BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250405T113000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250405T123000
DTSTAMP:20250325T112802Z
CREATED:20250325T112802Z
LAST-MODIFIED:20250325T112802Z
UID:10001148-1743852600-1743856200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókvit
DESCRIPTION:Heimspekilegur andi mun svífa yfir vötnum í Hannesarholti þegar eftirfarandi rithöfundar lesa úr bókum sínum laugardaginn 5. apríl kl.11.30-12.30. \nValur Gunnarsson – Hvað ef ? – Hvað ef lykilatburðir í mannkynssögunni verið öðruvísi? \nGunnar Hersveinn – Friðarmenning – í bókunum Gæfuspor\, Orðspor og Hugskot. \nGunnar Ágúst Harðarson – Fingraför spekinnar: Kaflar úr sögu íslenskrar heimspeki á miðöldum. \nGeir Sigurðsson – Óljós\, Saga af ástum – skáldsaga eftir heimspeking
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokvit-11/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókakaffi,Bókakynning,Bókaspjall,Bókmenntakvöld,Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/bokvit5-4.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20191205T170000
DTEND;TZID=UTC:20191205T180000
DTSTAMP:20210114T154641Z
CREATED:20210114T154641Z
LAST-MODIFIED:20210114T154641Z
UID:10000773-1575565200-1575568800@hannesarholt.is
SUMMARY:DIMMUMÓT
DESCRIPTION:Ari Trausti Guðmundsson ræðir við Steinunni Sigurðardóttur um nýja ljóðaabók hennar\, Dimmumót\, verk þeirra beggja og hugmyndir varðandi veröld í vanda.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dimmumot/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/78890557_3209198232488045_4015008000363200512_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190606T170000
DTEND;TZID=UTC:20190606T190000
DTSTAMP:20210114T134139Z
CREATED:20210114T134139Z
LAST-MODIFIED:20210114T134139Z
UID:10000388-1559840400-1559847600@hannesarholt.is
SUMMARY:ÍSLENSKAR ÞJÓÐSÖGUR MEÐ MYNDUM EFTIR GUÐNA HARÐARSON
DESCRIPTION:Í tilefni af útgáfu bókarinnar „Íslenskar þjóðsögur með myndum eftir Guðna Harðarson“ verður kynning í Hannesarholti\, fimmtudaginn 6. júní\, frá kl. 17-19.\nRagnheiður Gröndal syngur nokkur lög. Allir eru velkomnir! \nSjá nánar á : www.hardarson.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/islenskar-thjodsogur-med-myndum-eftir-gudna-hardarson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/gudnihardar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190314T200000
DTEND;TZID=UTC:20190314T220000
DTSTAMP:20210114T125223Z
CREATED:20210114T125223Z
LAST-MODIFIED:20210114T125223Z
UID:10000373-1552593600-1552600800@hannesarholt.is
SUMMARY:BÓKMENNTAKVÖLD UM ÁLFRÚNU GUNNLAUGSDÓTTUR - SOFFÍA AUÐUR BIRGISDÓTTIR OG HERMANN STEFÁNSSON
DESCRIPTION:Fimmtudaginn 14. mars verður haldin dagskrá til heiðurs höfundarverki Álfrúnar Gunnlaugsdóttur í umsjón Soffíu Auðar Birgisdóttir bókmenntafræðings og Hermanns Stefánssonar rithöfundar. Sú fyrrnefnda mun leiða gesti í gegnum höfundarverk Álfrúnar Gunnlaugsdóttur en Álfrún gaf út sitt fyrsta skáldverk\, smásagnasafnið Af manna völdum\, árið 1984 og síðan hefur hún sent frá sér sjö skáldsögur\, sú síðasta Fórnarleikar kom út 2016. \nBaksvið skáldsögunnar Yfir Ebrófljótið frá árinu 2001 er borgarastyrjöldin á Spáni en nýlega var endurútgefin bók Hallgríms Hallgrímssonar\, Undir fána lýðveldisins\, sem segir frá þátttöku höfundar í borgarastyrjöldinni og mun Einar Kári Jóhannsson\, fulltrúi Unu útgáfuhúss\, segja frá tengslum þessara tveggja bóka. \nÞá verður stillt upp rennibraut um Álfrúnu og verk hennar sem rithöfundar\, fræðimenn og leikarar renna sér niður á leifturhraða og bjóða upp á örfyrirlestra\, upplestur og óvæntar uppákomur. Einnig verða tónlistaratriði af spænskum meiði í höndum Ara Franks Ingusonar gítarleikara og Daníels Sigurðssonar trompetleikara. \nMeðal gesta verður Álfrún Gunnlaugsdóttir sem þó mun ekki sitja fyrir svörum enda tala verk hennar fyrir sig sjálf.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-um-alfrunu-gunnlaugsdottur-soffia-audur-birgisdottir-og-hermann-stefansson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/alfrunetal.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180322T170000
DTEND;TZID=UTC:20180322T170000
DTSTAMP:20180322T114553Z
CREATED:20180319T111438Z
LAST-MODIFIED:20180322T114553Z
UID:10000640-1521738000-1521738000@hannesarholt.is
SUMMARY:Virginia Woolf - færist niður í veitingastofur Hannesarholts
DESCRIPTION:Vegna áskoranna – og í tilefni af því að fjórar bækur eftir Virginiu Woolf eru nú komnar út á íslensku – heldur Soffía Auður Birgisdóttir fyrirlestur um ævi og verk skáldkonunnar. Fyrirlesturinn fer fram í veitingastofum Hannesarholts á 1.hæð og hefst kl. 17. Á fimmtudögum er jafnan gleðistund (happy hour) frá 17-19 og lifandi tónlist frá 18.30-20. Eldhúsið opið fram á kvöld. Kl. 20 fer fram leiklestur á Hvað er í blýhólknum? eftir Svövu Jakobsdóttur í sal Hannesarholts\, Hljóðbergi. Það er því tilvalið að njóta bæði bókmennta og málsverðar í Hannesarholti þennan eftirmiðdag og kvöld.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/virginia-woolf-a-badstofulofti-hannesarholts/
LOCATION:Baðstofuloftið
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/VirginiaWoolf.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161213T200000
DTEND;TZID=UTC:20161213T220000
DTSTAMP:20161213T122043Z
CREATED:20161212T121737Z
LAST-MODIFIED:20161213T122043Z
UID:10000182-1481659200-1481666400@hannesarholt.is
SUMMARY:Upplestrarkvöld
DESCRIPTION:Sjö höfundar lesa úr nýjum bókum í Hannesarholti á Grundarstíg 10. Andri Snær Magnason\, Arngunnur Árnadóttir\, Hallgrímur Helgason\, Kött Grá Pje\, Sigurbjörg Þrastardóttir\, Sölvi Björn Sigurðsson og Viðar Hreinsson. Dagskráin hefst klukkan 20 og verður ríkulega krydduð af óvæntum uppákomum. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakvold-forlagsins/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Upplestrarkvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/BókakaffiAndra.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160307T200000
DTEND;TZID=UTC:20160307T200000
DTSTAMP:20160302T120540Z
CREATED:20160209T154100Z
LAST-MODIFIED:20160302T120540Z
UID:10000458-1457380800-1457380800@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall - Páll Baldvin Baldvinsson
DESCRIPTION:Bókmenntaspjall með Páli Baldvinsyni þar sem verk hans Stríðsárin 1938-1945 verður til umfjöllunar \nÍ erindi sínu mun Páll kynna þetta magnaða verk og fjalla um nokkra þætti þess með myndum frá þessu örlagaríka tímabili í sögu þjóðarinnar. \nVeitingastofur á 1. hæð verða opnar frá kl. 18.30 og gestum gefst kostur á að gæða sér á léttum kvöldverði í formi menningarplatta sem samanstendur af ýmsum smáréttum (kr. 2.900). Menningarplatta þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síðasta lagi daginn áður í síma 511 1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntaspjall-pall-baldvin-baldvinsson/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Bókmenntaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/02/pall_baldvin-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160217T200000
DTEND;TZID=UTC:20160217T200000
DTSTAMP:20160208T172739Z
CREATED:20160128T162450Z
LAST-MODIFIED:20160208T172739Z
UID:10000438-1455739200-1455739200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall - Blundar í þér bók?
DESCRIPTION:Blundar í þér bók?\nLeikkonan Þóra Karítas Árnadóttir segir frá tilurð bókarinnar Mörk – saga mömmu. \nFyrirlesturinn er opinn öllum en ekki síst ætlaður þeim sem eru að gæla við að skrifa bók og eru í leit að innblæstri. Höfundur lýsir á heiðarlegan hátt sköpunarferlinu og deilir með áhorfendum krefjandi\, óvæntu og örlagaríku ferðalagi. Mörk saga mömmu kom út hjá Forlaginu í apríl 2015 og var tilnefnd til Fjöruverðlaunanna 2016. \nVeitingastofurnar opna kl. 18.30 fyrir þá gesti sem vilja snæða léttan kvöldverð í formi menningarplatta áður en dagskrá hefst. Menningarplatta þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síðasta lagi kl. 16.00 daginn fyrir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/blundar-i-ther-bok/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Bókmenntaspjall,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/Þóra-Karitas.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160121T200000
DTEND;TZID=UTC:20160121T200000
DTSTAMP:20160120T130846Z
CREATED:20160105T144239Z
LAST-MODIFIED:20160120T130846Z
UID:10000423-1453406400-1453406400@hannesarholt.is
SUMMARY:Davíðsljóð í Hannesarholti
DESCRIPTION:Í þessari afmælisdagskrá leiðir Valgerður gesti á vit skáldsins unga\, stiklar á stóru í bernskusögu hans\, hugleiðir hvernig skáldið varð til og les nokkur af fyrstu ljóðunum. \nValgerður H. Bjarnadóttir ólst upp með ljóðum og öðrum verkum Davíðs\, eins og þúsundir annarra Íslendinga. Hún las þau\, lærði og tengdist sumum þeirra sterkum böndum. S.l. sumar gegndi hún hlutverki húsfreyju í Davíðshúsi og sökkti sér þá á ný inn í þennan heim ástar\, sögu\, trúar\, ævintýra og þjáningar\, sem fáir hafa náð að mála eins sterkum litum og Davíð. Vikulega var hún þar með dagskrá um ljóðin og líf Davíðs út frá ólíkum sjónarhornum og nú býður Hannesarholt upp á þá dagskrá sunnan heiða. Valgerður er félagsráðgjafi með MA í trúarheimspeki og menningarsögu. \n21. janúar 1916 var Davíð Stefánsson staddur í Kaupmannahöfn og hélt upp á 21 árs afmæli sitt með félaga sínum og afmælisbróður\, Birni O. Björnssyni. Þeir voru báðir félagar í Boðn\, bræðralagi ungskálda. Davíð hafði örfáum dögum áður fengið inngöngu í félagið eftir að hafa flutt þeim nokkur af ljóðum sínum. Boðnarbræðrum var boðið í afmælið auk fleiri vina\, og Björn\, sem vildi koma þessum bróður á framfæri\, hafði einnig boðið þangað Sigurði Nordal. Sigurður var eldri en þeir félagar og var kominn til nokkurra metorða í bókmenntaheiminum. Í veislunni las Davíð ljóðabálkinn Skammarrímur\, en einnig lítið ljóð um ástir og þjáningu\, ort í orðastað konu. Hann kallaði ljóðið Komdu. Sigurður heillaðist. Erindið sem snerti hann dýpst var þetta: \n„Ekki skal það kvelja þig\nskóhljóðið mitt\,\nég skal ganga berfætt\num blessað húsið þitt.“ \nBókmenntafræðingurinn stóð upp að lestri loknum og las upp dómsorðið: „Þessi maður er skáld!“ Í kjölfarið birtust sjö af ljóðum Davíðs í tímaritunum Eimreiðinni og  Iðunni\, fyrir milligöngu Sigurðar\, og þau slógu í gegn. Davíð Stefánsson var orðinn skáld. \n\nVeitingastofurnar opna kl. 18.30 fyrir þá gesti sem vilja snæða léttan kvöldverð í formi menningarplatta áður en dagskrá hefst. Menningarplatta þarf að panta fyrirfram með borðapöntun í síðasta lagi kl. 16.00 daginn fyrir. Nánari upplýsingar hér.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/davidsljod/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/davidstefans.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151205T140000
DTEND;TZID=UTC:20151205T140000
DTSTAMP:20151119T141139Z
CREATED:20150912T141355Z
LAST-MODIFIED:20151119T141139Z
UID:10000410-1449324000-1449324000@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall
DESCRIPTION:Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur segir frá nýútkominni bók sinni Ég skapa\, þess vegna er ég. Um skrif Þórbergs Þórðarsonar. \nÁhugi á bókum Þórbergs Þórðarsonar hefur glæðst mikið á undanförnum árum\, í kjölfar stofnunar Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit og útgáfu bóka um ævi Þórbergs eftir Halldór Guðmundsson og Pétur Gunnarsson. Þá virðist sem skrif Þórbergs höfði sérstaklega til íslenskra rithöfunda á 21. öld og sækja jafnvel í hans smiðju; það sambland sjálfsævisögu og skáldskapar sem bækur hans einkennast af er áberandi bókmenntaform á 21. öld\, bæði hérlendis sem erlendis. \nBókin byggir á margra ára rannsóknum og er yfirgripsmikil heildarútekt á höfundarverki Þórbers. Bókin samanstendur af níu köflum og mun Soffía Auður kynna efni hvers kafla og lesa brot úr hverjum þeirra.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakvold/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/Eg-skapa_KapaBT.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151128T140000
DTEND;TZID=UTC:20151128T140000
DTSTAMP:20151021T133029Z
CREATED:20150909T174019Z
LAST-MODIFIED:20151021T133029Z
UID:10000374-1448719200-1448719200@hannesarholt.is
SUMMARY:Leikskáldið við Íslendingafljót
DESCRIPTION:Kynning á tvímálaútgáfu Kind Publishing á Tíu leikritum Guttorms J. Guttormssonar.\nRitstjórar bókarinnar\, Birna Bjarnadóttir og Gauti Kristmannsson\, segja fáein orð um útgáfuna og síðan mun Þór Tulinius lesa úr bókinni. \nGuttormur J. Guttormsson (1878-1966) fæddist á bóndabænum Víðivöllum\, ekki langt frá Riverton á Nýja Íslandi. Foreldrar Guttorms\, þau Jón Guttormsson og Pálína Ketilsdóttir\, voru meðal fyrstu innflytjendanna frá Íslandi sem settust að í Manitóba. Þrátt fyrir þá staðreynd að Guttormur fæddist og bjó allt sitt líf í Kanada skrifaði hann einvörðungu á íslensku. Tíu leikrit komu first út á Íslandi árið 1930. Í þessari bók birtist fyrsta endurprentun þeirra sem og fyrsta enska þýðingin á leikritunum. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leikskaldid-vid-islendingafljot/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/Ten-Plays-cover.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151117T200000
DTEND;TZID=UTC:20151117T200000
DTSTAMP:20151115T225711Z
CREATED:20150912T135431Z
LAST-MODIFIED:20151115T225711Z
UID:10000404-1447790400-1447790400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall
DESCRIPTION:Þórunn Sigurðardóttir bókmenntafræðingur segir frá nýútkominni bók sinni Heiður og huggun. Erfiljóð\, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld. \n  \nTækifæriskvæði eins og erfiljóð\, harmljóð og huggunarkvæði voru mjög vinsæl á meðal hinnar menntuðu elítu í Evrópu á 17. öld. Í íslenskum handritum eru varðveitt gríðarlega mörg slík kvæði\, sem fæst hafa verið prentuð\, og af þeim sökum hefur lítið verið fjallað um þessar kvæðagreinar í íslenskri bókmenntasögu\, sem hefur löngum stuðst að mestu við prentaðar heimildir. Í bókinni er fjallað um eðli og einkenni þessara bókmenntagreina\, úr hverju þær eru sprottnar og hvert hlutverk þeirra var í samfélagi aldarinnar\, félagslegt jafnt sem sálrænt. Þá eru gefin út nokkur kvæði sem aldrei hafa áður birst á prenti. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokakvold-thorunn-sigurdardottir-kynnir-nyutkomna-bok-sina/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/04/10917917_10153009321899738_2737556439903671137_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151021T200000
DTEND;TZID=UTC:20151021T200000
DTSTAMP:20151020T160932Z
CREATED:20150909T174859Z
LAST-MODIFIED:20151020T160932Z
UID:10000377-1445457600-1445457600@hannesarholt.is
SUMMARY:Gyrðisvaka
DESCRIPTION:Sigurður Skúlason leikari flytur dagskrá í Hannesarholti sem hann nefnir Gyrðisvöku\, en hana hefur Sigurður unnið upp úr höfundarverki Gyrðis Elíassonar\, rithöfundar. Þar mun Sigurður bregða upp nokkrum dæmum úr fjölbreytilegri og margslunginni skáldskaparlist Gyrðis – úr ljóðum hans\, smásögum\, smáprósa\, skáldsögum og þýðingum. \nGyrðir Elíasson á að baki óvenju farsælan feril sem rithöfundur\, hann hefur sterkan persónulegan stíl og býr að mikilli hugmyndaauðgi samfara öguðum vinnubrögðum sem hafa skilað honum í fremstu röð skálda á Íslandi. \nAllir velkomnir. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gyrdisvaka/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/09/eddi-okt.-´12-nr.-5-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150423T200000
DTEND;TZID=UTC:20150423T210000
DTSTAMP:20150410T160432Z
CREATED:20150410T154027Z
LAST-MODIFIED:20150410T160432Z
UID:10000085-1429819200-1429822800@hannesarholt.is
SUMMARY:"Ástin\, drekinn og dauðinn"
DESCRIPTION:Dagur bókarinnar í Hannesarholti \nVilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur segir gestum í myndskreyttu erindi frá nýrri bók sinni\, sem ber titilinn Ástin\, drekinn og dauðinn. Þar lýsir hún vegferð sinni og Hennar heittelskaða með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja. Bókin veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En hún er ekki síður óður til kærleikans\, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífinu. \nÞegar Vilborg kynnti bók sína í síðasta mánuði yfirfylltist Hannesarholt og því er viðburðurinn nú endurtekinn. Ástin\, drekinn og dauðinn hefur hlotið afar góðar viðtökur lesenda og gagnrýnenda. \n\,\,Bók um mikilvægt efni.“ – Egill Helgason / Kiljan \n„Afskaplega raunsæ\, falleg og algjörlega væmnislaus … Það geta allir samsamað sig og fundið styrk í þessari bók … Afrek.“ – Friðrika Benónýsdóttir / Kiljan \n„Það er eitthvað við látleysið í stílnum hjá henni sem rímar við þetta tilfinningaþrungna æðruleysi sem virðist einkenna viðbrögð þeirra beggja og glímuna við þennan sjúkdóm … Mjög sterk bók og fallega skrifuð.“ Þorgeir Tryggvason / Kiljan \n„Bókin er nístandi fögur og fjallar á svo elskulegan hátt um helstu og æðstu kenndir lífsins að lesandinn kemst á tíðum við án þess þó að fyllast væmni eða velgjutilfinningu. Þar er ritlist Vilborgar komin.“ Íris Gunnarsdóttir / Hringbraut \n„Sannarlega bók sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.“ Ragnheiður Davíðsdóttir\, framkvæmdastjóri Krafts \nViðburðurinn fer fram í Hljóðbergi. Miðasala á midi.is. \nÍ veitingastofum Hannesarholts verður hægt að gæða sér á matarmikilli súpu og heimabökuðu brauði eða smurbrauðsplatta áður en viðburðurinn hefst. Borðapantanir í sima: 511 1904 \nLjósm. Elsa Björg Magnúsdóttir \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/astin-drekinn-og-daudinn-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/02/Vilborg_feb.2015-e1424802674808.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150325T200000
DTEND;TZID=UTC:20150325T210000
DTSTAMP:20150324T153044Z
CREATED:20150216T181725Z
LAST-MODIFIED:20150324T153044Z
UID:10000292-1427313600-1427317200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Ástin\, drekinn og dauðinn"
DESCRIPTION:Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur segir gestum frá nýrri bók sinni\, sem ber titilinn Ástin\, drekinn og dauðinn. Þar lýsir hún vegferð sinni og Hennar heittelskaða með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og fyrsta árinu eftir að hún varð ekkja. Bókin veitir í senn innsýn í veröld krabbameinsins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. En hún er ekki síður óður til kærleikans\, hvatning til að lifa í árvekni og sættast við að dauðinn er órjúfanlegur hluti af lífinu. Viðburðurinn fer fram í Hljóðbergi. Miðasala við innganginn. \nÍ veitingastofum Hannesarholts verður hægt að gæða sér á matarmikilli súpu og heimabökuðu brauði áður en viðburðurinn hefst. \nVeitingastofurnar opna kl. 18.00\, vinsamlegast pantið borð í síma: 511 1904 \nLjósmyndari: Elsa Björg Magnúsdóttir
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/astin-drekinn-og-daudinn/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/02/Vilborg_feb.2015-e1424802674808.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150226T200000
DTEND;TZID=UTC:20150226T210000
DTSTAMP:20150224T214859Z
CREATED:20150216T173618Z
LAST-MODIFIED:20150224T214859Z
UID:10000287-1424980800-1424984400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntaspjall - "Það er kominn gestur"
DESCRIPTION:Helga Guðrún Johnson\, Sigurveig Jónsdóttir og Sigurður Svavarsson fjalla um nýútkomna bók um sögu ferðamennsku á Íslandi\, sem nefnist einmitt „Það er kominn gestur.“ Helga Guðrún og Sigurveig eru höfundar bókarinnar\, sem er hin eigulegasta og Sigurður ritstýrir. Samtök ferðaþjónustunnar gáfu bókina út með myndarlegum styrk frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti. Á undan bókmenntaspjallinu verður framreidd súpa og heimabakað brauð frá kl.18:30 í veitingastofunum á 1.hæð. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hera@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thad-er-kominn-gestur/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/02/5469ebf630b05.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141213T120000
DTEND;TZID=UTC:20141213T140000
DTSTAMP:20141205T171448Z
CREATED:20141201T162957Z
LAST-MODIFIED:20141205T171448Z
UID:10000058-1418472000-1418479200@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjöruverðlaunin - lesið úr tilnefndum bókum
DESCRIPTION:Lesið verður úr 9 bókum sem tilnefndar voru til Fjöruverðlaunanna 4.desember síðastliðinn. Okkur í Hannesarholti er það mikil ánægja að bjóða þennan viðburð velkominn í hús. \nTitlar\, höfundar og útgefendur eru: \nFagurbókmenntir \nEnglaryk eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Útgefandi Forlagið\, JPV.\nLóaboratoríum eftir Lóu Hlín Hjálmtýsdóttur. Útgefandi Forlagið\, Ókeibæ.\nEnginn dans við Ufsaklett eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur. Höf gefur\nsjálf út. \nBarna – og unglingabókmenntir \nVinur minn vindurinn eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur. Útgefandi\nTöfraland.\nHafnfirðingabrandarinn eftir Bryndísi Björgvinsdóttur. Útgefandi Forlagið\,\nVaka/Helgafell.\nÁ puttanum með pabba eftir Kolbrúnu Önnu Björnsdóttur og Völu Þórsdóttur.\nÚtgefandi K:at \nFræðibækur og rit almenns eðlis \nSaga þeirra\, saga mín\,  eftir Helgu Guðrúnu Johnson.\nÚtgefandi Forlagið\, JPV-úgáfa.\nKjaftað um kynlíf eftir Siggu Dögg. Útgefandi Iðnú.\nOfbeldi á heimili – Með augum barna. Ritstjóri Guðrún Kristinsdóttir.\nÚtgefandi Háskólaútgáfan.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjoruverdlaunin-lesid-ur-tilnefndum-bokum/
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/12/fjöruverðlaun.tilnefningar.4.des_.2014.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141125T201500
DTEND;TZID=UTC:20141125T213000
DTSTAMP:20141117T152842Z
CREATED:20141117T105704Z
LAST-MODIFIED:20141117T152842Z
UID:10000050-1416946500-1416951000@hannesarholt.is
SUMMARY:Afríka\, ást við aðra sýn
DESCRIPTION:Stefán Jón Hafstein býður til kvöldvöku í Hannesarholti við Grundarstíg. Hann mun segja frá Afríku í tengslum við nýútkomna bók\, Afríku – ást við aðra sýn\, varpa upp ljósmyndum og myndböndum og segja frá áhugaverðu fólki\, náttúruundrum og fleiru því sem kemur við sögu í bókinni. \,\,Það hefur verið talsvert beðið um að ég komi á fundi hjá alls konar félögum og stofnunum og því ákvað ég í samvinnu við Hannesarholt að halda svona kvöldstund fyrir þá sem ekki eru hluti af þeim hring. Spjallið verður í klukkustund\, ég bæti við alls konar lifandi myndum af vettvangi og bý þetta í rabbfundaform í anda kvöldvöku í baðstofustíl. Það kostar ekkert inn. Bókin fæst svo þarna á góðu verði fyrir þá sem vilja grípa eintak. Þetta er ekki flókið og allir velkomnir“ segir Stefán Jón.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/afrika-ast-vid-adra-syn/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/11/10628366_1509310782686905_2929076692356569920_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141118T200000
DTEND;TZID=UTC:20141118T220000
DTSTAMP:20141117T205815Z
CREATED:20140904T220107Z
LAST-MODIFIED:20141117T205815Z
UID:10000196-1416340800-1416348000@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókakvöld með Gerði Kristnýju
DESCRIPTION:Gerður Kristný les upp úr Drápu\, nýútkominni ljóðabók sinni\, og segir frá tilurð hennar. Þar er sögð áhrifamikil saga í ljóði sem hefst nóttina þegar myrkusinn kemur til borgarinnar. Ljóð Gerðar Kristnýjar hafa heillað lesendur um allan heim og fyrir þau hefur hún meðal annars fengið Íslensku bókmenntaverðlaunin og verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs.Kaffihúsauppröðun\, veitingasala. \nÞú getur keypt miða hér
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodaspjall-med-gerdi-kristnyju/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Gerður-Kristný_6840m-e1409867938424.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131216T200000
DTEND;TZID=UTC:20131216T220000
DTSTAMP:20131216T125739Z
CREATED:20131112T004905Z
LAST-MODIFIED:20131216T125739Z
UID:10000066-1387224000-1387231200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Myndir af fortíðinni" - bókmenntakvöld: Einar Már Jónsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
DESCRIPTION:  \nKvölddagskrá með Einari Má Jónssyni\, sem hann nefnir „Myndir af fortíðinni\,“ og fjallar um söguritun og stöðu hennar\, og hinar ýmsu leiðir til að lýsa fortíðinni. Kvöldið hefst á fyrirlestri Einars\, og eftir hlé les hann upp úr óútkominni bók sinni sem er framhald af  Örlagaborginni sem hann gaf  út á síðasta ári. Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari leikur Les barricades mysterieuses eftir Francois Couperin\, sem tengist beint efni fyrirlestursins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-einar-mar-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Kvöldstund með listamanni,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/04/EMJ.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131212T200000
DTEND;TZID=UTC:20131212T220000
DTSTAMP:20131212T001415Z
CREATED:20131203T003927Z
LAST-MODIFIED:20131212T001415Z
UID:10000003-1386878400-1386885600@hannesarholt.is
SUMMARY:Andri Snær\, Vigdís Gríms\, Gissur Páll og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar
DESCRIPTION:Verðlaunarithöfundarnir Andri Snær Magnason\, Vigdís Grímsdóttir\, tenórinn Gissur Páll Gissurarson og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar munu leiða saman hesta sína í fjölbreyttu menningarkvöldi í Hannesarholti fimmtudaginn 12. desember. \nÞessi fjölbreytti hópur listamanna mun koma fram\, lesa\, syngja\, spila og skarast svo á ýmsan hátt. Árni Heiðar hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn Mold ásamt tríói sínu en fyrir þessa kvöldvöku hefur hann samið stef við texta Andra Snæs sem tríóið hans mun frumflytja. Þau munu lesa úr Tímakistunni og Dísusögu sem báðar eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\, hvor í sínum flokki. Auk þessa mun söngvarinn Gissur Páll syngja jólastemninguna inn í hjörtu gesta eins og honum er einum lagið við undirleik Árna Heiðars\, en Gissur er löngu orðinn einn af okkar ástsælustu söngvurum. Til að kóróna jólastemninguna verður gestum boðið upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Hér er hægt að kaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/andri-snaer-vigdis-grims-gissur-pall-og-djasstrio-arna-heidars-karlssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/fimmtudagur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131121T200000
DTEND;TZID=UTC:20131121T220000
DTSTAMP:20131119T152359Z
CREATED:20131118T224152Z
LAST-MODIFIED:20131119T152359Z
UID:10000067-1385064000-1385071200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kamban\, bókin og myndin
DESCRIPTION:Guðmundur Kamban (1888-1945) var í hópi þekktustu rithöfunda Íslendinga um sína daga. Hann hefur verið talinn í hópi fremstu leikskálda þjóðarinnar og skáldsögur hans\, einkum Skálholt\, voru þýddar á annan tug tungumála og m.a. gefnar út í Bretlandi og Bandaríkjunum\, en það var óalgengt á millistríðsárunum. \nHann var líkt og Gunnar Gunnarsson meira að segja orðaður við Nóbelsverðlaunin í sænskum blöðum. Um nokkurra ára skeið á fjórða áratugnum var hann búsettur í Þýskalandi og sú dvöl reyndist honum afdrifarík því að það orð komst á að hann hefði verið hallur undir stjórnvöld þar.\nNýlega kom út bók um Kamban eftir bókmennta- og leikhúsmanninn Svein Einarsson og hefur ferill Kambans aldrei verið rakinn jafn ítarlega\, né heldur tildrögin að morðinu á frelsisdegi Dana 5. maí 1945. Margt nýtt kemur fram í þessari bók um stórbrotinn höfund og dramatíska ævi hans.\nHúsfyllir var á Kambanskvöldi hjá Rithöfundasambandi Íslands á dögunum og áhugi mikill á lífi þessa merka manns. Því verður haldið annað kvöld til heiðurs Guðmundi Kamban nk. fimmtudagskvöld í Hannesarholti við Grundarstíg. Þar mun Sveinn segja frá bókinni og sýnd verður mynd þeirra Viðars Víkingssonar og Hallgríms H. Helgasonar\, frænda skáldsins\, um Kamban. Myndin var gerð fyrir RÚV þegar 100 ára afmælis Kambans  var minnst árið 1988. \n  \nDagskráin hefst kl. 20 og er öllum opinn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kamban-bokin-og-myndin/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Kamban_175.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131120T200000
DTEND;TZID=UTC:20131120T220000
DTSTAMP:20131119T162839Z
CREATED:20131111T235550Z
LAST-MODIFIED:20131119T162839Z
UID:10000026-1384977600-1384984800@hannesarholt.is
SUMMARY:BRÆÐRALÖG -  samræða um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu
DESCRIPTION:Hvernig leita íslenskir stjórnmálamenn í menningarlífið og menningarsöguna\ntil að styðja við stefnumál sín og ímynd? Hver eru tengslin milli Jónasar\nHallgrímssonar\, Hannesar Hafstein\, Jónasar frá Hriflu\, Einars Olgeirssonar\nSigurðar Nordals og Davíðs Oddssonar? Leitað verður svara\nvið þessum spurningum á samræðu sem Sögufélag og Hannesarholt standa\nfyrir miðvikudaginn 20. nóvember um fagurfræði íslenskrar stjórnmálabaráttu.\nSagnfræðingarnir Guðni Th. Jóhannesson\, Ragnheiður Kristjánsdóttir og\nÓlafur Rastrick og bókmenntafræðingurinn Jón Karl Helgason verða\nmálshefjendur en einnig er gert ráð fyrir virkri þátttöku gesta.\nTilefni samræðunnar eru nýútkomnar bækur þeirra Ólafs og Jóns Karls\,\nHáborgin – menning\, fagurfræði og pólitík og Ódáinsakur: Helgifesta\nþjóðardýrlinga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/braedralog-samraeda-um-fagurfraedi-islenskrar-stjornmalabarattu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jon_karl_helgason-e1384214021956.jpg
ORGANIZER;CN="S%C3%B6guf%C3%A9lag og Hannesarholt":MAILTO:hannesarholt@hannesarholt.is
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131014T200000
DTEND;TZID=UTC:20131014T220000
DTSTAMP:20130930T191021Z
CREATED:20130930T190548Z
LAST-MODIFIED:20130930T191021Z
UID:10000044-1381780800-1381788000@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntakvöld - Pater Jón Sveinsson – NONNI
DESCRIPTION:… of ótrúlegur til að vera sannur; og of sannur til að vera trúlegur …“\n\n  \nHannesarholt og Bókaútgáfan Opna efna til bókmenntakvölds í Hannesarholti mánudaginn 14. október klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og greiðist við inngang. Gengið er inn frá Skálholtsstíg. \nFjallað verður um bókina Pater Jón Sveinsson – NONNI\, eftir Gunnar F. Guð­mundsson\, sem hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki fræðirita og bóka almenns efnis á síðasta ári. Brynhildur Pétursdóttir\, alþingismaður og fyrrum forstöðumaður Nonnasafns á Akureyri mun ræða við Gunnar um pater Jón Sveinsson\, ævisöguritunina og Nonnabækurnar sem báru hróður höfundar um veröld víða. \nJón Sveinsson lifði og hrærðist i bókum sínum\, Nonnabókunum. En honum fannst hann jafnframt þurfa að fylgja sögum sínum eftir með því að ferðast um heiminn\, hitta fólk og komast í lifandi samband við það. Þannig fékk einnig eirðarleysi hans „postullegan“ tilgang. Hann var heimsmaður án föðurlands\, talaði mörg tungumál en sjaldnast sitt eigið móðurmál\, rótslitinn einstæðingur með kjölfestu í voninni\, alla sína ævi á leiðinni heim. \nÞannig kemst Gunnar F. Guðmundsson sagnfræðingur að orði undir lok bókar sinnar um Jón Sveinsson sem árið 1870 yfirgaf föðurland og heimili og sneri einungis til baka sem gestur. Ævi þessa manns var einstök – andstæðurnar í lífi hans með ólíkindum. Dagbækur föður hans\, sem dó meðan Jón var enn á barnsaldri\, og sendibréf móður hans\, lýsa á sláandi hátt endalausu basli\, harðræði og veikindum en jafnframt einlægri löngun til að koma þeim börnum sem lifðu til manns. Þess vegna tekur móðir Jóns boði um senda hann utan til mennta aðeins 12 ára gamlan – og þau sáust aldrei framar. \nJón hlaut langa og stranga menntun og gekk inn í samfélag sem var eins fjarri íslenskum veruleika og hugsast gat. Hann gerðist kaþólskur prestur og kennari meðal Jesúíta og var sendur víða til starfa – en þó aldrei til Íslands eins og hugur hans stóð til. Iðulega átti hann í innri togstreitu sem birtist vel í dagbókarskrifum hans og bréfum. Sagnamaðurinn var aldrei langt undan\, strax í æsku skrifaði hann sögur í stílakompuna sína. Köllun hans til ritstarfa\, ásamt löngun til að hverfa aftur til bernskuáranna\, varð að miklu höfundarverki og bækurnar um Nonna víðfrægar. Sögur hans voru þýddar á um 30 tungumál og komu út í stórum upplögum. \nJón lést í Þýskalandi árið 1944\, þar sem sprengjurnar drundu allt um kring. Hann lifði alla ævi í heimi bernskunnar þrátt fyrir að vera einn víðförlasti og þekktasti Íslendingur síns tíma. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-pater-jon-sveinsson-nonni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Nonni_cover_150dpi_crop.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR