BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161230T170000
DTEND;TZID=UTC:20161230T170000
DTSTAMP:20161227T003753Z
CREATED:20161117T014125Z
LAST-MODIFIED:20161227T003753Z
UID:10000525-1483117200-1483117200@hannesarholt.is
SUMMARY:Farfuglatónleikar - Sólveig Steinþórsdóttir
DESCRIPTION:Sólveig Steinþórsdóttir stundar fiðlunám við listaháskólann í Berlín. Hún hóf fiðlunám þriggja ára gömul hjá Lilju Hjaltadóttur við Allegro Suzukitónlistarskólann. Á árunum 2008-2013 var hún nemandi Guðnýjar Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Frá haustinu 2014 hefur hún stundað nám við Listaháskólann í Berlín\, Universität der Künste Berlin\, undir handleiðslu Eriku Geldsetzer. Sólveig hefur sótt fjölda meistaranámskeiða hér heima og erlendis\, m.a. í Þýskalandi\, Sviss\, Bandaríkjunum\, Hollandi og á Ítalíu. Hún hefur spilað fyrir marga virta fiðluleikara\, þar á meðal Christian Tetzlaff\, Ulf Hoelscher\, Roland Vamos og Philippe Graffin. Sólveig hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands á jólatónleikum árin 2009 og 2011 og á tónleikunum Ungir einleikarar árið 2013. Ennfremur hefur hún komið fram sem einleikari með hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík árið 2010\, á hátíðartónleikum á Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar í Hörpu árið 2013\, á lokatónleikum á Internationale Sommerakademie Cervo á Ítalíu árið 2015 og 2016 og með Sinfóníuhljómsveit unga fólksins árið 2015. Í mars 2016 sótti Sólveig námskeið í Neustadt an der Weinstraße hjá Sebastian Schmidt og tók þar þátt í fiðlukeppni á vegum námskeiðsins og fékk þar 2. verðlaun. Í ágúst 2016 kom Sólveig fram á opnunartónleikum Tónlistarhátíðar unga fólksins þar sem leikin voru verk fyrir fiðlu og selló\, í kjölfar tónleikakeppni hátíðarinnar. \nAnna Guðný Guðmundsdóttir spilar með á flygilinn. Tónleikarnir standa yfir í u.þ.b. klukkustund. \nEfnisskrá: \nL. van Beethoven: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 8 í G-dúr\, op. 30 \nE. Ysaye: Sónata fyrir einleiksfiðlu op. 27 nr. 6 S. \nProkofiev: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 2 í D-dúr\, op. 94a \nTónleikar Farfugla í Hannesarholti eru haldnir með stuðningi frá Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar-solveig-steinthorsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/SólveigSteingríms-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR