BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261125T160000
DTSTAMP:20261111T160950Z
CREATED:20261029T163037Z
LAST-MODIFIED:20261111T160950Z
UID:10001369-1794060000-1795622400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tilbrigði - Myndlistarsýning Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur
DESCRIPTION:Sýning Hannesarholti 7. – 25.nóvember 2026 : Tilbrigði \nAlls staðar í kringum okkur er vatn\, í mismunandi formi. Við tökum það sem sjálfsagðan hlut og gleymum stundum að gefa því gaum hversu falleg eru tilbrigði vatnsins. \nGuðrúnu hefur alltaf fundist síbreytileiki vatnsins spennandi viðfangsefni í ljósmyndun og hefur tekið óteljandi myndir af því í gegnum tíðina. Til að mynda af daggardropum\, ískristöllum og ölduslettum við sjávarborðið. Yfirleitt kýs hún að notast við macro- og aðdráttarlinsur til þess að fá meiri nálægð og aðra sýn. \nUndanfarin ár hefur hún einbeitt sér að formunum og litunum sem umbreytast á vatnsfletinum. Með því að nálgast yfirborðið birtist breytt mynd og speglunin í vatninu tekur á sig sjálfstæða og abstrakt mynd. Markmiðið er að koma áhorfandanum á óvart og afhjúpa form og liti sem oft fara framhjá okkur en birtast hverjum og einum á ólíkan hátt. \nGuðrún tók grunnnám í myndlist á sínum tíma en valdi sér svo önnur svið sem veittu henni tækifæri til að ferðast og búa um árabil erlendis. Hún segir kynni hennar af ólíkum menningarheimum og framandi landslagi hafi verið mjög auðgandi og örvandi fyrir sköpun sem hefur alltaf verið hluti af lífi hennar og að myndavélin fylgi henni hvert sem hún fer. Guðrún leggur stund á ýmsa sköpun\, s.s. ljósmyndun\, málun og skriftir. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði í Frakklandi og hér á Íslandi og gefið út tvær barnabækur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tilbrigdi-myndlistarsyning-gudrunarn-onnu-matthiasdottur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/gudrun-anna-matthiasdottir-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T170000
DTSTAMP:20260929T113750Z
CREATED:20260929T113217Z
LAST-MODIFIED:20260929T113750Z
UID:10001347-1794067200-1794070800@hannesarholt.is
SUMMARY:VÍSUR  SVANTES
DESCRIPTION:VÍSUR SVANTES \nÍ fyrsta sinn á íslensku hið rómaða verk danska meistarans Benny Andersen. \nSaga í söngvum þar sem tónlist og texti spila saman með eintökum hætti. \nAðalsteinn Ásberg Sigurðsson íslenskaði og flytur verkið\, en með honum koma fram Gunnar Gunnarsson á píanó og Birgir Steinn Theódórsson á kontrabassa. \nVísur Svantes kom fyrst út í Danmörku fyrir meira en hálfri öld\, bæði í bókaformi og á metsöluplötu með höfundi verksins og söngvarandum Povl Dissing. Það er nú talið þjóðargersemi og er á lista yfir einstök verk í danskri tónlistarsögu. \nVerkið fjallar um næstum óþekkt og hugsanlega látið ljóðskáld að nafni Svante Svendsen sem bað höfundinn um að semja tónlist við ljóðin sín. Með gamansömum og sérstæðum er sagt frá skáldinu óhamingjusama sem kynnti sig gjarnan þannig: Svante Svendsen\, fæddur Svensson\, varð viðskila við skánska foreldra mína á Malmö-ferjunni í ágúst 1935 og hef síðan orðið að sjá um mig sjálfur með aðstoð annarra.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/svantes/2026-11-07/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/webp:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/09/Event_22406.webp
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T213000
DTSTAMP:20261013T144253Z
CREATED:20261013T144253Z
LAST-MODIFIED:20261013T144253Z
UID:10001356-1794081600-1794087000@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar Tui Hirv og Páls Ragnars Pálssonar
DESCRIPTION:Tui Hirv & Páll Ragnar Pálsson\nÁ tónleikunum flytja Tui og Páll Ragnar lög af nýútkominni plötunni sinni Layers.sem kom út hjá Sono Luminus þann 23. október síðastliðinn. Á plötunni eru útsetningar Tui og Páls á gömlum trúarlegum þjóðlögum\, flest þeirra frá Eistlandi\, en einnig frá Norðurlöndum og Bretlandi. Nafn plötunnar vísar þannig til uppruna laganna og hvernig þau hafa átt sér sín ólíku líf í gegnum tíðina. Lögin hafa verið sungin í hundruði ára og mótast eftir flytjendum og aðstæðum\, í þetta skiptið í gegnum rödd Tui og gítarleik Páls Ragnars.\nTui Hirv & Páll Ragnar Pálsson\nPáll Ragnar Pálsson\, gítarleikari og tónskáld\, og Tui Hirv\, söngkona og tónlistarfræðingur\, ólust upp í sitthvorum heiminum\, hann í íslensku rokksenunni með öllu því frelsi og leikgleði sem henni fylgdi\, og hún í strang-akademísku skólakerfi Eistlands og kórmenningu. Leiðir þeirra lágu saman í tónlistarakademíunni í Tallinn og hafa síðan þá unnið saman að listsköpun\, þar sem Tui hefur flutt tónverk Páls bæði hér og erlendis.\nKaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-tui-hirv-og-pals-ragnars-palssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/TuiogPall.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR