BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250201T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250201T150000
DTSTAMP:20250206T085214Z
CREATED:20250121T163927Z
LAST-MODIFIED:20250206T085214Z
UID:10001103-1738418400-1738422000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þráin til vaxtar - Myndlistarsýning Joris Rademaker
DESCRIPTION:Þráin til vaxtar \nJoris Rademaker \nHannesarholt \n1.-19. febrúar 2025 \nÁ sýningunni “Þráin til vaxtar” nálgast Joris Rademaker hugtökin vöxtur\, hreyfing og tími út frá mismunandi sjónarhornum. \nHugmynd að sýningunni kviknaði eftir heimsókn í Hannesarholt þegar Joris skoðaði húsið vel og spjallaði við staðarhaldarann. Háaloftið með sína tréveggi byggða úr timburafgöngum hússins varð innblástur að sýningu. Veggirnir endurspegla viðhorf Hannesar og virðingu hans fyrir efninu sjálfu\, sparsemi og endurnýtingu.Tréveggurinn er partur af innsetningu á sýningunni sem ber þá titilinn Fjársjóður. Í hinum sýningarrýmunum verða pennateikningar\, hvass málverk og þrívíð verk unnin úr lífrænum efnum. \nMeð því að stúdera náttúruna fær maðurinn dýpri skilning á henni\, þanng fær maðurinn meiri virðingu fyrir umhverfinu\, náttúrunni og sjálfum mannslíkamanum. Í nútímanum þegar tæknivæðingin tekur yfir er mikil áhætta á að það verði rof á milli náttúrunnar og mannsins. \nSíðustu áratugi hefur Joris gert tilraunir og unnið listaverk úr lífrænum efnum sem hann safnar í gönguferðum sínum\, svo sem trjágreinum\, hvönn og fjöðrum. Að safna\, þurrka og finna sýningaform þar sem efnið sjálft fær að blómstra er hans nálgun. Einnig notar hann oft önnur lífræn efni sem tengjast matarvenjum eins og spaghettí\, kartöflur\, hnetur\, vínberjagreinar og kokoshnetur. \nÍ gegnum árin verður hann stöðugt meira meðvitaðrur um þessa djúpu og sterku þrá í öllu sem lifir\, til þess að vaxa. Í listinni reynir hann að gera það sýnilegt. Verkin eru oftast táknræn og túlka og tjá tilfinningar\, samband og tengsl manns og náttúru á persónulegan hátt. Óspillt náttúra Íslands gefur Joris sífellt innblástur. \nJoris er hollenskur myndlistamaður búsettur og starfandi á Íslandi síðan 1991. Hann hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar bæði á Íslandi og erlendis. Hann hefur t.d. sýnt einkasýningar í Nýlistasafninu\, Safnasafninu á Svalbarðsströnd og í Listasafninu á Akureyri og í Listasafni Reykjavíkur (samsýningin Stór ísland). \nSýningin opnar laugardaginn 1. febrúar kl 14-16 og er opin á opnunartímum Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrain-til-vaxtar-myndlistarsyning-joris-rademaker/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/joris1-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250222T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250311T170000
DTSTAMP:20250309T210958Z
CREATED:20250309T210958Z
LAST-MODIFIED:20250309T210958Z
UID:10001133-1740232800-1741712400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning Ástu Báru Pétursdóttur - Nú er tími til að hafa gaman
DESCRIPTION:Ásta Bára Pétursdóttir opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 22.febrúar kl.14. Sýningin er sölusýning og nefnist – Núna er tími til að hafa gaman.\n\nÁsta Bára er búsett á Akureyri og hefur unnið í myndlist frá því hún útskrifaðist af Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2009. Hún hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt i fjölda samsýninga. Flest málverkin eru unnin með akryl á striga eða á pappír. Innblásturinn í verkum Ástu Báru er aðalega mannlíf líðandi stundar.\n\nViðfangsefni málverkana er hið daglega líf fólks og athafnir þess\, sem og einstaka köttur. Þessar athafnir fólks eru óendanleg uppspretta myndefnis sem gaman er að leika sér með\, s.s. með því að teygja og toga líkama á málverkunum eins og hentar hverri mynd. Tvöfalt andlit gæti t.d. verið vísun í margt\, eins og hvað við sem manneskjur erum uppteknar af öllu í umhverfi okkar að stundum gleymist persónan sem við erum svo sannarlega með þá stundina. Litagleði og kímni einkenna jafnframt myndirnar sem eru málaðar til að gleðjast og njóta þess að fara með ímyndunaraflið í ferðalag.\nSýningin er opin á opnunatímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 og stendur til 11.mars.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-astu-baru-petursdottur-nu-er-timi-til-ad-hafa-gaman/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/unnamed-1-scaled.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR