BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180301
DTEND;VALUE=DATE:20180429
DTSTAMP:20210119T152120Z
CREATED:20210119T152120Z
LAST-MODIFIED:20210119T152120Z
UID:10000490-1519862400-1524959999@hannesarholt.is
SUMMARY:GJÚGG Í BLÓM (PEEKABOO) EFTIR GEORG DOUGLAS
DESCRIPTION:Georg Douglas opnar málverkasýningu í Hannesarholti fimmtudaginn 1. mars kl.16\, sem nefnist \,\,Gjúgg í blóm“ – \,\,Peekaboo“. Georg er fæddur á Írlandi 1945 en varð íslenskur ríkisborgari 1975. Hann er með doktorspróf í jarðvísindum og vann við kennslu í 36 ár þar til hann fór á eftirlaun 2007. Hann hefur sótt nám í myndlist í Reykjavík og Kópavogi og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Áhrif vísindanna má glögglega sjá í verkum hans\, sjálfur lýsir hann sýningunni á þennan hátt: \n„Litur blómanna er oft skær og áberandi en ekki er síður eftirtektarvert heildarumhverfi eða heimur blómanna. Undirgróðurinn hefur oft sterk áhrif á það hvernig við upplifum blómin. Þetta gildir sérstaklega um íslensk villiblóm sem gægjast oft í gegnum þykka og forvitnilega flækju af mosa\, fléttum og grösum. Heimur blómanna verður enn merkilegri og furðulegri þegar við skoðum hann í meiri nærmynd með hjálp smásjártækni og sameindalíkana af prótínum og vefjum. Þá opnast nýjar og stærri víddir sem eru ekki síður fallegar en blómkrónur. Málverk mín sameina alla þessa þætti og í þeim er hlutföllum víxlað eða breytt til þess að mynda abstrakt heild\, þar sem blómin sjálf eru stundum áberandi en stundum fá þau rétt að kíkja í gegnum flækjuna af þáttunum sem þau eru gerð úr eða vaxa í.“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gjugg-i-blom-peekaboo-eftir-georg-douglas/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/GeorgMynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180322T170000
DTEND;TZID=UTC:20180322T170000
DTSTAMP:20180322T114553Z
CREATED:20180319T111438Z
LAST-MODIFIED:20180322T114553Z
UID:10000640-1521738000-1521738000@hannesarholt.is
SUMMARY:Virginia Woolf - færist niður í veitingastofur Hannesarholts
DESCRIPTION:Vegna áskoranna – og í tilefni af því að fjórar bækur eftir Virginiu Woolf eru nú komnar út á íslensku – heldur Soffía Auður Birgisdóttir fyrirlestur um ævi og verk skáldkonunnar. Fyrirlesturinn fer fram í veitingastofum Hannesarholts á 1.hæð og hefst kl. 17. Á fimmtudögum er jafnan gleðistund (happy hour) frá 17-19 og lifandi tónlist frá 18.30-20. Eldhúsið opið fram á kvöld. Kl. 20 fer fram leiklestur á Hvað er í blýhólknum? eftir Svövu Jakobsdóttur í sal Hannesarholts\, Hljóðbergi. Það er því tilvalið að njóta bæði bókmennta og málsverðar í Hannesarholti þennan eftirmiðdag og kvöld.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/virginia-woolf-a-badstofulofti-hannesarholts/
LOCATION:Baðstofuloftið
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/VirginiaWoolf.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180322T200000
DTEND;TZID=UTC:20180322T200000
DTSTAMP:20180321T115117Z
CREATED:20180316T170208Z
LAST-MODIFIED:20180321T115117Z
UID:10000639-1521748800-1521748800@hannesarholt.is
SUMMARY:Hvað er í blýhólknum?  eftir Svövu Jakobsdóttur
DESCRIPTION:Leikhúslistakonur 50+ leiklesa leikrit Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti í mars og apríl. Fyrst er leikritið „Hvað er í blýhólknum” undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Helstu leikendur eru: Anna Einarsdóttir\, Björn Ingi Hilmarsson\, Guðbjörg Thoroddsen\, Hanna María Karlsdóttir\, Jón Magnús Arnarsson og Sigurður Skúlason. \n„Hvað er í blýhólknum?” er fyrsta leikrit Svövu Jakobsdóttur. Það var frumsýnt 1970 og sætti tíðindum  og þá ekki síður leikstjórn Maríu Kristjánsdóttur\, en þetta var hennar fyrsta leikstjórnarverkefni að námi loknu. Hún leikstýrði jafnframt verkinu seinna bæði fyrir sjónvarp og útvarp. \nSýningin vakti mikla athygli og umtal á sínum tíma því hún kallaðist algerlega á við það sem var efst á baugi í samfélaginu. Árið 1970 er Rauðsokkahreyfingin stofnuð og leikritið\, sem fjallar um stöðu kvenna á þeim tíma\, var mikilvægt innlegg í þá baráttu. \nÞað hefur margt breyst á þeim áratugum sem liðnir eru frá frumsýningu „Hvað er í blýhólknum?”\, en fróðlegt er að rifja upp umræðuna eins og hún var þá og bera saman við aðstæður og  líf kvenna á Íslandi í dag. Hvað hefur breyst og hvar eru  íslenskar konur staddar í dag. \nMiðasala fer fram á tix.is. Opið er í veitingastofum Hannesarholts til kl.22 á fimmtudagskvöldum. Gleðistund (happy hour) kl.17-19\, lifandi tónlist frá 18.30-20\, kvöldverður\, borðapantanir í síma 511-1904. \n  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hvad-er-i-blyholknum-eftir-svovu-jakobsdottur/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/SvavaBlýhólkur-e1521552849975-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR