BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260311T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260311T190000
DTSTAMP:20260226T152928Z
CREATED:20260226T152928Z
LAST-MODIFIED:20260226T152928Z
UID:10001276-1773250200-1773255600@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili heimsmarkmiðanna: Listir\, íþróttir og tómstundir sem forvörn og endurhæfing
DESCRIPTION:Börn og ungmenni sem hafa leitast út á hála braut\, hvort sem það er í átt að fíkniefnum\, öfgahugmyndafræði eða andfélagslegri hegðun\, þurfa oft meira en hefðbundna meðferð.\nRannsóknir og reynsla sýna að list\, íþróttir og tómstundir geta verið lykillinn\, ekki einungis sem forvörn heldur sem öflug endurhæfingarleið. Þegar ungmenni læra að skapa\, hreyfa sig og þroskast í öruggu og uppbyggilegu umhverfi eflast sjálfsmynd þeirra og sjálfsvirðing. Breyting á sér stað\, þegar ungmenni byrja að trúa á eigið gildi\, eigin möguleika og byrja að endurbyggja brotna sjálfsmynd.\nHvernig skapar listin rými til að vinna úr erfiðleikum? Hvernig byggja íþróttirnar upp þrautseigju og lífsfærni? Hvernig geta skipulagðar tómstundir verið sá vettvangur þar sem börn finna sig?\nÁ fundinum ræðum við hvernig við getum saman\, fagfólk\, foreldrar og samfélagið í heild\, stutt börn og ungmenni til að finna styrk sinn og taka þátt í samfélaginu á jákvæðan hátt.\nÍ pallborði sitja Björn Már Sigurbjörnsson Brink frá Vopnabúrinu\, Unnur Óttarsdóttir frá Listmeðferð Unnar\, Jakob Frímann Þorsteinsson lektor við Menntavísindasvið\, og Margrét Kristín Sigurðardóttir listamaður og kennari.\nGuðrún Sóley Gestsdóttir stýrir fundinum.\nÖll velkomin í Hannesarholt. Fundurinn verður einnig í streymi.\nFundurinn er styrktur af Hannesarholti og Reykjavíkurborg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-listir-ithrottir-og-tomstundir-sem-forvorn-og-endurhaefing/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/grok-image-dd4c2e70-d202-4ba3-a4ef-bfa1deb109ed.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260128T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260128T190000
DTSTAMP:20260112T144740Z
CREATED:20251218T100225Z
LAST-MODIFIED:20260112T144740Z
UID:10001254-1769621400-1769626800@hannesarholt.is
SUMMARY:Drengir á jaðrinum - Heimili Heimsmarkmiðanna
DESCRIPTION:Sífellt fleiri drengir standa frammi fyrir kröfum sem þeim reynist erfitt að uppfylla. Margir finna sig jaðarsetta\, ráðalausa eða án skýrra fyrirmynda. Á sama tíma hafa þeir greiðan aðgang að netheimum og nærsamfélagi sem geta boðið upp á ranghugmyndir\, skaðlegt efni og einföld svör við flóknum spurningum.\nHver er staða drengja í samfélaginu í dag? Hvað veldur því að sumir dragast inn í hættuleg hugmyndakerfi og hvernig getum við sem samfélag brugðist við? Á fundinum verður fjallað um áskoranir drengja\, áhrif umhverfis og netsins\, og leiðir til að styðja við heilbrigðan þroska\, gagnrýna hugsun og jákvæða þátttöku í samfélaginu.\nViðmælendur og fundarstjóri verða auglýstir þegar nær dregur.\nFundurinn er opin öllum og streymt verður af fundinum á netinu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/drengir-a-jadrinum-heimili-heimsmarkmidanna/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/12/drengirajadrinum.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260114T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260114T190000
DTSTAMP:20260108T103158Z
CREATED:20251218T093943Z
LAST-MODIFIED:20260108T103158Z
UID:10001253-1768411800-1768417200@hannesarholt.is
SUMMARY:Netsvik\, falsfréttir\, rangupplýsingar og gervigreind - Hvað er raunverulegt?
DESCRIPTION:Heimili Heimsmarkmiðanna býður öllum áhugasömum\, einkum og sér í lagi eldri borgurum að mæta á opin umræðufund í Hannesarholti. Rætt verður um vaxandi upplýsingaóreiðu í samfélaginu. \nÍ dag er sífellt erfiðara að greina á milli hvað er satt og hvað er logið. Samfélagsmiðlar eru mettaðir af sannfærandi ósannindum\, á meðan raunverulegar fréttir geta virst ótrúlegar\, þótt þær séu sannar. Í heimi þar sem mörkin milli sannleika og skáldskapar verða sífellt óskýrari vakna brýnar spurningar: Hvernig bregðumst við við gervigreind\, falsfréttum\, rangupplýsingum og netsvikum? Og hvernig endurheimtum og styrkjum við fjölmiðlalæsi á nýjum tímum? \nTil okkar í Hannesarholt mæta sérfræðingar með mikla þekkingu á efninu: Haukur Brynjarsson\, sérfræðingur hjá Netvís – Netöryggismiðstöð Íslands\, Jón Gunnar Ólafsson\, lektor við HÍ og Sigríður Dögg\, formaður Blaðamannafélags Íslands\, Lilja Dögg Jónsdóttir\, framkvæmdastjóri Almannaróms stýrir fundinum. \nFundurinn er gjaldfrjáls og verður einnig sendur út í streymi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/15852/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/12/upplysingaoreidalogo.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250514T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250514T190000
DTSTAMP:20250507T151126Z
CREATED:20250430T103704Z
LAST-MODIFIED:20250507T151126Z
UID:10001163-1747243800-1747249200@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimil Heimsmarkmiðanna: Skólamenning
DESCRIPTION:Heimili Heimsmarkmiðanna: Skólamenning\n\nFjórða heimsmarkmiðið lýtur að menntun og leggur áherslu á að menntun sé öllum aðgengileg. Við beinum sjónum að fyrirbæri sem kallast skólamenning\, skólaandi – eða á ensku school climate. Eitt er að hafa aðgang að menntun\, annað að geta nýtt sér hana. Til að geta náð árangri í námi þarf nemendum að líða vel og þeir að upplifa sig örugg og virt. Við viljum skoða hvað einkennir nærandi skólamenningu\, hvað er hægt að gera til að rækta upp góða skólamenningu og hvaða áskoranir fólk sér í íslensku skólalífi um þessar mundir í þessu efni.\n\nMeðal viðmælenda á þessum ellefta umræðufundi Heimilis Heimsmarkmiðanna eru Anna María Gunnarsdóttir\, aðstoðarskólameistari í FG\, Hjörvaar Ingi Haraldsson\, kennari í FB og Berglind Helga Sigurþórsdóttir\, námsráðgjafi í Versló. Ragnheiður Jóna Jónsdóttir stýrir fundinum.\n\nGestir eru velkomnir í Hannesarholt til að taka þátt í samræðum. Streymt verður frá fundnum og áheyrendum býðst að senda inn fyrirspurnir til hópsins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimil-heimsmarkmidanna-skolaandi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/04/7-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250312T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250312T190000
DTSTAMP:20250303T102853Z
CREATED:20250226T114332Z
LAST-MODIFIED:20250303T102853Z
UID:10001131-1741800600-1741806000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Sjálfbærar Samgöngur
DESCRIPTION:Samgöngur eru ein af undirstöðum heilbrigðs samfélags. Þær tryggja öruggan flutning varnings og fólks á milli staða. Þær gera okkur kleift að sækja vinnu\, menntun og afþreyingu. Við verjum stórum hluta ævinnar á ferðinni. Við eyðum mörgum klukkutímum í flugi\, langkeyrslu og í Ártúnsbrekkunni. Eldsneytið er dýrt og svifrykið er að drepa okkur. Sjálfbærar samgöngur ættu að bæta lýðheilsu\, stytta ferðatíma og kosta minna.\nEn hvað eru sjálfbærar samgöngur? Eru það rafmagnsbílar og borgarlína? Hjólreiðar og rafhlaupahjól? Hvernig verða samgöngur á Íslandi sjálfbærar?\nÁ þessum umræðufundi Heimilis Heimsmarkmiðanna í Hannesarholti munum við ræða þessi mál og velta fyrir okkur hvað sjálfbærar samgöngur fela í sér.\nÞorgerður María Þorbjarnardóttir\, formaður Landverndar\, mun stýra fundinum og sérfræðingar á pallborðinu verða: Ásdís Hlökk Theódórsdóttir\, skipulagsfræðingur og aðjúnkt við Háskóla Íslands\, Búi Bjarmar Aðalsteinsson\, frumkvöðull\, hönnuður\, stjórnandi Hjólavarpsins og ástríðufullur hjólari & Runólfur Ólafsson formaður FÍB.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-sjalfbaerar-samgongur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/samgongur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241030T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241030T190000
DTSTAMP:20250206T123531Z
CREATED:20240919T114202Z
LAST-MODIFIED:20250206T123531Z
UID:10001026-1730309400-1730314800@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Gagnkvæm aðlögun\, inngilding flóttafjölskyldna að íslensku samfélagi
DESCRIPTION:Fjölskyldur á flótta undan stríði\, hungursneyð og öðrum hörmungum koma til Íslands í leit að betra lífi fyrir börnin sín og sig. En hvernig gengur þeim að verða fullgildir meðlimir í íslensku samfélagi? Hvernig bregst samfélagið og kerfi samfélagsins við aukinni fjölbreytni\, breyttum þörfum og nýjum áskorunum? \nSamkvæmt nýrri úttekt OECD um inngildingu innflytjenda hefur það mistekist að skapa inngildandi samfélag. Það eru margar augljósar hindranir\, til að mynda tungumálið\, en einnig aðrar sem innfæddir gera sér ekki grein fyrir.  Við ætlum að ræða þessi mikilvægu mál og líta blákalt í spegilinn. \n\n\nSérfræðingar þessa fundar eru:\n\n\nJasmina Vajzović Crnac – sérfræðingur í málefnum fólks af erlendum upprunaNajlaa Attaallah – Arkítekt\, rithöfundur og skáldMagnea Marinósdóttir –  alþjóðastjórnmálafræðingur og sérfræðingur í jafnréttismálum \nGuðrún Hálfdánardóttir\, fréttamaður mun stýra umræðunni
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-gagnkvaem-adlogun-inngilding-flottafjolskyldna-ad-islensku-samfelagi/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/Flottafolk.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241016T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241016T190000
DTSTAMP:20250206T130215Z
CREATED:20240830T123157Z
LAST-MODIFIED:20250206T130215Z
UID:10001019-1729099800-1729105200@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Geðheilsa
DESCRIPTION:Hvernig styðjum við hvert annað? Hvernig hafa náin sambönd og samskipti áhrif á geðheilsu okkar? Mörgum finnst samskiptin í samfélaginu hafa breyst og orðið harðari\, hvaða áhrif hefur það á okkur? Hvers vegna hugsum við ekki um forvarnir við geðsjúkdómum eins og við hugum að annarri líkamlegri heilsu?\n\nÁ þessum fundi Heimilis Heimsmarkmiðanna snúum við okkur að félagslegum markmiðum Heimsmarkmiðanna\, og ræðum um geðheilsu.\n\nSérfræðingateymið kemur úr ólíkum áttum og mun deila vitneskju og reynslu sinni.\n\n\nÓlafur Þór Ævarsson – geðlæknir og stofnandi Streituskólans.\n\nTómas Kristjánsson – sálfræðingur og lektor við HÍ.\n\nFulltrúi frá Geðhjálp\n\nElísabet Kristín Jökulsdóttir – rithöfundur og skáld mun stýra fundinum og leiða umræðuna.\n\nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-gedheilsa/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/gedheilsamynd16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240918T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240918T190000
DTSTAMP:20250206T141059Z
CREATED:20240823T113136Z
LAST-MODIFIED:20250206T141059Z
UID:10001008-1726680600-1726686000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimili Heimsmarkmiðanna: Að klæða sig sjálfbært?
DESCRIPTION:Evrópubúar henda 2 milljónum tonna af vefnaðarvöru á hverju ári. Á hverri sekúndu er sem samsvarar einum ruslabíl með vefnaðarvöru urðað eða brennt. \nMörg okkar gefa óæskileg föt til góðgerðarverslana og fatasöfnunarbanka – en vitum við virkilega hvað verður um þau? \nÁ þessum öðrum fundi Heimili Heimsmarkmiðanna förum við í saumana á fatnaði okkar\, og veltum því fyrir okkur hvernig við getum verið smart og verið með hreina samvisku. \n“There’s no such thing as away. When we throw things away they must go somewhere.“ – Annie Leonard \nSérfræðingar fundarins eru: \nSigríður Ágústa fatahönnuður \nRagna Bjarna fatahönnuður og fagstjóri fatahönnunarbrautar LHÍ \nFreyr Eyjólfsson Verkefnisstjóri Hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu \nFundarstjórn verður í traustum höndum Sirrýar Arnardóttur\, rithöfundar og fjölmiðlamanns \nMiðvikudagur 18. september. Ókeypis aðgangur\, gengið inn frá Skálholtsstíg
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimili-heimsmarkmidanna-ad-klaeda-sig-sjalfbaert/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/AdobeStock_778680206.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240911T173000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240911T190000
DTSTAMP:20250206T142331Z
CREATED:20240822T152835Z
LAST-MODIFIED:20250206T142331Z
UID:10001005-1726075800-1726081200@hannesarholt.is
SUMMARY:1. Fundur Heimilis Heimsmarkmiðanna: Er hægt að vera sjálfbær neytandi?
DESCRIPTION:Á þessum fyrsta fundi Heimilis Heimsmarkmiðanna ætlum við að velta fyrir okkur ábyrgð neytendans\, hvar hún byrjar og hvar hún endar\, eða hvort hún sé yfirhöfuð til staðar. Við leiðum saman sérfræðinga og áheyrendur til að gera okkur grein fyrir helstu erfiðleikunum við að versla og neyta á meðvitað sjálfbæran máta. Við fáum innsýn í neysluvenjur fólks\, skoðum hvort eða hvernig neytendur geta haft jákvæð áhrif með meðvitaðri neyslu og vonumst til að vekja fólk til umhugsunar.\n\nSérfræðingateymið kemur úr ólíkum áttum og mun deila vitneskju og reynslu sinni.\n\nÁróra Árnadóttir er aðjunkt við Háskóla Íslands. Hún hefur rannsakað hvernig viðhorf Norðurlandabúa til hnattrænnar hlýnunar hefur áhrif á kolefnisfótspor þeirra og neysluvenjur.\n\nGuðbjörg Gissurardóttir er frumköðull sem brennur fyrir sjálfbærum lífstíl. Hún hefur unnið að því að hjálpa fólki að finna sjálfbærarari og grænni kosti.\n\nFreyr Eyjólfsson er verkefnisstjóri Hringrásarhagkerfisins hjá Sorpu.\n\nAtli Már Steinarsson\, dagskrárgerðamaður og framleiðandi hjá RÚV mun stýra umræðunni og hvetja til áhugaverðs samtals milli áhorfenda og sérfræðinga.\n\nÞessi opni vettvangur verður haldinn í Hljóðbergi í Hannesarholti og er gestum gjaldfrjáls. Gengið er inn frá Skálholtsstíg.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/1-fundur-heimili-heimsmarkmidanna-er-haegt-ad-vera-sjalfbaer-neytandi/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Heimili Heimsmarkmiðanna
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/AdobeStock_750516287-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR