BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250305T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250305T210000
DTSTAMP:20250220T110511Z
CREATED:20250219T103730Z
LAST-MODIFIED:20250220T110511Z
UID:10001124-1741204800-1741208400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ferðasögur frá Georgíu: píanótónleikar og frásögn
DESCRIPTION:Ólína Ákadóttir heldur tónleika þar sem hún spilar vel valin píanóverk og deilir sögum frá ársdvöl sinni í Georgíu. \nGeorgía er suðupottur fjölbreyttra menningarheima en landið liggur mitt á milli Evrópu og Asíu með himinhá Kákasus-fjöllin í norðri\, Svartahafið í vestri\, eyðimerkur í suðri og vínekrur í austri. Ólína bjó í höfuðborginni Tbilisi í eitt ár þar sem hún stundaði píanónám og lenti í ýmsum ævintýrum\, enda ekki hrædd við að fara ótroðnar slóðir. Á tónleikunum \,\,Ferðasögur frá Georgíu” mun Ólína deila vel völdnum sögum í gegnum orð\, myndir og tóna. Á efnisskránni eru fjölbreytt verk eftir Bach\, Haydn\, Debussy\, Jórunni Viðar\, Revaz Lagidze og fleiri. \nÓlína Ákadóttir er ungur og efnilegur píanóleikari. Hún stundar nám við Tónlistarháskóla Noregs en fór í skiptinám 2023-24 til Tbilisi í Georgíu. Árið 2024 varð Ólína einn sigurvegara Ungra einleikara og flutti píanókonsert Jórunnar Viðar með Sinfóníuhljómsveit Íslands í kjölfarið. Ólína hefur einnig komið fram sem einleikari með Master Orchestra Verona (2024)\, Sinfóníuhljómsveit Unga fólksins (2023) og kammerhljómsveit nemenda Tónlistarháskóla Noregs (2023). Ólína hefur komið fram á ýmsum tónlistarhátíðum á Íslandi og í Noregi\, t.d. Sumartónleikaröð Bláu kirkjunnar á Seyðisfirði\, Sumartónleikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafssonar og Tónlistarhátíðinni Seiglu í Hörpunni. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ferdasogur-fra-georgiu-pianotonleikar-og-fyrirlestur/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/georgia1920.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250327T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250327T213000
DTSTAMP:20250225T150341Z
CREATED:20250217T121705Z
LAST-MODIFIED:20250225T150341Z
UID:10001119-1743105600-1743111000@hannesarholt.is
SUMMARY:Fjör og fegurð fyrir selló og píanó
DESCRIPTION:Kitty og Þórdís snúa aftur í Hannesarholt með fjöruga efnisskrá sónata fyrir selló og píanó frá fyrri hluta 20. aldar. Flutt verða sónötur eftir Sergei Prokofiev og Claude Debussy sem báðar einkennast af léttlleika\, hljómrænum áhrifum frá dægurtónlst fyrri hluta 20. aldar og algjörs jafnræðis hljóðfæra.\nDebussy skrifaði sónötu sína ásið 1915 og var fyrsta af sex sónötum sem hann hugðist semja sem afturhvarf frá gerð stórra hljómsveitasrverka til kammertónlistar og var innblásin af og skrifuð til heiðurs frönsku barokktónskáldanna Rameau og Couperin. Debussy\, sem á þessum tíma var orðinn heilsuveill\, skrifaði sónötuna í smábæ við sjávarsíðu Normandy og tileinkaði eiginkonu sinni\, Emmu.\nVerk Prokofievs var samið árið 1949 eftir að tónskádlið sá sellóleikarann Mistislav Rostropovich leika aðra sónötu Miaskovkys og var Prokofiev svo hrifinn að hann samdi sónötuna sína fyrir sellóleikarann. Ári síðar var tónskáldið sakað um formalisma og megnið af tónlist hans bönnuð í Sovétríkjunum. Sónatan var frumflutt af Rostrapovic og Sviatoslav Richter í maí árið 1950 og þurftu þeir að spila hana fyrir ráð tónskáldafélagsins til að fá úr því skorið hvort verkið þætti viðeigandi og í anda stefnu Sovétríkjanna. Miaskovsky var viðstaddur frumflutninginn og lýsti verkinu sem undraverðu tónverki.\n\n\nKitty Kovács er fædd í Gyor í Ungverjalandi árið 1980 og útskrifaðist árið 2003 frá tónlistardeild Széchenyi István háskólans þar í borg með diplómu í píanó- og kammertónlist. Eftir útskriftina starfaði hún sem undirleikari í Gyor og lagði síðan stund á undirleikaranám við Ferenc Liszt Akademíuna í Búdapest. Á námsárum sínum vann hún í píanókeppnum\, m.a. árið 1997 í Salt Lake City og árið 2000 varð hún í 3. sæti í Chopin keppninni. Kitty kom til Íslands árið 2006 og hefur starfað sem píanókennari og organisti. Frá árinu 2011 hefur hún verið kirkjuorganisti við Landakirkju í Vestmannaeyjum og kennari við Tónlistarskóla Vestmannaeyja. Frá árinu 2012 hefur Kitty stundað orgelnám við Tónskóla þjóðkirkjunnar og vorið 2017 lauk hún kantorsnámi þaðan.\n\n \nÞórdís Gerður Jónsdóttir er sellóleikari sem hefur þá sérstöðu að leika jöfnum höndum sígilda tónlist og jazz. Sígildan sellóleik nam hún við Listaháskóla Íslands á árunum 2014-2017 og í konunglega danska konservatoríinu í Árósum\, en þaðan lauk hún meistaragráðu sumarið 2021. Þórdís lauk burtfararprófi frá jazzdeild Tónlistarskóla FÍH vorið 2015 en í náminu lagði hún áherslu á spuna og tónsmíðar. Þórdís er stofnmeðlimur kammerhópsins Cauda Collective sem er hópur skapandi tónlistarflytjenda sem leita út fyrir rammann í tónlistarflutningi sínum. Hlutverki flytjandans er ögrað\, hann semur líka tónlist\, útsetur\, spinnur og vinnur þvert á miðla. Hópurinn leitar einnig nýrra leiða til að túlka gamla tónlist í samtali við nútímann\, gjarnan með hjálp annarra listforma. Einnig er unnið náið með tónskáldum og lögð áhersla á að frumflytja ný tónverk. Þórdís hefur leikið reglulega með Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2018\, hún var fastráðin þar veturinn 2021-2022\, og hefur verið í leikhúshljómsveitum við Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. Hún gaf út hljómplötuna Vistir með hennar eigin jazz-tónsmíðum og útsetningum vorið 2021. Síðustu misseri hefur Þórdís hefur lagt sérstaka áherslu á að frumflytja á Íslandi sjaldheyrð eldri erlend verk\, sem dæmi frumflutti hún á Íslandi 100 ára sónötu fyrir selló og píanó eftir Kurt Weill\, ásamt Önnu Guðnýju Guðmundsdóttur\, á Jazzhátíð Reykjavíkur í ágúst 2020. Þá frumflutti hún á Íslandi þrjár einleikssvítur eftir Ernst Bloch í maí 2023. Þórdís hefur einnig brennandi áhuga á miðlun menningar og hefur m.a. gefið út eigið hlaðvarp um þýska tónskáldið Kurt Weill. Þórdís er eftirsóttur útsetjari og hefur m.a. útsett tónlist Mugisonar\, bæði fyrir tónleika og upptökur\, auk sönglaga Kurts Weills fyrir 7 manna jazzhljómmsveit. Vorið 2014 lauk Þórdís námi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands og viðbótardiplómu í lýðheilsuvísindum vorið 2019. Hún starfar á Bráðamóttöku Barnaspítala Hringsins á milli tónleika.\n\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fjor-og-fegurd-fyrir-sello-og-piano/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/vikingcelloogpiano16x9.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250328T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250328T213000
DTSTAMP:20250317T113310Z
CREATED:20250217T164401Z
LAST-MODIFIED:20250317T113310Z
UID:10001121-1743192000-1743197400@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST Vetrarkveðja: Kristína Mekkín og Alexander Grybko
DESCRIPTION:Þann 28. mars næstkomandi verður boðið upp á notalega vortóna í Hannesarholti.\nFlytjendur kvöldsins er dúóið Kristína Mekkin og Alexander Grybos. \nKristína er lærður dansari og hæfileikarík söngkona sem hefur komið fram víða og bjó m.a. í London og New York\, þar sem djassinn seytlaðist inn í vitundina og náði sér rótfestu í sálinni. Á undanförnum árum hefur tónlistin verið í fyrirrúmi og nú er hún lent aftur á klakanum til að ylja í okkur sálartetrið eftir veturinn. \nAlexander Grybos er ungur og efnilegur gítarleikari sem hefur tekið þátt í fjölbreyttum tónlistarverkefnum með hinum ýmsu hljómsveitum og tónlistarfólki bæði hér á landi og erlendis þ.m.t. í Póllandi og New York. Síðasta sumar spreytti hann sig í djass með HAG tríóinu sem spilaði víða um land síðasta sumar. \nLeiðir þeirra Kristínu og Alexanders lágu saman haustið 2024 þegar þau byrjuðu að halda innilega djass tónleika á vínbar í miðbæ Reykjavíkur. \nFjölbreytileiki djassins er það sem heillaði þau bæði\, enda er takturinn reglubundin óreiða sem býður upp á bæði hjartnæm augnablik eða ævintýralegar sveiflur.\nBragur kvöldins verður í meðalhófum takti þar sem hlýjir straumar vorsins fá að læðast inn með ábreiðum af allskyns toga með djass ívafi. \nTextagerð: Anný Tinna Aubertsdóttir \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/vetrarkvedja-kristina-mekkin-og-alexander-grybko/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/logokriaoggrybko.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR