BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240926T201500
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240926T220000
DTSTAMP:20250206T134725Z
CREATED:20240822T184647Z
LAST-MODIFIED:20250206T134725Z
UID:10001006-1727381700-1727388000@hannesarholt.is
SUMMARY:Cauda Collective: Spegill\, spegill
DESCRIPTION:Spegill\, spegill \nHannesarholti\, 27. september 2024 kl. 20:15\nCauda Collective hefur tónleikaröð sína í Hannesarholti\, Eldblik\, með verkum eftir þær Eygló Höskuldsdóttur Viborg (f. 1989) og Jesse Montgomery (f. 1981). Leiknir verða strengjakvartettar og dúettar fyrir sópran og selló eftir bæði tónskáldin\, sem eiga það sameiginlegt að hafa stundað nám í New York. Verk Eyglóar Silfra og Kona lítur við einkennast af áferðarfögrum strófum þar sem flaututónar strengjahljóðfæra eru notaðir á frumlegan hátt. Verk Jesse\, Loisaida\, My Love og Break Away\, einkennast af leikglöðum en kraftmiklum laglínum sem oft eru unnar upp úr spuna. \n5.900 kr \nGengið inn frá Skálholtsstíg \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/eldblik-tonleikarod-cauda-collective/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/spegillspegill-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240911T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240911T190000
DTSTAMP:20250206T142331Z
CREATED:20240822T152835Z
LAST-MODIFIED:20250206T142331Z
UID:10001005-1726075800-1726081200@hannesarholt.is
SUMMARY:1. Fundur Heimilis Heimsmarkmiðanna: Er hægt að vera sjálfbær neytandi?
DESCRIPTION:Á þessum fyrsta fundi Heimilis Heimsmarkmiðanna ætlum við að velta fyrir okkur ábyrgð neytendans\, hvar hún byrjar og hvar hún endar\, eða hvort hún sé yfirhöfuð til staðar. Við leiðum saman sérfræðinga og áheyrendur til að gera okkur grein fyrir helstu erfiðleikunum við að versla og neyta á meðvitað sjálfbæran máta. Við fáum innsýn í neysluvenjur fólks\, skoðum hvort eða hvernig neytendur geta haft jákvæð áhrif með meðvitaðri neyslu og vonumst til að vekja fólk til umhugsunar.\n\nSérfræðingateymið kemur úr ólíkum áttum og mun deila vitneskju og reynslu sinni.\n\nÁróra Árnadóttir er aðjunkt við Háskóla Íslands. Hún hefur rannsakað hvernig viðhorf Norðurlandabúa til hnattrænnar hlýnunar hefur áhrif á kolefnisfótspor þeirra og neysluvenjur.\n\nGuðbjörg Gissurardóttir er frumköðull sem brennur fyrir sjálfbærum lífstíl. Hún hefur unnið að því að hjálpa fólki að finna sjálfbærarari og grænni kosti.\n\nFreyr Eyjólfsson er verkefnisstjóri Hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu.\n\nAtli Már Steinarsson\, dagskrárgerðamaður og framleiðandi hjá RÚV mun stýra umræðunni og hvetja til áhugaverðs samtals milli áhorfenda og sérfræðinga.\n\nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/1-fundur-heimili-heimsmarkmidanna-er-haegt-ad-vera-sjalfbaer-neytandi/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/AdobeStock_750516287-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240824T130000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240824T170000
DTSTAMP:20250207T105755Z
CREATED:20240822T125457Z
LAST-MODIFIED:20250207T105755Z
UID:10001004-1724504400-1724518800@hannesarholt.is
SUMMARY:Menningarnótt í Hannesarholti
DESCRIPTION:Hljómsveitin Emma ræður dagskránni í Hljóðbergi Hannesarholts og býður til sín Andervel og Ateria\, auk þess Emma spilar. Það verður sannkölluð tónlistarveisla frá kl. 13:00-17:00 á Menningarnótt. Aðgangur ókeypis\, gengið inn frá Skálholtsstíg. \nAndervel kl 13\nEmma kl 14\nAteria kl 16\nEmma: \nEmma flytur Folk tónlist yfir víðtækan hljóðheim. Hljómsveitina stofnuðu systkinin Sindri Snær Ómarsson og Breki Hrafn Halldóru Ómars og skipar einnig Ásgeir Kjartansson og Óðal Hjarn Grétu. Saman hafa þau samið fjölbreytt samansafn af einlægri tónlist og eru að vinna í sinni fyrstu plötu. Hljómsveitin hefur vakið athygli fyrir dýnamíska og grípandi flutninga. \nEmma is an Icelandic atmospheric folk band. The project was created by siblings Sindri Snær Ómarsson and Breki Hrafn Halldóru Ómars as well as Ásgeir Kjartansson and Óðal Hjarn Grétu. Together they have created a diverse set of songs that aim to encapsulate different emotions. The band is known for dynamic and gripping live performances and is currently working on their first album. \nAndervel: \nAndervel er listamannanafn lagahöfundarins og tónskáldsins José Luis Anderson. Hann er fæddur í miðri Mexíkó en með aðsetur á Íslandi og hefur gefið út 2 EP-plötur: Noche (2020) og Montenegro (2024). \nAndervel er virkur umboðsmaður grasrótarsenunnar í Reykjavík og einlæg rödd í íslensku tónlistarpallettunni. Hljómur Andervels er sjaldgæf perla í spænskumælandi tónlist samkvæmt bandaríska blaðinu „Al Día“. Stemningin er hjartnæm og heiðarleg og tónlist hans er undir áhrifum af sterkri mexíkóskri lagahefð\, folk tónlist og íslensku tónlistarlífi. Andervel býr til blöndu af folk tónlist\, poppi\, alternative tónlist og traditional tónlist. \nAuk tónlistarverkefnis síns vinnur José sem verkefnastjóri og viðburðaframleiðandi við margar menningarstofnanir í Reykjavík til að skapa rými fyrir tónlistarfólk. Andervel er einnig hluti af kórnum/collective-inu Kliður. \n/// Andervel is singer-songwriter and composer. Born in central Mexico\, based in Iceland\, the musician has released 2 EPs: Noche (2020) and Montenegro (2024). \nAndervel is an active agent of the grassroots scene in Reykjavik and a genuine voice in the Icelandic palette. \nCelebrated as a rare pearl in Spanish language by American press outlet “Al Día”\, Andervel’s sound has been described as earnest\, heartfelt and intimate\, and his music is influenced by a strong Mexican song tradition\, folk music and the Icelandic music scene. Andervel’s production is a blend of folk\, pop\, alternative and traditional music. \nIn addition to his music project\, Andervel collaborates as a project manager and event producer with cultural institutions in Reykjavik\, to create spaces for all musical proposals in to showcase their work. Andervel is also part of the Klíður choir/collective. \nAteria: \nAteria er skipuð systkinunum Ásu og Eiri og frænku þeirra Fönn. Hljómsveitin hefur verið starfandi síðan 2017\, þau unnu Músíktilraunir árið 2018 og gáfu út sína fyrstu plötu\, and_vara\, í október 2021. Síðan þá hefur margt borið á daga hljómsveitarmeðlima\, en þau taka upp þráðinn þegar tækifæri gefast. Allir meðlimir hljómsveitarinnar hafa stundað bæði klassískt og rytmískt tónlistarnám til margra ára og er því tónlist hljómsveitarinnar fjölbreytt\, en hefur þó verið lýst sem þjóðlaga-goth. Nafnið „Ateria“ er dregið af latneska heiti æðarfuglsins\, Somateria mollissima\, sem er sameiginlegt áhugamál allra hljómsveitarmeðlimanna. \nAteria is composed of siblings Ása and Eir and their cousin Fönn. The band has been active since 2017\, they won Músíktilraunir\, The Icelandic Music Experiments\, in the spring of 2018 and released their first album\, and_vari\, in October 2021. All the band members have studied classical music for many years and entwine different musical styles and genres into their songs. The name ‘Ateria’ is taken from the latin name of the eider duck\, Somateria mollissima\, which is a common interest of all the band members.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/menningarnott-i-hannesarholti-4/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/image_123650291.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181028T121500
DTEND;TZID=UTC:20181028T121500
DTSTAMP:20180211T162050Z
CREATED:20180211T151823Z
LAST-MODIFIED:20180211T162050Z
UID:10000632-1540728900-1540728900@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir og Richard Simm
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í október er meðleikari Richard Simm.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n28. OKTÓBER:\nPíanóleikari: Richard Simm \nSíðustu tónleikarnir í Mozartmaraþon tónleikaröðinni eru. \n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir-og-richard-simm/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/mozartmaraþon.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180826T121500
DTEND;TZID=UTC:20180826T121500
DTSTAMP:20180211T162153Z
CREATED:20180211T151111Z
LAST-MODIFIED:20180211T162153Z
UID:10000631-1535285700-1535285700@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir og Peter Máté
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í ágúst er meðleikari Peter Máté.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n26. ÁGÚST:\nPíanóleikari: Peter Máté \n\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir-og-peter-mate/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/mozartmaraþon.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180429T121500
DTEND;TZID=UTC:20180429T121500
DTSTAMP:20180419T235409Z
CREATED:20180211T150223Z
LAST-MODIFIED:20180419T235409Z
UID:10000628-1525004100-1525004100@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir og Nína Margrét Grímsdóttir
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í apríl er meiðleikari Bjarni Frímann Bjarnason.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n  \n29. APRÍL:  Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir \n\n24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen\n29. JÚLÍ: Píanóleikari: Gerrit Schuil\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir-og-bjarni-frimann/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/31068889_1977288629011487_8333448547064127426_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180426T200000
DTEND;TZID=UTC:20180426T200000
DTSTAMP:20180425T154725Z
CREATED:20180326T164802Z
LAST-MODIFIED:20180425T154725Z
UID:10000650-1524772800-1524772800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Kristínu Eiríks og Gunnari Þorra
DESCRIPTION:Kvöldstund með Kristínu Eiríks\, sem deilir með gestum hugsunum sínum og draumum\, segir frá áhrifavöldum og leiðinni sem leiddi til rithöfundaferils. Gunnar Þorri Pétursson\, bókmenntafræðingur og þýðandi\, stjórnar umræðum. \nFyrsta ljóðabók Kristínar\, Kjötbærinn\, kom út árið 2004. Áður höfðu ljóð hennar birst í tímaritum og dagblöðum. Á eftir fylgdu svo ljóðabækurnar Húðlit Auðnin árið 2006 og Annarskonar sæla árið 2008. Árið 2010 kom út smásagnasafnið Doris deyr og haustið 2012 sendi hún frá sér sína fyrstu skáldsögu\, Hvítfeld – fjölskyldusaga. Hún hefur einnig samið leikrit\, þar á meðal Karma fyrir fugla ásamt Kari Ósk Grétudóttur\, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu árið 2013 og Hystory sem sett var upp í Borgarleikhúsinu árið 2015. \nSögur hennar og ljóð hafa verið þýdd yfir á dönsku\, þýsku og ensku. Kristín hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir ljóðabókina KOK árið 2014\, og Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Elín\, ýmislegt sem kom út árið 2017.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-kristinu-eiriks/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/KristínEiríks.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180421T100000
DTEND;TZID=UTC:20180421T163000
DTSTAMP:20180418T162417Z
CREATED:20180124T165733Z
LAST-MODIFIED:20180418T162417Z
UID:10000279-1524304800-1524328200@hannesarholt.is
SUMMARY:Pálsvaka - heimspekispjall
DESCRIPTION:Hvert er erindi umhverfisheimspekinnar við Íslendinga? \nPálsvaka er árlegur viðburður að vori í Hannesarholti í samstarfi við Siðfræðistofnun til að heiðra minningu Páls Skúlasonar heimspekings. Markmiðið er að skapa vettvang fyrir umræður um málefni sem tengjast heimspeki og samfélagi. \nAð þessu sinni er viðfangsefnið sá heimspeki- og siðfræðilegi skilningur sem liggur til grundvallar umgengni okkar við náttúruna og afstöðuna til hennar. Undanfarið hefur umræða um náttúruna\, verndun hennar\, nýtingu og merkingu aukist í samfélaginu. Mikilvægt er að sú umræða eigi sér traustar fræðilegar stoðir. Í verkum Páls má finna mikilvæga leiðsögn í þeim efnum. \nHvert er erindi umhverfisheimspekinnar við Íslendinga? \nRáðstefna í Hannesarholti\, laugardaginn 21. apríl 2018\, kl. 10.00-16.30 \nDAGSKRÁ: \n10.00-10.10    Setning þings\, fundarstjóri: Henry Alexander Henrysson  \n10.10-10.25    Ávarp: Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra \n10.25-10.40    Að rækta eða glata samúðargáfunni – inngangserindi um náttúruhugsun Páls                              Skúlasonar: Jón Ásgeir Kalmansson \n10.40-11.20     Fjölbreytni og tengsl í náttúrunni –mikilvægi heimsmyndar: Skúli Skúlason \n11.20-12.00     Samvistarhyggja – heimspekileg hugleiðing um guði\, mannfólk og dýr:\n Róbert H. Haraldsson \n12.00-13.00     HÁDEGISVERÐUR \n13.00-13.40     Brjáluð auðn–um táknmyndir\, tengsl og trúnað í náttúrupælingum meistara                              Páls og lærisveina: Oddný Eir Ævarsdóttir \n13.40-14.20     Fyrirbærafræði og fagurfræði umhverfis og náttúru (eða landslags): Guðbjörg R. Jóhannesdóttir \n14.20-15.00     Græn stjórnmál\, gráa höndin og landslag umhverfismála á Íslandi: Þorvarður Árnason \n15.00-15.20     KAFFIHLÉ \n15.20-16.20     Pallborðsumræður\, þátttakendur: Árni Finnsson\, Guðrún Þóra Gunnarsdóttir\,                                Einar Jónsson\, Hafdís Hanna Ægisdóttir\, Ólafur Páll Jónsson og Stefán Gíslason.                            Stjórnandi pallborðsumræðna: Salvör Nordal \n16.20-16.30     Lokaorð: Mikael Karlsson \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/palsvaka-heimspekispjall/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/Páll_við_Öskju.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180408T140000
DTEND;TZID=UTC:20180408T140000
DTSTAMP:20180407T111614Z
CREATED:20180326T164454Z
LAST-MODIFIED:20180407T111614Z
UID:10000649-1523196000-1523196000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman með Hauki Heiðari\, Halldóri og Hauki Heiðari
DESCRIPTION:Feðgarnir Haukur Heiðar Ingólfsson og synir hans Halldór og Haukur Heiðar Haukssynir leiða samsöng í Hannesarholti sunnudaginn 8. apríl kl. 14. Haukur Heiðar Ingólfsson heimilislæknir og píanóleikari hefur um áratuga skeið glatt Íslendinga með píanóleik sínum\, bæði á ferð og flugi um landið með Ómari Ragnarssyni og með fáguðum kvöldverðartónum. Geisladiskar hans með sígildum dægurlögum\, jafnt leiknum sem sungnum\, hafa notið mikilla vinsælda. Synirnir tveir hafa getið sér gott orð fyrir söng\, hvor á sínu sviði. Haukur Heiðar yngri er þjóðkunnur sem söngvari hinnar vinsælu hljómsveitar Diktu\, en Halldór hefur um árabil sungið með Mótettukór Hallgrímskirkju og fleiri kórum. Á söngskrá feðganna er fjölbreytt blanda af þekktum og skemmtilegum dægurlögum\, sænskum vísum og söngvum um vorið. \nTextar birtast á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 krónur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-hauki-heidari-halldori-og-hauki-heidari/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/Haukur-Heiðar-Ingólfsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180405T200000
DTEND;TZID=UTC:20180405T200000
DTSTAMP:20180329T102905Z
CREATED:20180122T170418Z
LAST-MODIFIED:20180329T102905Z
UID:10000276-1522958400-1522958400@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Vilborgu Davíðsdóttur
DESCRIPTION:Skáldkonan Vilborg Davíðsdóttir fagnar 25 ára höfundarafmæli í ár en fyrsta bók hennar\, Við Urðarbrunn\, kom út árið 1993. Síðan þá hefur Vilborg skrifað sjö sögulegar skáldsögur sem líkt og sagan um ambáttina Korku hafa hlotið lofsamlega dóma\, nú síðast þríleikinn um landnámskonuna Auði djúpúðgu\, og einnig sannsöguna Ástin\, drekinn og dauðinn\, um ferðalagið með drekanum en svo nefndu þau maður hennar heilakrabba sem dró hann til dauða í blóma lífsins. \nÍ tilefni af tímamótunum býður Hannesarholt til kvöldstundar með Vilborgu fimmtudaginn 5. apríl kl. 20 þar sem hún mun spjalla við gesti í Hljóðbergi um feril sinn og skáldsagnaskrif í máli og myndum úr eigin lífi og frá söguslóðum bóka sinna. \nOpið er í veitingastofum Hannesarholts til kl.22 eins og önnur fimmtudagskvöld. Gleðistund (happy hour) frá 17-19\, lifandi tónlist frá 18.30-20\, Pálmar Ólason leikur við píanóið á meðan gestir sem það kjósa njóta kvöldverðar á undan kvöldstundar með Vilborgu. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-vilborgu-davidsdottur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/VilborgDavíðsdóttir_2017_portrett.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180325T160000
DTEND;TZID=UTC:20180325T160000
DTSTAMP:20180320T145823Z
CREATED:20180319T141230Z
LAST-MODIFIED:20180320T145823Z
UID:10000641-1521993600-1521993600@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiklestur - Hvað er í blýhólknum?
DESCRIPTION:Leikhúslistakonur 50+ leiklesa leikrit Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti í mars og apríl. Fyrst er leikritið „Hvað er í blýhólknum” undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Helstu leikendur eru: Anna Einarsdóttir\, Arnar Jónsson\, Guðbjörg Thoroddsen\, Hanna María Karlsdóttir\, Jón Magnús Arnarsson og Sigurður Skúlason. \n„Hvað er í blýhólknum?” er fyrsta leikrit Svövu Jakobsdóttur. Það var frumsýnt 1970 og sætti tíðindum  og þá ekki síður leikstjórn Maríu Kristjánsdóttur\, en þetta var hennar fyrsta leikstjórnarverkefni að námi loknu. Hún leikstýrði jafnframt verkinu seinna bæði fyrir sjónvarp og útvarp. \nSýningin vakti mikla athygli og umtal á sínum tíma því hún kallaðist algerlega á við það sem var efst á baugi í samfélaginu. Árið 1970 er Rauðsokkahreyfingin stofnuð og leikritið\, sem fjallar um stöðu kvenna á þeim tíma\, var mikilvægt innlegg í þá baráttu. \nÞað hefur margt breyst á þeim áratugum sem liðnir eru frá frumsýningu „Hvað er í blýhólknum?”\, en fróðlegt er að rifja upp umræðuna eins og hún var þá og bera saman við aðstæður og  líf kvenna á Íslandi í dag. Hvað hefur breyst og hvar eru  íslenskar konur staddar í dag. \nMiðasala fer fram á tix.is. Opið er í veitingastofum Hannesarholts frá 11.30-17 á sunnudögum. Tilboð á kaffi og vöfflu á 1000 kr á undan leiklestrinum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leiklestur-hvad-er-i-blyholknum/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/SvavaBlýhólkur-e1521552849975-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180311T140000
DTEND;TZID=UTC:20180311T140000
DTSTAMP:20180305T131214Z
CREATED:20180207T155410Z
LAST-MODIFIED:20180305T131214Z
UID:10000624-1520776800-1520776800@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman - Sigurkarl Stefánsson og Auður Sigurkarls
DESCRIPTION:Sigurkarl Stefánsson menntaskólakennari og músíkant stjórnar fjöldasöng í klukkustund ásamt dóttur sinni Auði bassaleikara. Textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nHúsið er opið frá 11.30 – 17.00\, einnig veitingastofur á 1.hæð.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-sigurkarl-stefansson-og-audur-sigurkarls/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Screen-Shot-2018-03-01-at-16.26.55.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180310T140000
DTEND;TZID=UTC:20180310T140000
DTSTAMP:20180307T212701Z
CREATED:20180227T113222Z
LAST-MODIFIED:20180307T212701Z
UID:10000286-1520690400-1520690400@hannesarholt.is
SUMMARY:Svavar Knútur og söngperlurnar
DESCRIPTION:Söngvaskáldið Svavar Knútur heldur tónleika í Hannesarholti þann 10. mars næstkomandi kl. 14.00.\n\nSvavar Knútur hefur getið sér gott orð\, ekki einungis fyrir sín eigin lög\, heldur einnig fyrir meðferð sína á sígildum söngperlum Íslands. Hann hefur þó ekki haldið tónleika sem sérstaklega eru tileinkaðir þessari tónlist síðan árið 2011. Nú hyggst hann í fyrsta skipti í sjö ár rifja upp kynni sín af þessum gömlu góðu sönglögum og flytja rúmlega klukkustundarlanga dagskrá\, sneisafulla af lögum eftir höfunda eins og Sigfús Halldórsson\, Jón Nordal\, Pál Ísólfsson\, Sigvalda Kaldalóns og fleiri við ljóð eftir Tómas Guðmundsson\, Davíð Stefánsson\, Halldór Laxness og Jónas Hallgrímsson ásamt fleiri ljóðsnillingum Íslandssögunnar.\n\nMeð einungis gítarinn og Ukuleleið með í för er það nokkuð ljóst að tónleikarnir verða í senn einfaldir og hlýir. Þeir sem þekkja til flutnings Svavars Knúts á hinum sígildu íslensku sönglögum vita vel hvaða fjársjóðskistu hér er verið að opna og mega hugsa sér gott til glóðarinnar.\n\nMiðaverð er kr. 3.000 en 2.000 fyrir lífeyrisþega og námsmenn. Frítt er fyrir börn í fylgd með fullorðnum.\n\nMiðasala er á Tix.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-svavar-knutur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/SvavarKnútur.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180308T200000
DTEND;TZID=UTC:20180308T200000
DTSTAMP:20180308T182025Z
CREATED:20180211T231437Z
LAST-MODIFIED:20180308T182025Z
UID:10000636-1520539200-1520539200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Halldóru Björnsdóttur
DESCRIPTION:Kvöldstund í samvinnu Göngum saman og Hannesarholts með Halldóru Björnsdóttur\, íþróttafræðingi\, framhaldsskólakennara og framkvæmdastjóra Beinverndar. Halldóra hefur haft umsjón með morgunleikfimi í útvarpinu í 30 ár og er einlægur áhugamaður um útivist og hreyfingu. Halldóra er dæmi um manneskju sem lifir fræðin í öllu lífi sínu og starfi og deilir með gestum leiðum til að efla heilbrigði beina sinna og almennt heilbrigði. \nHalldóra gefur vinnu sína við kvöldstundina og rennur aðgangseyririnn til Göngum saman og Hannesarholts.\n\nVeitingastofurnar eru opnar til kl.22 alla fimmtudaga. Gleðistund (happy hour) frá 17-19\, lifandi tónlist frá 18.30-20 í boði Pálmars Ólasonar\, eldhúsið opið til kl.21.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-halldoru-bjornsdottur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Halldóra-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180225T160000
DTEND;TZID=UTC:20180225T160000
DTSTAMP:20180224T101644Z
CREATED:20180212T134402Z
LAST-MODIFIED:20180224T101644Z
UID:10000637-1519574400-1519574400@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiklestur Kvennaráð eftir Sellu Páls
DESCRIPTION:Kvennaráð (áður Erfðagóssið) eftir Sellu Páls verður leiklesið í Hljóðbergi Hannesarholts 25.febrúar kl.16 og síðdegis helgina eftir. Sveinn Einarsson leikstýrir en hann hefur leikstýrt yfir 100 leiksýningum heima og erlendis.\n\nLeikritið Kvennaráð fjallar um Þorgerði\, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina\, forstjórann Birnu\, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina víetnömsku heimilishjálp Kim um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Kim henni á óvart.\nLeikstjóri: Sveinn Einarsson\nHöfundur: Sella Páls\nLeikarar: Þórunn Magnea Magnúsdóttir\, Guðrún Þórðardóttir og Lieu Thuy Ngo\nBúninga og sviðshönnuður: Helga Björnsson\nLeiklesturinn er styrktur af Reykjavíkurborg. Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir uppsetningunni.\n\nTilboð á kaffi of vöfflu með rjóma á 1000 krónur í veitingastofunum á undan leiklestrinum.\n\nUmfjöllun Bryndísar Schram og Silju Aðalsteinsdóttur má finna á fésbókarsíðu Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leiklestur-kvennarad/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Kvennaráð-640x480-í-Hannesarholti2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180225T140000
DTEND;TZID=UTC:20180225T140000
DTSTAMP:20180221T131609Z
CREATED:20180211T170253Z
LAST-MODIFIED:20180221T131609Z
UID:10000635-1519567200-1519567200@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman skátalögin með Pálmari Ólasyni og Magneu Tómasdóttur
DESCRIPTION:Pálmar Ólason og Magnea Tómasdóttir stjórna fjöldasöng í klukkustund þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Að þessu sinni eru skátalögin í forgrunni\, enda átti upphafsmaður skátahreyfingarinnar\, Baden Powell afmæli í vikunni\, þann 22.febrúar. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nHannesaholt vill hlúa að söngarfi þjóðarinnar og býður þess vegna uppá fjöldasöngstundir á 2-3 vikna fresti.  Allir velkomnir! \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-skatalogin-med-palmari-olasyni-og-magneu-tomasdottur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/PálmarogMagnea.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180225T121500
DTEND;TZID=UTC:20180225T121500
DTSTAMP:20180221T133438Z
CREATED:20180211T140900Z
LAST-MODIFIED:20180221T133438Z
UID:10000626-1519560900-1519560900@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í febrúar leikur Anna Guðný Guðmundsdóttir með frænku sinni.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n  \n25. FEBRÚAR:  Píanóleikari: Anna Guðný Guðmunsdóttir \n\n25. MARS: Píanóleikari: Gerrit Schuil\n29. APRÍL:Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason\n24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen\n29. JÚLÍ: Píanóleikari: Gerrit Schuil\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/mozartmaraþon.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180222T200000
DTEND;TZID=UTC:20180222T200000
DTSTAMP:20180221T132210Z
CREATED:20180202T141228Z
LAST-MODIFIED:20180221T132210Z
UID:10000281-1519329600-1519329600@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiklestur - Kvennaráð eftir Sellu Páls
DESCRIPTION:Kvennaráð (áður Erfðagóssið) eftir Sellu Páls verður leiklesið í Hannesarholti fimmtudagskvöldið 22.febrúar kl.20 og sunndaginn 25.febrúar kl.16. Sveinn Einarsson leikstýrir en hann hefur leikstýrt yfir 100 leiksýningum heima og erlendis.\n\nLeikritið Kvennaráð fjallar um Þorgerði\, áttræða ekkju sem var stoð og stytta áhrifamikils manns í fimmtíu ár og nú vill hún breyta til. Samband hennar við einkadótturina\, forstjórann Birnu\, er þvingað vegna tengdasonarins sem ekkjan grunar um græsku. Er ekkjan fer að taka á eigin málum bregst Birna illa við og ásakar hina víetnömsku heimilishjálp Kim um samsæri. En þegar Birna þarf a glíma við örðugar aðstæður koma móðir hennar og Kim henni á óvart.\nLeikstjóri: Sveinn Einarsson\nHöfundur: Sella Páls\nLeikarar: Þórunn Magnea Magnúsdóttir\, Guðrún Þórðardóttir og Lieu Thuy Ngo\nBúninga og sviðshönnuður: Helga Björnsson\nLeiklesturinn er styrktur af Reykjavíkurborg. Leikhúslistakonur 50+ standa fyrir uppsetningunni.\n\nVeitingastofurnar í Hannesarholti eru opnar til kl.22 á fimmtudögum og er boðið uppá matseðil með réttum á verðbili frá 1.900 krónum til 3.490. Borðapantanir í síma 511-1904 fyrir þá gesti sem vilja borða á undan leiklestrinum. Happy hour frá 17-19\, lifandi tónlist frá 18.30-20\, að þessu sinni gælir Kjartan Valdimarsson við píanónóturnar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/8299/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Kvennaráð-640x480-í-Hannesarholti2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180204T140000
DTEND;TZID=UTC:20180204T140000
DTSTAMP:20180126T175745Z
CREATED:20180122T145521Z
LAST-MODIFIED:20180126T175745Z
UID:10000274-1517752800-1517752800@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman með Jóhanni Vilhjálms og Gunnari Kr.Sigurjóns
DESCRIPTION:Söngstund fyrir almenning\, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir. Bræðrasynirnir Jóhann Vilhjálmsson og Gunnar Kr. Sigurjónsson stjórna söngstundinni af alkunnri snilld. Jóhann hefur verið í kórum allt frá blautu barnsbeini og Gunnar hefur spilað á hljómborð við ýmis tækifæri í gegnum tíðina\, jafnframt því að sinna útgáfustarfsemi og sýna töfrabrögð ýmiskonar. Börn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr. Veitingahúsið á hæðinni fyrir ofan er opið frá 11-17 fyrir helgarbröns\, kaffi\, kökur og meðlæti. \nHér er upptaka frá söngstund þeirra frænda síðastliðið haust í Hljóðbergi: \nhttps://www.facebook.com/Hannesarholt/videos/1635041436570407/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sygjum-saman-med-johanni-vilhjalms-og-gunnari-kr-sigurjons/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/JóhannVilhjálms.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180110T200000
DTEND;TZID=UTC:20180110T200000
DTSTAMP:20180105T133304Z
CREATED:20180104T165649Z
LAST-MODIFIED:20180105T133304Z
UID:10000617-1515614400-1515614400@hannesarholt.is
SUMMARY:Víkingur leikur fyrir Hannesarholt
DESCRIPTION:Einstakir styrktartónleikar þar sem Víkingur Heiðar Ólafsson leikur tónlist Bachs og umritanir annarra tónlistarmanna á verkum hans fyrir gesti Hannesarholts\, en verkin verða hljóðrituð fyrir Deutsche Grammophon síðar í janúar. Philip Glass kemur einnig við sögu og Víkingur deilir sýn sinni á tónlistina með áheyrendum. Efnisskráin mun ekki heyrast annars staðar fyrr en á hljómplötunni og gefur samverustundin fágæta innsýn í vinnu tónlistarmannsins í aðdraganda upptöku. \nVíkingur gefur Hannesarholti vinnu sína og vill með því stuðla að því að Hannesarholt lifi áfram. Sjálfseignastofnunin hefur starfað í tæp fimm ár með dyggum stuðningi stofnenda en til að Hannesarholt eigi framtíð þarf að koma til breiðari stuðningur frá samfélaginu. \nHljóðberg Hannesarholts er rómaður tónlistarsalur með ríkulegan og hlýjan en jafnframt skýran og nákvæman hljómburð. Salurinn býður upp á heillandi nánd milli flytjenda og áheyrenda og Steinway flygillinn sem Víkingur valdi fyrir Hljóðberg býr yfir óvenju mikilli dýnamískri breidd og voldugum en glitrandi tóni. \nUm er að ræða einstakan viðburð og miðar aðeins seldir í forsölu. Miðaframboð afar takmarkað. Léttar veitingar í hléi. \nVeitingastaðurinn á 1.hæð er opinn frá kl.18.00 fyrir þá er vilja kvöldverð á undan tónleikunum. Borðapantanir í síma 511-1904 og á vidburdir@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vikingur-leikur-fyrir-hannesarholt-ola/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/05/IMG_0578-copy-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180106T170000
DTEND;TZID=UTC:20180106T170000
DTSTAMP:20180104T175026Z
CREATED:20171213T115307Z
LAST-MODIFIED:20180104T175026Z
UID:10000606-1515258000-1515258000@hannesarholt.is
SUMMARY:Phantasmagoria
DESCRIPTION:Ragnar Jónsson sellóleikari\, Hulda Jónsdóttir fiðluleikari og Mathias Halvorsen píanóleikari flytja píanótríó í A-dúr eftir Maurice Ravel\, Phantasmagoria eftir Bent Sørensen og fiðlusónata nr. 4 eftir Charles Ives. \nSystkinin Hulda og Ragnar hafa leikið saman alla ævi og gengur sífellt betur að vinna saman eftir sem þau eldast og þroskast. Ragnar nam sellóleik hér heima hjá Gunnari Kvaran og Sigurgeiri Agnarssyni og utan í Kaupmannahöfn og París. Hann hefur m.a. verið viðtakandi minningarverðlauna Raphael Sommer 2014 og styrks úr tónlistarsjóði Valitor 2016. Sama ár lék hann sellókonsert Edwards Elgar með Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir að hafa farið með sigur úr býtum í einleikarakeppninni Ungir Einleikarar. \nEftir að hafa lokið Diplómaprófi frá Listaháskóla Íslands vorið 2009 hélt Hulda til New York þar sem hún lauk Master of Music gráðu vorið 2015\, síðan þá hefur Hulda verið búsett í Þýskalandi. Veturinn 2017-18 leikur hún með kammersveitinni Ensemble Resonanz sem eru staðarlistamenn í nýja Elbphilharmonie tónleikahúsinu í Hamburg. Auk þess leikur hún reglulega kammertónlist\, er meðlimur í strengjakvintettinum Wooden Elephant og starfar sem aukamaður með ýmsum sinfóníuhljómsveitum í Evrópu. \nMathias er uppalinn í Noregi og nam í Osló og Leipzig og kemur reglulega fram sem einleikari og kammertónlistarmaður út um allan heim. Mathias tekur þátt í og skipuleggur ýmis fjölbreytt verkefni\, sem dæmi má nefna kammertónlistarhátíðina PODIUMfestivalen í Haugesund sem hann hefur staðið að frá árinu 2008\, tónleika í niðamyrkri undir yfirksriftinni Lights Out\, einnig lék hann með söngkonunni Peaches í sýningu hennar nefndri Peaches Christ Superstar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/phantasmogoria/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/hulda.jpg
ORGANIZER;CN="Hulda J%C3%B3nsd%C3%B3ttir":MAILTO:violinhulda@gmail.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171220T200000
DTEND;TZID=UTC:20171220T210000
DTSTAMP:20171214T134431Z
CREATED:20171213T150538Z
LAST-MODIFIED:20171214T134431Z
UID:10000607-1513800000-1513803600@hannesarholt.is
SUMMARY:Töfratónar: jólatónleikar í Hannesarholti
DESCRIPTION:Töfratónar í Hannesarholti \nMiðvikudagskvöldið 20. desember verður sannkölluð jólastemning í Hannesarholti þegar tríóið Töfratónar leika fyrir gesti í Hljóðbergi. Þríeykið\, sem hefur leikið saman síðan snemma árs 2016\, léku nýverið undir á kaffihúsamessu í Lindakirkju við miklar og góðar undirtektir gesta. \nÁ tónleikunum munu Töfratónar leika úrval þekktra jólalaga og sálma og hvetur hljómsveitin gesti til að taka undir. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00 í tónleikasal Hannesarholts. \nTríóið Töfratóna skipa af píanóleikarinn Helgi Már Hannesson\, trompetleikarinn Steinar Matthías Kristinsson og söngkonan Helga Magnúsdóttir. \n— \nOpið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir tónleikana og býðst gestum að gæða sér á jólaplatta Hannesarholts 2017 fyrir viðburð. Borðapantanir í s. 511 1904
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tofratonar-jolatonleikar-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/12/24131794_1043719722450366_4394359359192283101_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171219T200000
DTEND;TZID=UTC:20171219T200000
DTSTAMP:20171218T120751Z
CREATED:20170926T132253Z
LAST-MODIFIED:20171218T120751Z
UID:10000242-1513713600-1513713600@hannesarholt.is
SUMMARY:FRESTAÐ VEGNA VERKFALLS - Einleikstónleikar á selló - Anthony Albrecht
DESCRIPTION:ÞVÍ MIÐUR FRESTAST ÞESSIR TÓNLEIKAR UM ÓÁKVEÐINN TÍMA VEGNA VERKFALLS FLUGVIRKJA. \n  \nÁstralski sellóleikarinn Anthony Albrecht heldur einleikstónleika í Hljóðbergi Hannesarholts 19. desember n.k. Á efnisskrá eru einleiksverk fyrir selló eftir Johann Sebastian Bach. \nAnthony Albrecht kemur til landsins með stjörnum prýddan feril; nýlega útskrifaðist hann úr Juiliard tónlistarskólanum með hæstu einkunn og hefur Albrecht numið þar undir handleiðslu færustu tónlistarkennara heims. \nHljóðberg opnar kl. 19:30 en opið verður í Veitingastofum Hannesarholts fyrir viðburð\, þar sem bornir verða fram súpa og léttir grænmetisréttir. \nTónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20:00
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/einleikstonleikar-a-cello-anthony-albrecht/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/bach-recital-hannesarholt-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171214T200000
DTEND;TZID=UTC:20171214T200000
DTSTAMP:20171123T162714Z
CREATED:20171102T133421Z
LAST-MODIFIED:20171123T162714Z
UID:10000251-1513281600-1513281600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Hjálmari Jónssyni
DESCRIPTION:Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur og fyrrum alþingismaður deilir með gestum innsýn og minningum frá viðburðaríkri ævi þar sem gaman og alvara eiga samleið í Hljóðbergi Hannesarholts kl.20.00\, fimmtudagskvöldið 14. desember. Hjálmar hefur komið víða við en auk starfa sem dómkirkjuprestur og sem alþingismaður hefur Hjálmar verið ötult skáld. Hann hefur ort ljóð og sálma sem birst hafa í Sálmabókarviðbæti og samið smásögur og greinar um ýmis efni. \n\nJólaplatti Hannesarholts verður borinn fram fyrir viðburðinn á 1.hæðinni frá kl.18.30 fyrir þá sem það vilja. Við píanóið verður Pálmar Ólason. Borðapantanir í síma 511-1904\, á hannesarholt@hannesarholt.is og á Facebook.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-hjalmari-jonssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/Hjálmar-Jónsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171204T200000
DTEND;TZID=UTC:20171204T200000
DTSTAMP:20171202T023103Z
CREATED:20171128T064905Z
LAST-MODIFIED:20171202T023103Z
UID:10000259-1512417600-1512417600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldvaka á afmælisdegi Hannesar Hafstein
DESCRIPTION:Í fyrsta sinn var haldið uppá afmæli Hannesar Hafstein í Hannesarholti á 150 ára afmæli hans 4.desember 2011 með afmæliskaffi í hálfendurgerðu húsinu að Grundarstíg 10\, eftir hátíð ættingja og stjórnvalda í Safnahúsinu.  Að þessu sinni verður haldin kvöldvaka undir stjórn Ólafs Egilssonar fyrrum sendiherra og félaga í Hollvinum Hannesarholts: \nLjóð Hannesar Hafstein lifna í flutningi Marteins Sindra Jónssonar\, sem hefur gert lög við þrjú ljóða Hannesar. \nBjörgólfur Thorsteinsson les fáein brot úr óbirtum endurminningum foreldra sinna\, Oddnýjar og Péturs Thorsteinssonar en Pétur var yngsta barn Hannesar Hafstein og eru nú rétt rúm hundrað ár liðin frá fæðingu hans. Pétur var sendiherra og frumherji í utanríkisþjónustu Íslands. Eftir kaffihlé mun Guðmundur Magnússon lesa uppúr nýútkominni ævisögu Eggerts Claessen en hann var frændi og góður vinur Hannesar Hafstein. \nAðgangseyrir er 1500 krónur og er greiddur á staðnum. Félagar í nýstofnuðu félagi Hollvina Hannesarholts greiða engan aðgangseyri. Hægt er að skrá sig í félagið á staðnum. Árgjald er 5000 kr og gildir út árið 2018. \nFyrir þá sem það kjósa þá eru veitingastofurnar opnar frá kl.18.30 og hægt er að panta jólaplatta í kvöldmat á undan kvöldvökunni á kr.3.900. Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/afmaelishatid-hannesar-hafstein/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldvaka
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2010/12/Hannes_Hafstein_ma_nota.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171203T140000
DTEND;TZID=UTC:20171203T140000
DTSTAMP:20171130T201759Z
CREATED:20170904T164034Z
LAST-MODIFIED:20171130T201759Z
UID:10000581-1512309600-1512309600@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman: Þráinn Árni Baldvinsson
DESCRIPTION:Söngstund fyrir alla fjölskylduna! Textum varpað á tjald og tónlistarmaður leiðir sönginn. \nÍ þetta skiptið höfum við fengið engan annan en Þráinn Árna Baldvinsson til að leiða Syngjum saman\, en landsmenn þekkja hann best sem gítarleikara þungarokkssveitarinnar Skálmaldar. Hann mun leika úrval þekktra þjóð- og dægurlaga\, í bland við minna þekktar perlur. \nBörn fá frítt í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 kr. Veitingahúsið á hæðinni fyrir ofan er opið frá 11-17 fyrir helgarbröns\, kaffi\, kökur og meðlæti.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-thrainn-arni-baldvinsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/þráinn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171129T200000
DTEND;TZID=UTC:20171129T200000
DTSTAMP:20171126T225436Z
CREATED:20170905T170145Z
LAST-MODIFIED:20171126T225436Z
UID:10000582-1511985600-1511985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldvaka - Tungu mál
DESCRIPTION:Iðunn\, Ingólfur\, Kristín og Stefán börn Öddu og Steins í Tungu\, Seyðisfirði bjóða til kvöldvöku miðvikudaginn 29.nóvember kl.20.00 \nSystkinin úr Tungu hafa sýslað margt um dagana. Á ferilskrá þeirra gefur að líta blöndu af hinu og þessu í ýmsum hlutföllum. Hér skulu nefnd nokkur dæmi: Ritstjórn\, þýðingar\, tónlist samin og flutt\, bókaskrif fyrir alla aldurshópa\, bæði ljóð og laust mál\, ýmsar lækningar og síldarsöltun\, beitning og önnur fiskvinnsla\, leiðsögn\, dægurlagatextagerð\, kennsla á öllum aldursstigum\, talsíma- og sendilsstörf\, sýnataka og efnagreining\, verksmiðjuvinna á Mývetningaslóð og Katanesi\, bæjarvinna og afgreiðslustörf í gamla kaupfélaginu heima\, grafið fyrir sjónvarpsstreng\, gamalmenna gætt í Danaveldi\, skrifstofustörf.  \nOg hver er nú hver? \n  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldvaka-tungu-mal/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum,Kvöldvaka
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/tunga1961.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171123T200000
DTEND;TZID=UTC:20171123T200000
DTSTAMP:20171120T182459Z
CREATED:20170914T150941Z
LAST-MODIFIED:20171120T182459Z
UID:10000234-1511467200-1511467200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Pálma Gunnarssyni
DESCRIPTION:Pálmi Gunnarsson söngvari og bassaleikari mætir til okkar í Hannesarholt fimmtudagskvöldið 23. nóvember ásamt Þóri Úlfarssyni píanóleikara og upptökustjóra en þeir félagar hafa unnið ófá verkefnin saman á liðnum áratugum. Veitingastofurnar eru opnar og það er tilvalið að fá sér kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-palma-gunnarssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/PG-Miklatún-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171122T200000
DTEND;TZID=UTC:20171122T200000
DTSTAMP:20171120T194034Z
CREATED:20171021T235329Z
LAST-MODIFIED:20171120T194034Z
UID:10000596-1511380800-1511380800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Peter Máté og Eugen Prochác
DESCRIPTION:Sjaldheyrður klassíker J.N.Hummel fyrir selló og píanó. \nEugen Prochác sellóleikari frá Bratislava og Peter Máté flytja öll þau verk fyrir selló og píanó sem austurríska tónskáldið Johann Nepomuk Hummel hefur samið. \nHummel (1778-1837) var nemandi Mozarts og vinur Beethovens og Schuberts og starfaði í Vínarborg\, Stuttgart og Weimar. Hann var einn frægasti píanóleikari og tónskáld síns tíma en eftir komu nýrra strauma rómantíkurinnar hurfu verkin hans úr tónlistarsölum Evrópu. Síðustu áratugi hafa margir tónlistarmenn heimsins unnið við verðskuldaðri endurreisn tónverka þessa síðklassíska tónskálds. \nVerkin þrjú á dagskrá eru Variazioni Monferrina\, tilbrigði um ítalskan dans sem var mjög vinsæll á 19. öld\, Potpourri sem er tónlistarsyrpa með frægum aríum eftir Mozart og Rossini og Sónata fyrir selló og píanó. Sónatan er ljúf snemmrómantískt tónverk með fallegum melodíum og skemmtilegum tækniþrautum fyrir flytjendur. \nEugen Prochác er einn þekktasti sellóleikari Slóvakíu og dósent við Tónlistarháskólann í Bratislava. Hann hefur komið fram í nær 40 löndum fjögurra heimsálfa\, sem einleikari\, stjórnandi og sellóleikari í ýmsum kammertónlistarhópum. Eugen hefur hljóðritað fyrir Naxos og haldið masterklassa víða um veröld. Hann hefur verið listrænn stjórnandi tónlistarhátíða í Slóvakíu\, Tyrklandi\, Sameinuðu arabísku furstdæmunum og hefur starfað saman við þekkta tónlistarmenn eins og Sofia Gubaidulina\, Arto Noras\, En Shao\, Giovanni Sollima\, Rick Wakeman\, Steve Hackett\, Miroslav Vitouš\, Ken Hensley\, Václav Hudeček. \nPeter Máté er einnig fæddur í Slóvakíu en hefur verið búsettur á Íslandi frá árinu 1990. Hann hefur haldið marga einleikstónleika og tekið þátt í kammertónleikum víða á Íslandi sem erlendis. Peter er prófessor Listaháskóla Íslands og kennari við Menntaskólann í tónlist.  Hann hefur kennt masterklassa við fjölda erlendra háskóla og einnig tekið að sér dómarastarf við píanókeppnir. \nPeter og Eugen stunduðu báðir nám á sama tíma við Tónlistarakademíuna í Prag og eru nú að hittast í fyrsta skipti eftir 30 ár til þess að spila saman á tónleikunum. \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-peter-mate-og-eugen-prochac/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/10/PeterMateetal.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171119T140000
DTEND;TZID=UTC:20171119T140000
DTSTAMP:20170926T151336Z
CREATED:20170911T115829Z
LAST-MODIFIED:20170926T151336Z
UID:10000583-1511100000-1511100000@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman til heiðurs KSU Úlfljótsvatni
DESCRIPTION:Syngjum saman og rifjum upp sönglífið í KSU á Úlfljótsvatni í den tid. Textar birtast á tjaldi til upprifjunar\, allir taka undir. Ólafía Aðalsteinsdóttir er komin í málið með lagalista frá 1970 og leiðir sönginn með bræðrum sínum Ævari og Örvari ásamt Guðmundi Pálssyni. Aðgangseyrir 1000 krónur\, frítt fyrir börn. Miðasala á midi.is \nÞað er opið í Hannesarholti þennan dag frá 11-17. Guðmundur Pálsson mun taka með sér stutta heimildamynd sem hann gerði um lífið á Úlfljótsvatni\, og þeir sem kjósa geta séð hana eftir söngstundina.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-til-heidurs-ksu-ulfljotsvatni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/KSUílit.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR