BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160410T160000
DTEND;TZID=UTC:20160410T160000
DTSTAMP:20160406T103215Z
CREATED:20160130T005057Z
LAST-MODIFIED:20160406T103215Z
UID:10000132-1460304000-1460304000@hannesarholt.is
SUMMARY:Davíðsljóð - Rödd konunnar
DESCRIPTION:Rödd konunnar í ljóðum Davíðs Stefánssonar \n\n\nKonur leika stór hlutverk í ljóðum Davíðs\, þær eru aðalpersónur í ótal mörgum ljóða hans og ósjaldan gefur hann þeim rödd. Þær raddir eru fjölbreyttar\, allt frá hinni feimnislegu Stínu sem skrifar elskhuganum bréf\, til nornarinnar bitru sem særir og særir á ný. Í ljóðum og texta fjallar hann oft um frelsisskort kvenna\, kúgun þeirra og dapurlegt hlutskipti.\nHonum eru hugleiknar konurnar úr sögunni\, sem margar höfðu horfið í óminnisdjúpið. Ein þeirra er Þóra Gunnarsdóttir\, sem í ljóðinu Minning\, minnist Jónasar Hallgrímssonar og ferðar þeirra yfir fjöll og dali\, um leið og hún harmar hlutskipti kvenna:\nVið erum sungnar í sekt og bann\,\nen sagðar hvíla á rósum.\nÞví allar hljótum við einhvern mann\,\nen ekki þann sem við kjósum.Um þessi ljóð\, konurnar og sögu þeirra\, og ekki síst tengsl Davíðs við þær\, fjöllum við í þetta sinn og höldum áfram vefa munstrin og spinna þræðina í Davíðsábreiðuna okkar.Dagskráin er í veitingastofu Hannesarholts kl. 16 til 17. Gott er að mæta tímanlega til að fá borð og geta fengið sér veitingar áður en dagskráin hefst. \nValgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs\, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Hún las þau\, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum. S.l. sumar gegndi hún hlutverki húsfreyju í Davíðshúsi og sökkti sér þá á ný inn í þennan heim ástar\, sögu\, trúar\, ævintýra og þjáningar\, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Vikulega var hún þar með dagskrá um ljóðin og líf Davíðs út frá ólíkum sjónarhornum og nú býður Hannesarholt upp á dagskrá sunnan heiða. Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/davidsljod-valgerdur-h-bjarnadottir/
CATEGORIES:Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/davidstefans.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR