BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.5//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170403T200000
DTEND;TZID=UTC:20170403T200000
DTSTAMP:20170330T230923Z
CREATED:20170305T151239Z
LAST-MODIFIED:20170330T230923Z
UID:10000210-1491249600-1491249600@hannesarholt.is
SUMMARY:Leiklistarspjall - Sveinn Einarsson
DESCRIPTION:Sveinn Einarsson hefur verið í fremstu röð íslenskra leikhúsmanna í hálfa öld\, þó að hann hafi kannski haft hægar um sig hin síðari ár nema í skriftum. Hann er leikstjóri\, leikhúsfræðingur og hefur verið leikhússtjóri beggja stóru leikhúsanna svo og leitt  innlenda dagskrárgerð Sjónvarps\, auk ýmissa annarra starfa. Sveinn hefur gengt margvíslegum trúnaðarstörfum í menningar-og listageiranum jafnt á innlendum vettvangi sem erlendum og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir leikstjórn.\n\nFrá Sveini hafa komið fimmtán bækur\, flestar um leiklistarmál. Í þeirri nýjustu\, Íslensk leiklist III\, sem hann segir frá í Hannesarholti\, er fjallað um íslenska leiklist á árunum 1920-1960\, þar á meðal frá opnun Þjóðleikhússins\, deilum á þriðja áratugnum og glæsilegu tímabili í sögu Leikfélags Reykjavíkur og munu margar þær sýningar sem sagt er frá vera hinum eldri í fersku minni. Þá segir frá blómlegu starfi áhugamanna\, þar sem margt fróðlegt hefur nýlega verið grafið fram\, meðal annars hvílíkur fjöldi leikrita hefur verið saminn á Íslandi og hvílík aðsókn hefur löngum verið að leiksýningum á Íslandi þannig að slíks eru fá dæmi í Evrópu.\nLéttur kvöldverður í veitingastofunum á sanngjörnu verði frá kl.18.30\, borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leiklistarspjall-sveinn-einarsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókaspjall,Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/Sveinn_Einarsson-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160626T180000
DTEND;TZID=UTC:20160626T180000
DTSTAMP:20160620T222629Z
CREATED:20160620T212213Z
LAST-MODIFIED:20160620T222629Z
UID:10000484-1466964000-1466964000@hannesarholt.is
SUMMARY:Arngunnur Ýr - opnun og listaspjall
DESCRIPTION:Draumalandið nefnist málverkasýning Arngunnar Ýrar sem opnar í Hannesarholti sunnudaginn 26.maí kl.17. Í beinu framhaldi af opnuninni verður listaspjall\, þar sem frænkur og systur deila með gestum sýn á listina\, lífið og vináttuna. Arngunnur Ýr listmálari\, Bryndís Halla sellóleikari\, Áshildur Haraldsdóttir flautuleikari og Yrsa Sigurðardóttir rithöfundur. Allir velkomnir\, enginn aðgangseyrir. \n\n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/arngunnur-yr-opnun-listaspjall/
LOCATION:1.hæð og Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/06/frænkurnar-fjórar-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141021T200000
DTEND;TZID=UTC:20141021T211500
DTSTAMP:20141018T231703Z
CREATED:20140910T132459Z
LAST-MODIFIED:20141018T231703Z
UID:10000218-1413921600-1413926100@hannesarholt.is
SUMMARY:Listaspjall - Eggert Pétursson og Guðni Tómasson
DESCRIPTION:Síðastliðinn vetur bauð Hannesarholt uppá kvöldstundir þar sem skyggnst var á bak við tjöldin í lífi og list starfandi listamanna. Guðni Tómasson fær Eggert Pétursson listmálara í spjall yfir kaffibolla í tilefni af því að nú hangir uppi í Hljóðbergi nýtt verk eftir Eggert\, sem hann vann sérstaklega fyrir Hannesarholt. Verkið er innblásið af ljóðinu Fjalldrapi eftir Hannes Hafstein\, eða öllu heldur í samtali við það ljóð. Reyndar eru myndirnar tvær og er sú minni nokkurs konar fylgihnöttur þeirrar stærri. Eggert hélt skemmtilega ræðu við afhjúpun Fjalldrapans þann 6.september og verður fróðlegt að heyra meira um hugarheim listamannsins og uppsprettu verka hans.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gudni-tomasson-og-eggert-petursson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Fjalldrapi-Will-.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140906T140000
DTEND;TZID=UTC:20140906T143000
DTSTAMP:20140905T000612Z
CREATED:20140905T000605Z
LAST-MODIFIED:20140905T000612Z
UID:10000197-1410012000-1410013800@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjalldrapi Hannesar og Eggerts Péturssonar
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjalldrapi-hannesar-og-eggerts-peturssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Screen-Shot-2014-09-04-at-1.37.47-PM.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140517T140000
DTEND;TZID=UTC:20140517T150000
DTSTAMP:20140423T145121Z
CREATED:20140422T123425Z
LAST-MODIFIED:20140423T145121Z
UID:10000018-1400335200-1400338800@hannesarholt.is
SUMMARY:Leshringur - Stúlka með maga
DESCRIPTION:Lengi hefur verið áhugi fyrir því í Hannesarholti að efna til leshrings\, þar sem fólk kemur saman til að ræða bók sem það hefur lesið. Nú stefnir í fyrsta leshringinn\, og varð bókin Stúlka með maga eftir Þórunni Erlu-og Valdimarsdóttur fyrir valinu. Bókin kom út hjá Forlaginu á síðasta ári og hefur fengið verðskuldaða athygli. Höfundurinn\, Þórunn Erlu-og Valdimarsdóttir og ritstjóri verksins\, Guðrún Sigfúsdóttir verða báðar þátttakendur í leshringnum. Allir eru velkomnir – bæði þeir sem þegar hafa lesið bókina og einnig þeir sem eiga það eftir. \nBókin hlaut Fjöruverðlaunin 2014 í flokki fagurbókmennta og hér má sjá rökstuðning dómnefndar: \n Í þessari skáldættarsögu leiðir Þórunn Erlu- og Valdimarsdóttir lesendur aftur í tímann og segir af ættingjum sínum og fólki sem þeim tengist. Hún skrifar í orðastað móður sinnar\, sem sér lengra en nef hennar nær\, bæði fram í tímann og aftur í aldir. Rödd sögukonunnar er sterk og frumleg\, eins og sagan sjálf\, hæðin þegar það á við\, en líka elsku- og huggunarrík. Það er mikill stráksskapur í textanum og stíllinn er fagur og töfrum slunginn. Höfundurinn fjallar um ætt sína af skilningi og ást þess sem veit að hjörtum mannanna svipar saman. Enginn fer í gegnum lífið án þess að upplifa sitthvað fallegt og gott – og\, eins og segir í Stúlku með maga: „Enginn sleppur við angist og sviða“. Þórunn sýnir að þótt hverri manneskju sé ef til vill afmörkuð stund\, þá geta pappírar úr járnskápum afkomendanna reynst afar notadrjúgir okkur hinum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leshringur-stulka-med-maga/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/ÞórunnVald1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140223T160000
DTEND;TZID=UTC:20140223T170000
DTSTAMP:20140219T170707Z
CREATED:20140210T213658Z
LAST-MODIFIED:20140219T170707Z
UID:10000113-1393171200-1393174800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dagskrá um íslensk kventónskáld
DESCRIPTION:Una Margrét Jónsdóttir\, dagskrárgerðarmaður á Rás eitt\, flytur erindi um íslensk kventónskáld\, sem byggt er á vinsælum útvarpsþáttum hennar um efnið. Meðal tónskálda sem fjallað verður um eru Kirstín Pétursdóttir Guðjohnsen (1850-1940)\, Valgerður L. Briem (1885-1924)\, Elísabet Jónsdóttir (1869-1945)\, Elín Laxdal (1883-1918) og Guðmunda Nielsen (1885-1936). Flutt verða tóndæmi með fyrirlestrinum. \nBorðstofan er opin fyrir og eftir viðburðinn og þar verður á boðstólum eins og vant er bæði sætt og ósætt ljúfmeti.  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dagskra-um-islensk-kventonskald/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Una-Margrét-080923-0181-e1392648105558.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131130T140000
DTEND;TZID=UTC:20131130T170000
DTSTAMP:20131119T170707Z
CREATED:20131112T003657Z
LAST-MODIFIED:20131119T170707Z
UID:10000065-1385820000-1385830800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sól í Togo
DESCRIPTION:Hjálparsamtökin Sól í Tógó halda uppboð á verkum íslenskra myndlistarmanna í Hannesarholti\, 30. nóvember kl. 16. \nMeðal listamanna má nefna Elínu Hansdóttur\, Ólaf Elíasson\, Eggert Pétursson\, Harald Jónsson\, Gjörningaklúbbinn og Ragnar Kjartansson. \nÁgóðinn rennur til byggingar heimilis fyrir munaðarlaus börn í Anehó í Tógó. Til að kynna sér starfið nánar er bent á:https://www.facebook.com/solitogo?fref=ts\nhttp://solitogo.org/\n\nNánar um uppboðið:\nhttp://uppbod.solitogo.org/\n\nOpnun á sýningu verkanna hefst viku fyrir uppboð eða þann 23. nóvember kl. 16.\n\nKaffihúsið í Borðstofunni opið.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sol-i-togo-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Listaspjall
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131113T200000
DTEND;TZID=UTC:20131113T220000
DTSTAMP:20131111T233318Z
CREATED:20131020T220500Z
LAST-MODIFIED:20131111T233318Z
UID:10000055-1384372800-1384380000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með listamanni: Snorri Sigfús Birgisson og Guðni Tómasson
DESCRIPTION:Snorri Sigfús Birgisson\, tónskáld\, verður gestur Hannesarholts miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20:00. Snorri hefur starfað sem tónskáld\, píanóleikari\, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim úr námi árið 1980. Verkalistinn er fjölbreyttur og inniheldur einleiksverk\, kammertónlist\, raftónlist\, kórtónlist og sinfónísk verk. Snorri er félagi í Caput-hópnum og hefur verið áberandi í nýrri íslenskri tónsköpun á undanförnum áratugum auk þess sem hann hefur nýtt íslenskan tónlistararf í tónsmíðum sínum á spennandi hátt. \nSnorri verður gestur Hannesarholts en það er Guðni Tómasson\, listfræðingur og tónlistaráhugamaður\, sem ræðir við Snorra. Tónskáldið segir gestum frá verkum sínum og hugmyndum að baki þeim. Snorri leikur einnig brot úr verkum sínum á flygilinn góða sem stendur í tónleikasal Hannesarholts. \nhttp://notendur.centrum.is/~ssb/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-listamanni-snorri-sigfus-birgisson-og-gudni-tomasson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni,Listaspjall,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/G6PGLE6V-Snorri-Sigfús.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131023T200000
DTEND;TZID=UTC:20131023T213000
DTSTAMP:20131017T205045Z
CREATED:20131016T121506Z
LAST-MODIFIED:20131017T205045Z
UID:10000089-1382558400-1382563800@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með listamanni - Guðrún Kristjánsdóttir myndlistarmaður
DESCRIPTION:Guðrún Kristjánsdóttir\, myndlistarmaður\, verður gestur Hannesarholts miðvikudagskvöldið 23. október kl. 20:00. Guðrún hefur unnið að list sinni í yfir þrjátíu ár og sýnt víða í Evrópu\, Ameríku og í Asíu. Hún hefur með verkum sínum náð að skapa sérstaka sýn á náttúruna sem hún miðlar í málverkum sínum\, prent- og vídeóverkum auk stórra veggmynda og innsetninga. Hún leitast við að höndla hreyfingu og hringrás síkvikrar náttúru\, veðrabrigði\, birtuskil og fasaskipti landsins. Umhleypingar í veðri teikna í landslagið “handrit” sem endurnýjast í sífellu og finna sér stað í verkum Guðrúnar. Í spjalli eina kvöldstund með Guðrúnu í Hannesarholti ræðir Guðni Tómasson\, listsagnfræðingur\, við hana um verk hennar og hugmyndir. Fjallshlíðar og vatn í fjölbreyttum myndum koma við sögu og myndir af verkum verða sýndar um leið og rætt verður um verkin\, hugmyndaheiminn og aðferðir listakonunnar. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gudrun-kristjansdottir-listakona-heimsaekir-gudna-tomasson-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni,Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/GK-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131013T200000
DTEND;TZID=UTC:20131013T220000
DTSTAMP:20131013T121104Z
CREATED:20130920T205400Z
LAST-MODIFIED:20131013T121104Z
UID:10000088-1381694400-1381701600@hannesarholt.is
SUMMARY:Mini forleikur að Carmen
DESCRIPTION:Á góðri stund með Bizet og vinum: \nÍ tilefni af því að nú líður senn að frumsýningu á óperunni Carmen eftir Bizet ætlar Elsa Waage söngkona að fá til sín góða gesti í Hljóðberg. Þau munu ræða um Bizet og tíðarandann sem óperan Carmen spratt upp úr. Meðal gesta verður leikstjórinn Jamie Hayes\, sem stjórnar uppfærslu Íslensku Óperunnar á Carmen. Elsa mun syngja aríur úr Carmen ásamt ungum og upprennandi söngvurum og einnig verða flutt tóndæmi af diskum.Kaffi og meðlæti innifalið í verði\, kr.3000. Miðapantanir á: http://midi.is/leikhus/1/7891\n\nBorðstofan verður opin og býður uppá kvöldverð á undan. Borðapantanir í síma 511-1904\n\n\n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/a-godri-stund-med-bizet-og-vinum-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/carmen_poster.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR