BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.3//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20130926T200000
DTEND;TZID=UTC:20130926T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20130920T211111Z
LAST-MODIFIED:20130920T211111Z
UID:10000078-1380225600-1380232800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tríó Sunnu Gunnlaugs með tvenna tónleika í Hljóðbergi
DESCRIPTION:Nýútkominn diskur tríós Sunnu Gunnlaugs\, ‘Distilled’ fær nú hverja glimrandi umfjöllun á fætur annarri erlendis. \nJazzgagnrýnandi Rhapsody valdi ‘Distilled’ sem einn af top 10 diskum september mánaðar. \nDiskurinn fékk einnig nýlega umfjöllun hjá London Jazz News sem segir Sunnu vera „sérlega smekklegan píanista“ og diskinn vera „ferskan og óaðfinnanlega fram settan af þéttu tríói\, stútfullu af hugmyndum“. \nJazznytt í Noregi mælir með disknum í nýjasta tölublaði sínu og Jazz Japan gefur honum einnig frábæra dóma og segir „stemmningu diskins ná hæðum sem einungis topp-tónlist nær. \n“ Tríóið fagnar nú útkomu disksins með tvennum tónleikum í Hannesarholti 26 og 27 september. \nAðgangseyrir er 2.000 kr. Miðasala á midi.is \nSunna Gunnlaugs-píanó\n Þorgrímur Jónsson-bassi\n Scott McLemore-trommur
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/trio-sunnu-gunnlaugs-med-tvenna-tonleika-i-hljodbergi-2/
LOCATION:Hugleiðslunámskeið í Hannesarholti
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=:
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20130927T200000
DTEND;TZID=UTC:20130927T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20130920T222236Z
LAST-MODIFIED:20130930T213143Z
UID:10000021-1380312000-1380319200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tríó Sunnu Gunnlaugs í Hljóðbergi
DESCRIPTION:Nýútkominn diskur tríós Sunnu Gunnlaugs\, ‘Distilled’ fær nú hverja glimrandi umfjöllun á fætur annarri erlendis. \nJazzgagnrýnandi Rhapsody valdi ‘Distilled’ sem einn af top 10 diskum september mánaðar. \nDiskurinn fékk einnig nýlega umfjöllun hjá London Jazz News sem segir Sunnu vera „sérlega smekklegan píanista“ og diskinn vera „ferskan og óaðfinnanlega fram settan af þéttu tríói\, stútfullu af hugmyndum“. \nJazznytt í Noregi mælir með disknum í nýjasta tölublaði sínu og Jazz Japan gefur honum einnig frábæra dóma og segir „stemmningu diskins ná hæðum sem einungis topp-tónlist nær. \n“ Tríóið fagnar nú útkomu disksins með tvennum tónleikum í Hannesarholti 26 og 27 september. \nAðgangseyrir er 2.000 kr. Miðasala á midi.is \nSunna Gunnlaugs-píanó\nÞorgrímur Jónsson-bassi\nScott McLemore-trommur
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/trio-sunnu-gunnlaugs-i-hljodbergi/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/hannesarholt-sept2-1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131001T203000
DTEND;TZID=UTC:20131001T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20130930T200309Z
LAST-MODIFIED:20130930T200314Z
UID:10000045-1380659400-1380664800@hannesarholt.is
SUMMARY:Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson heilla jazzgeggjara
DESCRIPTION:Skúli Sverrisson og Óskar Guðjónsson hafa verið á stífri yfirreið og haldið  tónleika vítt og breitt um landið. Þriðjudagskvöldið 1. október er komið að Reykvíkingum að njóta tónlistar þessara snillinga og þeir eru einmitt haldnir hér í Hannesarholti. Þeir félagar hafa starfað saman i 15 ár og gefið út tvær plötur\, Eftir þögn og The box tree sem báðar unnu til íslensku tónlistaverðlaunanna sem plata ársins í flokki jasstónlistar.\nSkúli hefur ad mestu leyti starfað í Bandaríkjunum med mörgum þekktum listamönnum eins og Allan Holdsworth\, Laurie Anderson\, David Sylvian og Blonde Redhead.\nÓskar er einn af fremstu jasstónlistamönnum landsins og tónlist hans hefur vakið athygli um víðan heim. Hann hefur leikið med fjölda hljómsveita en helst má nefna ADHD og Mezzoforte.\nTónlist þeirra Skúla og Óskars er lagræn og hljómfögur þar sem einstök nálgun hljóðfæraleiks þeirra nýtur sín sem allra best. \nTónleikarnir hefjast kl. 20:30 og miðar verða seldir við innganginn (gengið inn frá Skálholtsstíg). Miðaverð er 2.000 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/oskar-gudjonsson-og-skuli-sverrisson-heilla-jazzgeggjara/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/t_1379867999_image.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131009T200000
DTEND;TZID=UTC:20131009T210000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20130929T001235Z
LAST-MODIFIED:20131008T121656Z
UID:10000023-1381348800-1381352400@hannesarholt.is
SUMMARY:Reykjavíkurskáldið Tómas Guðmundsson
DESCRIPTION:Tómas Guðmundsson ljóðskáld hefur oft verið kallaður „Borgarskáldið“ en hann samdi fjölmörg ljóð um fegurð og mannlíf Reykjavíkurborgar. Á tónleikunum „Borgarskáldið Tómas“ munu ljóð Tómasar verða sungin við lög eftir þekkt íslensk tónskáld. Einnig verður flutt ágrip af ævi Tómasar og ljóð hans skoðuð. Flytjendur eru sópranarnir Margrét Hannesdóttir og Una Dóra Þorbjörnsdóttir og píanistinn Sigurður Helgi Oddsson.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tomas-gudmundsson-reykjavikurskaldid-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/09/borgarskald_web-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131031T210000
DTEND;TZID=UTC:20131031T230000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131016T162850Z
LAST-MODIFIED:20131028T205259Z
UID:10000092-1383253200-1383260400@hannesarholt.is
SUMMARY:Bjössi Thor & Bítlarnir á fimmtudag - tryggðu þér miða.
DESCRIPTION:Gítarsnillingurinn Björn Thoroddsen hefur árum saman unnið með lagasmíðar Bítlanna enda ætlaði hann að ganga í hljómsveitina á yngri árum. Úr því varð ekki. Bítlarnir vissu ekki af honum og hættu\, reyndar áður en Bjössi lærði almennilega á gítar. \nBítlalögin hafa gegnum árin verið á efnisskrá Björns\, oft í mögnuðum útsetningum. Hann hefur brotið lögin niður í frumeindir og byggt þau upp að nýju. Á nýrri plötu sinni spilar hann lögin einn og óstuddur þótt stundum hljómi þau eins og í flutningi hefðbundinnar Bítlahljómsveitar með tveimur gíturum\, bassa og trommum. \nTúlkun Björns á Bítlalögunum hefur vakið verðskuldaða athygli á tónleikum hans víða um lönd á síðustu misserum. Nú geta íslenskir aðdáendur Bjössa og Bítlanna notið þeirra á tónleikum í Hannesarholti\, fimmtudaginn 31. október kl. 21.00. Tryggðu þér miða hér.\n \nhttp://www.youtube.com/watch?v=2CM6m9OWemg
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bjossi-thor-bitlarnir-i-hannesarholti-fimmtudaginn-31-oktober/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/Björn-Thoroddsen-e1381941689111.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131113T200000
DTEND;TZID=UTC:20131113T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131020T220500Z
LAST-MODIFIED:20131111T233318Z
UID:10000055-1384372800-1384380000@hannesarholt.is
SUMMARY:Kvöldstund með listamanni: Snorri Sigfús Birgisson og Guðni Tómasson
DESCRIPTION:Snorri Sigfús Birgisson\, tónskáld\, verður gestur Hannesarholts miðvikudagskvöldið 13. nóvember kl. 20:00. Snorri hefur starfað sem tónskáld\, píanóleikari\, tónlistarkennari og stjórnandi síðan hann kom heim úr námi árið 1980. Verkalistinn er fjölbreyttur og inniheldur einleiksverk\, kammertónlist\, raftónlist\, kórtónlist og sinfónísk verk. Snorri er félagi í Caput-hópnum og hefur verið áberandi í nýrri íslenskri tónsköpun á undanförnum áratugum auk þess sem hann hefur nýtt íslenskan tónlistararf í tónsmíðum sínum á spennandi hátt. \nSnorri verður gestur Hannesarholts en það er Guðni Tómasson\, listfræðingur og tónlistaráhugamaður\, sem ræðir við Snorra. Tónskáldið segir gestum frá verkum sínum og hugmyndum að baki þeim. Snorri leikur einnig brot úr verkum sínum á flygilinn góða sem stendur í tónleikasal Hannesarholts. \nhttp://notendur.centrum.is/~ssb/
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/kvoldstund-med-listamanni-snorri-sigfus-birgisson-og-gudni-tomasson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Kvöldstund með listamanni,Listaspjall,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/10/G6PGLE6V-Snorri-Sigfús.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131122T210000
DTEND;TZID=UTC:20131122T223000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131101T010623Z
LAST-MODIFIED:20131105T190932Z
UID:10000057-1385154000-1385159400@hannesarholt.is
SUMMARY:"Britten í öll mál"
DESCRIPTION:Á fæðingardegi tónskáldsins Benjamins Britten og degi heilagrar Sesselíu\, verndardýrlings tónlistarinnar\, 22. nóvember\, halda Hlín Pétursdóttir Behrens\, sópran og Gerrit Schuil píanóleikari upp á hundrað ára ártíð tónskáldsins með tónleikum í Hljóðbergi Hannesarholts\, Grundarstíg 10 í Reykjavík. Tónleikarnir hefjast kl 21.00 og verða endurteknir sunnudaginn 24. nóvember kl 11.00. Efnisskráin endurspeglar sérstaklega hið frjóa samstarf tónskáldins við ljóðskáldið Wystan Hugh Auden m.a. með ljóðaflokkunum On this Island og Cabaret Songs.\n\nBorðstofan er opin fyrir tónleikana á föstudag og hægt er að panta kvöldverð að hætti hússins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/britten-i-oll-mal/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Britten1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131124T110000
DTEND;TZID=UTC:20131124T123000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131101T011501Z
LAST-MODIFIED:20131105T190741Z
UID:10000059-1385290800-1385296200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Britten í öll mál"
DESCRIPTION:Hlín Pétursdóttir Behrens\, sópran og Gerrit Schuil píanóleikari endurtaka tónleika frá föstudeginum 22.nóvember\, fæðingardegi tónskáldsins Benjamins Britten og degi heilagrar Sesselíu\, verndardýrlings tónlistarinnar.  Tónleikarnir eru haldnir tónskáldinu til heiðurs í tilefni af hundrað ára fæðingarafmæli hans. Sunnudagstónleikarnir  24. nóvember hefjast kl 11.00. Efnisskráin endurspeglar sérstaklega hið frjóa samstarf tónskáldins við ljóðskáldið Wystan Hugh Auden m.a. með ljóðaflokkunum On this Island og Cabaret Songs.\n\n\nEftir tónleikana á sunnudag verður Borðstofan með freistandi kræsingar á boðstólum.\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/britten-i-oll-mal-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Britten1-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131125T200000
DTEND;TZID=UTC:20131125T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131111T234826Z
LAST-MODIFIED:20131113T161506Z
UID:10000035-1385409600-1385416800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ást í ýmsum myndum - Ragnheiður Ólafsdóttir syngur með Tríói Sunnu Gunnlaugs
DESCRIPTION:Ragnheiður Ólafsdóttir gaf út hljómdiskinn Söng riddarans ásamt Þórarni Hjartarsyni árið 2001 og hefur rödd hennar því hljómað í eyrum landsmanna\, þó hún hafi sjálf búið erlendis mörg undanfarin ár.  Á þessum tónleikum kemur ástarskáldið Páll Ólafsson enn við sögu\, en ekki verða sagðar af honum sögur\, heldur eru ljóðin hans sum hver komin í jazzaðan búning. Lögin á tónleikunum eru eftir Ragnheiði\, Hróðmar Inga Sigurbjörnsson og fleiri. Einnig verða fluttar nokkrar sígildar ástarballlöður eftir þekkt jazz-skáld. Ragnheiði til fulltingis í söngnum verða þrír fyrrum félagar í Sönghópnum Sólarmegin. \nTríó Sunnu Gunnlaugs er vel þekkt fyrir frumsaminn jazz og mergjaðan flutning innan lands sem utan. Tríóið hefur nýlega gefið út tvo diska sem fengið hafa afar góða dóma í virtum tónlistartímaritum. Sunna leikur á píanóið\, Þorgrímur Jónsson á bassa og Scott McLemore á trommur. \n \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-ragnheidur-olafsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ragnheiður-Ólafs-e1384354279563.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131128T200000
DTEND;TZID=UTC:20131128T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131105T182720Z
LAST-MODIFIED:20131106T123745Z
UID:10000028-1385668800-1385676000@hannesarholt.is
SUMMARY:SoundPost Jass - tónleikar
DESCRIPTION:Jazz kvintettinn SoundPost var stofnaður af Haraldi Guðmundssyni kontrabassaleikara og Hörpu Þorvaldsdóttur söngkonu í Salzburg Austurríki sumarið 2010. Hljómsveitarskipan hefur verið fjölbreytt frá stofnun\, allt frá trommulausu tríói yfir í þéttan kvintett\, með Lukasi Kletzander á piano\, Julian Urabl á gítar og Þorvaldi Þorvaldssyni á trommur.\n\nÍ Mars 2012 gaf hljómsveitin út geisladiskinn „Stories“\, en hann inniheldur 11 frumsamin jazzlög í stíl Billie Holiday/Diane Krall og var diskurinn hljóðblandaður i Los Angeles af íslenskum Grammyverðlaunahafa Husky Hösk (fyrir vinnu með Norah Jones\, Sheryl Crow\, Salomon Burke ofl.). Þýska útgafyfyrirtækið Timezone Records dreifir „Stories“ í Þýskalandi og Austurriki.\n\nSoundPost hefur hlotið góðar undirtektir og hafa lög hljómsveitarinnar verið notuð í þýskri kvikmynd svo eitthvað sé nefnt.\n\nEftir 7 ára búsetu í Austurríki eru hjónin Haraldur og Harpa flutt aftur heim og koma fram og kynna tónlist Soundpost í Hannesarholti fimmtudaginn 28. nóvember. Þar koma þau fram með einvala liði hljóðfæraleikara\, þeim Sunnu Gunnlaugsdóttur píanóleikara\, Scott McLemore trommuleikara og Andrési Gunnlaugssyni gítarleikara.\n\nÁ tónleikunum flytja þau lög af fyrstu hljómplötu sinni „Stories“\, ásamt nýjum efni með dassi af kanil.\n\nMiða má kaupa á
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/soundpost-jass-tonleikar-28-november/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Soundpost.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131201T160000
DTEND;TZID=UTC:20131201T170000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131122T152148Z
LAST-MODIFIED:20131122T152916Z
UID:10000097-1385913600-1385917200@hannesarholt.is
SUMMARY:Frá ljósanna hásal - jólatónleikar Ingunnar Sigurðardóttur
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-ingunnar-sigurdardottur/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ingunn-Jólatón-2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131210T200000
DTEND;TZID=UTC:20131210T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131122T112640Z
LAST-MODIFIED:20131125T134534Z
UID:10000107-1386705600-1386712800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar "Rósirnar hennar Elsu"
DESCRIPTION:  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-rosirnar-hennar-elsu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jólarósir-elsu-waage-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131212T200000
DTEND;TZID=UTC:20131212T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131203T003927Z
LAST-MODIFIED:20131212T001415Z
UID:10000003-1386878400-1386885600@hannesarholt.is
SUMMARY:Andri Snær\, Vigdís Gríms\, Gissur Páll og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar
DESCRIPTION:Verðlaunarithöfundarnir Andri Snær Magnason\, Vigdís Grímsdóttir\, tenórinn Gissur Páll Gissurarson og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar munu leiða saman hesta sína í fjölbreyttu menningarkvöldi í Hannesarholti fimmtudaginn 12. desember. \nÞessi fjölbreytti hópur listamanna mun koma fram\, lesa\, syngja\, spila og skarast svo á ýmsan hátt. Árni Heiðar hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn Mold ásamt tríói sínu en fyrir þessa kvöldvöku hefur hann samið stef við texta Andra Snæs sem tríóið hans mun frumflytja. Þau munu lesa úr Tímakistunni og Dísusögu sem báðar eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\, hvor í sínum flokki. Auk þessa mun söngvarinn Gissur Páll syngja jólastemninguna inn í hjörtu gesta eins og honum er einum lagið við undirleik Árna Heiðars\, en Gissur er löngu orðinn einn af okkar ástsælustu söngvurum. Til að kóróna jólastemninguna verður gestum boðið upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Hér er hægt að kaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/andri-snaer-vigdis-grims-gissur-pall-og-djasstrio-arna-heidars-karlssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/fimmtudagur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131216T200000
DTEND;TZID=UTC:20131216T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131112T004905Z
LAST-MODIFIED:20131216T125739Z
UID:10000066-1387224000-1387231200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Myndir af fortíðinni" - bókmenntakvöld: Einar Már Jónsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
DESCRIPTION:  \nKvölddagskrá með Einari Má Jónssyni\, sem hann nefnir „Myndir af fortíðinni\,“ og fjallar um söguritun og stöðu hennar\, og hinar ýmsu leiðir til að lýsa fortíðinni. Kvöldið hefst á fyrirlestri Einars\, og eftir hlé les hann upp úr óútkominni bók sinni sem er framhald af  Örlagaborginni sem hann gaf  út á síðasta ári. Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari leikur Les barricades mysterieuses eftir Francois Couperin\, sem tengist beint efni fyrirlestursins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-einar-mar-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Kvöldstund með listamanni,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/04/EMJ.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131217T200000
DTEND;TZID=UTC:20131217T213000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131210T215913Z
LAST-MODIFIED:20131217T143328Z
UID:10000005-1387310400-1387315800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Íslenska sönglistahópsins
DESCRIPTION:Jólasöngvar í holti óma. \n\nÞriðjudagskvöldið 17. desember heldur Íslenski sönglistahópurinn jólatónleika í Hljóðbergi\, hinum rómaða tónleikasal Hannesarholts að Grundarstíg 10. \nTónleikarnir eru skemmtun og hátíðleiki í bland. Efnisskráin samanstendur af kórtónlist tuttugustu aldar meistara\, m.a. Britten\, Brahms\, Taverner og Kodály\, ásamt jólalögum sem allir þekkja. Verkin verða ýmist flutt í einsöng\, tríó\, kvartettum eða í stærri hópum. \nFram koma:\nElma Atladóttir\, Eygló Rúnarsdóttir\, Halldór Unnar Ómarsson\, Pétur Pétursson\, Ragnheiður Sara Grímsdóttir\, Sigþrúður Erla Arnardóttir\, Sigurjón Jóhannesson\, Sæberg Sigurðsson\, Tinna Sigurðardóttir\,\nÚlfur Sveinbjarnarson og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir. \nPíanóleik annast Renata Ivan. Stjórnandi er Egill Gunnarsson \nMiðasala við inngang og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3754/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/mynd_isl_songlist.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T180000
DTEND;TZID=UTC:20131222T184500
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20131202T105521Z
LAST-MODIFIED:20131222T131836Z
UID:10000004-1387735200-1387737900@hannesarholt.is
SUMMARY:Söngperlur Sefarda\, Baska og Lorca. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Dúó Roncesvalles
DESCRIPTION:Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópransöngkona\, sem búsett er í Madrid\, og Dúó Roncesvalles munu leiða áheyrendur inn í hinn heillandi spænska tónheim sefardískra gyðinga frá miðöldum\, basneskra þjóðlaga og söngva frá Andalúsíu\, í útsetningum rithöfundarins og skáldsins Federico Garcia Lorca. \nDúo Roncesvalles: \nElena Jáuregui\, fiðla    www.elenajauregui.com \nFrancisco Javier Jáuregui\, gítar    javierjauregui.com \n  \nGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópran     www.gudrunolafsdottir.com \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songperlur-sefarda-baska-og-lorca-gudrun-johanna-olafsdottir-og-duo-roncesvalles/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Guðrún-Jóhanna-photo.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140309T170000
DTEND;TZID=UTC:20140309T190000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140303T171746Z
LAST-MODIFIED:20140309T191115Z
UID:10000136-1394384400-1394391600@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozart á sunnudegi
DESCRIPTION:Kammertónleikar í Hannesarholti. Flutt verða tvö verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart \nStrengjakvintett nr. 4 í g-moll\, K. 516\nPíanókvartett nr. 1 í g-moll\, K. 478 \nFlytjendur:\nGuðrún Dalía Salómonsdóttir píanó\nGunnhildur Daðadóttir fiðla\nJónína Auður Hilmarsdóttir víóla\nMargrét Árnadóttir selló\nUna Sveinbjarnardóttir fiðla\nÞórarinn M. Baldursson víóla \nAfsláttarverð fyrir námsmenn og eldri borgara 1.500 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozart-a-sunnudegi/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/mozart-III.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140316T140000
DTEND;TZID=UTC:20140316T160000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140228T174414Z
LAST-MODIFIED:20140228T174434Z
UID:10000133-1394978400-1394985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Richard Andersson\, Óskar Guðjónsson og Matthías Hemstock
DESCRIPTION:Danski bassaleikarinn Richard Andersson flutti til Íslands síðastliðið haust. Hann hefur tekið drjúgan þátt í starfsemi djassins á Íslandi og starfað með fjölmörgum íslenskum jassleikurum. Í september síðastliðnum kom hann á fót vikulegum jasskvöldum á Hressó á sunnudagskvöldum þar sem rjóminn af íslenskum djassleikurum hefur spilað. Má þar nefna Eyþór Gunnarson\, Scott McLemore\, Snorra Sigurðsson\, Óskar Guðjónssson\, Hilmar Jensson\, Matthías Hemstock\, Einar Scheving\, Agnar Má Magnússon\, Jón Pál og Jóel Pálsson. Richard hefur tekið upp tónlist og spilað með þekktum alþjóðlegum tónlistarmönnum\, meðal annars: Jef (Tain) Wats\, George Garzone\, Tony Malaby\, Bill McHentry\, Bob Moses\, Jerry Bergonzi\, Kasper Tranberg\, Anders Mogensen\, Dave Liebman og Phil Markowitz. \nNú hefur Richard  stofnað sitt eigið tríó með valinn mann í hverju rúmi.\nÓskar Guðjónsson saxófnleikari hefur starfað talsvert með bassaleikaranum Skúla Sverrissyni\, og er einnig þekktur fyrir þátttöku sína í hljómsveitinni ADHD sem nýlega lauk upptökum á fimmtu breiðskífu sinni. Hann hefur tekið þátt í yfir 300 alþjóðlegum tónleikum í 40 löndum í 5 heimsálfum\, með hljómsveitum á borð við Jim Black\, ADHD\, Mezzoforte\, Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson duo og Sören Dahl Jeppesen quartet.\nMatthías Hemstock trommuleikari hefur á síðustu tuttugu og fimm árum spilað og hljóðritað tónlist með fjölda íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. Hann nam tónlistarleik í hinum virta háskóla Berkley college of Music í tvö ár\, og gekk til liðs við jass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH þegar hann kom heim árið 1991. Þar hefur hann smitað margan ungan tónlistarmanninn af djassbakteríunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-richard-andersson-oskar-gudjonsson-og-matthias-hemstock/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/RICHARD_ANDERSSON_PRESSE_FOTO-e1393606983407.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140319T200000
DTEND;TZID=UTC:20140319T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140219T172547Z
LAST-MODIFIED:20140313T135952Z
UID:10000129-1395259200-1395266400@hannesarholt.is
SUMMARY:Guðný og Gunnar - VOR Í NÁND
DESCRIPTION:Gunnar  Kvaran sellóleikari og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari  einleikur og samspil. \nEfnisskrá:   J.S.Bach: Svíta nr. 1 í G-dur BWV 1007 fyrir einleiksselló (1685-1750) GK J.Haydn: Dúett fyrir fiðlu og selló í D-dúr (1732-1809) Grażyna Bacewicz Kaprísa Polski fyrir einleiksfiðlu (1909-1969) Atli Heimir Sveinsson; Intermezzo úr ballettinum Dimmalimm (1938-) Þýskt þjóðlag: Blátt lítið blóm eitt er Herbert H.Ágústsson: Fimm íslensk þjóðlög. (1926-1989) Sof þú\, mín Sigrún\, Sofðu unga ástin mín\, Sof þú\, blíðust barnkind mín\, Góð börn og vond\, Tilbrigði um þjóðlagið Fuglinn í fjörunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gunnar-kvaran-og-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Guðný-og-Gunnar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140330T163000
DTEND;TZID=UTC:20140330T183000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140313T223829Z
LAST-MODIFIED:20140322T002013Z
UID:10000012-1396197000-1396204200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar “Fram á FLEY-iferð”
DESCRIPTION:Tilefni tónleikanna er margþætt\, m.a. útkoma fræðibókarinnar „Endurnýjanleg raforka” eftir einn meðlima tríósins\, Egil seint á síðasta ári en leiknar verða m.a. útsetningar hans á nokkrum lögum Gylfa Þ. Gíslasonar\, fv. menntamálaráðherra\, prófessors og tónskálds. Gylfi lagði sem kunnugt er\, að öðrum ólöstuðum\, grunninn að öflugu starfi íslenskra tónlistarskóla undafarna áratugi.\n\nTónleikarnir eru einnig baráttutónleikar fyrir samþættingu lista\, vísinda og tækni í akademísku starfi og í akademísku frelsi og sköpun — og einnig fyrir gagnkvæmri virðingu og virðisauka þessara greina innbyrðis og gegn aðskildri og oft skrifræðislegri og skaðlegri hólfun þeirra.\n\nÁ efnisskránni er auk þess verk eftir Dave Brubeck og Oscar Peterson ofl. Jazztríóið FLEY hefur leikið saman á sjó og landi m.a. á skemmtiferðaskipinu „The World”\, en fær nú endurnýjaða og endurnýjanLEGA orku…\n\nJazztríóið FLEY skipa:\n\nEgill Benedikt Hreinsson\, píanó\nGunnar Hrafnsson\, bassi\nKjartan Guðnason\, trommur\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-fram-a-fley-iferd/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/fley-minnkuð-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140416T203000
DTEND;TZID=UTC:20140416T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140407T171937Z
LAST-MODIFIED:20140409T001115Z
UID:10000016-1397680200-1397685600@hannesarholt.is
SUMMARY:„Talaðu lágt\, því að tíminn er naumur“
DESCRIPTION:Tónleikar með söngkonunni og píanóleikaranum Margréti Júlíönu Sigurðardóttur ásamt hljómsveit sem skipuð er gítarleikurunum Magnúsi R. Einarssyni og Eðvarði Lárussyni\,  bassaleikaranum Pétri Sigurðssyni og trommuleikaranum Karli Pétri Smith verða haldnir í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 16 apríl klukkan 20.00.   Sérstakur gestur á tónleikunum er bróðir Margrétar\, Þórhallur Sigurðsson. \n \nÁ tónleikunum í Hannesarholti flytur Margrét eigið efni\, bæði frumsamin lög og eldri sem hér eru færð í nýjan búning\,  hljóðheim sem er í senn ættaður frá Hawai og Hornströndum.  Sungið er um mánafljótið\,  síðasta lag fyrir lokun og daga víns og rósa en í fjarska heyrist  hvíslað „Talaðu lágt\,  því að tíminn er naumur.“  \n \nMiða á tónleikana er hægt að kaupa á midi.is og við innganginn.\nAðgangseyrir 1500 kr  (1000 kr fyrir nemendur\, öryrkja og ellilífeyrisþega). \n\n\n  \n\n \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/taladu-lagt-thvi-ad-timinn-er-naumur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Margrét-Sig.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140504T150000
DTEND;TZID=UTC:20140504T160000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140410T152514Z
LAST-MODIFIED:20140423T003659Z
UID:10000017-1399215600-1399219200@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNAGULL heldur tónleika á BARNAMENNINGAR-HÁTÍÐ
DESCRIPTION:Perlutónleikar Tónagulls fyrir 0-3 ára börn í fylgd með fullorðnum \nTónagull heldur Perlutónleika á léttum nótum þar sem sungnar verða þekktar perlur og barnagælur. Tónleikagestum býðst að taka undir söng og taka þátt í flutningi með klappi og smáhljóðfærum. Lóunni verður fagnað\, riðið heim til Hóla og fé rekið úr móunum svo eitthvað sé nefnt. Tónlistarkennarar Tónagulls stýra tónleikunum og fá til liðs við sig Berglindi Maríu Tómasdóttur flautuleikara. Tónleikarnir taka mið af úthaldi mjög ungra barna. Listræn stjórnun: Helga Rut Guðmundsdóttir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonagull-heldur-tonleika-a-barnamenningarhatid/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Biribiribammbamm-e1397142441613.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140516T200000
DTEND;TZID=UTC:20140516T223000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140509T104123Z
LAST-MODIFIED:20140509T104413Z
UID:10000168-1400270400-1400279400@hannesarholt.is
SUMMARY:Útgáfutónleikar My bubba
DESCRIPTION:Hljómplatan Goes Abroader með hljómsveitinni My bubba kemur út hjá Smekkleysu hér á landinu mánudaginn 12. maí. Í tilefni af því mun hljómsveitin halda útgáfutónleika í Hannesarholti föstudagskvöldið 16. maí. Um upphitun sér Snorri Helgason. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.\n\n\nMy bubba er skipuð hinni sænsku My og hinni íslensku Bubbu og var stofnuð fyrir 5 árum í Kaupmannahöfn þegar þær hittust fyrir helbera tilviljun. Síðan þá hafa þær ferðast saman um heiminn\, samið og flutt samtíma þjóðlagatónlist og tekið upp tvær breiðskífur og eina stuttskífu. Þær hafa komið fram á Iceland Airwaves\, Hróarskelduhátíðinni og hitað upp fyrir listamenn á borð við Matthew E. White og Nina Persson.\n\nMiðar eru seldir á www.midi.s\n\n\nhlekkir:\nwww.ohmybubba.com\nwww.hannesarholt.is\nwww.facebook.com/ohmybubba\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/utgafutonleikar-my-bubba/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/bubba-2-e1399631990731.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140521T203000
DTEND;TZID=UTC:20140521T223000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140506T095635Z
LAST-MODIFIED:20140508T095159Z
UID:10000163-1400704200-1400711400@hannesarholt.is
SUMMARY:Lady sings the blues - Tríó Sigurðar Flosasonar
DESCRIPTION:Himnastigatríóið spilar Billie Holiday \nTríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar\, Himnastigatríóið\, heldur tónleika í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, miðvikudaginn 21 mai kl. 20:30.  Tónleikarnir eru tileinkaðir söngkonunni Billie Holiday en hún hefði orðið 99 ára 7. apríl sl.  Á efnisskrá verða lög sem Billie hljóðritaði og tengjast henni sterklega.  Tríóið skipa auk Sigurðar þeir Eyþór Gunnarsson á píanó og danski kontrabassaleikarinn Lennart Ginman en hann kemur hingað til lands sérstaklega vegna þessara tónleika.Tríóið er stundum kennt við sinn fyrsta disk; „Himnastigann“ sem kom út árið 1999 og fékk frábæra dóma.  Tveimur árum síðar kom annar diskur; „Djúpið“ sem hlaut einnig mjög góðar vitökur.  Himnastigatríóið snýr aftur eftir langt hlé og einbeitir sér\, nú sem fyrr\, að túlkun klassískra jazzstandarda með áherslu á lifandi og ljóðrænt samspil.\nBillie Holiday\, sem hét í raun og veru Eleanora Fagan var fædd 7. Apríl 1915 og lést aðeins 44 ára gömul 17. Júlí 1959. Hún átti erfiða æfi og glímdi lengst af við áfengis- og vímuefnafíkn.  Bille er í hópi áhrifamestu söngkvenna jazzins. Hún er af flestum talin einn af persónulegustu og sterkustu túlkendum jazzsögunnar. Billie flutti bæði klassiska standarda og eins lög sem samin voru sérstaklega fyrir hana.  Tríóið mun flytja blöndu af hvoru tveggja.Miðverð er kr. 2.500. Miðar á midi.is og við innganginn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lady-sings-the-blues/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/BillieHoliday.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140524T140000
DTEND;TZID=UTC:20140524T150000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140515T121327Z
LAST-MODIFIED:20140521T113624Z
UID:10000171-1400940000-1400943600@hannesarholt.is
SUMMARY:Hljómar vorsins í Hannesarholti
DESCRIPTION:Margrét S.Stefánsdóttir sópran er fædd í Skagafirði og hóf tónlistarnám þar. Fór síðan í Tónlistarskólann í Reykjavik og stundaði nám hjá Rut Magnússon\, Sieglinde Kahmann og Alinu Dubik. Einnig stundaði hún píanónám hjá Jónasi Ingimundarssyni. Lauk einsöngs og söngkennaraprófi og hefur haldið einsöngstónleika víða um land. Margrét er kórstjórnandi og kennir við Tónlistarskóla Árnesinga. \nJane Ade Sutarjo fæddist i Jakarta í Indónesíu árið 1989. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut síðar kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið 2008. Jane hefur lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla Íslands. Á fiðlu lærði hún hjá Guðnýju Guðmundsdóttir og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttir og seinna hjá Peter Maté. \nJane hefur haldið einleikstónleika og komið fram sem einleikari með hljómsveitum í Indónesíu og á Íslandi. Í janúar kom Jane fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem hún lék píanókonsert nr.1 eftir Chopin. Hún hefur tekið þátt í píanókeppnum bæði í Indónesíu og á Norðurlöndum. Nýlega tók Jane þátt í V. Píanókeppni EPTA og hlaut þar fyrstu verðlaun.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hljomar-vorsins-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/Margret-e1400545052784.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140525T160000
DTEND;TZID=UTC:20140525T180000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140506T142641Z
LAST-MODIFIED:20140506T142641Z
UID:10000166-1401033600-1401040800@hannesarholt.is
SUMMARY:Listahátíð - Tríó Sírajóns
DESCRIPTION:Titill tónleika Tríó Sírajóns vísar í ljóð Jónasar Hallgrímssonar\, Gunnarshólma\, sem Þórður Magnússon tónskáld hefur samið tónlist við að beiðni tríósins. Verkið er skrifað fyrir fiðlu\, klarínett\, píanó og sópran og er frumflutt á Listahátíð.  \nEfnisskrá \nIgor Stravinsky:  3 lög fyrir einleiks klarinett \nIgor Stravinsky:  Saga dátans – svíta \nLeifur Þórainsson:  Áfangar \nÞórður Magnússon: Gunnarshólmi ( frumflutningur ) \nTónleikarnir hefjast á fjarlægum og dulúðugum tónum klarínettsins í einleiksverki Stravinskys frá dvalarárum hans í Sviss þegar heimstyrjöldin fyrri geisaði. Hann hafði hrist eftirminnilega upp í hinum vestræna tónlistarheimi nokkrum árum áður með Vorblótinu og sneri sér eftir það að verkum fyrir smærri hljóðfærahópa þar á meðal Sögu dátans fyrir sjö hljóðfæraleikara\, sögumann og dansara.  Verkið fjallar um ungan hermann og kölska sem lofar unga manninum gulli og grænum skógum í skiptum fyrir fiðluna hans. Stravinsky gerði síðar svítu úr sviðsverkinu fyrir fiðlu\, klarínett og píanó og verður sú gerð verksins leikin á tónleikunum. Í þessum tveimur verkum Stravinskys má heyra fyrstu tilraunir hans með jasskennda tónlist og ragtime. \nLeifur Þórarinsson hefði orðið áttræður í ár og því við hæfi að minnast þessa merkilega tónskálds á þeim tímamótum\, en hann var einn áhrifamesti tónhöfundur Íslendinga á síðustu öld. Tríó Sírajón leikur verkið Áfangar eftir Leif  á þessum tónleikum en það var samið undir áhrifum frá samnefndri mynd eftir náinn vin hans\, Kristján Davíðsson listmálara og tileinkað honum. \nFlytjendur: Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran \nTríó Sírajón skipa: Laufey Sigurðardóttir fiðla Einar Jóhannesson klarínett og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó \nMiðar seldir á www.midi.is 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/listahatid-trio-sirajons/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/T_print.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140611T200000
DTEND;TZID=UTC:20140611T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140519T235112Z
LAST-MODIFIED:20140522T151202Z
UID:10000176-1402516800-1402524000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sólin sæla - tónleikar tvíeykisins Funa
DESCRIPTION:FUNI er tvíeykið Bára Grímsdóttir og Chris Foster\, sem hófu samstarf árið 2001.  Síðan hafa þau keppst við að blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist sem hefur leynst í gömlum upptökum og lítt þekktum bókum og handritum\, auk þess sem þau hafa bætt við nýjum lögum í þjóðlegum stíl.  Flest laganna voru sungin án nokkurs undirleiks áður fyrr en FUNI bætir hljóðfæraleiknum við og notar langspil\, Íslenska fiðlu\, gítar\, kantele og hammer dulcimer. Þau flytja kvæðalög\, tvísöngslög\, sálma og enskar ballöður\, útsetja allt sjálf og hafa haldið námskeið og komið fram á ýmsum hátíðum og tónleikum\, einnig í útvarpi\, hér heima og víða í Evrópu\, Norður-Ameríku og Kína. \nBára Grímsdóttir\, söng- og kvæðakona\, er einn virtasti flytjandi íslenskra þjóðlaga og nýtur einnig mikillar virðingar sem tónskáld.  Hún ólst upp við söng og kveðskap\, heyrði og lærði\, allt frá barnæsku\, kveðskap foreldra sinna og afa og ömmu í Grímstungu í Vatnsdal. Bára hefur lengi fengist við flutning á kvæðalögum og margs konar íslenskri þjóðlagatónlist\, bæði veraldlegri og trúarlegri.  Hún hefur unnið með ýmsum kvæðamönnum og tónlistarfólki og sem tónskáld og útsetjari hefur Bára iðulega nýtt sér íslensk þjóðlög sem uppsprettu eigin sköpunar. \nChris Foster ólst upp í Somerset á Suðvestur-Englandi\, þar sem hann kynntist fyrst þjóðlögum og hóf tónlistarferil sinn.  Hann er tvímælalaust frábær flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar.  Síðastliðin 40 ár hefur Chris haldið ótal tónleika á Bretlandseyjum\, en einnig farið í tónleikaferðir víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin og Kanada.  Hann hefur gefið út sex plötur með eigin söng og gítarundirleik en einnig tekið þátt í mörgum samstarfsverkefnum. Lifandi tónlistarflutningur Chris einkennist af kraftmiklum söng og góðum gítarleik\, sem styrkist enn frekar af fágaðri fyndni hans og eldmóði.  Með þessu tekst honum að draga áheyrendur sína inn í sagnaheiminn sem hann skapar með söngvunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/solin-saela-tonleikar-tvieykisins-funa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/CHRIS-AND-BÁRA-MAY-09-high-res-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140614T150000
DTEND;TZID=UTC:20140614T170000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140604T173036Z
LAST-MODIFIED:20140610T204045Z
UID:10000177-1402758000-1402765200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bartok og Brahms  - Reykjavík Midsummer Music
DESCRIPTION:Á fyrstu tónleikum laugardagsins höldum við í fræða- og menningarsetrið Hannesarholt á Grundarstíg 10\, og hlýðum á tónlist Bartóks og Brahms í flutningi Sayaka Shoji\, Amihai Grosz og Víkings Heiðars Ólafssonar.\nÍ tónlist Bartóks kemur allt saman. Í hljóðheimi hans mætir kraftmikil þjóðlagatónlist fágaðri tónsmíðatækni ný-barokksins\, náttúruhljóð blandast hljómi kirkjutóntegundanna – og þannig má áfram telja.\n\nÍ Sónötu fyrir einleiksfiðlu (1944) kannaði tónskáldið ungverska hversu langt væri hægt að komast með fjóra strengi og boga – og í ljós kemur að möguleikarnir eru endalausir. Fyrsti þáttur er í formi chacconu\, annar er þriggja radda fúga\, í þeim þriðja er eins og fiðlan syngi aríu við undirleik sjálfrar sín og síðasti kaflinn er æsilegt prestó – í heildina er verkið stórbrotið. Það er svo sérstök ánægja að fá að heyra japanska fiðlusnillinginn Sayöku Shoji leika sónötuna á Stradivarius-fiðlu sína\, ‘Recamier’\, frá 1729. \nÁ seinni hluta tónleikanna\, sem fram fara í Hannesarholti\, heyrum við svo fyrsta víóluleikara Berlínar-fílharmóníunnar\, Amihai Grosz\, leika aðra stórbrotna sónötu ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni: Víólusónötu Brahms í f-moll\, sem er meðal síðustu verkanna sem tónskáldið samdi á lífsleiðinni. \nMiðasala er í Hörpu og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bartok-og-brahms-reykjavik-midsummer-music/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/06/KAROLINA_THORARENSEN_POSTER_BRAHMSBARTOK_IMG_2944.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140813T203000
DTEND;TZID=UTC:20140813T220000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140807T105655Z
LAST-MODIFIED:20140807T230317Z
UID:10000180-1407961800-1407967200@hannesarholt.is
SUMMARY:Til heiðurs meistara Chet Baker
DESCRIPTION:Chet klúbburinn heldur sína fyrstu tónleika miðvikudaginn 13. ágúst í Hannesarholti. Þetta er hópur tónlistarfólks sem sameinast í áhuga á tónlist sem Chet Baker flutti á ferli sínum og þeirri stemmningu sem einkenndi hann. í Chet klúbbnum eru Silva Þórðardóttir (söngur)\, Ragnhildur Gunnarsdóttir (trompet)\, Anna Gréta Sigurðardóttir (píanó)\, Þórður Högnason (kontrabassi) og Matthías Hemstock (trommur). Chet Baker var meistari í því að flytja tónlist á lágstemmdum nótum en jafnframt með mjög sterkri persónulegri túlkun. Lagaval hans var einnig í sérflokki þar sem hver jazzperlan rak aðra. Chet klúbburinn hefur þetta að leiðarljósi og hafa meðlimir valið uppáhalds lög sín fyrir þessa tónleika. Af efnisskránni má nefna lögin Every time we say goodbye\, Do it the hard way\, I´m old fashioned og My ideal.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/til-heidurs-meistara-chet-baker/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/ChetClub_trimmed-e1407408802608.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T140000
DTEND;TZID=UTC:20140823T150000
DTSTAMP:20260530T165832
CREATED:20140721T122918Z
LAST-MODIFIED:20140801T135936Z
UID:10000178-1408802400-1408806000@hannesarholt.is
SUMMARY:Semball í Hannesarholti
DESCRIPTION:Á menningarnótt\, 23. ágúst\, leikur Árni Heimir Ingólfsson á sembal í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, kl. 14. Á tónleikunum verður flutt áheyrileg barokktónlist eftir höfunda frá ýmsum löndum – Ítalíu\, Englandi\, Frakklandi og Þýskalandi – m.a. eftir Girolamo Frescobaldi\, William Byrd\, Antoine Forqueray og J.S. Bach. Árni Heimir mun segja frá tónlistinni og hljóðfærinu\, en hann leikur á hljóðfæri smíðað af Marc Ducornet í París (2011). Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. \nÁrni Heimir Ingólfsson stundaði píanónám við Tónlistarskólann í Reykjavík\, nam síðar píanóleik og tónlistarfræði í Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi frá Harvard-háskóla 2003. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um heim sem píanóleikari og kórstjóri\, m.a. á Listahátíð í Reykjavík og tónlistarhátíðum í Bretlandi\, Frakklandi\, Svíþjóð og Þýskalandi. Þá hefur hann stýrt tónlistarflutningi á þremur hljómdiskum sem allir innihalda lög úr fornum íslenskum handritum. Árni Heimir er afkastamikill fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistar. Hann hefur haldið fyrirlestra víða um heim og gegnt rannsóknarstöðum við háskólana í Oxford og Boston. Bók hans\, Jón Leifs – Líf í tónum\, kom út árið 2009 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Árni Heimir var dósent í tónlistarfræðum við Listaháskóla Íslands 2005–2007 og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2007–2011.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/semball-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/07/IMG_1206-e1405945546398.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR