BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250111T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250111T170000
DTSTAMP:20250206T092721Z
CREATED:20250113T110058Z
LAST-MODIFIED:20250206T092721Z
UID:10001095-1736607600-1736614800@hannesarholt.is
SUMMARY:Anna Leós - Margt býr í fjöllunum MÁLVERKASÝNING
DESCRIPTION:Náttúra í nýstárlegri umgjörð \nMargt býr í fjöllunum nefnist málverkasýning Önnu Leós í Hannesarholti\, sem stendur yfir frá 11.-30.janúar. \n\nÞetta eru vissulega ekki hefðbundnar náttúrumyndir\, heldur mín túlkun á náttúrunni\, segir Anna um sýninguna\, sem samanstendur af ellefu akrýlverkum þar sem fjöll eru í fyrirrúmi\, tilkomumikil og glæsileg ásýndar\, í óvenjulegri umgjörð\, sem drengur fram og undirstrikar þá orku sem frá þeim stafar. \nMeð sýningunni segist listakonan vilja vekja athygli á mikilvæti íslenskrar náttúru. Hana beri að vernda og hlúa að\, því hún sé einstök á heimsvísu. Ekki síst núna\, þegar sótt er að náttúrunni úr öllum áttum\, bendir Anna á. \n\nAnna hefur fengist við myndlist um árabiil og á að baki fjölda einkasýninga. Hefur hún meðal annars haldið sýningar í Viðey\, á kaffistofu Hafnarborgar í Hafnarfirði og í Ráðhúsi Reykjavíkur\, svo fátt eitt sé nefnt. \nSýning Önnu í Hannesarholti stendur frá 11.-30.janúar 2025. Öll velkomin. Veitingahúsið í Hannesarholti er opið alla daga frá 11.30-16\, nema sunnudaga og mánudaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-anna-leos-margt-byr-i-fjollunum/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/Frettatilkynning_Hannesarholt_syning_Anna_Leos_11_jan_2025-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250201T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250201T150000
DTSTAMP:20250206T085214Z
CREATED:20250121T163927Z
LAST-MODIFIED:20250206T085214Z
UID:10001103-1738418400-1738422000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þráin til vaxtar - Myndlistarsýning Joris Rademaker
DESCRIPTION:Þráin til vaxtar \nJoris Rademaker \nHannesarholt \n1.-19. febrúar 2025 \nÁ sýningunni “Þráin til vaxtar” nálgast Joris Rademaker hugtökin vöxtur\, hreyfing og tími út frá mismunandi sjónarhornum. \nHugmynd að sýningunni kviknaði eftir heimsókn í Hannesarholt þegar Joris skoðaði húsið vel og spjallaði við staðarhaldarann. Háaloftið með sína tréveggi byggða úr timburafgöngum hússins varð innblástur að sýningu. Veggirnir endurspegla viðhorf Hannesar og virðingu hans fyrir efninu sjálfu\, sparsemi og endurnýtingu.Tréveggurinn er partur af innsetningu á sýningunni sem ber þá titilinn Fjársjóður. Í hinum sýningarrýmunum verða pennateikningar\, hvass málverk og þrívíð verk unnin úr lífrænum efnum. \nMeð því að stúdera náttúruna fær maðurinn dýpri skilning á henni\, þanng fær maðurinn meiri virðingu fyrir umhverfinu\, náttúrunni og sjálfum mannslíkamanum. Í nútímanum þegar tæknivæðingin tekur yfir er mikil áhætta á að það verði rof á milli náttúrunnar og mannsins. \nSíðustu áratugi hefur Joris gert tilraunir og unnið listaverk úr lífrænum efnum sem hann safnar í gönguferðum sínum\, svo sem trjágreinum\, hvönn og fjöðrum. Að safna\, þurrka og finna sýningaform þar sem efnið sjálft fær að blómstra er hans nálgun. Einnig notar hann oft önnur lífræn efni sem tengjast matarvenjum eins og spaghettí\, kartöflur\, hnetur\, vínberjagreinar og kokoshnetur. \nÍ gegnum árin verður hann stöðugt meira meðvitaðrur um þessa djúpu og sterku þrá í öllu sem lifir\, til þess að vaxa. Í listinni reynir hann að gera það sýnilegt. Verkin eru oftast táknræn og túlka og tjá tilfinningar\, samband og tengsl manns og náttúru á persónulegan hátt. Óspillt náttúra Íslands gefur Joris sífellt innblástur. \nJoris er hollenskur myndlistamaður búsettur og starfandi á Íslandi síðan 1991. Hann hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar bæði á Íslandi og erlendis. Hann hefur t.d. sýnt einkasýningar í Nýlistasafninu\, Safnasafninu á Svalbarðsströnd og í Listasafninu á Akureyri og í Listasafni Reykjavíkur (samsýningin Stór ísland). \nSýningin opnar laugardaginn 1. febrúar kl 14-16 og er opin á opnunartímum Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrain-til-vaxtar-myndlistarsyning-joris-rademaker/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/joris1-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250222T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250311T170000
DTSTAMP:20250309T210958Z
CREATED:20250309T210958Z
LAST-MODIFIED:20250309T210958Z
UID:10001133-1740232800-1741712400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning Ástu Báru Pétursdóttur - Nú er tími til að hafa gaman
DESCRIPTION:Ásta Bára Pétursdóttir opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 22.febrúar kl.14. Sýningin er sölusýning og nefnist – Núna er tími til að hafa gaman.\n\nÁsta Bára er búsett á Akureyri og hefur unnið í myndlist frá því hún útskrifaðist af Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2009. Hún hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt i fjölda samsýninga. Flest málverkin eru unnin með akryl á striga eða á pappír. Innblásturinn í verkum Ástu Báru er aðalega mannlíf líðandi stundar.\n\nViðfangsefni málverkana er hið daglega líf fólks og athafnir þess\, sem og einstaka köttur. Þessar athafnir fólks eru óendanleg uppspretta myndefnis sem gaman er að leika sér með\, s.s. með því að teygja og toga líkama á málverkunum eins og hentar hverri mynd. Tvöfalt andlit gæti t.d. verið vísun í margt\, eins og hvað við sem manneskjur erum uppteknar af öllu í umhverfi okkar að stundum gleymist persónan sem við erum svo sannarlega með þá stundina. Litagleði og kímni einkenna jafnframt myndirnar sem eru málaðar til að gleðjast og njóta þess að fara með ímyndunaraflið í ferðalag.\nSýningin er opin á opnunatímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 og stendur til 11.mars.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-astu-baru-petursdottur-nu-er-timi-til-ad-hafa-gaman/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/unnamed-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250315T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250315T160000
DTSTAMP:20250319T161231Z
CREATED:20250225T160225Z
LAST-MODIFIED:20250319T161231Z
UID:10001130-1742047200-1742054400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning opnun Sigurdís Gunnarsdóttir HUGARÓRAR
DESCRIPTION:Sigurdís Gunnarsdóttir opnar málverkasýningu sína HUGARÓRA í Hannesarholti laugardaginn 15. mars kl.14-16\nDraumkenndar landslagsmyndir Sigurdísar eru í senn kraftmiklar og hljóðlátar. Myndmálið speglar upplifun áhorfandans af náttúrunni. Það er eins konar tilraunakennd rannsókn á yfirborði og gegnsæi\, samspilum litbrigða\, forms og skugga. Hugarórar færa okkur á vit ævintýra og vekja spurningar um það sem fyrir augu ber. Hvar liggja mörkin á milli mannsins í náttúrunni og náttúrunnar í manninum? Myndirnar eru unnar með olía á striga.\nSigurdís fæddist á Íslandi en ólst upp á Bahamaeyjum og í Bandaríkjunum fram á unglingsárin en fluttist þá aftur heim. Hún hefur stundað nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistarskóla Kópavogs og Central Saint Martins í London. Þetta eru fjórða einkasýning hennar og hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga.\nSigurdís er meðlimur í SÍM.\nSýningin er sölusýning og er opin á opnunartíma Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 til 3. apríl.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-opnun-sigurdis-gunnarsdottir-hugarorar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/sigurdis16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250405T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250405T160000
DTSTAMP:20250326T181742Z
CREATED:20250319T160754Z
LAST-MODIFIED:20250326T181742Z
UID:10001137-1743861600-1743868800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ferð á fjallið - Opnun myndlistarsýningar Kristínar Pálmadóttur
DESCRIPTION:FERÐ Á FJALLIÐ\nKristín Pálmadóttir opnar myndlistarsýningu sína\, FERÐ Á FJALLIÐ\, laugardaginn 5.apríl kl.14-16.\nFlest verka á sýningu Kristínar eru tengd þeirri hugsun að stefna á toppinn\, óviss hvort því takmarki verði náð\, en upp er ferðinni heitið. Þó að ekki verði endilega komist á hærstu tinda er ferðin full af margbreytileika náttúrunnar\, landinu við fætur okkar.\nÞegar Kristín útskrifaðist frá Grafíkdeild MHÍ höfðaði það mest til hennar að vinna í ætingu. Þar fann hún samsvörun í þeirri tækni og yfirborði landsins. Um árið 2000 lærði hún nýja tækni þar sem hún gat tengt grafík við ljósmyndun sem hún hafði mikinn áhuga á. Málverkið hefur um 20 ár verið aukinn hluti af listsköpun Kristínar. Henni finnst áhugavert að vinna samhliða í þessa miðla.\nMeð hennar eigin orðum: \,\,Þetta er fjórða einkasýningin sem ég sýni samhliða málverk og grafík. Reyndar finnst mér ég sjá aukin áhrif hvors miðils á hinn.“\nSýningin er sölusýning og stendur til 30.apríl. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga\, kl.11.30-16.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ferd-a-fjallid-opnun-malverkasyningar-kristinar-palmadottur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/Kristin-Palmadottir-rotated.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250426T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250426T150000
DTSTAMP:20250424T170333Z
CREATED:20250424T170219Z
LAST-MODIFIED:20250424T170333Z
UID:10001162-1745676000-1745679600@hannesarholt.is
SUMMARY:Kristín Pálmadóttir - leiðsögn um sýninguna FERÐ Á FJALLIÐ
DESCRIPTION:Kristín Pálmadóttir býður leiðsögn um myndlistarsýningu sína í Hannnesarholti laugardaginn 26.apríl kl.14-15. Á sýningunni má finna verk unnin bæði í grafík og olíu og jafnvel er aðferðum blandað saman í sama verki. Umfjöllun um sýningu Kristínar má finna í Morgunblaðinu á Páskadag\, á bls.22-23.\nFlest verka á sýningu Kristínar eru tengd þeirri hugsun að stefna á toppinn\, óviss hvort því takmarki verði náð\, en upp er ferðinni heitið. Þó að ekki verði endilega komist á hærstu tinda er ferðin full af margbreytileika náttúrunnar\, landinu við fætur okkar.Þegar Kristín útskrifaðist frá Grafíkdeild MHÍ höfðaði það mest til hennar að vinna í ætingu. Þar fann hún samsvörun í þeirri tækni og yfirborði landsins. Um árið 2000 lærði hún nýja tækni þar sem hún gat tengt grafík við ljósmyndun sem hún hafði mikinn áhuga á. Málverkið hefur um 20 ár verið aukinn hluti af listsköpun Kristínar. Henni finnst áhugavert að vinna samhliða í þessa miðla.Með hennar eigin orðum: \,\,Þetta er fjórða einkasýningin sem ég sýni samhliða málverk og grafík. Reyndar finnst mér ég sjá aukin áhrif hvors miðils á hinn.“Sýningin er sölusýning og stendur til 30.apríl. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga\, kl.11.30-16
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kristin-palmadottir-leidsogn-um-syninguna-ferd-a-fjallid/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/04/Screenshot-2025-04-19-at-21.41.12-4.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250503T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250503T150000
DTSTAMP:20250422T120006Z
CREATED:20250422T115943Z
LAST-MODIFIED:20250422T120006Z
UID:10001161-1746280800-1746284400@hannesarholt.is
SUMMARY:MYRKRIÐ FRAMKALLAR LJÓSIÐ - Fríða Freyja Frigg Myndlistaropnun
DESCRIPTION:Fríða Freyja Frigg opnar sýninguna MYRKRIÐ FRAMKALLAR LJÓSIÐ í Hannesarholti laugardaginn 3. maí frá 14.00 til 16.00.\nUm sýninguna segir Fríða sér vera hugleikið hvernig áskoranir lífsins geta mótað okkur og stækkað. Að lífið sé alltaf að gera það sem er gott fyrir okkur þótt það sé ekki alltaf þægilegt. Það er áskorun að fylgjast með heimsmálunum og útlitið svart en undir niðri kraumar ljósið og margir eru að vakna til vitundar um það hver við erum. Allt spilar þetta saman myrkur og ljós. Þjáningin ýtir við okkur svo við getum horfst í augu við það sem má fara og hætt að bera fortíðina eða hugsanlega framtíð á bakinu. Við vorum ekki sköpuð til að vita á hverri stundu hvað er að gerast alls staðar á Jörðinni. Það er mikilvægt að við náum að huga að okkur sjálfum\, okkar innri friði sem hefur svo áhrif á þá sem eru nálægt okkur. Sköpunarkrafturinn býr í augnablikinu og þegar við náum að dvelja þar getum við skapað þann veruleika sem okkur dreymir um. Gott er að minna sig á að við erum hér og að huga að andardrættinum\, lífinu í líkamanum oft yfir daginn\, eða um leið og við finnum að við erum farin á tímaflakk eða í hugsanir sem þjóna okkur ekki lengur.\nSýningin er sölusýning og stendur til 24.maí. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16.\nÞetta er fjórtánda einkasýning Fríðu Freyju Frigg\, en hún hefur einnig haldið fjölda samsýninga hérlendis og erlendis. Verk Fríðu má einnig nálgast í ART67 gallerí á Laugarvegi 61 og í Artótek Borgarbókasafninu í Tryggvagötu.\nhttps://art67.is/frida-kristin-gisladottir/\nhttps://www.artotek.is/frida-freyja-frigg\nhttps://www.instagram.com/fridafreyja…\nhttps://www.facebook.com/share/16KHccGjf1/?mibextid=wwXIfr
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/myrkrid-framkallar-ljosid-frida-freyja-frigg-myndlistaropnun/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/04/FridaFreyjafyrirheimasidu.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250619T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250619T170000
DTSTAMP:20250618T231509Z
CREATED:20250520T124534Z
LAST-MODIFIED:20250618T231509Z
UID:10001175-1750345200-1750352400@hannesarholt.is
SUMMARY:Heimalöndin\, opnun ljósmyndasýningar Þrastar Eiríkssonar
DESCRIPTION:Þröstur Eiríksson fæddist á Seyðisfirði árið 1966 og ólst þar upp í stórum og samheldnum systkinahópi. Hann bjó á Reykjavíkursvæðinu frá framhaldsskólaaldri þar til hann ásamt fjölskyldu sinni tók föggur sínar og flutti til Osló árið 2009. \nHann hefur verið ljósmyndaáhugamaður frá unga aldri og var fermingarpeningurinn notaður til að fjárfesta í fyrstu myndavélinni. \nÍ gegnum tíðina hefur áhugamálið þróast frá hreinni græjudellu í ástríðu fyrir heildarferlinu\, allt frá myndbyggingu\, myndatöku\, eftirvinnslu og tilraunum með óhefðbundnar aðferðir við framsetningu. \nÞröstur er sérfræðingur í gagnanetstækni og netöryggismálum og hefur hann unnið sem ráðgjafi og lausnaarkitekt i tengslum við krítískan iðnað eftir að hann flutti til Noregs. \nAnnasamur hversdagurinn veldur því að lítill tími er fyrir áhugamálið en þá er tilvalið að setja sjálfan sig undir pressu og ákveða að setja saman sýningu. \nMyndirnar á sýningunni eru teknar í heimalöndunum (Íslandi og Noregi) á síðastliðnum 10 árum eða svo. \nMyndirnar eru unnar á einstakan hátt sem þú hefur trúlega ekki séð áður\, prentaðar með hágæða hráefnum\, húðaðar med lakki og síðan Epoxy. Öll lögin hafa í sér vörn fyrir útfjólubláu ljósi sem verndar og lengir líftíma myndanna. \n\n\n\nÞröstur Eiríksson ble født i Seyðisfjörður i 1966\, men bodde i Reykjavík siden videregående\, frem til han og familien flyttet til Oslo i 2009. \nHan har vært interessert i fotografering siden ung alder\, og brukte konfirmasjonspengene sine til å kjøpe sitt første kamera. \nGjennom årene har hobbyen utviklet seg fra en ren interesse for dingser til en lidenskap for hele prosessen – fra bildekomposisjon\, fotografering og etterbehandling\, til å eksperimentere med utradisjonelle presentasjonsmetoder. \nÞröstur er ekspert innen nettverksteknologi og cybersikkerhet\, og har jobbet som konsulent og løsningsarkitekt i olje og gass industrien etter at han flyttet til Norge og har stilling som Senior Principal Konsulent i DNV (Det Norske Veritas). \nHans travle hverdag gir lite tid til hobbyen\, og de fleste bildene blir derfor tatt på reiser og ferie. Under høyt arbeidspress er det viktig å ha mål utenfor jobben – som for eksempel å forberede en utstilling – noe som krever stor innsats. \nBildene i utstillingen er tatt i hjemlandene Island og Norge ila de siste ti årene. \nDe er bearbeidet på en unik måte som Þröstur selv har utviklet\, og hele prosessen er utført av han selv\, fra start til slutt. Bildene er printet med materialer av høy kvalitet\, lakkert og deretter dekket med epoxy. Alle lag inneholder beskyttelse mot ultrafiolett lys\, noe som beskytter og forlenger bildenes levetid. \nDette er Þrösturs tredje solo-utstilling. Han har også deltatt i utstillinger sammen med andre kunstnere\, hvor han har mottatt priser.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/heimalondin-opnun-ljosmyndasyningar-thrastar-eirikssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Ljósmyndasýning,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/05/Jokulsarlon-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250816T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250816T170000
DTSTAMP:20250912T113615Z
CREATED:20250812T165943Z
LAST-MODIFIED:20250912T113615Z
UID:10001189-1755356400-1755363600@hannesarholt.is
SUMMARY:Steinvægr samsýning Matthíasar Rúnars og Hjördísar Grétu
DESCRIPTION:STEINVÆNGR   16.08.2025 – 27.09.2025\n\n\n\nMatthías Rúnar Sigurðsson\nHjördís Gréta Guðmundsdóttir \nSteinvængr er samsýning þeirra Matthíasar Rúnars Sigurðssonar og Hjördísar Grétu Guðmundsdóttur þar sem málverk og höggmyndir spila saman. Á sýningunni má til dæmis sjá málverk af fiðrildum\, blávængjum – sem lýsast upp af ímynduðu vasaljósi manneskjunnar og einnig hrekkjalóma í formi steinmynda sem vekja upp hugleiðingar um forneskjulegar verur. Innan um kerfil\, gras og annan gróður er að finna lítil augnablik þar sem fiðrildi flýgur framhjá og steinrunninn hrekkjalómur hefur valið sér stað til að dvelja.\nMeð vasaljósinu reynir manneskjan ósjálfkrafa að ná tengingu við næturbirtuna sem einu sinni var miklu skærari.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/steinvaegr-samsyning-matthiasar-runars-og-hjordisar-gretu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Leiðsögn um myndlistarsýningu,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/09/steinvaengr-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251025T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251025T160000
DTSTAMP:20251002T122342Z
CREATED:20251001T195059Z
LAST-MODIFIED:20251002T122342Z
UID:10001215-1761400800-1761408000@hannesarholt.is
SUMMARY:STAÐUR OG STUND opnun
DESCRIPTION:Guðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir opnar sýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 25.október á útsaumsverkum sem hún hefur unnið síðustu fimm ár. Munstrin teiknar hún sjálf en fyrirmyndirnar eru staðir þar sem stundirnar í lífi hennar hafa markað spor.\n\nGuðrún Jarþrúður Baldvinsdóttir hefur átt fjölbreyttan starfsferil en síðustu árin snúið sér að útsaumi sem hefur átt hug hennar allan. Hún leitar fanga í minningasafninu og staldrar við á stöðum sem hafa haft afgerandi áhrif á lífshlaupið. Auk þess hefur hún saumað út myndir af húsum sem skipta vini og vandamenn máli og þannig fært þeim útsaumaðar minningar.\n\nGuðrún Jarþrúður teiknar öll munstrin sjálf. Myndirnar eru saumaðar í bláan java með DMC þræði og kryddaðar með öðru bandi. Myndirnar eru u.þ.b. 30×30 sm án rammans. Í hverri mynd eru rétt um 250 m af þræði.\n\nSýningin er sölusýning og er opin á opnunartímun Hannesarholts\, miðvikudaga til laugardaga kl.11.30-16. Sýningin stendur til 13.nóvember.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/15654/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/10/FullSizeRender-2.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251115T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20251115T150000
DTSTAMP:20251103T232521Z
CREATED:20251103T231300Z
LAST-MODIFIED:20251103T232521Z
UID:10001233-1763215200-1763218800@hannesarholt.is
SUMMARY:Katrín Matthíasdóttir - Myndlistaropnun -  Svolítið af ýmsu
DESCRIPTION:Svolítið af ýmsu\nKatrín Matthíasdóttir opnar myndlistarsýningu sína\, SVOLÍTIÐ AF ÝMSU\, í Hannesarholti laugardaginn 15.nóvember kl.14. Sýningin er sölusýning og er opin á opnunartímum Hannesarholts\, mið-lau kl.11.30-16. \nKatrín nefnir þessa sýningu  SVOLÍTIÐ AF ÝMSU – því hún er einmitt það! Hér má sjá verk sem hún hefur unnið á síðustu tíu árum\, þar á meðal ný verk frá árinu 2025. Verkin eru unnin í mismunandi miðlum og með ólíkum aðferðum. Sýningin gefur innsýn í fjölbreytta listsköpun þar sem tilraunagleði og persónuleg sýn fá að njóta sín. Svolítið af ýmsu – þar sem ólíkar hugmyndir og miðlar mætast í einni heild.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/katrin-matthiasdottir-myndlistaropnun-svolitid-af-ymsu/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/11/Barnsaugu-I-vatnslitir-gvass-og-tuss-a-pappir-strekktur-a-blindramma-35x30-cm-1-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260117T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260117T160000
DTSTAMP:20260112T143707Z
CREATED:20260109T105910Z
LAST-MODIFIED:20260112T143707Z
UID:10001259-1768658400-1768665600@hannesarholt.is
SUMMARY:Opnun myndlistarsýningar Daða Guðbjörnssonar: BJARTSÝNING Í HANNESARHOLTI
DESCRIPTION:Daði Guðbjörnsson opnar málverkasýningu sína sem hann nefnir „Bjartsýning í Hannesarholti“ laugardaginn 17.janúar kl.14. Á Bjart-sýningunni er leitast við að nálgast tilveruna frá sjónarhóli tilfinninganna. Myndirnar fanga og miðla upplifun af innra og ytra formi tilverunnar og vonandi munu málverkin gleðja áhorfendur. Sýningin gefur gott yfirlit yfir það sem hefur verið að gerast á vinnustofu Daða síðustu tvö ár\, en þar má finna bæði olíumálverk og vatnslitamyndir.\nDaði hefur stundað málaralist sem aðalatvinnu alla ævi\, haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Verk eftir hann er að finna í eigu allra helstu listasafna landsins.\nSýningin er sölusýning og stendur til 4.febrúar 2026.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-myndlistarsyningar-dada-gudbjornssonar-bjart/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/dadi.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260207T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260207T160000
DTSTAMP:20260129T113909Z
CREATED:20260120T153216Z
LAST-MODIFIED:20260129T113909Z
UID:10001269-1770472800-1770480000@hannesarholt.is
SUMMARY:LANDSLAG - Málverkasýning Erlu Halldórsdóttir opnun
DESCRIPTION:Erla Halldórsdóttir opnar fyrstu einkasýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 7.febrúar kl.14 sem nefnist LANDSLAG. Meginþemu sýningarinnar er landslag\, himinn og jörð. Það er hins vegar ekki alltaf nákvæmt landslag\, heldur tilfinning hennar fyrir landslagi. Á ferðalögum um landið greypast í hugann hlutar úr landslagi sem enda loks á striga. Landslag er svo óendanlega margbreytilegt og Erla hefur gaman af að mála eftir minni og tilfinningu. Þegar hún hefst handa við mynd eru það litirnir sem oftast ráða för og þegar hún vinnur með akrýl eru það oftast jarðlitir. Öðru máli gegnir um soft pastel\, sem er tiltölulega nýr miðill. Þar eru oftast fyrirmyndir\, samt ekki ákveðinn staður\, heldur skeytt saman úr myndum sem hún tekur eða hluti af landslagi sem henni finnst áhugaverður.\n\nErla hefur numið myndlist hjá hinum ýmsu listamönnum undanfarin ár bæði hérlendis og erlendis\, þar á meðal í Myndlistarskóla Kópavogs\, á námskeiði hjá Bjarna Sigurbjarnasyni og víðar. Hún hefur tekið þátt í mörgum samsýningum\, og unnið með olíu\, akríl\, blandaða tækni og soft pastel.\n\nSýningin er sölusýning og stendur til 25.febrúar. Hún er opin á opnunartímum Hannesarholts\, miðvikudaga\, fimmtudaga\, föstudaga og laugardaga kl.11.30-16.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/landslag-malverkasyning-erlu-halldorsdottir-opnun/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/01/landslag.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260227T160000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260227T180000
DTSTAMP:20260227T155620Z
CREATED:20260219T095632Z
LAST-MODIFIED:20260227T155620Z
UID:10001275-1772208000-1772215200@hannesarholt.is
SUMMARY:Fríða Katrín Bessadóttir - Opnun málverkasýningar Í FAÐMI MARKA
DESCRIPTION:Fríða Katrín Bessadóttir opnar málverkasýningu sína Í FAÐMI MARKA í Hannesarholti föstudaginnn 27.febrúar kl.16-18. Sýningin er sölusýning og stendur til 18.mars.\n\nÍ Faðmi Marka snýst um tíma. Þann tíma sem við verjum í náttúrunni\, í faðmi\, í nándinni. Tímann sem við verjum í hverja einustu stroku\, hvert einasta blóm\, hverja einustu stund. Fríða Katrín fetar nýja braut eftir áreiti hversdagsins og hægir á sér í formi myndverka. Hún blandar impressjónisma og púnktisma í ný verk sem einblína á tungumálið og litríka náttúru þar sem hún tvinnar saman raunveruleikanum við ímyndunaraflið. Hún opnar sig fyrir líkamlega og hugræna ferlinu sem og núvitundinni sem liggur á bakvið hverja einustu stroku. Með olíuverkum fær Fríða Katrín áhorfendur til þess að staldra við á mörkum líkama og umhverfis og dvelja þar um stund.\n\nFríða Katrín Bessadóttir er þverfagleg listakona sem einbeitir sér að gjörningalistinni og tengslum hennar við myndlist. Verk hennar kanna flókið samspil veruleika og skáldskapar\, oft byggt á eigin reynslu og reynslu annarra. Með því að endurhugsa og endurskapa þessar frásagnir skorar hún á skynjun áhorfandans\, stundum blekkir hún áhorfendur eða skilur eftir vísvitandi eyður sem bjóða þeim að klára söguna. Með BA-gráðu í myndlist og MA-gráðu í sviðslistum hefur hún þróað fjölþætta nálgun í gegnum víðtæka sjálfstæða iðkun. Þekking hennar á bæði myndlist og sviðslist er talin gagnleg fyrir fjölbreytt samstarf og verkefni\, svo sem að skapa verk fyrir Listahátíð barna á Reykjanesi\, hanna og smíða listaverk fyrir Reykjavíkurborg (Galop Náttúrunnar)\, sýna verk í samsýningum bæði í Danmörku og Skotlandi\, flytja verk fyrir ýmsa listamenn á Íslandi\, Spáni og Rúmeníu. Auk þess að vera hluti af galleríinu KANNSKI.\n\nEnska:Fríða Katrín Bessadóttir opens her exhibit THE EMBRACE OF BOUNDARIES in Hannesarholt on Friday February 27th at 4-6 pm.The show\, the Embrace of Boundaries is about time. The time we spend in nature\, in someone’s embrace\, during intimacy. The time we spend making every single stroke\, every single flower\, every single moment. Fríða Katrín forges a new path after the stimuli of everyday life and slows down in the form of paintings. She mixes impressionism and pointillism into new works that focus on language and colorful nature as she intertwines reality with imagination. She opens herself to the physical and mental process as well as the awareness that lies behind every single stroke.With her oil paintings\, Fríða Katrín makes viewers pause at the boundary between body and environment and dwell there for a while.\n\nFríða Katrín Bessadóttir focuses on performances and their connections to Visual Arts. Her works deal extensively with the interplay between reality and fiction\, drawing upon both her personal experiences and those of others\, and reimagining them to either deceive the audience or prompt them to fill in the blanks. Having a background in both Fine Arts (BA)  and Performing Arts (MA) \, she has honed her skills through extensive independent work. She usually\, as a performer\, writes scripts\, acts\, directs\, makes costumes and builds stages.\n\nFríða Katrín has participated in various group exhibitions and projects such as creating a work for the Reykjanes Children’s Arts Festival\, designing and constructing an artwork for the City of Reykjavík (the troll Búri)\, showing in group exhibitions in both Denmark and Scotland\, performed for various artists in Iceland\, and Spain. As well as being a part of KANNSKI gallery.\nAll the pieces are for sale. The exhibit is open until March 18th.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/frida-katrin-bessadottir-opnun-malverkasyningar-i-fadmi-marka/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/02/unnamed-2-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260411T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260411T150000
DTSTAMP:20260403T191453Z
CREATED:20260403T191402Z
LAST-MODIFIED:20260403T191453Z
UID:10001286-1775916000-1775919600@hannesarholt.is
SUMMARY:Laura Valentino - Leiðsögn um sýninguna BORGARTRÉ
DESCRIPTION:Borgartré\nLaura Valentino veitir leiðsögn um málverkasýningu sína BORGARTRÉ Í Hannesarholti laugardaginn 11.apríl kl.14-15.\nLaura Valentino er myndlistarkona sem fæddist í Bandaríkjunum árið 1955 og hefur verið búsett í Reykjavík síðan 1988. Hún er með meistaragráðu í myndlist frá Kaliforníuháskóla í Berkeley. Laura vinnur með gamla ljósmyndatækni\, listgrafík\, pastelmálun og heitt vax (encaustic). Verk hennar hafa verið sýnd víða\, bæði innanlands og utan. Sjá frekari upplýsingar á slóðinni www.lauraval.comÞessi sería er sjónræn túlkun á þéttbýlisskógrækt í Reykjavík. Viðfangsefni Lauru er að finna í skógum og almenningsgörðum í kringum Reykjavík\, t.d. í Öskjuhlíð\, Heiðmörk\, Elliðaárdal og við Tjörnina. Trén virðast vera gróðursett af handahófi og tilvist þeirra er háð veðri og vindum\, bæði náttúrulegum og pólitískum\, en þau lifa af. Og fegurðin skín í gegn.Laura kýs að mála tré sín með hágæða þurr-pastellitum\, því þeir hafa mestan litarefnisstyrk og hjálpa til við að fanga töfra þessara ómótstæðilegu trjáa. Er ekki kominn tími til að færa heiminum sterkari liti ? segir hún. Sýningin er sölusýning og stendur til 15.apríl.———–Urban Trees\nLaura Valentino offers guidance through her art exhibit URBAN TREES in Hannesarholt Saturday April 11th at 2-3 pm.\nLaura Valentino is a visual artist born in the United States in 1955 and based in Reykjavik since 1988. She has a Master of Arts degree from the University of California\, Berkeley and works with alternative photographic processes\, printmaking\, pastel painting\, and encaustic. Her work has been shown widely\, both locally and abroad.This series is a visual interpretation of urban forestry in Reykjavik. My subjects are found in the forests and parks around Reykjavik\, namely Öskjuhlíð\, Heiðmörk\, Ellíðaárdalur and my favorite\, Tjörnin. Sometimes haphazardly planted\, their existence subject to harsh elements both natural and political\, my trees are survivors. And the beauty shines through.I choose to paint my trees with high-quality soft pastels as they have the highest pigment concentration of any art medium\, perfect to portray the defiant beauty of these irresistible trees.How about bringing a little much-needed color to the world?See more information on her website at lauraval.com All the pieces are for sale. The exhibit is up until April 15th.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/laura-valentino-leidsogn-um-syninguna-borgartre/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/03/Birkitre_vid_Tjornina_web.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260418T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20260502T160000
DTSTAMP:20260417T141840Z
CREATED:20260416T120608Z
LAST-MODIFIED:20260417T141840Z
UID:10001288-1776520800-1777737600@hannesarholt.is
SUMMARY:LANDIÐ MITT - opnun myndlistarsýningar Áslaugar Saja
DESCRIPTION:Listamaðurinn og textílhönnuðurinn Áslaug Saja sýnir landslags- og abstraktverk innblásin af skynjun þess smáa og víðernum. Náttúruna fangar hún með blandaðri tækni á striga og notar akríl í ýmsum formum ásamt olíu og það sem hönd á festir. Viðkvæm en ríkuleg náttúran færir listamanninum hugarró og kraft. Áslaug Saja hefur unnið með munsturgerð\, þrykk og málun frá útskrift úr textíldeildum MHÍ og UIAH í Finnlandi og er óþreytandi í teikningu og málun með ólík efni. Sýningin er sölusýning og stendur frá 18.apríl til 6.maí. \nTextile designer and artist\, Áslaug Saja’s paintings are inspired by Icelandic nature and her emotions brought about when enjoying the outdoors. The microcosmos and vast scapes blend on canvas in an expressive way. The richness of our fragile nature brings such tranquility and enhancement to life. Áslaug Saja has worked with pattern\, printmaking and painting since her studies of textiles in MHÍ\, Iceland and UIAH in Finland. She enthusiastically experiments with drawing and painting in different media. The exhibit is open from April 18th to May 6th. All the pieces are for sale.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/abstrakt-landslag/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2026/04/IMG_5181-1-1-scaled.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR