BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181104
DTEND;VALUE=DATE:20181129
DTSTAMP:20210119T150539Z
CREATED:20210119T150539Z
LAST-MODIFIED:20210119T150539Z
UID:10000831-1541289600-1543449599@hannesarholt.is
SUMMARY:SÖGUMÁLVERK - SAMFERÐAMENN - SOFFÍA SÆMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona opnar sýninguna Sögumálverk/Samferðamenn í Hannesarholti sunnudaginn 4. nóvember kl.16. Á sýningunni eru ný málverk og nokkur smáverk gerð á þessu ári í tilefni af Fullveldisafmælinu. Í sýningarskrá segir Soffía: \nÍ mínum verkum set ég ferðalanginn fram sem einskonar sögupersónu\, klæddur í það sem gæti virkað sem þjóðbúningur\, gæti verið danskur aðalsmaður\, franskur dáti\, lítill drengur\, bjartsýniskona\, ráðvillt manneskja\, sögupersóna\, og allt þar á milli. Samferðamaður í víðum skilningi með samning\, landakort\, sjónauka\, jafnvægisslá eða göngustaf í hendi. Hvað þarf ferðalangur í 100 ár og hvert fer hann svo? \nSoffía Sæmundsdóttir hefur verið virk á íslenskum myndlistarvettvangi undanfarinn áratug og á að baki ótal einka og samsýningar heima og heiman. Hún er kunn af málverkum sínum sem vísa í ákveðinn myndheim þar sem frásagnargleði\, ferðalangar á eilífðarvegferð og landslag koma við sögu. \nSoffía er með vinnustofu að Fornubúðum 8\, við smábátahöfnina í Hafnarfirði sem er skapandi\, vakandi vinnustofa og má finna upplýsingar á Soffía vinnustofa á facebook. https://www.facebook.com/soffiasart/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sogumalverk-samferdamenn-soffia-saemundsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ferdalangur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181108T120000
DTEND;TZID=UTC:20181108T130000
DTSTAMP:20210114T121030Z
CREATED:20210114T121030Z
LAST-MODIFIED:20210114T121030Z
UID:10000354-1541678400-1541682000@hannesarholt.is
SUMMARY:ARISTÓTELESARKAFFI
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/aristotelesarkaffi/2018-11-08/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heimspekispjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/aristotelesarkaffi.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181108T200000
DTEND;TZID=UTC:20181108T220000
DTSTAMP:20210114T112600Z
CREATED:20210114T112600Z
LAST-MODIFIED:20210114T112600Z
UID:10000695-1541707200-1541714400@hannesarholt.is
SUMMARY:AUÐUR ÍSLANDS - TÍMINN OG LOFTSLAGIÐ
DESCRIPTION:Auður Íslands er nýr dagskrárliður í Hannesarholti sem lítur til lands\, þjóðar og tungu útfrá sjónarhornum náttúruvísinda\, félagsvísinda og lista. Andri Snær Magnason ríður á vaðið með þremur kvöldum á haustönninni undir þessum hatti. Kvöld Andra Snæs eru nokkurs konar þríleikur sem gengur undir heildarheitinu „Tíminn og vatnið.“ Þann 8. nóvember er þriðji og síðasti hluti þríleiks Andra Snæs Magnasonar um tímann og loftslagið. Þessir viðburðir eru styrktir af Pálmasjóði. \nAndri Snær Magnason hefur fengið vísindamenn og tónlistarmenn til liðs við sig til að fást við Tímann og vatnið í Hannesarholti. Helgi Björnsson fjallaði um Tímann og jöklana og Edda Elísabet Magnúsdóttir fjallaði um tímann og hafið. Það er óhætt að segja að þær áskoranir sem maðurinn stendur frammi fyrir séu yfirþyrmandi. \nNú er komið að síðasta kvöldinu sem fjallar um Tímann og loftslagið og um leið og rætt verður um afleiðingar loftslagsbreytinga er einnig rætt um tímann og lausnirnar og eitthvað um vonina. Svavar Knútur mun einmitt syngja um tregann\, tímann\, hafið og vonina. \nVísindanefnd Sameinuðu Þjóðanna gaf nýlega út skýrslu sem málaði vægast sagt dökka mynd af framtíðinni. Þeir birtu sviðsmyndir af 1.5 gráðu hækkun og tveggja gráðu hækkun á hitastigi jarðar\, hvorugur valkostur virtist góður en síðari valkosturinn var öllu dekkri.\nBáðar sviðsmyndir fela í sér útdauða lífvera\, styrjaldir og átök um vatn\, uppskerubrest\, flóttamannastraum og ofsaveður. Það er óhætt að segja að í þetta sinn hafi vísindamenn tekið sterkt og afdráttarlaust til orða. Samkvæmt skýrslunni hefur mannkynið aðeins 12 ár til að ná tökum á losun á gróðurhúsalofttegundum\, ef ekki á að fara illa. Margir telja skýrsluna ganga of skammt\, samkvæmt henni mun súrnun hafsins samt sem áður eiga sér stað\, kóralrif heimsins deyja út að langmestu leyti og stór svæði í heiminum fara undir vatn og verða óbyggileg af öðrum ástæðum. Sumir telja að ástandið sé svo yfirþyrmandi að ekkert verði hægt að gera. Í sömu viku og skýrslan kom út fór olíuframleiðsla yfir 100 milljón tunnur á dag\, sem jafngildir meðalrennsli um Dettifoss í fyrsta skipti í sögunni. \nVið lítum yfir sviðið og horfum á lausnirnar. Hvað þarf að gera\, hvað er hægt að gera? Er eitthvað hægt að gera?\nSandra Ósk Snæbjörnsdóttir er doktor í jarðvísindum. Hún hefur starfað að Carbfix verkefninu uppi á Hellisheiði þar sem árangur í niðurdælingu á CO2 er langt framar væntingum. Ef við skoðum sögu flugsins\, frá fyrstu til raunum til farþegaflugs þá sjást ótrúleg framfarastökk. Ef við skoðum Manhattan verkefnið\, Marshall aðstoðina\, þróun í tölvutækni má sjá hvernig mannkynið hefur séð ótrúlegar breytingar og stórstíg stökk á örfáum árum og áratugum. Getum við vænst þess að upplifa svo spennandi tíma\, eða neyðumst við til að horfa upp á alla tæknina og þekkinguna ónotaða\, á meðan hægfara eyðilegging spillir grundvelli lífsins fyrir menn og aðra íbúa hnattarins?
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/audur-islands-timinn-og-loftslagid/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Auður Íslands
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2018-11-01-at-12.59.03.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR