BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250327T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250327T213000
DTSTAMP:20250225T150341Z
CREATED:20250217T121705Z
LAST-MODIFIED:20250225T150341Z
UID:10001119-1743105600-1743111000@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjör og fegurð fyrir selló og píanó
DESCRIPTION:Kitty og Þórdís snúa aftur í Hannesarholt með fjöruga efnisskrá sónata fyrir selló og píanó frá fyrri hluta 20. aldar. Flutt verða sónötur eftir Sergei Prokofiev og Claude Debussy sem báðar einkennast af léttlleika\, hljómrænum áhrifum frá dægurtónlst fyrri hluta 20. aldar og algjörs jafnræðis hljóðfæra.\nDebussy skrifaði sónötu sína ásið 1915 og var fyrsta af sex sónötum sem hann hugðist semja sem afturhvarf frá gerð stórra hljómsveitasrverka til kammertónlistar og var innblásin af og skrifuð til heiðurs frönsku barokktónskáldanna Rameau og Couperin. Debussy\, sem á þessum tíma var orðinn heilsuveill\, skrifaði sónötuna í smábæ við sjávarsíðu Normandy og tileinkaði eiginkonu sinni\, Emmu.\nVerk Prokofievs var samið árið 1949 eftir að tónskádlið sá sellóleikarann Mistislav Rostropovich leika aðra sónötu Miaskovkys og var Prokofiev svo hrifinn að hann samdi sónötuna sína fyrir sellóleikarann. Ári síðar var tónskáldið sakað um formalisma og megnið af tónlist hans bönnuð í Sovétríkjunum. Sónatan var frumflutt af Rostrapovic og Sviatoslav Richter í maí árið 1950 og þurftu þeir að spila hana fyrir ráð tónskáldafélagsins til að fá úr því skorið hvort verkið þætti viðeigandi og í anda stefnu Sovétríkjanna. Miaskovsky var viðstaddur frumflutninginn og lýsti verkinu sem undraverðu tónverki.\n\n\nKitty Kovács er fædd í Gyor í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Gyor og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Búdapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum\, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti. Frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Frá árinu 2012 hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan.\n\n \nÞórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Þórdís er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective sem er hópur skapandi tónlistarflytjenda sem leita út fyrir rammann í tónlistarflutningi sínum. Hlutverki flytjandans er ögrað\, hann semur líka tónlist\, útsetur\, spinnur og vinnur þvert á miðla. Hópurinn leitar einnig nýrra leiða til að túlka gamla tónlist í samtali við nútímann\, gjarnan með hjálp annarra listforma. Einnig er unnið náið með tónskáldum og lögð áhersla á að frumflytja ný tónverk. Þórdís hefur leikið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2018\, hún var fastráðin þar veturinn 2021-2022\, og hefur verið í leikhúshljómsveitum við Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. Hún gaf út hljómplötuna Vistir með hennar eigin jazz-tónsmíðum og útsetningum vorið 2021. Síðustu misseri hefur Þórdís hefur lagt sérstaka áherslu á að frumflytja á Íslandi sjaldheyrð eldri erlend verk\, sem dæmi frumflutti hún á Íslandi 100 ára sónötu fyrir selló og píanó eftir Kurt Weill\, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur\, á Jazzhátíð Reykjavíkur í ágúst 2020. Þá frumflutti hún á Íslandi þrjár einleikssvítur eftir Ernst Bloch í maí 2023. Þórdís hefur einnig brennandi áhuga á miðlun menningar og hefur m.a. gefið út eigið hlaðvarp um þýska tónskáldið Kurt Weill. Þórdís er eftirsóttur útsetjari og hefur m.a. útsett tónlist Mugisonar\, bæði fyrir tónleika og upptökur\, auk sönglaga Kurts Weills fyrir 7 manna jazzhljómmsveit. Vorið 2014 lauk Þórdís námi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum vorið 2019. Hún starfar á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á milli tónleika.\n\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjor-og-fegurd-fyrir-sello-og-piano/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/vikingcelloogpiano16x9.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR