BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160320T160000
DTEND;TZID=UTC:20160320T160000
DTSTAMP:20160315T152212Z
CREATED:20160315T152046Z
LAST-MODIFIED:20160315T152212Z
UID:10000474-1458489600-1458489600@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókakaffi - að yrkja hamingjuna
DESCRIPTION:Að yrkja hamingju \nÍ tilefni af alþjóðlegum degi hamingjunnar 20. mars \nHamingjuljóð og hollráð um líf og hamingju munu hljóma á kaffihúsinu í Hannesarholti á alþjóðlegum degi hamingjunnar 20. mars. Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO og Embætti landlæknis hafa tekið höndum saman um að fagna deginum með ljóðum\, tónlist og hugvekjum um mikilvægi hamingjunnar í daglegu lífi okkar.\nLjóðskáldin Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Bhikshuni Weisbrot flytja ljóð um hamingjuna. Gunnar Hersveinn\, rithöfundur\, og Sigrún Daníelsdóttir\, sálfræðingur og verkefnastjóri geðræktar hjá Embætti landlæknis\, flytja erindi um hamingjuna í samtímanum og tríóið Reykjavik Centre Music Group leikur tónlist. \nAðalsteinn Ásberg Sigurðsson\, skáld\, þýðandi\, tónlistarmaður og útgefandi er landsþekktur og eftir hann liggja ljóðabækur og önnur skáldrit fyrir börn og fullorðna svo og ljóðaþýðingar. Nýjasta ljóðabók hans með eigin ljóðum er Sjálfsmyndir frá árinu 2012. \nBhikshuni Weisbrot er skáld\, ritstjóri og formaður rithöfundasambands Sameinuðu þjóðanna (United Nations SRC Society of Writers). Hún er sérlegur gestur okkar á þessum hátíðardegi. Weisbrot\, ásamt Elizabeth Lara og Darrel Alejandro Holnes\, ritstýrði safni samtímaljóða undir heitinu Happiness: The Delight-Tree sem gefið var út á alþjóðadegi hamingjunnar árið 2015 og mun hún lesa ljóð úr bókinni ásamt eigin ljóðum. \nGunnars Hersveinn\, rithöfundur og heimspekingur\, er þekktur fyrir gefandi nálgun sína á málefni líðandi stundar og hefur hann m.a. fjallað um hvernig við ræktum okkar innri mann. Hann nefnir erindi sitt\, „Listin\, frelsið og hamingjan“. \nSigrún Daníelsdóttir nefnir sitt erindi „Skiptir hamingja máli fyrir heilbrigði þjóða?“ Sigrún er kunn fyrir bók sína Líkamsvirðing fyrir börn\, hún hefur kennt sálfræði við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og starfar nú sem verkefnastjóri við geðrækt hjá Embætti landlæknis. \nReykjavik Centre Music Group er tónlistarhópur sem hefur sérhæft sig í tónlist Sri Chinmoy. Hópurinn hefur haldið fjölda tónleika og spilað undir m.a. í hugleiðslustundum og á viðburðum á vegum Sri Chinmoy miðstöðvarinnar hér á landi. \nHamingjustundin í Hannesarholti er öllum opin og ekkert kostar inn. Hún fer fram á kaffihúsinu og stendur í um klukkustund. Viðburðurinn verður á íslensku og ensku.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakaffi-ad-yrkja-hamingjuna/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:Bókakaffi
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/03/Ad-yrkja-hamingjuna_1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR