BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181103T130000
DTEND;TZID=UTC:20181103T140000
DTSTAMP:20210113T163002Z
CREATED:20210113T163002Z
LAST-MODIFIED:20210113T163002Z
UID:10000348-1541250000-1541253600@hannesarholt.is
SUMMARY:MUSIC IS SILLY! ... BUT I LIKE TO SING
DESCRIPTION:Herdís Anna Jónasdóttir sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari flytja tónlist úr ýmsum áttum\, meðal annars eftir Debussy\, Kurt Weill\, Gershwin og afmælisbarn ársins Leonard Bernstein á tónleikum í Hannesarholti\, sem eru partur af dagskrá Óperudaga í Reykjavík. \nHERDÍS ANNA\nHerdís Anna Jónasdóttir lærði á fiðlu\, píanó og söng frá unga aldri við Tónlistarskólann á Ísafirði. Að loknu stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Ísafirði lagði hún stund á framhaldsnám við Listaháskóla Íslands undir handleiðslu Elísabetar Erlingsdóttur. Þaðan útskrifaðist hún með Bachelor gráðu í söng og hélt til Berlínar. Við Hanns-Eisler tónlistarháskólann lærði hún hjá Prof. Brendu Mitchell og Önnu Samuil\, en sótti einnig tíma hjá Juliu Varady og Wolfram Rieger. Hún kláraði Konzertexamen árið 2012 með ágætiseinkunn og var þá ráðin að óperustúdíóinu við Óperuna í Zürich. Þar tók hún þátt í ótal sýningum og masterklössum\, hjá Michelle Breedt\, Brigitte Fassbaender\, Francisco Araiza\, Fabio Luisi\, Ivor Bolton\, Andreas Homoki\, Dmitri Tcherniakow o.fl. \nHerdís hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum í Þýskalandi\, Íslandi og Sviss. Meðal helstu hlutverka eru Adina (Ástardrykkurinn)\, Adele (Leðurblakan)\, Zerlina (Don Giovanni)\, Drottningin frá Schemacha (Gullni haninn)\, Maria (West Side Story)\, Eliza (My Fair Lady)\, Nannetta (Falstaff)\, Oscar (Grímudansleikur) og Musetta (La Bohème). \nHerdís hefur einnig margsinnis komið fram á tónleikum\, s.s. með Kammersveit Reykjavíkur\, á Carl-Orff tónlistarhátíðinni\, með Saarlensku ríkishljómsveitinni\, Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveitinni í Canberra\, Ástralíu. \nHerdís var valin söngkona ársins í Saarbrücken árið 2016. Þá hefur hún tvívegis verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna (Söngkona ársins 2012 og Bjartasta vonin 2011)\, komist í úrslit í Riccardo Zandonai keppninni 2012 og hlotið ýmsa styrki. Árin 2014-2018 var hún fastráðin sem einsöngvari við Ríkisóperuna í Saarbrücken\, Þýskalandi. \nEVA ÞYRI\nAð loknum prófum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík stundaði Eva Þyri Hilmarsdóttir nám við Det Jyske Musikkonservatorium í Árósum\, Danmörku\, og lauk þaðan einleikaraprófi.\nAð því loknu nam hún við The Royal Academy of Music í London\, en þaðan útskrifaðist hún með hæstu einkunn\, hlaut heiðursnafnbótina DipRAM og The Christian Carpenter Piano Prize fyrir framúrskarandi lokatónleika.\nHelstu kennarar hennar voru Þorsteinn Gauti Sigurðsson\, Halldór Haraldsson\, John Damgård og Michael Dussek. \nAuk fjölda einleikstónleika hefur Eva Þyri komið fram sem einleikari með hljómsveit og tekið þátt í frumflutningi íslenskra og erlendra verka m.a. á hátíðunum Myrkum Músíkdögum\, Ung Nordisk Musik\, Young Euro Classic Festival í Berlín og Young Composers Symposium í London. \nUndanfarin ár hefur hún einnig lagt mikla áherslu á flutning ljóðasöngs og kammertónlistar og kom m.a. fram á rúmlega hundrað tónleikum tileinkuðum íslenskum sönglögum í Hörpu\, í tónleikaseríunni Pearls of Icelandic Song. \nEva Þyri tók þátt í uppsetningu Íslensku óperunnar á Mannsröddinni eftir Poulenc 2017 og í lok árs 2018 kemur út geisladiskur með söngverkum Jórunnar Viðar sem hún hefur unnið í samstarfi við Erlu Dóru Vogler í tilefni 100 ára afmælis Jórunnar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/music-is-silly-but-i-like-to-sing/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/evathyriogmusicissilly.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181103T160000
DTEND;TZID=UTC:20181103T183000
DTSTAMP:20210113T163544Z
CREATED:20210113T163544Z
LAST-MODIFIED:20210113T163544Z
UID:10000349-1541260800-1541269800@hannesarholt.is
SUMMARY:ÞEGAR ORÐA ER VANT
DESCRIPTION:Erótík\, óendurgoldin ást og rómantískur dauði\, japönsk tónlistarhefð\, undurfögur orðlaus ljóð\, grískur harmsöngur. \nDuo Zweisam\, Katrin Szamatulski og Þóra Kristín Gunnarsdóttir\, flytja verk fyrir flautu og píanó sem öll tengjast ljóðum og söng. \nÁ dagskrá eru verk frá þremur löndum og þremur öldum\, stórverk flautubókmenntanna og minna þekktir gullmolar. \n\nEFNISSKRÁ\nClaude Debussy: Chansons de Bilitis (útsetning: Karl Lenski) \nFranz Schubert: Tilbrigði fyrir flautu og píanó\, Trockne Blumen D802 \nToshio Hosokawa: Lied \nFelix Mendelssohn: Þrjú Ljóð án orða fyrir flautu og píanó (útsetning: Wilhelm Barge) \nAndré Jolivet: Chant de Linos \nUM FLYTJENDUR\nKatrin Szamatulski flautuleikari lærði hjá Rolf Bissinger í Frankfurt am Main\, Benoît Fromanger í Berlin og Pirmin Grehl í Luzern. Í Luzern lauk hún mastersgráðum í hljómsveitarleik og tónlistarkennslufræði. Hún hefur tekið þátt í Darmstädter Ferienkursen für Neue Musik\, Impuls Akademie í Graz\, Ensemble Akademie hjá Ensemble Recherche í Freiburg og Klangspuren Internationalen Ensemble Modern Akademie í Schwaz. Hún hefur unnið með þekktum tónskáldum\, svo sem Beat Furrer\, Bernhard Lang\, Chaya Czernowin\, Sofia Gubaidulina og Simon Steen-Andersen\, m.a. í tengslum við Lucerne Festival. \nHún leikur reglubundið með ýmsum kammerhópum og er meðal stofnenda samtímatónlistarhópsins Lunaire og kammersveitarinnar O!contraire. Katrin hefur komið fram sem einleikari með ýmsum hljómsveitum í Sviss\, Austurríki og Þýskalandi. Samhliða tónlistarflutningi sínum starfar hún við rannsóknir í tónlist við háskólann í Luzern. Auk þess vinnur hún að miðlun samtímatónlistar í tónlistarkennslu. Starfsárið 2017-2018 er hún styrkþegi Internationale Ensemble Modern Akademie. \nÞóra Kristín Gunnarsdóttir hóf tónlistarnám sitt hjá Dýrleifu Bjarnadóttur á Akureyri og lærði síðar hjá Peter Máté í Reykjavík. Árið 2011 fluttist Þóra til Sviss til að stunda frekara tónlistarnám. Hún lauk mastersgráðu í píanókennslu og píanóleik með samspil sem aukagrein frá háskólanum í Luzern í janúar 2017. Kennari hennar í Luzern var Yvonne Lang en hún sótti einnig reglulega kammertíma hjá m.a. Christian Poltéra\, Isabel Charisius\, Igor Karsko og Edward Rushton. Haustið 2017 hóf hún nám í samspili og meðleik við listaháskólann í Zürich\, þar sem aðalkennari hennar er píanóleikarinn Friedemann Rieger. Þóra hefur tvisvar hlotið styrk úr styrktarsjóði Birgis Einarsonar\, 2014 og 2017\, og styrk frá KEA árið 2011. Auk námsins í Sviss hefur hún sótt Masterclassnámskeið í einleik\, ljóðaundirleik og kammertónlist. Samhliða náminu sinnir Þóra píanókennslu og kemur fram á tónleikum með söngvurum og hljóðfæraleikurum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thegar-orda-er-vant/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/duozweisam.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR