BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180301
DTEND;VALUE=DATE:20180429
DTSTAMP:20210119T152120Z
CREATED:20210119T152120Z
LAST-MODIFIED:20210119T152120Z
UID:10000490-1519862400-1524959999@hannesarholt.is
SUMMARY:GJÚGG Í BLÓM (PEEKABOO) EFTIR GEORG DOUGLAS
DESCRIPTION:Georg Douglas opnar málverkasýningu í Hannesarholti fimmtudaginn 1. mars kl.16\, sem nefnist \,\,Gjúgg í blóm“ – \,\,Peekaboo“. Georg er fæddur á Írlandi 1945 en varð íslenskur ríkisborgari 1975. Hann er með doktorspróf í jarðvísindum og vann við kennslu í 36 ár þar til hann fór á eftirlaun 2007. Hann hefur sótt nám í myndlist í Reykjavík og Kópavogi og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Áhrif vísindanna má glögglega sjá í verkum hans\, sjálfur lýsir hann sýningunni á þennan hátt: \n„Litur blómanna er oft skær og áberandi en ekki er síður eftirtektarvert heildarumhverfi eða heimur blómanna. Undirgróðurinn hefur oft sterk áhrif á það hvernig við upplifum blómin. Þetta gildir sérstaklega um íslensk villiblóm sem gægjast oft í gegnum þykka og forvitnilega flækju af mosa\, fléttum og grösum. Heimur blómanna verður enn merkilegri og furðulegri þegar við skoðum hann í meiri nærmynd með hjálp smásjártækni og sameindalíkana af prótínum og vefjum. Þá opnast nýjar og stærri víddir sem eru ekki síður fallegar en blómkrónur. Málverk mín sameina alla þessa þætti og í þeim er hlutföllum víxlað eða breytt til þess að mynda abstrakt heild\, þar sem blómin sjálf eru stundum áberandi en stundum fá þau rétt að kíkja í gegnum flækjuna af þáttunum sem þau eru gerð úr eða vaxa í.“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gjugg-i-blom-peekaboo-eftir-georg-douglas/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/GeorgMynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180325T121500
DTEND;TZID=UTC:20180325T121500
DTSTAMP:20180319T144102Z
CREATED:20180211T142214Z
LAST-MODIFIED:20180319T144102Z
UID:10000627-1521980100-1521980100@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozartmaraþon - Guðný Guðmundsdóttir og Gerrit Schuil
DESCRIPTION:Guðný Guðmundsdóttir heldur upp á sjötugsafmælið sitt með sinni eigin tónleikaröð árið 2018 þar sem hún mun flytja öll verk Mozarts fyrir píanó og fiðlu. \n\nTónleikarnir verða samtals tíu talsins og munu hinir ýmsu píanóleikarar ganga til liðs við Guðnýju. Á þessum tónleikum í mars er meðleikari Gerrit Schuil.\n\nTónleikarnir fara fram á síðasta sunnudegi hvers mánaðar í Hannesarholti og hefjast kl. 12:15. Hægt verður að kaupa miða á fimm fyrstu tónleikana með afslætti á samtals 12\,500 eða staka miða á 3000. Miðasala verður á tix.is. Afsláttur fyrir námsmenn\, eldri borgara og öryrkja. \nEinnig býðst að bóka helgarbruch með afslætti í veitingastofum Hannesarholts á kr.2500 í tengslum við tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904. \n25.    MARS: Píanóleikari: Gerrit Schuil \n\n29. APRÍL:Píanóleikari: Bjarni Frímann Bjarnason\n24. JÚNÍ: Píanóleikari: Delana Thomsen\n29. JÚLÍ: Píanóleikari: Gerrit Schuil\n26. ÁGÚST: Píanóleikari: Peter Máté\n30. SEPTEMBER: Píanóleikari: Jane Sutarjo\n\n28. OKTÓBER: Píanóleikari: Richard Simm\n\n25. NÓVEMBER: Píanóleikari: Nína Margrét Grímsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozartmarathon-gudny-gudmundsdottir-og-gerrit-schuil/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/gudnygerritplakat.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180325T140000
DTEND;TZID=UTC:20180325T140000
DTSTAMP:20180324T160054Z
CREATED:20180316T142837Z
LAST-MODIFIED:20180324T160054Z
UID:10000299-1521986400-1521986400@hannesarholt.is
SUMMARY:Syngjum saman með Snorra Helgasyni
DESCRIPTION:Söngstundin í Hannesarholti verður í höndum Snorra Helgasonar tónlistarmanns sunnudaginn 25.mars kl.14. Hannesarholt vill með þessum söngstundum hlúa að söngarfi þjóðarinnar og þar er Snorri á heimavelli\, enda ólst hann upp við tónlistariðkun föður síns í Ríó tríó. Sjálfur er hann farinn að sinna tónlistaruppeldi á sínu eigin heimili\, með nýfæddan frumburðinn. Snorri hlaut Íslensku Tónlistarverðlaunin nýlega fyrir plötu sína „Margt býr í þokunni“\, sem inniheldur safn nýrra þjóðlaga. \nÍ söngstundinni stjórnar fjöldasöng í klukkutíma\, þar sem textar birtast á tjaldi og allir taka undir með sínu nefi. Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum sem greiða 1000 króna aðgangseyri. \nVeitingahúsið í Hannesarholti er opið frá 11.30-17 og hefur í boði dögurð á undan söngstundinni og kaffi með meðlæti á eftir. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/syngjum-saman-med-snorra-helgasyni/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Syngjum saman (Sing along)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/snorri_33-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180325T160000
DTEND;TZID=UTC:20180325T160000
DTSTAMP:20180320T145823Z
CREATED:20180319T141230Z
LAST-MODIFIED:20180320T145823Z
UID:10000641-1521993600-1521993600@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiklestur - Hvað er í blýhólknum?
DESCRIPTION:Leikhúslistakonur 50+ leiklesa leikrit Svövu Jakobsdóttur í Hannesarholti í mars og apríl. Fyrst er leikritið „Hvað er í blýhólknum” undir stjórn Þórhildar Þorleifsdóttur. Helstu leikendur eru: Anna Einarsdóttir\, Arnar Jónsson\, Guðbjörg Thoroddsen\, Hanna María Karlsdóttir\, Jón Magnús Arnarsson og Sigurður Skúlason. \n„Hvað er í blýhólknum?” er fyrsta leikrit Svövu Jakobsdóttur. Það var frumsýnt 1970 og sætti tíðindum  og þá ekki síður leikstjórn Maríu Kristjánsdóttur\, en þetta var hennar fyrsta leikstjórnarverkefni að námi loknu. Hún leikstýrði jafnframt verkinu seinna bæði fyrir sjónvarp og útvarp. \nSýningin vakti mikla athygli og umtal á sínum tíma því hún kallaðist algerlega á við það sem var efst á baugi í samfélaginu. Árið 1970 er Rauðsokkahreyfingin stofnuð og leikritið\, sem fjallar um stöðu kvenna á þeim tíma\, var mikilvægt innlegg í þá baráttu. \nÞað hefur margt breyst á þeim áratugum sem liðnir eru frá frumsýningu „Hvað er í blýhólknum?”\, en fróðlegt er að rifja upp umræðuna eins og hún var þá og bera saman við aðstæður og  líf kvenna á Íslandi í dag. Hvað hefur breyst og hvar eru  íslenskar konur staddar í dag. \nMiðasala fer fram á tix.is. Opið er í veitingastofum Hannesarholts frá 11.30-17 á sunnudögum. Tilboð á kaffi og vöfflu á 1000 kr á undan leiklestrinum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leiklestur-hvad-er-i-blyholknum/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Leiklestur
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/SvavaBlýhólkur-e1521552849975-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR