BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161229T170000
DTEND;TZID=UTC:20161229T170000
DTSTAMP:20161227T002742Z
CREATED:20161117T010313Z
LAST-MODIFIED:20161227T002742Z
UID:10000522-1483030800-1483030800@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Björg Brjánsdóttir og Bryndís Þórsdóttir
DESCRIPTION:Bryndís Þórsdóttir nemur fagottleik við Konunglega Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn. Kennarar hennar þar eru Audun Halvorsen og Sebastian Stevensson\, báðir sólófagottleikarar Dönsku útvarpshljómsveitarinnar. Bryndís hefur verið aukamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá hausti 2013 og var á sex vikna samningi hjá þeim haustið 2016. Hún er einnig aukamaður hjá Dönsku útvarpshljómsveitinni og Sinfóníuhljómsveit Sjálands. \nBjörg Brjánsdóttir nemur þverflautuleik við Tónlistarháskóla Noregs í Osló. Kennarar hennar þar eru Per Flemström\, sólóflautuleikari í Oslóarfílharmóníunni\, og Andrew Cunningham\, fyrrum piccololeikari sömu hljómsveitar. Hún stundaði einnig nám við Tónlistarháskólann í München í eitt ár þar sem kennarar hennar voru Stephanie Hamburger og Natalie Schwaabe. Björg hefur spilað einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt því að vera aukamaður þar síðan vorið 2016. Hún hefur einnig spilað með Íslensku Óperunni\, Caput\, Neue Philharmonie München\, Forsvarets Stabsmusikkkorps í Osló og fleiri hljómsveitum. \nBjörg og Bryndís leika ljúfa en fjölbreytta tónlist\, allt frá jólalegri barokksónötu til brasilískrar svítu. Þær hafa spilað saman síðan árið 2008\, aðallega í smáum kammerhópum\, svo sem tríóum og kvintettum\, en einnig í hljómsveitum svo sem Ungsveit SÍ\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Á árunum 2010 – 2012 stunduðu þær nám saman við Tónlistarskólann í Reykjavík og hafa einnig heimsótt tónlistarháskóla hvor annarrar í Osló og Kaupmannahöfn til að sækja spilatíma og til að spila saman. \nEfnisskrá tónleikanna sem standa yfir í u.þ.b. klukkustund. \nG. F. Händel: Sónata í F-dúr \nSkolnik: Serenaða fyrir flautu og fagott \nC. P. E. Bach: Sónata í a moll fyrir einleiksflautu \nVilla-Lobos: Bachianas Brasileras nr. 6 fyrir flautu og fagott \nÝmsir: Hátíðarsvíta (útsetning Björg Brjánsdóttir) \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-bjorg-brjansdottir-og-bryndis-thorsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/BjörgogBryndís.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161229T200000
DTEND;TZID=UTC:20161229T200000
DTSTAMP:20161227T003357Z
CREATED:20161117T011505Z
LAST-MODIFIED:20161227T003357Z
UID:10000524-1483041600-1483041600@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Rakel Björt Helgadóttir
DESCRIPTION:Rakel Björt Helgadóttir nemur hornleik í Berlín. Hún hóf hornnám 9 ára gömul við Tónlistarskólann á Seltjarnarnesi þar sem kennari hennar var lengstum Anna Sigurbjörnsdóttir. Árið 2007 hóf hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þaðan sem hún lauk Burtfararprófi undir handleiðslu Josephs Ognibene vorið 2012. Þaðan lá leið hennar til Þýskalands þar sem hún hóf nám við Folkwang Universität der Künste í Essen. Frá vormánuðum 2014 hefur Rakel stundað nám við Universität der Künste Berlin en þar hefur hún notið handleiðslu kennara á borð við Ozan Çakar\, Přemysl Vojta\, Prof. Ch-Fr. Dallmann og Sebastian Posch. Rakel hefur auk þess sótt fjölda Masterklassa hjá kennurum á borð við Frøydis Ree Wekre\, Radovan Vlatkovic\, Prof. Thomas Hauschild o.f.l. Hún hefur verið aukamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands síðan vorið 2012. Auk þess hefur hún leikið sem aukamaður með hljómsveitum á borð við Deutsche Sinfonieorchester Berlin\, Kammerphilharmonie Wernigerode og Berliner Sinfonietta. Rakel er meðlimur í c/o chamber orchestra. \nEfnisskrá: \nLudwig van Beethoven: Horn Sonata í F-dúr op. 17\nKlement Slavický: Capricci per corno e pianoforte                                                                                                                             Robert Schumann: Fantasiestücke\, Op. 73 \nMeðleikari hennar á þessum klukkustundarlöngu tónleikum er Anna Guðný Guðmundsdóttir. \n  \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-rakel-bjort-helgadottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/RAkel-Björt-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR