BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20250101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261107T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20261125T160000
DTSTAMP:20261111T160950Z
CREATED:20261029T163037Z
LAST-MODIFIED:20261111T160950Z
UID:10001369-1794060000-1795622400@hannesarholt.is
SUMMARY:Tilbrigði - Myndlistarsýning Guðrúnar Önnu Matthíasdóttur
DESCRIPTION:Sýning Hannesarholti 7. – 25.nóvember 2026 : Tilbrigði \nAlls staðar í kringum okkur er vatn\, í mismunandi formi. Við tökum það sem sjálfsagðan hlut og gleymum stundum að gefa því gaum hversu falleg eru tilbrigði vatnsins. \nGuðrúnu hefur alltaf fundist síbreytileiki vatnsins spennandi viðfangsefni í ljósmyndun og hefur tekið óteljandi myndir af því í gegnum tíðina. Til að mynda af daggardropum\, ískristöllum og ölduslettum við sjávarborðið. Yfirleitt kýs hún að notast við macro- og aðdráttarlinsur til þess að fá meiri nálægð og aðra sýn. \nUndanfarin ár hefur hún einbeitt sér að formunum og litunum sem umbreytast á vatnsfletinum. Með því að nálgast yfirborðið birtist breytt mynd og speglunin í vatninu tekur á sig sjálfstæða og abstrakt mynd. Markmiðið er að koma áhorfandanum á óvart og afhjúpa form og liti sem oft fara framhjá okkur en birtast hverjum og einum á ólíkan hátt. \nGuðrún tók grunnnám í myndlist á sínum tíma en valdi sér svo önnur svið sem veittu henni tækifæri til að ferðast og búa um árabil erlendis. Hún segir kynni hennar af ólíkum menningarheimum og framandi landslagi hafi verið mjög auðgandi og örvandi fyrir sköpun sem hefur alltaf verið hluti af lífi hennar og að myndavélin fylgi henni hvert sem hún fer. Guðrún leggur stund á ýmsa sköpun\, s.s. ljósmyndun\, málun og skriftir. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í samsýningum bæði í Frakklandi og hér á Íslandi og gefið út tvær barnabækur.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tilbrigdi-myndlistarsyning-gudrunarn-onnu-matthiasdottur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/10/gudrun-anna-matthiasdottir-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR