BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20170101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181230T140000
DTEND;TZID=UTC:20181230T160000
DTSTAMP:20210114T121230Z
CREATED:20210114T121230Z
LAST-MODIFIED:20210114T121230Z
UID:10000361-1546178400-1546185600@hannesarholt.is
SUMMARY:FARFUGLATÓNLEIKAR
DESCRIPTION:Hannesarholt býður tónlistarnemendum í námi erlendis í jólaleyfi heima á Fróni að halda tónleika fyrir baklandið sitt. Marína Ósk Þórólfsdóttir og Eiríkur Rafn Stefánsson halda sameiginlega tónleika\, tvö sett með hléi á milli. \nMarína Ósk Þórólfsdóttir lauk BA í djasssöng frá Conservatoríunni í Amsterdam vorið 2017 og stundar nú mastersnám í djassi við Konunglega Tónlistarháskólann í Stokkhólmi. Með henni leikur gítarleikarinn Mikael Máni Ásmundsson sem lauk BA í djassgítarleik\, einnig frá Conservatoríunni í Amsterdam\, vorið 2018. Saman mynda þau djassdúettinn Marína & Mikael. Dúettinn var stofnaður haustið 2014 og sendi frá sér sína fyrstu plötu árið 2017\, nefnda „Beint heim“. Plötunni var vel tekið og var hún tilnefnd til Íslensku Tónlistarverðlaunanna sem plata ársins í flokki Jazz og blús. Nýtt verkefni er nú í vinnslu og munu þau flytja nýtt efni sem að þessu sinni er frumsamið og að hluta til frumflutt á þessum tónleikum. \nEiríkur Rafn Stefánsson stundar nám í djassútsetningum og tónsmíðum við Tónlistarháskólann í Amsterdam og lýkur þaðan BA-prófi vorið 2019. ERS Djasstett stofnaði Eiríkur sumarið 2017 og flytur sveitin bæði frumsamda tónlist hljómsveitarmeðlima sem og þekkt og minna þekkt djasslög í útsetningum Eiríks. Ásamt því að útsetja fyrir sveitina spilar Eiríkur á trompet en aðrir hljómsveitarmeðlimir eru Haukur Gröndal á tenórsaxófón\, Stefán Ómar Jakobsson á básúnu\, Mikael Máni Ásmundsson á gítar\, Birgir Steinn Theódórsson á bassa og Erik Qvick á trommur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farfuglatonleikar/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Farfuglatónleikar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/marina-mikael-eirikur-rafn.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR