BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.18.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150317T200000
DTEND;TZID=UTC:20150317T220000
DTSTAMP:20150312T114747Z
CREATED:20150216T174902Z
LAST-MODIFIED:20150312T114747Z
UID:10000289-1426622400-1426629600@hannesarholt.is
SUMMARY:Læknisfræðileg páskahugvekja - Arnór Víkingsson gigtarlæknir
DESCRIPTION:Langvinnir verkir\, sársauki\, pína – í kristni fyrri tima og nú á 21. öldinni; miklar framfarir í verkjastillingu með lyfjum en höfum við í raun gengið veginn til góðs?  Eru verkjasjúklingar í dag betur settir en þeir voru á ofanverðum miðöldum?\nArnór leitast við að svara þessum áleitnu spurningum í hugvekju sinni og kallar eftir umræðum úr sal.  \nVeitingastaðurinn á 1.hæðinni opinn frá kl.18 Borðapantanir í síma 511-1904.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/laeknisfraedileg-paskahugvekja-arnor-vikingsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Arnór.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150214T140000
DTEND;TZID=UTC:20150214T160000
DTSTAMP:20150213T131338Z
CREATED:20150126T171951Z
LAST-MODIFIED:20150213T131338Z
UID:10000266-1423922400-1423929600@hannesarholt.is
SUMMARY:Málstofa um líffæragjafir
DESCRIPTION:Í tengslum við sýningu Siggu Heimis hönnuðar og Ella Egilssonar myndlistarmanns sem nú sýna glerlistaverk og teikningar af líffærum í húsakynnum Hannesarholts\, verður haldið hér málþing þar sem rætt verður um gildi líffæragjafa. \nSjónvarpsmaðurinn góðkunni\, Sindri Sindrason stjórnar umræðunum og við fáum í heimsókn bæði líffæraþega og líffæragjafa sem segja frá reynslu sinni. \nVeitingastofur Hannesarholts eru opnar fyrir og eftir málþingið og gestum er frjálst að ganga um húsið og skoða listaverk þeirra Siggu og Ella. \nAllir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Enginn aðgangseyrir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malthing-um-liffaeragjafir-hjarta/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/01/glassorgans5-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150126T200000
DTEND;TZID=UTC:20150126T213000
DTSTAMP:20150123T133608Z
CREATED:20150112T154442Z
LAST-MODIFIED:20150123T133608Z
UID:10000264-1422302400-1422307800@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall
DESCRIPTION:Hugsmíðar: lýðræði\, frelsi og réttlæti \nTilefni málþingsins er útgáfa bókar Vilhjálms Árnasonar\, prófessors í heimspeki\, sem nefnist Hugsmíðar. Í bókinni reifar Vilhjálmur hugmyndir sínar um brýnustu verkefni siðfræði og stjórnmálaheimspeki samtímans þar sem spurningar um einstaklingsfrelsi og félagslegt réttlæti eru í fyrirrúmi. Viðfangsefnin eru sprottin úr íslensku samfélagi og færir höfundur rök fyrir því að við séum langt frá því að tileinka okkur vandaða stjórnsiði. \nÁ málþinginu munu Bryndís Valsdóttir\, Geir Sigurðsson og Þorgeir Tryggvason flytja erindi um efni bókarinnar. Auk þess munu þau leggja spurningar fyrir Vilhjálm um vanda og verkefni íslensks lýðræðis og helstu siðferðilegu úrlausnarefni samtímans. \nHægt verður að kaupa súpu og heimabakað brauð á undan málþinginu í veitingahúsinu á 1.hæð. Borðapantanir í síma 511-1904. Húsið opnar kl.18.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimspekispjall-2/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Heimspekispjall,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/01/vilhjálmur-árnason.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141206T133000
DTEND;TZID=UTC:20141206T153000
DTSTAMP:20141203T211922Z
CREATED:20141203T211435Z
LAST-MODIFIED:20141203T211922Z
UID:10000061-1417872600-1417879800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ganga um slóðir Þorbjargar Sveinsdóttur
DESCRIPTION:Mæting laugardag 6. des. kl. 13:30 fyrir framan tugthúsið á Skólavörðustígnum. Göngustjóri dr. Auður Styrkársdóttir forstöðumaður Kvennasögusafns Íslands. \nÞorbjörg Sveinsdóttir ljósmóðir 1827 – 1903 var skipuð embættisljósmóðir í Reykjavík 1864 og sá um verklega kennslu ljósmóðurnema á heimili sínu. Hún var einn aðalhvatamaðurinn að stofnun Hins íslenska kvenfélags 1894\, en það félag var mikilvirkt í því að safna fé til stofnunar Háskóla Íslands. Á heimili hennar við Skólavörðustíginn var næstum óslitinn þjóðfundur um landsins gagn og þar tók hún ríkan þátt í að brýna gesti sína til allra góðra verka sem til framfara horfðu. \nAð lokinni göngu verður farið  í Hannesarholt og þar mun Auður halda áfram að fræða okkur um Þorbjörgu\, samtíma hennar og samtíðarmenn.\nKaffi og meðlæti í Hannesarholti kostar 1.000 kr. Greiðist á staðnum.\nÞeir sem ekki treysta sér í gönguna geta komið í Hannesarholt u.þ.b. kl. 14:30. Skráning í síma 666-7810 eða asdisskula@internet.is.  Einnig er hægt að skrá sig í Hæðargarði 411-2790.\nSkráningu lýkur á hádegi 5. desember. \nAllir velkomnir!   \n                            U3A Reykajvík
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ganga-um-slodir-thorbjargar-sveinsdottur/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/12/þorbjörg-sveinsdóttir-Untitled.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140929T120000
DTEND;TZID=UTC:20140929T130000
DTSTAMP:20140924T003513Z
CREATED:20140924T002851Z
LAST-MODIFIED:20140924T003513Z
UID:10000221-1411992000-1411995600@hannesarholt.is
SUMMARY:Sally Magnusson - Handan minninganna
DESCRIPTION:Í janúar síðastliðnum kom út á ensku bókin WHERE MEMORIES GO – WHY DEMENTIA CHANGES EVERYTHING eftir Sally Magnusson. Þar lýsir höfundur þrautagöngu fjölskyldu sinnar í glímunni við Alzheimer\, en móðir hennar veiktist af þeim illræmda sjúkdómi. Hannesarholt bauð Sally til Íslands til að segja frá tilurð bókarinnar. Fyrirlesturinn verður haldinn í Hátíðasal Háskóla Íslands kl.12.00 mánudaginn 29.september og er öllum opinn. \nSally Magnusson hefur hlotið margvísleg verðlaun fyrir blaðamennsku og útvarpsþáttagerð og\nstarfað sem fréttaþulur hjá BBC í mörg ár. Hún er dóttir hinnar vinsælu blaðakonu Mamie Baird og íslenska sjónvarpsmannsins góðkunna\, Magnúsar Magnusson\, sem flutti barnungur til Skotlands en hélt ævarandi tryggð við heimahagana. \nUm bókina segir Sally: „Þessi bók átti upphaflega að vera tilraun til að varðveita minningar um móður mína og hennar einstöku hnyttni og frásagnargáfu. Til þess hafði ég aðeins eitt – orðin hennar\, samtöl okkar og samskipti. Síðar í ferlinu\, þegar kom í ljós hve fyrirferðarmikið þetta félagslega fyrirbæri er sem við fjölskyldan flæktumst smám saman í\, fór ég að skrásetja með því hugarfari að þessi saga gæti vonandi dregið aðrar svipaðar ævisögur fram í dagsljósið ásamt spurningunum sem hún vekti. \nHeilabilun er ein mesta samfélagslega\, læknisfræðilega\, efnahagslega\, vísindalega og siðferðilega áskorun okkar tíma.\nÉg er fréttamaður. Þetta varð ein stærsta saga lífs míns.“\n							Sally Magnusson
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sally-magnusson-handan-minninganna/
LOCATION:Hátíðasalur Háskóla Íslands\, Sæmundargata 2\, Iceland
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/sally-2.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140909T200000
DTEND;TZID=UTC:20140909T220000
DTSTAMP:20140902T234538Z
CREATED:20140902T234538Z
LAST-MODIFIED:20140902T234538Z
UID:10000031-1410292800-1410300000@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjármagnshöft á mannamáli
DESCRIPTION:Af hverju eru fjármagnshöft? Hvað þýða þau fyrir heimili og fyrirtæki? Hvernig er hægt að losna undan þeim? Hvað er framundan? \nFélag frjálslyndra jafnaðarmanna boðar til opins fundar þriðjudaginn 11. september kl. 20:00 í Hannesarholti við Grundarstíg til að ræða fjármagnshöftin\, afleiðingar þeirra og leiðir til afléttingar. \nFrummælendur verða Ásdís Kristjánsdóttir hagfræðingur Samtaka atvinnulífsins og Vilhjálmur Þorsteinsson frumkvöðull og yfirféhirðir FFJ. Að loknum framsöguerindum verða umræður og spjall. \nAf hverju voru höftin sett á í nóvember 2008? Hvernig virka þau? Af hverju er ekki búið að aflétta þeim? Nú getur fólk verslað að vild og notað krítarkort erlendis\, hvað er þá vandamálið? Hvernig birtast höftin almenningi og fyrirtækjum\, til dæmis sprotafyrirtækjum? Hver er skaðinn af þeim til lengri og skemmri tíma? Hvaða leiðir eru færar til að losna undan þeim? Er unnt að fara svo kallaða “gjaldþrotaleið”? Hver er þáttur “hrægammasjóða” í framvindunni? Hvernig tengist ESB- og evruaðild afléttingu haftanna? \nHvað er framundan í þessum málum í vetur? Hvaða hagsmunir eru undir og hvernig tengjast þeir mismunandi leiðum í stöðunni? \nBúast má við að ofangreindar spurningar og fleiri verði til umræðu á fundinum. \nFundarstjóri verður Dagbjört Hákonardóttir lögfræðingur og varaformaður FFJ. \nAllir velkomnir – takið með ykkur gesti! \nKaffigjald er 500 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjarmagnshoft-a-mannamali/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Unknown-4.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140328T093000
DTEND;TZID=UTC:20140328T133000
DTSTAMP:20140326T193530Z
CREATED:20140326T141434Z
LAST-MODIFIED:20140326T193530Z
UID:10000015-1395999000-1396013400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málþing á Hönnunarmars - Hönnun fyrir lítil samfélög
DESCRIPTION:Alþjóðlegt málþing verður haldið í Hannesarholti þann 28. mars kl. 9.30-13.30 á HönnunarMars 2014 þar sem samfélagshönnum og hönnun fyrir lítil samfélög verður í brennidepli.  \nHvernig er hægt að nota hönnun sem tæki til byggðaþróunar?\nHvernig getur hönnun tengt einstaklinga og samfélög?\nHvernig getur hönnunarferli stuðlað að heilbrigðara samfélagi?\nHvað er samfélagshönnun (e. community design)?\nHvaða niðurstöðum skilar samfélagshönnun? \nLeitast verður við að svara ofangreindum spurningum á málþinginu. Þátttakendur fá í hendur verkfæri til að þróa samfélagshönnun innan sinna vébanda. \nÞrátt fyrir að fyrirlesarar komi frá mismunandi samfélögum eru aðferðir þeirra við hönnun svipaðar. Þeir vinna náið með hagsmunaaðilum\, nota hönnun sem stefnu í byggðaþróun og leita eftir skapandi lausnum á þeim margþættu vandamálum sem lítil samfélög standa oft frammi fyrir.  \nAðferðir sem notaðar eru í samfélagshönnun ýta undir sjálfbærni og árangur sem gagnast fyrirtækjum\, einstaklingum og umhverfi.  \nFyrirlesarar \nDaniel Byström frá Designnation og Nässjöakademíunni\nPete Collard frá Designs from Nowhere og Design Museum\nJason Dilworth og Margaret Urban frá Urban of Designers and Forests og State University í New York\nMaria Sykes frá Epicenter skjálftamiðju\nLára Vilbergsdóttir frá Make by Þorpið  \nFundarstjóri er Garðar Eyjólfsson  \nSkráning á málþingið fer fram á www.samband.is\nVerð er kr. 3200 og innfalinn er hádegisverður\, greiðist á staðnum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malthing-a-honnunarmars-honnun-fyrir-litil-samfelog/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/Hönnunarþing.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140325T200000
DTEND;TZID=UTC:20140325T220000
DTSTAMP:20140324T180506Z
CREATED:20140219T163104Z
LAST-MODIFIED:20140324T180506Z
UID:10000124-1395777600-1395784800@hannesarholt.is
SUMMARY:Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur: Því guð gaf henni málið eins og honum.
DESCRIPTION:Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræðingur fjallar um ævisögu Guðrúnar Ketilsdóttur. Guðrún fæddist árið 1759 og er saga hennar líklega elsta varðveitta sjálfsævisaga íslenskrar alþýðukonu – vinnukonu frá 18. öld.  Í sögunni fjallar Guðrún á opinskáan hátt um líf sitt í Eyjafirði og erfitt hjónaband með ótrúum eiginmanni. Guðný hefur nýlega gefið út bók um Guðrúnu Ketilsdóttur og hlaut fyrir hana hin virtu Fjöruverðlaun 2014.\nTitill fyrirlestursins vísar í orð Guðrúnar sjálfrar\, þegar sýslumaður vildi þagga niður í henni  „En ég sagði hann skyldi hafa bölvaða skömm fyrir það því guð hefði gefið mér málið eins og honum. En aldrei þorði ég að hafa það svo hátt að hann heyrði það.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/saga-gudrunar-ketilsdottur-thvi-gud-gaf-henni-malid-eins-og-honum/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Gunny-minni-e1392930365215.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140311T200000
DTEND;TZID=UTC:20140311T220000
DTSTAMP:20140306T232829Z
CREATED:20140306T123052Z
LAST-MODIFIED:20140306T232829Z
UID:10000138-1394568000-1394575200@hannesarholt.is
SUMMARY:Vandi íslensks lýðræðis: Starfsvenjur\, kosningaloforð og þjóðar - atkvæðagreiðslur
DESCRIPTION:Enn á ný hafa vaknað spurningar um vandamál og styrkleika beins lýðræðis í íslensku samfélagi. Ber stjórnmálamönnum að hlusta á vilja kjósenda? Hvaða máli skipta loforð gefin í aðdraganda kosninga eftir að ríkisstjórn hefur verið mynduð? \nRannís hefur undanfarið ár styrkt þverfaglegt rannsóknarverkefni á vegum Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands sem nefnist Hvað einkennir íslenskt lýðræði? Starfsvenjur\, gildi og skilningur. Í ljósi nýlegra atburða og umræðna liðinna vikna hefur rannsóknarhópurinn ákveðið að halda opinn umræðufund um lýðræðislega innviði samfélagsins. Á fundinum verður meðal annars reynt að varpa ljósi á hvaða skilning á lýðræði má greina að baki starfsvenjum í íslenskum\nstjórnmálum og stjórnsýslu. \nStuttar framsögur flytja: \nVilhjálmur Árnason\, prófessor í heimspeki\nGunnar Helgi Kristinsson\, prófessor í stjórnmálafræði\nSalvör Nordal\, forstöðumaður Siðfræðistofnunar\nÞorbjörn Broddason\, prófessor emeritus í fjölmiðlafræði
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vandi-islensks-lydraedis-starfsvenjur-kosningaloford-og-thjodaratkvaedagreidslur-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/vilhjalmur2-e1394108967624.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140304T200000
DTEND;TZID=UTC:20140304T220000
DTSTAMP:20140227T122448Z
CREATED:20140219T171053Z
LAST-MODIFIED:20140227T122448Z
UID:10000126-1393963200-1393970400@hannesarholt.is
SUMMARY:HVERNIG HEILSAST ÞJÓÐINNI?                                            Inflúensa: hin dularfulla og ógnvænlega farsótt
DESCRIPTION:Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. \nÁrlega berast tilkynningar um að inflúensufaraldur sé hafinn og í kjölfarið fréttir af yfirfullum sjúkrahúsgöngum.  Heilsufarskvíði sækir sennilega á suma\, ekki síst þau ár þegar inflúensan þykir óvenjuskæð og eins þegar spurnir af banvænni og dularfullri “fuglaflensu” bárust okkur til eyrna. En hvað er inflúensa?  Af hverju ganga skæðir faraldrar yfir heimsbyggðina með vissu millibili\, eins og Rússaflensan 1889\, “Mexíkóflensan” 2009\, að maður tali nú ekki um hina illræmdu spænsku veiki sem árið 1918 drap miklu fleiri en hin mannskæða fyrri heimstyrjöld gerði.  Hversu hættuleg er inflúensa okkur og hvaða gildi hefur það að bólusetja sig gegn henni? \nÍ þessum fróðlega fyrirlestri mun Magnús Gottfreðsson\, prófessor í smitsjúkdómum og yfirlæknir á Landspítalanum\, fjalla um þennan dularfulla og ógnvænlega smitsjúkdóm frá ýmsum sjónarhornum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/magnus-gottfredsson-influensa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Magnús-Gottfreðssonminni-e1393591006562.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140223T160000
DTEND;TZID=UTC:20140223T170000
DTSTAMP:20140219T170707Z
CREATED:20140210T213658Z
LAST-MODIFIED:20140219T170707Z
UID:10000113-1393171200-1393174800@hannesarholt.is
SUMMARY:Dagskrá um íslensk kventónskáld
DESCRIPTION:Una Margrét Jónsdóttir\, dagskrárgerðarmaður á Rás eitt\, flytur erindi um íslensk kventónskáld\, sem byggt er á vinsælum útvarpsþáttum hennar um efnið. Meðal tónskálda sem fjallað verður um eru Kirstín Pétursdóttir Guðjohnsen (1850-1940)\, Valgerður L. Briem (1885-1924)\, Elísabet Jónsdóttir (1869-1945)\, Elín Laxdal (1883-1918) og Guðmunda Nielsen (1885-1936). Flutt verða tóndæmi með fyrirlestrinum. \nBorðstofan er opin fyrir og eftir viðburðinn og þar verður á boðstólum eins og vant er bæði sætt og ósætt ljúfmeti.  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dagskra-um-islensk-kventonskald/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Listaspjall,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Una-Margrét-080923-0181-e1392648105558.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131206T140000
DTEND;TZID=UTC:20131206T170000
DTSTAMP:20131128T170300Z
CREATED:20131128T170300Z
LAST-MODIFIED:20131128T170300Z
UID:10000025-1386338400-1386349200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Náttúran í verkum Camus"
DESCRIPTION:Í tilefni þess að nú eru 100 ár liðin frá fæðingu Alberts Camus\, stendur Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur fyrir málþingi um verk hans sem ber yfirskriftina „Náttúran í verkum Camus“. \nFyrirlesarar verða: \n\nÁsdís R. Magnúsdóttir\, prófessor í frönsku máli og bókmenntum: „Að þýða hafið. Um náttúruna í ljóðrænum ritgerðum Alberts Camus“\nBjörn Þorsteinsson\, sérfræðingur við Heimspekistofnu: „Rottur og annar ófögnuður: Náttúran í Plágunni“\nIrma Erlingsdóttir\, dósent í frönskum samtímabókmenntum: „Hið pólitíska í náttúrulýsingum Camus“\nPétur Gunnarsson rithöfundur: „Sól\, sjór\, sandur – og syndafall“\nTorfi Tulinius\, prófessor í íslenskum miðaldafræðum: „Haf\, sól og tunga í Útlendingnum“                      \n\nMálþingið fer fram föstudaginn 6. desember kl. 14-17 í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík. \nAðgangur er ókeypis og öllum heimill.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/natturan-i-verkum-camus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Camus.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131203T200000
DTEND;TZID=UTC:20131203T220000
DTSTAMP:20131203T004120Z
CREATED:20131001T162327Z
LAST-MODIFIED:20131203T004120Z
UID:10000049-1386100800-1386108000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þjáning og seigla - að lifa af eða ekki.
DESCRIPTION:Sársauki er óumflýjanlegur\, þjáningin er valkostur er yfirskrift fyrirlestrar sem Högni Óskarsson geðlæknir mun flytja í Hannesarholti þriðjudaginn 3. desember kl. 20:00. Hann er sá þriðji í fyrirlestraröðinni Hvernig heilsast þjóðinni? sem hefur verið á dagskrá í Hannesarholti  í haust\, í umsjá Arnórs Víkingssonar\, gigtarlækis. \nÍ fyrirlestrinum verður fjallað um þjáninguna í tengslum við þunglyndi\, dauðaóskir og sjálfsvígshættu. Fjallað verður um tíðni sjálfsvíga\, áhættuhópa og um forvarnir og meðferð. \nÞjáningin er ríkur þáttur í vestrænni menningararfleifð\, í trúarbragðasögunni jafnt sem í hetjusögum og ævintýrum. Þjáning er hluti af lífinu og lífið er hverfult\, er ein af grunnkenningum Búddah. Þjáningin togast á við vellíðan og draum okkar um stöðuga hamingju. Hún getur sprottið upp úr sjúkdómum eða slysum\, óstöðugri félagslegri stöðu\, missi og sorg eða ófullnægðum þörfum. Við leitumst stöðugt við að útrýma þjáningunni úr lífi okkar\, en dæmum okkur þannig til að viðhalda henni. \nSú stund getur komið í lífi margra að þjáningin  verður svo yfirþyrmandi að þeir sjá þá einu lausn að taka skrefið út úr lífinu. Sumir stíga skrefið\, aðrir ekki. Aðdragandinn er oftast allnokkur en framkvæmdin er oft gerð í skyndigeðshræringu\, stundum eftir langa baráttu við þunglyndi og vonleysi\, sem endar í uppgjöf.  Sem betur fer eru sjálfsvíg tiltölulega fátíð. Miklu fleiri eru þeir sem sleppa lifandi úr þessari lífshættulegu vegferð. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thjaning-og-seigla-ad-lifa-af-eda-ekki/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/2003_021730009-e1385135715171.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131118T200000
DTEND;TZID=UTC:20131118T220000
DTSTAMP:20131118T100740Z
CREATED:20130920T113955Z
LAST-MODIFIED:20131118T100740Z
UID:10000087-1384804800-1384812000@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall - Beita íslenskir fjölmiðlar gagnrýninni hugsun?
DESCRIPTION:Mánudaginn 18. nóvember kl. 20.00 flytur Róbert Haraldsson\, prófessor við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands fyrirlestur í Hannesarholti um íslenska fréttamennsku út frá viðmiðum um gagnrýna hugsun. \nFyrirlesturinn er sá fjórði í röð fyrirlestra í umsjá Páls Skúlasonar og Henry Alexanders Henryssonar\,. Hann hefur hlotið yfirskriftina „Heimspekispjall“. Róbert mun fara yfir þrenns konar tilhneigingar í íslenskri  fréttamennsku sem hann telur að geti hver um sig grafið undan vandaðri og hlutlægri blaðamennsku og ógnað sjálfstæði fjölmiðla. Hann heldur því fram að fái þessar tilhneigingar að vaxa óhindraðar sé úti um gagnrýna fréttamennsku á Íslandi. \nÍ fyrsta lagi verður spurt hvort mörk frétta og auglýsinga hafa smám saman verið að mást út á undanförnum áratugum hér á landi. Í öðru lagi verður skoðað það einkenni á íslenskri blaðamennsku sem nefna mætti „hann sagði\, hún sagði“ fréttamennska\, en þar eru viðhorf ólíkra viðmælenda leidd fram án þess að tilraun sé gerð til að meta sanngildi eða trúverðugleika þeirra. Í þriðja lagi verður skoðað hvernig íslenskir fréttamenn setja sig í auknum mæli í spor nokkurs konar þerapista sem hlusta með ógagnrýnum hætti á sögur þolenda af hvers kyns óréttlæti sem þeir telja sig hafa orðið fyrir. \nRóbert Haraldsson er heimspekingur og prófessor við Háskóla Íslands. Hann lauk B.A.-gráðu í heimspeki og sálfræði frá Háskóla Íslands árið 1985. Róbert nam heimspeki við University of Pittsburgh og lauk þaðan M.A.-gráðu árið 1989 og Ph.D.-gráðu árið 1997. Hann hefur verið forstöðumaður Heimspekistofnunar Háskóla Íslands frá 2003 og ritstjóri Sats\, samnorræns tímarits um heimspeki\, frá 2001. Róbert var ritstjóri Skírnis árin 1995-1999 (ásamt Jóni Karli Helgasyni) og hefur flutt fjölda erinda m.a. um starfsemi fjölmiðla. \nMarkmið Hannesarholts er að efla jákvæða\, gagnrýna hugsun í íslensku samfélagi\, auka skilning á gildi sögunnar og hvetja til uppbyggilegrar umræðu og samveru.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gagnrynin-hugsun-og-fjolmidlar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Róbert-Haraldsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131112T200000
DTEND;TZID=UTC:20131112T220000
DTSTAMP:20131105T184930Z
CREATED:20130930T211112Z
LAST-MODIFIED:20131105T184930Z
UID:10000047-1384286400-1384293600@hannesarholt.is
SUMMARY:"Hvernig heilsast þjóðinni?" Fæðingar fyrr og nú
DESCRIPTION:Heilbrigðiserindi í samfélagslegu samhengi í umsjón Arnórs Víkingssonar læknis\, sem fær til liðs við sig ýmsa sérfræðinga. \nMeðganga og fæðing er stór atburður í lífi hverrar konu og fjölskyldu hennar.   Hjá verðandi móður kvikna áður óþekktar tilfinningar með eftirvæntingu í bland við ótta og heitri ósk um að allt fari nú vel.  En ýmsar hættur leynast á leiðinni\, bæði fyrir móður og barn\, og þannig finnast í Íslandssögunni alltof margar frásagnir af barnshafandi konum sem fengu dapurlegan endi.\nStaða þungaðra kvenna á Íslandi í dag er gjörólík og óhætt er að fullyrða að ótrúlegur árangur hefur náðst í að lækka burðarmálsdauða og mæðradauða.\nÍ þessu erindi mun Hildur Harðardóttir\, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir ræða um þær breytingar sem orðið hafa á stöðu verðandi mæðra og barna þeirra\, og um skipulag fæðingarþjónustunnar á Íslandi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/faedingin-dasamlegur-atburdur-en-ekki-haettulaus/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?,Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/hh1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131021T200000
DTEND;TZID=UTC:20131021T220000
DTSTAMP:20131018T165304Z
CREATED:20130920T112628Z
LAST-MODIFIED:20131018T165304Z
UID:10000082-1382385600-1382392800@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimspekispjall - Lýðræði á öllum sviðum.
DESCRIPTION:N.k mánudagskvöld er komið að öðru „Heimspekispjalli „af þremur sem verða hér í Hannesarholti á þessu hausti. Að þessu sinni munu Björn Þorsteinsson sérfræðingur hjá Heimspekistofnun HÍ  og Sólveig Alda Halldórsdóttir myndlistarmaður og stjórnarmanneskja í Öldu – félagi um sjálfbærni og lýðræði\,  leiða umræðu um lýðræði. \nHvert er hlutverk gagnrýninnar hugsunar í þjóðfélagi sem vill kenna sig við lýðræði?\n Hvernig má koma á alvöru lýðræði? \nÍ erindunum verður fjallað um hlutverk gagnrýninnar hugsunar í\nlýðræðisþjóðfélagi og tekist á við þá spurningu\, hvernig koma megi á alvöru\nlýðræði. \nBjörn Þorsteinsson veltir vöngum yfir inntaki lýðræðisins í ljósi\nhugmynda frá 18. öld um upplýsingu og sjálfstæða hugsun. Jafnframt verður\nvarpað fram spurningum um tengsl valdhafa og almennings og hvernig þeim\nverði best fyrir komið. \nSólveig Alda Halldórsdóttir beinir sjónum að því\nhvernig megi efla lýðræðið og koma á sannkölluðu lýðræði á öllum sviðum\nsamfélagsins með aukinni þátttöku almennings í umræðum og ákvörðunum. Meðal\nannars mun hún ræða um lýðræðisleg fyrirtæki nær og fjær.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lydraedi-a-ollum-svidum/
CATEGORIES:Málþing / fyrirlestrar (talks)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Björn_Þorsteinsson.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131015T200000
DTEND;TZID=UTC:20131015T220000
DTSTAMP:20131008T173256Z
CREATED:20130930T205545Z
LAST-MODIFIED:20131008T173256Z
UID:10000046-1381867200-1381874400@hannesarholt.is
SUMMARY:Verkir: til þrauta eða þroska?
DESCRIPTION:  \nHeilbrigðiserindi í samfélagslegu samhengi í umsjá Arnórs Víkingssonar læknis\, sem fær til liðs við sig ýmsa sérfræðinga. \nFyrirlesari á þessu fyrsta heilbrigðiserindi Hannesarholts er Arnór Víkingsson \nVerkir – til þrauta eða þroska ?\nVerkir eru samofnir náttúrulegri tilvist okkar allra; stingir eða seiðingur hér og þar\, tímabundinn sársauki við áverka og mánaðarlegir verkir hjá konum á frjósemisaldri tengdir tíðablæðingum.  Auðvelt er að skilja gildi þess að finna sársauka þegar mögulega hættulegir sjúkdómar eða aðstæður steðja að\, en öllu flóknara er að skila þýðingu þess að finna sársauka þegar “ekkert” er að.  Að maður nefni nú ekki þær aðstæður þegar einstaklingur fær langvarandi\, nær stöðuga verki með tilsvarandi áhrifum á daglega líðan og lífsgæði.   Hvað veldur?  Öll menningarsamfélög sögunnar hafa leitað svara við þessari spurningu og komist að mismunandi niðurstöðu.\nÍ þessum fyrirlestri verður gerð grein fyrir einni undursamlegustu sköpun lífsins:  Verkjakerfi líkamans.  Rætt verður um hvernig verkir hjálpa okkur til að lifa af\, þrífast og þroskast.   En einnig verður fjallað um verki sem vanheilsu eða sjúkdóm; sennilega ein af tveimur algengustu ástæðum slakra lífsgæða vegna heilsubrests. \nAðgangseyrir IKR 1000\, miðar seldir á midi.is: http://midi.is/atburdir/1/7890 \nBorðstofan verður opin til kl.20. Hægt verður að panta sér kvöldmat á undan erindinu með því að hringja í síma 511-1904
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3281/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Hvernig heilsast þjóðinni?
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/Arnór.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR