BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20140101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20200312T200000
DTEND;TZID=UTC:20200312T210000
DTSTAMP:20210115T100804Z
CREATED:20210115T100804Z
LAST-MODIFIED:20210115T100804Z
UID:10000434-1584043200-1584046800@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNLEIKASÖGUSTUND MEÐ HERDÍSI HALLVARÐS OG GÍSLA HELGA
DESCRIPTION:Fimmtudagskvöldið 12.mars verður tónleikasögustund í Hannesarholti með Gísla Helgasyni blokkflautuskáldi úr Vestmannaeyjum og Herdísi Hallvarðsdóttur bassaleikara úr Skaftahlíðinni í Reykjavík. Þau hafa lengi fengist við tónlist\, Herdís spilaði með Grýlulnum\, Karma\, Hálft í hvoru og Islandicu\, og Gísli spilaði með Arnþóri tvíburabróður sínum í mörg ár og var einn upphafsmanna Vísnavina\, hann lék með Islandicu og Hálft í hvoru og fleiri hljómsveitum. Hann hefur komið að gerð fjölmargra hljómplatna og hljómdiska. Auk þess hefur hann verið afkastamikill dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu. \nMeð þeim verður Guðmundur Benediktsson gítarleikari og söngvari\, en hann lék Jesú Krist í uppfærslu á Jesus Christ Superstar í Austurbæjarbíói 1973 og hefur leikið með fjölda hljómsveita\, þ.á.m. Brimkló\, Mánum\, og Islandicu\, en sú hljómsveit ferðaðist víða erlendis og hélt á annað hundrað tónleika í 10 löndum Evrópu. \nHafsteinn Guðfinnsson gítarleikari úr Vestmannaeyjum verður einnig með\, en Hafsteinn er afburða gítarleikari og hefur spilað með ýmsum. Þeir Gísli hafa spilað saman í um tvo áratugi með fleiri peyjum úr Eyjum. Hafsteinn er manna fróðastur um söngmenningu Vestmannaeyinga og er hafsjór af skemmtilegum sögum. Ung söngkona Dagbjört Andrésdóttir mun einnig taka þátt í tónleikunum\, en hún ólst upp í Söngskólanum Domus Vox og stundar nú söngnám í Söngskóla Sigurðar Dementz. \nFlutt verða mörg af lögum þeirra Gísla og Herdísar\, sagðar skemmtisögur og salurinn virkjaður með í fjöldasöng. \nKvöldverður á 1.hæðinni á undan. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikasogustund-med-herdisi-hallvards-og-gisla-helga/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/herdisoggisli.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190404T200000
DTEND;TZID=UTC:20190404T220000
DTSTAMP:20210114T130911Z
CREATED:20210114T130911Z
LAST-MODIFIED:20210114T130911Z
UID:10000721-1554408000-1554415200@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ GUÐRÚNU NORDAL
DESCRIPTION:Hvað verður um íslenska menningu? Fimmtudagskvöldið 4. apríl kl. 20.00 verður kvöldstund í Hannesarholti þar sem Guðrún Nordal fjallar um bók sína SKIPTIDAGA – NESTI HANDA NÝRRI KYNSLÓÐ sem kom út á síðastliðnu hausti. Guðrún fær til sín góða gesti til samræðu um efni bókarinnar\, Sigríði Hagalín rithöfund\, Tatjönu Latinovich formann Innflytjendaráðs og Óttar Proppé verslunarstjóra Bóksölu stúdenta og tónlistarmann. \nKynslóðin sem nú vex úr grasi horfir inn í framtíð sem verður gjörólík okkar samtíma og rof verður jafnvel til milli kynslóðanna. Umbyltingar síðustu ára breyta ekki aðeins samfélagi okkar og umhverfinu\, heldur okkur sjálfum og sambandi okkar hvert við annað og þar með við fortíðina og formæður okkar og forfeður. Samsetning þjóðarinnar breytist líka ört. Hvernig munum við skilgreina okkur sem þjóð? Hvernig verður samfélag okkar\, menning og tunga eftir 30 ár? \nVeitingahúsið í Hannesarholti er opið fyrir kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \nDeila á FacebookSenda tölvupóst
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-gudrunu-nordal/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2019-04-02-at-09.53.08-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20190221T200000
DTEND;TZID=UTC:20190221T213000
DTSTAMP:20210114T123747Z
CREATED:20210114T123747Z
LAST-MODIFIED:20210114T123747Z
UID:10000713-1550779200-1550784600@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ VALDIMARI OG ÖNNU
DESCRIPTION:Kvöldstund í Hannesarholti með Valdimari Sverrissyni ásamt Önnu Valdimarsdóttur móður hans í Hannesarholti fimmtudagskvöldið 21.febrúar\, þar sem bæði gaman og alvara ráða ríkjum. \nValdimar fæddist árið 1967 og ólst upp á Íslandi\, í Noregi og Bandaríkjunum. Eftir stúdentspróf lagði hann stund á ljósmyndanám á Englandi og útskrifaðist sem ljósmyndari frá Bournemouth & Pool College of Art and Design. Eftir heimkomuna til Íslands opnaði Valdimar ljósmyndastofu og tók að sér ýmis ljósmyndunarverkefni auk þess sem hann starfaði hjá prentsmiðjunni Prentmet. \nÞar uppgötvaðist kímnigáfa Valdimars fljótt og var hann í framhaldinu fenginn til að búa til myndbönd til að skemmta starfsfólki á árshátíðum fyrirtækisins. \nÁrið 2015 greindist Valdimar með góðkynja heilaæxli sem var fjarlægt með þeim afleiðingum að hann missti sjónina. Í kjölfarið hefur hann lagt áherslu á að skapa sér nýtt líf meðal annars með uppistandi\, söng og trommuleik. \nValdimar er faðir þriggja dætra á aldrinum 7 – 28 ára. \nAnna Valdimarsdóttir er sjálfstætt starfandi sálfræðingur og rithöfundur. Hún er höfundur hinnar útbreiddu sálfræðibókar Leggðu rækt við sjálfan þig og hefur auk þess gefið út bækurnar Leggðu rækt við ástina\, Hugrækt og hamingja og ljóðabókina Úlfabros. Anna var aðalhöfundur fræðsluþátta um fjölskylduna sem sýndir voru í sjónvarpi af tilefni árs fjölskyldunnar og hún hefur skrifað fjölda greina og haldið fyrirlestra og námskeið bæði hérlendis og erlendis um sjálfsstyrkingu\, sjálfstraust\, ást\, erótík\, hamingjuna\, núvitundina og fleiri sálfræðileg efni. \nAnna var kennslustjóri í námi í hugrænni atferlismeðferð á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands þar sem hún var handleiðari og kennari. Hún er nú formaður Dáleiðslufélags Íslands og var um skeið formaður Lífspekifélags Íslands og fyrsti formaður Alúðar\, félags um núvitund og vakandi athygli. \nAnna á þrjá syni og er Valdimar Sverrisson þeirra elstur. \nKvöldverður í boði í veitingastofunum á 1.hæð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-valdimari-og-onnu/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2019-02-14-at-14.56.50.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181214T200000
DTEND;TZID=UTC:20181214T220000
DTSTAMP:20210114T120153Z
CREATED:20210114T120153Z
LAST-MODIFIED:20210114T120153Z
UID:10000707-1544817600-1544824800@hannesarholt.is
SUMMARY:HÖFUNDAKVÖLD
DESCRIPTION:Nokkrir höfundar stíga á stokk og lesa upp úr nýúkomnum bókum sínum. Veitingastaðurinn opinn\, kvöldverður í boði í veitingastofunum á undan lestrinum. \nÞórunn Jarla Valdimarsdóttir\, Ragnar Helgi Ólafsson\, Eiríkur Guðmundsson\, Hallgrímur Helgason\, Auður Jónsdóttir\, Haukur Ingvarsson\, Vala Hafstað og Halldóra K.Thoroddsen. \nÞórunn Jarla : Skúli fógeti. Faðir Reykjavíkur \nRagnar Helgi Ólafsson : Bókasafn föður míns \nEiríkur Guðmundsson : Ritgerð mín um sársaukann \nHallgrímur Helgason : Sextíu kíló af sólskini \nAuður Jónsdóttir : Þjáningarfrelsið \nHaukur Ingvarsson : Vistarverur \nVala Hafstað : Eldgos í aðsigi / Imminent eruption \nHalldóra Thorodssen : Katrínarsaga \nÞórunn Jarla Valdimarsdóttir les úr bók sinni: Skúli fógeti. Faðir\nReykjavíkur. Skúli varð fyrstur Íslendinga fógeti landsmanna. Hún varpar ljósi á margar hliðar Skúla fógeta í þessarri bók og lýsir um leið samferðafólki hans og samtíð af innlifun. \nRagnar Helgi Ólafsson les úr bók sinni: Bókasafn föður míns\, sem er óvænt blanda af minningabók\, ritgerð\, ævisögj\, brandarabók og þjóðlegum fróðleik.\nÞegar höfundur þarf að ganga frá bókasafni látins föður síns kvikna minningar\, hugleiðingar um bækur\, menninguna\, missi\, fallvelti hluta\, um liðna tíð og framtíðina – en ekki síður um samband föður og sonar og hvað skipti mestu máli í lífinu þegar upp er staðið. \nEiríkur Guðmundsson les úr bók sinni Ritgerð mín um sársaukann.\nBókin er samtímasaga sem gerist í Reykjavík og á afviknum stað á landsbyggðinni. Hún fjallar um spádóm sem féll fyrir mörgum árum og sársaukann sem honum fylgir í lífi fjögurra persóna með sameiginlegan bakgrunn\, samskipti og samtal kynslóða\, farangurinn og leyndardóminn sem fólk fer með út í lífið. \nHallgrímur Helgason les uppúr bók sinni Sextíu kíló af sólskini. Sagan gerist í ímynduðu þorpi á Norðurlandi\, Segulfirði\, fjallar um umbrotatíma í íslenskri sögu og segir frá því þegar nútíminn sigldi til hafnar á Íslandi. \nAuður Jónsdóttir les uppúr bókinni Þjáningarfrelsið – Óreiða hugsjóna og hagsmuna í heimi fjölmiðla\, sem geymir hugleiðingar fimmtíu manns úr heimi blaðamennsku og var gerð af Auði\, Báru Huld Beck og Steinunni Stefánsdóttur. \nHaukur Ingvarsson les úr bók sinni Vistarverur\, þar sem hann yrkir um hinar ýmsu vistarverur innra með manneskjunni\, sem og úti í hinum stóra heimi. Dregnar eru upp myndir sem eru í senn margræðar og skemmtilega óvæntar. \nVala Hafstað les úr tvítyngdri bók sinni Eldgos í aðsigi / Imminent eruption. Vala bjó í Bandaríkjunum í hátt í 30 ár. Bókin er safn minningarbrota sem lýsa á kíminn hátt dvöl hennar þar\, heimkomunni eftir 30 ár og verunni hér á landi. \nHalldóra Thorodssen les úr bók sinni Katrínarsaga. Sagan fjallar um hrun goðsagna og hamskipti tímadraugsins sem hefur okkur á valdi sínu. Hún fjallar um fólk undir álögum tveggja goðsagna.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hofundakvold/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/hofundakvold.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181101T200000
DTEND;TZID=UTC:20181101T200000
DTSTAMP:20210113T162541Z
CREATED:20210113T162541Z
LAST-MODIFIED:20210113T162541Z
UID:10000346-1541102400-1541102400@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ BRYNDÍSI SCHRAM
DESCRIPTION:Bryndís Schram var gestur í Hannesarholti í febrúarmánuði á þessu ári. Það var fullt hús og frábærar undirtektir. Nú hefur Bryndís fallist á að vera aftur gestur okkar þann 1. nóvember n.k.. \nBryndís mun segja sögur af konum og körlum og börnum og burum af ýmsum breiddargráðum\, eins og henni er einni lagið. \nEftir hlé bætist henni liðsauki. Hún og Jón Baldvin munu skipast á um að segja sögur af ævintýraferð með Síberíuhraðlestinni frá Miðríkinu til Moskvu á liðnu sumri. \nMiðaasala fer fram á tix.is og aðgangseyrir er 2.500 kr. \nHægt er að bóka borð fyrir kvöldmat á undan kvöldstundinni í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is. Matseðill hér á heimasíðunni samdægurs.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-bryndisi-schram-2/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/komin-ti-berlinar-2018.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180927T200000
DTEND;TZID=UTC:20180927T220000
DTSTAMP:20210113T152104Z
CREATED:20210113T152104Z
LAST-MODIFIED:20210113T152104Z
UID:10000681-1538078400-1538085600@hannesarholt.is
SUMMARY:KVÖLDSTUND MEÐ ARNARI EGGERTI THORODDSEN
DESCRIPTION:Arnar Eggert Thoroddsen\, aðjúnkt við Háskóla Íslands og helsti dægurtónlistarfræðingur landsins\, heldur tölu um samfélag dægurtónlistarmanna á Íslandi í Hljóðbergi\, Hannesarholti\, byggða á doktorsritgerð hans um efnið. \nÞar leiðir hann í ljós einstaka virkni hins íslenska dægurtónlistarsamfélags\, en ritgerðin byggir á tuga viðtala auk reynslu hans sem tónlistarblaðamanns í hartnær tvo áratugi. \nArnar er með BA gráðu í félagsfræði frá HÍ\, MA frá Edinborgarháskóla og mun verja téða doktorsritgerð þar í haust. Arnar hefur umsjón með fjölmiðlafræðinámi við HÍ á BA stigi og hefur staðið fyrir alls kyns viðburðum tengdum dægurtónlistarfræðum á þeim vettvangi\, og m.a. haldið námskeið við Endurmenntunarstofnun. Hann er höfundur þriggja bóka um dægurtónlist og er að skrifa þá fjórðu\, fyrir erlent forlag. Hann hefur skrifað fjölda blaðagreina um efnið í gegnum tíðina\, setið í fjölmörgum nefndum\, hérlendis sem erlendis\, og er reglulegur álitsgjafi í útvarpi og sjónvarpi um allt sem viðkemur dægurtónlist.\nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar öll fimmtudagskvöld og býðst gestum að bóka borð í kvöldmat á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-arnari-eggerti-thoroddsen/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/arnareggert.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180825T170000
DTEND;TZID=UTC:20180825T180000
DTSTAMP:20210113T140755Z
CREATED:20210113T140755Z
LAST-MODIFIED:20210113T140755Z
UID:10000333-1535216400-1535220000@hannesarholt.is
SUMMARY:Á TRÚNÓ MEÐ KRISTBORGU BÓEL
DESCRIPTION:Tímamót í lífinu fá okkur gjarnan til að breyta um takt\, taka upp nýja siði og endurskoða lífsgöngu okkar. Kristborg Bóel Steindórsdóttir stendur á slíkum stað um þessar mundir\, þar sem hún gaf nýverið út sína fyrstu bók Tvöhundruð sextíu og einn dagur. Bókina skrifaði hún á leið sinni til andlegrar og félagslegrar heilsu eftir hremmningar í einkalífi\, skilnað og niðurbrot. Margir hafa orðið til þess að þakka Kristborgu Bóel opninberlega fyrir að opna umræðuna um erfiðleikana sem sem fólk upplifir í tengslum við skilnað. \nKristborg Bóel verður gestur Hannesarholts laugardaginn 25.ágúst kl.17:00\, þar sem hún deilir með gestum hugrenningum sínum á þessum tímamótum. Kristborg Bóel les uppúr bók sinni\, segir frá ferðalaginu til betri heilsu og horfir til framtíðar. Umræður og fyrirspurnir velkomnar. \nSætaframboð er takmarkað\, þannig að vissara er að trggja sér miða fyrirfram. Aðgangseyrir er 2000 krónur og er miðasala á tix.is \nTilboð á kvöldverði í veitingastofum Hannesarholts fyrir gesti Kristborgar. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-truno-med-kristborgu-boel/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum,Kvöldstund með listamanni
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/kristborgboelgul-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180517T200000
DTEND;TZID=UTC:20180517T200000
DTSTAMP:20180517T104550Z
CREATED:20180326T165520Z
LAST-MODIFIED:20180517T104550Z
UID:10000651-1526587200-1526587200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Önnu Sigríði Pálsdóttur og Önnu Sigríði Helgadóttur
DESCRIPTION:Móðirin er yfirskrift kvöldstundar með nöfnunum Önnu Sigríði Pálsdóttur sóknarpresti og Önnu Sigríði Helgadóttur söngkonu. Móðirin í öllum myndum\, í fortíð og nútíð\, María guðsmóðir og mæður okkar allra. \nSéra Anna Sigríður Pálsdóttir fyrrum Dómkirkjuprestur hefur átt farsælan feril sem prestur og ráðgjafi. Hún hefur meðal annars sinnt ráðgjöf til aðstandenda áfengis-og fíkniefnaneytenda\, haldið vinsæl námskeið um meðvirkni og sálgæslu fyrir fólk í sorg og skilnaðarferli. \nAnna Sigríður Helgadóttir söngkona hefur sungið með fjölda kóra og tekið þátt í margskonar tónlistarflutningi\, s.s. einsöngstónleikum\, djasstónleikum\, óperu- og óperettuuppfærslum\, kirkjutónleikum\, gospeltónleikum o.fl.\, á Íslandi\, í Danmörku\, Svíþjóð\, á Ítalíu og í Bandaríkjunum. Árið 2000 söng hún hlutverk Biöncu í uppfærslu Íslensku Óperunnar á óperunni “The rape of Lucretia” eftir Benjamin Britten og árið 2002 söng hún hlutverk Mary í uppfærslu Listahátíðar á óperunni “Hollendingurinn fljúgandi” eftir Richard Wagner.  \nFrá 2001 til 2012 starfaði Anna Sigríður sem tónlistarstjóri við Fríkirkjuna í Reykjavík\, þar sem hún söng við athafnir\, stjórnaði kór og hafði umsjón með tónlistarlífinu í kirkjunni. Hún söng í mörg ár með sönghópnum Hljómeyki og er ein af sönghópnum Emil og Anna Sigga og Bjargræðiskvartettsins. Að auki hefur hún starfað sem söngkona og sungið víða s.s. við kirkjuathafnir\, tónleika og margs konar uppákomur. \nFyrir þá sem vilja mæta snemma er boðið uppá gleðistund (happy-hour) í veitingastofunum frá 17-19\, lifandi tónlist með Pálmari Ólasyni frá 18.30-20 og matseðil kvöldsins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-onnu-sigridi-palsdottur-og-onnu-sigridi-helgadottur/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/ÖnnuSiggur.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180503T200000
DTEND;TZID=UTC:20180503T200000
DTSTAMP:20180430T125224Z
CREATED:20180325T101359Z
LAST-MODIFIED:20180430T125224Z
UID:10000646-1525377600-1525377600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Viðari Víkingssyni
DESCRIPTION:Viðar Víkingsson kvikmyndahöfundur ræðir um formsköpuði í kvikmyndalist\, Hitchcock\, Bresson\, Ozu\, Lang og marga fleiri og sýnir dæmi úr merkum kvikmyndum. Þær eru allt frá tímum þöglu kvikmyndanna til okkar daga. Viðar mun leitast við að sýna hvernig heimssýn þessarra höfunda skilaði sér í því sem kvikmyndalistin ein fær tjáð. \nViðar er sjálfstætt starfandi. Viðar lauk námi í kvikmyndaleikstjórn frá  IDHEC\,  kvikmyndaskóla franska ríkisins. Hann hefur gert fjölda sjónvarpsmynda\, bæði leikinna sem og heimildarmynda. \nEins og aðra fimmtudaga er veitingastaðurinn í Hannesarholti opinn fram á kvöld og getur fólk pantað sér kvöldmat á undan kvöldstundinni. Gleðistund (happy hour) kl. 17-19\, lifandi tónlist kl.18.30-20. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-vidari-vikingssyni/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/ViðarVíkingsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180426T200000
DTEND;TZID=UTC:20180426T200000
DTSTAMP:20180425T154725Z
CREATED:20180326T164802Z
LAST-MODIFIED:20180425T154725Z
UID:10000650-1524772800-1524772800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Kristínu Eiríks og Gunnari Þorra
DESCRIPTION:Kvöldstund með Kristínu Eiríks\, sem deilir með gestum hugsunum sínum og draumum\, segir frá áhrifavöldum og leiðinni sem leiddi til rithöfundaferils. Gunnar Þorri Pétursson\, bókmenntafræðingur og þýðandi\, stjórnar umræðum. \nFyrsta ljóðabók Kristínar\, Kjötbærinn\, kom út árið 2004. Áður höfðu ljóð hennar birst í tímaritum og dagblöðum. Á eftir fylgdu svo ljóðabækurnar Húðlit Auðnin árið 2006 og Annarskonar sæla árið 2008. Árið 2010 kom út smásagnasafnið Doris deyr og haustið 2012 sendi hún frá sér sína fyrstu skáldsögu\, Hvítfeld – fjölskyldusaga. Hún hefur einnig samið leikrit\, þar á meðal Karma fyrir fugla ásamt Kari Ósk Grétudóttur\, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu árið 2013 og Hystory sem sett var upp í Borgarleikhúsinu árið 2015. \nSögur hennar og ljóð hafa verið þýdd yfir á dönsku\, þýsku og ensku. Kristín hlaut Bókmenntaverðlaun starfsfólks bókaverslana fyrir ljóðabókina KOK árið 2014\, og Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna og Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir skáldsöguna Elín\, ýmislegt sem kom út árið 2017.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-kristinu-eiriks/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/KristínEiríks.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180313T200000
DTEND;TZID=UTC:20180313T200000
DTSTAMP:20180309T100508Z
CREATED:20180307T103532Z
LAST-MODIFIED:20180309T100508Z
UID:10000296-1520971200-1520971200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvennalistinn - 35 árum síðar
DESCRIPTION:Á þessum degi fyrir 35 árum síðan var stofnaður Kvennalisti í Reykjavík sem bauð fram til alþingis 1983. Það er við hæfi að fagna því sem vel er gert og Kvennalistinn breytti Íslandssögunni til frambúðar. Við viljum fagna því í Hannesarholti þriðjudagskvöldið 13.mars kl.20. \nSýnt verður úr heimildamyndinni „Hvað er svona merkilegt við það?“ \n„Kvennalistabörn segja frá“ og Margrét Rún Guðmundsdóttir Kvennalistakona kemur frá Þýskalandi og segir frá kvennabaráttunni þar í landi. \nLoks verða umræður og Kvennalistakonur sitja fyrir svörum. \nInnifalið í miðaverði er uppáhellt kaffi og te. Takmarkaður sætafjöldi og því er mikilvægt að kaupa miða fyrirfram.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvennalistinn-35-arum-sidar-2/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/03/Kvennalistinn.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180308T200000
DTEND;TZID=UTC:20180308T200000
DTSTAMP:20180308T182025Z
CREATED:20180211T231437Z
LAST-MODIFIED:20180308T182025Z
UID:10000636-1520539200-1520539200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Halldóru Björnsdóttur
DESCRIPTION:Kvöldstund í samvinnu Göngum saman og Hannesarholts með Halldóru Björnsdóttur\, íþróttafræðingi\, framhaldsskólakennara og framkvæmdastjóra Beinverndar. Halldóra hefur haft umsjón með morgunleikfimi í útvarpinu í 30 ár og er einlægur áhugamaður um útivist og hreyfingu. Halldóra er dæmi um manneskju sem lifir fræðin í öllu lífi sínu og starfi og deilir með gestum leiðum til að efla heilbrigði beina sinna og almennt heilbrigði. \nHalldóra gefur vinnu sína við kvöldstundina og rennur aðgangseyririnn til Göngum saman og Hannesarholts.\n\nVeitingastofurnar eru opnar til kl.22 alla fimmtudaga. Gleðistund (happy hour) frá 17-19\, lifandi tónlist frá 18.30-20 í boði Pálmars Ólasonar\, eldhúsið opið til kl.21.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-halldoru-bjornsdottur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/02/Halldóra-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180301T200000
DTEND;TZID=UTC:20180301T200000
DTSTAMP:20180211T133724Z
CREATED:20180119T125613Z
LAST-MODIFIED:20180211T133724Z
UID:10000272-1519934400-1519934400@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur og Valgeiri Guðjónssyni
DESCRIPTION:Ásta Kristrún deilir með gestum sögum af formæðrum sínum sem lengi hafa búið með henni. Sögurnar hafa nú brotið sér leið til bókarinnar Það sem dvelur í þögninni sem er nýlega komin út. Hjá Valgeiri urðu sögurnar að söngvum og textum sem hann leikur fyrir gesti. Kvöldstundin mun því einkennast af sögum\, söngvum og samveru eins og þeim hjónum í Bakkastofu er lagið. \nVeitingastofurnar í Hannesarholti eru opnar þetta kvöld til kl.22. Í boði er að panta léttan kvöldverð á undan kvöldstundinni í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-astu-kristrunu-ragnarsdottur-og-valgeiri-gudjonssyni/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/Screen-Shot-2018-01-22-at-12.58.51.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180201T200000
DTEND;TZID=UTC:20180201T200000
DTSTAMP:20180126T175355Z
CREATED:20180117T151821Z
LAST-MODIFIED:20180126T175355Z
UID:10000621-1517515200-1517515200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Bryndísi Schram
DESCRIPTION:Að þessu sinni verður Bryndís Schram gestur okkar. Við könnumst öll við hana frá ýmsum æviskeiðum: ballerína\, fegurðardrottning og leikkona\, kennari\, skólameistari og sjónvarpsstjarna\, tungumálanörd\, rithöfundur og þýðandi (og eiginkona umdeilds stjórnmálamanns). \nEn hver er hún sjálf? \nBryndís býður gestum til stofu og lítur yfir farinn veg\, eins og henni er einni lagið. Bryndís gefur Hannesarholti vinnu sína. Hún býður uppá vínglas í hléi. \nOpið í veitingastofunum á undan\, gleðistund (happy hour) frá 17-19\, lifandi tónlist frá 18.30-20\, Pálmar Ólason á píanóinu. Borðapantanir fyrir kvöldverð í síma 511-1904 og á hannesarholt@hannesarholt.is \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-bryndisi-schram/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/01/Bryndís2-3.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171214T200000
DTEND;TZID=UTC:20171214T200000
DTSTAMP:20171123T162714Z
CREATED:20171102T133421Z
LAST-MODIFIED:20171123T162714Z
UID:10000251-1513281600-1513281600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Hjálmari Jónssyni
DESCRIPTION:Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur og fyrrum alþingismaður deilir með gestum innsýn og minningum frá viðburðaríkri ævi þar sem gaman og alvara eiga samleið í Hljóðbergi Hannesarholts kl.20.00\, fimmtudagskvöldið 14. desember. Hjálmar hefur komið víða við en auk starfa sem dómkirkjuprestur og sem alþingismaður hefur Hjálmar verið ötult skáld. Hann hefur ort ljóð og sálma sem birst hafa í Sálmabókarviðbæti og samið smásögur og greinar um ýmis efni. \n\nJólaplatti Hannesarholts verður borinn fram fyrir viðburðinn á 1.hæðinni frá kl.18.30 fyrir þá sem það vilja. Við píanóið verður Pálmar Ólason. Borðapantanir í síma 511-1904\, á hannesarholt@hannesarholt.is og á Facebook.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-hjalmari-jonssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/Hjálmar-Jónsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171129T200000
DTEND;TZID=UTC:20171129T200000
DTSTAMP:20171126T225436Z
CREATED:20170905T170145Z
LAST-MODIFIED:20171126T225436Z
UID:10000582-1511985600-1511985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldvaka - Tungu mál
DESCRIPTION:Iðunn\, Ingólfur\, Kristín og Stefán börn Öddu og Steins í Tungu\, Seyðisfirði bjóða til kvöldvöku miðvikudaginn 29.nóvember kl.20.00 \nSystkinin úr Tungu hafa sýslað margt um dagana. Á ferilskrá þeirra gefur að líta blöndu af hinu og þessu í ýmsum hlutföllum. Hér skulu nefnd nokkur dæmi: Ritstjórn\, þýðingar\, tónlist samin og flutt\, bókaskrif fyrir alla aldurshópa\, bæði ljóð og laust mál\, ýmsar lækningar og síldarsöltun\, beitning og önnur fiskvinnsla\, leiðsögn\, dægurlagatextagerð\, kennsla á öllum aldursstigum\, talsíma- og sendilsstörf\, sýnataka og efnagreining\, verksmiðjuvinna á Mývetningaslóð og Katanesi\, bæjarvinna og afgreiðslustörf í gamla kaupfélaginu heima\, grafið fyrir sjónvarpsstreng\, gamalmenna gætt í Danaveldi\, skrifstofustörf.  \nOg hver er nú hver? \n  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldvaka-tungu-mal/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum,Kvöldvaka
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/tunga1961.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171125T200000
DTEND;TZID=UTC:20171125T200000
DTSTAMP:20171101T153144Z
CREATED:20171101T142935Z
LAST-MODIFIED:20171101T153144Z
UID:10000600-1511640000-1511640000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Pálma Gunnarssyni endurtekin
DESCRIPTION:Uppselt var á kvöldstundina fyrr í vikunni með Pálma Gunnarssyni söngvara og bassaleikara og Þóri Úlfarssyni píanóleikara og upptökustjóra en þeir félagar hafa unnið ófá verkefnin saman á liðnum áratugum. Því er leikurinn endurtekinn laugardagskvöldið 25.nóvember. Veitingastofurnar eru opnar og það er tilvalið að fá sér kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-palma-gunnarssyni-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/PG-Miklatún-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171123T200000
DTEND;TZID=UTC:20171123T200000
DTSTAMP:20171120T182459Z
CREATED:20170914T150941Z
LAST-MODIFIED:20171120T182459Z
UID:10000234-1511467200-1511467200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Pálma Gunnarssyni
DESCRIPTION:Pálmi Gunnarsson söngvari og bassaleikari mætir til okkar í Hannesarholt fimmtudagskvöldið 23. nóvember ásamt Þóri Úlfarssyni píanóleikara og upptökustjóra en þeir félagar hafa unnið ófá verkefnin saman á liðnum áratugum. Veitingastofurnar eru opnar og það er tilvalið að fá sér kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-palma-gunnarssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/PG-Miklatún-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170516T200000
DTEND;TZID=UTC:20170516T200000
DTSTAMP:20170504T114441Z
CREATED:20170307T230239Z
LAST-MODIFIED:20170504T114441Z
UID:10000554-1494964800-1494964800@hannesarholt.is
SUMMARY:Bókmenntir til bjargar
DESCRIPTION:Ragnheiður Jóna Jónsdóttir bókmenntafræðingur og enskukennari segir frá áhugaverðum námsleiðum sem nýta bókmenntir til að vinna gegn fordómum Ragnheiður vísar í doktorsritgerð sína „Learning How to Teach „Other People’s Children““ sem hún varði við Wisconsinháskóla í Madison\, WI í Bandaríkjunum í maí 2003. \nLéttur kvöldverður á sanngjörnu verði í boði í veitingastofum Hannesarholt frá 18.30. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntir-til-bjargar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/IMG_3891-5-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170301T200000
DTEND;TZID=UTC:20170301T200000
DTSTAMP:20170222T103428Z
CREATED:20170116T231437Z
LAST-MODIFIED:20170222T103428Z
UID:10000540-1488398400-1488398400@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Þórunni Björnsdóttur
DESCRIPTION:Þórunn Björnsdóttir hefur frá unglingsárum starfað að tónlistaruppeldi þúsunda barna og unglinga í Kópavogi og víðar\, og kunna henni margir þökk fyrir. Á síðastliðnu ári lauk hún Meistaraprófi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst\, þar sem hún gerði skil hugsjónaverkefni í Kópavogi sem nefndist Tónlist fyrir alla. Gestum Hannesarholts býðst að taka lagið með Tótu\, eins og hún er jafnan kölluð og heyra hvað hún hefur að segja um lífið\, tilveruna og tónlistina.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-thorunni-bjornsdottur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/tótabjorns-e1484607963932-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170130T200000
DTEND;TZID=UTC:20170130T200000
DTSTAMP:20170129T143422Z
CREATED:20170116T221731Z
LAST-MODIFIED:20170129T143422Z
UID:10000539-1485806400-1485806400@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Herdísi Egilsdóttur
DESCRIPTION:Herdís Egilsdóttir kennari og rithöfundur kenndi við Skóla Ísaks Jónssonar í 45 ár. Hún hefur skrifað fjölda barnabóka\, skrifað leikrit fyrir börn\, samið ljóð og lög\, smíðað húsgögn\, saumað fatnað fyrir sjálfa sig og aðra\, unnið skartgripi\, töskur og fleira úr fiskiroði og svona mætti lengi telja. Viðhorf hennar til barna\, kennslu og lífsins hafa vakið athygli víða. Herdís er 82 ára gömul\, í fullu fjöri og ætlar að deila með þeim sem hafa áhuga kvöldstund þar sem hún mun grípa niður í þætti úr reynslubankanum sem gætu orðið okkur hinum til gagns og ekki síður gamans.\n\n\n\nHerdís Egilsdóttir er m.a. skapari sögunnar um Siggu og skessinu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-herdisi-egilsdottur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/01/HE-mynd-a-facebook-a-2016.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161207T200000
DTEND;TZID=UTC:20161207T200000
DTSTAMP:20161206T232647Z
CREATED:20161117T153234Z
LAST-MODIFIED:20161206T232647Z
UID:10000526-1481140800-1481140800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Sigríði Snævarr
DESCRIPTION:Kvöldstund með Sigríði Ásdísi Snævarr. Sigríður varð fyrst íslenskra kvenna til að vera skipuð sendiherra. Var það árið 1991 á miklum umbrotatímum. Hún hefur starfað víða um heim sem diplómat síðan 1978\, hóf starfsferilinn  í Sovétríkjunum og var síðast erlendis sem sendiherra í París. Hún er enn í utanríkisþjónustunni og vinnur með diplómötum framtíðarinnar. \n\n\nVeitingastofur opna kl. 18 fyrir þá sem vilja gera sér dagamun og taka kvöldið snemma. Í boði er Jólaplatti Hannesarholts með hefðbundum jólaréttum en einnig spennandi Vegan jólaplatti. Verð 4.900 kr. Athugið að nauðsynlegt er að panta borð í síðasta lagi fyrir hádegi samdægurs á hannesarholt@hannesarholt.is eða í síma 511 1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-sigridi-snaevarr/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/SÁS-og-Mandela.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161114T200000
DTEND;TZID=UTC:20161114T200000
DTSTAMP:20161105T181821Z
CREATED:20160911T215822Z
LAST-MODIFIED:20161105T181821Z
UID:10000505-1479153600-1479153600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Lenku og Peter Máté
DESCRIPTION:Lenka og Peter Máté eru tónlistarhjón sem fluttu frá Tékkóslóvakíu til Íslands fyrir 26 árum. Lenka starfar sem kantor við Kópavogskirkju en Peter er fagstjóri við tónlistardeild Listaháskóla Íslands og píanókennari við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þau hafa bæði tekið drjúgan þátt í tónlistarlífinu á Íslandi síðustu áratugi. \nÞau segja frá lífinu á bak við Járntjaldið og breytingum eftir byltinguna í Austur Evrópu\, frá gömlum siðum á heimaslóðum og nýju lífi á Íslandi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-lenku-og-peter-mate/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/Peter-og-Lenka-Máté.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160511T200000
DTEND;TZID=UTC:20160511T200000
DTSTAMP:20160511T111357Z
CREATED:20160408T205702Z
LAST-MODIFIED:20160511T111357Z
UID:10000142-1462996800-1462996800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Árna Björnssyni
DESCRIPTION:Árni Björnsson þjóðháttafræðingur tekur fyrir ýmsar algengar túristaklisjur eins og álfa\, víkinga og ritun fornsagna í erindi sem hann nefnir ‘Mis-sagnir um Ísland.’ \nVeitingastofurnar eru opnar frá kl.18.30 og hægt er að fá léttan kvöldverð á undan kvöldstundinni. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-arna-bjornssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/04/Árni-á-rauðri-skyrtu-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160503T200000
DTEND;TZID=UTC:20160503T200000
DTSTAMP:20160501T162814Z
CREATED:20160211T190058Z
LAST-MODIFIED:20160501T162814Z
UID:10000459-1462305600-1462305600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Jörmundi Inga Hansen
DESCRIPTION:Jörmundur Ingi segir missannar sögur af formæðrum sínum þeim Geirlaugu Filippusdóttur\, Þórunni Gísladóttur (Grasa-Þórunni) og Þórunni eldri. \nAllar voru þær vel að sér í grasafræðum og stunduðu graslækningar. \nHúsið opnar klukkan 18.30 fyrir gesti sem vilja gæða sér á léttum kvöldverði áður en spjallið hefst. Athugið að panta þarf borð með því að hringja í síma 511-1904 eða senda tölvupóst á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-jormundi-inga-hansen/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/02/JörmundurIngi-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160419T200000
DTEND;TZID=UTC:20160419T200000
DTSTAMP:20160414T114606Z
CREATED:20160130T011127Z
LAST-MODIFIED:20160414T114606Z
UID:10000135-1461096000-1461096000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Halldóri Haralds og Jónasi Sen
DESCRIPTION:Halldór Haralds og Jónas Sen spjalla við gesti um lífið og listina\, leika stutt píanóverk og sýna m.a. kafla úr sjónvarpsþættinum „Tíu fingur.“ Jónas les úr væntanlegri bók um ævi Halldórs\, kafla sem fjallar um æskuna og táningsárin\, þar sem húmorinn ræður ríkjum.\n\n\nHúsið opnar klukkan 18.30 fyrir gesti sem vilja gæða sér á léttum kvöldverði áður en spjallið hefst. Athugið að panta þarf borð með því að hringja í síma 511-1904 eða senda tölvupóst á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-halldori-haralds-og-jonasi-sen/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/IMG_7803-e1458060133302-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160404T200000
DTEND;TZID=UTC:20160404T200000
DTSTAMP:20160329T140019Z
CREATED:20160203T230703Z
LAST-MODIFIED:20160329T140019Z
UID:10000139-1459800000-1459800000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Gísla Víkingssyni
DESCRIPTION:Gísli Víkingsson hefur starfað við hvalarannsóknir síðan 1986 og átti því nýlega 30 ára starfsafmæli í faginu. \nHann mun í erindu sínu skauta létt yfir rannsóknarferilinn\, m.a. út frá nýlegri doktorsritgerð sinni\, en auk þess skoða fyrirbærið hvali frá ýmsum sjónarhornum með aðstoð gesta. \nGestum gefst kostur á að gæða sér á léttum kvöldverði. Bóka þarf borð í síðasta lagi kl. 16.00\, nánari upplýsingar hér.  Súpa og heimabakað brauð verður einnig í boði.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-gisla-vikingssyni/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/02/AF07-TNASS-IMG_9390-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160301T200000
DTEND;TZID=UTC:20160301T200000
DTSTAMP:20160301T140525Z
CREATED:20160301T135348Z
LAST-MODIFIED:20160301T140525Z
UID:10000473-1456862400-1456862400@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Böðvari Guðmundssyni og Silju Aðalsteinsdóttir - endurtekin
DESCRIPTION:Uppselt var í gærkvöldi\, þannig að Böðvar og Silja ræða einnig í kvöld við gesti um lífið og listina. Silja mun fara yfir rithöfundaferil Böðvars\, allt frá fyrstu ljóðabókum hans sem foru rómantískar og þunglyndar\, gegnum róttæka trúbador-tímabilið (Á Íslandi þurfa menn aldrei að kvíða…) og yfir í skáldsögurnar og smásöguna.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvolstund-med-bodvari-gudmundssyni-og-silju-adalsteinsdottir-endurtekin/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/Fil-11-02-2016-11.08.20.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160229T200000
DTEND;TZID=UTC:20160229T200000
DTSTAMP:20160229T183442Z
CREATED:20160129T144004Z
LAST-MODIFIED:20160229T183442Z
UID:10000444-1456776000-1456776000@hannesarholt.is
SUMMARY:UPPSELT Kvöldstund með Böðvari Guðmundssyni og Silju Aðalsteinsdóttur
DESCRIPTION:Böðvar og Silja ræða við gesti um lífið og listina. Silja mun fara yfir rithöfundarferil Böðvars allt frá fyrstu ljóðabókum hans sem voru rómantískar og þunglyndar\, gegnum róttæka trúbadúr-tímabilið (Á Íslandi þurfa menn aldrei að kvíða …) og yfir í skáldsögurnar og smásögurnar. \nVeitingastofurnar eru opnar frá kl. 18.30 fyrir þá sem vilja gæða sér á dýrindis menningarplatta áður en dagskrá hefst. Bóka þarf borð í matinn í síðasta lagi kl. 16.00 daginn fyrir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-gestum/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/Fil-11-02-2016-11.08.20.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20151118T200000
DTEND;TZID=UTC:20151118T200000
DTSTAMP:20151027T112256Z
CREATED:20150909T183642Z
LAST-MODIFIED:20151027T112256Z
UID:10000387-1447876800-1447876800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með Vilborgu Davíðsdóttur - Ástin\, drekinn og Auður djúpúðga
DESCRIPTION:Ástin\, drekinn og Auður djúpúðga \n\,\,Þykjast menn varla dæmi til vita að einn kvenmaður hafi komist í brott úr þvílíkum ófriði með jafnmiklu fé og föruneyti.“ Þannig farast sögumanni Laxdælu orð um ferð Auðar djúpúðgu frá Skotlandi til Íslands í lok níundu aldar. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og þjóðfræðingur hefur sent frá sér tvær skáldsögur um ævi landnámskonunnar og vinnur nú að þeirri þriðju og síðustu þar sem hún spinnur þráðinn út frá þessum þekktu orðum\, ásamt heimildum um atburði í Skotlandi á sögutímanum. \nVilborg segir gestum Hannesarholts í máli og myndum frá sjálfri sér\, skrifum sínum um Auði og einnig nýjustu bók sinni sem kom út í vor og ber titilinn Ástin\, drekinn og dauðinn. Þar fjallar hún um vegferð sína og manns síns með sjúkdómnum sem þau vissu að myndi draga hann til dauða og deilir með lesendum því sem sorgin hefur kennt henni: mikilvægi þess að lifa til fulls\, í núinu\, í sátt og viðtekt og vanda sig við að elska\, lifa og deyja. Bókin hefur hlotið afar góðar viðtökur og einróma lof lesenda. \nBoðið er uppá léttan kvöldverð á undan í veitingastofunum á 1.hæð\, menningarplatta á 2.900 kr frá kl.18.30. Borðapantanir í síma 511-1904. \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-vilborgu-davidsdottur-astin-drekinn-og-audur-djupudga/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með gestum
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/02/Vilborg_feb.2015-e1424802674808.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR