BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20160101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170425T200000
DTEND;TZID=UTC:20170425T200000
DTSTAMP:20170403T093449Z
CREATED:20170330T175358Z
LAST-MODIFIED:20170403T093449Z
UID:10000561-1493150400-1493150400@hannesarholt.is
SUMMARY:Pálsvaka - heimspekispjall um menntun og menntastefnu
DESCRIPTION:Páll Skúlason heimspekingur tók virkan þátt í að leggja hugmyndafræðilegan grunn að sjálfseignarstofnuninni Hannesarholti\, þar sem litið væri til fortíðar\, nútíðar og framtíðar. Hann var auk þess meðlimur í Menningarráði Hannesarholts frá upphafi og eru stofnendur honum ævinlega þakklát fyrir allan hans stuðning og framlag á mótunarárum Hannesarholts. Páll taldi mikilvægt að heimspeki nýttist fólki í daglegu lífi og væri öllum aðgengileg. Í minningu hans verður Pálsvaka haldin árlega að vori til í Hannesarholti í samstarfi við Siðfræðistofnun\, en markmið Pálsvöku er að skapa vettvang fyrir málefni sem tengjast heimspeki og samfélagi. \nYfirheiti þessarar fyrstu Pálsvöku er Menntun og menntastefna: tvennt ólíkt? Fimm fyrirlesarar flytja stutt erindi sem bregða ólíkri birtu á þema kvöldsins. Að loknum erindum verða umræður. Meðal þeirra spurninga sem tekist verður á við er: Hvað einkennir menntastefnu hér á landi? Hvernig birtist menntastefna í skóla- og tómstundastarfi? Hverju þarf að breyta? Hverjir eiga aðild að því að móta menntastefnu? Hver eru tengsl menntunar og mannréttinda? Hver eru tengsl siðferðis og menntunar? \nFundarstjóri: Brynhildur Sigurðardóttir\, skólastjóri Garðaskóla \nFrummælendur:  \nJón Torfi Jónasson\, prófessor við Menntavísindasvið HÍ\, Hverju er brýnast að breyta í menntamálum og hverjir ættu að gera það?  \nKolbrún Þ. Pálsdóttir\, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands\, Hugleiðingar um heildstæða menntastefnu. \nÓlafur Páll Jónsson\, prófessor við Menntavísindasvið HÍ\, Þegar verkin tala og þegar verkin þegja. \nHenry Alexander Henrysson\, heimspekingur\, aðjúnkt við heimspeki- og sagnfræðideild HÍ\, Verður menntun að vera alls staðar eins? Hugleiðingar um menntun sem mannréttindi. \nJón Ásgeir Kalmansson\, siðfræðingur og nýdoktor við Háskóla Íslands\, Að næra brothætt lífsform. Um siðferðilegt ætlunarverk skóla. \nEftir óskum Páls er ókeypis aðgangur að heimspekispjöllum og þau öllum opinn. \nBoðið er upp á léttan kvöldverð á undan á sanngjörnu verði á 1.hæðinni. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/palsvaka-heimspekispjall-um-menntun-og-menntastefnu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/05/g_myndir_blogg_ymislegt_pall_skulason_696481-e1490915941189.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR