BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181006
DTEND;VALUE=DATE:20181102
DTSTAMP:20210119T150828Z
CREATED:20210119T150828Z
LAST-MODIFIED:20210119T150828Z
UID:10000832-1538784000-1541116799@hannesarholt.is
SUMMARY:ÞRÁNDUR ÞÓRARINSSON BORGARMYNDIR
DESCRIPTION:Í tilefni af fertugsafmæli sínu efnir Þrándur Þórarinsson listmálari til sýningar og hátíðarhalda í Hannesarholti\, laugardaginn 6. október. Verða þar spánný verk uppi um alla veggi og rjáfur. Dýrirndi sem listamaðurinn hefur dregið upp úr hugskotum og sálarfylgsnum sínum með ærinni fyrirhöfn og dedúað við af leikni og natni. Borgarlandslagið er sem fyrr í fyrirrúmi á þessari sýningu\, í bland við mannlífslýsingar\, kyrralífsmyndir og portrett af vinum listamannsins. \nAfhjúpuð verður mynd af stórbóndanum og rokkstjörnuni Prins Póló\, en þeir Þrándur unnu náið saman í áraraðir\, og verður prinsinn sérlegur heiðursgestur á sýningunni. Þrándur fæddist það herrans ár 1978. Hann útskrifaðist af myndlistarbraut Menntaskólans á Akureyri um tveimur áratugum síðar. Hann hvarf frá námi við Listaháskóla Íslands og gerðist lærlingur norska kitch-málarans Odd Nerdrum í ein þrjú ár. Þá hefur hann lokið Mesitaranámi í heimspeki. Þrándur hefur unnið einvörðungu við það að lita og föndra myndir svo árum skiptir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrandur-thorarinsson-borgarmyndir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/43053200_2140896949254017_2537345289816113152_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181025T200000
DTEND;TZID=UTC:20181025T220000
DTSTAMP:20210113T155502Z
CREATED:20210113T155502Z
LAST-MODIFIED:20210113T155502Z
UID:10000339-1540497600-1540504800@hannesarholt.is
SUMMARY:AUÐUR ÍSLANDS - TÍMINN OG HAFIÐ
DESCRIPTION:Auður Íslands er nýr dagskrárliður í Hannesarholti sem lítur til lands\, þjóðar og tungu útfrá sjónarhornum náttúruvísinda\, félagsvísinda og lista. Andri Snær Magnason ríður á vaðið með þremur kvöldum á haustönninni undir þessum hatti. Kvöld Andra Snæs eru nokkurs konar þríleikur sem gengur undir heildarheitinu „Tíminn og vatnið.“ Þann 25. október er annar hluti þríleiks Andra Snæs Magnasonar um tímann og vatnið. Að þessu sinni er fjallað um Tímann og hafið. \nAndri Snær Magnason\, Edda Elísabet Magnúsdóttir og Jónas Sigurðsson tónlistarmaður.\nSjálfsmynd Íslendinga og ímynd Íslands er að miklu leyti bundin við landið. Fjöll og jöklar\, fossar og hraunbreiður\, lóur og sauðkindur. Hafsins hetjur eru okkur mikilvægar en hafið er stundum undarlega fjarlægt okkur. \nEftir útfærslu landhelginnar í 200 mílur varð lögsaga Íslands 87% vatn. Við höfum varla útfært landhelgi hugans út í þessar 200 mílur og ótrúleg fjölbreytni dýralífs er okkur að mestu ókunn. Menntakerfið leggur litla áherslu á lífríki hafsinu en ef menn skoða alla þá fiska og öll þau undur sem liggja í djúpunum þá ætti öllum að vera ljóst að börn okkar ættu að hafa æði fyrir hafinu. \nEdda Elísabet Magnúsdóttir er doktor í sjávarlíffræði en doktorsritgerð hennar fjallaði um ástarsöngva hnúfubaksins. Hún mun fjalla um fegurð og fjölbreytni undirdjúpanna en líka þær ógnir sem steðja að hafinu. \nÁ næstu 100 árum er talið að hafið muni taka meiri breytingum en það hefur gert á síðustu 30 milljón árum. Hafið tekur upp um 30% af því CO2 sem mannkynið losar og það veldur súrnun hafsins. Þetta málefni hefur hlotið litla athygli síðustu ár en súrnun hafsins er fyrst nefnt í íslenskum fjölmiðlum árið 2006. Talið er að PH gildi hafsins muni lækka úr 8.1 allt niður í 7.7. Þetta er einn stærsti viðburður jarðsögunnar enda þekur hafið um 70% hnattarins og enginn veit hvernig líf þrífst í slíku hafi.\nÞað var uppselt á síðasta viðburð í Hannesarholti svo fólk er beðið um að tryggja sér miða í tíma.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/audur-islands-timinn-og-hafid/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Auður Íslands
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2018-10-07-at-17.39.47.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR