BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180301
DTEND;VALUE=DATE:20180429
DTSTAMP:20210119T152120Z
CREATED:20210119T152120Z
LAST-MODIFIED:20210119T152120Z
UID:10000490-1519862400-1524959999@hannesarholt.is
SUMMARY:GJÚGG Í BLÓM (PEEKABOO) EFTIR GEORG DOUGLAS
DESCRIPTION:Georg Douglas opnar málverkasýningu í Hannesarholti fimmtudaginn 1. mars kl.16\, sem nefnist \,\,Gjúgg í blóm“ – \,\,Peekaboo“. Georg er fæddur á Írlandi 1945 en varð íslenskur ríkisborgari 1975. Hann er með doktorspróf í jarðvísindum og vann við kennslu í 36 ár þar til hann fór á eftirlaun 2007. Hann hefur sótt nám í myndlist í Reykjavík og Kópavogi og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Áhrif vísindanna má glögglega sjá í verkum hans\, sjálfur lýsir hann sýningunni á þennan hátt: \n„Litur blómanna er oft skær og áberandi en ekki er síður eftirtektarvert heildarumhverfi eða heimur blómanna. Undirgróðurinn hefur oft sterk áhrif á það hvernig við upplifum blómin. Þetta gildir sérstaklega um íslensk villiblóm sem gægjast oft í gegnum þykka og forvitnilega flækju af mosa\, fléttum og grösum. Heimur blómanna verður enn merkilegri og furðulegri þegar við skoðum hann í meiri nærmynd með hjálp smásjártækni og sameindalíkana af prótínum og vefjum. Þá opnast nýjar og stærri víddir sem eru ekki síður fallegar en blómkrónur. Málverk mín sameina alla þessa þætti og í þeim er hlutföllum víxlað eða breytt til þess að mynda abstrakt heild\, þar sem blómin sjálf eru stundum áberandi en stundum fá þau rétt að kíkja í gegnum flækjuna af þáttunum sem þau eru gerð úr eða vaxa í.“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gjugg-i-blom-peekaboo-eftir-georg-douglas/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/GeorgMynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180304T140000
DTEND;TZID=UTC:20180304T140000
DTSTAMP:20180302T165421Z
CREATED:20180302T165421Z
LAST-MODIFIED:20180302T165421Z
UID:10000290-1520172000-1520172000@hannesarholt.is
SUMMARY:Wagner og Liszt: vinátta\, óvinátta\, vinátta
DESCRIPTION:Fyrirlestur Richard Wagner félagsins\nÁrni Blandon fjallar um Wagner og Liszt: Vinátta\, óvinátta\, vinátta. \nÍ erindinu fjallar Árni Blandon um vináttu tónskáldsins Richard Wagners og píanósnillingsins og tónskáldsins Franz Liszt. Liszt auglýsti verk Wagners og styrkti hann fjárhagslega. Síðar súrnaði í vináttunni vegna maka og sambýlsikvenna snillinganna. Að lokum tókst Wagner að koma vináttunni á aftur með snilldarlega stíluðu bréfi til Liszts\, þannig að útkoman er sú að ekki er nóg með að stytta af Wagner og eiginkonu hans (dóttur Liszts) sé fyrir utan Hátíðaleikhús Wagners í Bayreuth\, heldur er samsvarandi stytta af Liszt þar líka. \nÁrni Blandon hefur kynnt óperur Wagners í Ríkisútvarpinu\, Morgunblaðinu og hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann er með M.Phil próf í samanburðabókmenntum frá New York háskóla með áherslu á heimspeki\, sálfræði og leiklist. Í Ríkisútvarpinu kynnti Árni á sínum tíma nær 200 söngleiki og auk þess hefur hann gert marga þætti fyrir Ríkisútvarpið þar sem erlend ljóðskáld eru kynnt en finna má þá þætti á vef RÚV. Einnig hefur Árni lesið ýmsar útvarpssögur á Rás 1. Hann lærði leiklist í London og starfaði í nokkur ár sem leikari við Þjóðleikhúsið og var meðlimur í Leikstjórafélagi Íslands.\nÞegar Árni var gítarleikari í hljómsveitinni Töturum gerði hann lagið Dimmar rósir sem hefur verið hljóðritað í mörgum útgáfum og var valið eitt af Óskalögum þjóðarinnar á Ríkissjónvarpinu árið 2014. Sumar útgáfur lagsins má finna á U-tube. \nViðburðurinn er öllum opinn og án endurgjalds í boði Richard Wagner félagsins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/wagner-og-liszt-vinatta-ovinatta-vinatta/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/Wagnerfélagið.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR