BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201206T140000
DTEND;TZID=UTC:20201206T150000
DTSTAMP:20201027T200200Z
CREATED:20201027T200200Z
LAST-MODIFIED:20201027T200200Z
UID:10000658-1607263200-1607266800@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ ÞRÁNI ÁRNA
DESCRIPTION:Jólalögin\, heita súkkulaðið og allir sultuslakir. \nÞráinn Árni Baldvinsson\, tónlistarkennari og gítarleikari í hljómsveitinni Skálmöld ætlar að halda í jólahefðina og mætir í Hannesarholt sunnudaginn 6. desember með jólahugvekju og söng. \nHannesarholt hlúir að sönghefðinni með því að bjóða uppá Syngjum saman tvisvar í mánuði alla jafna. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. Textar á tjaldi svo allir geta tekið undir. Streymt verður frá stundinni til að þeir sem ekki eiga heimangengt geti líka tekið þátt. \nHannesarholt er opið frá 11:30-17 og eldhúsið er opið á sunnudögum til 14.30.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-thrani-arna/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/THrainn-Arni.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201129T121500
DTEND;TZID=UTC:20201129T124500
DTSTAMP:20201027T164950Z
CREATED:20201027T164514Z
LAST-MODIFIED:20201027T164950Z
UID:10000318-1606652100-1606653900@hannesarholt.is
SUMMARY:TRÍÓ VEST - TÓNLEIKAR Í STREYMI
DESCRIPTION:Píanótríóið „Tríó Vest“ heldur hálftíma langa tónleika í streymi sunnudaginn 29.nóvember kl.12.15. Tríóið skipa: Áslaug Gunnarsdóttir á píanó\, Sigríður Bjarney Baldvinsdóttir á fiðlu og Victoría Tarevskaia á selló. \nÞær eru allar kennarar við Tónmenntaskóla Reykjavíkur og hafa leikið saman í ýmsum kammermúsíkhópum og hljómsveitum um árabil. \nEfnisskrá: \n„Píanótríó Opus 17“ eftir Clöru Schumann. \n„Allegro Moderato“ \n„Scherzo. Tempo di Menuetto“ \n„Andante“ \n„Allegretto“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/trio-vest-tonleikar-i-streymi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/Trio-Vest.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20201122T140000
DTEND;TZID=UTC:20201122T150000
DTSTAMP:20201027T163731Z
CREATED:20201027T163731Z
LAST-MODIFIED:20201027T163731Z
UID:10000316-1606053600-1606057200@hannesarholt.is
SUMMARY:SYNGJUM SAMAN Í HANNESARHOLTI MEÐ INGIBJÖRGU OG SIGURÐI
DESCRIPTION:Hannesarholt hefur hlúð að sönghefðinni síðastliðin rúm sjö ár með því að bjóða reglulega uppá fjöldasöng í Hljóðbergi. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Ingibjörg Fríða og Sigurður Ingi stjórna söngstundinni sunnudaginn 22.nóvember \nIngibjörg og Sigurður starfa og hrærast í ýmsum stílum tónlistar í íslensku senunni. Ingibjörg Fríða er söngkona með klassíska og rytmíska menntun\, syngur í jazz- og popphljómsveitum\, klassískum kammerkórum og flytur eigin músík og annarra við ýmis tækifæri. Sigurður Ingi er menntaður slagverksleikari og hefur spilað með rokkhljómsveitum (VAR\, Brött Brekka og Man Kind)\, í leikhúsi og sem meðleikari hjá ýmsum listamönnum. Hann gefur einnig út frumsamda tónlist undir eigin nafni. Saman hafa þau komið víða fram sem tvíeyki\, sungið og spilað dægurlög og þjóðlagatónlist ásamt því að kenna tónlistarvinnusmiðjur. \nIngibjörg Fríða Helgadóttir\, söngur\nSigurður Ingi Einarsson\, gítar og söngur \nHannesarholt er opið frá 11.30-17 alla daga nema mánudaga og eldhúsið er opið til kl.14.30 á sunnudögum og framreiðir okkar rómaða helgardögurð.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-i-hannesarholti-med-ingibjorgu-og-sigurdi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2020/10/Ingibjorg-og-Sigurdur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200919
DTEND;VALUE=DATE:20201011
DTSTAMP:20210119T142455Z
CREATED:20210119T142455Z
LAST-MODIFIED:20210119T142455Z
UID:10000475-1600473600-1602374399@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTING - INGIBJÖRG RÁN GUÐMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Ingibjörg Rán opnar sýninguna Birtingu í Hannesarholti laugardaginn 19.september kl.15.00-17.00. Verkin á sýningunni eru olíumálverk unnin fyrir sýningu í Hannesarholti. Myndefni frá Reykjavík\, Grundarfirði\, Vík og Grímsnesi. Sýningin er sölusýning og stendur til 9. október.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birting-ingibjorg-ran-gudmundsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingibjorgran.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200314
DTEND;VALUE=DATE:20200527
DTSTAMP:20210119T143300Z
CREATED:20210119T143300Z
LAST-MODIFIED:20210119T143300Z
UID:10000814-1584144000-1590537599@hannesarholt.is
SUMMARY:FEGURÐ OG FÖGNUÐUR / SERENITY AND CELEBRATION - VIGNIR JÓHANNSSON
DESCRIPTION:Vignir Jóhannsson listmálari opnar sýningu sína Fegurð og fögnuður / beauty and serenity í veitingastofum Hannesarholts laugardaginn 14.mars kl.15. Á sýningunni eru landslagsmálverk og fíguratíf\, „sjáðu mig“ verk\, sem Vignir hefur unnið að undanförnu í Danmörku\, þar sem hann býr og starfar. \nVignir hefur starfað að myndlist og sýnt verk sín allt frá árinu 1978\, bæði á Íslandi og víða erlendis. Hann hefur yfir ferilinn unnið grafíkverk\, skúlptúra\, leikmyndir og málverk. Sýningin er sölusýning og stendur fram að páskum\, að minnsta kosti. \nFegurð og fögnuður \nÞað getur gerst við listsköpun að fegurð mæti fordómum ef listamaðurinn heldur henni frá verki sínu. Í staðinn fyrir fegurðina býr hann til listaverk sem hverfist til dæmis um andstæða krafta sem takast á um tilfinningar og veita verkinu afl og styrk. Allt annað gerist ef fegurðin er sett í framsætið. Listamaðurinn þarf að finna þá þörf hjá sér að einfalda viðfangsefnið og koma fegurðinni\, eins og hann sér hana\, fyrir í túlkun sinni í verkinu. Oft þarf að treysta á skynjun fegurðarinnar til að geta túlkað hana einfaldlega og án tilgerðar. Þetta er ekki alltaf auðvelt þar sem fegurðin er svo margbrotin. Reynsla listamannsins ræður vali hans á myndefni\, litum og formum. Þessi verk eru mín túlkun á fegurð og fögnuði sem lífið hefur fært mér gegnum tíðina. \nFegurðin \nNáttúran er meira undraverk en listin getur nokkru sinni náð að fullkomna. Í ljósi og litbrigðum á mótum lands og sjávar birtist fegurð sem fangar hug áhorfandans. Myndefnið er ekki nýtt í sögulegu samhengi en myndirnar freista ferskrar nálgunar að fegurðinni sem er túlkuð hér á látlausan hátt gegnum þekkta fjallasýn og sjávarsýn og mjúk litabrigði sem ögra ekki tilfinningum. Fegurðarinnar má njóta án fyrirhafnar og í látlausu jafnvægi. \nFögnuðurinn \nNútíminn leyfir okkur fyrir sitt leyti að halda upp á eigin árangur\, bæði í leik og starfi. Þegar við náum settu marki – komumst yfir marklínuna í maraþonhlaupi\, skorum mark eða náum upp á fjallstindinn – teygjum við hendurnar upp til himins í líkamlegri tjáningu á fögnuði okkar yfir eigin árangri. Sjáðu mig! Nú mega aðrir taka eftir. Þetta er hluti af fögnuðinum yfir fegurð lífsins. Þetta myndefni er mér hugstætt og táknrænt fyrir atvik sem flestir geta lent í að upplifa. Sem barn úti í náttúrinni setti maður sér oft það markmið að klífa stóran stein sem varð á vegi manns. Þegar það tókst að ná settu marki vildi maður deila með öðrum unnum sigri á steininum og gleði sigurvegarans. Unnum sigrum í eigin lífi getum við leyft okkur að fagna án hiks og svo aðrir sjái. Það vekur góðar tilfinningar\, uppörvun og innri sátt. \nSjá nánar á Atelier Vignir á fésbók. \nHannesarholt er lokað tímabundið vegna heimsfaraldursins\, en það má hafa samband og sjá sýningu Vignis eftir samkomulagi. Hér getur að líta nokkur myndbönd frá sýningunni. \nFrá sýningu Vignis Jóhannssonar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fegurd-og-fognudur-serenity-and-celebration-vignir-johannsson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/vignirgladur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190817
DTEND;VALUE=DATE:20190902
DTSTAMP:20210119T145028Z
CREATED:20210119T145028Z
LAST-MODIFIED:20210119T145028Z
UID:10000824-1566000000-1567382399@hannesarholt.is
SUMMARY:ÚR UNDRAKISTU ALHEIMSINS - JÓN VILHJÁLMUR STEFÁNSSON
DESCRIPTION:Jón Vilhjálmur Stefánsson / John William Stepenson opnar myndlistarsýningu sína í Hannesarholti þann 17. ágúst kl 15. Þetta er önnur sýning listamannsins á Íslandi. \nÞegar Jón Vilhjálmur Stefánsson hóf nám við UC Berkeley Listakademíuna var hann rétt 18 ára að aldri. Allar götur síðan hefur hann helgað sig myndlistinni sem ber keim keim af ólgu 68 kynslóðarinnar. \nEn það var fleira sem mótaði heimsýn hans\, því í uppvextinum hafði JV greiðan aðgang að vísindamönnum og prófessorum við Berkeley háskólann. Móðir hans Katrín vann þar á efsta gólfi sem framkvæmdastjóri rektorsskrifstofunnar. Katrín varð ekkja þegar Jón var fjögurra og því skottaðist hann oft í kringum hana á skrifstofunni í lok langra vinnudaga hennar. Á þessum tíma voru straumhvörf á sviði vísinda ekki síst hvað öreindir og kjarnorku varðaði. Þau fræði voru mjög tíðkuð af vísindamönnum Berkeley háskóla og ýmislegt vakti bæði undrun og áhuga ungs listamanns. \nVerk Jón Vilhjálms eru litrík akrílverk á striga og innblásturinn stærstu og smæstu einingar efnisheimsins\, á grunni líf- og eðslisfræði. Tónlistargen hans er jafnframt mikilvægur drifkraftur sem endurspeglast í kraftmiklum litum og formum. \nJón Vilhjálmur er borinn og barnfæddur í Bandaríkjunum\, en móðir hans Katrín Árnadóttir varð viðskila við fjölskyldu sína ung að árum á átakanlegan hátt. Móðir Jóns Vilhjálms\, Katrín náði ekki sambandi við fjölskyldu sína á ný fyrr en hún var orðin 17 ára gömul. Eftir að hún varð ekkja með ungan son sinn dvaldi hún með Jón Vilhjálm í eitt ár heima á Íslandi\, en þess utan ól hún hann upp í Berkley í Kalíforníu\, fjarri íslenskum skyldmennum. \nMóðir Katrínar\, Kristrún Tómasdóttir Benediktsson var merk tónlistarkona\, píanisti og myndlistarkona\, sem þar að auki hafði ótæmandi áhuga á vísindum og þá aðallega stjörnu- og eðlisfræði. \nTónlist frá síðari hluta 19. aldar sem var veruleiki ömmu Jóns var vissulega afar ólík þeirri sem réð ríkjum hjá ungu fólki á hippárunum og mótaði Jón Vilhjálm. Það voru ekki norðurljós og stjörnur himinvolfanna eins og dregið höfðu ömmu hans að eðlifræðinni\, heldur kjarnorkan og byltingin sem fylgdi þekkingunni við að kljúfa atómin. Af eðlisfræðinni stafaði nú fremur ógn en rómantískar hugleiðingar frá tíð ömmunnar. Engu að síður er samhljómurinn við eiginleika og viðfangsefni móðurömmunar og Jóns Vilhjálms sláandi. \nUmsjón með sýningunni hefur Ásta Kristrún Ragnarsdóttir í Bakkastofu á Eyrarbakka en hún og Jón Vilhjálmur eru systkinabörn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-undrakistu-alheimsins-jon-vilhjalmur-stefansson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/d2-15-key-to-the-highway-91x1-30.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180729T121500
DTEND;TZID=UTC:20180729T121500
DTSTAMP:20180211T162217Z
CREATED:20180211T150757Z
LAST-MODIFIED:20180211T162217Z
UID:10000630-1532866500-1532866500@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmunsdóttir og Gerrit Schuil
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í júlí er meðleikari Gerrit Schuil.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n29. JÚLÍ:\nPíanóleikari: Gerrit Schuil \n\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmunsdottir-og-gerrit-schuil/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/mozartmaraþon.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180411T200000
DTEND;TZID=UTC:20180411T200000
DTSTAMP:20180410T000136Z
CREATED:20180324T174440Z
LAST-MODIFIED:20180410T000136Z
UID:10000643-1523476800-1523476800@hannesarholt.is
SUMMARY:Lokaæfing Svövu Jakobsdóttur - Leiklestur
DESCRIPTION:Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir leiklestri á leikverkum Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti um þessar mundir. Verkið Lokaæfing\, sem frumflutt var í Þjóðleikhúsinu árið 1983\, verður leiklesið undir stjórn Jakobs S.Jónssonar miðvikudaginn 11.apríl kl.20 og sunnudaginn 15.apríl kl.16. Leikarar eru Þórey Sigþórsdóttir\, Íris Tanja Flygenring og Valdimar Örn Flygenring. \nVerkefnisstjóri er Þórunn Magnea Magnúsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lokaaefing-svovu-jakobs-leiklestur/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/Æskuvinir-Hannesarholt-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180325T121500
DTEND;TZID=UTC:20180325T121500
DTSTAMP:20180319T144102Z
CREATED:20180211T142214Z
LAST-MODIFIED:20180319T144102Z
UID:10000627-1521980100-1521980100@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir og Gerrit Schuil
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í mars er meðleikari Gerrit Schuil.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n25.    MARS: Píanóleikari: Gerrit Schuil \n\n29. APRÍL:Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason\n24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen\n29. JÚLÍ: Píanóleikari: Gerrit Schuil\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir-og-gerrit-schuil/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/gudnygerritplakat.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180318T170000
DTEND;TZID=UTC:20180318T170000
DTSTAMP:20180206T231216Z
CREATED:20180126T135245Z
LAST-MODIFIED:20180206T231216Z
UID:10000280-1521392400-1521392400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar "Andrá og eilífð" frönsk veisla
DESCRIPTION:\,\,Andrá og eilífð” eru ljóðatónleikar í flutningi Hlínar Berens\, Magneu Tómasdóttur og Gerrits Schuil\, með tónlist eftir Hector Berlioz\, Henri Duparc\, Eric Satie og Franz Liszt. Ljóðin snerta allt lífið\, hið stóra og smáa í tilverunni. Atburður\, augnatillit\, tilfinningar sem rúmast í einu augnabliki fela í sér sannleika heillar eilífðar. Á þessum tónleikum deila tvær söngkonur með sér fjársjóðum franskrar ljóðahefðar í blæbrigðaríkri efnisskrá.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-andra-og-eilifd-fronsk-veisla/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/HlínMagneaogGerrit.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180316T200000
DTEND;TZID=UTC:20180316T200000
DTSTAMP:20180211T135527Z
CREATED:20180205T141148Z
LAST-MODIFIED:20180211T135527Z
UID:10000622-1521230400-1521230400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Ástir kvenna\, örlög og ástríður
DESCRIPTION:Guðrún Ingimarsdóttir\, sópran og Lars Jönsson\, píanó bjóða á ljóðakvöld tileinkað ástum kvenna\, örlögum og ástríðum. flytja sönglög erfir Robert og Clöru Schumann og Franz Schubert\, við ljóð eftir Friedrich Rückert og J.W. Goethe. \n„Frauenliebe\, Lust und Frust „- Ein Liederabend\n„Àstir kvenna\, örlög og ástríður“ \nÀ fyrri hluta tónleikanna verda flutt sönglög eftir Robert og Clöru Schumann og Franz Schubert\, við ljóð eftir Friedrich Rückert og J.W. Goethe. \nSeinni hluti tónleikana verður tileinkaður „Die wilden Zwanziger“ eða tímabilinu milli heimstyrjaldana\, með lögum eftir Kurt Weil\, Friedrich Hollaender\, Erich Korngold ofl. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-astir-kvenna-orlog-og-astridur/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Herbst-2017-Alexey-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180315T200000
DTEND;TZID=UTC:20180315T200000
DTSTAMP:20180211T130005Z
CREATED:20180119T155038Z
LAST-MODIFIED:20180211T130005Z
UID:10000273-1521144000-1521144000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Gísla Pálssyni
DESCRIPTION:Kvöldstund með Gísla Pálssyni sem segir sögu Hans Jónatans\, mannsins sem stal sjálfum sér og settist að á Djúpavogi árið 1805. Ævisagan um Hans Jónatan kom út 2014 og hefur nú verið þýdd á ensku\, dönsku og frönsku. Nýleg rannsókn á vegum Íslenskrar Erfðagreiningar þar sem erfðamengi Hans Jónatans var endurgert hefur vakið athygli á sögu hans á ný\, líklega meiri en nokkru sinni fyrr. Enska útgáfan var á lista Times Literary Supplement fyrir Bækur ársins 2017. Gerð hefur verið heimildamynd um Hans Jónatan og afkomendur hans sem frumsýnd var á Djúpavogi\, Reykjavík og Vestmannaeyjum á síðasta ári. \nVeitingastofurnar eru opnar til 22 þetta kvöld eins og önnur fimmtudagskvöld og er hægt að fá kvöldverð á undan kvöldstundinni. Pálmar Ólason leikur á píanóið frá 18.30-20\, happy hour frá 17-19. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \nGísli gefur Hannesarholti vinnu sína. \n  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-gisla-palssyni/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/GPdjupavogur2016-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180301T200000
DTEND;TZID=UTC:20180301T200000
DTSTAMP:20180211T133724Z
CREATED:20180119T125613Z
LAST-MODIFIED:20180211T133724Z
UID:10000272-1519934400-1519934400@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur og Valgeiri Guðjónssyni
DESCRIPTION:Ásta Kristrún deilir með gestum sögum af formæðrum sínum sem lengi hafa búið með henni. Sögurnar hafa nú brotið sér leið til bókarinnar Það sem dvelur í þögninni sem er nýlega komin út. Hjá Valgeiri urðu sögurnar að söngvum og textum sem hann leikur fyrir gesti. Kvöldstundin mun því einkennast af sögum\, söngvum og samveru eins og þeim hjónum í Bakkastofu er lagið. \nVeitingastofurnar í Hannesarholti eru opnar þetta kvöld til kl.22. Í boði er að panta léttan kvöldverð á undan kvöldstundinni í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-astu-kristrunu-ragnarsdottur-og-valgeiri-gudjonssyni/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/Screen-Shot-2018-01-22-at-12.58.51.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180218T160000
DTEND;TZID=UTC:20180218T160000
DTSTAMP:20180216T184514Z
CREATED:20180206T105000Z
LAST-MODIFIED:20180216T184514Z
UID:10000623-1518969600-1518969600@hannesarholt.is
SUMMARY:Í hennar sporum á konudaginn - Svanlaug Jóhannsdóttir
DESCRIPTION:Skór eru svo sérstakir. Þeir eru alls konar í laginu\, alls konar á litinn og fjölbreytilegir eftir tísku. Það skipti máli að eiga nesti og nýja skó þegar að ævintýrin hófust og enn hefjast mörg ævintýri á nýju pari. Fyrsta ballið\, útskriftin\, brúðkaupið. Skór sem\nglöddu\, skór sem mörkuðu tímamót og skór sem tengdust ástarsorg. Konan sem eignaðist bara eitt par á ævinni og hin sem átti tvö hundruð og vildi fleiri. Skór og konur…eilíf ástarsaga. \nSöngkonan Svanlaug Jóhannsdóttir hefur leitað uppi skópör sem eiga sér sögu. Saga kvennanna og skónna\, rómantíkin\, gleðin og átökin\, er sögð með sögum og söngvum\, tónist úr öllum áttum. \nSýningin tekur tæplega klukkustund í flutningi og í henni kemur fram ásamt Svanlaugu\, Einar Bjartur Egilsson\, píanóleikari. Konudagstilboð á vöfflum og kaffi á undan sýningunni á kr.1000. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/i-hennar-sporum-svanlaug-johannsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Svanaísporum-1.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180215T200000
DTEND;TZID=UTC:20180215T200000
DTSTAMP:20180210T135504Z
CREATED:20180117T225158Z
LAST-MODIFIED:20180210T135504Z
UID:10000271-1518724800-1518724800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ástarsögur í Hannesarholti
DESCRIPTION:Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur rýnir í íslenskar ástarsögur\, þar á meðal Pilt og stúlku og Mann og konu. \nSigríður Eyrún Friðriksdóttir og Karl Olgeirsson para ástarlög við verkin\, bæði þekkt og minna þekkt. Sérstakt gestur: Ævar Þór Benediktsson leikari og vísindamaður \nEinstakur viðburður sem enginn ætti láta framhjá sér fara. \nTveggja rétta kvöldverður í veitingastofunum á undan fyrir þá sem það kjósa. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/astarsogur-i-hannesarholti/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/Ástarsögur15.2.18.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171125T200000
DTEND;TZID=UTC:20171125T200000
DTSTAMP:20171101T153144Z
CREATED:20171101T142935Z
LAST-MODIFIED:20171101T153144Z
UID:10000600-1511640000-1511640000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Pálma Gunnarssyni endurtekin
DESCRIPTION:Uppselt var á kvöldstundina fyrr í vikunni með Pálma Gunnarssyni söngvara og bassaleikara og Þóri Úlfarssyni píanóleikara og upptökustjóra en þeir félagar hafa unnið ófá verkefnin saman á liðnum áratugum. Því er leikurinn endurtekinn laugardagskvöldið 25.nóvember. Veitingastofurnar eru opnar og það er tilvalið að fá sér kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-palma-gunnarssyni-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/PG-Miklatún-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171125T150000
DTEND;TZID=UTC:20171125T170000
DTSTAMP:20171120T182943Z
CREATED:20171109T123734Z
LAST-MODIFIED:20171120T182943Z
UID:10000255-1511622000-1511629200@hannesarholt.is
SUMMARY:Sextán söngvar fyrir sópran og tenór
DESCRIPTION:Sextán söngvar fyrir sópran og tenór eru nýr sönglagaflokkur eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Kristján Hreinsson skáld og heimspeking. Lögin eru samin fyrir sópran\, tenór og píanó. Ljóðin og lögin fjalla um söknuð\, sorg og gleði\, viljann og vonina\, ástina\, lífið og listina. \nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Elmar Gibertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó munu frumflytja ljóðaflokkinn í Hannesarholti í Reykjavík 25. nóvember 2017. Skáldið mun flytja stuttar skýringar á undan hverju lagi og ljóði sem verður varpað á vegg á bak við sviðið. \nÍtarlegri upplýsingar um sönglögin\, flytjendur og höfunda má lesa á :https://notendur.hi.is/gylfason/Sextán%20söngvar%20fyrir%20sópran%20og%20tenór.html \n— \nTónleikarnir fara fram í Hljóðbergi\, tónleikasal Hannesarholts\, og hefjast tónleikarnir stundvíslega kl. 15:00 og 17:00. Húsið opnar hálftíma fyrir tónleika.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sextan-songvar-fyrir-sopran-og-tenor/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/20746325_1586464784761406_6486843202469240810_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171118T200000
DTEND;TZID=UTC:20171118T200000
DTSTAMP:20171023T112837Z
CREATED:20171019T120410Z
LAST-MODIFIED:20171023T112837Z
UID:10000594-1511035200-1511035200@hannesarholt.is
SUMMARY:Hafdís Huld - Dare to Dream Small
DESCRIPTION:Hafdís Huld – Dare to Dream Small\n\nTónlistarkonan Hafdís Huld sendi fyrr á árinu frá sér sýna fjórðu sólóplötu Dare to Dream Small og heldur nú loksins tónleika hér á landi til þess að fagna útgáfunni. Platan hefur fengið frábæra dóma bæði hér heima og erlendis þar sem vandaðir textar og fallegar útsetningar hafa vakið sérstaka athygli og gagnrýnendur eru á einu máli um að þetta sé hennar besta verk til þessa. Með Hafdísi á tónleikunum verður Alisdair Wright en saman hafa þau komið fram á tónleikum og tónlistarhátíðum um allan heim undanfarin 11 ár\, nú síðast á vel heppnaðri tónleikaferð í Kína.\n\nDare to Dream Small er líkt og fyrri plötur Hafdísar gefin út í samstarfi við breska fyrirtækið Redgrape Music en Hafdís hefur starfað mikið í Bretlandi síðan hún lauk þar framhaldsnámi í tónlist árið 2006. Hafdís og Alisdair hafa getið sér gott orð þar í landi fyrir vandaðan tónlistarflutning og skemmtilega sviðsframkomu og uppselt var á Dare to Dream Small tónleikaröð þeirra í Bretlandi nú í sumar.\n\nÁ efnisskránni verða lög af nýju plötunni í bland við vel valin lög af fyrri plötum Hafdísar\, sem mörg hver hafa notið mikilla vinsælda hér á landi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hafdis-huld-dare-to-dream-small/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/Hafdis-Huld-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171112T170000
DTEND;TZID=UTC:20171112T182000
DTSTAMP:20171106T133859Z
CREATED:20171106T115543Z
LAST-MODIFIED:20171106T133859Z
UID:10000254-1510506000-1510510800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Anna Sigga og Gerrit Schuil: Maístjarnan og önnur ljóð
DESCRIPTION:Anna Sigríður Helgadóttir er fædd í Reykjavík árið 1963. Hún stundaði söngnám við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar og Söngskólann í Reykjavík\, þaðan sem hún lauk námi við framhaldsdeild árið 1989. Næstu þrjú árin sótti hún einkatíma hjá Prof. Rina Malatrasi á Ítalíu. Hún hefur sungið með fjölda kóra og tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi\, s.s. einsöngstónleikum\, djasstónleikum\, óperu- og óperettuuppfærslum\, kirkjutónleikum\, gospeltónleikum o.fl.\, á Íslandi\, í Danmörku\, Svíþjóð\, á Ítalíu og í Bandaríkjunum. Árið 2000 söng hún hlutverk Biöncu í uppfærslu Íslensku Óperunnar á óperunni “The rape of Lucretia” eftir Benjamin Britten og árið 2002 söng hún hlutverk Mary í uppfærslu Listahátíðar á óperunni “Hollendingurinn fljúgandi” eftir Richard Wagner. Frá 2001 til 2012 starfaði Anna Sigríður sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna í Reykjavík\, þar sem hún söng við athafnir\, stjórnaði kór og hafði umsjón með tónlistarlífinu í kirkjunni. Hún söng í mörg ár með sönghópnum Hljómeyki og er ein af sönghópnum Emil og Anna Sigga og Bjargræðiskvartettsins. Að auki hefur hún starfað sem söngkona og sungið víða s.s. við kirkjuathafnir\, tónleika og margs konar uppákomur. \nGerrit Schuil er fæddur í Hollandi. Hann nam við Tónlistarháskólann í Rotterdam og síðar í London og París. Árið 1978 tók Gerrit þátt í alþjóðlegu námskeiði fyrir hljómsveitarstjóra hjá rússneska hljómsveitarstjóranum Kirill Kondrashin og naut þess heiðurs að vera eini nemandi hans síðustu ár hans. \nGerrit hefur leikið á tónleikum víða um Evrópu\, Bandaríkin og í Asíu\, tekið þátt í hátíðum og unnið með fjölda söngvara og hljóðfæraleikara. Hann hefur einnig stjórnað mörgum evrópskum og amerískum hljómsveitum bæði á tónleikum og í óperuuppfærslum\, m.a. hljómsveitum hollenska útvarpsins sem voru einnig hljómsveitir hollensku ríkisóperunnar. \nFrá 1992 hefur Gerrit búið á Íslandi og verið leiðandi í tónlistarlífi þjóðarinnar bæði sem píanóleikari og stjórnandi m.a. Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Íslensku óperunnar. Þá hefur hann stýrt tónlistarhátíðum og leikið með mörgum af bestu tónlistarmönnum landsins á geisladiska. \nTónleikarnir hefjast kl. 17.00 og opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir viðburðinn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-anna-sigga-og-gerrit-schuil-maistjarnan-og-onnur-ljod/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/annasiggsa-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170820T200000
DTEND;TZID=UTC:20170820T213000
DTSTAMP:20170815T121926Z
CREATED:20170727T192140Z
LAST-MODIFIED:20170815T121926Z
UID:10000572-1503259200-1503264600@hannesarholt.is
SUMMARY:CENTURION MONK - Theolonius Monk heiðurstónleikar
DESCRIPTION:“You’ve got to dig it to dig it\, you dig?” \n― Thelonious Monk \nSöngvarinn Arnar Ingi spilar í Hannesarholti 20. ágúst n.k. af tilefni 100 ára afmælis jazzgoðsagnarinnar Thelonious Monk! \nÁ dagskránni verða stærstu slagarar jazztónskáldsins og píanóleikarans Theolonius Monk\, í bland við lítt þekktari perlur. \nArnar Ingi Richardsson hefur undanfarin ár stundað söngnám við Konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi þaðan sem hann hyggst ljúka BA prófi næsta vor. Arnar útskrifaðist þar áður frá Tónlistarskóla FÍH 2014\, úr rytmískri deild. Arnar hefur vakið athygli áheyrenda\, hérlendis og erlendis\, með vönduðum söng og lagavali\, en hann beitir gjarnan fyrir sig eftirtektarverðri raddbeitingu\, sem myndi teljast í anda Bobby McFerrin. \nNýlega sigraði Arnar Ingi söngkeppnina SMASK Stockholm og tók í framhaldi við styrk úr minningarsjóði Vilhjálms Vilhjálmssonar\, dægursöngvara. 2014 hlaut Arnar Ingi ‘Nótuna’ fyrir framúrskarandi árangur á framhaldsstigi\, þar hann söng lag í útsetningu Bobby McFerrin í Eldborgarsal Hörpu. \nArnar Ingi kemur fram í Hljóðbergi\, tónleikasal Hannesarholts\, ásamt einvalaliði tónlistarmanna\, en hljómsveitin skipast svo:\nArnar Ingi – söngur\nTómas Jónsson – píanó\nSigmar Þór Matthíasson – kontrabassi\nMatthías Hemstock – trommur\nÍvar Guðmundsson – trompet/flugelhorn \nTónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:00 og er miðaverð 2500\,- \nMiðar verða seldir á midi.is. Takmarkaður miðafjöldi og því tilvalið að tryggja sér sæti sem fyrst. \nFACEBOOK: https://www.facebook.com/ArnarIngiRichardsson/\nMIDI.IS
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/centurion-monk-theolonius-monk-heidurstonleikar/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/07/20413906_1568769173197634_5370376085742059526_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170328T200000
DTEND;TZID=UTC:20170328T200000
DTSTAMP:20170328T134221Z
CREATED:20170221T122903Z
LAST-MODIFIED:20170328T134221Z
UID:10000201-1490731200-1490731200@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall: Fjölmiðlar og loftslagsmál
DESCRIPTION:Guðni Elísson prófessor í Háskóla Íslands fjallar um fjölmiðla og loftslagsmál í fyrra heimspekispjalli annarinnar. \nHeimspekispjallið er ókeypis í anda Páls Skúlasonar og öllum opið. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimspekispjall-fjolmidlar-og-loftslagsmal/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/02/Gudni-Elisson-photo.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170325T160000
DTEND;TZID=UTC:20170325T160000
DTSTAMP:20170325T130806Z
CREATED:20170316T111448Z
LAST-MODIFIED:20170325T130806Z
UID:10000555-1490457600-1490457600@hannesarholt.is
SUMMARY:Vetrarferðin - Die Winterreise
DESCRIPTION:Gunnar Guðbjörnsson\, tenórsöngvari og Snorri Sigfús Birgisson flytja Vetrarferðina eftir Franz Schubert. \nGunnar Guðbjörnsson hefur starfað sem óperu-\, óratóríu- og ljóðasöngvari um þriggja áratugaskeið. Hann var fastráðinn við óperuhúsin í Wiesbaden\, Lyon\, Berlín og Freiburg og kom fram gestasöngvari við óperuhús og í tónleikahöllum í París\, London\, München\, Madrid\, Vín\, Berlín en hann söng m.a. með Fílharmóníusveit Berlínar\, Fílharmóníusveit Vínar\, The Chicago Symphony Orchestra og Royal Philharmonic Orchestra í London. \nGunnar er skólastjóri Söngskóla Sigurðar Demetz. \nSnorri Sigfús Birgisson stundaði fyrst píanónám hjá Gunnari Sigurgeirssyni en innritaðist síðan í Tónlistarskólann í Reykjavík. Þar lærði hann á píanó hjá Hermínu S. Kristjánsson\, Jóni Nordal og Árna Kristjánssyni en lagði einnig stund á tónsmíðar hjá Þorkeli Sigurbjörnssyni. Hann lauk einleikaraprófi 1974. \nÁ árunum 1974 – 1975 stundaði hann framhaldsnám í píanóleik hjá Barry Snyder við Eastman School of Music í Bandaríkjunum\, en fór þaðan til Ósló og nam tónsmíðar hjá Finn Mortensen\, raftónlist og hljóðfræði hjá Lasse Thoresen og Olav Anton Thommessen. Árið 1976 fór hann til Amsterdam til tónsmíðanáms hjá Ton de Leeuw. Frá því hann lauk námi 1980 hefur Snorri starfað í Reykjavík sem tónskáld\, píanóleikari\, tónlistarkennari og stjórnandi. Hann er félagi í Caput-hópnum. \nFlutningur Gunnars og Snorra á Vetrarferð Schuberts markar upphaf að samstarfi þeirra. \nMiðverð kr. 3500 en fyrir nemendur kr. 1500. Miðar seldir á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vetrarferdin-die-winterreise/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/Gunnar-og-Snorri.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170311T160000
DTEND;TZID=UTC:20170311T160000
DTSTAMP:20170311T133746Z
CREATED:20170115T162040Z
LAST-MODIFIED:20170311T133746Z
UID:10000538-1489248000-1489248000@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Fimm árstíðir
DESCRIPTION:FIMM ÁRSTÍÐIR \n\n\n\nFimm árstíðir er heitið á nýjum sönglagaflokki eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Snorra Hjartarson. Kvæðin eru Haustið er komið\, Ísabrot\, Vor og Sumarkvöld\, einu nafni Fjórar árstíðir\, og loks Í Úlfdölum\, fimmta árstíðin.\nLögin eru samin fyrir sópran\, tenór og píanó.\nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Elmar Gilbertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó munu frumflytja ljóðaflokkinn í Hannesarholti í Reykjavík 11. marz 2017. Höfundur laganna mun  lesa kvæðin fyrir áheyrendur áður en þau eru sungin og leikin.Dagskráin tekur um 30 mínútur og verður tekin upp\, hljóð og mynd. \n\n\n\nFimm árstíðir er heitið á nýjum sönglagaflokki eftir Þorvald Gylfason prófessor við kvæði eftir Snorra Hjartarson. Kvæðin eru Haustið er komið\, Ísabrot\, Vor og Sumarkvöld\, einu nafni Fjórar árstíðir og loks Í Úlfdölum\, fimmta árstíðin. Lögin eru samin fyrir sópran\, tenór og píanó. \nHallveig Rúnarsdóttir sópran\, Elmar Gilbertsson tenór og Snorri Sigfús Birgisson píanó frumflytja ljóðaflokkinn í Hljóðbergi 11.mars 2017. Höfundur les kvæðin fyrir áheyrendur áður en þau eru sungin og leikin. Dagráin tekur um 30 mínútur og verður tekin upp. \nÞorvaldur Gylfason prófessor hefur samið um 90 sönglög\, m.a.Sautján sonnettur um heimspeki hjartans\, Söngva um svífandi fugla\, Sjö sálma og Sextán söngva fyrir sópran og tenór við kvæði Kristjáns Hreinssonar. Sonnettur þeirra félaga voru fluttar í Hörpu2012 og 2013\, fuglasöngvarnir í Salnum í Kópavogi 2014\, sálmarnir í Langholtskirkju 2014 og í Guðríðarkirkju 2015\, og þetta er frumflutningur söngvanna fyrir sópran og tenór.   \nMiðasala á: \nhttps://midi.is/tonleikar/1/9951/Fimm_arstidir \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-fimm-arstidir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/Fimm-árstíðir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170122T150000
DTEND;TZID=UTC:20170122T150000
DTSTAMP:20170118T174235Z
CREATED:20170112T104415Z
LAST-MODIFIED:20170118T174235Z
UID:10000536-1485097200-1485097200@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman
DESCRIPTION:Syngjum saman verður að þessu sinni í höndum Heimilisiðnaðarfélagsins sem verður með þjóðbúningakaffi í Hannesarholti. Rósa Jóhannesdóttir fiðlukennari og barnakórsstjórnandi stýrir söngstundinni og nýtur hún stuðnings dætra sinna Iðunnar Helgu og Grétu Petrínu. Sigurður Alfonsson leikur með á harmónikku. \nEins og venja er til fá börn frítt inn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 krónur inn.\nMiða má kaupa fyrirfram á midi.is \nVeitingahúsið er opið til kl.17.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-15/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/P1245218-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170103T170000
DTEND;TZID=UTC:20170103T170000
DTSTAMP:20170101T163853Z
CREATED:20161222T120930Z
LAST-MODIFIED:20170101T163853Z
UID:10000188-1483462800-1483462800@hannesarholt.is
SUMMARY:Vetrarljóð - Píanó og fiðla
DESCRIPTION:Jane Ade Sutarjo píanó- og fiðluleikari og Hulda Jónsdóttir fiðluleikari\, ungar og sérlega hæfileikaríkar tónlistarkonur\, halda fyrstu tónleika Hannearholts árið 2017.\nHulda og Jane munu leika litrík verk fyrir fiðlu og píanó eftir B. Bartók\, E. Ysaÿe\,J. Brahms.\nJane Ade Sutarjo fæddist í Jakarta í Indónesíu árið 1989. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og siðar á fiðlu. Hún flutti til Íslands haustið 2008 og hóf nám við Listaháskóla Íslands þar sem hún lærði á fiðlu hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttur og seinna hjá Peter Máté\, og er fyrst til að ljúka einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá LHÍ. \nJane er virkur þáttakandi í íslensku tónlistarlifi og hefur spilað  kammermúsík og komið fram sem einleikari. Árið 20111  lék hún einleik með Sinfóniuhljómsveit Íslands og 2014 hélt hún debut tónleikana sína í Salnum í Kópavogi. Jane hlaut minningarverðlaun Halldórs Hansen árið 2012. Einnig hefur hún tekið þátt í píanókeppnum  á Íslandi og erlendis. Hún vann 1. sæti í 5. EPTA píanó keppninni á Íslandi árið 2012. \nEftir útskrift  frá LHÍ hefur hún kennt á píanó við Tónlistarskóla Árnesinga og Tónlistarskólann í Grafarvogi\, og auk þess að starfa sem meðleikari. Jane stundar nú nám við Norges Musikkhogskole undir leiðsögn Jens Harald Bratlie og Kathryn Stott og  sækir tíma á fortepíanó hjá Liv Glaser. \nHulda Jónsdóttir\, fædd árið 1991\, hóf fiðlunám fjögurra ára gömul við Suzukideild Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar hjá Sigríði Helgu Þorsteinsdóttur.  Í Tónlistarskóla Reykjavíkur voru kennarar hennar Lilja Hjaltadóttir og síðar Guðný Guðmundsdóttir. Hulda lauk diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands 2009.  Frá hausti 2009 nam hún við The Juilliard School í New York þar sem kennarar hennar voru Robert Mann\, stofnandi Juilliard strengjakvartettsins\, David Chan\, konsertmeistari Metropolitan óperuhljómsveitarinnar\, Laurie Smukler og Nicholas Mann. Hulda lauk B.Mus gráðu frá skólanum vorið 2013\, og M.Mus gráðu vorið 2015. \nSíðan námi lauk hefur Hulda búið í Þýskalandi og tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum í Evrópu. Hún hefur m.a. leikið með Philharmoniker Hamburg\, komið reglulega fram með kammersveitinni Ensemble Resonanz\, leitt hljómsveit Íslensku Óperunnar sem gestakonsertmeistari og lék um nokkurra mánuða skeið haustið 2016 sem 2. konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og varð þar með yngsti einstaklingurinn sem leitt hefur hljómsveitina á tónleikum frá stofnun hennar. \nHulda lék fyrst einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands 15 ára gömul og lék fiðlukonsert Johannesar Brahms með hljómsveitinni árið 2009 í kjölfar þess að hafa sigrað einleikarakeppni SÍ og LHÍ. Auk þess hefur hún leikið einleik með kammerhljómsveitum í Sviss og Mexíkó. Hún hefur komið fram í beinni útsendingu á WFMT og BR Klassik útvarpsstöðvunum auk í sjónvarpi og útvarpi RÚV. Hulda hefur hlotið ýmis verðlaun og viðurkenningar\, þ.m. Minningarverðlaun Halldórs Hansen (2009)\,  American Scandinavian Society Cultural Grant (2012) og Minnigarverðlaun Jean Pierre Jacquillat (2013.) \nFrá hausti 2006 hefur Hulda verið þess heiðurs aðnjótandi að leika á fiðlu smíðaða af Vincenzo Sannino í kringum 1920 og boga smíðuðum af Victor Fetique. Hvoru tveggja hefur hún að láni frá Rachel Elizabeth Barton Foundation í Chicago og þaðan sem hún hlaut afreksstyrk  árið 2008. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/piano-og-fidla-jane-sutarion-og-hulda-jonsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/Tónleikar-3-jan-shv.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161218T150000
DTEND;TZID=UTC:20161218T150000
DTSTAMP:20161216T082922Z
CREATED:20161213T212204Z
LAST-MODIFIED:20161216T082922Z
UID:10000183-1482073200-1482073200@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman
DESCRIPTION:Ungar tónlistarkonur stýra jólalegum samsöng sunnudaginn 18 desember. Textum verður varpað á tjald; allir taka undir og syngja í sig jólastemmningu. \n\n\n \n\n\nUm tónlistarkonurnar:\n\n\nAgnes Andrésardóttir byrjaði tónlistarferil sinn í Suzuki tónlistarskólanum Allegro sex ára gömul þar sem hún lærði á fiðlu hjá Lilju Hjaltadóttur og síðar hjá Bryndísi Pálsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hún byrjaði einnig snemma að syngja í ýmsum kórum og hefur verið meðlimur í Graduale Futuri í Langholtskirkju\, Stúlknakór Reykjavíkur\, Gradualekór Langholtskirkju og er nú í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur. \n\n\nGuðrún Gígja Aradóttir byrjaði að læra á fiðlu fimm ára gömul í Tónlistarskólanum í Gravarvogi en stundar nú nám hjá Auði Hafsteinsdóttur í Tónlistarskólanum í Reykjavík. \n\n\nSólborg Birgisdóttir hefur lært á píanó frá fimm ára aldri. Hún lærði fyrst hjá Hönnu Valdísi Guðmundsdóttur við Suzuki tónlistarskólann í Reykjavík en hefur síðastliðin ár verið nemandi Svönu Víkingsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík.\n\nFrítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1500 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sungid-saman-6/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/Samsöngur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161218T131000
DTEND;TZID=UTC:20161218T131000
DTSTAMP:20161215T173533Z
CREATED:20161108T134857Z
LAST-MODIFIED:20161215T173533Z
UID:10000518-1482066600-1482066600@hannesarholt.is
SUMMARY:Hádegistónleikar í Hannesarholti
DESCRIPTION:„Hádegisstund í Hannesarholti“ 18. desember kl. 13.00 \nAndri Björn Róbertsson bassbaryton og Ruth Jenkins-Róbertsson sópran  flytja ljóð og aríur ásamt Kristni Erni Kristinssyni píanóleikara. \nTónleikarnir hefjast kl 13.00 og standa í um 45 mínútur. \nMiðaverð er kr 2.000 og afsláttarverð kr 1.000 fyrir námsfólk og eldri borgara. \n  \nHægt er að kaupa sér léttan hádegisverð fyrir eða eftir tónleika. \n—— \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hadegistonleikar-i-hannesarholti/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/14desTonleikarSkorin.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161211T200000
DTEND;TZID=UTC:20161211T200000
DTSTAMP:20161116T171203Z
CREATED:20161116T171014Z
LAST-MODIFIED:20161116T171203Z
UID:10000520-1481486400-1481486400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ein nótt í desember
DESCRIPTION:Serbneska menningarmiðstöðin á Íslandi kynnir tónlistar- og ljóðakvöld með einum vinsælasta leikara Serbíu\, Ivan Bosiljcic. Menningarviðburður þar sem áhorfendur munu njóta og kynnast tónlist og ljóðum frá Serbíu og Balkanskaganum. Með Ivan Bosiljcic verður píanóleikarinn Aleksandar Miletic og gítarleikarinn Branki Stikovic. \nIvan Bosiljcic er fjöllistamaður og fastráðinn leikari við Þjóðleikhúsið í Belgrad. Framúrskarandi hæfileikar hans hafa fært honum mikilvæg hlutverk í kvikmyndum\, sjónvarpsþáttum og leiksýningum\, hvort sem er drama eða söngleik. Tónlistar- og ljóðakvöld með Ivani njóta mikilla vinsælda á öllum Balkanskaganum og víða í Evrópu en hann hélt sína fyrstu sóló tónleika árið 2009. \nTónleikarnir á Íslandi eru hluti af tónleikaferðalagi hans í Skandinavíu. \nMiðaverð fyrir fullorðna er 5.500 kr. og fyrir öll börn yngri en 12 ára 3.000 kr. Áhugasamir geta keypt miða á TIX.IS.Félagsmenn Serbneskrar Menningarmiðstöðvar á Íslandi geta keypt miða með afslætti.\nHúsið opnar kl. 19:30 en Ivan og félagar munu stíga á stokk klukkan 20:00.\nÞetta er einstök kvöldstund sem þú vilt ekki missa af.\nСрпски Културни Центар на Исланду представља „Једне ноћи у децембру“\, музичко поетско вече са једним од најпопуларнијих глумаца Србије\, Иваном Босиљчићем. \nОво јединствено вече културе одржаће се у недељу 11. децембра 2016 у Hljóðbergi\, Hannesarholti. \nИван Босиљчић је свестран уметник и стални члан драмског ансамбла Народног позоришта у Београду. Изванредан таленат донео му је важне улоге на филму\, у телевизијским серијама и позоришним представама\, како драмским тако и музичким. Музичко поетске вечери са Иваном уживају велику популарност на целом Балкану и широм Европе а свој први солистички концерт одржао је 2009. године.\nКонцерт на Исланду је део његове турнеје у Скандинавији. \n„Једне ноћи у децембру“\, је културна манифестација у којој ће публика уживати и упознати се са евергрином и савременим поп песмама уз одабрана поетска дела из Србије и Балкана у извођењу Ивана Босиљчића уз музичку пратњу пијанисте Александра Милетића и гитаристе Бранка Стиковића. \nЗаинтересовани могу купити улазнице путем инернета на сајту TIX.IS. \nЦена улазница је 5.500 кр. за одрасле а за сву децу млађу од 12. година 3.000 кр. \nЧланови Српског Kултурног Центра на Исланду могу купити улазнице са попустом.\nУлаз се отвара у 19:30 а Иван и музичка пратња ће изаћи на сцену у 20:00 часова.\nОво је јединствено вече које не желите да пропустите.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ein-nott-i-desember/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/FB-cover-SKCI.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161211T150000
DTEND;TZID=UTC:20161211T160000
DTSTAMP:20161208T115311Z
CREATED:20161129T143058Z
LAST-MODIFIED:20161208T115311Z
UID:10000531-1481468400-1481472000@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólahugvekja Þráins - Sungið saman
DESCRIPTION:Jólahugvekja Þráins \nÍ liðlega klukkustund ætlar Þráinn Árni Baldvinsson\, tónlistarkennari og gítarleikari Skálmaldar\, að stjórna jólahugvekju með söng\, spili og sögum. \nStemmningin verður afslöppuð og allir velkomnir að syngja með og taka þátt í að skapa einstaka jólastemmningu. \nÞráinn Árni starfar nú sem tónmenntakennari við Norðlingaskóla milli þess sem hann  ferðast um heiminn með hljómsveit. Hann hefur leikið inn á fjölmargar hljómplötur hér heima og ásamt því að spila með mörgum af okkar þekktustu og bestu listamönnum hefur hann einnig leikið með hinum heimsþekkta Bruce Kulick (Kiss). \nAðgangur kr. 1000.- \nFrítt fyrir börn. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sungid-saman-jolaleg-skalmold/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/Þráinn-Árni-Baldvinsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161207T200000
DTEND;TZID=UTC:20161207T200000
DTSTAMP:20161206T232647Z
CREATED:20161117T153234Z
LAST-MODIFIED:20161206T232647Z
UID:10000526-1481140800-1481140800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Sigríði Snævarr
DESCRIPTION:Kvöldstund með Sigríði Ásdísi Snævarr. Sigríður varð fyrst íslenskra kvenna til að vera skipuð sendiherra. Var það árið 1991 á miklum umbrotatímum. Hún hefur starfað víða um heim sem diplómat síðan 1978\, hóf starfsferilinn  í Sovétríkjunum og var síðast erlendis sem sendiherra í París. Hún er enn í utanríkisþjónustunni og vinnur með diplómötum framtíðarinnar. \n\n\nVeitingastofur opna kl. 18 fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og taka kvöldið snemma. Í boði er Jólaplatti Hannesarholts með hefðbundum jólaréttum en einnig spennandi Vegan jólaplatti. Verð 4.900 kr. Athugið að nauðsynlegt er að panta borð í síðasta lagi fyrir hádegi samdægurs á hannesarholt@hannesarholt.is eða í síma 511 1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-sigridi-snaevarr/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/SÁS-og-Mandela.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR