BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161004T200000
DTEND;TZID=UTC:20161004T200000
DTSTAMP:20160919T165133Z
CREATED:20160916T163353Z
LAST-MODIFIED:20160919T165133Z
UID:10000511-1475611200-1475611200@hannesarholt.is
SUMMARY:Þórunn hyrna og Auður djúpúðga - einleikur og spjall
DESCRIPTION:Valgerður H. Bjarnadóttir fer hér í hlutverk Þórunnar hyrnu\, landnámskonu í Eyjafirði\, sem segir sögu sína og systur sinnar. \nSagan geymir nokkur minni um Auði\, líf hennar\, uppruna og dauða\, en við vitum minna um systur hennar Þórunni. Þeir Íslendingar sem eiga rætur í þessu landi geta þó flestir ef ekki allir rakið ættir sínar til þeirra systra og víst er að þær hafa haft veruleg áhrif á mótun síns samfélags við landnám. Þetta voru sigldar konur\, sem höfðu kynnst ólíkum trúarbrögðum og menningarsamfélögum og báru án efa mikilvæg gildi hingað til lands\, gildi sem ekki er úr vegi að rifja upp. \nÍ þessari sögu nýtir Valgerður það sem skráð er um þær systur og þeirra samtíma í okkar fornu ritum\, en einnig það sem varðveist hefur um konur og þeirra menningu í öðrum samfélögum og sem hugsanlega má yfirfæra á sögu þeirra systra. \nValgerður er félagsráðgjafi\, með MA í femínískri trúarheimspeki og menningarsögu. Hún hefur haft brennandi áhuga á Auði frá barnsaldri\, en Þórunn kom ekki af alvöru inn í líf hennar fyrr en hún tók að sér að vinna leikþátt um hana í Laxdalshúsi 2010. Þá vaknaði löngun til að kynnast henni betur og þau kynni eflast og dýpka með árunum. \nHér er Þórunn sett í forgrunn og fær það hlutverk að segja eigin sögu og flétta þar inn í sögu samferðafólks síns\, þó sérstaklega Auðar. Leikþátturinn er rúmur hálftími\, sem fylgt er eftir með umræðum. \nVeitingastofur Hannesarholts bjóða upp á kvöldverð á sanngjörnu frá kl. 18:30.  Athugið að bóka þarf fyrirfram í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/audur-djupudga-og-thorunn-hyrna/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Sagnakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/Valgerðurásteini-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR