BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161216T200000
DTEND;TZID=UTC:20161216T200000
DTSTAMP:20161215T152125Z
CREATED:20161201T134205Z
LAST-MODIFIED:20161215T152125Z
UID:10000532-1481918400-1481918400@hannesarholt.is
SUMMARY:Olivier Manoury - Einleikur á bandóneon
DESCRIPTION:Olivier Manoury leiðir okkur inn ástríðufullan og ómstríðan hljómheim bandóneon harmónikkunnar. \nOlivier Manoury (f. 1953 í Tulle í Frakklandi) ólst að mestu upp í París. Hann var alla tíð listhneigður og hóf myndlistarnám sem barn að aldri. Síðar las hann ensku og bókmenntir við Sorbonne háskóla og lauk þaðan meistaraprófi í nútímabókmenntum árið 1975. Samhliða háskólanámi var hann í listaháskóla Parísarborgar (Ecole National des Beaux Arts) þar sem hann lagði stund á málaralist hjá Gustave Singier og Jacgues Yankel\, auk þess að læra höggmyndalist hjá Etienne Martin. \nDrýgstan hluta ævi sinnar hefur Olivier þó starfað sem tónlistarmaður\, enda er hann er vel þekktur sem bandóneonleikari í Frakklandi og víðar um heim. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir\, leikhús og danssýningar\, spilað inn á fjölda geisladiska\, auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Suður-Ameríku. Olivier leikur bæði tangó og jass en meðal þeirra hljómsveita sem hann hefur stofnað eru Tangoneon\, Tempo Di Tango og Le Grand Tango. Síðasnefnda hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn\, en hún er skipuð þekktum hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi. \nFyrr um daginn opnar Olivier sýningu á vatnslitamyndum sínum sem sýna íslenska náttúru\, hraunbreiður\, sjávarföll\, rafmagnslínur og troðninga. Þaðan leiðir Olivier okkur inn ástríðufullan hljómheim bandóneon harmónikkunnar. \nTil að næra öll skilningavitin er tilvalið að fá sér Jólaplatta Hannesarholts sem er borinn fram í veitingastofunum frá kl.18.30 og kostar 4.900. Plattinn er litríkur\, næringaríkur og bragðgóður. Í boði er tvenns konar platti; með hefðbundum jólaréttum eða vegankrásum. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \n  \n  \n \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/olivier-manoury-solo-bandoneontonleikar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/manoury_site.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR