BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20230101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20190101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250315T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250315T160000
DTSTAMP:20250319T161231Z
CREATED:20250225T160225Z
LAST-MODIFIED:20250319T161231Z
UID:10001130-1742047200-1742054400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning opnun Sigurdís Gunnarsdóttir HUGARÓRAR
DESCRIPTION:Sigurdís Gunnarsdóttir opnar málverkasýningu sína HUGARÓRA í Hannesarholti laugardaginn 15. mars kl.14-16\nDraumkenndar landslagsmyndir Sigurdísar eru í senn kraftmiklar og hljóðlátar. Myndmálið speglar upplifun áhorfandans af náttúrunni. Það er eins konar tilraunakennd rannsókn á yfirborði og gegnsæi\, samspilum litbrigða\, forms og skugga. Hugarórar færa okkur á vit ævintýra og vekja spurningar um það sem fyrir augu ber. Hvar liggja mörkin á milli mannsins í náttúrunni og náttúrunnar í manninum? Myndirnar eru unnar með olía á striga.\nSigurdís fæddist á Íslandi en ólst upp á Bahamaeyjum og í Bandaríkjunum fram á unglingsárin en fluttist þá aftur heim. Hún hefur stundað nám í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistarskóla Kópavogs og Central Saint Martins í London. Þetta eru fjórða einkasýning hennar og hún hefur tekið þátt í fjölda samsýninga.\nSigurdís er meðlimur í SÍM.\nSýningin er sölusýning og er opin á opnunartíma Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 til 3. apríl.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-opnun-sigurdis-gunnarsdottir-hugarorar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/sigurdis16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250222T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250311T170000
DTSTAMP:20250309T210958Z
CREATED:20250309T210958Z
LAST-MODIFIED:20250309T210958Z
UID:10001133-1740232800-1741712400@hannesarholt.is
SUMMARY:Málverkasýning Ástu Báru Pétursdóttur - Nú er tími til að hafa gaman
DESCRIPTION:Ásta Bára Pétursdóttir opnar málverkasýningu sína í Hannesarholti laugardaginn 22.febrúar kl.14. Sýningin er sölusýning og nefnist – Núna er tími til að hafa gaman.\n\nÁsta Bára er búsett á Akureyri og hefur unnið í myndlist frá því hún útskrifaðist af Fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri árið 2009. Hún hefur haldið 7 einkasýningar og tekið þátt i fjölda samsýninga. Flest málverkin eru unnin með akryl á striga eða á pappír. Innblásturinn í verkum Ástu Báru er aðalega mannlíf líðandi stundar.\n\nViðfangsefni málverkana er hið daglega líf fólks og athafnir þess\, sem og einstaka köttur. Þessar athafnir fólks eru óendanleg uppspretta myndefnis sem gaman er að leika sér með\, s.s. með því að teygja og toga líkama á málverkunum eins og hentar hverri mynd. Tvöfalt andlit gæti t.d. verið vísun í margt\, eins og hvað við sem manneskjur erum uppteknar af öllu í umhverfi okkar að stundum gleymist persónan sem við erum svo sannarlega með þá stundina. Litagleði og kímni einkenna jafnframt myndirnar sem eru málaðar til að gleðjast og njóta þess að fara með ímyndunaraflið í ferðalag.\nSýningin er opin á opnunatímum Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16 og stendur til 11.mars.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-astu-baru-petursdottur-nu-er-timi-til-ad-hafa-gaman/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/unnamed-1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250201T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250201T150000
DTSTAMP:20250206T085214Z
CREATED:20250121T163927Z
LAST-MODIFIED:20250206T085214Z
UID:10001103-1738418400-1738422000@hannesarholt.is
SUMMARY:Þráin til vaxtar - Myndlistarsýning Joris Rademaker
DESCRIPTION:Þráin til vaxtar \nJoris Rademaker \nHannesarholt \n1.-19. febrúar 2025 \nÁ sýningunni “Þráin til vaxtar” nálgast Joris Rademaker hugtökin vöxtur\, hreyfing og tími út frá mismunandi sjónarhornum. \nHugmynd að sýningunni kviknaði eftir heimsókn í Hannesarholt þegar Joris skoðaði húsið vel og spjallaði við staðarhaldarann. Háaloftið með sína tréveggi byggða úr timburafgöngum hússins varð innblástur að sýningu. Veggirnir endurspegla viðhorf Hannesar og virðingu hans fyrir efninu sjálfu\, sparsemi og endurnýtingu.Tréveggurinn er partur af innsetningu á sýningunni sem ber þá titilinn Fjársjóður. Í hinum sýningarrýmunum verða pennateikningar\, hvass málverk og þrívíð verk unnin úr lífrænum efnum. \nMeð því að stúdera náttúruna fær maðurinn dýpri skilning á henni\, þanng fær maðurinn meiri virðingu fyrir umhverfinu\, náttúrunni og sjálfum mannslíkamanum. Í nútímanum þegar tæknivæðingin tekur yfir er mikil áhætta á að það verði rof á milli náttúrunnar og mannsins. \nSíðustu áratugi hefur Joris gert tilraunir og unnið listaverk úr lífrænum efnum sem hann safnar í gönguferðum sínum\, svo sem trjágreinum\, hvönn og fjöðrum. Að safna\, þurrka og finna sýningaform þar sem efnið sjálft fær að blómstra er hans nálgun. Einnig notar hann oft önnur lífræn efni sem tengjast matarvenjum eins og spaghettí\, kartöflur\, hnetur\, vínberjagreinar og kokoshnetur. \nÍ gegnum árin verður hann stöðugt meira meðvitaðrur um þessa djúpu og sterku þrá í öllu sem lifir\, til þess að vaxa. Í listinni reynir hann að gera það sýnilegt. Verkin eru oftast táknræn og túlka og tjá tilfinningar\, samband og tengsl manns og náttúru á persónulegan hátt. Óspillt náttúra Íslands gefur Joris sífellt innblástur. \nJoris er hollenskur myndlistamaður búsettur og starfandi á Íslandi síðan 1991. Hann hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar bæði á Íslandi og erlendis. Hann hefur t.d. sýnt einkasýningar í Nýlistasafninu\, Safnasafninu á Svalbarðsströnd og í Listasafninu á Akureyri og í Listasafni Reykjavíkur (samsýningin Stór ísland). \nSýningin opnar laugardaginn 1. febrúar kl 14-16 og er opin á opnunartímum Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrain-til-vaxtar-myndlistarsyning-joris-rademaker/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/joris1-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250111T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250111T170000
DTSTAMP:20250206T092721Z
CREATED:20250113T110058Z
LAST-MODIFIED:20250206T092721Z
UID:10001095-1736607600-1736614800@hannesarholt.is
SUMMARY:Anna Leós - Margt býr í fjöllunum MÁLVERKASÝNING
DESCRIPTION:Náttúra í nýstárlegri umgjörð \nMargt býr í fjöllunum nefnist málverkasýning Önnu Leós í Hannesarholti\, sem stendur yfir frá 11.-30.janúar. \n\nÞetta eru vissulega ekki hefðbundnar náttúrumyndir\, heldur mín túlkun á náttúrunni\, segir Anna um sýninguna\, sem samanstendur af ellefu akrýlverkum þar sem fjöll eru í fyrirrúmi\, tilkomumikil og glæsileg ásýndar\, í óvenjulegri umgjörð\, sem drengur fram og undirstrikar þá orku sem frá þeim stafar. \nMeð sýningunni segist listakonan vilja vekja athygli á mikilvæti íslenskrar náttúru. Hana beri að vernda og hlúa að\, því hún sé einstök á heimsvísu. Ekki síst núna\, þegar sótt er að náttúrunni úr öllum áttum\, bendir Anna á. \n\nAnna hefur fengist við myndlist um árabiil og á að baki fjölda einkasýninga. Hefur hún meðal annars haldið sýningar í Viðey\, á kaffistofu Hafnarborgar í Hafnarfirði og í Ráðhúsi Reykjavíkur\, svo fátt eitt sé nefnt. \nSýning Önnu í Hannesarholti stendur frá 11.-30.janúar 2025. Öll velkomin. Veitingahúsið í Hannesarholti er opið alla daga frá 11.30-16\, nema sunnudaga og mánudaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/opnun-anna-leos-margt-byr-i-fjollunum/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/01/Frettatilkynning_Hannesarholt_syning_Anna_Leos_11_jan_2025-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241222T130000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241222T140000
DTSTAMP:20250206T102022Z
CREATED:20241218T094803Z
LAST-MODIFIED:20250206T102022Z
UID:10001060-1734872400-1734876000@hannesarholt.is
SUMMARY:GIRERD LEIKHÚSIÐ: Jólasaga Dickens
DESCRIPTION:GIRERD LEIKHÚSIÐ\nJÓLASAGAEFTIR CHARLES DICKENSLEIKSTJÓRN & LEIKARINÍELS THIBAUD GIRERD\nGirerd leikhúsið var stofnað árið 2003. Níels Thibaud Girerd stofnaði leikfélagið aðeins 10 ára gamall. Listamenn leikhússins eru playmókallar og hafa verið frá stofnun. Girerd leikhúsið hefur verið starfrækt óslitið frá stofnun og hefur það fyrst og fremst sýnt fyrir fjölskyldu Níelsar en síðastliðin ár hefur leikhúsið opnað dyr sínar almenning.Girerd leikhúsið kynnir nú í samstarfi við Hannesarholt Jólasögu Charles Dickens í leikgerð Níels Thibaud Girerd. Þetta er sannkallað jólaævintýri sem lætur engan ónsnortinn og er þetta tilvalin sýning fyrir allan aldur en einkum fyrir þá foreldra að senda barnið sitt á sýninguna á meðan er pakkað inn fyrir þau. Verið hjartanlega velkomin í Girerd leikhúsið um hátíðarnar í Hannesarholti.Sýning tekur 18 mínútur og ekkert hlé er gert á sýningunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/girerd-leikhusid-jolasaga-dickens/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Leikhús,Literature
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/12/photo-collage.png1_.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241124T140000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20241124T160000
DTSTAMP:20250206T114842Z
CREATED:20241119T120546Z
LAST-MODIFIED:20250206T114842Z
UID:10001048-1732456800-1732464000@hannesarholt.is
SUMMARY:Myndlistarsýning KVIKA / MAGMA
DESCRIPTION:Steinunn Bergsteinsdóttir opnar sýningu sína Kvika / Magma í Hannesarholti laugardaginn 23.nóvember kl.14-16.\nUppistaðan í sýningunni eru krossaumsverk í stramma sem hún saumar beint án þess að teikna fyrst sem leiðir hana í alls konar fantasíur og verkin verða eitt allsherjar ævintýri. “Nýjustu verkin urðu til við að endurvinna gömul\, hálfsaumuð krosssaumsverk. Að sjá skæra litina fylla upp það gamla fann ég sterk tengsl við það sem var að gerast í Grindavík þar sem hraunkvika og eldur ruddist upp og braut sér leið inn í hús og gróin hverfi.” Þaðan er sprottið nafnið á sýningunni sem er sölusýning og stendur til 11.desember.\nSteinunn Bergsteinsdóttir fæddist í Reykjavík 1949. Að loknu námi í Kennaraskóla Íslands hóf hún nám við Myndlista-og handíðaskólann og útskrifaðist 1973 úr textíldeild sem þá var ný braut við skólann. Hún hefur unnið jöfnum höndum við list og hönnun síðan. Sem textílhönnuður hjá ullarfyrirtækinu Hildu hf. og mörgum minni fyrirtækjum. Rak einnig eigið ullarfyrirtæki um tíma. Var og ein af þeim sem stofnuðu Textílfélagið og sölugalleríin Sólon Íslandus og Gallerí Langbrók.\nFrá árinu 1999 hefur Steinunn einbeitt sér að gerð olíumálverka og mósaikverka og nú nýverið útsaumsverka. Í þeim notar hún gjarnan gamlan stramma og allskonar garn. Endurvinnsla og nýting eru henni ofarlega í huga. Hér sýnir hún bæði krosssaumsmyndir og mósaikmyndir unnar úr brotnum skrautmunum og leirtaui. Krosssaumsmyndirnar saumar hún beint í strammann í frjálsu flæði án teikninga og myndirnar fara sínar eigin leiðir\, breytast oft frá þeirri hugmynd sem lagt er upp með\, öðlast sitt eigið líf í allskonar fantasíum og ævintýrum.\nÞað hentar Steinunni vel að vinna hægt og sígandi. Mósaik\, krosssaumur\, prjón og vefnaður eiga það sameiginlegt að vera afar seinlegar aðferðir. „Ef ég fæ að vinna með liti skiptir mig ekki máli hvort það eru olíulitir\,taulitir\,garn\, mósaik eða perlur\, Ég verð bara að fá að skapa.” -Steinunn Bergsteinsdóttir\nSýningin er opin alla daga nema sunnudaga og mánudaga kl.11.30-16\, á opnunartíma Hannesarholts.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/myndlistarsyning-kvika-magma/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/11/IMG_1413.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240919T170000
DTSTAMP:20250206T140818Z
CREATED:20240904T171747Z
LAST-MODIFIED:20250206T140818Z
UID:10001020-1726758000-1726765200@hannesarholt.is
SUMMARY:Kaffipása - myndlistarsýning Sigtryggs Bergs Sigmarssonar
DESCRIPTION:Sigtryggur Berg opnar myndlistarsýninguna „Kaffipása“ í Hannesarholti\, þann 19. september kl. 15:00. Sýningin er sölusýning og mun standa yfir til 08. október og verður til sýnis alla daga nema sunnudaga og mánudaga frá kl. 11:30-16:00 \nUm sýninguna hefur Sigtryggur þetta að segja: „þegar mér var boðið að sýna í hannesarholti datt mér strax í hug seríu af teikningum sem ég gerði í ghent\, belgíu árið 2012 sem hét „kaffi og kökur“ og voru abstrakt teikningar þar sem ég bætti við formum sem maður sá kannski sem kaffibolla og/eða kökur. svo ég fór þá að leita af þessari seríu í öllum kössunum hérna hjá mér þar sem ég geymi eldri verk og eftir langa leit gafst ég upp. en nokkrum tímum seinna ákvað ég að tjékka betur á þessu og fór að hringja í vini og kunningja heima á íslandi að spyrja hvort þetta væri kannski í geymslu hjá þeim eitthvað. því mig langaði svo að sýna þessa seríu í hannesarholti sagði ég. en eftir ennþá lengri leit fattaði ég loksins að ég hafði selt seríuna til konu sem leit við í heimsókn á vinnustofuna hjá mér í ghent\, belgíu og hafði ég útskýrt fyrir henni verkið og að því loknu keypti hún alla seríuna. nema hvað að ég hafði bara gleymt því að þetta hafði átt sig stað. enda smá síðan að þetta átti sér stað og maður orðinn gleyminn en þó ekki staðnaður. langt í frá. en ljósmyndir á ég af þessari seríu til hjá mér á hörðum disk og eftir að hafa skoðað þær ljósmyndir og stúderað vandlega datt mér í hug að ég gæti endurgert teikningarnar að hluta til. auðvitað ekkert alveg eins og upprunalega serían. en allavega látið reyna á það. svona reyna gera eitthvað í svipuðum dúr. en það var bara ekki sjens. af þessum ljósmyndum að sjá var það einsog þetta væri teiknað af einhverjum öðrum. semsagt ekki mér. svo ég gat engan veginn teiknað í þessum stíl akkúrat núna. allavega ekki í dag. en sýninguna í hannesarhotli ætlaði ég einmitt að kalla eftir þessari seríu. þar að segja „kaffi og kökur“ – og hefði það sjálfsagt dekkað konseptið. heildarhugmyndina fyrir sýninguna. að mér fannst allavega. titlar koma nefnilega oft upp um verkin. en það má þó staldra aðeins lengur við eitt og eitt málverk. skoða lengur og ítarlega. þá kemur oft margt annað í ljós. eitthvað sem áhorfandinn tengir kannski við sig pérsónulega. sitt líf. sínar upplifanir. sína drauma. en í þýskalandi hef ég fengið að kynnast því að það sé mikilvægt að taka sér pásur af og til yfir daginn og fá sér kaffi. þessar pásur kallar fólk hér „kaffeepause“. eða á góðri íslensku „kaffipása“. sit ég hér við skrif einmitt með kaffi. svo ég ákvað að kalla sýninguna „kaffipása“. málverkin fyrir sýninguna voru unnin með þetta allt saman í huga. og þar með býð ég fólki að koma\, njóta verkana\, fá sér kaffi og með því.“  – Sigtryggur Berg\, 3.9.24 \nSigtryggur Berg Sigmarsson (f. 1977) er mynd-\, hljóð- og gjörningalistamaður sem býr í Þýskalandi. Hann stundaði myndlistarnám í Hannover hjá prófessor Ulrich Eller og lauk meistaragráðu frá Fachhochschule Hannover Bildende Kunst árið 2003. Áður hafði hann stundað nám við Konunglega konservatoríið í Haag á árunum 1997 – 1998.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kaffipasa-myndlistarsyning-sigtryggs-bergs-sigmarssonar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/09/sigtryggur-berg-_-kaffipasa.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240808T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240808T170000
DTSTAMP:20250207T113023Z
CREATED:20240807T105156Z
LAST-MODIFIED:20250207T113023Z
UID:10001001-1723129200-1723136400@hannesarholt.is
SUMMARY:Slóðir – Myndlistarsýning Ella (Erlingur Jón Valgarðsson)
DESCRIPTION:Slóðir \nLeiðin út í víðáttuna\, óræðan fjarskann þar sem himinn og jörð verða eitt\, er leið hugans til rósemdar og hvíldar í algerri kyrrð. Jafnframt er hún leiðin heim – stundum ógreinileg\, stundum vörðuð eftir fyrri ferðir eða gengnar kynslóðir\, því öllum er nauðsyn að finna fegurðina í einverunni undir stórum himni – að fara þessa ferð. \nFetum okkur eftir þessari slóð uns við finnum okkar griðastað – kannski grónum haga\, kannski blásnum mel og hittum okku sjálf fyrir. \nÖruggum strokum leiðir listamaðurinn okkar á þessar heillandi slóðir þar sem náttúran og tíminn ríkja. Þangað leitum við griða. \nÞví listin heldur áfram að gefa svo lengi sem við kjósum að þiggja. \nSýningin er sölusýning og stendur yfir til 27.08.24
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/slodir-myndlistarsyning-ella-erlingur-jon-valgardsson/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/08/elli.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240510T150000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20240510T170000
DTSTAMP:20250207T120725Z
CREATED:20240502T170104Z
LAST-MODIFIED:20250207T120725Z
UID:10000990-1715353200-1715360400@hannesarholt.is
SUMMARY:Stundum raða ég stundum saman - Sýning Diddu H. Leaman
DESCRIPTION:Stundum raða ég stundum saman er heiti sýningar Diddu H. Leaman sem opnar í Hannesarholti föstudaginn 10. maí. 15.00-17.00. \nDidda sýnir verk sem unnin eru með bleki og tússi á pappír.\nMyndirnar vísa í eigin hugarheim og náttúruna og ýmis fyrirbæri hennar\, svo sem liti og birtuskilyrði. Áhrifa frá ferðalögum til Hólmavíkur og dvalar við Steingrímsfjörð gætir í mörgum verkanna. \nDidda H. Leaman stundaði myndlistarnám á Íslandi\, Finnlandi og Bretlandi. Eftir námslok í málaradeild við Slade School of Fine Art\, University College London\, bjó hún í London í 20 ár\, en hefur verið búsett í Reykjavík frá 2007. Árið 2017 hófst svo Hólmavíkurævintýri Diddu\, en frá þeim tíma hefur hún dvalið hluta ársins á Hólmavík. Didda hefur dvalið í vinnustofum listamanna í Kathmandu í Nepal og Novi Sad í Serbíu\, auuk fjögurra mánaða námsdvalar í Barcelóna. \nSýningin er sölusýning og stendur út maí. Hannesarholt er opið alla daga nema sunnudaga og mánudaga frá kl.11.30-16:30
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/stundum-rada-eg-stundum-saman-syning-diddu-h-leaman/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/05/HH-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240418T150000
DTEND;TZID=UTC:20240418T170000
DTSTAMP:20240508T124941Z
CREATED:20240409T213828Z
LAST-MODIFIED:20240508T124941Z
UID:10000858-1713452400-1713459600@hannesarholt.is
SUMMARY:María Sigríður Jónsdóttir - APRÍL Málverkasýning
DESCRIPTION:María Sigríður Jónsdóttir opnar málverkasýningu sína APRÍL fimmtudaginnn 18.apríl kl.15-17. \nMaría stundaði myndlistarnám í Ríkisakademíunni í Flórens á árunum 1994-1998 og hefur síðan búið og starfað við myndlist á Ítalíu. Í málverkum hennar gætir áhrifa víða að\, sem og úr draumum og innri hugarheimi. Hún laðast að hinu óþekkta\, andlegum málum og súrrealisma. Í verkunum birtist hennar innri heimur og sú tilfinning sem hún ber í hjartanu. Málverkin eru oft draumkennd og óraunveruleg\, smáævintýri á striga og María setur gjarnan venjulega hluti í óvenjulegar aðstæður. Þá fær áhorfandinn frelsi til að túlka verkið á sinn persónulega hátt\, búa til sína eigin sögu og finna sína eigin leið. \nMaría segir sjálf: \,\,Í verkum mínum gætir líka áhrifa frá þeim tíma sem ég bjó í Flórens\, vöggu endurreisnartímabilsins. Sá undurfagri listheimur sem Flórens og Ítalía bjóða uppá hvert sem litið er hafa veitt mér innblástur. Íslenska birtan\, litirnir og fjöllin hafa þó haft mest áhrif á verk mín. Blóm eru mér mjög hugleikin og hafa verið áberandi í verkum mínum síðustu ár. Þau tengjast okkur á svo margan hátt\, bæði í gleði og sorg\, minningum hugans og oft ríkja miklar tilfinningar þegar við tengjumst blómunum og gefum þeim gaum. Óendanleg litadýrð þeirra\, form og mýkt\, ilmur og birtingarmyndir geta sagt okkur sögur\, huggað og glatt. Ég býð áhorfendum mínum að staldra við\, njóta augnabliksins\, hugleiða og. upplifa sín eigin ævintýri og sögur.“ \nAPRÍL er sölusýning og stendur til 7.maí. Sýningin er aðgengileg á opnunartíma Hannnesarholts kl.11.30-16 alla daga nema sunnudaga og mánudaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/maria-sigridur-jonsdottir-april-malverkasyning/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Round-Photo_Apr042024_112753.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240321T150000
DTEND;TZID=UTC:20240321T170000
DTSTAMP:20240508T125057Z
CREATED:20240409T220048Z
LAST-MODIFIED:20240508T125057Z
UID:10000865-1711033200-1711040400@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTING - Svandís Egilsdóttir Málverkasýning - opnun
DESCRIPTION:Svandís Egilsdóttir opnar málverkasýningu sína BIRTINGU í Hannesarholti fimmtudaginn 21.mars kl.15-17. Verkin á sýningunni eru unnin á síðustu tveimur árum með akrílmálningu á striga. Þau eiga sér mörg ákveðinn grunn í hreyfingu öldunnar og vísa til náttúruupplifunar og hugmyndar um að á hverjum myndfleti geta verið fleiri en ein vídd til staðar samtímis. \nTitill sýningarinnar vísar í eitt verk með sama heiti\, en einnig vinnuaðferðarinn sem Svandís notar við listsköpun sína. Verkið Birting er litríkt og á sama tíma ímynduð ljóðræn náttúrusýn líkt og má segja um öll verkin á sýningunni. \n„Ég fer oftast af stað með óljósa hugmynd eða ákvörðun um hreyfingu eða lit og vinn svo með liti og form út frá því sem gerist tilviljanakennt á striganum og í flæðinu. Samtímis vinn ég með það sem gerist inni í mér. Svo held ég áfram að mála í átt að því sem mér finnst hafa einhverja merkingu\, eða eftir því sem merkingin verður til og samtal hjartans og litanna birtir.“ \nSvandís lærði myndlist og myndlistarkennslu í Danmörku og Madison\, Wisconsin. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í samsýningum frá árinu 1997. Hún starfar sem fagstjòri á vettvangi grunnskòlamàla hjà Reykjavíkurborg. \nSýningin stendur til 16.apríl og er sölusýning\, opin á opnunartíma Hannesarholts\, alla daga nema sunnudaga og mánudaga frá kl.11.30-16.00.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birting-svandis-egilsdottir-malverkasyning-opnun/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/ZfK5akmNsf2sHklh_Svandis.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20240302T130000
DTEND;TZID=UTC:20240302T134500
DTSTAMP:20240411T223708Z
CREATED:20240411T142413Z
LAST-MODIFIED:20240411T223708Z
UID:10000879-1709384400-1709387100@hannesarholt.is
SUMMARY:Sara Oskarsson - Leiðsögn um sýninguna ÍSTAKA
DESCRIPTION:Sara Oskarsson veitir leiðsögn um málverkasýningu sína ÍSTAKA í Hannesarholti laugardaginn 3.febrúar kl.13. \nÁ sýningunni eru verk eftir Söru unnin á striga og panel með olíu og vaxi. Verkin eru úr nýrri borgar-seríu sem eru innblásin af dýnamíkinni hjá Tjörninni í Reykjavík. \nTitill sýningarinnar vísar til ístöku á tjörninni sem fór fram í Reykjavík á fyrri hluta síðustu aldar. Ísinn var notaður í íshúsin í Reykjavík og til að ísa fisk fyrir siglingar með glænýjan fisk. \nÍstaka var erfiðisvinna í kulda og trekki. Ísinn var högginn þar sem að hann var tærastur og bestur og síðan sprengdur frá ísbrúninni með járnkörlum. Íshellunum var svo raðað á sleða sem hestar drógu að geymslum íshúsa. \nVar þetta allt saman hið kalsamasta verk og erfitt enda vont að ná haldi á blautum ísnum. Jakarnir voru vegnir upp á skörina með ísstöngum og áfram á sleðana. Hestar siluðust í átt að litlu steinbryggjunni\, eftir henni upp tjarnarbakkann og síðan á ákvörðunarstað. Þetta var oft hið tafsamasta ferðalag því ísstykkin vildu velta af sleðunum. \nÍshúsið Herðubreið sem stendur við tjörnina hýsir nú Listasafn Íslands. \nSara sem er fædd Reykjavík og á ævilangar minningar þaðan gerir tjörnina og umhverfi að viðfangsefni sínu og líkir starfi og viðleitni málarans við ákveðna “ístöku”. \nAð fanga augnablik\, stemmningu\, hugmyndir\, birtu og sál – að skapa eitthvað úr nærumhverfi sínu við hin ýmsu skilyrði. Að fanga það sem er hvikult. Sýnd veiði en ekki gefin.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sara-oskarsson-leidsogn-um-syninguna-istaka/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Leiðsögn um myndlistarsýningu
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/Saraoskarsson.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231216T140000
DTEND;TZID=UTC:20231216T150000
DTSTAMP:20240411T150000Z
CREATED:20240411T150000Z
LAST-MODIFIED:20240411T150000Z
UID:10000891-1702735200-1702738800@hannesarholt.is
SUMMARY:EVAAN - Lífshlaupið Pop-up sýning
DESCRIPTION:Eva Dögg Guðmundsdóttir verður með POP UP sýningu í veitingastofum Hannesarholts dagana 15.-16. desember sem að hún hefur nefnt Lífshlaupið. \nÞar verða til sölu lampar úr vörulínunni Verðlaunahafinn. Laugardaginn 16.desember milli klukkan 14:00-16:00 mun Eva taka á móti gestum og gangandi og boðið verður uppá léttar veigar. \nLífshlaupið:\nLampavörulínan Verðlaunahafinn er frumraun Evu á sviði listsköpunar.\nLamparnir eru hannaðir úr verðlaunabikurum og er hver lampi samsettur úr 6-7 bikörum sem á að tákna lífshlaup hvers og eins. Á hverri mannsævi mætum við sorgum og sigrum\, mótlæti og meðgjöf. Verðlaunabikararnir koma úr einkasafni íþróttaafreka þar sem bæði hafa verið unnir sigrar og tapað. Í afreksíþróttum er það þannig að þeir sem standa á verðlaunapalli og hreppa annað sæti\, hafa tapað fyrir sigurvegaranum\, en fá samt bikar. Í lífshlaupinu er það svo að þegar að hlutirnir fara ekki á þann veg sem\nvið óskum reynir á þrautseigjuna og seigluna að koma okkur áfram í lífinu og það rís nýr dagur. Lampinn er hugsaður til að heiðra lífssögu hvers og eins. \nVerðlaunahafinn er hannaður fyrir einstaklinginn sem var kannski ekki afreksíþróttamaður en á svo sannarlega bikar skilið hvernig hann/hún/hán hefur staðið sig í lífinu. \nUm hönnunina:\nLamparnir eru íslensk hönnun og framleiddir úr aðfengnum efniviði þar sem hvert eintak á sér einstaka sögu afreka. Má segja að Eva starfi á mörkum hönnunar og listhandverks. Hönnunarfyrirmynd lampans er gamli marmaralampinn sem var til á flestum\níslenskum heimilum á árunum 1960-1970. Formin eru ólík á bikurunum en eru látin passa saman á samskeytunum svo að í hverjum lampa eru kúlur og keilur að formi. Inni í þeim eru svo marmari sem hefur verið slípaður niður úr afrekssafninu\, svo að marmarinn passi inn í formin og að lampinn sé stöðugur. \nUm Evu Guðmundsdóttir (f. 1982)\nEva er með meistaragráðu í Menningar og innflytjendafræðum ásamt Uppeldis og menntunarfræðum frá Háskólanum í Hróarskeldu (2013). Hún var lengi búsett í Danmörku en flutti aftur til Íslands 2015. Á ferli sínum hefur Eva hefur starfað hjá hinu opinbera\, hjá félagasamtökum og verið sjálfstætt starfandi á sviði félags- og mannúðarmála. Eva hannar undir vörumerkinu EVAAN og finna má meira um hönnun hennar á heimasíðunni www.evaan.is og einnig á Instagram.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/evaan-lifshlaupid-pop-up-syning/2023-12-16/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/evaan.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231215T113000
DTEND;TZID=UTC:20231215T123000
DTSTAMP:20240411T150000Z
CREATED:20240411T150000Z
LAST-MODIFIED:20240411T150000Z
UID:10000890-1702639800-1702643400@hannesarholt.is
SUMMARY:EVAAN - Lífshlaupið Pop-up sýning
DESCRIPTION:Eva Dögg Guðmundsdóttir verður með POP UP sýningu í veitingastofum Hannesarholts dagana 15.-16. desember sem að hún hefur nefnt Lífshlaupið. \nÞar verða til sölu lampar úr vörulínunni Verðlaunahafinn. Laugardaginn 16.desember milli klukkan 14:00-16:00 mun Eva taka á móti gestum og gangandi og boðið verður uppá léttar veigar. \nLífshlaupið:\nLampavörulínan Verðlaunahafinn er frumraun Evu á sviði listsköpunar.\nLamparnir eru hannaðir úr verðlaunabikurum og er hver lampi samsettur úr 6-7 bikörum sem á að tákna lífshlaup hvers og eins. Á hverri mannsævi mætum við sorgum og sigrum\, mótlæti og meðgjöf. Verðlaunabikararnir koma úr einkasafni íþróttaafreka þar sem bæði hafa verið unnir sigrar og tapað. Í afreksíþróttum er það þannig að þeir sem standa á verðlaunapalli og hreppa annað sæti\, hafa tapað fyrir sigurvegaranum\, en fá samt bikar. Í lífshlaupinu er það svo að þegar að hlutirnir fara ekki á þann veg sem\nvið óskum reynir á þrautseigjuna og seigluna að koma okkur áfram í lífinu og það rís nýr dagur. Lampinn er hugsaður til að heiðra lífssögu hvers og eins. \nVerðlaunahafinn er hannaður fyrir einstaklinginn sem var kannski ekki afreksíþróttamaður en á svo sannarlega bikar skilið hvernig hann/hún/hán hefur staðið sig í lífinu. \nUm hönnunina:\nLamparnir eru íslensk hönnun og framleiddir úr aðfengnum efniviði þar sem hvert eintak á sér einstaka sögu afreka. Má segja að Eva starfi á mörkum hönnunar og listhandverks. Hönnunarfyrirmynd lampans er gamli marmaralampinn sem var til á flestum\níslenskum heimilum á árunum 1960-1970. Formin eru ólík á bikurunum en eru látin passa saman á samskeytunum svo að í hverjum lampa eru kúlur og keilur að formi. Inni í þeim eru svo marmari sem hefur verið slípaður niður úr afrekssafninu\, svo að marmarinn passi inn í formin og að lampinn sé stöðugur. \nUm Evu Guðmundsdóttir (f. 1982)\nEva er með meistaragráðu í Menningar og innflytjendafræðum ásamt Uppeldis og menntunarfræðum frá Háskólanum í Hróarskeldu (2013). Hún var lengi búsett í Danmörku en flutti aftur til Íslands 2015. Á ferli sínum hefur Eva hefur starfað hjá hinu opinbera\, hjá félagasamtökum og verið sjálfstætt starfandi á sviði félags- og mannúðarmála. Eva hannar undir vörumerkinu EVAAN og finna má meira um hönnun hennar á heimasíðunni www.evaan.is og einnig á Instagram.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/evaan-lifshlaupid-pop-up-syning/2023-12-15/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/avif:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2024/04/evaan.avif
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20231118T140000
DTEND;TZID=UTC:20231118T170000
DTSTAMP:20240411T151842Z
CREATED:20240411T151842Z
LAST-MODIFIED:20240411T151842Z
UID:10000900-1700316000-1700326800@hannesarholt.is
SUMMARY:Hendrikka Waage pop-up sýning "Valkostir nútímans"
DESCRIPTION:Hendrikka Waage verður með pop-up sýningu í veitingastofum Hannesarholts dagana 17.-18.nóvember sem hún nefnir Valkostir samtímans. Þar verða til sölu bæði málverk og prentverk sem hún hefur málað á þessu ári auk þess sem hún verður með til sölu nýjustu línuna af perluskartgripum. Laugardaginn 18.nóvember kl.14-16 tekur Hendrikka á móti gestum og verður m.s. frumflutt lag eftir tónlistarmennina Guðjón Böðvarsson og Doktor Viktor. \n“Valkostir Samtímans” \nÍ endalausu upplýsingastreymi nútímans býður Hendrikka Waage í ferðalag inn í heim sem hún kýs að nefna “Valkostir Samtímans”. “Valkostir Samtímans” gerir atlögu að skilningarvitum þínum\, ögrar sjónarhorni þínu og hvetur þig til að sigla um margbreytileika stafrænnar aldar með skýrleika. \nÁ undanförnum árum hefur Hendrikka fengist við skartgripahönnun og myndlist sem endurspeglar upplifanir hennar af ólíkum menningarheimum þar sem hún skyggnist inn í nútíðina og veltir fyrir sér hvernig heimurinn þróast í framtíðinni. Sterkir litir einkenna þessa listsköpun og hún veltir fyrir sér valkostum\, dómgreind og tilgangi á tímum upplýsingaáreitis. \n“Konurnar með eitt eyra” vekur upp margar spurningar t.d. mikilvægi þess að velja og hafna til að koma í veg fyrir að drukkna í upplýsingum sem við höfum ekki þörf á. Með því náum við að einbeita okkur að því sem skiptir í raun og veru máli í því ferðalagi sem að lífið færir okkur . Hávaðinn má ekki yfirtaka það sem í raun og veru skiptir okkur máli. \nListsköpun Hendrikku vísar í alþjóðlega reynslu hennar og búsetu á Íslandi\, Japan\, Rússlandi\, Bandaríkjunum og Bretlandi. Reynsla hennar og upplifanir í þessum ólíku menningarheimum sameinast í listsköpun hennar og vekur upp spurningar sem hver og einn/ein finnur merkingu í. \nUm Hendrikku Waage \nHendrikka Waage er alþjóðega virt listakona þekkt fyrir skartgripi sína og lífleg listaverk sem kanna mannlegt form og blæbrigði upplýsinga-óreiðu nútímans. Með einstökum stíl innblásnum af alþjóðlegri reynslu hefur hún unnið sér inn viðurkenningu bæði í heimalandi sínu Íslandi og víðar. Ferill hennar frá skartgripahönnuði til listamanns þjónar sem vitnisburður um umbreytandi kraft ástríðu og sköpunargáfu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hendrikka-waage-pop-up-syning-valkostir-nutimans/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210612
DTEND;VALUE=DATE:20210621
DTSTAMP:20210611T110951Z
CREATED:20210611T110951Z
LAST-MODIFIED:20210611T110951Z
UID:10000500-1623456000-1624233599@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóð í máli og myndum
DESCRIPTION:Listasýningin „Ljóð í máli og myndum“ eftir Margret Schopka\, hefst með opnun laugardaginn 12. júní kl.15:00-17:00 í Hannesarholti. Sendiherra Þýskalands hr. Dietrich Becker ávarpar gesti við opnunina.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljod-i-mali-og-myndum/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/06/Syning.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210528
DTEND;VALUE=DATE:20210621
DTSTAMP:20210608T114052Z
CREATED:20210525T160019Z
LAST-MODIFIED:20210608T114052Z
UID:10000844-1622160000-1624233599@hannesarholt.is
SUMMARY:TÍMAFLAKK - SNORRI ÁSMUNDSSON OG KRISTJÁN FRÍMANN KRISTJÁNSSON
DESCRIPTION:Á föstudaginn 28. maí kl 20 opnar Snorri Ásmundsson tvær sýningar í Hannesarholti.  Fyrst má nefna einkasýningu á nýjum málverkum sem Snorri hefur málað í dvöl sinni í skógum Svíþjóðar\, en þar hefur hann dvalist síðusta árið langt inni í skógi í Nössemark í Svíþjóð ásamt 2 köttum og lítið samneyti haftvið annað mannfólk í raunheimum. Á neðri hæð í Salnum\, tónlistarrými Hannesarholts hefur verið sett upp ljósmyndasýning þar sem listamennirnir Snorri Ásmundsson og Kristján Frímann Kristjánsson tóku sig saman og fóru á tímaflakk. Í þessari fyrstu ferð þeirra um tímann var hernám Íslands og hernámsárin 1940 – 1945 skoðuð og mynduð. Á þessum ferðum þeirra um Ísland í seinni heimsstyrjöldinni kynntust þeir sagnfræðigrúskaranum Þór Eysteinssyni sem hefur verið þeim hjálplegur að lesa myndirnar og skýra merki og tákn sem birtast í myndunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/timaflakk-snorri-asmundsson-og-kristjan-frimann-kristjansson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/snorri.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210528
DTEND;VALUE=DATE:20210611
DTSTAMP:20210525T160303Z
CREATED:20210525T160303Z
LAST-MODIFIED:20210525T160303Z
UID:10000845-1622160000-1623369599@hannesarholt.is
SUMMARY:LISTASÝNING - SNORRI ÁSMUNDSSON
DESCRIPTION:Á föstudaginn 28. maí kl 20 opnar Snorri Ásmundsson tvær sýningar í Hannesarholti.  Fyrst má nefna einkasýningu á nýjum málverkum sem Snorri hefur málað í dvöl sinni í skógum Svíþjóðar\, en þar hefur hann dvalist síðusta árið langt inni í skógi í Nössemark í Svíþjóð ásamt 2 köttum og lítið samneyti haftvið annað mannfólk í raunheimum. Á neðri hæð í Salnum\, tónlistarrými Hannesarholts hefur verið sett upp ljósmyndasýning þar sem listamennirnir Snorri Ásmundsson og Kristján Frímann Kristjánsson tóku sig saman og fóru á tímaflakk. Í þessari fyrstu ferð þeirra um tímann var hernám Íslands og hernámsárin 1940 – 1945 skoðuð og mynduð. Á þessum ferðum þeirra um Ísland í seinni heimsstyrjöldinni kynntust þeir sagnfræðigrúskaranum Þór Eysteinssyni sem hefur verið þeim hjálplegur að lesa myndirnar og skýra merki og tákn sem birtast í myndunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/listasyning-snorri-asmundsson/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/05/image0-scaled.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20210417T150000
DTEND;TZID=UTC:20210516T170000
DTSTAMP:20210505T143949Z
CREATED:20210414T115814Z
LAST-MODIFIED:20210505T143949Z
UID:10000837-1618671600-1621184400@hannesarholt.is
SUMMARY:Daði Guðbjörnsson í Hannesarholti
DESCRIPTION:Myndir sýningar eru flestar nýjar og eiga það sameiginlegt að vera unnar undir áhrifum frá landslagi og straumunum sem liggja undir yfirborðinu á því sem við sjáum og leika sér af því að gera lífið að ævintýri ef við erum tilbúin til að njóta. \nFormleg sýningaropnun verður laugardaginn 17. apríl á milli kl 15 og 17. Öll kærlega velkomin en vegna sóttvarna er fólk beðið um að bóka skoðun í síma 511-1904 eða á vidburdir@hannesarholt.is \nTímasetningar fyrir bókun á opnun laugardaginn 17. apríl eru eftirfarandi: 15.00-15.30 // 15.30-16.00 // 16.00-16.30 // 16.30-17.00 \nDaði Guðbjörnsson f: 1954 \nDaði er lærður húsgagnasmiður en snéri sér fljótlega að myndlist. Hann útskrifaðist frá Listaakademíunni í Amsterdam árið 1984 en áður hafið hann lokið námi frá Nýlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Daði hefur eingöngu starfað við myndlist frá námslokum og verið áberandi í íslensku listalífi. Ásamt eigin listsköpun hefur hann setið í safnráði Listasafns Íslands og verið formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna. Einnig kenndi hann myndlist í þrettán ár. \nFyrstu einkasýningu sína hélt Daði árið 1980 í Gallerí Suðurgötu 7 og eru þær nú orðnar vel á fimmta tug. Daði hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga sem og listamannahópum s.s. Gullpenslinum og Akvarell Island en báðir hóparnir hafa sýnt alloft hér heima og erlendis. Verk Daða hafa einnig verið valin til sýninga s.s. á sýninguna Málverkið eftir 1980 í Listasafni Íslands árið 2006\, en markmið hennar var að varpa ljósi á nýja málverkið\, og á sýninguna Blæbrigði vatnsins sem var fyrri hluta ársins 2010 í Listasafni Reykjavíkur en á henni var sjónum beint að vatnslitum í íslenskri myndlist 1880-2010. Daði hefur nokkrum sinnum hlotið starfslaun listamanna\, bæði frá Reykjavíkurborg og íslenska ríkinu. \nMörg listasöfn s.s. Listasafn Íslands\, Listasafn Reykjavíkur\, Nýlistasafnið og Listasafn Akureyrar eiga verk eftir Daða. \nhttp://www.dadilisto.blog \nhttps://www.facebook.com/dadigudbjornsson \nhttps://www.instagram.com/dadigudbjornsson/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/dadi-gudbjornsson-i-hannesarholti/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/04/Ískaldur-Eiríksjökull-veit-allt...-36x25-2021-copy-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210313
DTEND;VALUE=DATE:20210416
DTSTAMP:20210310T154442Z
CREATED:20210309T115340Z
LAST-MODIFIED:20210310T154442Z
UID:10000836-1615593600-1618531199@hannesarholt.is
SUMMARY:STÖPLAR - UNNAR ARI BALDVINSSON
DESCRIPTION:Sýning Unnars Ara Baldvinssonar “Stöplar” er samsett af 12 verkum í tveimur stærðum og verður formleg opnun í Hannesarholti Laugardaginn 13. mars\, milli kl 15 og 17. Öll velkomin en við minnum á almennar sóttvarnir og grímusskyldu. Sýningin stendur til 15. apríl.\nHugmyndin af Stöplunum er jafnvægið á litum\, formum\, myndinni sjálfri og rammanum í kring. Litir samsettir með formum sem teygja sig yfir og útfyrir rammann. Rammarnir eru smíðarðir sérstaklega í kringum tréplötur og litirnir flæða yfir. Stöplar eða stoð sem tengist beint í þýðinguna á orðinu ásamt því að tengja í við/tré sem er notaður í byggingarefni eða tré sem standa föst í jörðinni. Hörð skil á litunum og rammanum mynda stuðning við myndina sjálfa.\nVerkin eru sínir eigin stöplar.\n\n\nUnnar Ari er fæddur 1989 og útskrifaður úr Accademia Italiana og Florence University of Arts á Ítalíu. Þar sem hann stundaði nám við grafíska hönnun og listasögu. Unnar vann sem aðstoðarmaður hjá Ítalska listamanninum Emilio Cavallini og sækir þar innblástur í geometrísk verk hans.  \n„Þar sá ég að hann var að láta smíða sína eigin ramma eða box utan um einhverskonar nylon vegg-skúlptúra þar sem efni úr sokkabuxum var svo þrætt í gegnum verkið sjálft. Ég hef mikið prófað mig áfram með að smíða mína eigin ramma og leyfa myndinni að blæða út fyrir verkið\, að leyfa rammanum að vera hluti af myndinni sjálfri. Með að einfalda formin í takt við stærð myndarinnar verður til stöpull sem gefur myndinni jafnvægi. Það er svoldið skemmtilegt að jafnvægið í myndinni er í rauninni myndin sjálf.“ \n\nUnnar Ari hefur tekið þátt í fjölda samsýninga\, hérlendis og erlendis. Þetta er fimmta einkasýning Unnars Ara.\nSýningin er sölusýning og þeir sem hafa áhuga á að eignast verk af sýningunni\, geta haft samband við Hannesarholt í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is\nHannesarholt er opið alla daga nema mánudaga frá kl 11.30 – 17.00.\nunnar@baldvinsson.com\nInstagram: @unnar.ari.baldvinsson
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/stoplar-unnar-ari-baldvinsson/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/STOPLAR.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210220
DTEND;VALUE=DATE:20210312
DTSTAMP:20210302T121648Z
CREATED:20210302T121648Z
LAST-MODIFIED:20210302T121648Z
UID:10000835-1613779200-1615507199@hannesarholt.is
SUMMARY:MILLI HÚSA - ARON LEVÍ BECK / ALBECK
DESCRIPTION:Frá unga aldri hefur listamaðurinn heillast af litum\, formum\, list og sköpun. Það mátti sjá snemma að áhugi á tjáningu í gegnum listsköpun væri til staðar. \nAron sækir innblástur í verk sín í nærumhverfi sitt\, en borgin\, húsin og skipulagið er eitthvað sem er honum afar kært. Listamaðurinn hefur fleiri en eina tengingu við viðfangsefnið allt frá því að mála hús yfir í að starfa við skipulag borgarinnar. \nAron Leví lærði húsamálarann og hlaut síðan Húsamálarameistara titil 2019. Hann kláraði BS í Byggingafræði og stundaði meistaranám við borgarskipulag. Reynsla hans er þó ekki upptalin því hann hefur einnig starfað sem borgarfulltrúi og þá setið í skipulagsnefnd. \nNú nálgast hann þó borgina á nýjan og óhefðbundinn hátt. Verkin einkennast af litum\, formum og áferð sem gerir það að verkum að gesti langar ekki bara að snerta verkin heldur komast inn í þau. Hallgrímskirkja er einkennandi í mörgum verkunum enda áhugavert mannvirki þó svo sumir vilji meina að hún sé eitt mesta skipulagsslys Reykjavíkurborgar. \nFormleg opnun sýningar verður laugardaginn 20. febrúar á milli 15 og 17. Öll velkomin. \nHannesarholt er opið alla daga nema mánudaga frá 11.30-17.00. Hádegisseðill er borinn fram milli 11.30 og 14 á virkum dögum. Helgardögurður er borinn fram milli 11.30 og 14.30 laugardaga og sunnudaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/milli-husa-aron-levi-beck-albeck/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/03/image_6483441-2-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20210111
DTEND;VALUE=DATE:20210129
DTSTAMP:20210115T131510Z
CREATED:20210115T131510Z
LAST-MODIFIED:20210115T131510Z
UID:10000468-1610323200-1611878399@hannesarholt.is
SUMMARY:LITIR OG LJÓS - RAGGA RÓBERTS
DESCRIPTION:Sýningin Litir og ljós í Hannesarholti samanstendur af 15 olíu- og akrýlmálverkum eftir Röggu Róberts (f. 1994). Málverkin eru innblásin af íslenskri náttúru\, litum\, ljósi og mannfólki á tímum Covid-19. Flest verkin eru unnin árið 2020 á tveimur listasmiðjum úti á landi\, NES listasmiðjunni á Skagaströnd og Gullkistunni á Laugarvatni. Ragga stundaði myndlistarnám í New York við Pratt Institute þaðan sem hún útskrifaðist árið 2019. Hún býr nú og starfar í Reykjavík. \nLaugardaginn 16. janúar tekur Ragga á móti gestum og gangandi á milli 15.30 og 17.00. \nCOLORS AND LIGHT – RAGGA RÓBERTS \nThe art exhibit Colors and light in Hannesarholt consists of 15 oil and acrylic paintings by Ragga Róberts (b. 1994). The paintings are inspired by Icelandic nature\, colors\, light and people during Covid-19. Most of the artworks are made in the countryside of Iceland where Ragga recently took part in two art residencies\, NES Artist Residency at Skagaströnd and Gullkistan at Laugarvatn. Ragga lived in New York and graduated from Pratt Institute with a BFA in painting 2019. Today she lives and works in Reykjavík\, Iceland.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/litir-og-ljos-ragga-roberts/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/img_3495.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201211
DTEND;VALUE=DATE:20210111
DTSTAMP:20210119T141457Z
CREATED:20210119T141457Z
LAST-MODIFIED:20210119T141457Z
UID:10000469-1607644800-1610323199@hannesarholt.is
SUMMARY:´HÝSILL´ - MELLÍ
DESCRIPTION:‘Hýsill’ samanstendur af ellefu skúlptúraverkum\, í fjórum mismunandi stærðarhlutföllum\, sem öll eiga samtal sín á milli. Hvert verk er sambræðingur málverks og skúlptúrs\, þar sem finna má mörg lög smáatriða og mismunandi áferða. Málað er með draumkenndum og rjómalöguðum pasteltónum í bland við skerandi neon tóna\, en sú palletta kallar óhjákvæmlega fram hamingju hjá áhorfandanum. Myndbyggingin líkist súrrealísku landslagi\, og stöku hreyfingar málverksins herma eftir niðurstreymisvindum Júpíters. Smágerðir epoxy skúlptúrar eru eftirmyndir af formalíni\, en í hefðbundnum skilningi er formalínið notað til þess að varðveita líkamsvefi og form fyrir líffæri eða lík. Listakonan túlkar þetta gróteska fyrirbæri á sinn litríka hátt\, og skapar ónáttúruleg\, pasteltóna fóstur í glimmer formalíni.\nÍ verkum Mellí (1997) ráða glimmer og gimsteinar jafnan ríkjum\, efniviður sem fyrirfinnst ekki einvörðungu inni á diskótekum. Auk glitursins sækir listakonan mikið í hefðbundna abstrakt geómetríu\, og fléttar hana inn í yfirgengilegan og hólógrafískan efnivið.Á yfirborði málverkanna má finna fíngerða skúlptúra sem líkja eftir kristalþyrpingum sem finnast í bergi jarðarinnar. Að jafnaði þekkjum við málverk sem tvívíðan flöt\, og verður sá flötur því þrívíður með viðbót þessara skúlptúra. Persónulegan geðþóttastuðul listakonunnar má sjá í því að allt þurfi að vera eins aðlaðandi eins og aðstæður leyfa\, með fjörugri litagleði í bland við glitrandi kristalþyrpingar.\n‘Hýsill’ er fimmta einkasýning listakonunnar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hysill-melli/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/melli-banner-poster-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201120
DTEND;VALUE=DATE:20201211
DTSTAMP:20210119T141723Z
CREATED:20210119T141723Z
LAST-MODIFIED:20210119T141723Z
UID:10000470-1605830400-1607644799@hannesarholt.is
SUMMARY:UM LANDIÐ - INGIBJÖRG DALBERG
DESCRIPTION:Ingbjörg Dalberg heldur sýningu á nýjum olíumálverkum í Hannesarholti\, sem hún hefur málað í framhaldi af ferðalögum um landið á síðustu tveimur árum. Sýningin nefnist UM LANDIÐ og er sölusýning. Myndirnar eru fyrst og framst stemningsmyndir af upplifun ferðalangs. Sýningin stendur frá 20.nóvember til 10.desember. Áhugasamir hafi samband við Hannesarholt til að bóka heimsókn á sýninguna. Sími 511-1904. \nIngibjörg nam og lagði stund á myndlist og listasögu í Englandi\, þar sem hún bjó um árabil\, (National diploma Found\, Higher Ed.Art and Design\, London og Hull College of Further Ed.) auk þess að sækja margvísleg námskeið þekktra listasafna eins og Tate Modern í London. Einnig nam hún myndlist í París (École Nationale Supérieure des Beaux-Arts)\, auk þess að sitja námskeið á Íslandi í Myndlistarskóla Reykjavíkur\, Myndlistarskóla Kópavogs og Listabraut FB. \nInga lauk BA prófi í sagnfræði með listfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands og var viðfangsefni lokaritgerðar hennar: „Brot úr sögu smámynda á Íslandi. Upphaf og endalok 1770-1840“ tengt órannsökuðum anga í sögu myndlistar hér á landi. \nMeð hléum hefur inga starfað við listmálun og vinnur ýmist við stór óhlutbundin verk til jafns við fígúratívar myndir. Einkum eru það andlitsmyndir / portrett\, með áherslu á raunsæi\, sem hafa verið meginviðfangsefni undanfarin ár.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/um-landid-ingibjorg-dalberg/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/126551254_2737069319889355_4432723151174873917_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201101
DTEND;VALUE=DATE:20201120
DTSTAMP:20210119T142118Z
CREATED:20210119T142118Z
LAST-MODIFIED:20210119T142118Z
UID:10000471-1604188800-1605830399@hannesarholt.is
SUMMARY:ERLINGUR PÁLL INGVARSSON - GULA SÓLIN MAMMA
DESCRIPTION:Þessi sýning er hugmyndalega tvískipt milli tveggja rýma í Hannesarholti en heildrænt skyld hvað efnisnotkun varðar. Sameiginlegur uppruni verkanna eru skissur sem hættu við að verða drög að einhverju og vildu standa sem fullbúin sjálfstæð verk. Myndirnar eru gerðar með ýmsum tegund­um lita og efna en öll eru þær á pappírsgrunni. \n1 Hringurinn\, hið fullkomnasta form\, hefur fylgt mannkyninu frá upphafi og er einskonar vöggugjöf til allra og alls ekki eingöngu listafólks. Ég er þá að vísa til þess að algengast er að það fyrsta sem hvert mannsbarn sér eftir fæðingu eru augasteinar. Hringformið er allt um lykjandi frá hinu stærsta sem við sjáum í himingeimnum til hinna smæstu öreinda. Hringurinn er virkur í vísindum og tækni. Hringurinn á sér endalausar birtingarmyndir í hugmyndaheimi mannkyns og hefur táknræna merkingu í heimspeki\, trúarbrögðum\, dulspeki (mysticism)\, goðsögnum (mythology)\, öllum listum og þannig mætti lengi telja. \nHér á sýningunni birtist hann hverjum og einum til eigin upplifunar og túlkunar. \n2 Línan\, sem getur verið tákn kyrrðar og stöðugleika\, getur einnig myndað og búið til öll form\, bæði geometrísk og lífræn. Línan\, bæði hugsuð og teiknuð\, er til dæmis einhver upprunalegasta leið okkar til þess að skýra fyrir okkur heimsmyndina og skrásetja\, teikna upp og skipuleggja umhverfi okkar. \nHér á sýningunni birtast línur hverjum og einum til eigin upplifunar og túlkunar. \nErlingur Páll Ingvarsson (1952) er starfandi listamaður í Reykjavík. Hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1974-1978. Eftir það fór hann í framhaldsnám til Hollands í De Vrije Academie Den Haag með búsetu í Amsterdam og síðan til Þýskalands í Den Stadtliche Kunstacademie\, Düsseldorf. Erlingur Páll hefur að baki 8 einkasýningar og nokkrar samsýningar. Listformið hefur spannað vítt svið: meðal annars skúlptúr\, innsetningar\, gjörninga\, ljósmyndir og texta\, en hann hefur nú um langt skeið notað málverk sem sinn helsta miðil. Sýningin er tileinkuð hljómsveitinni Gula sólin mamma.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/erlingur-pall-ingvarsson-gula-solin-mamma/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/elli-sol.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20201021
DTEND;VALUE=DATE:20201103
DTSTAMP:20210119T142305Z
CREATED:20210119T142305Z
LAST-MODIFIED:20210119T142305Z
UID:10000472-1603238400-1604361599@hannesarholt.is
SUMMARY:LIST ÁN LANDAMÆRA - BJÖRN TRAUSTASON
DESCRIPTION:Björn Traustason er listamaður sem notar teikninguna sem sinn helsta miðil. Hann teiknar einkum vélar\, en hann hefur haft sérstakan áhuga á hverskyns vélum frá barnæsku\, landbúnaðartækjum\, gröfum og dráttarvélum og flugvélum. Áhugann á flugvélum hefur Björn fengið frá föður sínum og afa\, sem báðir hafa átt og flogið litlum flugvélum og er Björn því vel kunnugur slíkum vélakosti. Á ferðum sínum um Ísland tekur Björn ætíð ljósmyndir af vélum\, sem hann nýtir þegar heim er komið til þess að teikna eftir\, ekki síst til þess að halda til haga mörgum af þeim nákvæmu þáttum\, s.s. heiti\, númerum og litasamsetningum\, sem sjá má á myndum hans. Hann safnar einnig litlum eftirmyndum af vélum úr plasti eða málmi\, sem hann notar til að teikna eftir. \nBjörn teiknar með blýanti og litblýanti en þannig nær hann að koma mikilvægum smáatriðum til skila\, auk þess sem hann getur haft litina og pappír með sér hvert sem er. Hann er afar iðinn við teikninguna og skipta teikningar hans líklega hundruðum. Í Hannesarholti má sjá tuttugu nýlegar teikningar hans. \nÞað er við hæfi að einkasýning Björns eigi sér stað í Hannesarholti\, fyrrum heimili Hannesar Hafstein\, sem var stórbrotinn stjórnmálamaður og framsýnn athafnamaður er beitti sér fyrir mörgum framfaramálum í landinu og var maður framkvæmda. Hannes var sem kunnugt er fyrsti ráðherra Íslands og sinnti því embætti á árunum 1904-1917. Hannes lést skömmu áður en framfarafólk á Íslandi hóf að nota þann vélakost er Björn Traustason sýnir okkur í listaverkum sínum. Ætla má að Hannes hefði orðið hrifinn af þessum vélum og þeim framförum í landbúnaði og á öðrum sviðum samfélagsins\, sem þær höfðu í för með sér. \nSýningin er á vegum listahátíðarinnar List án landamæra\, listahátíðar fatlaðra. \nwww.listin.is\ninfo@listin.is \nHannesarholt – Grundarstíg 10 – 101 Reykjavík \nVegna samkomutakmarkana er veitingahús Hannesarholts ekki opið þessa dagana\, en velkomið er að hafa samband og koma til að sjá sýninguna. Hringið í síma 511-1904 eða sendið tölvupóst í síma 511-1904. \nSýning Björns Traustasonar verður opin til og með sunnudegi 30. október 2020. \nSýningarýmið er því miður óaðgengilegt fyrir fólk með hreyfihömlun. Fimm tröppur. \nList án landamæra 2020 er stutt af Mennta- og menningarmálaráðuneytinu\, Reykjavíkurborg og Öryrkjabandalaginu-ÖBÍ.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/list-an-landamaera-bjorn-traustason/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/123058020_3396075603779045_6695764450689178405_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200919
DTEND;VALUE=DATE:20201011
DTSTAMP:20210119T142455Z
CREATED:20210119T142455Z
LAST-MODIFIED:20210119T142455Z
UID:10000475-1600473600-1602374399@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTING - INGIBJÖRG RÁN GUÐMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Ingibjörg Rán opnar sýninguna Birtingu í Hannesarholti laugardaginn 19.september kl.15.00-17.00. Verkin á sýningunni eru olíumálverk unnin fyrir sýningu í Hannesarholti. Myndefni frá Reykjavík\, Grundarfirði\, Vík og Grímsnesi. Sýningin er sölusýning og stendur til 9. október.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birting-ingibjorg-ran-gudmundsdottir/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ingibjorgran.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200829
DTEND;VALUE=DATE:20200918
DTSTAMP:20210119T142624Z
CREATED:20210119T142624Z
LAST-MODIFIED:20210119T142624Z
UID:10000477-1598659200-1600387199@hannesarholt.is
SUMMARY:BIRTINGARMYNDIR - STEFÁN BOULTER
DESCRIPTION:Stefán Boulter opnar sýninguna Birtingarmyndir í Hannesarholti laugardaginn 29.ágúst kl.15-16.30. Verkin á sýningunni eru allt olíumálverk á striga. \nStefán hefur kosið að kalla það sem hann gerir “ljóðrænt raunsæi.” Hann býr til táknmyndir sem eru frásagnarlegs eðlis\, bæði persónulegar og byggðar á þekktum og fornum grunni. Hugleiðingar um náttúruna\, tilvist okkar í henni og dýrkun hennar skipar þar stóran sess\, með áherslu á dýrin og viðveru hluta og áru þeirra. Hann hefur einnig verið talsmaður nýrra og breyttra heimspekilegra viðhorfa í listsköpun og bera verk hans þess merki. Stefán hefur sýnt verk sín í söfnum og galleríum bæði hér heima og erlendis. \nSýningin er sölusýning og stendur til 17.september.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/birtingarmyndir-stefan-boulter/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/fullsizerender.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200808
DTEND;VALUE=DATE:20200827
DTSTAMP:20210119T142802Z
CREATED:20210119T142802Z
LAST-MODIFIED:20210119T142802Z
UID:10000812-1596844800-1598486399@hannesarholt.is
SUMMARY:FARVEGUR - ÓLÖF SVAVA GUÐMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:FARVEGUR nefnist vatnslitasýning Ólafar Svövu Guðmundsdóttur sem opnar laugardaginn 8.ágúst kl.15-17. Myndirnar eru málaðar á síðustu tveimur árum. Sýningin er sölusýning og stendur til miðvikudagsins 26. ágúst. \nÓlöf er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er útskrifaður leikskóla-og listgreinakennari. Skapandi starf og þróunarverkefni í leikskólum hefur átt hug hennar síðastliðin þrjátíu og fimm ár. Einnig kenndi Ólöf vatnslitamálum í Myndlistarskóla Kópavogs síðastliðið ár. \nÓlöf segir vatnsliti hafa heillað sig alla tíð: \,\,Þeir eru uppspretta hugmynda og ævintýra. Gegnsæi og eiginleiki vatnslitanna hvetja til sköpunar. Sköpunin finnur sér alltaf farveg. Farvegurinn er náttúran\, birtan og sköpunin. Við erum ekkert án náttúrunnar. Hún er lífið sjálft.“ \nDeila á FacebookSenda tölvupóst
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/farvegur-olof-svava-gudmundsdottir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/olof-farvegur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20200529
DTEND;VALUE=DATE:20200630
DTSTAMP:20210119T143120Z
CREATED:20210119T143120Z
LAST-MODIFIED:20210119T143120Z
UID:10000813-1590710400-1593475199@hannesarholt.is
SUMMARY:Í HRING - MYNDLISTARSÝNING HÖRPU MÁSDÓTTUR
DESCRIPTION:Harpa Másdóttir opnar einkasýningu sína í Hannesarholti föstudaginn 29.maí kl.16-18. \nHringformið er hið fullkomna form. Það skírskotar til hringrásar\, hringrásar lífsins og hringrásar í sífelldri verðandi. Hringurinn táknar stöðuga hringrás skynjunar sem er endurtekning án þess að vera endurtekning\, því að ný sjónarhorn og túlkun eru alltaf í sjónmáli. Hlutirnir eru endurhugsaðir með því að taka fleti sem hafa verið skapaðir\, rífa þá niður\, afmá og byggja upp á ný. Allt getur gerst í öruggu umhverfi hringformsins. \nSýningin er sölusýning og stendur til 21.júní 2020. Opið um helgar frá 11.30 til 17.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/i-hring-myndlistarsyning-horpu-masdottur/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/hringir-forsida.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR