BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20150101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20130101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190817
DTEND;VALUE=DATE:20190902
DTSTAMP:20210119T145028Z
CREATED:20210119T145028Z
LAST-MODIFIED:20210119T145028Z
UID:10000824-1566000000-1567382399@hannesarholt.is
SUMMARY:ÚR UNDRAKISTU ALHEIMSINS - JÓN VILHJÁLMUR STEFÁNSSON
DESCRIPTION:Jón Vilhjálmur Stefánsson / John William Stepenson opnar myndlistarsýningu sína í Hannesarholti þann 17. ágúst kl 15. Þetta er önnur sýning listamannsins á Íslandi. \nÞegar Jón Vilhjálmur Stefánsson hóf nám við UC Berkeley Listakademíuna var hann rétt 18 ára að aldri. Allar götur síðan hefur hann helgað sig myndlistinni sem ber keim keim af ólgu 68 kynslóðarinnar. \nEn það var fleira sem mótaði heimsýn hans\, því í uppvextinum hafði JV greiðan aðgang að vísindamönnum og prófessorum við Berkeley háskólann. Móðir hans Katrín vann þar á efsta gólfi sem framkvæmdastjóri rektorsskrifstofunnar. Katrín varð ekkja þegar Jón var fjögurra og því skottaðist hann oft í kringum hana á skrifstofunni í lok langra vinnudaga hennar. Á þessum tíma voru straumhvörf á sviði vísinda ekki síst hvað öreindir og kjarnorku varðaði. Þau fræði voru mjög tíðkuð af vísindamönnum Berkeley háskóla og ýmislegt vakti bæði undrun og áhuga ungs listamanns. \nVerk Jón Vilhjálms eru litrík akrílverk á striga og innblásturinn stærstu og smæstu einingar efnisheimsins\, á grunni líf- og eðslisfræði. Tónlistargen hans er jafnframt mikilvægur drifkraftur sem endurspeglast í kraftmiklum litum og formum. \nJón Vilhjálmur er borinn og barnfæddur í Bandaríkjunum\, en móðir hans Katrín Árnadóttir varð viðskila við fjölskyldu sína ung að árum á átakanlegan hátt. Móðir Jóns Vilhjálms\, Katrín náði ekki sambandi við fjölskyldu sína á ný fyrr en hún var orðin 17 ára gömul. Eftir að hún varð ekkja með ungan son sinn dvaldi hún með Jón Vilhjálm í eitt ár heima á Íslandi\, en þess utan ól hún hann upp í Berkley í Kalíforníu\, fjarri íslenskum skyldmennum. \nMóðir Katrínar\, Kristrún Tómasdóttir Benediktsson var merk tónlistarkona\, píanisti og myndlistarkona\, sem þar að auki hafði ótæmandi áhuga á vísindum og þá aðallega stjörnu- og eðlisfræði. \nTónlist frá síðari hluta 19. aldar sem var veruleiki ömmu Jóns var vissulega afar ólík þeirri sem réð ríkjum hjá ungu fólki á hippárunum og mótaði Jón Vilhjálm. Það voru ekki norðurljós og stjörnur himinvolfanna eins og dregið höfðu ömmu hans að eðlifræðinni\, heldur kjarnorkan og byltingin sem fylgdi þekkingunni við að kljúfa atómin. Af eðlisfræðinni stafaði nú fremur ógn en rómantískar hugleiðingar frá tíð ömmunnar. Engu að síður er samhljómurinn við eiginleika og viðfangsefni móðurömmunar og Jóns Vilhjálms sláandi. \nUmsjón með sýningunni hefur Ásta Kristrún Ragnarsdóttir í Bakkastofu á Eyrarbakka en hún og Jón Vilhjálmur eru systkinabörn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ur-undrakistu-alheimsins-jon-vilhjalmur-stefansson/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/d2-15-key-to-the-highway-91x1-30.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190510
DTEND;VALUE=DATE:20190615
DTSTAMP:20210119T145249Z
CREATED:20210119T145249Z
LAST-MODIFIED:20210119T145249Z
UID:10000825-1557446400-1560556799@hannesarholt.is
SUMMARY:VERÐUR OG FER SEM FER? / QUE SERA SERA?
DESCRIPTION:Þura – Þuríður Sigurðardóttir útskrifaðist með BA gráðu í myndlist 2001 frá Listaháskóla Íslands. Þar áður sótti hún tíma í Myndlistaskóla Reykjavíkur og nam við listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti 1996-98. Hún sótti einnig námskeið í íkonamálun hjá prófessor Yuri Bobrov\, prófessor í íkonafræðum við Listakademíuna í St. Pétursborg. \nFrá námslokum hefur Þuríður unnið að myndlist og sýnt víða bæði innanlands og utan. Hún fæst fyrst og fremst við olíumálverk og viðfangsefnið er gjarnan náttúran\, stundum með þröngt eða óvænt sjónarhorn. Hún hefur kennt við Myndlistaskóla Reykavíkur og á eigin námskeiðum og verið sýningarstjóri. Þuríður var einn af stofnendum START ART listamannahúss sem starfrækt var frá árinu 2007 – 2009. Galleríið stóð fyrir listverkefninu „Laugavegurinn“ á Listahátíð í Reykjavík vorið 2009 með þátttöku fjölda listamanna og almennings. Í framhaldi var gefin út bókin LAUGAVEGURINN 2009 og þar sat Þuríður í ritstjórn. Þuríður hefur verið virk í félagsstörfum og m.a. setið í stjórn Sambands íslenskra listamanna og Bandalags íslenskra listamanna. Hún átti þátt í stofnun og rekstri Opna Gallerísins sem nýtti sér ýmis rými í 101 Reykjavík 2002-2003. \nÞuríður var valin bæjarlistamaður Garðabæjar 2004. \nÚr sýningarskrá: \nNýlega birti Veðurstofa Íslands niðurstöður nýrra mælinga á jöklabúskap Snæfellsjökuls.Talið er líklegt að jökullinn verði að mestu horfinn um miðja öldina. Hann hefur rýrnað mikið vegna hlýnandi loftslags síðustu áratugi og er flatarmál hans nú minna en 10 ferkílómetrar. Árið 1910 var flatarmálið um 22 ferkílómetrar. \nViðbrögð Guðmundar Inga Guðbrandssonar\, umhverfisráðherra\, við þessum fréttum voru á þá leið að sér þættu þetta dapurlegt: „Sem einstaklingur sem ólst upp við að hafa Snæfellsjökul í bakgarðinum\, þá eru þetta náttúrulega alls ekki góð tíðindi fyrir okkur Íslendinga.“ Síðan fór hann út í samhengið á heimsvísu og pólitísk viðbrögð við loftslagsbreytingum. Ráðherra dró ekki dul á þá persónulegu tilfinningu sem bærist í brjósti svo margra þegar maður skynjar breytingarnar í sínu nánasta umhverfi. Umhverfi sem er svo mikið meira en bara landslag eða sjóndeildarhringur. Ef til vill er það einmitt þá sem fólk vaknar til vitundar af alvöru. Jökullinn er nefnilega langt frá því að vera bara að jafnaði um 30 metra metra þykkur ís sem hylur um 10 ferkílómetra lands. Hann er fyrst og fremst dulmagnað náttúrufyrirbæri sem hefur örvað náttúruskynjun og sköpunargleði manna alla tið. \nÍ skáldsögu Halldórs Kiljans Laxness\, Heimsljós (1937–40) um skáldið og sveitarómagann Ólaf Kárason er lýst leit hans að fegurðinni: „Þar sem jökulinn ber við loft hættir landið að vera jarðneskt\, en jörðin fær hlutdeild í himninum\, þar búa ekki framar neinar sorgir og þessvegna er gleðin ekki nauðsynleg\, þar ríkir fegurðin ein\, ofar hverri kröfu.“ Snæfellsjökull er sögusvið bókarinnar Leyndardómar Snæfellsjökuls eftir Jules Verne\, en söguhetjan ferðast að miðju jarðarinnar frá jöklinum. Hann hefur birst í málverkum Muggs\, Jóhannesar S. Kjarvals\, Júlíönu Sveinsdóttur\, Kristínar Jónsdóttur og fjölda annarra listamanna. Margir telja að frá Snæfellsjökli stafi sérstök jarðorka og finna sumir mjög sterk áhrif frá jöklinum. Telja þeir hann vera eina af sjö stærstu orkustöðvum jarðar og nágrenni hans kjörlendi til heilunar. \nÞað er því ekki að undra að tilhugsunin um að þessi fastapunktur í tilverunni muni hverfa sjónum okkar og þar með úr hugskoti okkar hafi djúpstæð áhrif. Á degi jarðar fyrir þremur árum\, skömmu áður en hið svokallaða Parísarsamkomulag var undirritað\, fann listamaðurinn Þura sig knúna til þess að tjá hugsanir sínar um áhrif loftslagsbreytinga í myndverki. Viðfangsefnið varð ósjálfrátt Snæfellsjökull\, jökullinn sem hún ólst upp með „í bakgarðinum.“ Síðan þá hefur efnið sótt æ sterkar á hana og málverkin safnast upp í þá sýningu sem hér um ræðir. Náttúruvernd og umhverfisvitund hafa þó alla tíð verið hluti af listsköpun Þuru með beinum og óbeinum hætti. Sem dæmi tókst hún á við náttúru votlendisins\, mýrarnar með sínu gróðurlífi\, vatnafari og mýrarrauða. Stór hluti votlendis hér á landi hefur tekið miklum breytingum vegna breyttrar vatnstöðu í kjölfar framræslu. Mýrar hafa að geyma ógrynni af kolefni og allar breytingar í kolefnisbúskap þessara vistkerfa því mikilvægar á hnattræna vísu. Þura beindi sjónum sínum\, og okkar um leið\, að þessu einstaka náttúrufyrirbæri. \nNú eru það jöklarnir. Snæfellsjökull fer fremstur í flokki en margir aðrir koma við sögu\, til að mynda Öræfajökull\, Eiríksjökull og Eyjafjallajökull. Þura gengur lengra en að mála eftirmyndir af jöklunum\, þeim bregður vissulega fyrir en að stærstum hluta virðist sem þeir séu að leysast upp\, bráðna\, leka niður\, verða gegnsæir og jafnvel algerlega ósýnilegir. Stundum vart annað en minning. Þegar rýnt er í undirlag málverkanna kemur ýmislegt í ljós\, því þar leynist annar myndheimur af ólíkum toga. Á stöku stað glittir í fyrrnefnt votlendi. Þá bylgjur norðurljósa. Eða silfraða frostpolla. Þegar allt kemur til alls eru jöklamálverk Þuru öll unnin á undirlag eldri málverka. Þar má sjá kunnugleg þemu frá fyrri myndaröðum hennar. Þannig kemur í ljós marglaga tilfinning fyrir tíma\, því að náttúrufyrirmyndir listamannsins eiga tilvist sína undir kosmískum tímaskala en um leið finnum við nú á eigin skinni að þau geta máðst út á einni mannsævi ef ekki skemur. Málverkin eru frá tveimur tímaskeiðum sem minnir á hvernig tíminn líður „á okkar vakt“ án þess að við fáum nægilega mikið að gert til þess að stemma stigu við ógninni. Eða hvað hefur áunnist siðan Parísarsáttmálinn var undirritaður? Loks er það tími málverksins\, sem nostursamlega unnin málverk Þuru frá fyrri tímabilum bera svo glöggt vitni en svo bregður við allt annan tón í hinu nýja yfirlagi jöklamyndanna sem virðast unnar í einu vetfangi\, í miklu flæði og ekki að fullu undir stjórn listamannsins. Ekki einu sinni hvítir rammarnir ná að stöðva öra framrásina. \nSíðast en ekki síst læðist að manni hugmyndin um einhvers konar fórn. Eða er ekki algjör synd að mála yfir þessi fallegu verk frá fyrri tíð? Hér kallast á eftirsjá eftir einhverju sem var og sú áskorun að taka sig taki og horfa fram á veg. Í stað depurðar yfir missinum vaknar uppörvunin við að endurnýta\, njóta augnabliksins en leyfa því síðan að líða hjá og gleðjast yfir einhverju nýju. Jöklamyndir Þuru eru margræð áminning í umræðu sem – til allrar hamingju – hefur stigmagnast á þeim fáu árum frá því að málarinn hófst handa við fyrstu verkin á sýningunni. \nEnglish: \nQue sera sera ? \nÞura – Þuríður Sigurðardóttir \nStarting May 10th – 2019 \nthura@thura.is \nRecently Iceland’s Weather Bureau released new findings from glacier research of Snaefellsjokull glacier. It is estimated that the glacier will have for the most part disappeared around 2050. It has shrunk considerably due to warmer climate in recent decades down to less than 10 square kilometers\, down from 22 in 1910. \nThe reaction of Gudmundur Gudmundsson\, Minister of the Environment\, was that of sadness. „As someone who grew up having Snaefellsjokull glacier in the back yard\, this is bad news for us Icelanders.“ He went on to discuss the global context and political response to global warming. He shared his personal feelings for so many who experience these changes in their nearest surroundings. Perhaps that is precisely when people wake up to the reality facing the world\, when it cuts close to home. The glacier is not merely a 30 meter thick ice cap on a land of about 10 square kilomters. It is first and foremost a mysterious natural phenomenon which has stimulated creativity and a sense of nature throughout the ages. \nIn Halldor Kiljan Laxness’ novel Light of the World (1937-40) he describes the protagonist’s Olafur Kárason’s search for beauty in these terms: „Where the glacier touches the sky the land ceases to be of this earth and becomes a part of heaven\, where no sorrows exist and therefore joy is not necessary\, there beauty alone reigns\, far and beyond any demand.“ Snaefellsjokull glacier is the setting for Jules Verne’s Journey Through the Center of the Earth\, in which the protagonist travels into the Center of the Earth through the glacier. It has also appeared in the paintings of Icelandic painters Muggur\, Johannes S.Kjarval\, Juliana Sveinsdottir and Kristin Jonsdottir to name but a few. Snaefellsjokull glacier is thought to have unique energy and there are those who have described profound experiences in it’s proximity. They believe it to be one of the seven chakra’s of the world and the surrounding area an ideal location for healing. \nThus\, it is little wonder that people are alarmed at the prospects of this North Star of our existence in Iceland disappearing for our very eyes and from our imaginations. On Earth day\, three years ago\, shortly before the Paris Resolution was signed\, the artist Thura found herself compelled to express her thoughts on the effects of global warming in a painting. The model Snaefellsjokull glacier came automatically to her\, the one she grew up with in the back yard. \nSince then she has been haunted by this topic and the paintings for this exhibit came into being. Nature preservation and awareness has always been a part of Thura’s creative work\, directly or indirectly. She grew up with wetlands\, the myres with their unique flora\, „vatnafari og mýrarrauði..“ A considerable decrease in the areas still considered wetlands in Iceland has occured due to shrunk water levels …..“vatnsstöðu í kjölfar framræslu.“ The myres have an abundant amount of CO\, and therefore those changes have global implications. Thura turned her focus to these unique scenarios in nature\, and thereby raised our awareness as well. \nNow it is the glaciers. Snaefellsjokull glacier is her main concern\, but others are a part of the story as well: Oeraefajokull glacier\, Eiriksjokull glacier and Eyjafjallajokull glacier. Not only does Thura paint pictures of the glaciers\, they are portrayed as disappearing\, melting\, leaking\, becoming transparent and eventually entirely invisible. Sometimes hardly more than a memory. When one peers into the layer behind the paintings a world of other images emerges. In places one can trace the aforementioned wetlands. Northern lights as well\, or frozen silvery ponds. Thura’s paintings of glaciers are painted on top of older paintings. One can notice glimpses of some of her earlier collections\, producing a layered feeling of time. The natural phenomena painted by the artist exist on a cosmic time scale\, yet simultaneously we realise that they can disappear during our lifetime. The paintings come from two time periods\, reminding us of time passing during „our wach\,“ while we stand helplessly by. Or\, what has been gained since the Paris resolution was signed ? Then there is the time of the painting. Thura’s former collections were characterised by meticulously finished pieces\, while the new paintings seem created swiftly\, „í miklu flæði“ not quite under the control of the artist. The white frames hardly even manage to contain the meltdown. ( Tillaga að breytingu: The artist has expressed why she breaks with her habit of not framing her paintings – this collection she wanted framed in order to try and contain the meltdown.) \nLast but not least the thought of a sacrifice presents itself. Or is painting over beautiful pieces from earlier collections not a waste ? The balance here is between regret over something that is ceasing to be and the challenge of pulling oneself together and looking ahead. Instead of being full of sorrow over the loss\, the recycling stimulates and there is joy in the moment\, which then passes and something else will come along to be enjoyed. Thura’s collection of glacier paintings is a multilayered contribution to a dialogue\, which\, thankfully\, has matured speedily during the few years since the artist started on the first paintings for this exhibit. \nMy Markus Thor Andresson \nthura@thura
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/verdur-og-fer-sem-fer-que-sera-sera/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/que-sera-sera.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190409
DTEND;VALUE=DATE:20190509
DTSTAMP:20210119T145414Z
CREATED:20210119T145414Z
LAST-MODIFIED:20210119T145414Z
UID:10000826-1554768000-1557359999@hannesarholt.is
SUMMARY:BOÐAR OG BRIM - GUÐRÚN B. INGIBJARTSDÓTTIR
DESCRIPTION:Guðrún B. Ingibjartsdóttir heldur einkasýningu á vatnslitamyndum í Hannesarholti 13. apríl til 8. maí. 2019 \nGuðrún er fædd og uppalin á bænum Hesti við Ísafjarðardjúp. Guðrún er sjúkraliði og hefur unnið á Landsspítala/Háskólasjúkrahúsi lengst af en starfar nú á Hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík. \nGuðrún hefur málað með vatnslitum í rúm 20 ár alveg síðan hún fór fyrst á námskeið hjá Erlu Sigurðardóttur í Myndlistaskóla Kópavogs. Síðan hefur Guðrún sótt mörg námskeið í vatnslitamálun hér og einnig í Englandi og Frakklandi. Guðrún hefur haldið nokkrar einkasýningar og eina samsýningu. \nOpnun 15:00 til 17:00 þann 13. apríl 2019
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bodar-og-brim-gudrun-b-ingibjartsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/20180911_162827-765x430-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190330
DTEND;VALUE=DATE:20190408
DTSTAMP:20210119T145605Z
CREATED:20210119T145605Z
LAST-MODIFIED:20210119T145605Z
UID:10000827-1553904000-1554681599@hannesarholt.is
SUMMARY:NIKULÁS SIGFÚSSON AFMÆLISSÝNING
DESCRIPTION:Í tilefni 90 ára afmælis Nikulásar Sigfússonar þann 1.apríl er efnt til yfirlitssýningar á vatnslitamyndum hans frá 1935-2018. \nSýningin opnar laugardaginn 30.mars kl. 15:00 í Hannesarholti Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík og stendur til sunnudagsins 7.apríl. Opið er frá þriðjudegi til sunnudags frá 11:30-17:00 og fimmtudaga til 22:00. \nNikulás og fjölskylda \nNikulás Sigfússon er fæddur 1.apríl 1929 á Þórunúpi í Hvolhreppi. Hann útskrifaðist sem stúdent frá MR 1950 og lauk prófi í læknisfræði 1958 frá Háskóla Íslands. Hann varð sérfræðingur í farsóttafræði 1967 og lauk doktorsprófi við Háskóla Íslands árið 1984. Hann vann lengst af sem yfirlæknir Hjartaverndar eða frá 1973-1999. \nMeðfram læknisstörfunum hefur Nikulás ávallt lagt stund á vatnslitamálun og spannar málaraferillinn nú rúmlega 70 ár. Nikulás er að mestu sjálfmenntaður í málaralistinni en hann sótti “Skóla frístundamálara” 1947- 48 þar sem hann naut leiðsagnar Kjartans Guðjónssonar\, auk þess sem hann sótti um skeið einkatíma hjá nokkrum þekktum vatnslitamálurum. \nNikulás hefur haldið 25 einkasýningar m.a. í Ásmundarsal\, Mokka\, Stöðlakoti\, Nýja Galleríinu og Sal Grafíkfélags Íslands. Einnig hefur hann tekið þátt í samsýningum.\nVerk eftir Nikulás eru m.a. í eigu Seðlabanka Íslands\, Sendiráðs Bandaríkjanna á Íslandi\, Hótel Sögu\, SÍBS\, Hjartaverndar og Læknafélags Íslands\, Noregs og Finnlands. Einnig hefur hann myndskreytt tímaritaforsíður og málað frímerki fyrir Neistann. Nýjustu verk Nikulásar eru frá árinu 2018 en á þessu ári fagnar hann níræðisafmæli sínu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/nikulas-sigfusson-afmaelissyning/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/pabbi-mala.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190302
DTEND;VALUE=DATE:20190328
DTSTAMP:20210119T145731Z
CREATED:20210119T145731Z
LAST-MODIFIED:20210119T145731Z
UID:10000828-1551484800-1553731199@hannesarholt.is
SUMMARY:MÁLVERKASÝNING EDDU GUÐMUNDSDÓTTUR
DESCRIPTION:Edda Guðmundsdóttir heldur tíundu einkasýningu sína í Hannesarholt dagana 2.-27.mars 2019. \nEdda hóf myndlistarnám sitt í Myndmáli Rúnu og var þar í sex vetur. Undanfarin ár hefur Edda verið í Myndlistarskóla Reykjavíkur í modelteikningu í frjálsri málun og nú síðast í vinnustofu í Myndlistarskólanum. Edda tók einnig námskeið í portrettmálun hjá David Kassan árið 2009. \nSýningin er opin á opnunartímum Hannesarholts\, alla daga nema mánudaga\, frá 11.30-17 þriðjudaga\, miðvikudaga og sunnudaga og frá 11.30-23 fimmtudaga\, föstudaga og laugardaga.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/malverkasyning-eddu-gudmundsdottur/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/edda-gudmundsdottir.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20190202
DTEND;VALUE=DATE:20190227
DTSTAMP:20210119T150157Z
CREATED:20210119T150157Z
LAST-MODIFIED:20210119T150157Z
UID:10000829-1549065600-1551225599@hannesarholt.is
SUMMARY:VATNSLITAMYNDIR MARGRÉTAR KOLKA HARALDSDÓTTUR
DESCRIPTION:Margrét Kolka Haraldsdóttir er fædd 1948 í Reykjavík. \nLauk kennaranámi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands og rak Myndlistarskóla Garðabæjar í 15 ár ásamt Ingibjörgu Styrgerði Haraldsdóttur. Lauk MA prófi frá Háskóla Íslands og hefur kennt dönsku við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Margrét hefur unnið við brúðuleikhús og var um árabil formaður samtaka brúðuleikhússfólks\, UNIMA á Íslandi. \nMargrét Kolka hefur lagt stund á vatnslitamálun undanfarin ár og notið handleiðslu ýmissa kennara\, þar á meðal Erlu Sigurðardóttur\, Derek Mundell\, Bridget Woods\, Keith Hornblower og fleiri. \nHún hefur sýnt bæði með öðrum víðs vegar um landið og haldið einkasýningu í Listhúsi Ófeigs. Margrét Kolka er meðlimur í Félagi norrænna vatnslitamálara\, NAS og sýndi hún með félaginu í Norræna húsinu síðastliðið vor og mun einnig taka þátt í sýningu með þeim núna í vor í Wales á sameiginlegri sýningu Royal Watercolour Society of Wales og NAS.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vatnslitamyndir-margretar-kolka-haraldsdottur/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ljosmynd-af-mkh.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20181201T160000
DTEND;TZID=UTC:20181201T170000
DTSTAMP:20210119T150349Z
CREATED:20210119T150349Z
LAST-MODIFIED:20210119T150349Z
UID:10000830-1543680000-1543683600@hannesarholt.is
SUMMARY:MYNDIRNAR MÍNAR Í 25 ÁR - MYNDLISTARSÝNING SJØFN HAR
DESCRIPTION:Magnaðir litir sem takast á – fíngerð\, litbrigði\, skuggar og heillandi víðsýni. Allt þetta einkennir ekki aðeins íslenskt landslag heldur líka málverk listakonunnar Sjafnar Har. \nSjøfn Har er fædd 1953 og uppalin í Stykkishólmi. Hún á 11 ára myndlistanám að baki\, fyrst vð Myndlista- og Handíðaskóla Íslands\, þaðan sem hún útskrifaðist sem myndmenntakennari og í framhaldi af því lauk hún 2ja ára framhaldsnámi annars vegar í frjálsri myndlist og myndsköpun og hins vegar í mótun frá keramikdeildinn í MHÍ. Sjøfn lauk Cand. Phil. prófi í myndlist frá Konunglega Listaháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1984. Þar lagði hún megináherslu á keramik og önnur efni. \nSjøfn Har hefur rekið eigin vinnustofu í Kaupmannahöfn\, Reykjavík\, Eyrarbakka\, Stokkseyri og nú í Garðabæ. Málverk og skúlptúrar eftir Sjøfn Har eru í eigu fjölda einstaklinga og fyrirtækja á Íslandi sem og erlendis\, auk þess sem verk hennar hafa verið valin til að prýða veggspjöld\, minjagripi og verðlaunagripi fyrir samtök og stofnanir. Sjøfn Har hefur einnig unnið verk á opinberar byggingar hér á landi og erlendis. Verk hennar hafa birst á póstkortum og á forsíðum tímarita og bókakápa heima og erlendis. Sjøfn Har var valin til að gera Útflutningsverðlaun Forseta Íslands fyrir árið 2001. \nSjøfn Har hefur haldið einkasýningar í Kaupmannahöfn\, London\, New York og á Íslandi frá árinu 1980.\nSýningin MYNDIRNAR MÍNAR er 17. einkasýning Sjafnar.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/myndirnar-minar-i-25-ar-myndlistarsyning-sjofn-har/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/sjofntitilmynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181104
DTEND;VALUE=DATE:20181129
DTSTAMP:20210119T150539Z
CREATED:20210119T150539Z
LAST-MODIFIED:20210119T150539Z
UID:10000831-1541289600-1543449599@hannesarholt.is
SUMMARY:SÖGUMÁLVERK - SAMFERÐAMENN - SOFFÍA SÆMUNDSDÓTTIR
DESCRIPTION:Soffía Sæmundsdóttir myndlistarkona opnar sýninguna Sögumálverk/Samferðamenn í Hannesarholti sunnudaginn 4. nóvember kl.16. Á sýningunni eru ný málverk og nokkur smáverk gerð á þessu ári í tilefni af Fullveldisafmælinu. Í sýningarskrá segir Soffía: \nÍ mínum verkum set ég ferðalanginn fram sem einskonar sögupersónu\, klæddur í það sem gæti virkað sem þjóðbúningur\, gæti verið danskur aðalsmaður\, franskur dáti\, lítill drengur\, bjartsýniskona\, ráðvillt manneskja\, sögupersóna\, og allt þar á milli. Samferðamaður í víðum skilningi með samning\, landakort\, sjónauka\, jafnvægisslá eða göngustaf í hendi. Hvað þarf ferðalangur í 100 ár og hvert fer hann svo? \nSoffía Sæmundsdóttir hefur verið virk á íslenskum myndlistarvettvangi undanfarinn áratug og á að baki ótal einka og samsýningar heima og heiman. Hún er kunn af málverkum sínum sem vísa í ákveðinn myndheim þar sem frásagnargleði\, ferðalangar á eilífðarvegferð og landslag koma við sögu. \nSoffía er með vinnustofu að Fornubúðum 8\, við smábátahöfnina í Hafnarfirði sem er skapandi\, vakandi vinnustofa og má finna upplýsingar á Soffía vinnustofa á facebook. https://www.facebook.com/soffiasart/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/sogumalverk-samferdamenn-soffia-saemundsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/ferdalangur.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20181006
DTEND;VALUE=DATE:20181102
DTSTAMP:20210119T150828Z
CREATED:20210119T150828Z
LAST-MODIFIED:20210119T150828Z
UID:10000832-1538784000-1541116799@hannesarholt.is
SUMMARY:ÞRÁNDUR ÞÓRARINSSON BORGARMYNDIR
DESCRIPTION:Í tilefni af fertugsafmæli sínu efnir Þrándur Þórarinsson listmálari til sýningar og hátíðarhalda í Hannesarholti\, laugardaginn 6. október. Verða þar spánný verk uppi um alla veggi og rjáfur. Dýrirndi sem listamaðurinn hefur dregið upp úr hugskotum og sálarfylgsnum sínum með ærinni fyrirhöfn og dedúað við af leikni og natni. Borgarlandslagið er sem fyrr í fyrirrúmi á þessari sýningu\, í bland við mannlífslýsingar\, kyrralífsmyndir og portrett af vinum listamannsins. \nAfhjúpuð verður mynd af stórbóndanum og rokkstjörnuni Prins Póló\, en þeir Þrándur unnu náið saman í áraraðir\, og verður prinsinn sérlegur heiðursgestur á sýningunni. Þrándur fæddist það herrans ár 1978. Hann útskrifaðist af myndlistarbraut Menntaskólans á Akureyri um tveimur áratugum síðar. Hann hvarf frá námi við Listaháskóla Íslands og gerðist lærlingur norska kitch-málarans Odd Nerdrum í ein þrjú ár. Þá hefur hann lokið Mesitaranámi í heimspeki. Þrándur hefur unnið einvörðungu við það að lita og föndra myndir svo árum skiptir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thrandur-thorarinsson-borgarmyndir/
LOCATION:Grundarstígur 10\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/43053200_2140896949254017_2537345289816113152_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180908
DTEND;VALUE=DATE:20181004
DTSTAMP:20210119T151039Z
CREATED:20210119T151039Z
LAST-MODIFIED:20210119T151039Z
UID:10000483-1536364800-1538611199@hannesarholt.is
SUMMARY:"JÖKLASÝN"
DESCRIPTION:Guðrún Benedikta Elíasdóttir útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og hefur búið og starfað við myndlist og myndlistarkennslu á Íslandi\, í Frakklandi og Lúxemborg. Í dag vinnur hún vinnur að list sinni auk þess að kenna myndlist og leirmótun í Menntaskólanum við Sund. \nGuðrún hefur tekið þátt í fjölmörgum einka-og samsýningum í sýningarsölum bæði hérlendis og víðs vegar um Evrópu og í Bandaríkjunum. Má þar helst nefna CAL\, Cercle Artistique de Luxembourg\, artmetz í Metz í Frakklandi\, EVBK í Prüm í Þýskalandi og einkasýningar í Konchthaus Beim Engel í Lúxemborg\, Svavarssafni\, Slunkaríki\, Populus Tremula og Menningarmiðstöð í Spönginni (Artótek). Hún hefur dvalið á gestavinnustofum í Frakklandi og á Akureyri. Guðrún var ein af stofnendum Gallerí Skruggusteins og rak það þar til hún flutti til Suður-Frakklands og var í tengslum við það kjörin bæjarlistamaður Kópavogs 1996. \n“Ég vinn með náttúruna í víðri merkingu. Ég bý til mína eigin liti eða temperu sem kallast „patine au vin“. Innihaldið er í m.a. hvítvín\, egg og sitthvað fleira. Uppskriftin er ævagömul og ég fann hana í litaduftsverksmiðju í Roussillon í Frakklandi þar sem unninn er litur úr fjöllunum. Hef verið að þróa hana áfram síðan árið 2006 þegar ég var á gestavinnustofu í suður Frakklandi. \nEn til að auka sjálfbærni og virðingu við náttúruna þá hef ég minnkað notkun á innfluttu litadufti og sæki mína liti sjálf í Íslenska náttúru. Myl grjót sem ég finn víðs vegar um landið á ferðum mínum og nota í málverkið. Auk þess að nýta eldfjallaösku þar sem það á við. Ég er mest að vinna með jöklana núna m.a. áhrif hlýnunnar á þá\, en jöklar eru einlægt áhugamál þar sem ég ólst upp á Hornafirði í nálægð við Vatnajökul og tókst meira að segja að detta í jökulsprungu á unglings aldri\, svo að ég hef skoðað þá í meira návígi en margur. \nÞar sem bráðnun jöklanna eykst hraðar en nokkru sinni finnst mér ástæða til að halda áfram að minna á þessa stórfenglegu risa sem hafa svo mikil áhrif á umhverfi sitt og ekki síður áhrifin sem umhverfið hefur á þá. Mér finnst líka mjög viðeigandi að koma þessu til skila á strigann með efnum úr íslenskri náttúru. Einnig átökum elds og íss\, öskufallið sem myndar fíngerðar línuteikningar á fannhvítar breiðurnar.” \nFrekari upplýsingar um nám og sýningarferil má finna á heimasíðunni www.rbenedikta.com
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/joklasyn/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/joklasyn-1-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180727
DTEND;VALUE=DATE:20180905
DTSTAMP:20210119T151217Z
CREATED:20210119T151217Z
LAST-MODIFIED:20210119T151217Z
UID:10000485-1532649600-1536105599@hannesarholt.is
SUMMARY:"HÚN" FRÁ AFRÍKU TIL ÍSLANDS
DESCRIPTION:Patrytsia Tokav-Sedkh er listakona af Afrísku bergi brotin\, fædd í Ukraínu og búandi á Íslandi. Í þessarri sýningu veltir hún fyrir sér sögum af Afrísku og Íslensku landslagi. Umhyggjan og mýktin undir móðurlegum himni í skapandi rými. Myndirnar segja sögu afrísks og íslensks landslags á einni og sömu sýningunni. Litir landslagsins endurspeglast í myndunum\, uppruni lífsins er í bláu vatni\, rauður og gulur eru litir afríska eldmóðsins og eldsins í iðrum jarðar undir íslenskri foldu\, sem er svört og brún. Sýningin stendur út ágúst og allar myndirnar á sýningunni eru til sölu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hun-fra-afriku-til-islands/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/patrytsia-1.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180630
DTEND;VALUE=DATE:20180727
DTSTAMP:20210119T151350Z
CREATED:20210119T151350Z
LAST-MODIFIED:20210119T151350Z
UID:10000487-1530316800-1532649599@hannesarholt.is
SUMMARY:KATRÍN JÓNSDÓTTIR
DESCRIPTION:Katrín Jónsdóttir er grafískur hönnuður\, fædd 1961 í Fljótshlíðinni og býr á Seltjarnarnesi ásamt fjölskyldu sinni. Myndskreytingarnar á sýningunni í Hannesarholti eru samdar við texta um grundvallarlög íslenska ríkisins útfrá reynslu og tilfinningum hennar. Hún spyr\, ef harka sé að aukast í Evrópu í kjölfar hryðjuverka\, hvernig megi tryggja öryggi borgaranna án þess að skerða frelsi þeirra. Persónurnar á pappírnum eiga það sameiginlegt að vilja pláss og sýnileika\, en varnarleysi\, ungur aldur\, menntunarskortur eða skerðing veldur því að þær fylla illa út í myndflötinn. Sá sem nýtur mannúðar er líklegri til að láta gott af sér leiða.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/katrin-jonsdottir/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/katajons.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20180528T080000
DTEND;TZID=UTC:20180528T170000
DTSTAMP:20180528T154543Z
CREATED:20180530T113001Z
LAST-MODIFIED:20180528T154543Z
UID:10000310-1527494400-1527526800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ingibjörg H.Dalberg - Myndlistarsýning opnun 31.maí kl.16
DESCRIPTION:Vorið boðar yl og bjartar sumarnætur þar sem hringrás náttúrunnar í jurta- og dýraríkinu vaknar af löngum vetrardvala. \nMeð hlýnun jarðar hafa ýmsar framandi fuglategundir fært sig norður á bóginn og flækst hingað heim landsmönnum til yndisauka. \nFlækingar eru af mörgum stærðum og gerðum svo sem bjarthegri og hnúðsvanur sem báðir teljast vera sjaldséðir flækingsfuglar. Jafnvel sést æ oftar hér á landi til hins agnar smáa glóbrystings vegna hlýnandi loftslags. \nBjarthegrinn er tignarlegur og formfagur fugl sem eftirsóknarvert er að skoða og festa á striga þá sjaldan til hans sést. \nAthyglisvert er að hnúðsvanurinn hefur ekki einungis borist hingað sem sjaldgæfur flækingur því á tuttugu ára skeiði (1958 – 1977) var Reykjavíkurtjörn heimkynni lítils hóps hnúðsvana sem var vinabæjargjöf frá Hamborg til Reykjavíkur. Svanirnir voru mikil borgar- og Tjarnarprýði á sinni tíð meðan þeirra naut. \nEinn áreiðanlegasti fastagestur fjölmargra farfugla hér á landi er krían sem treysta má að nemi land hérlendis nánast á sama degi ár hvert. Í bernskuminni var það 14. maí sem krían víðförla snerti Tjarnarbakkann með viðeigandi ærslagangi\, hávaða og fjöri. \nMegin viðfangsefni sýningarinnar eru portret af flækingsfuglum\, einkum bjarthegrum og hnúðsvönum\, en fleiri eftirlætisfuglar svo sem kríur og hrafnar fá að fylgja með. \nSvo koma börn eitthvað við sögu. \nSýningunni lýkur 26.júní.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ingibjorg-h-dalberg-myndlistarsyning-opnun-31-mai-kl-16/
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2018/05/Við-Tjörnina.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180503
DTEND;VALUE=DATE:20180531
DTSTAMP:20210119T151628Z
CREATED:20210119T151628Z
LAST-MODIFIED:20210119T151628Z
UID:10000488-1525305600-1527724799@hannesarholt.is
SUMMARY:MARILYN HERDÍS MELLK
DESCRIPTION:Marilyn Herdís Mellk opnar sýningu á verkum sínum þann 3.maí í Hannesarholti og mun hún standa í fjórar vikur. \nMarilyn Herdís Mellk er íslensk/amerísk fædd 1961 og hefur búið á Íslandi síðan 1981. Hún stundaði listnám við California College of Arts and Crafts (núna California College of the Arts) og Myndlista- og handíðaskóla Íslands þaðan sem hún útskrifaðist 1987 úr Grafíkdeild. \nHún hefur tekið þátt í mörgum sýningum og er ein af myndlistarmönnunum sem reka saman Gallerí Korpúlfsstaðir Í Reykjavík. Marilyn er félagi í Íslensk grafík og Sambandi íslenskra myndlistarmanna.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/marilyn-herdis-mellk/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/IMG_1189.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180405
DTEND;VALUE=DATE:20180503
DTSTAMP:20210119T151900Z
CREATED:20210119T151900Z
LAST-MODIFIED:20210119T151900Z
UID:10000489-1522886400-1525305599@hannesarholt.is
SUMMARY:HILMAR HAFSTEIN SVAVARSSON
DESCRIPTION:Hilmar Hafstein Svavarsson opnar sýningu á myndverkum í veitingastofum Hannesarholts fimmtudaginn 5.apríl kl.16. Sýningin stendur í fjórar vikur. Hilmar er 78 ára gamall og hefur daðrað við myndlistargyðjuna frá barnsaldri. Sýningin er fyrsta einkasýning Hilmars og er sölusýning.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hilmar-hafstein-svavarsson/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/img_6419.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20180301
DTEND;VALUE=DATE:20180429
DTSTAMP:20210119T152120Z
CREATED:20210119T152120Z
LAST-MODIFIED:20210119T152120Z
UID:10000490-1519862400-1524959999@hannesarholt.is
SUMMARY:GJÚGG Í BLÓM (PEEKABOO) EFTIR GEORG DOUGLAS
DESCRIPTION:Georg Douglas opnar málverkasýningu í Hannesarholti fimmtudaginn 1. mars kl.16\, sem nefnist \,\,Gjúgg í blóm“ – \,\,Peekaboo“. Georg er fæddur á Írlandi 1945 en varð íslenskur ríkisborgari 1975. Hann er með doktorspróf í jarðvísindum og vann við kennslu í 36 ár þar til hann fór á eftirlaun 2007. Hann hefur sótt nám í myndlist í Reykjavík og Kópavogi og hlotið viðurkenningar fyrir verk sín. Áhrif vísindanna má glögglega sjá í verkum hans\, sjálfur lýsir hann sýningunni á þennan hátt: \n„Litur blómanna er oft skær og áberandi en ekki er síður eftirtektarvert heildarumhverfi eða heimur blómanna. Undirgróðurinn hefur oft sterk áhrif á það hvernig við upplifum blómin. Þetta gildir sérstaklega um íslensk villiblóm sem gægjast oft í gegnum þykka og forvitnilega flækju af mosa\, fléttum og grösum. Heimur blómanna verður enn merkilegri og furðulegri þegar við skoðum hann í meiri nærmynd með hjálp smásjártækni og sameindalíkana af prótínum og vefjum. Þá opnast nýjar og stærri víddir sem eru ekki síður fallegar en blómkrónur. Málverk mín sameina alla þessa þætti og í þeim er hlutföllum víxlað eða breytt til þess að mynda abstrakt heild\, þar sem blómin sjálf eru stundum áberandi en stundum fá þau rétt að kíkja í gegnum flækjuna af þáttunum sem þau eru gerð úr eða vaxa í.“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gjugg-i-blom-peekaboo-eftir-georg-douglas/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2021/01/GeorgMynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20171117T180000
DTEND;TZID=UTC:20171119T200000
DTSTAMP:20171109T141944Z
CREATED:20171109T140141Z
LAST-MODIFIED:20171109T141944Z
UID:10000256-1510941600-1511121600@hannesarholt.is
SUMMARY:Serbneskir menningardagar í Reykjavík
DESCRIPTION:Serbneskir menningardagar verða haldnir í Reykjavík dagana 17. – 19. nóvember næstkomandi. Þetta er í fyrsta skipti sem Serbnesk hátíð er haldin hér á landi og er hún skipulögð af Serbnesku menningarmiðstöðinni á Íslandi í samstarfi við utanríkisráðuneyti Serbíu og menningarsetrið Hannesarholt. \nStaðsett á krossgötum á Balkanskaga\, þar sem austrið mætir vestrinu\, hefur Serbía erft mikinn menningarlegan auð úr ýmsum áttum en um leið hafa hefðir og menning varðveitt sérkenni Serbnesku þjóðarinnar. \nÁ hátíðinni verður serbneskur menningararfur kynntur með þjóðbúningum\, ljósmyndum\, þjóðlegum skartgripum\, skrautritun með kýrillísku letri\, íkonum\, stuttmyndum\, tali\, textum og tónleikum. Ljósmyndasýning mun prýða veggi Hannesarholts og verða ljósmyndir einnig til sölu sem og fræðiritið „Þjóðbúningar Serba“\, skrautrituð verk með kýrillísku letri\, þjóðlegir skartgripir o.fl. \nSerbnesku menningardagarnir verða formlega settir 17. nóvember\, klukkan 18:00\, í Hannesarholti og síðan rekur þar hver atburðurinn eftir annan alla helgina.\nMenningardögunum verður slitið með tónleikum Serbneskra og Íslenskra tónlistarmanna í Guðríðarkirkju 19. nóvember\, klukkan 20:00. Tónleikarnir bera heitið „Heimarnir mætast – Á tónlistarlegu ferðalagi um tíma“. \n  \nDAGSKRÁ HÁTÍÐAR \nFöstudagur 17.11.2017 – Hannesarholt\n• 18:00 Setning Serbneskra Menningardaga \n• 18:15 „Þjóðbúningar Serba“ – Kynning á einstöku fræðiríti (mónógrafíu)\neftir þjóðháttafræðinginn Ivan Terzic og ljósmyndarann Slobodan Bugarcic.\nIvan Terzic kynnir ritið\, fjallar um og sýnir þjóðbúninga Serba. \n• 19:00 „Andlegt ferðalag um tímann“ – Tónleikar í flutningi sönghópsins Nokturno.\nSamansafn af Serbneskri tónlist í aldanna rás\, frá trúarlegum lögum að dægurlögum. \nLaugardagur 18.11.2017 – Hannesarholt\n• 11:00 „Kýrillíska letrið; andlegur og efnislegur menningararfur serbneskrar þjóðar“ Fyrirlestur og myndbandakynning. Textafræðingurinn\, skrautritarinn og íkonamálarinn Tatjana Jankovic og rithöfundurinn Janja Todorovic flytja fyrirlesturinn. \n• 12:00 „Skrautritun; kýrillíska letrið“ – Vinnustofa (2 klst.)\nKynning á skrautritun\, skrautritunarverkum og að sjálfsögðu er boðið upp á skrautskrift. \n• 17:00 „Hefðir og siðir serbneskrar þjóðar í gegnum stuttmyndir og söng“\nSýndar verða tíu stuttmyndir með enskum texta\, ásamt því að hluti af sönghópnum Djoko Pavlovic-Pósthúss Serbíu\, flytur þjóðsöngva. Söngvarar eru Ivan Terzic\, Stevan Gojkovic og Slavoljub Draskovic. \nSunnudagur 19.11.2017 – Hannesarholt\n• 12:00 „Skrautritun; kýrillíska letrið“ – Vinnustofa (2 klst.)\nKynning á skrautritun\, skrautritunarverkum og að sjálfsögðu er boðið upp á skrautskrift. \n• 14:00 „Mikilvægi kynningar og varðveislu menningararfs þjóða“\nÞáttakendur hátíðarinnar verða á staðnum til að ræða við og svara spurningum gesta\, maestro Djordje Stankovic\, Ivan Terzic þjóðháttafræðingur\, Boris Postovnik menningarfræðingur og Tatjana Jankovic textafræðingur. \nSunnudagur 19.11.2017 – Guðríðarkirkja\n• 20:00 „Heimarnir mætast  Á tónlistarlegu ferðalagi um tíma“\nFlytjendur:\nSönghópurinn Nokturno frá Serbíu\, Guðbjörg R. Tryggvadóttir sópran ásamt Drengjakór Þorfinnsbræðra og Davíð Ólafsson bassi. \nMeð tónleikunum verður Serbneskum Menningardögum slitið.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/serbneskir-menningardagar-i-reykjavik/
CATEGORIES:- Sýningar,Málþing / fyrirlestrar (talks),Námskeið,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/11/Serbneskirdagar-FACEBOOK-cover.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170916T150000
DTEND;TZID=UTC:20170916T170000
DTSTAMP:20170918T134611Z
CREATED:20170912T112355Z
LAST-MODIFIED:20170918T134611Z
UID:10000586-1505574000-1505581200@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjarskinn er blár - sýning Þóru Jónsdóttur ljóðskálds og listmálara
DESCRIPTION:Þóra Jónsdóttir\, ljóðskáld og myndlistakona opnar sýningu á olíumálverkum laugardaginn 16. september kl. 15:00. Hjörtur Pálsson\, rithöfundur og prestur\, les úr ljóðum hennar við opnunina. Sýningin ber nafnið – Fjarskinn er blár – og stendur í fjórar vikur. Sýningin er sölusýning. \nÞóra Jónsdóttir \nÞóra Jónsdóttir er fædd 17. janúar 1925 á Bessastöðum á Álftanesi en ólst upp að Laxamýri í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og lauk síðar prófi frá Kennaraskóla Íslands. Þóra starfaði á Borgarbókasafni Reykjavíkur árin 1975 til 1982.  \nÞóra er bæði ljóðskáld og málari. Fyrsta ljóðabók hennar\, Leit að tjaldstæði\, kom út árið 1973 og eru bækur hennar orðnar alls tólf talsins; Ljóð\, örsögur og þýðingar. Þóra hefur hlotið ýmsar viðurkenningar\, m.a. úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins. \nFrá unga aldri var Þóra drátthög en ekki varð úr formlegu námi í myndlist fyrr en líða tók á ævina. Fyrst á námskeiðum hjá Sigfúsi Halldórssyni\, tónskáldi og málara\, og síðan við Myndlistarskólann í Reykjavík frá árinu 1982 til 1988. \nÞóra hefur gefið út 12 ljóðabækur og haldið fjórar sýningar á verkum sýnum: \n – Gallerí Svartfugl á Akureyri 1998 \n – Café Presto í Kópavogi 2003 \n – Bóksafni Seltjarnarness 2008 \n – Norræna húsinu 2014
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/thora-jonsdottir-synir-i-hannesarholti/
LOCATION:Veitingastofur 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/09/Þóra-2005.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170323T180000
DTEND;TZID=UTC:20170326T180000
DTSTAMP:20170322T180708Z
CREATED:20170321T153844Z
LAST-MODIFIED:20170322T180708Z
UID:10000556-1490292000-1490551200@hannesarholt.is
SUMMARY:Hönnunarmars í Hannesarholti - Opnun
DESCRIPTION:Eins og undanfarin ár hýsir Hannesarholt vel valda listamenn og hönnuði á Hönnumars og verður sameiginleg opnun á sýningum þeirra fimmtudaginn 23.mars kl.18.  Hönnunarmars stendur yfir til 26 mars. \nMeðal sýnenda í Hannesarholti þetta árið eru:\nUnnur Sæmundsdóttir með keramik http://honnunarmars.is/work/kertavasinn/\,\nNinna Þórarinsdóttir með tónlistarleikföng fyrir börn http://honnunarmars.is/work/bubbarnir/\,\nIngibjörg Ósk Þorvaldsdóttir með keramik http://honnunarmars.is/work/um/\,\nHansína Jensdóttir með silfursmíði http://honnunarmars.is/work/hrafntinna-brot-ur-natturu/\,\nHulda Guðjónsdóttir  og Kyle Branchesi með arkitektainnsetningu http://honnunarmars.is/work/endurkast-i/\,\nog People from the Porcelain Factory\, undir forystu Ewu Klowanski frá Póllandi með postulíns matar-og kaffistell http://honnunarmars.is/work/folkid-fra-postulinsverksmidjunni/.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/honnunarmars-i-hannesarholti-2/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Hönnun
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2017/03/Facebookhaus04-Hönnunarmars.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20170103T000000
DTEND;TZID=UTC:20170103T000000
DTSTAMP:20170105T132702Z
CREATED:20161201T131731Z
LAST-MODIFIED:20170105T132702Z
UID:10000530-1483401600-1483401600@hannesarholt.is
SUMMARY:Olivier Manoury - Litir vatns og jarðar- myndlistarsýning
DESCRIPTION:Litir vatns og jarðar – vatnslitamyndir eftir Olivier Manoury. Sýningin prýðir veggi Hannesarholts til 20. janúar. \n„Ég er þeirrar skoðunar að efnistök og stíll eigi rætur sínar að rekja til eilífðartogstreitu hæfileika og takmarkana. Mín eigin myndverk eru einfaldlega tilraun til að reyna að fanga síbeytilegt ljós og andrými náttúrunnar sem og manngerðs umhverfis.“ \n– Olivier Manoury\nOlivier Manoury (f. 1953 í Tulle í Frakklandi) ólst að mestu upp í París. Hann var alla tíð listhneigður og hóf myndlistarnám sem barn að aldri. Síðar las hann ensku og bókmenntir við Sorbonne háskóla og lauk þaðan meistaraprófi í nútímabókmenntum árið 1975. Samhliða háskólanámi var hann í listaháskóla Parísarborgar (Ecole National des Beaux Arts) þar sem hann lagði stund á málaralist hjá Gustave Singier og Jacgues Yankel\, auk þess að læra höggmyndalist hjá Etienne Martin. \nDrýgstan hluta ævi sinnar hefur Olivier þó starfað sem tónlistarmaður\, enda er hann er vel þekktur sem bandóneonleikari í Frakklandi og víðar um heim. Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir\, leikhús og danssýningar\, spilað inn á fjölda geisladiska\, auk þess að leika á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Suður-Ameríku. Olivier leikur bæði tangó og jass en meðal þeirra hljómsveita sem hann hefur stofnað eru Tangoneon\, Tempo Di Tango og Le Grand Tango. Síðasnefnda hljómsveitin er Íslendingum að góðu kunn\, en hún er skipuð þekktum hljóðfæraleikurum úr íslensku tónlistarlífi. \nMyndlistarmaðurinn Olivier Monoury talar um verkin sín:\n„Margir málarar af klassíska skólanum notuðu vatnslitamyndir með sama hætti og við notum myndavélar; til þess að fanga augnablikið\, muna útlínur\, kompósisjón og liti. Vatnslitaskissan var síðan notuð til þess að fullvinna olíumálverk á vinnustofunni. \nÉg á vitaskuld myndavél og því er vatnslitaskissan ekki áfangi á lengri leið fyrir mig\, heldur markmið í sjálfu sér. Steinar á hraunbreiðu eru ekki teiknaðir og einungis örfáir skuggar og blettir verða að duga til að vekja í hugskoti áhorfandans einskonar minningu um hraun eða vegaspotta. Það hefur vakið athygli mína að í Frakklandi „þekkir“ fólk ekki hraunbreiðu eða svarta sanda þar sem það hefur aldrei borið slíkt augum. Vissulega gerir það sér grein fyrir andrými og náttúrufegurð í slíkri mynd\, en fremur á afstæðan hátt. Sterkari tilfinningar byggjast á því að þekka hina raunverulegu fyrirmynd rétt eins og maður kann betur að meta góða portrettmynd ef maður þekkir viðkomandi fyrirmynd. Tilfinningarnar sem málverk vekja upp byggjast því ekki einugis á skynrænni reynslu heldur einnig vitsmunalegri.“
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/olivier-manoury-andrymi-natturunnar-myndlistarsyning/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/12/útsog.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161126T110000
DTEND;TZID=UTC:20161127T110000
DTSTAMP:20161122T115300Z
CREATED:20161122T113622Z
LAST-MODIFIED:20161122T115300Z
UID:10000527-1480158000-1480244400@hannesarholt.is
SUMMARY:Leikur að garni - List án landamæra
DESCRIPTION:Verið hjartanlega velkomin á opnun laugardaginn 26. nóvember klukkan 11.00 á efstu hæð í Hannesarholti\n/// English below /// \nÁ sýningunni Leikur að garni verða til sýnis og sölu barnapeysur\, húfur\, dúkkuhúfur og dúkkupeysur prjónaðar úr léttlopa hannaðar af Halldóru Sigríði Bjarnadóttur. Peysurnar eru litríkar\, bjartar og skemmtilegar og í þeim er mikill leikur. \nSýningin fer fram dagana 26. og 27. nóvember á baðstofuloftinu í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, 101 Reykjavík. Aðgengi er ekki gott. \nHalldóra Sigríður Bjarnadóttir (f. 1989) útskrifaðist frá Starfsbraut í fataiðn í Tækniskólanum vorið 2009. Þá stundaði hún nám við Hústjórnaskólann á Hallormstað vorið 2010. \nHalldóra útskrifaðist árið 2013 frá Háskóla Íslands í Starfstengdu Diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun. \nHalldóra prjónar barnatátilíjur og skó í umboðsölu fyrir Handprjónasambandið. Hún hefur einnig hannað eigin peysur og húfur. \nFyrir sýninguna var Halldóra í góðu samstarfi við Erlu Dís Arnardóttur sem er textílkennari. Þær hittust reglulega í hugmyndavinnu fyrir sýninguna og er útkoman sýningin Leikur að garni. \nÞetta er fyrsta sýning Halldóru á vegum List án landamæra \n/// \nPlaying with yarn\nWe welcome you to the opening at 11.00 on the 26th of november on the top floor of Hannesarholt\nAt the exhibition Playing with Yarn\, children’s sweaters and hats as well as dolls’ sweaters and hats will be displayed. The pieces that are made of Icelandic light woven wool are designed and hand knitted by Halldóra S. Bjarnadóttir. \nThe pieces are colorful\, bright\, fun and playful. \nThe exhibition takes place 26.-27. of November in the Sitting room located at the top floor of Hannesarholt\, Grundarstigur 10\, 101 Reykjavik. \nHalldóra Sigríður Bjarnadóttir (b. 1989) graduated from the Icelandic Technical School in 2009 and studied at the House- and Crafts School in Hallormsstað in the spring of 2010. She graduated with a vocational diploma for people with disabilities\, from University of Iceland. \nHalldóra designs and knits baby shoes from Icelandic wool for the Handknitting Association of Iceland. \nThe exhibition is a collaborative effort of Halldóra and Erla Dís Arnardóttir who is a textile teachers. When planning the exhibition\, they met regularly discussing and trying out new ideas. The final result is the exhibition at Hannesarholt. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/leikur-ad-garni-list-an-landamaera/
LOCATION:Baðstofuloftið í Hannesarholti\, Grundarstígur 10\, Reykjavík \, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/11/HandavinnaHalldóru-16-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20161016T160000
DTEND;TZID=UTC:20161016T160000
DTSTAMP:20161015T103906Z
CREATED:20160929T003847Z
LAST-MODIFIED:20161015T103906Z
UID:10000514-1476633600-1476633600@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðainnsetning - Mitt annað sjálf / the second self
DESCRIPTION:Breski listamaðurinn Sandhya sýnir myndljóð (visual poetry) á baðstofulofti Hannesarholts og í veitingastofum. Sandhya er tíður gestur á Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem hún sýnir verk sín hér. Sandhya vinnur bókverk og semur ljóð sem hún miðlar í ólíku formi\, allt frá hefðbundnum textaverkum og vídeóverkum til ljóða sem varpað er á dansandi líkama. Hún leggur sérstaka áherslu á þátt lesandans eða áhorfandans í merkingarferlinu. List sína kallar hún visual poetry.\nSýningin The Second Self býður gestum að hugleiða leitina að umbreytingu í gegnum myndræna ljóðainnsetningu sem samanstendur af vídeóverki og prentverkum. Í vídeóverkinu verður líkaminn síða sem verður vettvangur íhugullar samræðu í gegnum hreyfingu\, hljóð og ljóð. Leitin heldur síðan áfram í prentuðum og brotakenndum bókverkum og textum sem hafa umbreyst í sérstöku sköpunarferli og skilja eftir sig spor hins annars sjálfs.\nInnsetningin er sett upp í samstarfi við Bókmenntaborgina.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodainnsetning-mitt-annad-sjalf-the-second-self/
LOCATION:Veitingastofurnar 1.hæð
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/09/Sandhya-Bio-Image.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20160206T150000
DTEND;TZID=UTC:20160206T150000
DTSTAMP:20160117T233556Z
CREATED:20160117T214926Z
LAST-MODIFIED:20160117T233556Z
UID:10000437-1454770800-1454770800@hannesarholt.is
SUMMARY:Undir súðinni - opnun
DESCRIPTION:ARKIR sýna bókverk í Hannesarholti 6. febrúar til 6. mars 2016\n \nListahópurinn ARKIR sýnir ný og eldri bókverk í Hannesarholti í febrúar. Flest verkin eru aðeins til í einu eintaki en efni og aðferðir sem notaðar eru við sköpunina eru margvíslegar\, svo sem pappírsbrot\, klippitækni og skurður\, textílaðferðir\, málun og teikning\, þrykkaðferðir\, tölvugrafík o.fl.\n \n\nListahópurinn ARKIR hefur starfað allt frá árinu 1998 en meðlimir hópsins sinna öllu jafna margvíslegri listsköpun á sviði málara- og grafíklistar\, textíllistar\, ritlistar\, myndlýsinga og hönnunar. Frá árinu 2005 hafa ARKIR hafa haldið fjölda bókverkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis. \nVerk á sýningunni í Hannesarholti eiga Anna Snædís Sigmarsdóttir\, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir\, Áslaug Jónsdóttir\, Bryndís Bragadóttir\, Helga Pálína Brynjólfsdóttir\, Ingiríður Óðinsdóttir\, Jóhanna M. Tryggvadóttir\, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir\, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir. \n\n\n \nNánari upplýsingar á heimasíðu ARKA: https://arkir.wordpress.com/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/undir-sudinni-opnun/
LOCATION:Baðstofuloftið í Hannesarholti\, Grundarstígur 10\, Reykjavík \, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar,Myndlistarsýning
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2016/01/Hholt-ARKIR-2016-Bodskort-web.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150822T170000
DTEND;TZID=UTC:20150822T170000
DTSTAMP:20150806T111736Z
CREATED:20150806T111736Z
LAST-MODIFIED:20150806T111736Z
UID:10000350-1440262800-1440262800@hannesarholt.is
SUMMARY:"Tilviljun"  Ólöf Svava sýnir vatnslitamyndir í Hannesarholti
DESCRIPTION:Ólöf Svava Guðmundsdóttir opnar sýningu á fjórtán vatnslitamyndum sem hún hefur málað á síðustu tveimur árum. Hrafnar þjóðlagasveit spilar nokkur lög í tilefni opnunarinnar. \nÓlöf er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er útskrifaður leikskóla-og listgreinakennari og hefur unnið við skapandi starf og þróunarverkefni í leikskólum síðastliðin þrjátíu ár. \nÓlöf segir vatnsliti hafa heillað sig alla tíð\, vegna þess hve óútreiknanlegir og gegnsæir þeir eru\, útkoman komi oft á óvart\, sé allt að því tilviljun háð. Lagt er upp með hugmynd\, augnablikið er gripið og svo er haldið áfram. „Vatnslitirnir eru uppspretta fjölmargra möguleika hvað varðar litanotkun\, hugmyndir og áferð\, sköpunarferlið er tilraunakennt\, eins konar óvissuferð.“ \nÓlöf hefur tekið þátt í fjölmörgum námskeiðum í myndlist í gegnum tíðina\, meðal annars í Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell og Ingibergi Magnússyni\, einnig styttri námskeiðum hjá Bridget Woods og Rúnu Gísladóttur. \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tilviljun-olof-svava-synir-vatnslitamyndir-i-hannesarholti/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/08/Ólöfúti-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20150227
DTEND;VALUE=DATE:20150302
DTSTAMP:20150224T160421Z
CREATED:20150122T230206Z
LAST-MODIFIED:20150224T160421Z
UID:10000265-1424995200-1425254399@hannesarholt.is
SUMMARY:LÍFRÆNT - glerlíffæri Siggu Heimis og teikningar Ella Egilssonar
DESCRIPTION:Sýning og málþing \nÞann 31. janúar var opnuð sýningin LÍFRÆNT í Hannesarholti.\nSýningin mun standa út febrúarmánuð og vera opin á opnunartíma Hannesarholts kl. 11-17. \nÁ sýningunni verða glerverk eftir Siggu Heimis sem unnin eru með CMOG (Corning Museum of Glass) sem er stærsta glerlistasafn í heimi. Sigga hefur gert stór glerverk sem sýnd voru á einkasýningu hennar í Stokkhólmi fyrir ári hjá Designgalleriet.  Hlutirnir eru gerðir til þess að vekja fólk til umhugsunar um líffæragjöf. \nÁ neðri hæð Hannesarholts verða sýndar teikningar eftir Ella Egilsson af líffærum\,en hann er ungur listamaður sem hefur gert líffæri að myndefni sínu.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/glerliffaeri-siggu-heimis-a-badstofuloftinu/
LOCATION:Baðstofuloftið í Hannesarholti\, Grundarstígur 10\, Reykjavík \, 101\, Iceland
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/01/glass-organs-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140824T140000
DTEND;TZID=UTC:20140824T170000
DTSTAMP:20140823T180843Z
CREATED:20140823T180746Z
LAST-MODIFIED:20140823T180843Z
UID:10000195-1408888800-1408899600@hannesarholt.is
SUMMARY:Landslag sálarinnar - ljósmyndir og vídeóverk
DESCRIPTION:Xárene Eskandar er hönnuður sem hefur rannsakað ný viðhorf gagnvart sjálfinu og  leitast við að breyta skynjun okkar á bæði tíma og rúmi í gegnum ljósmyndir og video-verk sín. Hún er handhafi MFA gráðu frá Kaliforníuháskóla í Los Angeles\,. Hún heldur fyrirlestra og hefur sýnt verk sín við alþjóðlegar stofnanir og við ólík tækifæri. Sem dæmi má nefna;   Mutek\, Montréal; SIGGRAPH; International Symposium of Electronic Arts\, Singapúr; Istanbul Design Biennial; Iceland Academy of Arts; Fabrica\, Treviso; Bâtiment d’art contemporain\, Genève; Centre of Contemporary Art\, Torun; Kiasma Museum of Contemporary Art\, Helsinki; og Los Angeles Contemporary Exhibits. \nLANDSLAG SÁLARINNAR – ÍSLENSKAR VEÐURFRÉTTIR \nMat á skynjun okkar gagnvart rúmtíma – lýst með veðurfregnum. \n“Vinna að verkinu hófst sem vikulegur óður til borgarinnar sem ég elska en flestir elska að hata: Los Angeles. Titillinn „Veðurfregnir“ er andsvar við staðarímynd  veðurfars Los Angeles – 20 gráður og sólríkt („70 and sunny“). Textarnir  varpa þá ljósi á margbreytileika veðurfars og þeirra áhrifa sem það hefur á sjálfið\, hvort sem það er augljóst\, eða í undirvitund okkar. \nBæði á Íslandi og í Los Angeles er veðurfar vinsælt umræðuefni\, en þær umræður eru þó kannski býsna ólíkar því hér skipast veður skjótt í lofti. Textinn\, ljósmyndirnar og myndböndin sem hér eru sýnd eru þ.a.l. kannski persónulegri þar sem íslensk náttúra og veðurfar hefur mögulega djúpstæðari áhrif á sjálfið\, samanborið við einlitt veður Los Angeles.”
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/landslag-salarinnar-ljosmyndir-og-videoverk/
CATEGORIES:- Sýningar
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/TheIsland-for-website.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR