BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250127T120000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250127T130000
DTSTAMP:20250206T085325Z
CREATED:20250113T113253Z
LAST-MODIFIED:20250206T085325Z
UID:10001097-1737979200-1737982800@hannesarholt.is
SUMMARY:Afmælistónleikar Mozarts 27.01.1756
DESCRIPTION:Tríó Sírajón var stofnað á vordögum árið 2010 og hefur haldið fjölmarga tónleika víðsvegar um landið sem og erlendis. Tríóið efnir gjarnan til samstarfs með öðru tónlistarfólki og hefur pantað verk frá íslenskum tónskáldum og frumflutt. \nNafn tríósins vekur jafnan forvitni en það er sótt til ættföður Reykjahlíðarættarinnar í Mývatnssveit\, Síra Jóns Þorsteinssonar\, sem er forfaðir hljóðfæraleikaranna þriggja. \nSónata KV 301 í G-dúr fyrir píanó og fiðlu\n1. Allegro con spirito\n2. Allegro \nFantasia í d-moll KV 397 fyrir píanó \nAdagio KV 580 í F-dúr fyrir klarínett og píanó \nSónata KV 306 í D-dúr fyrir píanó og fiðlu\n1. Allegro con spirito\n2. Andantino cantabile\n3. Allegretto \nTríó Sírajón: \nLaufey Sigurðardóttir\, fiðla \nEinar Jóhannesson\, klarínett \nAnna Áslaug Ragnarsdóttir\, píanó \nLaufey Sigurðardóttir hefur verið fastráðinn fiðluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil. Hún hefur jafnframt oft komið fram sem einleikari og verið ötul við flutning kammertónlistar á Íslandi og á meginlandi Evrópu sem og vestan hafs. Laufey er listrænn stjórnandi tónlistarviðburðanna “Músík í Mývatnssveit“ og “Afmælisdagur Mozarts “ . \nEinar Jóhannesson var leiðandi klarínettleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands um áratuga skeið. Hann hefur komið fram sem einleikari og meðleikari á fjölda tónleika innanlands sem utan. Hann er stofnfélagi Blásarakvintetts Reykjavíkur og er einn fimmmenninganna sem skipa miðaldasönghópinn Voces Thules. \nAnna Áslaug Ragnarsdóttir er í fríðum hópi fjölmargra tónlistarmanna sem hóf tónlistarnám sitt á Ísafirði.  Hún hefur komið fram sem píanóleikari víða um Evrópu og Norður-Ameríku. Á Íslandi hefur hún oft leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og haldið einleikstónleika\, m. a. á vegum Myrkra Músíkdaga\, Norrænna Músíkdaga\, Tíbrár og tónlistarfélaganna í Reykjavík\, Ísafirði og Akureyri. \nÓkeypis aðgangur og opin öllum
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/afmaelistonleikar-mozarts-27-01-1756/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/mozart-2.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR