BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20240101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250918T200000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20250918T213000
DTSTAMP:20250604T155636Z
CREATED:20250604T155636Z
LAST-MODIFIED:20250604T155636Z
UID:10001180-1758225600-1758231000@hannesarholt.is
SUMMARY:Nani: Útgáfutónleikar
DESCRIPTION:Nani – Útgáfutónleikar \nNina Basdras (sópran) og Ásgeir Ásgeirsson (gítar) \nNani er safn vel þekktra grískra vögguvísa\, endurunnar fyrir rödd og gítar í hlýlegu\, hljóðrænu umhverfi. Lögin – bæði úr grískri þjóðlagaarfleifð og eftir ástsæl tónskáld Grikklands – hafa verið útsett og hljóðrituð með eitt skýrt markmið: að hljóma eins og einhver sé þarna við hliðina á þér og syngi þig í svefn. \nTónleikarnir marka útgáfu plötunnar\, sem varð til út frá reynslu sópransöngkonunnar\, Ninu Basdras\, af fyrstu mánuðum móðurhlutverksins\, þegar hún ól upp son sinn\, Ares Þór\, á milli tveggja menningarheima. Þessar vögguvísur urðu leið hennar til að halda tengslum við grískar rætur sínar\, deila menningu sinni með syni sínum og róa hann með tónlist og tungumáli. \nFlutningurinn fer fram í kyrrlátu umhverfi og býður áheyrendum – foreldrum\, börnum og tónlistarunnendum – að stíga inn í mildan hljóðheim mótaðan af minningum\, umhyggju og tímalausum takti vögguvísunnar. \nNina Basdras \nLýrískur sópran \nNina Basdras er grískur lýrískur sópran búsett í Reykjavík. Með bakgrunn í klassískum söng og leiklist í farteskinu færir hún tilfinningalega dýpt og dramatíska næmni inn í flutning sinn. \nHún er upprunalega frá Aþenu og stundaði nám í leiklist áður en hún sneri sér að klassískum söng. Hún hefur þjálfað og komið fram víðsvegar um Evrópu. Verk hennar spanna óperu\, listrænan söng og þverfaglegar sýningar þar sem hún sameinar rödd og sviðstækni á tjáningaríkann og náinn hátt. \nTónleikarnir í kvöld marka útgáfu Nani — djúpt persónulegrar plötu með grískum vögguvísum\, innblásinni af vegferð hennar inn í móðurhlutverkið. Með þessu verkefni kannar Nina minni\, menningarlega sjálfsmynd og hljóðláta kraft tónlistarinnar til að hugga\, tengja og halda hefðum á lífi. \nÁsgeir Ásgeirsson – gítarleikari og tónskáld \nÁsgeir Ásgeirsson er íslenskur gítarleikari og strengjaleikari með yfir 30 ára reynslu. Hann er fjölhæfur tónlistarmaður sem leikur popp\, rokk\, djass og heimstónlist og hefur komið fram með flestum fremstu tónlistarmönnum Íslands og fjölda alþjóðlegra listamanna\, þar á meðal Dave Weckl\, Guthrie Govan og Seamus Blake. \nÁsgeir lauk námi frá Tónlistarskóla FÍH árið 1999 og hélt áfram í djasstónlist við Conservatorium van Amsterdam. Hann hefur einnig stundað sérnám í strengjahljóðfærum og tónlistarmenningu Austurlanda\, m.a. í Grikklandi\, Tyrklandi\, Búlgaríu\, Íran og Jórdaníu. \nHann hefur gefið út fimm sólóplötur\, þar af tvær djassplötur með frumsömdu efni (Passing Through\, Tríó) og þrjár byggðar á þjóðlögum og samvinnu við tónlistarfólk frá Mið-Austurlöndum og Balkanskaganum (Two Sides of Europe\, Travelling Through Cultures\, Persian Path). Söngkonan Sigríður Thorlacius syngur á flestum verkanna. \nÁsgeir hefur komið fram á tónleikum víða um heim\, m.a. á Listahátíð í Reykjavík\, í Skandinavíu og í Jórdaníu\, og starfar með margvíslegum hópum\, m.a. Stórsveit Reykjavíkur\, Sinfóníuhljómsveit Íslands og eigin hljómsveitum eins og Skuggamyndum frá Býsans og djasstríóinu 6.6. \nKAUPA MIÐA
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/nani-utgafutonleikar/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2025/06/nina1920x1080-1.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR