600@hannesarholt.is
SUMMARY:DJ BJÖRK - TÓNLIST OG MATUR Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Afrískur andi í Hannesarholti\, taktur og matur. Björk Guðmundsdóttir söngkona þeytir skífum við Afríkanska matargerð Ogolúgó. Gestir geta rabbað saman undir taktfastri tónlist eða dansað. Gleðilegt sumar !! \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dj-bjork-tonlist-og-matur-i-hannesarholti/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/bjork.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210528T160000
DTEND;TZID=UTC:20210528T180000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210526T120151Z
LAST-MODIFIED:20210526T124219Z
UID:10000847-1622217600-1622224800@hannesarholt.is
SUMMARY:MÖMMUSTRÁKUR GUÐNA KOLBEINSSONAR Í NÝRRI ÚTGÁFU
DESCRIPTION:Guðni Kolbeinsson\, þýðandi og rithöfundur\, las söguna Mömmustrák í útvarpi árið\n1982. Sama ár kom hún út á bók. Sú bók varð geysivinsæl og fyrir hana hlaut Guðni\nverðlaun Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir bestu frumsömdu barnabókina þetta ár. \nSagan hefur verið ófáanleg um áratuga skeið en kemur nú út í nýrri útgáfu hjá\nBókafélaginu\, með nýjum myndum\, eftir Kristínu Bertu\, dóttur höfundar. \nÞau feðginin kynna bókina í Hljóðbergi föstudaginn 28. maí kl. 16–18. Þar sem\nhöfundurinn á afmæli þennan dag gefst gestum færi á að óska honum til lukku\,\nþiggja örlitla hressingu og kaupa svo nokkrar bækur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mommustrakur-gudna-kolbeinssonar-i-nyrri-utgafu/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Útgáfuhóf
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/utgafa.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210517T170000
DTEND;TZID=UTC:20210517T183000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210505T104306Z
LAST-MODIFIED:20210505T104803Z
UID:10000838-1621270800-1621276200@hannesarholt.is
SUMMARY:Aðalfundur Hannesarholts
DESCRIPTION:Aðalfundur Hannesarholts verður haldinn í Hannesarholti á Grundarstíg 10 Reykjavík mánudaginn 17.maí kl.17. Venjuleg aðalfundastörf. Áhugasamir skrái þátttöku á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/adalfundur-hannesarholts/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Aðalfundur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/Hannesarholt-JulietteRowland3-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210516T140000
DTEND;TZID=UTC:20210516T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210302T120208Z
LAST-MODIFIED:20210409T133010Z
UID:10000834-1621173600-1621177200@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ MJÖLL HÓLM
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar\, sönghefðinni\, og býður uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks\, eins og við höfum síðastliðin 8 ár frá stofnun Hannesarholts. Streymt er frá stundinni á fésbókarsíðu Hannesarholts\, en einnig eru gestir velkomnir að taka þátt á staðnum. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum\, sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nAð þessu sinni er það engin önnur en Mjöll Hólm sem stýrir söngstundinni ásamt Hörpu okkar Þorvaldsdóttur. Allir landsmenn af eldri kynslóðinni þekkja nafn Mjallar\, enda heyrðist rödd hennar í útvarpi landsmanna alla daga á árum áður. Mjöll kom fyrst fram fjórtán ára gömul á tónleikum á vegum Svavars Gests í Austurbæjarbíói 1959 og fáar íslenskar söngkonur eiga lengri feril að baki en hún. Mjöll söng með ýmsum hljómsveitum í gegnum tíðina og hefur gefið út nokkrar plötur. Hún nýtur virðingar sem ein af fyrstu rokksöngvurum íslenskrar tónlistarsögu og lagið hennar um hann Jón sem er kominn heim heyrist enn reglulega leikið í útvarpi og víðar. Það mun án efa vera á lagalistanum í Hannesarholti\, ásamt Mamy blue og fleiri gamalkunnugum slögurum og tilhlökkunarefni að taka undir með henni í þeim. \nVeitingstofur Hannesarholts eru opnar frá 11.30-17 alla daga nema mánudaga og helgardögurður er framreiddur til 14.30. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-mjoll-holm/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/Mjoll_stoll-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210509T140000
DTEND;TZID=UTC:20210509T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210302T115203Z
LAST-MODIFIED:20210409T133012Z
UID:10000833-1620568800-1620572400@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ SIGTRYGGI BALDURSSYNI
DESCRIPTION:Hannesarholt hefur hlúð að söngarfi þjóðarinnar frá stofnun fyrir átta árum\, með fjöldasöngstundum annan hvert sunnudag. Textar á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri.  Sunnudagsins 9.apríl er stjórnað af engum öðrum en Sigtryggi Baldurssyni\, sem margir þekkja undir heitinu Bogomil Font. Harpa Þorvaldsdóttir tónmenntakennari og tónlistarkona leikur með á píanó. \nSigtryggur Baldursson hefur komið víða við í tónlistarlífinu\, hóf feril sinn sem trommuleikari á níunda áratug síðustu aldar með hljómsveitum sem báru nöfn eins og Þeyr\, Kukl og síðast en ekki síst\, Sykurmolarnir sem náðu að ferðast víðar með sína tónlist um heiminn en tíðkast hafði fram til þess\, og ekki var það til trafala að þar söng ung kona að nafni Björk\, sem átti eftir að setja mark sitt duglega í tónlistarsöguna.  En árið 1992 þegar Sykurmolarnir voru bráðnaðir setti Sigtryggur saman óvenjulegan hóp manna sem hóf að leika tónlist sem var nánast polar andstæða þess sem hann hafði fengist við áður\, en hljómveitin bar það óvenjulega nafn\, Bógómíl og Milljónamæringarnir.  Þóttust ýmsir ráða í að þar væri nú ekki allt með fyllstu alvöru\, enda var hann þar með að búa sér til aukasjálf sem var krúner af gamla skólanum og var farinn að fást við dægurtónlist sem foreldrar hans og foreldrar þeirra jafnvel\, höfðu alist upp við. Má segja að þetta hafi verið nokkurs konar fornleifa-tónlistarnám hans en rannsóknarvinnan varð aðeins vinsælli meðal almennings á Íslandi en hann hafði órað fyrir og sló Bogomil í gegn árið 1993 með laginu um Marsbúana glaðbeittu af diskinum “ekki þessi leiðindi” sem var einn af metsöludiskum þess árs.Síðan þá hefur Bogomil gefið út nokkra diska og haldið áfram að skoða tónlist fyrri ára\, unnið mikið með Tómasi R. Einarssyni og stórsveit Reykjavikur svo einhverjir séu nefndir\, en Sigtryggur hefur og haldið áfram að vinna sem trommuleikari og gefið út nokkra diska með mismunandi verkefnum\, bæði eigin tónsmíðar og leikið fyrir aðra. Þar má nefna tónlistarverkefni eins og Steintryggur\, Parabólur og svo tónlistarfólk eins og Emilíönu Torrini og Pétur Ben.  Hann hefur einnig samið tónlist fyrir kvikmyndir og þætti\, ásamt leikhúsverkum. \nFrá árinu 2012 hefur Sigtryggur hins vegar unnið sleitulaust að framgangi íslenskrar tónlistar á alþjóðavettvangi undir merkjum ÚTÓN\, útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar\, sem hann stýrir.  Hann tekur lagið reglulega\, bæði opinberlega\, en líka með vinum og kunningjum. Gestum býðst að taka þátt í stundinni í Hannesarholti\, en einnig verður streymt frá söngnum á fésbókarsíðu Hannesarholts.  Sigtryggur fer á flug vítt og breitt um dægurtónlistarsöguna\, svo engum ætti að leiðast! \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar frá 11:30-17 alla daga nema mánudaga og helgardögurður er framfreiddur til kl.14.30. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholts@hannesarholts.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-sigtryggi-baldurssyni/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/Sigtryggur_Baldursson_-_PopTech_2012_1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210502T140000
DTEND;TZID=UTC:20210502T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210426T130436Z
LAST-MODIFIED:20210502T143148Z
UID:10000839-1619964000-1619967600@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN MEÐ UPPSIGLINGU
DESCRIPTION:Hannesarholt hefur hlúð að söngarfi þjóðarinnar frá stofnun fyrir átta árum\, með fjöldasöngstundum annan hvern sunnudag. Textar á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri.\nSöngstund sunnudagsins 2.maí er stjórnað af Uppsiglingu\, félagi fólks á suðurnesjum sem alla jafna kemur saman í Skátaheimilinu í Keflavík til að syngja sér til ánægju við undirleik gítars\, mandólíns\, bassa og fleiri hljóðfæra. Uppsigling hefur starfað frá 1995 og átti forvera í söng-og skemmtifélaginu Samstillingu\, sem starfaði á árum áður í Hljómskálanum í Reykjavík. Söngfélagar hafa sérstaka ánægju af að halda lífi í gömlum lögum og textum sem heyrast sjaldan núorðið. \n \nHannesarholt er opið frá 11.30-17 á sunnudögum og eru gestir velkomnir í sönginn. Einnig verður streymt frá söngstundinni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-uppsiglingu/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/04/syngjum-saman-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210411T140000
DTEND;TZID=UTC:20210411T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210302T114212Z
LAST-MODIFIED:20210409T133016Z
UID:10000496-1618149600-1618153200@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ VALGERÐI OG ÞÓRÐI
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar\, sönghefðinni\, og býður uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks\, eins og við höfum gert síðastliðin átta ár\, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Gestir eru nú velkomnir að taka þátt á staðnum\, en einnig verður streymt er frá stundinni á fésbókarsíðu Hannesarholts. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum\, sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nHjónin Valgerður Jónsdóttir\, tónmenntakennari og söngkona og Þórður Sævarsson\, gítarleikari\, hafa unnið saman í tónlistinni frá unglingsaldri\, gefið út eigið efni og komið fram á ótal tónleikum og viðburðum á Íslandi\, í Danmörku og fleiri löndum.Síðastliðin tvö ár hafa þau starfað undir nafninu Travel Tunes Iceland við að kynna íslensk þjóðlög fyrir ferðafólki. Valgerður hefur stjórnað fjölda söngstunda fyrir börn og fullorðna og stýrir m.a. þremur kórum á Akranesi\, þar sem hún og Þórður eru búsett. Þau hjónin reka þar fyrirtæki sitt\, afþreyingarsetrið Smiðjuloftið.\n\nStreymið er hægt nýta áfram\, þar sem það er vistað á fésbókarsíðu Hannesarholts\, og fólk getur sungið með heima hjá sér. Veitingastofur Hannesarholts eru opnar alla daga nema mánudaga frá 11.30 ö 17.  Helgardögurður er framreiddur til kl.14.30.\nFrekari upplýsingar má finna á tónlistarsíðu Valgerðar: https://www.facebook.com/musicalavala \nSíðast en ekki síst var vann Valgerður fyrstu verðlaun í Lagakeppni Hannesarholts síðastliðið haust með lag við ljóð Hannesar Hafstein Áraskiptin 1901-2. https://www.youtube.com/watch?v=j3nFOdwQi78
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-valgerdi-og-thordi-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/valgerdurogthordur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210328T140000
DTEND;TZID=UTC:20210328T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210302T112732Z
LAST-MODIFIED:20210302T153319Z
UID:10000494-1616940000-1616943600@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ INGIBJÖRGU FRÍÐU OG SIGURÐI INGA
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar\, sönghefðinni\, og býður uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks\, eins og við höfum gert frá stofnun 2013\, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Gestir eru nú velkomnir að taka þátt á staðnum\, en einnig verður streymt er frá stundinni á fésbókarsíðu Hannesarholts. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum\, sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nIngibjörg Fríða og Sigurður Ingi stjórna söngstundinni í Hannesarholti í annað sinn sunnudaginn 28.mars kl.14. Þau starfa og hrærast í ýmsum stílum tónlistar í íslensku senunni. Ingibjörg Fríða er söngkona með klassíska og rytmíska menntun\, syngur í jazz- og popphljómsveitum\, klassískum kammerkórum og flytur eigin músík og annarra við ýmis tækifæri. Sigurður Ingi er menntaður slagverksleikari og hefur spilað með rokkhljómsveitum (VAR\, Brött Brekka og Man Kind)\, í leikhúsi og sem meðleikari hjá ýmsum listamönnum. Hann gefur einnig út frumsamda tónlist undir eigin nafni. Saman hafa þau komið víða fram sem tvíeyki\, sungið og spilað dægurlög og þjóðlagatónlist ásamt því að kenna tónlistarvinnusmiðjur. \nHannesarholt er opið frá 11.30-17 alla daga nema mánudaga og helgardögurður er framreiddur kl.14.30. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-ingibjorgu-fridu-og-sigurdi-inga/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/siggiogingibjorg-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210314T140000
DTEND;TZID=UTC:20210314T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210302T112347Z
LAST-MODIFIED:20210302T152434Z
UID:10000492-1615730400-1615734000@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ MARÍNU & MIKAEL
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar\, sönghefðinni\, og býður uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks\, eins og við höfum gert frá stofnun 2013\, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Gestir eru nú velkomnir í sal\, en einnig er streymt frá stundinni á fésbókarsíðu Hannesarholts. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum\, sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nSöngkonan Marína Ósk og gítarleikarinn Mikael Máni stýra Syngjum saman í annað sinn í Hannesarholti sunnudaginn 14.mars kl.14. Þau hafa starfað saman í rúm 6 ár sem dúettinn Marína & Mikael. Þau hafa getið sér gott orð á Íslenskri tónlistarsenu síðustu ár en fyrsta plata þeirra\, “Beint heim” var tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna sem jazzplata ársins 2018\, auk þess sem sólóplötur þeirra beggja voru tilnefndar árið 2020. \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar frá 11.30-17 alla daga nema mánudaga. Heigardögurður framreiddur til kl.14.30. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-marinu-mikael-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/marina-og-mikael-mani-2-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210304T200000
DTEND;TZID=UTC:20210304T211500
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210302T105938Z
LAST-MODIFIED:20210302T153445Z
UID:10000491-1614888000-1614892500@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ AÐALBJÖRGU - FYRIR HVAÐ VERÐUR ÞÍN MINNST?
DESCRIPTION:Kvöldstund í Hannesarholti með Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur fimmtudagskvöldið 4.mars kl.20. Aðalbjörg fjallar um Samskiptaboðorðin og áhrif góðra samskipta á einstaklinga og samfélagið allt í fortíð\, nútíð og framtíð. Alla daga eigum við í samskiptum\, við aðra og okkur sjálf. Samskipti hafa áhrif á líðan og lífsreynsla\, uppeldi\, sjálfsþekking og persónulegir eiginleikar geta ýmist eflt eða dregið úr samskiptafærni. Samskiptaboðorðin eru leiðarvísir um góð samskipti og gera mögulegt að takast á við aðstæður með jákvæðum hætti sem styður við góð tengsl og eykur hamingju og lífsgæði. \nKrefjandi aðstæður undangenginna mánaða hafa skapað aðstæður óvissu og ótta og takmarkað samskipti\, jafnframt hafa vellíðan og velferð fengið dýpri merkingu. Þörfin fyrir samskipti og tengsl\, að iðka aðferðir til að hlúa að sér og gæta að þeim sem varnarlausastir eru í samfélaginu verður ríkari þegar óvissa ríkir. Það er vert að velta upp með hvaða hætti góð samskipti hafa grundvallað framþróun og farsæld samfélaga og einstaklinga í gegnum tíðina; að horfa til myndugra fyrirmynda og reynslu forfeðra okkar og -mæðra í þeim tilgangi að auka þekkingu á mikilvægi góðra samskipta meðal einstaklinga í samfélagi nútímans. \nVið minnumst þeirra sem hafa gengið á undan með góðu fordæmi\, lagt gott til samfélagsins og átt í góðum samskiptum. Maya Angelou sagði: Fólk mun gleyma því sem þú segir og gerir\, en fólk mun aldrei gleyma hvernig þeim leið í návist þinni. Í því samhengi verður athygli beint að mikilvægu hlutverki góðra samskipta og hver og einn veltir fyrir sér Fyrir hvað verður þín minnst? \nAðalbjörg er fimm barna móðir\, hjúkrunarfræðingur\, rithöfundur og sjálfstætt starfandi fræðikona. Ástríðu hennar fyrir aukinni þekkingu á góðum samskiptum og áhrifum þeirra á einstaklinga og samfélög má rekja allt til barnæsku og reynslu hennar sjálfrar af samskiptum. Það hefur endurspeglast í lífsferðalagi hennar og starfsvali. Hún bjó til og gaf út leiðarvísi um góð samskipti; Samskiptaboðorðin\, árið 2012 og fjórum árum síðar kom samnefnd bók út eftir hana hjá JPV útgáfu. Hún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur og stjórnandi innan heilbrigðiskerfisins og annast kennslu og námskeiðahald þar sem meginviðfangsefnin eru samskipti og tengsl. Nú um stundir rannsakar hún og skrifar bók um einmanaleikann og stundar doktorsnám við Háskóla Íslands þar sem hún beinir sjónum að upplifun stjórnenda í heilbrigðis- og menntakerfinu á Íslandi af áskorunum\, álagi og bjargráðum á tímum COVID-19. \nUm viðburðinn í Hannesarholti \nAlla daga eigum við í samskiptum\, við aðra og okkur sjálf. Samskipti hafa áhrif á líðan\, og lífsreynsla\, uppeldi\, sjálfsþekking og persónulegir eiginleikar geta ýmist eflt eða dregið úr samskiptafærni. Samskiptaboðorðin eru leiðarvísir um góð samskipti og gera mögulegt að takast á við aðstæður með jákvæðum hætti sem styður við góð tengsl og eykur hamingju og lífsgæði. \nKrefjandi aðstæður undangenginna mánaða hafa skapað aðstæður óvissu og ótta og takmarkað samskipti\, jafnframt hafa vellíðan og velferð fengið dýpri merkingu. Þörfin fyrir samskipti og tengsl\, að iðka aðferðir til að hlúa að sér og gæta að þeim sem varnarlausastir eru í samfélaginu verður ríkari þegar óvissa ríkir. Það er vert að velta upp með hvaða hætti góð samskipti hafa grundvallað framþróun og farsæld samfélaga og einstaklinga í gegnum tíðina; að horfa til myndugra fyrirmynda og reynslu forfeðra okkar og -mæðra í þeim tilgangi að auka þekkingu á mikilvægi góðra samskipta meðal einstaklinga í samfélagi nútímans. \nVið minnumst þeirra sem hafa gengið á undan með góðu fordæmi\, lagt gott til samfélagsins og átt í góðum samskiptum. Maya Angelou sagði: Fólk mun gleyma því sem þú segir og gerir\, en fólk mun aldrei gleyma hvernig þeim leið í návist þinni. Í því samhengi verður athygli beint að mikilvægu hlutverki góðra samskipta og hver og einn veltir fyrir sér Fyrir hvað verður þín minnst? \nStefán Örn Viðarsson og Guðný Lára Gunnarsdóttir þátttakendur í lagakeppni Hannesarholts flytja lag sitt við ljóð Hannesar Hafstein: Strikum yfir stóru orðin. \nKvöldmatur er framreiddur í veitingastofunum á undan viðburðinum. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-adalbjorgu-fyrir-hvad-verdur-thin-minnst/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/adalbjorg_sitjandi-1--scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210131T140000
DTEND;TZID=UTC:20210131T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210115T120740Z
LAST-MODIFIED:20210115T120740Z
UID:10000462-1612101600-1612105200@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ INGVARI VALGEIRSSYNI
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að innsta kjarna íslenskrar menningar\, sönghefðinni\, og býður uppá samsöng fyrir alla\, unga sem aldna\, íslendinga sem aðflutta\, undir stjórn kunnáttufólks\, eins og við höfum gert frá stofnun 2013. Streymt er frá stundinni á fésbókarsíðu Hannesarholts\, en einnig eru gestir velkomnir þegar sóttvarnir leyfa. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum\, sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nIngvar Valgeirsson leiðir söngstundina sunnudaginn 31.janúar kl.14. Ingvar hefur starfað sem trúbador í fjöldamörg ár og leikið um allt land. Þetta er í annað sinn sem Ingvar stjórnar Syngjum saman í Hannesarholti. \nVeitingastofurnar eru opnar frá 11.30-17 alla daga nema. Helgardögurður framreiddur til kl.14.30.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-ingvari-valgeirssyni/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bein útsending,Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingvargraeni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210124T121500
DTEND;TZID=UTC:20210124T131500
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210115T121741Z
LAST-MODIFIED:20210115T121741Z
UID:10000464-1611490500-1611494100@hannesarholt.is
SUMMARY:SELLÓPERLUR BACHS MEÐ GEIRÞRÚÐI ÖNNU
DESCRIPTION:Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir leikur þrjár einleikssvítur eftir Johann Sebastian Bach. Einleikssvítur Bachs eru perlur sellóbókmenntanna. Hver svíta hefur sína eigin tóntegund\, brag\, og sérstæðu. Fyrsta svítan sem hljómar hér er hin fræga G-dúr svíta nr. 1. Hún einkennist af svo til barnslegum einfaldleika\, tærleika og sakleysi. Svíta nr. 2 í d-moll sem hljómar næst einkennist af sama tærleika en annars er blærinn annar. Önnur svítan er alvarleg\, innhverf og íhugul að yfirbragði. Stokkið er svo fram í tímann til þess að ljúka tónleikunum en fagnaðarómur sjöttu svítunnar í D-dúr mun enda þess hádegisstund. Sjötta svítan er í alla staði andhverfa annarrar svítunnar. Hún er gáskfull\, opinská og hetjuleg. Sjötta svítan er óvenju íþróttamannsleg í flutningi en það má að hluta til rekja til þess að hún var upphaflega samin fyrir svokallað piccolo selló – selló með fimm strengi frekar en fjóra. Í hefðbundnum flutningi er verkið því umskrifað fyrir fjögurra-strengja selló sem gerir það að verkum að verkið spannar allt raddsvið sellósins á hátt sem aðrar sellósvítur Bachs gera ekki. \nEfnisskrá: \nJ.S. Bach: Svíta nr. 1 í G-dúr \nPrelude \nAllemande \nCourante \nSarabande \nMinuet I & II \nGigue \nJ.S. Bach: Svíta nr. 2 í d-moll \nPrelude \nAllemande \nCourante \nSarabande \nMinuet I & II \nGigue \nHlé \nJ.S. Bach: Svíta nr. 6 í D-dúr \nPrelude \nAllemande \nCourante \nSarabande \nGavotte I & II \nGigue \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar til kl.17 og helgardögurður er fram borinn til kl.14.30. Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/selloperlur-bachs-med-geirthrudi-onnu/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/geirthruduranna.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210113T200000
DTEND;TZID=UTC:20210113T210000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20201027T201808Z
LAST-MODIFIED:20201027T201808Z
UID:10000660-1610568000-1610571600@hannesarholt.is
SUMMARY:LJÚFIR JAZZTÓNAR Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Söngvarinn Hólmar Guðmunds ásamt píanistanum Jóni Ingimundar hafa valið sína uppáhalds jazzstandarda og efna til notalegrar kvöldstundar í Hannesarholti fimmtudagskvöldið 5.nóvember kl.20\, þar sem Ella Fitzgerald\, Chet Baker og fleiri hafa veitt þeim innblástur í lagavalið. \nHólmar nam jazzsöng við tónlistarskóla FíH / MÍT og lauk þaðan framhaldsprófi. Hann þenur upp raust sína við fallegan undirleik Jóns Ingimundar píanista og fá ljúfar ballöður að njóta sín. \nTryggið ykkur miða og eigið notalega kvöldstund með okkur. \nBorðapantanir fyrir kvöldmat á undan tónleikunum í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \nYour Content Goes Here
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljufir-jazztonar-i-hannesarholti/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/LJUFIR-JAZZTONAR.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201213T140000
DTEND;TZID=UTC:20201213T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20201027T200519Z
LAST-MODIFIED:20201027T200519Z
UID:10000659-1607868000-1607871600@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ BREKI
DESCRIPTION:Hannesarholt hlúir að söngmenningu þjóðarinnar með því að bjóða uppá samsöng reglulega á sunnudögum\, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka  undir. Hljómsveitin Brek leiðir sönginn sunnudaginn 13. desember í Syngjum saman með Hörpu Þorvaldsdóttur í fararbroddi\, sem hefur haldið utanum söngstundirnar í Hannesarholti undanfarnar annir. \nBrek er ný hljómsveit sem stofnuð var haustið 2018. Meðlimir sveitarinnar hafa síðan þá leitast við að finna sinn rétta hljóm og gefið sér tíma í þá vinnu. \nNú í desember er hljómsveitin hinsvegar komin í jólabúning og mun flytja öll okkar helstu jólalög ásamt ykkur sunnudaginn 13. desember í Syngjum saman. \nÁhersla er á að tvinna saman hinum ýmsu áhrifum frá mismunandi stílum þjóðlaga- og dægurtónlistar. Einnig reynir sveitin að finna nýjar og spennandi leiðir við notkun hljóðfæranna til að skapa grípandi og þægilega stemningu\, en jafnframt krefjandi á köflum. Lög sveitarinnar eru sungin á íslensku en hún leggur áherslu á að nota fjölskrúðugt orðbragð og nýta þannig hinn mikla og fallega orðaforða sem íslenskan hefur upp á að bjóða. Lög hljómsveitarinnar sækja innblástur sinn meðal annars í íslenska náttúru og veðrabrigði. \nÁhrif tónlistarinnar koma úr ýmsum áttum en Brek vill leitast við að tvinna þeim saman í sinn hljóðheim og leitast þannig við að brjóta niður múra á milli tónlistarstefna ásamt því að tengja íslenskan þjóðlagaarf við aðrar tegundir þjóðlagatónlistar. Íslenska texta og raddir í bland við samspil rythmísks og dínamísks samtals hljóðfæranna notar Brek til að drífa tónlistina. \nHannesarholt er opið frá 11:30-17 og eldhúsið er opið til 14.30.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-breki/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/Brek.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201206T140000
DTEND;TZID=UTC:20201206T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20201027T200200Z
LAST-MODIFIED:20201027T200200Z
UID:10000658-1607263200-1607266800@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ ÞRÁNI ÁRNA
DESCRIPTION:Jólalögin\, heita súkkulaðið og allir sultuslakir. \nÞráinn Árni Baldvinsson\, tónlistarkennari og gítarleikari í hljómsveitinni Skálmöld ætlar að halda í jólahefðina og mætir í Hannesarholt sunnudaginn 6. desember með jólahugvekju og söng. \nHannesarholt hlúir að sönghefðinni með því að bjóða uppá Syngjum saman tvisvar í mánuði alla jafna. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. Textar á tjaldi svo allir geta tekið undir. Streymt verður frá stundinni til að þeir sem ekki eiga heimangengt geti líka tekið þátt. \nHannesarholt er opið frá 11:30-17 og eldhúsið er opið á sunnudögum til 14.30.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-thrani-arna/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/THrainn-Arni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201129T121500
DTEND;TZID=UTC:20201129T124500
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20201027T164514Z
LAST-MODIFIED:20201027T164950Z
UID:10000318-1606652100-1606653900@hannesarholt.is
SUMMARY:TRÍÓ VEST - TÓNLEIKAR Í STREYMI
DESCRIPTION:Píanótríóið „Tríó Vest“ heldur hálftíma langa tónleika í streymi sunnudaginn 29.nóvember kl.12.15. Tríóið skipa: Áslaug Gunnarsdóttir á píanó\, Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir á fiðlu og Victoría Tarevskaia á selló. \nÞær eru allar kennarar við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og hafa leikið saman í ýmsum kammermúsíkhópum og hljómsveitum um árabil. \nEfnisskrá: \n„Píanótríó Opus 17“ eftir Clöru Schumann. \n„Allegro Moderato“ \n„Scherzo. Tempo di Menuetto“ \n„Andante“ \n„Allegretto“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/trio-vest-tonleikar-i-streymi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/Trio-Vest.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201122T140000
DTEND;TZID=UTC:20201122T150000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20201027T163731Z
LAST-MODIFIED:20201027T163731Z
UID:10000316-1606053600-1606057200@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ INGIBJÖRGU OG SIGURÐI
DESCRIPTION:Hannesarholt hefur hlúð að sönghefðinni síðastliðin rúm sjö ár með því að bjóða reglulega uppá fjöldasöng í Hljóðbergi. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Ingibjörg Fríða og Sigurður Ingi stjórna söngstundinni sunnudaginn 22.nóvember \nIngibjörg og Sigurður starfa og hrærast í ýmsum stílum tónlistar í íslensku senunni. Ingibjörg Fríða er söngkona með klassíska og rytmíska menntun\, syngur í jazz- og popphljómsveitum\, klassískum kammerkórum og flytur eigin músík og annarra við ýmis tækifæri. Sigurður Ingi er menntaður slagverksleikari og hefur spilað með rokkhljómsveitum (VAR\, Brött Brekka og Man Kind)\, í leikhúsi og sem meðleikari hjá ýmsum listamönnum. Hann gefur einnig út frumsamda tónlist undir eigin nafni. Saman hafa þau komið víða fram sem tvíeyki\, sungið og spilað dægurlög og þjóðlagatónlist ásamt því að kenna tónlistarvinnusmiðjur. \nIngibjörg Fríða Helgadóttir\, söngur\nSigurður Ingi Einarsson\, gítar og söngur \nHannesarholt er opið frá 11.30-17 alla daga nema mánudaga og eldhúsið er opið til kl.14.30 á sunnudögum og framreiðir okkar rómaða helgardögurð.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-ingibjorgu-og-sigurdi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/Ingibjorg-og-Sigurdur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200919
DTEND;VALUE=DATE:20201011
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210119T142455Z
LAST-MODIFIED:20210119T142455Z
UID:10000475-1600473600-1602374399@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTING - INGIBJÖRG RÁN GUÐMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Ingibjörg Rán opnar sýninguna Birtingu í Hannesarholti laugardaginn 19.september kl.15.00-17.00. Verkin á sýningunni eru olíumálverk unnin fyrir sýningu í Hannesarholti. Myndefni frá Reykjavík\, Grundarfirði\, Vík og Grímsnesi. Sýningin er sölusýning og stendur til 9. október.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birting-ingibjorg-ran-gudmundsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingibjorgran.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200314
DTEND;VALUE=DATE:20200527
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210119T143300Z
LAST-MODIFIED:20210119T143300Z
UID:10000814-1584144000-1590537599@hannesarholt.is
SUMMARY:FEGURÐ OG FÖGNUÐUR / SERENITY AND CELEBRATION - VIGNIR JÓHANNSSON
DESCRIPTION:Vignir Jóhannsson listmálari opnar sýningu sína Fegurð og fögnuður / beauty and serenity í veitingastofum Hannesarholts laugardaginn 14.mars kl.15. Á sýningunni eru landslagsmálverk og fíguratíf\, „sjáðu mig“ verk\, sem Vignir hefur unnið að undanförnu í Danmörku\, þar sem hann býr og starfar. \nVignir hefur starfað að myndlist og sýnt verk sín allt frá árinu 1978\, bæði á Íslandi og víða erlendis. Hann hefur yfir ferilinn unnið grafíkverk\, skúlptúra\, leikmyndir og málverk. Sýningin er sölusýning og stendur fram að páskum\, að minnsta kosti. \nFegurð og fögnuður \nÞað getur gerst við listsköpun að fegurð mæti fordómum ef listamaðurinn heldur henni frá verki sínu. Í staðinn fyrir fegurðina býr hann til listaverk sem hverfist til dæmis um andstæða krafta sem takast á um tilfinningar og veita verkinu afl og styrk. Allt annað gerist ef fegurðin er sett í framsætið. Listamaðurinn þarf að finna þá þörf hjá sér að einfalda viðfangsefnið og koma fegurðinni\, eins og hann sér hana\, fyrir í túlkun sinni í verkinu. Oft þarf að treysta á skynjun fegurðarinnar til að geta túlkað hana einfaldlega og án tilgerðar. Þetta er ekki alltaf auðvelt þar sem fegurðin er svo margbrotin. Reynsla listamannsins ræður vali hans á myndefni\, litum og formum. Þessi verk eru mín túlkun á fegurð og fögnuði sem lífið hefur fært mér gegnum tíðina. \nFegurðin \nNáttúran er meira undraverk en listin getur nokkru sinni náð að fullkomna. Í ljósi og litbrigðum á mótum lands og sjávar birtist fegurð sem fangar hug áhorfandans. Myndefnið er ekki nýtt í sögulegu samhengi en myndirnar freista ferskrar nálgunar að fegurðinni sem er túlkuð hér á látlausan hátt gegnum þekkta fjallasýn og sjávarsýn og mjúk litabrigði sem ögra ekki tilfinningum. Fegurðarinnar má njóta án fyrirhafnar og í látlausu jafnvægi. \nFögnuðurinn \nNútíminn leyfir okkur fyrir sitt leyti að halda upp á eigin árangur\, bæði í leik og starfi. Þegar við náum settu marki – komumst yfir marklínuna í maraþonhlaupi\, skorum mark eða náum upp á fjallstindinn – teygjum við hendurnar upp til himins í líkamlegri tjáningu á fögnuði okkar yfir eigin árangri. Sjáðu mig! Nú mega aðrir taka eftir. Þetta er hluti af fögnuðinum yfir fegurð lífsins. Þetta myndefni er mér hugstætt og táknrænt fyrir atvik sem flestir geta lent í að upplifa. Sem barn úti í náttúrinni setti maður sér oft það markmið að klífa stóran stein sem varð á vegi manns. Þegar það tókst að ná settu marki vildi maður deila með öðrum unnum sigri á steininum og gleði sigurvegarans. Unnum sigrum í eigin lífi getum við leyft okkur að fagna án hiks og svo aðrir sjái. Það vekur góðar tilfinningar\, uppörvun og innri sátt. \nSjá nánar á Atelier Vignir á fésbók. \nHannesarholt er lokað tímabundið vegna heimsfaraldursins\, en það má hafa samband og sjá sýningu Vignis eftir samkomulagi. Hér getur að líta nokkur myndbönd frá sýningunni. \nFrá sýningu Vignis Jóhannssonar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fegurd-og-fognudur-serenity-and-celebration-vignir-johannsson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/vignirgladur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190817
DTEND;VALUE=DATE:20190902
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20210119T145028Z
LAST-MODIFIED:20210119T145028Z
UID:10000824-1566000000-1567382399@hannesarholt.is
SUMMARY:ÚR UNDRAKISTU ALHEIMSINS - JÓN VILHJÁLMUR STEFÁNSSON
DESCRIPTION:Jón Vilhjálmur Stefánsson / John William Stepenson opnar myndlistarsýningu sína í Hannesarholti þann 17. ágúst kl 15. Þetta er önnur sýning listamannsins á Íslandi. \nÞegar Jón Vilhjálmur Stefánsson hóf nám við UC Berkeley Listakademíuna var hann rétt 18 ára að aldri. Allar götur síðan hefur hann helgað sig myndlistinni sem ber keim keim af ólgu 68 kynslóðarinnar. \nEn það var fleira sem mótaði heimsýn hans\, því í uppvextinum hafði JV greiðan aðgang að vísindamönnum og prófessorum við Berkeley háskólann. Móðir hans Katrín vann þar á efsta gólfi sem framkvæmdastjóri rektorsskrifstofunnar. Katrín varð ekkja þegar Jón var fjögurra og því skottaðist hann oft í kringum hana á skrifstofunni í lok langra vinnudaga hennar. Á þessum tíma voru straumhvörf á sviði vísinda ekki síst hvað öreindir og kjarnorku varðaði. Þau fræði voru mjög tíðkuð af vísindamönnum Berkeley háskóla og ýmislegt vakti bæði undrun og áhuga ungs listamanns. \nVerk Jón Vilhjálms eru litrík akrílverk á striga og innblásturinn stærstu og smæstu einingar efnisheimsins\, á grunni líf- og eðslisfræði. Tónlistargen hans er jafnframt mikilvægur drifkraftur sem endurspeglast í kraftmiklum litum og formum. \nJón Vilhjálmur er borinn og barnfæddur í Bandaríkjunum\, en móðir hans Katrín Árnadóttir varð viðskila við fjölskyldu sína ung að árum á átakanlegan hátt. Móðir Jóns Vilhjálms\, Katrín náði ekki sambandi við fjölskyldu sína á ný fyrr en hún var orðin 17 ára gömul. Eftir að hún varð ekkja með ungan son sinn dvaldi hún með Jón Vilhjálm í eitt ár heima á Íslandi\, en þess utan ól hún hann upp í Berkley í Kalíforníu\, fjarri íslenskum skyldmennum. \nMóðir Katrínar\, Kristrún Tómasdóttir Benediktsson var merk tónlistarkona\, píanisti og myndlistarkona\, sem þar að auki hafði ótæmandi áhuga á vísindum og þá aðallega stjörnu- og eðlisfræði. \nTónlist frá síðari hluta 19. aldar sem var veruleiki ömmu Jóns var vissulega afar ólík þeirri sem réð ríkjum hjá ungu fólki á hippárunum og mótaði Jón Vilhjálm. Það voru ekki norðurljós og stjörnur himinvolfanna eins og dregið höfðu ömmu hans að eðlifræðinni\, heldur kjarnorkan og byltingin sem fylgdi þekkingunni við að kljúfa atómin. Af eðlisfræðinni stafaði nú fremur ógn en rómantískar hugleiðingar frá tíð ömmunnar. Engu að síður er samhljómurinn við eiginleika og viðfangsefni móðurömmunar og Jóns Vilhjálms sláandi. \nUmsjón með sýningunni hefur Ásta Kristrún Ragnarsdóttir í Bakkastofu á Eyrarbakka en hún og Jón Vilhjálmur eru systkinabörn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-undrakistu-alheimsins-jon-vilhjalmur-stefansson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/d2-15-key-to-the-highway-91x1-30.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180729T121500
DTEND;TZID=UTC:20180729T121500
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20180211T150757Z
LAST-MODIFIED:20180211T162217Z
UID:10000630-1532866500-1532866500@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmunsdóttir og Gerrit Schuil
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í júlí er meðleikari Gerrit Schuil.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n29. JÚLÍ:\nPíanóleikari: Gerrit Schuil \n\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmunsdottir-og-gerrit-schuil/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/mozartmaraþon.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180411T200000
DTEND;TZID=UTC:20180411T200000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20180324T174440Z
LAST-MODIFIED:20180410T000136Z
UID:10000643-1523476800-1523476800@hannesarholt.is
SUMMARY:Lokaæfing Svövu Jakobsdóttur - Leiklestur
DESCRIPTION:Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir leiklestri á leikverkum Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti um þessar mundir. Verkið Lokaæfing\, sem frumflutt var í Þjóðleikhúsinu árið 1983\, verður leiklesið undir stjórn Jakobs S.Jónssonar miðvikudaginn 11.apríl kl.20 og sunnudaginn 15.apríl kl.16. Leikarar eru Þórey Sigþórsdóttir\, Íris Tanja Flygenring og Valdimar Örn Flygenring. \nVerkefnisstjóri er Þórunn Magnea Magnúsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lokaaefing-svovu-jakobs-leiklestur/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/Æskuvinir-Hannesarholt-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180325T121500
DTEND;TZID=UTC:20180325T121500
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20180211T142214Z
LAST-MODIFIED:20180319T144102Z
UID:10000627-1521980100-1521980100@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir og Gerrit Schuil
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í mars er meðleikari Gerrit Schuil.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n25.    MARS: Píanóleikari: Gerrit Schuil \n\n29. APRÍL:Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason\n24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen\n29. JÚLÍ: Píanóleikari: Gerrit Schuil\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir-og-gerrit-schuil/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/gudnygerritplakat.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180318T170000
DTEND;TZID=UTC:20180318T170000
DTSTAMP:20260616T080119
CREATED:20180126T135245Z
LAST-MODIFIED:20180206T231216Z
UID:10000280-1521392400-1521392400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar "Andrá og eilífð" frönsk veisla
DESCRIPTION:\,\,Andrá og eilífð” eru ljóðatónleikar í flutningi Hlínar Berens\, Magneu Tómasdóttur og Gerrits Schuil\, með tónlist eftir Hector Berlioz\, Henri Duparc\, Eric Satie og Franz Liszt. Ljóðin snerta allt lífið\, hið stóra og smáa í tilverunni. Atburður\, augnatillit\, tilfinningar sem rúmast í einu augnabliki fela í sér sannleika heillar eilífðar. Á þessum tónleikum deila tvær söngkonur með sér fjársjóðum franskrar ljóðahefðar í blæbrigðaríkri efnisskrá.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-andra-og-eilifd-fronsk-veisla/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/HlínMagneaogGerrit.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR