BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180908
DTEND;VALUE=DATE:20181004
DTSTAMP:20210119T151039Z
CREATED:20210119T151039Z
LAST-MODIFIED:20210119T151039Z
UID:10000483-1536364800-1538611199@hannesarholt.is
SUMMARY:"JÖKLASÝN"
DESCRIPTION:Guðrún Benedikta Elíasdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og hefur búið og starfað við myndlist og myndlistarkennslu á Íslandi\, í Frakklandi og Lúxemborg. Í dag vinnur hún vinnur að list sinni auk þess að kenna myndlist og leirmótun í Menntaskólanum við Sund. \nGuðrún hefur tekið þátt í fjölmörgum einka-og samsýningum í sýningarsölum bæði hérlendis og víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum. Má þar helst nefna CAL\, Cercle Artistique de Luxembourg\, artmetz í Metz í Frakklandi\, EVBK í Prüm í Þýskalandi og einkasýningar í Konchthaus Beim Engel í Lúxemborg\, Svavarssafni\, Slunkaríki\, Populus Tremula og Menningarmiðstöð í Spönginni (Artótek). Hún hefur dvalið á gestavinnustofum í Frakklandi og á Akureyri. Guðrún var ein af stofnendum Gallerí Skruggusteins og rak það þar til hún flutti til Suður-Frakklands og var í tengslum við það kjörin bæjarlistamaður Kópavogs 1996. \n“Ég vinn með náttúruna í víðri merkingu. Ég bý til mína eigin liti eða temperu sem kallast „patine au vin“. Innihaldið er í m.a. hvítvín\, egg og sitthvað fleira. Uppskriftin er ævagömul og ég fann hana í litaduftsverksmiðju í Roussillon í Frakklandi þar sem unninn er litur úr fjöllunum. Hef verið að þróa hana áfram síðan árið 2006 þegar ég var á gestavinnustofu í suður Frakklandi. \nEn til að auka sjálfbærni og virðingu við náttúruna þá hef ég minnkað notkun á innfluttu litadufti og sæki mína liti sjálf í Íslenska náttúru. Myl grjót sem ég finn víðs vegar um landið á ferðum mínum og nota í málverkið. Auk þess að nýta eldfjallaösku þar sem það á við. Ég er mest að vinna með jöklana núna m.a. áhrif hlýnunnar á þá\, en jöklar eru einlægt áhugamál þar sem ég ólst upp á Hornafirði í nálægð við Vatnajökul og tókst meira að segja að detta í jökulsprungu á unglings aldri\, svo að ég hef skoðað þá í meira návígi en margur. \nÞar sem bráðnun jöklanna eykst hraðar en nokkru sinni finnst mér ástæða til að halda áfram að minna á þessa stórfenglegu risa sem hafa svo mikil áhrif á umhverfi sitt og ekki síður áhrifin sem umhverfið hefur á þá. Mér finnst líka mjög viðeigandi að koma þessu til skila á strigann með efnum úr íslenskri náttúru. Einnig átökum elds og íss\, öskufallið sem myndar fíngerðar línuteikningar á fannhvítar breiðurnar.” \nFrekari upplýsingar um nám og sýningarferil má finna á heimasíðunni www.rbenedikta.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/joklasyn/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/joklasyn-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181003T200000
DTEND;TZID=UTC:20181003T210000
DTSTAMP:20210113T152926Z
CREATED:20210113T152926Z
LAST-MODIFIED:20210113T152926Z
UID:10000683-1538596800-1538600400@hannesarholt.is
SUMMARY:STYRKTARTÓNLEIKAR - GUNNAR KVARAN OG HAUKUR GUÐLAUGSSON
DESCRIPTION:Gunnar Kvaran sellóleikari og Haukur Guðlaugsson orgelleikari\, hollvinir Hannesarholts\, halda styrktartónleika í Hljóðbergi Hannesarholts miðvikudaginn 3.október kl.20. Þeir félagar gefa vinnu sína og afrakstur miðasölu rennur alfarið til starfsemi Hannesarholts sjálfseignarstofnunar. Báðir eru þeir margverðlaunaðir tónlistarmenn sem hafa helgað líf sitt listagyðjunni. Hannesarholt kann þeim alúðarþakkir fyrir stuðninginn. \nEfnisskrá: J. S. Bach : Svíta nr. 2 í í d- moll BWV 1008 Prélude Allemande Courante Sarabande Menuet I Menuet II Gigue \nBach – Gounod: Ave María \nF. Chopin: Largo úr sónötu Op. 65 fyrir selló og piano \nJ. S.Bach: Svíta nr. 1 í G-dúr BWV 1007 Prélude Allemande Courante Sarabande Menuet I Menuet II Gigue \nF. Schubert: Litanei \nC. Saint-Saëns: Svanurinn \nGunnar Kvaran er fæddur í Reykjavík árið 1944. Hann hóf tónlistarnám í Barnamúsíkskólanum þar sem kennari hans var Dr. Heinz Edelstein. Síðar stundaði hann nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Einari Vigfússyni og við Tónlistarháskólann í Kaupmannahöfn þar sem kennari hans var prófessor Erling Blöndal­ Bengtsson. Framhaldsnám stundaði hann hjá prófessor Reine Flachot í Basel. Gunnar Kvaran kenndi við Tónlistarskólann í Reykjavík í þrjátíu og fimm ár. Hann var ráðinn prófessor við tónlistardeild Listaháskóla Íslands haustið 2005 og lét af því starfi árið 2012. \nHann hefur stundað\, auk fastra starfa\, umfangsmikið tónleikahald bæði heima og erlendis. Hann hefur haldið einleiks og kammertónleika í mörgum Evrópulöndum\, auk Bandaríkjanna og Kanada og m.a. komið fram í Wigmore Hall í London\, Carnegie Hall í New York\, í Beethoven Haus í Bonn og Mendelsohn Haus í Leipzig. Hann er meðlimur í kammerhópnum Tríó Reykjavíkur. \nGunnar hefur margsinnis leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, komið fram í útvarpi og sjónvarpi og allmargar hljómplötur og hljómdiskar hafa verið gefnir út með leik hans. Hann hlaut verðlaun úr sjóði Dr.Gunnars Thoroddsens árið 1990 fyrir tónlistarstörf og var valinn bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 1996. Mörg undanfarin sumur hefur hann verið gestur á hinum ýmsu tónlistarhátíðum í Bandaríkjunum. Sumurin 1999 og 2000 var honum einnig boðið að kenna og leika á tónlistarhátíð í Grikklandi. Í desember 2001 var honum boðið að koma fram ásamt Hauki Guðlaugssyni organista á sérstökum hátíðartónleikun í Vendrell á Spáni\, fæðingarbæ Pablo Casals. Þann dag voru 125 ár liðin frá fæðingu meistarans. Gunnar var sæmdur Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu í júní 2006. \nHaukur Guðlaugsson er fæddur á Eyrarbakka 5.apríl 1931. Hann hóf píanónám 13 ára og lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1951 undir handleiðslu Árna Kristjánssonar. Hann stundaði orgelnám við Staatliche Hochschule für Musik í Hamborg 1955-60 og var aðalkennari hans þar prófessor Martin Günther Förstermann. Framhaldsnám í organleik stundaði hann við Accademia di Santa Cecilia í Róm hjá Maestro Fernando Germani 1966\, 1968 og 1972. Haukur var tónlistarkennari og kórstjóri Karlakórsins Vísis á Siglufirði 1951-55 og skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi 1960-74. Þá var hann einnig organisti og kórstjóri Akraneskirkju 1960-82 og kórstjóri Karlakórsins Svana. Hann var Söngmálastjóri íslensku þjóðkirkjunnar 1974-2001. Þá stóð hann fyrir organista-og kóranámskeiðum á hinu forna biskupssetri í Skálholti í 27 ár. Á starfsferli sínum stóð hann m.a. fyrir útgáfu um 70 bóka og hefta fyrir kóra og organista. Hann hefur haldið orgeltónleika víða á Íslandi\, í Evrópu og Bandaríkjunum og leikið einleik á orgel með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Einnig hafa kórar undir hans stjórn haldið tónleika á Íslandi og víða í Evrópu og í Ísrael og gert upptökur fyrir útvarp\, sjónvarp og geisladiska. \nÞá hefur hann leikið á píanó í samleik á tónleikum\, bæði með sellói\, fiðlu og ýmsum blásturshljóðfærum og einnig með söngvurum\, á Íslandi og í Evrópu. Haukur og Gunnar Kvaran hafa spilað mikið saman\, m.a. á eftirminnilegum minningartónleikum á 125 ára fæðingarafmæli Pablo Casals árið 2001\, í fæðingarbæ hans Vendrell í Katalóníu. Grímhildur Bragadóttir\, eiginkona Hauks\, hefur einmitt þýtt ævisögu Casals á íslensku. \nHaukur hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir störf sín. Hann er heiðursfélagi bæði í Félagi íslenskra organleikara og í Félagi íslenskra tónlistarmanna. Árið 1983 var hann sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu og árið 2008 hlaut hann Liljuna\, sérstök tónlistarverðlaun íslensku kirkjunnar. \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar frá kl.18.30 og er kvöldverðarseðill í boði. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/styrktartonleikar-gunnar-kvaran-og-haukur-gudlaugsson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/gunnar-og-haukur.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR