BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20180101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190202
DTEND;VALUE=DATE:20190227
DTSTAMP:20210119T150157Z
CREATED:20210119T150157Z
LAST-MODIFIED:20210119T150157Z
UID:10000829-1549065600-1551225599@hannesarholt.is
SUMMARY:VATNSLITAMYNDIR MARGRÉTAR KOLKA HARALDSDÓTTUR
DESCRIPTION:Margrét Kolka Haraldsdóttir er fædd 1948 í Reykjavík. \nLauk kennaranámi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og rak Myndlistarskóla Garðabæjar í 15 ár ásamt Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur. Lauk MA prófi frá Háskóla Íslands og hefur kennt dönsku við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Margrét hefur unnið við brúðuleikhús og var um árabil formaður samtaka brúðuleikhússfólks\, UNIMA á Íslandi. \nMargrét Kolka hefur lagt stund á vatnslitamálun undanfarin ár og notið handleiðslu ýmissa kennara\, þar á meðal Erlu Sigurðardóttur\, Derek Mundell\, Bridget Woods\, Keith Hornblower og fleiri. \nHún hefur sýnt bæði með öðrum víðs vegar um landið og haldið einkasýningu í Listhúsi Ófeigs. Margrét Kolka er meðlimur í Félagi norrænna vatnslitamálara\, NAS og sýndi hún með félaginu í Norræna húsinu síðastliðið vor og mun einnig taka þátt í sýningu með þeim núna í vor í Wales á sameiginlegri sýningu Royal Watercolour Society of Wales og NAS.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vatnslitamyndir-margretar-kolka-haraldsdottur/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ljosmynd-af-mkh.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190302
DTEND;VALUE=DATE:20190328
DTSTAMP:20210119T145731Z
CREATED:20210119T145731Z
LAST-MODIFIED:20210119T145731Z
UID:10000828-1551484800-1553731199@hannesarholt.is
SUMMARY:MÁLVERKASÝNING EDDU GUÐMUNDSDÓTTUR
DESCRIPTION:Edda Guðmundsdóttir heldur tíundu einkasýningu sína í Hannesarholt dagana 2.-27.mars 2019. \nEdda hóf myndlistarnám sitt í Myndmáli Rúnu og var þar í sex vetur. Undanfarin ár hefur Edda verið í Myndlistarskóla Reykjavíkur í modelteikningu í frjálsri málun og nú síðast í vinnustofu í Myndlistarskólanum. Edda tók einnig námskeið í portrettmálun hjá David Kassan árið 2009. \nSýningin er opin á opnunartímum Hannesarholts\, alla daga nema mánudaga\, frá 11.30-17 þriðjudaga\, miðvikudaga og sunnudaga og frá 11.30-23 fimmtudaga\, föstudaga og laugardaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-eddu-gudmundsdottur/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/edda-gudmundsdottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190330
DTEND;VALUE=DATE:20190408
DTSTAMP:20210119T145605Z
CREATED:20210119T145605Z
LAST-MODIFIED:20210119T145605Z
UID:10000827-1553904000-1554681599@hannesarholt.is
SUMMARY:NIKULÁS SIGFÚSSON AFMÆLISSÝNING
DESCRIPTION:Í tilefni 90 ára afmælis Nikulásar Sigfússonar þann 1.apríl er efnt til yfirlitssýningar á vatnslitamyndum hans frá 1935-2018. \nSýningin opnar laugardaginn 30.mars kl. 15:00 í Hannesarholti Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík og stendur til sunnudagsins 7.apríl. Opið er frá þriðjudegi til sunnudags frá 11:30-17:00 og fimmtudaga til 22:00. \nNikulás og fjölskylda \nNikulás Sigfússon er fæddur 1.apríl 1929 á Þórunúpi í Hvolhreppi. Hann útskrifaðist sem stúdent frá MR 1950 og lauk prófi í læknisfræði 1958 frá Háskóla Íslands. Hann varð sérfræðingur í farsóttafræði 1967 og lauk doktorsprófi við Háskóla Íslands árið 1984. Hann vann lengst af sem yfirlæknir Hjartaverndar eða frá 1973-1999. \nMeðfram læknisstörfunum hefur Nikulás ávallt lagt stund á vatnslitamálun og spannar málaraferillinn nú rúmlega 70 ár. Nikulás er að mestu sjálfmenntaður í málaralistinni en hann sótti “Skóla frístundamálara” 1947- 48 þar sem hann naut leiðsagnar Kjartans Guðjónssonar\, auk þess sem hann sótti um skeið einkatíma hjá nokkrum þekktum vatnslitamálurum. \nNikulás hefur haldið 25 einkasýningar m.a. í Ásmundarsal\, Mokka\, Stöðlakoti\, Nýja Galleríinu og Sal Grafíkfélags Íslands. Einnig hefur hann tekið þátt í samsýningum.\nVerk eftir Nikulás eru m.a. í eigu Seðlabanka Íslands\, Sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi\, Hótel Sögu\, SÍBS\, Hjartaverndar og Læknafélags Íslands\, Noregs og Finnlands. Einnig hefur hann myndskreytt tímaritaforsíður og málað frímerki fyrir Neistann. Nýjustu verk Nikulásar eru frá árinu 2018 en á þessu ári fagnar hann níræðisafmæli sínu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/nikulas-sigfusson-afmaelissyning/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/pabbi-mala.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190409
DTEND;VALUE=DATE:20190509
DTSTAMP:20210119T145414Z
CREATED:20210119T145414Z
LAST-MODIFIED:20210119T145414Z
UID:10000826-1554768000-1557359999@hannesarholt.is
SUMMARY:BOÐAR OG BRIM - GUÐRÚN B. INGIBJARTSDÓTTIR
DESCRIPTION:Guðrún B. Ingibjartsdóttir heldur einkasýningu á vatnslitamyndum í Hannesarholti 13. apríl til 8. maí. 2019 \nGuðrún er fædd og uppalin á bænum Hesti við Ísafjarðardjúp. Guðrún er sjúkraliði og hefur unnið á Landsspítala/Háskólasjúkrahúsi lengst af en starfar nú á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík. \nGuðrún hefur málað með vatnslitum í rúm 20 ár alveg síðan hún fór fyrst á námskeið hjá Erlu Sigurðardóttur í Myndlistaskóla Kópavogs. Síðan hefur Guðrún sótt mörg námskeið í vatnslitamálun hér og einnig í Englandi og Frakklandi. Guðrún hefur haldið nokkrar einkasýningar og eina samsýningu. \nOpnun 15:00 til 17:00 þann 13. apríl 2019
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bodar-og-brim-gudrun-b-ingibjartsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/20180911_162827-765x430-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190510
DTEND;VALUE=DATE:20190615
DTSTAMP:20210119T145249Z
CREATED:20210119T145249Z
LAST-MODIFIED:20210119T145249Z
UID:10000825-1557446400-1560556799@hannesarholt.is
SUMMARY:VERÐUR OG FER SEM FER? / QUE SERA SERA?
DESCRIPTION:Þura – Þuríður Sigurðardóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist 2001 frá Listaháskóla Íslands. Þar áður sótti hún tíma í Myndlistaskóla Reykjavíkur og nam við listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1996-98. Hún sótti einnig námskeið í íkonamálun hjá prófessor Yuri Bobrov\, prófessor í íkonafræðum við Listakademíuna í St. Pétursborg. \nFrá námslokum hefur Þuríður unnið að myndlist og sýnt víða bæði innanlands og utan. Hún fæst fyrst og fremst við olíumálverk og viðfangsefnið er gjarnan náttúran\, stundum með þröngt eða óvænt sjónarhorn. Hún hefur kennt við Myndlistaskóla Reykavíkur og á eigin námskeiðum og verið sýningarstjóri. Þuríður var einn af stofnendum START ART listamannahúss sem starfrækt var frá árinu 2007 – 2009. Galleríið stóð fyrir listverkefninu „Laugavegurinn“ á Listahátíð í Reykjavík vorið 2009 með þátttöku fjölda listamanna og almennings. Í framhaldi var gefin út bókin LAUGAVEGURINN 2009 og þar sat Þuríður í ritstjórn. Þuríður hefur verið virk í félagsstörfum og m.a. setið í stjórn Sambands íslenskra listamanna og Bandalags íslenskra listamanna. Hún átti þátt í stofnun og rekstri Opna Gallerísins sem nýtti sér ýmis rými í 101 Reykjavík 2002-2003. \nÞuríður var valin bæjarlistamaður Garðabæjar 2004. \nÚr sýningarskrá: \nNýlega birti Veðurstofa Íslands niðurstöður nýrra mælinga á jöklabúskap Snæfellsjökuls.Talið er líklegt að jökullinn verði að mestu horfinn um miðja öldina. Hann hefur rýrnað mikið vegna hlýnandi loftslags síðustu áratugi og er flatarmál hans nú minna en 10 ferkílómetrar. Árið 1910 var flatarmálið um 22 ferkílómetrar. \nViðbrögð Guðmundar Inga Guðbrandssonar\, umhverfisráðherra\, við þessum fréttum voru á þá leið að sér þættu þetta dapurlegt: „Sem einstaklingur sem ólst upp við að hafa Snæfellsjökul í bakgarðinum\, þá eru þetta náttúrulega alls ekki góð tíðindi fyrir okkur Íslendinga.“ Síðan fór hann út í samhengið á heimsvísu og pólitísk viðbrögð við loftslagsbreytingum. Ráðherra dró ekki dul á þá persónulegu tilfinningu sem bærist í brjósti svo margra þegar maður skynjar breytingarnar í sínu nánasta umhverfi. Umhverfi sem er svo mikið meira en bara landslag eða sjóndeildarhringur. Ef til vill er það einmitt þá sem fólk vaknar til vitundar af alvöru. Jökullinn er nefnilega langt frá því að vera bara að jafnaði um 30 metra metra þykkur ís sem hylur um 10 ferkílómetra lands. Hann er fyrst og fremst dulmagnað náttúrufyrirbæri sem hefur örvað náttúruskynjun og sköpunargleði manna alla tið. \nÍ skáldsögu Halldórs Kiljans Laxness\, Heimsljós (1937–40) um skáldið og sveitarómagann Ólaf Kárason er lýst leit hans að fegurðinni: „Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt\, en jörðin fær hlutdeild í himninum\, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg\, þar ríkir fegurðin ein\, ofar hverri kröfu.“ Snæfellsjökull er sögusvið bókarinnar Leyndardómar Snæfellsjökuls eftir Jules Verne\, en söguhetjan ferðast að miðju jarðarinnar frá jöklinum. Hann hefur birst í málverkum Muggs\, Jóhannesar S. Kjarvals\, Júlíönu Sveinsdóttur\, Kristínar Jónsdóttur og fjölda annarra listamanna. Margir telja að frá Snæfellsjökli stafi sérstök jarðorka og finna sumir mjög sterk áhrif frá jöklinum. Telja þeir hann vera eina af sjö stærstu orkustöðvum jarðar og nágrenni hans kjörlendi til heilunar. \nÞað er því ekki að undra að tilhugsunin um að þessi fastapunktur í tilverunni muni hverfa sjónum okkar og þar með úr hugskoti okkar hafi djúpstæð áhrif. Á degi jarðar fyrir þremur árum\, skömmu áður en hið svokallaða Parísarsamkomulag var undirritað\, fann listamaðurinn Þura sig knúna til þess að tjá hugsanir sínar um áhrif loftslagsbreytinga í myndverki. Viðfangsefnið varð ósjálfrátt Snæfellsjökull\, jökullinn sem hún ólst upp með „í bakgarðinum.“ Síðan þá hefur efnið sótt æ sterkar á hana og málverkin safnast upp í þá sýningu sem hér um ræðir. Náttúruvernd og umhverfisvitund hafa þó alla tíð verið hluti af listsköpun Þuru með beinum og óbeinum hætti. Sem dæmi tókst hún á við náttúru votlendisins\, mýrarnar með sínu gróðurlífi\, vatnafari og mýrarrauða. Stór hluti votlendis hér á landi hefur tekið miklum breytingum vegna breyttrar vatnstöðu í kjölfar framræslu. Mýrar hafa að geyma ógrynni af kolefni og allar breytingar í kolefnisbúskap þessara vistkerfa því mikilvægar á hnattræna vísu. Þura beindi sjónum sínum\, og okkar um leið\, að þessu einstaka náttúrufyrirbæri. \nNú eru það jöklarnir. Snæfellsjökull fer fremstur í flokki en margir aðrir koma við sögu\, til að mynda Öræfajökull\, Eiríksjökull og Eyjafjallajökull. Þura gengur lengra en að mála eftirmyndir af jöklunum\, þeim bregður vissulega fyrir en að stærstum hluta virðist sem þeir séu að leysast upp\, bráðna\, leka niður\, verða gegnsæir og jafnvel algerlega ósýnilegir. Stundum vart annað en minning. Þegar rýnt er í undirlag málverkanna kemur ýmislegt í ljós\, því þar leynist annar myndheimur af ólíkum toga. Á stöku stað glittir í fyrrnefnt votlendi. Þá bylgjur norðurljósa. Eða silfraða frostpolla. Þegar allt kemur til alls eru jöklamálverk Þuru öll unnin á undirlag eldri málverka. Þar má sjá kunnugleg þemu frá fyrri myndaröðum hennar. Þannig kemur í ljós marglaga tilfinning fyrir tíma\, því að náttúrufyrirmyndir listamannsins eiga tilvist sína undir kosmískum tímaskala en um leið finnum við nú á eigin skinni að þau geta máðst út á einni mannsævi ef ekki skemur. Málverkin eru frá tveimur tímaskeiðum sem minnir á hvernig tíminn líður „á okkar vakt“ án þess að við fáum nægilega mikið að gert til þess að stemma stigu við ógninni. Eða hvað hefur áunnist siðan Parísarsáttmálinn var undirritaður? Loks er það tími málverksins\, sem nostursamlega unnin málverk Þuru frá fyrri tímabilum bera svo glöggt vitni en svo bregður við allt annan tón í hinu nýja yfirlagi jöklamyndanna sem virðast unnar í einu vetfangi\, í miklu flæði og ekki að fullu undir stjórn listamannsins. Ekki einu sinni hvítir rammarnir ná að stöðva öra framrásina. \nSíðast en ekki síst læðist að manni hugmyndin um einhvers konar fórn. Eða er ekki algjör synd að mála yfir þessi fallegu verk frá fyrri tíð? Hér kallast á eftirsjá eftir einhverju sem var og sú áskorun að taka sig taki og horfa fram á veg. Í stað depurðar yfir missinum vaknar uppörvunin við að endurnýta\, njóta augnabliksins en leyfa því síðan að líða hjá og gleðjast yfir einhverju nýju. Jöklamyndir Þuru eru margræð áminning í umræðu sem – til allrar hamingju – hefur stigmagnast á þeim fáu árum frá því að málarinn hófst handa við fyrstu verkin á sýningunni. \nEnglish: \nQue sera sera ? \nÞura – Þuríður Sigurðardóttir \nStarting May 10th – 2019 \nthura@thura.is \nRecently Iceland’s Weather Bureau released new findings from glacier research of Snaefellsjokull glacier. It is estimated that the glacier will have for the most part disappeared around 2050. It has shrunk considerably due to warmer climate in recent decades down to less than 10 square kilometers\, down from 22 in 1910. \nThe reaction of Gudmundur Gudmundsson\, Minister of the Environment\, was that of sadness. „As someone who grew up having Snaefellsjokull glacier in the back yard\, this is bad news for us Icelanders.“ He went on to discuss the global context and political response to global warming. He shared his personal feelings for so many who experience these changes in their nearest surroundings. Perhaps that is precisely when people wake up to the reality facing the world\, when it cuts close to home. The glacier is not merely a 30 meter thick ice cap on a land of about 10 square kilomters. It is first and foremost a mysterious natural phenomenon which has stimulated creativity and a sense of nature throughout the ages. \nIn Halldor Kiljan Laxness’ novel Light of the World (1937-40) he describes the protagonist’s Olafur Kárason’s search for beauty in these terms: „Where the glacier touches the sky the land ceases to be of this earth and becomes a part of heaven\, where no sorrows exist and therefore joy is not necessary\, there beauty alone reigns\, far and beyond any demand.“ Snaefellsjokull glacier is the setting for Jules Verne’s Journey Through the Center of the Earth\, in which the protagonist travels into the Center of the Earth through the glacier. It has also appeared in the paintings of Icelandic painters Muggur\, Johannes S.Kjarval\, Juliana Sveinsdottir and Kristin Jonsdottir to name but a few. Snaefellsjokull glacier is thought to have unique energy and there are those who have described profound experiences in it’s proximity. They believe it to be one of the seven chakra’s of the world and the surrounding area an ideal location for healing. \nThus\, it is little wonder that people are alarmed at the prospects of this North Star of our existence in Iceland disappearing for our very eyes and from our imaginations. On Earth day\, three years ago\, shortly before the Paris Resolution was signed\, the artist Thura found herself compelled to express her thoughts on the effects of global warming in a painting. The model Snaefellsjokull glacier came automatically to her\, the one she grew up with in the back yard. \nSince then she has been haunted by this topic and the paintings for this exhibit came into being. Nature preservation and awareness has always been a part of Thura’s creative work\, directly or indirectly. She grew up with wetlands\, the myres with their unique flora\, „vatnafari og mýrarrauði..“ A considerable decrease in the areas still considered wetlands in Iceland has occured due to shrunk water levels …..“vatnsstöðu í kjölfar framræslu.“ The myres have an abundant amount of CO\, and therefore those changes have global implications. Thura turned her focus to these unique scenarios in nature\, and thereby raised our awareness as well. \nNow it is the glaciers. Snaefellsjokull glacier is her main concern\, but others are a part of the story as well: Oeraefajokull glacier\, Eiriksjokull glacier and Eyjafjallajokull glacier. Not only does Thura paint pictures of the glaciers\, they are portrayed as disappearing\, melting\, leaking\, becoming transparent and eventually entirely invisible. Sometimes hardly more than a memory. When one peers into the layer behind the paintings a world of other images emerges. In places one can trace the aforementioned wetlands. Northern lights as well\, or frozen silvery ponds. Thura’s paintings of glaciers are painted on top of older paintings. One can notice glimpses of some of her earlier collections\, producing a layered feeling of time. The natural phenomena painted by the artist exist on a cosmic time scale\, yet simultaneously we realise that they can disappear during our lifetime. The paintings come from two time periods\, reminding us of time passing during „our wach\,“ while we stand helplessly by. Or\, what has been gained since the Paris resolution was signed ? Then there is the time of the painting. Thura’s former collections were characterised by meticulously finished pieces\, while the new paintings seem created swiftly\, „í miklu flæði“ not quite under the control of the artist. The white frames hardly even manage to contain the meltdown. ( Tillaga að breytingu: The artist has expressed why she breaks with her habit of not framing her paintings – this collection she wanted framed in order to try and contain the meltdown.) \nLast but not least the thought of a sacrifice presents itself. Or is painting over beautiful pieces from earlier collections not a waste ? The balance here is between regret over something that is ceasing to be and the challenge of pulling oneself together and looking ahead. Instead of being full of sorrow over the loss\, the recycling stimulates and there is joy in the moment\, which then passes and something else will come along to be enjoyed. Thura’s collection of glacier paintings is a multilayered contribution to a dialogue\, which\, thankfully\, has matured speedily during the few years since the artist started on the first paintings for this exhibit. \nMy Markus Thor Andresson \nthura@thura
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/verdur-og-fer-sem-fer-que-sera-sera/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/que-sera-sera.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190817
DTEND;VALUE=DATE:20190902
DTSTAMP:20210119T145028Z
CREATED:20210119T145028Z
LAST-MODIFIED:20210119T145028Z
UID:10000824-1566000000-1567382399@hannesarholt.is
SUMMARY:ÚR UNDRAKISTU ALHEIMSINS - JÓN VILHJÁLMUR STEFÁNSSON
DESCRIPTION:Jón Vilhjálmur Stefánsson / John William Stepenson opnar myndlistarsýningu sína í Hannesarholti þann 17. ágúst kl 15. Þetta er önnur sýning listamannsins á Íslandi. \nÞegar Jón Vilhjálmur Stefánsson hóf nám við UC Berkeley Listakademíuna var hann rétt 18 ára að aldri. Allar götur síðan hefur hann helgað sig myndlistinni sem ber keim keim af ólgu 68 kynslóðarinnar. \nEn það var fleira sem mótaði heimsýn hans\, því í uppvextinum hafði JV greiðan aðgang að vísindamönnum og prófessorum við Berkeley háskólann. Móðir hans Katrín vann þar á efsta gólfi sem framkvæmdastjóri rektorsskrifstofunnar. Katrín varð ekkja þegar Jón var fjögurra og því skottaðist hann oft í kringum hana á skrifstofunni í lok langra vinnudaga hennar. Á þessum tíma voru straumhvörf á sviði vísinda ekki síst hvað öreindir og kjarnorku varðaði. Þau fræði voru mjög tíðkuð af vísindamönnum Berkeley háskóla og ýmislegt vakti bæði undrun og áhuga ungs listamanns. \nVerk Jón Vilhjálms eru litrík akrílverk á striga og innblásturinn stærstu og smæstu einingar efnisheimsins\, á grunni líf- og eðslisfræði. Tónlistargen hans er jafnframt mikilvægur drifkraftur sem endurspeglast í kraftmiklum litum og formum. \nJón Vilhjálmur er borinn og barnfæddur í Bandaríkjunum\, en móðir hans Katrín Árnadóttir varð viðskila við fjölskyldu sína ung að árum á átakanlegan hátt. Móðir Jóns Vilhjálms\, Katrín náði ekki sambandi við fjölskyldu sína á ný fyrr en hún var orðin 17 ára gömul. Eftir að hún varð ekkja með ungan son sinn dvaldi hún með Jón Vilhjálm í eitt ár heima á Íslandi\, en þess utan ól hún hann upp í Berkley í Kalíforníu\, fjarri íslenskum skyldmennum. \nMóðir Katrínar\, Kristrún Tómasdóttir Benediktsson var merk tónlistarkona\, píanisti og myndlistarkona\, sem þar að auki hafði ótæmandi áhuga á vísindum og þá aðallega stjörnu- og eðlisfræði. \nTónlist frá síðari hluta 19. aldar sem var veruleiki ömmu Jóns var vissulega afar ólík þeirri sem réð ríkjum hjá ungu fólki á hippárunum og mótaði Jón Vilhjálm. Það voru ekki norðurljós og stjörnur himinvolfanna eins og dregið höfðu ömmu hans að eðlifræðinni\, heldur kjarnorkan og byltingin sem fylgdi þekkingunni við að kljúfa atómin. Af eðlisfræðinni stafaði nú fremur ógn en rómantískar hugleiðingar frá tíð ömmunnar. Engu að síður er samhljómurinn við eiginleika og viðfangsefni móðurömmunar og Jóns Vilhjálms sláandi. \nUmsjón með sýningunni hefur Ásta Kristrún Ragnarsdóttir í Bakkastofu á Eyrarbakka en hún og Jón Vilhjálmur eru systkinabörn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-undrakistu-alheimsins-jon-vilhjalmur-stefansson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/d2-15-key-to-the-highway-91x1-30.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190901
DTEND;VALUE=DATE:20191002
DTSTAMP:20210119T144702Z
CREATED:20210119T144702Z
LAST-MODIFIED:20210119T144702Z
UID:10000823-1567296000-1569974399@hannesarholt.is
SUMMARY:LITSKÚRALEIÐINGAR VIÐ ÆGISSÍÐU - KRISTJÁN JESSEN
DESCRIPTION:Kristján R. Jessen er fæddur í Reykjavík 1949. Hann lauk doktorsprófi í taugavisindum við University College London 1980\, hefur verið þar professor siðan 1993 og rekið umfangsmiklar rannsóknir a úttaugum\, einkum þroskun þeirra á fósturskeiði og taugaviðgerdum eftir slys eða skemmdir. Kristján hefurur sótt myndlistarnámskeið í Myndlista- og handiðaskóla Íslands\, stundað myndlist í hjáverkum í fjölda ára og tekið þá í samsýningu (Westminster Artists) í London\, en þetta er fyrsta einkasýning hans. \nFlestar myndanna eru byggðar a gömlu grásleppukofunum vid Ægissíðu. Þeir eru eru komnir að hruni\, og verða brátt fjarlægðir til endurbyggingar í upphaflegri mynd. Myndirnar fjalla um þessi gömlu hús í því sérstaka ástandi sem eru nú í\, eftir margra ára ágang veðurs\, vinda og óþekktarorma.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/litskuraleidingar-vid-aegissidu-kristjan-jessen/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/screen-shot-2019-08-27-at-15.20.37.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20191005
DTEND;VALUE=DATE:20191026
DTSTAMP:20210119T144531Z
CREATED:20210119T144531Z
LAST-MODIFIED:20210119T144531Z
UID:10000822-1570233600-1572047999@hannesarholt.is
SUMMARY:HVÍSLIÐ Í DJÚPINU - HELGA SIGRÍÐUR VALDEMARSDÓTTIR
DESCRIPTION:Svo virðist sem áhugi myndlistarmanna á andlegum viðfangsefnum hafi aukist á undanförnum árum\, en það má greina með auknum fjölda sýninga sem fjalla um slík efni. Þrátt fyrir þá staðreynd virðast listfræðingar og sýningarstjórar gjarnan líta fram hjá þeim áhrifum sem andleg iðkun listamanna hefur haft á inntak verka þeirra og veitist þeim oft erfitt að skilgreina og túlka dýpra innihald listaverkanna. Eflaust er megin ástæðan sú að hugmyndin um hið andlega virðist ekki samrýmast hugmyndum okkar um samtímalistir og menningu almennt. \nEn hvað er hið andlega? Er það hugtak gjaldgengt í vitsmunalegri umræðu um list? Í þeirri hugmyndafræði sem nútímalisthugsun spratt upp af var hið andlega í listinni nánast lykilhugtak\, samanber kenningar Wassily Kandinsky Um hið andlega í listinni. Þegar talað er um hið andlega í listum er annars vegar átt við; andann í listinni\, þann kraft sem býr í listaverkinu og hefur áhrif á þá sem njóta þess\, og hins vegar túlkun listamannsins á andanum eða hinu yfirskilvitlega. \nYfirskrift sýningarinnar Hvíslið í djúpinu er vísun í andlega upplifun listamannsins Helgu Sigríðar Valdemarsdóttur sem hún varð fyrir við vinnslu verkanna. Verkin sýna hluti sem ekki eru sýnilegir sem slíkir\, þau líkja ekki eftir því sem vanalega sést\, en engu að síður sýna þau hluti sem eru til eða hafa verið til samkvæmt dulspekilegum kenningum og er þar af leiðandi hægt að sýna á hlutbundinn hátt. Verkin miðla hugmyndum um hina dulrænu fjórðu vídd\, þau eru frumspekileg og miðla andlegri vídd innsæis og æðri sannleika\, eða eins og listamaðurinn orðaði það sjálfur: \n„Verkin mín hafa yfir sér einhvers konar hugleiðslublæ. Sömu smáatriðin eru endurtekin í sífellu\, líkt og þegar mantra er kyrjuð og orðin endurtekin í stöðugum takti. Einn ákveðinn litur er afgerandi í myndunum mínum – til að ná fram ró\, mýkt og mætti litarins. Liturinn hefur aðdráttarafl og hreyfir við manneskjunni. Ég vinn myndirnar mínar út frá miðju (rödd sálarinnar) í algjöru flæði sem er í stöðugri útvíkkun.“ \nAf orðum listakonunnar má ráða að hún hafi upplifað yfirskilvitleg svið. Í verkunum má öðlast innsýn í þá andlegu handleiðslu sem Helga hefur hlotið í gegnum heilun og hugleiðslu\, þar sem myndefnið kemur beint í gegnum hana\, án undirbúnings og af miklu afli. Segja má að málverkin á sýningunni vísi ekki í þann hverfula heim sem augað sér\, heldur séu þau leið til að öðlast dýpri skilning á því sem kalla mætti hinn sanna\, andlega heim. Hlutverk listamannsins er ekki að sýna það sem hann sér heldur það sem er. \nHelga Sigríður Valdemarsdóttir (f. 1975) útskrifaðist af Mynd- og handíðarbraut VMA 1997 og lauk diplómanámi í myndlist frá Myndlistarskólanum á Akureyri 2003. Hún hefur haldið fjölmargar einkasýningar á Akureyri. Meðfram myndlistinni hefur Helga starfað sem heilari undanfarin ár. \nVigdís Rún Jónsdóttir\nListfræðingur
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hvislid-i-djupinu-helga-sigridur-valdemarsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/71051458_10218624419975842_2215005374321262592_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20191011
DTEND;VALUE=DATE:20191021
DTSTAMP:20210119T144350Z
CREATED:20210119T144350Z
LAST-MODIFIED:20210119T144350Z
UID:10000821-1570752000-1571615999@hannesarholt.is
SUMMARY:SLAUFUR OG HÖFUÐFÖT / BOWS AND HATS
DESCRIPTION:ENGLISH BELOW\nUtan dagskrár – List án landamæra \nAðgengi: Rautt. Sýningarrýmið er óaðgengileg fyrir fólk með hreyfihömlun. \nHalldóra S. S. Bjarnadóttir sýnir prjónaðar slaufur fyrir smáhunda og fólk í Hannesarholti. Öll verkin á sýningunni eru til sölu. \nHalldóra Sigríður Steinhólm Bjarnadóttir er fædd í Reykjavík þann 26. janúar 1989. Hún lauk grunnskólaprófi frá Suðurhlíðaskóla 2005 og námi frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 2009. Halldóra stundaði nám við Hússtjórnarskólann á Hallormsstað 2010 og lauk diplómanámi fyrir nemendur með þroskahömlun frá Háskóla Íslands 2013. \nOpið á opnunartíma Hannesarholts. þriðjudag – sunnudag 11:30-17:00 (hálf 12 til 5) nema fimmtudag 11:30-22:00 (hálf 12 til 10). Lokað mánudaga. \nENGLISH \nOff-Venue\nSlaufur og höfuðföt (Bows and Hats)| Halldóra S. S. Bjarnadóttir\nDate: October 11th – 20th\nTime: Grand opening October 11th at 2pm\nLocation: Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, 101 Reykjavík\nOpening Hours: Open during Hannesarholt’s opening hours. Tuesday – Sunday 11.30am to 5pm except on Thursdays from 11.30am to 10pm. Closed Mondays. \nEvent description: Halldóra S. S. Bjarnadóttir shows knitted bow ties for small dogs and people in Hannesarholt. All the exhibited works are for sale.\nAccess: Red. The exhibition is inaccessible to people with disabilities. Halldora is born in 1989. After compulsory education she studied at Reykjavik’s vocational school Iðnskólinn\, The home ec. school in Hallormsstaður and received a Diploma for people with disabilities from the University of Iceland. \nThis is Halldora’s second exhibit at Hannesarholt in connection with Art without boarders – off venue this time.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/slaufur-og-hofudfot-bows-and-hats/
LOCATION:Risloft\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/70513285_2394884757231473_7686629714688999424_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20191026
DTEND;VALUE=DATE:20191116
DTSTAMP:20210119T144216Z
CREATED:20210119T144216Z
LAST-MODIFIED:20210119T144216Z
UID:10000820-1572048000-1573862399@hannesarholt.is
SUMMARY:SURTSEY - NÝR HEIMUR
DESCRIPTION:Þórunn Bára Björnsdóttir opnar þriggja vikna sýningu í Hannesarholti þann 26. október 2019 klukkan 15. Þórunn Bára vinnur með náttúruskynjun og telur að meðvituð skynreynsla sé nauðsynleg viðbót við framlag náttúruvísindanna og hvetji til gagnrýninnar hugsunar og aukinnar ábyrgðar einstaklingsins á umhverfi og eigin lífi. List þarf að upplifa og verður seint útskýrð. Náttúran hefur mótað lífssýn þjóðarinnar í gegnum aldirnar. Við erum náttúra. \nÞórunn Bára vinnur verk sýn með tilvísun til þróunar lífs í Surtsey og beinir sjónum að fléttum á hraunhellum\, landnámi mosa í eldfjallajarðvegi\, frumgróðri í fjöru og bólfestu plantna á hrjóstrugu undirlagi. Hún vekur þannig athygli á hinu smáa en mikilvæga í vistkerfi jarðar: vistkerfi sem nú er ógnað af auknum hraða hnatthlýnunar og eyðingu skóga víðsvegar um heiminn. \nÞórunn Bára lauk myndlistarnámi frá Listaháskólanum í Edinborg og Wesleyan háskóla í Bandaríkjunum. Hún hefur haldið fjölmargar sýningar hérlendis og erlendis. Þórunn Bára er félagi í SÍM. \nSjá nánar um verk hennar á vefsíðunni www.thorunnbara.is og á Facebook: Thorunn Bara Bjornsdottir@thorunnbara. Netfang; thorbara@gmail.com og sími 6621845. \nSurtsey\, a new beginning: Beauty is in the ordinary \nThorunn Bara is an Icelandic contemporary artist\, graduated from ECA in Scotland and Wesleyan University\, Ct.\, USA. She concerns herself with our often troubled relationship with natrue and aims to draw attention to nature by lifting up ordinary\, important and often overlooked plant species. \nShe gets inspiration from a newly formed island named Surtsey\, South of Iceland\, which was formed by a sub-ocean volcanic eruption some 55 years ago. Surtsey is an open laboratorium for natural scientists who study how life settles on a barren ground. Surtsey is on UNESCO world heritage list. \nYou can follow Thorunn Bara on Facebook at Thorunn Bara Bjornsdottir@thorunnbara and viewed on her home-page: www.thorunnbara.is Contatact information: phone: +3546621845 and e-mail: thorbara@gmail.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/surtsey-nyr-heimur/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/img_4773.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20191116
DTEND;VALUE=DATE:20191129
DTSTAMP:20210119T144100Z
CREATED:20210119T144100Z
LAST-MODIFIED:20210119T144100Z
UID:10000819-1573862400-1574985599@hannesarholt.is
SUMMARY:VERNDARVÆTTIR ÍSLANDS - SIGRÚN ÚLFARSDÓTTIR
DESCRIPTION:Sigrún Úlfarsdóttir opnar sýningu sína Verdarvættir Íslands laugardaginn 16.nóvember kl.15. Sýningin er sprottin upp úr vinnu þar sem Sigrún stúderaði indverska heimspeki og orkustöðvar ayurveda-fræðanna í tengslum við hönnun skartgripa. Hún vildi gera myndverk í kringum viðfangsefnið\, þar sem skartgripalína virkaði eins og eitt atriði í risastóru myndrænu konsepti\, þar sem myndist og hönnun kölluðust á eins og tveir andstæðir pólar. Samtímis vildi hún tengja Ísland við þessa skartgripi og mátaði hugmyndina með því að setja hana beint út í náttúruna. Samruni íslensks landslags og indverskrar goðafræði gæti virkað nokkuð óvænt við fyrstu sýn. Þessi tvö myndefni eru ósamstæð en hafa samt það sameiginlegt að vera svolítið yfir-náttúruleg. \nÁ Íslandi erum við alin upp við að það séu alls kyns ósýnilegar verur á ferli um landið. Það eru álfar og huldfólk og margt fleira. Sumar verur þekkjum við en aðrar ekki. Þetta er hluti af heimsmynd íslendinga og menningu. Þannig geta þessar undraverur allt eins fyrirfundist á Íslandi\, við höfum kannski ekki séð allt sem í ósýnilegu víddinni. Sigrún sér þessar verur fyrir sér ósýnilegar eins og huldufólk\, en vinveittar og verndandi fyrir Ísland. \nSigrún setur kristalla inn í landslagið. Það passar vel þar sem íslensk náttúra er eins og kristall\, tær og af henni stafar sérstakri birtu. Kristallarnir tjá þessa birtu og hreinleika náttúrunnar. Nokkrar myndir eru teknar á Vestfjörðum. Hver veit nema þessir guðir og verur séu mikið þar um þessar mundir? Náttúruvættir Íslands hljóta að hafa efasemdir um virkjanir og allt annað náttúrurask sem á sér stað á landinu. \nSigrún Úlfarsdóttir lærði myndlist í MHí og fór síðan til Parísar og lærði þar fatahönnun. Í framhaldi vann hún við ýmsa hönnun í París og fyrir nokkur tískufyrirtæki þar\, m.a. Karl Lagerfeld\, Hervé Léger\, Balmain og Swarovski. Hún hefur unnið við fata-\, leður- og skartgripahönnun\, bæði fyrir þessi fyrirtæki og fyrir eigið fyrirtæki DL. Sigrún hefur einnig búið í Moskvu í nokkur ár og unnið þar sem búningahönnuður í leikhúsum þeirrar borgar. Í raun hefur Sigrún verið mikið á Íslandi samtímis því að hún hefur búið í París og þannig lifað á mörkum franskra og íslenskra áhrifa. Hún hefur verið með nokkrar hönnunarlínur til sölu á Íslandi og í Frakklandi undanfarin ár. \nSýningin stendur aðeins í tvær vikur og lýkur fimmtudaginn 27.nóvember.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/verndarvaettir-islands-sigrun-ulfarsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/verndarvaettir-.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20191130
DTEND;VALUE=DATE:20200105
DTSTAMP:20210119T143921Z
CREATED:20210119T143921Z
LAST-MODIFIED:20210119T143921Z
UID:10000818-1575072000-1578182399@hannesarholt.is
SUMMARY:LEIÐ MÍN AÐ SILKINU/ MON CHEMIN VERS LA SOIE
DESCRIPTION:Louisa St. Djermoun opnar sýningu sína í Hannesarholti \n„Leið mín að Silkinu – Mon chemin vers la Soie“ laugardaginn 30. nóvember kl. 15-17. \nLouisa er 47 ára íslensk /frönsk-alsírsk myndlistarkona\, fædd og uppalin í Reykjavík\, sem verið hefur búsett í Frakklandi síðastliðin 18 ár. \nÞetta er önnur myndlistarsýning Louisu á Íslandi á þessu ári en hún hefur einnig tekið þátt í fjölmörgum sýningum víðsvegar í Frakklandi og var verk hennar t.a.m. valið besta verk sýningar evrópuhússinns í Montpellier á viku listarinnar í október á þessu ári. \nSýningin í Hannesarholti markar hennar fyrstu skref inn í textíl heiminn þar sem hún mun við þetta tækifæri\, auk málverka\, kynna nýja línu af silkislæðum undir vörumerkinu Louisa St. Djermoun / LSD.\nOpnunin verður haldin við undirleik Afro/Cuban kvartetts Einars Scheving\, sem auk Einars er skipaður Ara Braga Kárasyni á trompet\, Eyþóri Gunnarssyni á píanó og slagverk og Róberti Þórhallssyni á bassa. \nLouisa er fædd og uppalin í Skerjafirðinum í Reykjavík en hefur búið í Frakklandi meira og minna sl. 18 ár. Hún er með B.A gráðu í Sjónlistum eða Les Arts Plastiques frá Panthéon-Sorbonne Paris 1 Háskóla og kennararéttindi frá LHI. Frá námslokum hef hún\, samhliða því að sinna kalli listargyðjunnar\, starfað sem kennari og leiðsögumaður\, auk þess að ala upp þrjá yndislega drengi. \n„Ég hef lengi litið á ljósmyndalinsuna sem mitt þriðja auga og undanfarin 15 ár hef ég verið að þróa tækni\, sem ég kalla „Louisu list“ þar sem ég vinn með eigin náttúruljósmyndir sem forgrunn ásamt málningu á striga og öðrum „viðskiptarleyndarmálum“ til að ná fram þeirri áferð eða loka-mynd af náttúruforminu sem ég vil hafa á striganum“. \n„Ég skilgreini mig sem afstæðu-náttúrumyndlistarmann\, náttúra og litir hafa alltaf verið aðal viðfangsefnið mitt þegar að myndlistinni kemur. Ég leitast í verkum mínum við að ná fram þrívíðri áferð til að ná fram minni sýn á náttúrunni í návígi. Allt frá því að ég var lítil stelpa í Skerjafirðinum þá átti efnisáferð náttúrunnar\, fjaran\, sjórinn og grófu stráinn hug minn allan og hafa enn.“ \nÉg hef lengi gengið með þá hugmynd í maganum að koma verkunum mínum í textíl og valdi fyrir frumraunina hágæða 100% Mulberry Silk Twill í slæður sem tel að nái vel að endurspegla verkin mín. \nSýningin verður opinn á opnunartíma Hannesarholts (www.hannesarholt.is) frá 30.11.2019 – 13.1 2020.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leid-min-ad-silkinu-mon-chemin-vers-la-soie/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/78651121_2869637963066966_7704497959756365824_o.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200108
DTEND;VALUE=DATE:20200131
DTSTAMP:20210119T143756Z
CREATED:20210119T143748Z
LAST-MODIFIED:20210119T143756Z
UID:10000817-1578441600-1580428799@hannesarholt.is
SUMMARY:HIRSLA PANDÓRU - KRISTINN ÖRN GUÐMUNDSSON
DESCRIPTION:Kristinn Örn Guðmundsson er grafískur hönnuður og kvikmyndagerðamaður. Á sýningunni í Hannesarholti sýnir hann stafræna myndlist / ljósmyndaverk. Myndirnar eru unnar þannig að ýmist tekur Kristinn ljósmyndir og vinnur síðan út ákveðinn grunn frá þeim í myndsköpun sinni. Hann gerir einnig 3víddar myndir og vinnur þær með blandaðri tækni með ljósmyndum\, ýmsum bakgrunnum og grafík í stafrænni myndvinnslu. \nHann hefur sýnt t.d. myndaröð frá Gásum í San Benedetto del Tronto á Ítalíu á samsýningu ásamt 73 alþjóðlegum listamönnum árið 2017. Hann hélt fyrstu einkasýningu sína í Gallerí Gróttu apríl 2018. Þá hefur hann verið með einkasýningu í menningarhúsinu Bergi á Dalvík febrúar 2019. \nMyndir eftir hann upp á veggjum á nýju 4 stjörnu hóteli\, Landhótel í Landsveitinni. Ljósmyndir og stafræn myndlist hafa verið birt í erlendum tímaritum eftir hann. Mætti nefna t.d. í Living the photo artistic life og EikonCultureMagazine Hann er hluti af hópi sem nefnist Kaizen og þar er markmiðið að vinna í stafrænni myndlist og í leiðinni vera stöðugt að uppfæra færni í þessari listsköpun. \nKristinn stundaðir nám hjá SAE Institute/Quantm College á Englandi í 3víddar hönnun og hreyfimyndagerð\, þá tók hann einnig heimildamyndagerð frá Documentary Filmmakers Group. Á sínum tíma lærði hann rafeindavirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík. Hann hefur meðal annars gert heimildamyndina Bréfmiði til Páls\, um listamanninn Pál frá Húsafelli. Kristinn hefur unnið sem kvikmyndagerðamaður\, grafískur hönnuður ásamt ýmsu öðru. Hluti af áhugamálum hans eru ferðalög\, ljósmyndun og grafísk myndvinnsla. Út frá þeim vinnur hann stílfærð listaverk með tölvutækninni. Fleiri myndir eftir Kristinn má finna á heimasíðu hans: www.iceon.art
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/11270/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/kristinnorn_2020_303.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200201
DTEND;VALUE=DATE:20200227
DTSTAMP:20210119T143606Z
CREATED:20210119T143606Z
LAST-MODIFIED:20210119T143606Z
UID:10000816-1580515200-1582761599@hannesarholt.is
SUMMARY:VEISLA - HANNA HLÍF BJARNADÓTTIR
DESCRIPTION:Hanna Hlíf Bjarnadóttir opnar sýningu á málverkum sínum í Hannesarholti\, Grundarstíg 10 laugardaginn 1. febrúar kl 15. \nHanna Hlíf stundaði nám í myndlist við fagurlistabraut Myndlistarskólans á Akureyri 2003-2006. Hún hefur tekið þátt í samsýningum og haldið nokkra einkasýningar síðan hún útskrifaðist. Hanna Hlíf var einn af stofnendum gallerís Skúmaskots 2012 og rak Gallerí Box á Akureyri á árunum 2004 – 2007. Hún er einn af höfundum matreiðslubókar fyrir grænkera – Eldhús grænkerans – sem út kom 2016. Hanna Hlíf er gestaskrifari síðunnar Hámarksheilsa og heldur úti facebook-síðunni Eldhús grænkerans. \nMálverkin á sýningunni bera ástríðu Hönnu Hlífar fyrir að mála og elda ríkulegan vott. Í nýlegu viðtali í Morgunblaðinu segir hún m.a. um myndirnar: \,\,Ég starfaði um tíma sem gestapenni hjá tímaritinu Gestgjafinn og rakst á búnka af blöðum sem ég hafði gert uppskriftir fyrir – og þeim fylgja fallegar ljósmyndir. Þá kviknaði hugmynd að mála matinn minn\, enda er ég alltaf að hgusa um mat. Þetta varð því eðlileg tenging við það sem mér finnst einna skemmtilegast að gera\, að mála\, elda og baka.‘‘ Myndirnar eru málaðar á þessu og síðasta ári. Allar myndirnar á sýningunni eru til sölu og viðeigandi uppskrift fylgir með hverju verki. \nSýningin í Hannesarholti er opin alla daga nema mánudaga kl. 11:30 – 17:00 og fimmtudaga er opið lengur eða til kl. 22:00. Henni lýkur 26. febrúar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/veisla-hanna-hlif-bjarnadottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/hanna-hlif-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200227
DTEND;VALUE=DATE:20200313
DTSTAMP:20210119T143444Z
CREATED:20210119T143444Z
LAST-MODIFIED:20210119T143444Z
UID:10000815-1582761600-1584057599@hannesarholt.is
SUMMARY:SAMSÝNING LINDA BJÖRK\, RAKEL OG JOHANN WIMMER
DESCRIPTION:Samsýning listamannanna Lindu Bjarkar og Rakelar Steinþórsdætra og Johanns Wimmers opnar í veitingastofum Hannesarholts fimmtudaginn 27.febrúar kl.17 og stendur til 12.mars.\n \nLinda Björk Steinþórsdóttir\, ISL \nLinda er fædd og uppalin á Íslandi en fluttist til Austurríkis og hefur búid og starfað þar sidustu 31 ár. Hún notar akryl á striga og eingöngu spaðatæki. Verk Lindu eru Abstrakt minimaliskt. „Innsýn mín kemur úr íslenskri náttúru\, það eru fossarnir\, jöklarnir\, birtan og norðurljósin sem hafa mikil áhrif a mína list“. \nJohann Wimmer\, AUT \nJohann er fæddur og uppalinn í Austurríki og býr og starfar í Wels. Hann er þaulreyndur og virtur ljósmyndari\, sem hefur undanfarin ár starfað með stúdíói sínu wkiphoto.net að auglýsaverkefnum fyrir ýmis tækifæri að auglýsingaverkefnum fyrir ýmis fyrirtæki. Meðfram venjubundnum auglæýsingastörfum hefur djúpstæð löngun hans til frelsis til eigin listköpunar sem ljósmyndari fengið útrás í óskipulögðum ferðum hans um Evrópu án áfangastaðar\, þar sem hann hefur fengið innblástur frá fólki og landslagi. Verk sín hefur Johann m.a.sýnt á ymsum alþjóðlegum sýningum \nMeðfram venjubundnum auglýsingastörfum hefur djúpstæð lögnun hans um frelsi til eigin listsköpunar sem ljósmyndari fengið útrás með óskipulögðum ferðum hans um Evrópu án áfangastaðar\, þar hefur hann fengið innblástur frá fólki og landslagi.\nVerk sýn hefur Johann Wimmer sýnt á ýmsum alþjóðlegum sýningum og við önnur tækifæri. Við eitt slíkt kynntist hann íslensku listakonunni Lindu Steinþórsdóttur. \nHugsjón hans í dag ber með sér vilja til að vinna á móti fortíðinni og gleymsku samtímans\, með því vill hann gefa áhorfendum þá tilfiningu í núinu að til er eitthvað sem aldrei breytist. \nJohann tók þátt í “ART DIAGONALE á Korpúlfsstöðum” sumarið 2017 sem Linda stóð fyrir og ferðaðist um landiði í sex vikur\, tók ljósmyndir og fékk innblástur af íslenskri nátturu. Út frá þessu verkefni hófst samstarf Lindu og Johanns. Verkin eru afrakstur mismunandi ferðalaga þeirra um Ísland. Úr varð sjónræn ástarjátning til andstæðna\, mikilfengleika og bersjkaldaðar náttúru landsins.\nLinda og Johann hafa verið með samsýningu í Museum Angerlehner\, í Thalheim við Wels (WWW.museumangerlehner.at) med verk sem heitir “Foss Foss Seljalandsfoss” og í Sturm & Drang Galleri í Linz ( http://www.sturm-drang.at ). \nSamvinnuverk Johanns og Lindu á sýningunni í Hannesarholti eru unnin þannig að Johann framkallar eða prentar ljósmynd sem tekin er á Íslandi beint a orginalverk eftir Lindu og í lokin fer Linda aftur med spadan yfir verkið þannig ad mörg lög myndast vid gerd verksins. \nRakel Steinthórsdóttir\, ISL \nRakel er fædd og uppalin á Íslandi\, hefur búið i Ameríku og Austurríki\, er býr og starfar nú á Íslandi. Rakel notar Akryl á striga og er hennar stíll Abstrakt expressjónismi. Hún mixar spaða pensil og dripping tækni i verkum sinum. \nLinda og Rakel eru systur\, hafa haldið margar samsýningar í gegnum tíðina\, en þetta er i fyrsta skipti sem þær hafa gert verk i samvinnu. Eitt af einkennum Lindu er að verkin breytast eftir thvi hvernig birtan fellur á þau. Rakel notar siðan dripping tækni og fullkomnar verkid med útlínum af fólki\, sem er eitt af hennar aðaleinkennum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/samsyning-linda-bjork-rakel-og-johann-wimmer/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/img_1965.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200314
DTEND;VALUE=DATE:20200527
DTSTAMP:20210119T143300Z
CREATED:20210119T143300Z
LAST-MODIFIED:20210119T143300Z
UID:10000814-1584144000-1590537599@hannesarholt.is
SUMMARY:FEGURÐ OG FÖGNUÐUR / SERENITY AND CELEBRATION - VIGNIR JÓHANNSSON
DESCRIPTION:Vignir Jóhannsson listmálari opnar sýningu sína Fegurð og fögnuður / beauty and serenity í veitingastofum Hannesarholts laugardaginn 14.mars kl.15. Á sýningunni eru landslagsmálverk og fíguratíf\, „sjáðu mig“ verk\, sem Vignir hefur unnið að undanförnu í Danmörku\, þar sem hann býr og starfar. \nVignir hefur starfað að myndlist og sýnt verk sín allt frá árinu 1978\, bæði á Íslandi og víða erlendis. Hann hefur yfir ferilinn unnið grafíkverk\, skúlptúra\, leikmyndir og málverk. Sýningin er sölusýning og stendur fram að páskum\, að minnsta kosti. \nFegurð og fögnuður \nÞað getur gerst við listsköpun að fegurð mæti fordómum ef listamaðurinn heldur henni frá verki sínu. Í staðinn fyrir fegurðina býr hann til listaverk sem hverfist til dæmis um andstæða krafta sem takast á um tilfinningar og veita verkinu afl og styrk. Allt annað gerist ef fegurðin er sett í framsætið. Listamaðurinn þarf að finna þá þörf hjá sér að einfalda viðfangsefnið og koma fegurðinni\, eins og hann sér hana\, fyrir í túlkun sinni í verkinu. Oft þarf að treysta á skynjun fegurðarinnar til að geta túlkað hana einfaldlega og án tilgerðar. Þetta er ekki alltaf auðvelt þar sem fegurðin er svo margbrotin. Reynsla listamannsins ræður vali hans á myndefni\, litum og formum. Þessi verk eru mín túlkun á fegurð og fögnuði sem lífið hefur fært mér gegnum tíðina. \nFegurðin \nNáttúran er meira undraverk en listin getur nokkru sinni náð að fullkomna. Í ljósi og litbrigðum á mótum lands og sjávar birtist fegurð sem fangar hug áhorfandans. Myndefnið er ekki nýtt í sögulegu samhengi en myndirnar freista ferskrar nálgunar að fegurðinni sem er túlkuð hér á látlausan hátt gegnum þekkta fjallasýn og sjávarsýn og mjúk litabrigði sem ögra ekki tilfinningum. Fegurðarinnar má njóta án fyrirhafnar og í látlausu jafnvægi. \nFögnuðurinn \nNútíminn leyfir okkur fyrir sitt leyti að halda upp á eigin árangur\, bæði í leik og starfi. Þegar við náum settu marki – komumst yfir marklínuna í maraþonhlaupi\, skorum mark eða náum upp á fjallstindinn – teygjum við hendurnar upp til himins í líkamlegri tjáningu á fögnuði okkar yfir eigin árangri. Sjáðu mig! Nú mega aðrir taka eftir. Þetta er hluti af fögnuðinum yfir fegurð lífsins. Þetta myndefni er mér hugstætt og táknrænt fyrir atvik sem flestir geta lent í að upplifa. Sem barn úti í náttúrinni setti maður sér oft það markmið að klífa stóran stein sem varð á vegi manns. Þegar það tókst að ná settu marki vildi maður deila með öðrum unnum sigri á steininum og gleði sigurvegarans. Unnum sigrum í eigin lífi getum við leyft okkur að fagna án hiks og svo aðrir sjái. Það vekur góðar tilfinningar\, uppörvun og innri sátt. \nSjá nánar á Atelier Vignir á fésbók. \nHannesarholt er lokað tímabundið vegna heimsfaraldursins\, en það má hafa samband og sjá sýningu Vignis eftir samkomulagi. Hér getur að líta nokkur myndbönd frá sýningunni. \nFrá sýningu Vignis Jóhannssonar
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fegurd-og-fognudur-serenity-and-celebration-vignir-johannsson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/vignirgladur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200529
DTEND;VALUE=DATE:20200630
DTSTAMP:20210119T143120Z
CREATED:20210119T143120Z
LAST-MODIFIED:20210119T143120Z
UID:10000813-1590710400-1593475199@hannesarholt.is
SUMMARY:Í HRING - MYNDLISTARSÝNING HÖRPU MÁSDÓTTUR
DESCRIPTION:Harpa Másdóttir opnar einkasýningu sína í Hannesarholti föstudaginn 29.maí kl.16-18. \nHringformið er hið fullkomna form. Það skírskotar til hringrásar\, hringrásar lífsins og hringrásar í sífelldri verðandi. Hringurinn táknar stöðuga hringrás skynjunar sem er endurtekning án þess að vera endurtekning\, því að ný sjónarhorn og túlkun eru alltaf í sjónmáli. Hlutirnir eru endurhugsaðir með því að taka fleti sem hafa verið skapaðir\, rífa þá niður\, afmá og byggja upp á ný. Allt getur gerst í öruggu umhverfi hringformsins. \nSýningin er sölusýning og stendur til 21.júní 2020. Opið um helgar frá 11.30 til 17.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/i-hring-myndlistarsyning-horpu-masdottur/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/hringir-forsida.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200808
DTEND;VALUE=DATE:20200827
DTSTAMP:20210119T142802Z
CREATED:20210119T142802Z
LAST-MODIFIED:20210119T142802Z
UID:10000812-1596844800-1598486399@hannesarholt.is
SUMMARY:FARVEGUR - ÓLÖF SVAVA GUÐMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:FARVEGUR nefnist vatnslitasýning Ólafar Svövu Guðmundsdóttur sem opnar laugardaginn 8.ágúst kl.15-17. Myndirnar eru málaðar á síðustu tveimur árum. Sýningin er sölusýning og stendur til miðvikudagsins 26. ágúst. \nÓlöf er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er útskrifaður leikskóla-og listgreinakennari. Skapandi starf og þróunarverkefni í leikskólum hefur átt hug hennar síðastliðin þrjátíu og fimm ár. Einnig kenndi Ólöf vatnslitamálum í Myndlistarskóla Kópavogs síðastliðið ár. \nÓlöf segir vatnsliti hafa heillað sig alla tíð: \,\,Þeir eru uppspretta hugmynda og ævintýra. Gegnsæi og eiginleiki vatnslitanna hvetja til sköpunar. Sköpunin finnur sér alltaf farveg. Farvegurinn er náttúran\, birtan og sköpunin. Við erum ekkert án náttúrunnar. Hún er lífið sjálft.“ \nDeila á FacebookSenda tölvupóst
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farvegur-olof-svava-gudmundsdottir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/olof-farvegur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200829
DTEND;VALUE=DATE:20200918
DTSTAMP:20210119T142624Z
CREATED:20210119T142624Z
LAST-MODIFIED:20210119T142624Z
UID:10000477-1598659200-1600387199@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTINGARMYNDIR - STEFÁN BOULTER
DESCRIPTION:Stefán Boulter opnar sýninguna Birtingarmyndir í Hannesarholti laugardaginn 29.ágúst kl.15-16.30. Verkin á sýningunni eru allt olíumálverk á striga. \nStefán hefur kosið að kalla það sem hann gerir “ljóðrænt raunsæi.” Hann býr til táknmyndir sem eru frásagnarlegs eðlis\, bæði persónulegar og byggðar á þekktum og fornum grunni. Hugleiðingar um náttúruna\, tilvist okkar í henni og dýrkun hennar skipar þar stóran sess\, með áherslu á dýrin og viðveru hluta og áru þeirra. Hann hefur einnig verið talsmaður nýrra og breyttra heimspekilegra viðhorfa í listsköpun og bera verk hans þess merki. Stefán hefur sýnt verk sín í söfnum og galleríum bæði hér heima og erlendis. \nSýningin er sölusýning og stendur til 17.september.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birtingarmyndir-stefan-boulter/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/fullsizerender.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200919
DTEND;VALUE=DATE:20201011
DTSTAMP:20210119T142455Z
CREATED:20210119T142455Z
LAST-MODIFIED:20210119T142455Z
UID:10000475-1600473600-1602374399@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTING - INGIBJÖRG RÁN GUÐMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Ingibjörg Rán opnar sýninguna Birtingu í Hannesarholti laugardaginn 19.september kl.15.00-17.00. Verkin á sýningunni eru olíumálverk unnin fyrir sýningu í Hannesarholti. Myndefni frá Reykjavík\, Grundarfirði\, Vík og Grímsnesi. Sýningin er sölusýning og stendur til 9. október.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birting-ingibjorg-ran-gudmundsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingibjorgran.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201021
DTEND;VALUE=DATE:20201103
DTSTAMP:20210119T142305Z
CREATED:20210119T142305Z
LAST-MODIFIED:20210119T142305Z
UID:10000472-1603238400-1604361599@hannesarholt.is
SUMMARY:LIST ÁN LANDAMÆRA - BJÖRN TRAUSTASON
DESCRIPTION:Björn Traustason er listamaður sem notar teikninguna sem sinn helsta miðil. Hann teiknar einkum vélar\, en hann hefur haft sérstakan áhuga á hverskyns vélum frá barnæsku\, landbúnaðartækjum\, gröfum og dráttarvélum og flugvélum. Áhugann á flugvélum hefur Björn fengið frá föður sínum og afa\, sem báðir hafa átt og flogið litlum flugvélum og er Björn því vel kunnugur slíkum vélakosti. Á ferðum sínum um Ísland tekur Björn ætíð ljósmyndir af vélum\, sem hann nýtir þegar heim er komið til þess að teikna eftir\, ekki síst til þess að halda til haga mörgum af þeim nákvæmu þáttum\, s.s. heiti\, númerum og litasamsetningum\, sem sjá má á myndum hans. Hann safnar einnig litlum eftirmyndum af vélum úr plasti eða málmi\, sem hann notar til að teikna eftir. \nBjörn teiknar með blýanti og litblýanti en þannig nær hann að koma mikilvægum smáatriðum til skila\, auk þess sem hann getur haft litina og pappír með sér hvert sem er. Hann er afar iðinn við teikninguna og skipta teikningar hans líklega hundruðum. Í Hannesarholti má sjá tuttugu nýlegar teikningar hans. \nÞað er við hæfi að einkasýning Björns eigi sér stað í Hannesarholti\, fyrrum heimili Hannesar Hafstein\, sem var stórbrotinn stjórnmálamaður og framsýnn athafnamaður er beitti sér fyrir mörgum framfaramálum í landinu og var maður framkvæmda. Hannes var sem kunnugt er fyrsti ráðherra Íslands og sinnti því embætti á árunum 1904-1917. Hannes lést skömmu áður en framfarafólk á Íslandi hóf að nota þann vélakost er Björn Traustason sýnir okkur í listaverkum sínum. Ætla má að Hannes hefði orðið hrifinn af þessum vélum og þeim framförum í landbúnaði og á öðrum sviðum samfélagsins\, sem þær höfðu í för með sér. \nSýningin er á vegum listahátíðarinnar List án landamæra\, listahátíðar fatlaðra. \nwww.listin.is\ninfo@listin.is \nHannesarholt – Grundarstíg 10 – 101 Reykjavík \nVegna samkomutakmarkana er veitingahús Hannesarholts ekki opið þessa dagana\, en velkomið er að hafa samband og koma til að sjá sýninguna. Hringið í síma 511-1904 eða sendið tölvupóst í síma 511-1904. \nSýning Björns Traustasonar verður opin til og með sunnudegi 30. október 2020. \nSýningarýmið er því miður óaðgengilegt fyrir fólk með hreyfihömlun. Fimm tröppur. \nList án landamæra 2020 er stutt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu\, Reykjavíkurborg og Öryrkjabandalaginu-ÖBÍ.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/list-an-landamaera-bjorn-traustason/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/123058020_3396075603779045_6695764450689178405_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201101
DTEND;VALUE=DATE:20201120
DTSTAMP:20210119T142118Z
CREATED:20210119T142118Z
LAST-MODIFIED:20210119T142118Z
UID:10000471-1604188800-1605830399@hannesarholt.is
SUMMARY:ERLINGUR PÁLL INGVARSSON - GULA SÓLIN MAMMA
DESCRIPTION:Þessi sýning er hugmyndalega tvískipt milli tveggja rýma í Hannesarholti en heildrænt skyld hvað efnisnotkun varðar. Sameiginlegur uppruni verkanna eru skissur sem hættu við að verða drög að einhverju og vildu standa sem fullbúin sjálfstæð verk. Myndirnar eru gerðar með ýmsum tegund­um lita og efna en öll eru þær á pappírsgrunni. \n1 Hringurinn\, hið fullkomnasta form\, hefur fylgt mannkyninu frá upphafi og er einskonar vöggugjöf til allra og alls ekki eingöngu listafólks. Ég er þá að vísa til þess að algengast er að það fyrsta sem hvert mannsbarn sér eftir fæðingu eru augasteinar. Hringformið er allt um lykjandi frá hinu stærsta sem við sjáum í himingeimnum til hinna smæstu öreinda. Hringurinn er virkur í vísindum og tækni. Hringurinn á sér endalausar birtingarmyndir í hugmyndaheimi mannkyns og hefur táknræna merkingu í heimspeki\, trúarbrögðum\, dulspeki (mysticism)\, goðsögnum (mythology)\, öllum listum og þannig mætti lengi telja. \nHér á sýningunni birtist hann hverjum og einum til eigin upplifunar og túlkunar. \n2 Línan\, sem getur verið tákn kyrrðar og stöðugleika\, getur einnig myndað og búið til öll form\, bæði geometrísk og lífræn. Línan\, bæði hugsuð og teiknuð\, er til dæmis einhver upprunalegasta leið okkar til þess að skýra fyrir okkur heimsmyndina og skrásetja\, teikna upp og skipuleggja umhverfi okkar. \nHér á sýningunni birtast línur hverjum og einum til eigin upplifunar og túlkunar. \nErlingur Páll Ingvarsson (1952) er starfandi listamaður í Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1974-1978. Eftir það fór hann í framhaldsnám til Hollands í De Vrije Academie Den Haag með búsetu í Amsterdam og síðan til Þýskalands í Den Stadtliche Kunstacademie\, Düsseldorf. Erlingur Páll hefur að baki 8 einkasýningar og nokkrar samsýningar. Listformið hefur spannað vítt svið: meðal annars skúlptúr\, innsetningar\, gjörninga\, ljósmyndir og texta\, en hann hefur nú um langt skeið notað málverk sem sinn helsta miðil. Sýningin er tileinkuð hljómsveitinni Gula sólin mamma.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/erlingur-pall-ingvarsson-gula-solin-mamma/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/elli-sol.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201120
DTEND;VALUE=DATE:20201211
DTSTAMP:20210119T141723Z
CREATED:20210119T141723Z
LAST-MODIFIED:20210119T141723Z
UID:10000470-1605830400-1607644799@hannesarholt.is
SUMMARY:UM LANDIÐ - INGIBJÖRG DALBERG
DESCRIPTION:Ingbjörg Dalberg heldur sýningu á nýjum olíumálverkum í Hannesarholti\, sem hún hefur málað í framhaldi af ferðalögum um landið á síðustu tveimur árum. Sýningin nefnist UM LANDIÐ og er sölusýning. Myndirnar eru fyrst og framst stemningsmyndir af upplifun ferðalangs. Sýningin stendur frá 20.nóvember til 10.desember. Áhugasamir hafi samband við Hannesarholt til að bóka heimsókn á sýninguna. Sími 511-1904. \nIngibjörg nam og lagði stund á myndlist og listasögu í Englandi\, þar sem hún bjó um árabil\, (National diploma Found\, Higher Ed.Art and Design\, London og Hull College of Further Ed.) auk þess að sækja margvísleg námskeið þekktra listasafna eins og Tate Modern í London. Einnig nam hún myndlist í París (École Nationale Supérieure des Beaux-Arts)\, auk þess að sitja námskeið á Íslandi í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistarskóla Kópavogs og Listabraut FB. \nInga lauk BA prófi í sagnfræði með listfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands og var viðfangsefni lokaritgerðar hennar: „Brot úr sögu smámynda á Íslandi. Upphaf og endalok 1770-1840“ tengt órannsökuðum anga í sögu myndlistar hér á landi. \nMeð hléum hefur inga starfað við listmálun og vinnur ýmist við stór óhlutbundin verk til jafns við fígúratívar myndir. Einkum eru það andlitsmyndir / portrett\, með áherslu á raunsæi\, sem hafa verið meginviðfangsefni undanfarin ár.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/um-landid-ingibjorg-dalberg/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/126551254_2737069319889355_4432723151174873917_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201211
DTEND;VALUE=DATE:20210111
DTSTAMP:20210119T141457Z
CREATED:20210119T141457Z
LAST-MODIFIED:20210119T141457Z
UID:10000469-1607644800-1610323199@hannesarholt.is
SUMMARY:´HÝSILL´ - MELLÍ
DESCRIPTION:‘Hýsill’ samanstendur af ellefu skúlptúraverkum\, í fjórum mismunandi stærðarhlutföllum\, sem öll eiga samtal sín á milli. Hvert verk er sambræðingur málverks og skúlptúrs\, þar sem finna má mörg lög smáatriða og mismunandi áferða. Málað er með draumkenndum og rjómalöguðum pasteltónum í bland við skerandi neon tóna\, en sú palletta kallar óhjákvæmlega fram hamingju hjá áhorfandanum. Myndbyggingin líkist súrrealísku landslagi\, og stöku hreyfingar málverksins herma eftir niðurstreymisvindum Júpíters. Smágerðir epoxy skúlptúrar eru eftirmyndir af formalíni\, en í hefðbundnum skilningi er formalínið notað til þess að varðveita líkamsvefi og form fyrir líffæri eða lík. Listakonan túlkar þetta gróteska fyrirbæri á sinn litríka hátt\, og skapar ónáttúruleg\, pasteltóna fóstur í glimmer formalíni.\nÍ verkum Mellí (1997) ráða glimmer og gimsteinar jafnan ríkjum\, efniviður sem fyrirfinnst ekki einvörðungu inni á diskótekum. Auk glitursins sækir listakonan mikið í hefðbundna abstrakt geómetríu\, og fléttar hana inn í yfirgengilegan og hólógrafískan efnivið.Á yfirborði málverkanna má finna fíngerða skúlptúra sem líkja eftir kristalþyrpingum sem finnast í bergi jarðarinnar. Að jafnaði þekkjum við málverk sem tvívíðan flöt\, og verður sá flötur því þrívíður með viðbót þessara skúlptúra. Persónulegan geðþóttastuðul listakonunnar má sjá í því að allt þurfi að vera eins aðlaðandi eins og aðstæður leyfa\, með fjörugri litagleði í bland við glitrandi kristalþyrpingar.\n‘Hýsill’ er fimmta einkasýning listakonunnar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hysill-melli/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/melli-banner-poster-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210111
DTEND;VALUE=DATE:20210129
DTSTAMP:20210115T131510Z
CREATED:20210115T131510Z
LAST-MODIFIED:20210115T131510Z
UID:10000468-1610323200-1611878399@hannesarholt.is
SUMMARY:LITIR OG LJÓS - RAGGA RÓBERTS
DESCRIPTION:Sýningin Litir og ljós í Hannesarholti samanstendur af 15 olíu- og akrýlmálverkum eftir Röggu Róberts (f. 1994). Málverkin eru innblásin af íslenskri náttúru\, litum\, ljósi og mannfólki á tímum Covid-19. Flest verkin eru unnin árið 2020 á tveimur listasmiðjum úti á landi\, NES listasmiðjunni á Skagaströnd og Gullkistunni á Laugarvatni. Ragga stundaði myndlistarnám í New York við Pratt Institute þaðan sem hún útskrifaðist árið 2019. Hún býr nú og starfar í Reykjavík. \nLaugardaginn 16. janúar tekur Ragga á móti gestum og gangandi á milli 15.30 og 17.00. \nCOLORS AND LIGHT – RAGGA RÓBERTS \nThe art exhibit Colors and light in Hannesarholt consists of 15 oil and acrylic paintings by Ragga Róberts (b. 1994). The paintings are inspired by Icelandic nature\, colors\, light and people during Covid-19. Most of the artworks are made in the countryside of Iceland where Ragga recently took part in two art residencies\, NES Artist Residency at Skagaströnd and Gullkistan at Laugarvatn. Ragga lived in New York and graduated from Pratt Institute with a BFA in painting 2019. Today she lives and works in Reykjavík\, Iceland.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/litir-og-ljos-ragga-roberts/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/img_3495.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210220
DTEND;VALUE=DATE:20210312
DTSTAMP:20210302T121648Z
CREATED:20210302T121648Z
LAST-MODIFIED:20210302T121648Z
UID:10000835-1613779200-1615507199@hannesarholt.is
SUMMARY:MILLI HÚSA - ARON LEVÍ BECK / ALBECK
DESCRIPTION:Frá unga aldri hefur listamaðurinn heillast af litum\, formum\, list og sköpun. Það mátti sjá snemma að áhugi á tjáningu í gegnum listsköpun væri til staðar. \nAron sækir innblástur í verk sín í nærumhverfi sitt\, en borgin\, húsin og skipulagið er eitthvað sem er honum afar kært. Listamaðurinn hefur fleiri en eina tengingu við viðfangsefnið allt frá því að mála hús yfir í að starfa við skipulag borgarinnar. \nAron Leví lærði húsamálarann og hlaut síðan Húsamálarameistara titil 2019. Hann kláraði BS í Byggingafræði og stundaði meistaranám við borgarskipulag. Reynsla hans er þó ekki upptalin því hann hefur einnig starfað sem borgarfulltrúi og þá setið í skipulagsnefnd. \nNú nálgast hann þó borgina á nýjan og óhefðbundinn hátt. Verkin einkennast af litum\, formum og áferð sem gerir það að verkum að gesti langar ekki bara að snerta verkin heldur komast inn í þau. Hallgrímskirkja er einkennandi í mörgum verkunum enda áhugavert mannvirki þó svo sumir vilji meina að hún sé eitt mesta skipulagsslys Reykjavíkurborgar. \nFormleg opnun sýningar verður laugardaginn 20. febrúar á milli 15 og 17. Öll velkomin. \nHannesarholt er opið alla daga nema mánudaga frá 11.30-17.00. Hádegisseðill er borinn fram milli 11.30 og 14 á virkum dögum. Helgardögurður er borinn fram milli 11.30 og 14.30 laugardaga og sunnudaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/milli-husa-aron-levi-beck-albeck/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/image_6483441-2-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210313
DTEND;VALUE=DATE:20210416
DTSTAMP:20210310T154442Z
CREATED:20210309T115340Z
LAST-MODIFIED:20210310T154442Z
UID:10000836-1615593600-1618531199@hannesarholt.is
SUMMARY:STÖPLAR - UNNAR ARI BALDVINSSON
DESCRIPTION:Sýning Unnars Ara Baldvinssonar “Stöplar” er samsett af 12 verkum í tveimur stærðum og verður formleg opnun í Hannesarholti Laugardaginn 13. mars\, milli kl 15 og 17. Öll velkomin en við minnum á almennar sóttvarnir og grímusskyldu. Sýningin stendur til 15. apríl.\nHugmyndin af Stöplunum er jafnvægið á litum\, formum\, myndinni sjálfri og rammanum í kring. Litir samsettir með formum sem teygja sig yfir og útfyrir rammann. Rammarnir eru smíðarðir sérstaklega í kringum tréplötur og litirnir flæða yfir. Stöplar eða stoð sem tengist beint í þýðinguna á orðinu ásamt því að tengja í við/tré sem er notaður í byggingarefni eða tré sem standa föst í jörðinni. Hörð skil á litunum og rammanum mynda stuðning við myndina sjálfa.\nVerkin eru sínir eigin stöplar.\n\n\nUnnar Ari er fæddur 1989 og útskrifaður úr Accademia Italiana og Florence University of Arts á Ítalíu. Þar sem hann stundaði nám við grafíska hönnun og listasögu. Unnar vann sem aðstoðarmaður hjá Ítalska listamanninum Emilio Cavallini og sækir þar innblástur í geometrísk verk hans.  \n„Þar sá ég að hann var að láta smíða sína eigin ramma eða box utan um einhverskonar nylon vegg-skúlptúra þar sem efni úr sokkabuxum var svo þrætt í gegnum verkið sjálft. Ég hef mikið prófað mig áfram með að smíða mína eigin ramma og leyfa myndinni að blæða út fyrir verkið\, að leyfa rammanum að vera hluti af myndinni sjálfri. Með að einfalda formin í takt við stærð myndarinnar verður til stöpull sem gefur myndinni jafnvægi. Það er svoldið skemmtilegt að jafnvægið í myndinni er í rauninni myndin sjálf.“ \n\nUnnar Ari hefur tekið þátt í fjölda samsýninga\, hérlendis og erlendis. Þetta er fimmta einkasýning Unnars Ara.\nSýningin er sölusýning og þeir sem hafa áhuga á að eignast verk af sýningunni\, geta haft samband við Hannesarholt í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is\nHannesarholt er opið alla daga nema mánudaga frá kl 11.30 – 17.00.\nunnar@baldvinsson.com\nInstagram: @unnar.ari.baldvinsson
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/stoplar-unnar-ari-baldvinsson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/STOPLAR.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210417T150000
DTEND;TZID=UTC:20210516T170000
DTSTAMP:20210505T143949Z
CREATED:20210414T115814Z
LAST-MODIFIED:20210505T143949Z
UID:10000837-1618671600-1621184400@hannesarholt.is
SUMMARY:Daði Guðbjörnsson í Hannesarholti
DESCRIPTION:Myndir sýningar eru flestar nýjar og eiga það sameiginlegt að vera unnar undir áhrifum frá landslagi og straumunum sem liggja undir yfirborðinu á því sem við sjáum og leika sér af því að gera lífið að ævintýri ef við erum tilbúin til að njóta. \nFormleg sýningaropnun verður laugardaginn 17. apríl á milli kl 15 og 17. Öll kærlega velkomin en vegna sóttvarna er fólk beðið um að bóka skoðun í síma 511-1904 eða á vidburdir@hannesarholt.is \nTímasetningar fyrir bókun á opnun laugardaginn 17. apríl eru eftirfarandi: 15.00-15.30 // 15.30-16.00 // 16.00-16.30 // 16.30-17.00 \nDaði Guðbjörnsson f: 1954 \nDaði er lærður húsgagnasmiður en snéri sér fljótlega að myndlist. Hann útskrifaðist frá Listaakademíunni í Amsterdam árið 1984 en áður hafið hann lokið námi frá Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Daði hefur eingöngu starfað við myndlist frá námslokum og verið áberandi í íslensku listalífi. Ásamt eigin listsköpun hefur hann setið í safnráði Listasafns Íslands og verið formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna. Einnig kenndi hann myndlist í þrettán ár. \nFyrstu einkasýningu sína hélt Daði árið 1980 í Gallerí Suðurgötu 7 og eru þær nú orðnar vel á fimmta tug. Daði hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga sem og listamannahópum s.s. Gullpenslinum og Akvarell Island en báðir hóparnir hafa sýnt alloft hér heima og erlendis. Verk Daða hafa einnig verið valin til sýninga s.s. á sýninguna Málverkið eftir 1980 í Listasafni Íslands árið 2006\, en markmið hennar var að varpa ljósi á nýja málverkið\, og á sýninguna Blæbrigði vatnsins sem var fyrri hluta ársins 2010 í Listasafni Reykjavíkur en á henni var sjónum beint að vatnslitum í íslenskri myndlist 1880-2010. Daði hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun listamanna\, bæði frá Reykjavíkurborg og íslenska ríkinu. \nMörg listasöfn s.s. Listasafn Íslands\, Listasafn Reykjavíkur\, Nýlistasafnið og Listasafn Akureyrar eiga verk eftir Daða. \nhttp://www.dadilisto.blog \nhttps://www.facebook.com/dadigudbjornsson \nhttps://www.instagram.com/dadigudbjornsson/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dadi-gudbjornsson-i-hannesarholti/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/04/Ískaldur-Eiríksjökull-veit-allt...-36x25-2021-copy-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210528
DTEND;VALUE=DATE:20210611
DTSTAMP:20210525T160303Z
CREATED:20210525T160303Z
LAST-MODIFIED:20210525T160303Z
UID:10000845-1622160000-1623369599@hannesarholt.is
SUMMARY:LISTASÝNING - SNORRI ÁSMUNDSSON
DESCRIPTION:Á föstudaginn 28. maí kl 20 opnar Snorri Ásmundsson tvær sýningar í Hannesarholti.  Fyrst má nefna einkasýningu á nýjum málverkum sem Snorri hefur málað í dvöl sinni í skógum Svíþjóðar\, en þar hefur hann dvalist síðusta árið langt inni í skógi í Nössemark í Svíþjóð ásamt 2 köttum og lítið samneyti haftvið annað mannfólk í raunheimum. Á neðri hæð í Salnum\, tónlistarrými Hannesarholts hefur verið sett upp ljósmyndasýning þar sem listamennirnir Snorri Ásmundsson og Kristján Frímann Kristjánsson tóku sig saman og fóru á tímaflakk. Í þessari fyrstu ferð þeirra um tímann var hernám Íslands og hernámsárin 1940 – 1945 skoðuð og mynduð. Á þessum ferðum þeirra um Ísland í seinni heimsstyrjöldinni kynntust þeir sagnfræðigrúskaranum Þór Eysteinssyni sem hefur verið þeim hjálplegur að lesa myndirnar og skýra merki og tákn sem birtast í myndunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/listasyning-snorri-asmundsson/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/image0-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210528
DTEND;VALUE=DATE:20210621
DTSTAMP:20210608T114052Z
CREATED:20210525T160019Z
LAST-MODIFIED:20210608T114052Z
UID:10000844-1622160000-1624233599@hannesarholt.is
SUMMARY:TÍMAFLAKK - SNORRI ÁSMUNDSSON OG KRISTJÁN FRÍMANN KRISTJÁNSSON
DESCRIPTION:Á föstudaginn 28. maí kl 20 opnar Snorri Ásmundsson tvær sýningar í Hannesarholti.  Fyrst má nefna einkasýningu á nýjum málverkum sem Snorri hefur málað í dvöl sinni í skógum Svíþjóðar\, en þar hefur hann dvalist síðusta árið langt inni í skógi í Nössemark í Svíþjóð ásamt 2 köttum og lítið samneyti haftvið annað mannfólk í raunheimum. Á neðri hæð í Salnum\, tónlistarrými Hannesarholts hefur verið sett upp ljósmyndasýning þar sem listamennirnir Snorri Ásmundsson og Kristján Frímann Kristjánsson tóku sig saman og fóru á tímaflakk. Í þessari fyrstu ferð þeirra um tímann var hernám Íslands og hernámsárin 1940 – 1945 skoðuð og mynduð. Á þessum ferðum þeirra um Ísland í seinni heimsstyrjöldinni kynntust þeir sagnfræðigrúskaranum Þór Eysteinssyni sem hefur verið þeim hjálplegur að lesa myndirnar og skýra merki og tákn sem birtast í myndunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/timaflakk-snorri-asmundsson-og-kristjan-frimann-kristjansson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/snorri.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR