BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250403T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250403T213000
DTSTAMP:20250225T161650Z
CREATED:20250225T105533Z
LAST-MODIFIED:20250225T161650Z
UID:10001129-1743710400-1743715800@hannesarholt.is
SUMMARY:Draumsýn: Jóna G. Kolbrúnardóttir og Ástríður Alda
DESCRIPTION:Jóna G. Kolbrúnardóttir sópransöngkona og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja ljóðatónlist eftir Clöru Schumann (1819-1896) og Franz Schubert (1797-1828) á tónleikum í\nHannesarholti. Verkefnavalið samanstendur af völdum ljóðum eftir F. Schubert og flokkunum Opus 12 og 13 eftir C. Schumann. Í ljóðunum er náttúran í fyrirrúmi og endurspeglar ólíkar\nbirtingarmyndir ástarinnar\, margslungnar tilfinningar og drauma mannsins. \nF. Schubert lést aðeins 31 árs gamall. Þrátt fyrir stutta ævi var Schubert ótrúlega afkastamikill. Hann samdi yfir 600 söngljóð (Lieder) og hafði áhrif á fjölda tónskálda\, þar á meðal Clöru Schumann\, Robert Schumann\, Johannes Brahms\, Richard Strauss og fleiri. Schubert er talinn brautryðjandi þýska söngljóðsins (Lied). Hann bjó yfir einstökum hæfileikum til að tjá hinar dýpstu tilfinningar ljóðanna í fallegum og flæðandi laglínum. Í söngljóðum Schuberts gildir jafnræði milli söngraddarinnar og tóna píanósins\, sem dýpka skilning okkar á ljóðinu í sameiningu. \nC. Schumann skilur einnig eftir sig fjöldann allan af tónsmíðum\, þrátt fyrir að hafa nánast hætt að semja eftir að hún giftist tónskáldinu Robert Schumann. En líkt og söngljóð Schuberts þá\nfléttar Schumann píanóleikinn og söngröddina einstaklega vel saman. Línurnar mynda eina heild og tilfinningar ljóðsins komast fullkomnlega til skila. Hún var eftirsóttur og virtúósískur\npíanóleikari í sinni tíð\, og greina má snilli hennar í píanóparti söngljóðanna. \n\n\nFranz Schubert\nSeligkeit – L. H. Chr. Hölty\n\nClara Schumann – Op. 13\n1. Ich stand in dunklen Träumen – Heinrich Heine2. Sie liebten sich beide – Heinrich Heine3. Die Liebe sass als Nachtigall – Emanuel Geibel4. Der Mond kommt still gegangen – Emanuel Geibel5. Ich hab’ in deinem Auge – Friedrich Rückert6. Die stille Lotusblume – Emanuel Geibel\n\nFranz Schubert\nFrühlingsglaube – L. UhlandIm Freien – J. G. SeidlFischerweise – Franz v. SchlechtaIm Abendrot – Carl LappeSprache der Liebe – Aug. Wilh. SchlegelGretchen am Spinnrade úr “Faust” – Goethe\n\n\nClara Schumann – Op. 12\n1. Er ist gekommen in Sturm und Regen – F. Rückert2. Liebst du um Schönheit – F. Rückert3. Warum willst du and’re fragen – F. Rückert\n\nFranz Schubert\nNacht und Träume – Matthäus v. Collin\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/draumsyn-jona-g-kolbrunardottir-og-astridur-alda/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/logo16x9jona.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250411T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250411T213000
DTSTAMP:20250404T102414Z
CREATED:20250221T130952Z
LAST-MODIFIED:20250404T102414Z
UID:10001127-1744401600-1744407000@hannesarholt.is
SUMMARY:AFLÝST Hljómsveitin Goldies & Johnny King: Alvöru country veisla!
DESCRIPTION:Johnny King mætir ásamt hljómsveitinni sinni Goldies með tónleika í fullri lengd\, þá fyrstu í mörg ár\, en tilefnið er meðal annars að fylgja eftir kvikmyndinni Kúreki norðursins: sagan af Johnny King eftir Andra Frey og Árna Sveins sem sýnd var í kvikmyndahúsum landsins og á RÚV í fyrra. Leikin verða bæði lög frá ferlinum eins og Lukku Láki og Tinarinn ásamt nýjasta smellinum Nútíma kúreki í bland við þekkta köntrí-slagara frá helstu stjörnum gullaldaráranna í country tónlist.\nHljómsveitina skipa:Johnny King – Gítar og söngurGuðný Lára Gunnarsdóttir – Ukulele og söngurStefán Örn Viðarsson – Píanó og söngurGuðmundur Andrés Reynisson – Trommur og söngurGuðmundur Pálsson – FiðlaHallur Guðmundsson – Bassi og söngur\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hljomsveitin-goldies-johnny-king-alvoru-country-veisla/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/02/logoGoldieslandscape-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250412T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250412T213000
DTSTAMP:20250411T150413Z
CREATED:20250310T154843Z
LAST-MODIFIED:20250411T150413Z
UID:10001134-1744488000-1744493400@hannesarholt.is
SUMMARY:French Connection
DESCRIPTION:FRENCH CONNECTIONAurore Pélier Cady SöngkónaNico Moreaux á KontrabassaKjartan Valdemarsson á PíanóOlivier Manoury á Bandoneon\, Accordina\nMargir Íslendingar tala frönsku. Franska hefur verið kennd í menntaskólum um langt skeið\, og margir íslenskir nemendur fara til Frakklands til að læra tónlist\, listir og bókmenntir. Lítill hópur Frakka býr á Íslandi. Þeir koma hingað heillaðir af fjöllunum\, fuglunum\, hestunum\, ástinni og einangruninni. Í farteskinu koma þau með þekkingu sína\, matargerð og tónlist. Þrír slíkir frakkar og Kjartan Valdemarsson verða með tónleika 12. apríl í Hannesarholti.\nNico er virtur djasskontrabassaleikari í Frakklandi\, sem hefur spilað og tekið upp með mörgum hljómsveitum og sínar eigin tónsmíðar. Tengsl hans við Ísland hófust árið 2009 þegar hann heimsótti vin sinn og kynntist píanistanum Agnari Má Magnússyni\, sem hann hefur unnið með í gegnum árin.\nAurore Pélier Cady er frá Frakklandi og rekur sætabrauðsbakaríið Sweet Aurora Reykjavík. Bakari að degi til\, söngkona að nóttu til – hún sameinar ástríður sínar í verkefninu Sugar Shake Sessions ásamt Nicolas Moreaux. Tónlistarferill hennar á rætur sínar í djassi\, en hún er óhrædd við að syngja soul- og þjóðlagatónlist. Rödd hennar er hlý\, mjúk og sálarrík – eins og hlýtt teppi.\nOlivier Manoury deilir lífi sínu milli Parísar og Reykjavíkur. Hann fæddist í Tulle í Frakklandi og lærði ensku og bókmenntir við Sorbonne-háskóla\, þaðan sem hann lauk meistaraprófi í nútímabókmenntum. Samhliða háskólanámi stundaði hann nám í Listaháskóla Parísar\, þar sem hann lagði stund á málaralist.Hann hefur haldið tónleika og tekið þátt í listahátíðum með hljómsveitum\, söngvurum og tangódönsurum víðsvegar um heim. Auk þess að semja og útsetja tónlist\, hefur Olivier samið fyrir kvikmyndir\, leikhús og ballett. Hann stofnaði Le Grand Tango\, ásamt eiginkonu sinni\, Eddu Erlendsdóttur\, og fjölda íslenskra tónlistarmanna á borð við Auði Aðalsteinsdóttur\, Bryndísi Höllu Gylfadóttur\, Helgu Þórarinsdóttur og Richard Korn. Einnig hefur hann unnið með Agli Ólafssyni að plötu með tangólögum sungnum á íslensku og tónsmíð fyrir barnakór sem var flutt á Barnamenningarhátíð í Hörpu.Olivier og Kjartan Valdemarsson hafa spilað saman síðan á tíunda áratugnum. Kjartan Valdemarsson stundaði nám við Berklee College of Music. Hann kennir við Tónlistarskóla FÍH og starfar einnig sem píanóleikari við Listdansskóla Íslands og fyrir Íslenska dansflokkinn. Kjartan hefur leikið með flestum íslenskum djasshljómsveitum en einnig í poppi\, til að mynda með hljómsveitinni Todmobile. Hann er eftirsóttur útsetjari og hefur unnið útsetningar fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands og Stórsveit Reykjavíkur. Kjartan hefur samið tónlist fyrir sjónvarp\, m.a. fyrir Spaugstofuna og Áramótaskaupið.\nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/french-connection/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/03/frenchconnection19x9.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR