BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240118T150000
DTEND;TZID=UTC:20240118T170000
DTSTAMP:20240411T144633Z
CREATED:20240411T144633Z
LAST-MODIFIED:20240411T144633Z
UID:10000885-1705590000-1705597200@hannesarholt.is
SUMMARY:Sara Oskarsson - málverkasýning opnun - Ístaka
DESCRIPTION:Sara Oskarsson opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti fimmtudaginn 18. janúar kl.15-17. \nÁ sýningunni sem nefnist ÍSTAKA eru verk eftir Söru unnin á striga og panel með olíu og vaxi. Verkin eru úr nýrri borgar-seríu innblásin af dýnamíkinni hjá Tjörninni í Reykjavík. \nTitill sýningarinnar vísar til ístöku á tjörninni sem fór fram í Reykjavík á fyrri hluta síðustu aldar. Ísinn var notaður í íshúsin í Reykjavík og til að ísa fisk fyrir siglingar með glænýjan fisk. \nÍstaka var erfiðisvinna í kulda og trekki. Ísinn var högginn þar sem að hann var tærastur og bestur og síðan sprengdur frá ísbrúninni með járnkörlum. Íshellunum var svo raðað á sleða sem hestar drógu að geymslum íshúsa. \nVar þetta allt saman hið kalsamasta verk og erfitt enda vont að ná haldi á blautum ísnum. Jakarnir voru vegnir upp á skörina með ísstöngum og áfram á sleðana. Hestar siluðust í átt að litlu steinbryggjunni\, eftir henni upp tjarnarbakkann og síðan á ákvörðunarstað. Þetta var oft hið tafsamasta ferðalag því ísstykkin vildu velta af sleðunum. \nÍshúsið Herðubreið sem stendur við tjörnina hýsir nú Listasafn Íslands. \nSara sem er fædd Reykjavík og á ævilangar minningar þaðan gerir tjörnina og umhverfi að viðfangsefni sínu og líkir starfi og viðleitni málarans við ákveðna “ístöku”. \nAð fanga augnablik\, stemmningu\, hugmyndir\, birtu og sál – að skapa eitthvað úr nærumhverfi sínu við hin ýmsu skilyrði. Að fanga það sem er hvikult. Sýnd veiði en ekki gefin. \n____ \nSara Oskarsson fæddist árið 1981 í Reykjavík og ólst að hluta til upp í Skotlandi. Hún útskrifaðist með B.A. gráðu í listmálun frá Edinburgh College of Art í Skotlandi árið 2012 og hefur starfað sem listmálari í meira en tvo áratugi. \nSara hefur haldið fjölmargar einkasýningar og einnig tekið þátt í mörgum samsýningum. \nFjallað hefur verið um verkin hennar í Telegraph dagblaðinu í Bretlandi og á Arte.Tv í Frakklandi\, Þýskalandi og Austur Evrópu. \nVerkin hafa selst til listaverkasafnara um allan heim; meðal annars til Bretlands\, Írlands\, Frakklands\, Danmörku\, Indlands\, Bandaríkjanna\, Hollands og Ástralíu. Árið 2013 hlaut verk eftir Söru tilnefningu til Art Gemini Prize -verðlaunanna í Bretlandi. \nSara starfar sem listamaður í fullu starfi og er með vinnustofu á Hverfisgötu 14 í Reykjavík. \nwww.saraoskarsson.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sara-oskarsson-malverkasyning-opnun-istaka/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Saraoskarsson.avif
END:VEVENT
END:VCALENDAR