BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180630
DTEND;VALUE=DATE:20180727
DTSTAMP:20210119T151350Z
CREATED:20210119T151350Z
LAST-MODIFIED:20210119T151350Z
UID:10000487-1530316800-1532649599@hannesarholt.is
SUMMARY:KATRÍN JÓNSDÓTTIR
DESCRIPTION:Katrín Jónsdóttir er grafískur hönnuður\, fædd 1961 í Fljótshlíðinni og býr á Seltjarnarnesi ásamt fjölskyldu sinni. Myndskreytingarnar á sýningunni í Hannesarholti eru samdar við texta um grundvallarlög íslenska ríkisins útfrá reynslu og tilfinningum hennar. Hún spyr\, ef harka sé að aukast í Evrópu í kjölfar hryðjuverka\, hvernig megi tryggja öryggi borgaranna án þess að skerða frelsi þeirra. Persónurnar á pappírnum eiga það sameiginlegt að vilja pláss og sýnileika\, en varnarleysi\, ungur aldur\, menntunarskortur eða skerðing veldur því að þær fylla illa út í myndflötinn. Sá sem nýtur mannúðar er líklegri til að láta gott af sér leiða.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/katrin-jonsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/katajons.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180726T170000
DTEND;TZID=UTC:20180726T183000
DTSTAMP:20210113T134323Z
CREATED:20210113T134323Z
LAST-MODIFIED:20210113T134323Z
UID:10000674-1532624400-1532629800@hannesarholt.is
SUMMARY:BEETHOVEN\, NORDAL OG RACHMANINOFF – HJÖRTUR PÁLL EGGERTSSON OG FILIP ŠTRAUCH
DESCRIPTION:Ludwig van Beethoven: Sónata fyrir selló og píanó í g-moll\, Op. 5\, Nr. 2 \n1. Adagio sostenuto e espressivo – Allegro molto più tosto presto\n2. Rondo. Allegro \nJón Nordal: Myndir á þili \n1. Brostin augu vatnanna\n2. Þegar íshjartað slær\n3. Skrifað í vindinn\n4. Allt með sykri og rjóma \n-Hlé- \nSergei Rachmaninoff: Sónata fyrir selló og píanó í g-moll\, Op. 19 \n1.Lento – Allegro moderato\n2.Allegro scherzando\n3.Andante\n4.Allegro mosso \nHjörtur Páll Eggertsson var fimm ára gamall þegar hann hóf að leika á selló. Fyrsti kennari hans var Örnólfur Kristjánsson\, en hann stundaði síðar frekara nám hjá Sigurgeiri Agnarssyni og Gunnari Kvaran. Hjörtur hefur frá árinu 2012 tekið virkan þátt á ýmsum tónlistarhátíðum\, bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Í mars 2017 lék hann einleik með Hljómsveit Tónlistarskólans í Reykjavík. Hjörtur er einnig virkur í flutningi kammertónlistar og hlaut meðal annars Nótuna árið 2014 ásamt strengjakvartetti sínum. Frá árinu 2011 hefur hann tekið þátt í Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands ásamt því að hafa leikið með Orkester Norden og Sinfóníuhljómsveitinni í Stavanger. Hjörtur lauk framhaldsprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 2017 og stundar nú nám við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium í Kaupmannahöfn undir handleiðslu Morten Zeuthen. Hann leikur á selló smíðað fyrir hann af Hansi Jóhannssyni árið 2016. \nFilip Štrauch er meðal hæfileikaríkustu píanista sinnar kynslóðar frá Slóvakíu. Hann hóf ungur að aldri að leika á píanó í heimabæ sínum Zilina undir handleiðslu föður síns\, sem var píanóleikari. Síðar flutti hann til Bratislava til að læra við tónlistarháskólann þar. Á námsárum sínum vann hann til fjölmargra verðlauna í keppnum í Slóvakíu og fékk meðal annars tækifæri til að leika einleik með Útvarpshljómsveit Slóvakíu. Árið 2012 lá svo leiðin til Kaupmannahafnar þar sem hann hélt áfram námi sínu í einleikarabekknum við Det Kongelige Danske Musikkonservatorium. Síðan þá hefur hann leikið einleik með Fílharmóníusveit Kaupmannahafnar og Hljómsveit Konuglega Tónlistarháskólans\, ásamt því að gefa út geisladisk með verkum eftir Rachmaninoff\, Scriabin og Ravel í útgáfu Supraphon. \nMiðasala á tix.is \nVeitingastofur Hannesarholts eru nú opnar fyrir kvöldmat fimmtudaga\, föstudaga og laugardaga og því verður hægt að njóta kvöldverðar eftir tónleikana. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/beethoven-nordal-og-rachmaninoff-hjortur-pall-eggertsson-og-filip-strauch/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/hjorturogpiano.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180726T200000
DTEND;TZID=UTC:20180726T220000
DTSTAMP:20210113T134519Z
CREATED:20210113T134519Z
LAST-MODIFIED:20210113T134519Z
UID:10000675-1532635200-1532642400@hannesarholt.is
SUMMARY:KÍTÓN TÓNLEIKAR - UMBRA
DESCRIPTION:Úr myrkrinu / from darkness \nUmbra Ensemble flytur nýja og forna tónlist í eigin útsetningum. \nUmbra leiðir áheyrendur inn í dulúð fornrar tónlistar frá ýmsum löndum\, Íslandi\, Finnlandi\, Englandi\, Þýskalandi\, Spáni og Katalóníu. Draugar\, vosbúð\, kuldi og myrkur hefur verið vinsælt yrkisefni íslenskra þjóðlaga en það er e.t.v í stíl við þjóðarsálina og dvöl á einangraðri eyju. Myrkrið í evrópskri miðaldatónlist birtist fremur í ofuráherslu á mannlega þjáningu\, syndina og breyskleika mannsins. Í allri þessari tónlist er samt heillandi fegurð og frumleiki sem á erindi við nútímann. Allar útsetningar á tónleikunum eru eftir Umbru. \nUmbra Ensemble var stofnað haustið 2014 og er skipað fjórum atvinnutónlistarkonum; Alexöndru Kjeld\, Arngerði Maríu Árnadóttur\, Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur og Lilju Dögg Gunnarsdóttur. Hópurinn hefur frá upphafi unnið að því að skapa öðruvísi stemningu á tónleikum\, ná til ólíkra áhorfenda og kanna ný rými. Hvað tónlistarflutninginn sjálfan varðar er áhersla lögð á skapa eigin útsetningar á fornu tónefni og vinna markvisst með þann hljóðheim sem hlýst af samsetningu upprunahljóðfæra og samsöngs. Þær hafa skapað sinn eigin hljóðheim sem hefur fornan blæ og spila þær bæði nýja og gamla tónlist í eigin útsetningum. \nEnglish: \nUmbra\, founded in 2014\, is an alternative music ensemble with eclectic tastes\, exploring both ancient and contemporary music through improvisation and original arrangements. The artistic vision of the players is to blur the boundaries of tradition and to appeal to a wide audience by breathing new life into ancient music. \nUmbra transports listeners into the mystery of Medieval music from Iceland and elsewhere in Europe: England\, Germany\, Spain and Catalonia. The undead\, life’s hardships\, and the cold and dark have long been fodder for Icelandic folk music—such is life on a remote and isolated \nisland. This darkness in Medieval European music however manifests rather as a fixation on human suffering and man’s sinful nature and frailty. Still the music possesses an undeniable beauty and individuality that resonates with today’s listeners.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kiton-tonleikar-umbra/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/umbra7-3.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR