BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170211T140000
DTEND;TZID=UTC:20170211T140000
DTSTAMP:20170209T095738Z
CREATED:20161222T163633Z
LAST-MODIFIED:20170209T095738Z
UID:10000190-1486821600-1486821600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Gestur frá gamla landinu
DESCRIPTION:Björg Brjánsdóttir flautuleikari\, og Tina Margareta Nilssen píanóleikari ásamt Stine Aarønes fiðluleikara og Brjáni Ingasyni fagottleikara\, flytja verk eftir Beethoven\, Grieg og Sjostakovitsj á notalegum tónleikum í Hljóðbergi\, tónleikasal Hannesarholts. \nDagskrá: Edward Grieg: Úr fiðlusónötu í c moll Ludwig van Beethoven: Sónata fyrir fiðlu og píanó nr. 7 í c moll Dimitrij Shostakovitch: Píanótríó nr. 1 í c moll \nNánar um Björgu og Tinu Margreta:\nTina Margareta Nilssen (www.tinanilssen.no) kemur frá Þrándheimi og starfar sem píanóleikari í Osló. Hún stundaði einleikaranám í Osló\, Þrándheimi og Berlín þar sem kennarar hennar voru Jiri Hlinka\, Heide Görtz\, Jens Harald Bratlie og fleiri. Tina hefur gefið út þrjá geisladiska með píanódúói sínu Dena (www.denapianoduo.com) sem allir hafa hlotið alþjóðlega viðurkenningu. Tina hefur komið fram á tónleikum í Noregi\, Danmörku\, Þýskalandi\, Sviss\, Spáni\, Englandi\, Bandaríkjunum\, Rússlandi og Ítalíu\, og hefur spilað einleik með ýmsum hljómsveitum innan Noregs. Auk þess að vera virk sem píanóleikari hefur Tina þróað og skapað Timani\, aðferð fyrir tónlistarmenn (timani.no). Hún rekur Timani akademíuna í Osló og kennir reglulega í Óperuháskólanum í Osló\, Tónlistarháskóla Noregs\, Baratt Due tónlistarskólanum og í háskólum í Tromsø og Þrándheimi. Hún kennir einnig ýmsum atvinnuhljómsveitum og þekktum flytjendum og hefur haldið Timaninámskeið í fjölmörgum löndum. \nBjörg Brjánsdóttir lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2012 undir handleiðslu Hallfríðar Ólafsdóttur og Magneu Árnadóttur og hélt þá áfram einleikaranámi við Tónlistarháskóla Noregs í Osló og Tónlistarháskólann í München. Þar hafa aðalkennarar hennar verið Per Flemström\, Andrew Cunningham\, Stephanie Hamburger og Natalie Schwaabe. Björg hefur komið fram með mörgum hljómsveitum og hópum\, til að mynda Caput\, Hljómsveit Íslensku Óperunnar\, Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Neue Philharmonie München og Forsvarets Stabsmusikkkorps í Osló. Björg er einnig lærður Timanikennari eftir þriggja ára nám í Timaniakademíunni undir handleiðslu Tinu\, og hefur kennt við Listaháskóla Íslands\, Tónlistarháskólann í München og Tónlistarhátíð Unga Fólksins ásamt fjölda helgarnámskeiða og einkatíma. Hún hélt einnig erindi á alþjóðlegu ráðstefnunni Art in Motion – Training for Excellence í München sumarið 2016. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-3/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/BirnaBrjansTinaBrjánnStine.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR