BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260526T080000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260526T170000
DTSTAMP:20260530T174634
CREATED:20260526T161849Z
LAST-MODIFIED:20260526T161849Z
UID:10001299-1779782400-1779814800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó tónleikar\, fiðla og píanó\, Bjargey og Ólína
DESCRIPTION:Bjargey Birgisdóttir fiðluleikari og Ólína Ákadóttir píanóleikari eru ungar listakonur sem þegar hafa getið sér gott orð fyrir hljóðfæraleik sinn. Þær leiða hér saman hesta sína í Hannesarholti og flytja saman þrjú verk eftir Beethoven\, Grieg\, Jórunni Viðar. \nBjargey Birgisdóttir hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Helgu Steinunni Torfadóttur í Allegro Suzukitónlistarskólanum og útskrifaðist frá Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar þar sem kennari hennar var Auður Hafsteinsdóttir. Hún lauk bakkalárgráðu frá Hochschule für Musik Basel undir handleiðslu Barböru Doll árið 2023 og útskrifaðist nýverið með meistaragráðu frá Hochschule für Musik Freiburg undir handleiðslu Simone Zgraggen. Bjargey hefur hlotið margvísleg verðlaun og styrki fyrir fiðluleik sinn\, leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna og Sinfóníuhljómsveit Íslands og verið konsertmeistari Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Hún var í starfsnámi hjá Philharmonisches Orchester Freiburg árið 2024 og er meðlimur hinnar virtu Gustav Mahler Jugendorchester. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún lauk bakkalárnámi við Tónlistarháskóla Noregs með eins árs skiptinámi í Tbilisi í Georgíu. Nú stundar hún meistaranám við Konunglega tónlistarháskólanum í Kaupmannahöfn. Ólína hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og fleirum. Hún hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum eins og Seiglu\, Óperudögum\, Asker Kammerkonserter\, Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar. Einnig stendur Ólína fyrir ýmsum sjálfstæðum verkefnum\, þ.á.m. hefur hún sett saman söngleik við verk Jórunnar Viðar\, einleikstónleikana Ferðasögur frá Georgíu\, barnasýningar\, tónlistarsmiðjur og stofutónleikaröð. \nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-tonleikar-fidla-og-piano-bjargey-og-olina/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/05/bjargey.png
END:VEVENT
END:VCALENDAR