BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20120101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131201T160000
DTEND;TZID=UTC:20131201T170000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20131122T152148Z
LAST-MODIFIED:20131122T152916Z
UID:10000097-1385913600-1385917200@hannesarholt.is
SUMMARY:Frá ljósanna hásal - jólatónleikar Ingunnar Sigurðardóttur
DESCRIPTION:
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-ingunnar-sigurdardottur/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/Ingunn-Jólatón-2013.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131210T200000
DTEND;TZID=UTC:20131210T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20131122T112640Z
LAST-MODIFIED:20131125T134534Z
UID:10000107-1386705600-1386712800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar "Rósirnar hennar Elsu"
DESCRIPTION:  \n  \n  \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-rosirnar-hennar-elsu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/11/jólarósir-elsu-waage-mynd.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131212T200000
DTEND;TZID=UTC:20131212T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20131203T003927Z
LAST-MODIFIED:20131212T001415Z
UID:10000003-1386878400-1386885600@hannesarholt.is
SUMMARY:Andri Snær\, Vigdís Gríms\, Gissur Páll og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar
DESCRIPTION:Verðlaunarithöfundarnir Andri Snær Magnason\, Vigdís Grímsdóttir\, tenórinn Gissur Páll Gissurarson og djasstríó Árna Heiðars Karlssonar munu leiða saman hesta sína í fjölbreyttu menningarkvöldi í Hannesarholti fimmtudaginn 12. desember. \nÞessi fjölbreytti hópur listamanna mun koma fram\, lesa\, syngja\, spila og skarast svo á ýmsan hátt. Árni Heiðar hefur nýverið sent frá sér geisladiskinn Mold ásamt tríói sínu en fyrir þessa kvöldvöku hefur hann samið stef við texta Andra Snæs sem tríóið hans mun frumflytja. Þau munu lesa úr Tímakistunni og Dísusögu sem báðar eru tilnefndar til Íslensku bókmenntaverðlaunanna\, hvor í sínum flokki. Auk þessa mun söngvarinn Gissur Páll syngja jólastemninguna inn í hjörtu gesta eins og honum er einum lagið við undirleik Árna Heiðars\, en Gissur er löngu orðinn einn af okkar ástsælustu söngvurum. Til að kóróna jólastemninguna verður gestum boðið upp á jólaglögg og piparkökur í hléi. Hér er hægt að kaupa miða
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/andri-snaer-vigdis-grims-gissur-pall-og-djasstrio-arna-heidars-karlssonar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/fimmtudagur-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131216T200000
DTEND;TZID=UTC:20131216T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20131112T004905Z
LAST-MODIFIED:20131216T125739Z
UID:10000066-1387224000-1387231200@hannesarholt.is
SUMMARY:"Myndir af fortíðinni" - bókmenntakvöld: Einar Már Jónsson og Helga Bryndís Magnúsdóttir
DESCRIPTION:  \nKvölddagskrá með Einari Má Jónssyni\, sem hann nefnir „Myndir af fortíðinni\,“ og fjallar um söguritun og stöðu hennar\, og hinar ýmsu leiðir til að lýsa fortíðinni. Kvöldið hefst á fyrirlestri Einars\, og eftir hlé les hann upp úr óútkominni bók sinni sem er framhald af  Örlagaborginni sem hann gaf  út á síðasta ári. Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari leikur Les barricades mysterieuses eftir Francois Couperin\, sem tengist beint efni fyrirlestursins.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bokmenntakvold-einar-mar-jonsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Bókmenntakvöld,Kvöldstund með listamanni,Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/04/EMJ.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131217T200000
DTEND;TZID=UTC:20131217T213000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20131210T215913Z
LAST-MODIFIED:20131217T143328Z
UID:10000005-1387310400-1387315800@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Íslenska sönglistahópsins
DESCRIPTION:Jólasöngvar í holti óma. \n\nÞriðjudagskvöldið 17. desember heldur Íslenski sönglistahópurinn jólatónleika í Hljóðbergi\, hinum rómaða tónleikasal Hannesarholts að Grundarstíg 10. \nTónleikarnir eru skemmtun og hátíðleiki í bland. Efnisskráin samanstendur af kórtónlist tuttugustu aldar meistara\, m.a. Britten\, Brahms\, Taverner og Kodály\, ásamt jólalögum sem allir þekkja. Verkin verða ýmist flutt í einsöng\, tríó\, kvartettum eða í stærri hópum. \nFram koma:\nElma Atladóttir\, Eygló Rúnarsdóttir\, Halldór Unnar Ómarsson\, Pétur Pétursson\, Ragnheiður Sara Grímsdóttir\, Sigþrúður Erla Arnardóttir\, Sigurjón Jóhannesson\, Sæberg Sigurðsson\, Tinna Sigurðardóttir\,\nÚlfur Sveinbjarnarson og Valgerður Guðrún Halldórsdóttir. \nPíanóleik annast Renata Ivan. Stjórnandi er Egill Gunnarsson \nMiðasala við inngang og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/3754/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/mynd_isl_songlist.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20131222T180000
DTEND;TZID=UTC:20131222T184500
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20131202T105521Z
LAST-MODIFIED:20131222T131836Z
UID:10000004-1387735200-1387737900@hannesarholt.is
SUMMARY:Söngperlur Sefarda\, Baska og Lorca. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir og Dúó Roncesvalles
DESCRIPTION:Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópransöngkona\, sem búsett er í Madrid\, og Dúó Roncesvalles munu leiða áheyrendur inn í hinn heillandi spænska tónheim sefardískra gyðinga frá miðöldum\, basneskra þjóðlaga og söngva frá Andalúsíu\, í útsetningum rithöfundarins og skáldsins Federico Garcia Lorca. \nDúo Roncesvalles: \nElena Jáuregui\, fiðla    www.elenajauregui.com \nFrancisco Javier Jáuregui\, gítar    javierjauregui.com \n  \nGuðrún Jóhanna Ólafsdóttir\, mezzósópran     www.gudrunolafsdottir.com \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/songperlur-sefarda-baska-og-lorca-gudrun-johanna-olafsdottir-og-duo-roncesvalles/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2013/12/Guðrún-Jóhanna-photo.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140309T170000
DTEND;TZID=UTC:20140309T190000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140303T171746Z
LAST-MODIFIED:20140309T191115Z
UID:10000136-1394384400-1394391600@hannesarholt.is
SUMMARY:Mozart á sunnudegi
DESCRIPTION:Kammertónleikar í Hannesarholti. Flutt verða tvö verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart \nStrengjakvintett nr. 4 í g-moll\, K. 516\nPíanókvartett nr. 1 í g-moll\, K. 478 \nFlytjendur:\nGuðrún Dalía Salómonsdóttir píanó\nGunnhildur Daðadóttir fiðla\nJónína Auður Hilmarsdóttir víóla\nMargrét Árnadóttir selló\nUna Sveinbjarnardóttir fiðla\nÞórarinn M. Baldursson víóla \nAfsláttarverð fyrir námsmenn og eldri borgara 1.500 kr.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/mozart-a-sunnudegi/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/mozart-III.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140316T140000
DTEND;TZID=UTC:20140316T160000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140228T174414Z
LAST-MODIFIED:20140228T174434Z
UID:10000133-1394978400-1394985600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Richard Andersson\, Óskar Guðjónsson og Matthías Hemstock
DESCRIPTION:Danski bassaleikarinn Richard Andersson flutti til Íslands síðastliðið haust. Hann hefur tekið drjúgan þátt í starfsemi djassins á Íslandi og starfað með fjölmörgum íslenskum jassleikurum. Í september síðastliðnum kom hann á fót vikulegum jasskvöldum á Hressó á sunnudagskvöldum þar sem rjóminn af íslenskum djassleikurum hefur spilað. Má þar nefna Eyþór Gunnarson\, Scott McLemore\, Snorra Sigurðsson\, Óskar Guðjónssson\, Hilmar Jensson\, Matthías Hemstock\, Einar Scheving\, Agnar Má Magnússon\, Jón Pál og Jóel Pálsson. Richard hefur tekið upp tónlist og spilað með þekktum alþjóðlegum tónlistarmönnum\, meðal annars: Jef (Tain) Wats\, George Garzone\, Tony Malaby\, Bill McHentry\, Bob Moses\, Jerry Bergonzi\, Kasper Tranberg\, Anders Mogensen\, Dave Liebman og Phil Markowitz. \nNú hefur Richard  stofnað sitt eigið tríó með valinn mann í hverju rúmi.\nÓskar Guðjónsson saxófnleikari hefur starfað talsvert með bassaleikaranum Skúla Sverrissyni\, og er einnig þekktur fyrir þátttöku sína í hljómsveitinni ADHD sem nýlega lauk upptökum á fimmtu breiðskífu sinni. Hann hefur tekið þátt í yfir 300 alþjóðlegum tónleikum í 40 löndum í 5 heimsálfum\, með hljómsveitum á borð við Jim Black\, ADHD\, Mezzoforte\, Óskar Guðjónsson og Skúli Sverrisson duo og Sören Dahl Jeppesen quartet.\nMatthías Hemstock trommuleikari hefur á síðustu tuttugu og fimm árum spilað og hljóðritað tónlist með fjölda íslenskra tónlistarmanna og hljómsveita. Hann nam tónlistarleik í hinum virta háskóla Berkley college of Music í tvö ár\, og gekk til liðs við jass- og rokkbraut Tónlistarskóla FÍH þegar hann kom heim árið 1991. Þar hefur hann smitað margan ungan tónlistarmanninn af djassbakteríunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-richard-andersson-oskar-gudjonsson-og-matthias-hemstock/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/RICHARD_ANDERSSON_PRESSE_FOTO-e1393606983407.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140319T200000
DTEND;TZID=UTC:20140319T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140219T172547Z
LAST-MODIFIED:20140313T135952Z
UID:10000129-1395259200-1395266400@hannesarholt.is
SUMMARY:Guðný og Gunnar - VOR Í NÁND
DESCRIPTION:Gunnar  Kvaran sellóleikari og Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari  einleikur og samspil. \nEfnisskrá:   J.S.Bach: Svíta nr. 1 í G-dur BWV 1007 fyrir einleiksselló (1685-1750) GK J.Haydn: Dúett fyrir fiðlu og selló í D-dúr (1732-1809) Grażyna Bacewicz Kaprísa Polski fyrir einleiksfiðlu (1909-1969) Atli Heimir Sveinsson; Intermezzo úr ballettinum Dimmalimm (1938-) Þýskt þjóðlag: Blátt lítið blóm eitt er Herbert H.Ágústsson: Fimm íslensk þjóðlög. (1926-1989) Sof þú\, mín Sigrún\, Sofðu unga ástin mín\, Sof þú\, blíðust barnkind mín\, Góð börn og vond\, Tilbrigði um þjóðlagið Fuglinn í fjörunni.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/gunnar-kvaran-og-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/02/Guðný-og-Gunnar.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140330T163000
DTEND;TZID=UTC:20140330T183000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140313T223829Z
LAST-MODIFIED:20140322T002013Z
UID:10000012-1396197000-1396204200@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar “Fram á FLEY-iferð”
DESCRIPTION:Tilefni tónleikanna er margþætt\, m.a. útkoma fræðibókarinnar „Endurnýjanleg raforka” eftir einn meðlima tríósins\, Egil seint á síðasta ári en leiknar verða m.a. útsetningar hans á nokkrum lögum Gylfa Þ. Gíslasonar\, fv. menntamálaráðherra\, prófessors og tónskálds. Gylfi lagði sem kunnugt er\, að öðrum ólöstuðum\, grunninn að öflugu starfi íslenskra tónlistarskóla undafarna áratugi.\n\nTónleikarnir eru einnig baráttutónleikar fyrir samþættingu lista\, vísinda og tækni í akademísku starfi og í akademísku frelsi og sköpun — og einnig fyrir gagnkvæmri virðingu og virðisauka þessara greina innbyrðis og gegn aðskildri og oft skrifræðislegri og skaðlegri hólfun þeirra.\n\nÁ efnisskránni er auk þess verk eftir Dave Brubeck og Oscar Peterson ofl. Jazztríóið FLEY hefur leikið saman á sjó og landi m.a. á skemmtiferðaskipinu „The World”\, en fær nú endurnýjaða og endurnýjanLEGA orku…\n\nJazztríóið FLEY skipa:\n\nEgill Benedikt Hreinsson\, píanó\nGunnar Hrafnsson\, bassi\nKjartan Guðnason\, trommur\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-fram-a-fley-iferd/
LOCATION:Hljóðberg\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/03/fley-minnkuð-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140416T203000
DTEND;TZID=UTC:20140416T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140407T171937Z
LAST-MODIFIED:20140409T001115Z
UID:10000016-1397680200-1397685600@hannesarholt.is
SUMMARY:„Talaðu lágt\, því að tíminn er naumur“
DESCRIPTION:Tónleikar með söngkonunni og píanóleikaranum Margréti Júlíönu Sigurðardóttur ásamt hljómsveit sem skipuð er gítarleikurunum Magnúsi R. Einarssyni og Eðvarði Lárussyni\,  bassaleikaranum Pétri Sigurðssyni og trommuleikaranum Karli Pétri Smith verða haldnir í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 16 apríl klukkan 20.00.   Sérstakur gestur á tónleikunum er bróðir Margrétar\, Þórhallur Sigurðsson. \n \nÁ tónleikunum í Hannesarholti flytur Margrét eigið efni\, bæði frumsamin lög og eldri sem hér eru færð í nýjan búning\,  hljóðheim sem er í senn ættaður frá Hawai og Hornströndum.  Sungið er um mánafljótið\,  síðasta lag fyrir lokun og daga víns og rósa en í fjarska heyrist  hvíslað „Talaðu lágt\,  því að tíminn er naumur.“  \n \nMiða á tónleikana er hægt að kaupa á midi.is og við innganginn.\nAðgangseyrir 1500 kr  (1000 kr fyrir nemendur\, öryrkja og ellilífeyrisþega). \n\n\n  \n\n \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/taladu-lagt-thvi-ad-timinn-er-naumur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Margrét-Sig.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140504T150000
DTEND;TZID=UTC:20140504T160000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140410T152514Z
LAST-MODIFIED:20140423T003659Z
UID:10000017-1399215600-1399219200@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNAGULL heldur tónleika á BARNAMENNINGAR-HÁTÍÐ
DESCRIPTION:Perlutónleikar Tónagulls fyrir 0-3 ára börn í fylgd með fullorðnum \nTónagull heldur Perlutónleika á léttum nótum þar sem sungnar verða þekktar perlur og barnagælur. Tónleikagestum býðst að taka undir söng og taka þátt í flutningi með klappi og smáhljóðfærum. Lóunni verður fagnað\, riðið heim til Hóla og fé rekið úr móunum svo eitthvað sé nefnt. Tónlistarkennarar Tónagulls stýra tónleikunum og fá til liðs við sig Berglindi Maríu Tómasdóttur flautuleikara. Tónleikarnir taka mið af úthaldi mjög ungra barna. Listræn stjórnun: Helga Rut Guðmundsdóttir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonagull-heldur-tonleika-a-barnamenningarhatid/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Biribiribammbamm-e1397142441613.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140516T200000
DTEND;TZID=UTC:20140516T223000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140509T104123Z
LAST-MODIFIED:20140509T104413Z
UID:10000168-1400270400-1400279400@hannesarholt.is
SUMMARY:Útgáfutónleikar My bubba
DESCRIPTION:Hljómplatan Goes Abroader með hljómsveitinni My bubba kemur út hjá Smekkleysu hér á landinu mánudaginn 12. maí. Í tilefni af því mun hljómsveitin halda útgáfutónleika í Hannesarholti föstudagskvöldið 16. maí. Um upphitun sér Snorri Helgason. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.\n\n\nMy bubba er skipuð hinni sænsku My og hinni íslensku Bubbu og var stofnuð fyrir 5 árum í Kaupmannahöfn þegar þær hittust fyrir helbera tilviljun. Síðan þá hafa þær ferðast saman um heiminn\, samið og flutt samtíma þjóðlagatónlist og tekið upp tvær breiðskífur og eina stuttskífu. Þær hafa komið fram á Iceland Airwaves\, Hróarskelduhátíðinni og hitað upp fyrir listamenn á borð við Matthew E. White og Nina Persson.\n\nMiðar eru seldir á www.midi.s\n\n\nhlekkir:\nwww.ohmybubba.com\nwww.hannesarholt.is\nwww.facebook.com/ohmybubba\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/utgafutonleikar-my-bubba/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/bubba-2-e1399631990731.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140521T203000
DTEND;TZID=UTC:20140521T223000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140506T095635Z
LAST-MODIFIED:20140508T095159Z
UID:10000163-1400704200-1400711400@hannesarholt.is
SUMMARY:Lady sings the blues - Tríó Sigurðar Flosasonar
DESCRIPTION:Himnastigatríóið spilar Billie Holiday \nTríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar\, Himnastigatríóið\, heldur tónleika í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, miðvikudaginn 21 mai kl. 20:30.  Tónleikarnir eru tileinkaðir söngkonunni Billie Holiday en hún hefði orðið 99 ára 7. apríl sl.  Á efnisskrá verða lög sem Billie hljóðritaði og tengjast henni sterklega.  Tríóið skipa auk Sigurðar þeir Eyþór Gunnarsson á píanó og danski kontrabassaleikarinn Lennart Ginman en hann kemur hingað til lands sérstaklega vegna þessara tónleika.Tríóið er stundum kennt við sinn fyrsta disk; „Himnastigann“ sem kom út árið 1999 og fékk frábæra dóma.  Tveimur árum síðar kom annar diskur; „Djúpið“ sem hlaut einnig mjög góðar vitökur.  Himnastigatríóið snýr aftur eftir langt hlé og einbeitir sér\, nú sem fyrr\, að túlkun klassískra jazzstandarda með áherslu á lifandi og ljóðrænt samspil.\nBillie Holiday\, sem hét í raun og veru Eleanora Fagan var fædd 7. Apríl 1915 og lést aðeins 44 ára gömul 17. Júlí 1959. Hún átti erfiða æfi og glímdi lengst af við áfengis- og vímuefnafíkn.  Bille er í hópi áhrifamestu söngkvenna jazzins. Hún er af flestum talin einn af persónulegustu og sterkustu túlkendum jazzsögunnar. Billie flutti bæði klassiska standarda og eins lög sem samin voru sérstaklega fyrir hana.  Tríóið mun flytja blöndu af hvoru tveggja.Miðverð er kr. 2.500. Miðar á midi.is og við innganginn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lady-sings-the-blues/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/BillieHoliday.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140524T140000
DTEND;TZID=UTC:20140524T150000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140515T121327Z
LAST-MODIFIED:20140521T113624Z
UID:10000171-1400940000-1400943600@hannesarholt.is
SUMMARY:Hljómar vorsins í Hannesarholti
DESCRIPTION:Margrét S.Stefánsdóttir sópran er fædd í Skagafirði og hóf tónlistarnám þar. Fór síðan í Tónlistarskólann í Reykjavik og stundaði nám hjá Rut Magnússon\, Sieglinde Kahmann og Alinu Dubik. Einnig stundaði hún píanónám hjá Jónasi Ingimundarssyni. Lauk einsöngs og söngkennaraprófi og hefur haldið einsöngstónleika víða um land. Margrét er kórstjórnandi og kennir við Tónlistarskóla Árnesinga. \nJane Ade Sutarjo fæddist i Jakarta í Indónesíu árið 1989. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut síðar kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið 2008. Jane hefur lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla Íslands. Á fiðlu lærði hún hjá Guðnýju Guðmundsdóttir og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttir og seinna hjá Peter Maté. \nJane hefur haldið einleikstónleika og komið fram sem einleikari með hljómsveitum í Indónesíu og á Íslandi. Í janúar kom Jane fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem hún lék píanókonsert nr.1 eftir Chopin. Hún hefur tekið þátt í píanókeppnum bæði í Indónesíu og á Norðurlöndum. Nýlega tók Jane þátt í V. Píanókeppni EPTA og hlaut þar fyrstu verðlaun.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hljomar-vorsins-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/Margret-e1400545052784.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140525T160000
DTEND;TZID=UTC:20140525T180000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140506T142641Z
LAST-MODIFIED:20140506T142641Z
UID:10000166-1401033600-1401040800@hannesarholt.is
SUMMARY:Listahátíð - Tríó Sírajóns
DESCRIPTION:Titill tónleika Tríó Sírajóns vísar í ljóð Jónasar Hallgrímssonar\, Gunnarshólma\, sem Þórður Magnússon tónskáld hefur samið tónlist við að beiðni tríósins. Verkið er skrifað fyrir fiðlu\, klarínett\, píanó og sópran og er frumflutt á Listahátíð.  \nEfnisskrá \nIgor Stravinsky:  3 lög fyrir einleiks klarinett \nIgor Stravinsky:  Saga dátans – svíta \nLeifur Þórainsson:  Áfangar \nÞórður Magnússon: Gunnarshólmi ( frumflutningur ) \nTónleikarnir hefjast á fjarlægum og dulúðugum tónum klarínettsins í einleiksverki Stravinskys frá dvalarárum hans í Sviss þegar heimstyrjöldin fyrri geisaði. Hann hafði hrist eftirminnilega upp í hinum vestræna tónlistarheimi nokkrum árum áður með Vorblótinu og sneri sér eftir það að verkum fyrir smærri hljóðfærahópa þar á meðal Sögu dátans fyrir sjö hljóðfæraleikara\, sögumann og dansara.  Verkið fjallar um ungan hermann og kölska sem lofar unga manninum gulli og grænum skógum í skiptum fyrir fiðluna hans. Stravinsky gerði síðar svítu úr sviðsverkinu fyrir fiðlu\, klarínett og píanó og verður sú gerð verksins leikin á tónleikunum. Í þessum tveimur verkum Stravinskys má heyra fyrstu tilraunir hans með jasskennda tónlist og ragtime. \nLeifur Þórarinsson hefði orðið áttræður í ár og því við hæfi að minnast þessa merkilega tónskálds á þeim tímamótum\, en hann var einn áhrifamesti tónhöfundur Íslendinga á síðustu öld. Tríó Sírajón leikur verkið Áfangar eftir Leif  á þessum tónleikum en það var samið undir áhrifum frá samnefndri mynd eftir náinn vin hans\, Kristján Davíðsson listmálara og tileinkað honum. \nFlytjendur: Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran \nTríó Sírajón skipa: Laufey Sigurðardóttir fiðla Einar Jóhannesson klarínett og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó \nMiðar seldir á www.midi.is 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/listahatid-trio-sirajons/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/T_print.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140611T200000
DTEND;TZID=UTC:20140611T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140519T235112Z
LAST-MODIFIED:20140522T151202Z
UID:10000176-1402516800-1402524000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sólin sæla - tónleikar tvíeykisins Funa
DESCRIPTION:FUNI er tvíeykið Bára Grímsdóttir og Chris Foster\, sem hófu samstarf árið 2001.  Síðan hafa þau keppst við að blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist sem hefur leynst í gömlum upptökum og lítt þekktum bókum og handritum\, auk þess sem þau hafa bætt við nýjum lögum í þjóðlegum stíl.  Flest laganna voru sungin án nokkurs undirleiks áður fyrr en FUNI bætir hljóðfæraleiknum við og notar langspil\, Íslenska fiðlu\, gítar\, kantele og hammer dulcimer. Þau flytja kvæðalög\, tvísöngslög\, sálma og enskar ballöður\, útsetja allt sjálf og hafa haldið námskeið og komið fram á ýmsum hátíðum og tónleikum\, einnig í útvarpi\, hér heima og víða í Evrópu\, Norður-Ameríku og Kína. \nBára Grímsdóttir\, söng- og kvæðakona\, er einn virtasti flytjandi íslenskra þjóðlaga og nýtur einnig mikillar virðingar sem tónskáld.  Hún ólst upp við söng og kveðskap\, heyrði og lærði\, allt frá barnæsku\, kveðskap foreldra sinna og afa og ömmu í Grímstungu í Vatnsdal. Bára hefur lengi fengist við flutning á kvæðalögum og margs konar íslenskri þjóðlagatónlist\, bæði veraldlegri og trúarlegri.  Hún hefur unnið með ýmsum kvæðamönnum og tónlistarfólki og sem tónskáld og útsetjari hefur Bára iðulega nýtt sér íslensk þjóðlög sem uppsprettu eigin sköpunar. \nChris Foster ólst upp í Somerset á Suðvestur-Englandi\, þar sem hann kynntist fyrst þjóðlögum og hóf tónlistarferil sinn.  Hann er tvímælalaust frábær flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar.  Síðastliðin 40 ár hefur Chris haldið ótal tónleika á Bretlandseyjum\, en einnig farið í tónleikaferðir víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin og Kanada.  Hann hefur gefið út sex plötur með eigin söng og gítarundirleik en einnig tekið þátt í mörgum samstarfsverkefnum. Lifandi tónlistarflutningur Chris einkennist af kraftmiklum söng og góðum gítarleik\, sem styrkist enn frekar af fágaðri fyndni hans og eldmóði.  Með þessu tekst honum að draga áheyrendur sína inn í sagnaheiminn sem hann skapar með söngvunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/solin-saela-tonleikar-tvieykisins-funa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/CHRIS-AND-BÁRA-MAY-09-high-res-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140614T150000
DTEND;TZID=UTC:20140614T170000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140604T173036Z
LAST-MODIFIED:20140610T204045Z
UID:10000177-1402758000-1402765200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bartok og Brahms  - Reykjavík Midsummer Music
DESCRIPTION:Á fyrstu tónleikum laugardagsins höldum við í fræða- og menningarsetrið Hannesarholt á Grundarstíg 10\, og hlýðum á tónlist Bartóks og Brahms í flutningi Sayaka Shoji\, Amihai Grosz og Víkings Heiðars Ólafssonar.\nÍ tónlist Bartóks kemur allt saman. Í hljóðheimi hans mætir kraftmikil þjóðlagatónlist fágaðri tónsmíðatækni ný-barokksins\, náttúruhljóð blandast hljómi kirkjutóntegundanna – og þannig má áfram telja.\n\nÍ Sónötu fyrir einleiksfiðlu (1944) kannaði tónskáldið ungverska hversu langt væri hægt að komast með fjóra strengi og boga – og í ljós kemur að möguleikarnir eru endalausir. Fyrsti þáttur er í formi chacconu\, annar er þriggja radda fúga\, í þeim þriðja er eins og fiðlan syngi aríu við undirleik sjálfrar sín og síðasti kaflinn er æsilegt prestó – í heildina er verkið stórbrotið. Það er svo sérstök ánægja að fá að heyra japanska fiðlusnillinginn Sayöku Shoji leika sónötuna á Stradivarius-fiðlu sína\, ‘Recamier’\, frá 1729. \nÁ seinni hluta tónleikanna\, sem fram fara í Hannesarholti\, heyrum við svo fyrsta víóluleikara Berlínar-fílharmóníunnar\, Amihai Grosz\, leika aðra stórbrotna sónötu ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni: Víólusónötu Brahms í f-moll\, sem er meðal síðustu verkanna sem tónskáldið samdi á lífsleiðinni. \nMiðasala er í Hörpu og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bartok-og-brahms-reykjavik-midsummer-music/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/06/KAROLINA_THORARENSEN_POSTER_BRAHMSBARTOK_IMG_2944.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140813T203000
DTEND;TZID=UTC:20140813T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140807T105655Z
LAST-MODIFIED:20140807T230317Z
UID:10000180-1407961800-1407967200@hannesarholt.is
SUMMARY:Til heiðurs meistara Chet Baker
DESCRIPTION:Chet klúbburinn heldur sína fyrstu tónleika miðvikudaginn 13. ágúst í Hannesarholti. Þetta er hópur tónlistarfólks sem sameinast í áhuga á tónlist sem Chet Baker flutti á ferli sínum og þeirri stemmningu sem einkenndi hann. í Chet klúbbnum eru Silva Þórðardóttir (söngur)\, Ragnhildur Gunnarsdóttir (trompet)\, Anna Gréta Sigurðardóttir (píanó)\, Þórður Högnason (kontrabassi) og Matthías Hemstock (trommur). Chet Baker var meistari í því að flytja tónlist á lágstemmdum nótum en jafnframt með mjög sterkri persónulegri túlkun. Lagaval hans var einnig í sérflokki þar sem hver jazzperlan rak aðra. Chet klúbburinn hefur þetta að leiðarljósi og hafa meðlimir valið uppáhalds lög sín fyrir þessa tónleika. Af efnisskránni má nefna lögin Every time we say goodbye\, Do it the hard way\, I´m old fashioned og My ideal.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/til-heidurs-meistara-chet-baker/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/ChetClub_trimmed-e1407408802608.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T140000
DTEND;TZID=UTC:20140823T150000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140721T122918Z
LAST-MODIFIED:20140801T135936Z
UID:10000178-1408802400-1408806000@hannesarholt.is
SUMMARY:Semball í Hannesarholti
DESCRIPTION:Á menningarnótt\, 23. ágúst\, leikur Árni Heimir Ingólfsson á sembal í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, kl. 14. Á tónleikunum verður flutt áheyrileg barokktónlist eftir höfunda frá ýmsum löndum – Ítalíu\, Englandi\, Frakklandi og Þýskalandi – m.a. eftir Girolamo Frescobaldi\, William Byrd\, Antoine Forqueray og J.S. Bach. Árni Heimir mun segja frá tónlistinni og hljóðfærinu\, en hann leikur á hljóðfæri smíðað af Marc Ducornet í París (2011). Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. \nÁrni Heimir Ingólfsson stundaði píanónám við Tónlistarskólann í Reykjavík\, nam síðar píanóleik og tónlistarfræði í Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi frá Harvard-háskóla 2003. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um heim sem píanóleikari og kórstjóri\, m.a. á Listahátíð í Reykjavík og tónlistarhátíðum í Bretlandi\, Frakklandi\, Svíþjóð og Þýskalandi. Þá hefur hann stýrt tónlistarflutningi á þremur hljómdiskum sem allir innihalda lög úr fornum íslenskum handritum. Árni Heimir er afkastamikill fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistar. Hann hefur haldið fyrirlestra víða um heim og gegnt rannsóknarstöðum við háskólana í Oxford og Boston. Bók hans\, Jón Leifs – Líf í tónum\, kom út árið 2009 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Árni Heimir var dósent í tónlistarfræðum við Listaháskóla Íslands 2005–2007 og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2007–2011.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/semball-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/07/IMG_1206-e1405945546398.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T160000
DTEND;TZID=UTC:20140823T180000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140801T115045Z
LAST-MODIFIED:20140803T012644Z
UID:10000179-1408809600-1408816800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ný íslensk dægurlagatónlist á Menningarnótt í Hannesarholti
DESCRIPTION:Arna Margrét Jónsdóttir\, Birgir Steinn Theodorsson og Marteinn Sindri Jónsson flytja ný\, frumsamin dægurlög við texta íslenskra ljóðskálda.\nÖll hafa þau stundað nám við tónlistarskóla FÍH\, Arna Margrét er útskrifuð úr jazzsöng\, Birgir Steinn lærir þar á bassa og Marteinn Sindri er útskrifaður á píanó.\nTónsmíðarnar eru allar eftir Örnu og Martein en ljóðin koma víða að. Hannes Hafstein á þó nokkur ljóðanna\, auk Huldu\, Snorra Hjartarssonar\, Davíðs Stefánssonar svo einhverjir séu nefndir.\n\nAllir hjartanlega velkomnir!
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ny-islensk-daegurlagatonlist-a-menningarnott-i-hannesarholti/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/hannes-e1406893545523.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140827T200000
DTEND;TZID=UTC:20140827T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140808T151138Z
LAST-MODIFIED:20140819T215723Z
UID:10000184-1409169600-1409176800@hannesarholt.is
SUMMARY:Bartók - Brahms - DeFalla - Ravel
DESCRIPTION:Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir fiðluleikari og Julien Beurms  píanóleikari flytja fiðlusónötu númer 2 eftir Brahms\, rúmensku dansa Béla Bartók\, spænska svítu eftir Manuel de Falla og fyrstu fiðlusónötu Ravel. \nGeirþrúður Ása hóf fiðlunám ung að aldri og lauk nýverið framhaldsnámi frá Hartt School of Music í Connecticut í Bandaríkjunum. Geirþrúður Ása kemur reglulega fram á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum\, nú síðast í Scandinavia House í New York. Hún hlaut ýmsa styrki á námsárunum\, m.a  úr Menningarsjóði Valitor og Fulbright. \nJulien Beurms hóf píanónám sitt aðeins 7 ára gamall og útskrifaðist frá konunglega tónlistarskólanum í Mons undir handleiðslu Johan Schmidt og Yuka Izutsu með þrár meistaragráður í píanóleik\, meðleik og kennslufræði. Julien bauðst að stunda nám við New England Conservatory hjá Victor Rosenbaum árið 2011 og hlaut hann námsstyrk frá Fulbright vegna námsins. Þá gengdi hann einnig aðstoðarkennarastöðu við New England Conservatory í Boston á meðan námi stóð. \nGeirþrúður Ása og Julien hafa spilað saman frá árinu 2011 og í mars síðastliðinn héldu þau tónleika í Harvard University í Boston. \nMiðasala á midi.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bartok-brahms-defalla-ravel/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/Tónleikar-Hannesarholti-web-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140830T160000
DTEND;TZID=UTC:20140830T173000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140825T104713Z
LAST-MODIFIED:20140829T154150Z
UID:10000027-1409414400-1409419800@hannesarholt.is
SUMMARY:Agnar Már Magnússon 40 ára - einleikstónleikar
DESCRIPTION:Agnar Már Magnússon\, jazzpíanisti ætlar að halda einleikstónleika í Hannesarholti í tilefni af fertugsafmæli sínu. Tónleikarnir verða á sjálfan afmælisdaginn 30. ágúst og hefjast kl. 16.00. Á efnisskránni verða að hluta til eigin verk\, þekktir jazz standardar og spuni. Þetta eru fyrstu tónleikar Agnars í Hannesarholti. \nMiða má kaupa á midi.is og við innganginn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/agnar-mar-magnusson-40-ara-einleikstonleikar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/DST_4245-Edit-2-e1408963581396.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140907T140000
DTEND;TZID=UTC:20140907T160000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140902T221842Z
LAST-MODIFIED:20140905T134216Z
UID:10000029-1410098400-1410105600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir
DESCRIPTION:Efnisskrá:\n\nLuigi Boccherini: Sellósónata í G-dúr\, G. 15\nAllegro\nLarghetto\nAllegro\n\nGeirþrúður Anna Guðmundsdóttir\, selló\nSigurgeir Agnarsson\, selló\n\nJohannes Brahms: Sónata í e-moll fyrir píanó og selló\, op. 38\nAllegro non troppo\nAllegretto quasi Minuetto – Trio\nAllegro\n\nHlé\n\nLudwig van Beethoven: Sónata í A-dúr fyrir píanó og selló\, op. 69\nAllegro ma non tanto\nScherzo: Allegro molto\nAdagio cantabile – Allegro vivace\n\nFrédéric Chopin: Polonaise brillante fyrir píanó og selló\, op. 3\n\nGeirþrúður Anna Guðmundsdóttir\, selló\nAnna Guðný Guðmundsdóttir\, píanó\n\n\nGEIRÞRÚÐUR ANNA GUÐMDUNSDÓTTIR fæddist árið 1994. Hún hóf sellónám 5 ára gömul undir handleiðslu Gunnars Kvaran. Árið 2008 hóf hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún lærði sellóleik hjá Gunnari Kvaran og Sigurgeiri Agnarssyni. Hún lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2013 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2012. Sem stendur er Geirþrúður nemandi Hans Jensen við Northwestern University\, þar sem hún mun hefja annað ár sitt í BA námi í haust.\n\n\n\nANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR  er fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfar einnig sem píanóleikari við Tónlistarskólann í Reykjavík\, en þar nam hún píanóleik hjá Hermínu S. Kristjánsson\, Jóni Nordal og Margréti Eiríksdóttur.  Fyrsti kennari hennar var Stefán Edelstein við Barnamúsíkskólann\, en framhaldsnám stundaði hún við Guildhall School of Music í Lundúnum hjá James Gibb og Gordon Back.   Hún kemur reglulega fram á Listahátíð\, nú síðast á opnunartónleikunum 22. maí sl.\,  þar sem hún lék í verkinu Pierrot Lunaire með Kammersveit Reykjavíkur\, einnig lék hún heildarverk L.v. Beethoven fyrir piano og selló ásamt Sigurgeiri Agnarssyni.   Hún er eftirsóttur meðleikari hljóðfæraleikara og söngvara og hefur þannig lagt drjúgan skerf til íslensks tónlistarlífs síðastliðna þrjá áratugi.  Hún hefur hljóðritað um 30 geisladiska ýmist ein eða með öðrum listamönnum.  Anna Guðný hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2009 sem flytjandi ársins og var einnig tilnefnd í ár. \nSIGURGEIR AGNARSSON hefur gegnt stöðu aðstoðarleiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2003. Hann hóf nám á selló hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1984\, þá átta ára gamall. Hann lauk síðar einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 og hélt til frekara náms hjá David Wells og Laurence Lesser við New England Conservatory of Music í Boston. Þaðan lauk hann bæði Bachelor of Music og Master of Music gráðum. Síðan lá leiðin til Þýskalands þar sem Sigurgeir lærði hjá Prof. Johannes Goritzki við Robert Schumann Tónlistarháskólann í Düsseldorf þar sem hann útskrifaðist með Konzertexamen árið 2002. \nAllir eru velkomnir – enginn aðgangseyrir. \n  \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-geirthrudur-anna-gudmundsdottir-og-anna-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Anns-Gudny+Geirþ.Anna_.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140921T180000
DTEND;TZID=UTC:20140921T180000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140905T012709Z
LAST-MODIFIED:20140921T160622Z
UID:10000204-1411322400-1411322400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti - Elmar Gilbertsson AUKATÓNLEIKAR
DESCRIPTION:Hannesarholt kynnir röð ljóðasöngstónleika í samvinnu við Gerrit Schuil\, sem munu ná yfir allan veturinn. Alls verða haldnir sex tónleikar í vetur í þessarri seríu\, þeir verða u.þ.b klukkustundar langir og munu söngvarar kynna tónleikana sjálfir. Elmar Gilbertsson flytur á  þessum fyrstu tónleikum lög eftir Robert Schumann\, sem allir eru með texta eftir Heinrich Heine.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/elmar......jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140924T200000
DTEND;TZID=UTC:20140924T220000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140904T164531Z
LAST-MODIFIED:20140915T193115Z
UID:10000038-1411588800-1411596000@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóð í tónum - gítar\, harpa og lýrískt slagverk
DESCRIPTION:Duo harpverk – Katie Buckley hörpuleikari og Frank Aarnink slagverksleikari ásamt Kristni Árnasyni gítarleikara frumflytja verk eftir Áskel Másson.\n\n„Það er ávallt heiður að fá að vinna með fólki eins og þeim Katie\, Frank og Kidda. Samstarf okkar að flestum þessum verkum má rekja minnst þrjú ár aftur í tímann. Hvert þessara verka hefur þó sínar eigin forsendur fyrir tilurð sinni og nefna má\, að verkin sem hér verða frumflutt eru annars vegar fyrsta verk sem ég skrifa fyrir Duo harpverk saman (Arabesques) og þriðja verkið sem ég skrifa fyrir slagverksmeistarann Gert Mortensen (B2B)\, en með flutningi þessum hefur Frank flutt þau öll á Íslandi“. Áskell Másson
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljod-i-tonum-gitar-harpa-og-lyriskt-slagverk/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/skell-másson-e1409848755500.jpg
ORGANIZER;CN="Duo Harpverk og Kristinn %C3%81rnason":MAILTO:http://duoharpverk.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141009T200000
DTEND;TZID=UTC:20141009T210000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140904T175117Z
LAST-MODIFIED:20141001T232630Z
UID:10000039-1412884800-1412888400@hannesarholt.is
SUMMARY:Jazzspuni - Kristjana Stefánsdóttir og Kjartan Valdemarsson
DESCRIPTION:Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Kjartan Valdemarsson píanóleikari standa fyrir fernum spunatónleikum í Hannesarholti í vetur – tvennum fyrir jól og tvennum eftir jól.  Þau fá til sín góða gesti sem munu leika með þeim á tónleikunum.  Meðal viðfangsefna verða íslensk sönglög\, amerískir standardar\, Bítlarnir og svo þekkt rokk- og popp lög. \nTónleikarnir verða á fimmtudögum kl.20.00 og verða opnar æfingar í Hljóðbergi Hannesarholts sem verða auglýstar sérstaklega\, fyrir þá sem vilja fylgjast með listamönnunum að störfum. \nFyrstu tónleikarnir verða fimmtudaginn 9.október kl.20.00 og verður viðfangsefni þeirra amerískir standardar.  Gestur þeirra verður Richard Anderson. Seinni tónleikarnir verða 13. nóvember.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzspuni-kristjana-stefansdottir-og-kjartan-valdemarsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Kristjana-og-Kjartan_1150-e1409852856248.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141026T160000
DTEND;TZID=UTC:20141026T170000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140905T014655Z
LAST-MODIFIED:20141024T165758Z
UID:10000213-1414339200-1414342800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti
DESCRIPTION:Ágúst Ólafsson syngur Jóhannes Brahms í röð ljóðasöngstónleika sem Hannesarholt heldur í samvinnu við Gerrit Schuil. Á efnisskránni verða 9 Lieder opus 32 og 4 ernste Gesänge opus 121. \nAlls verða haldnir sex tónleikar í vetur í þessarri seríu. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir og munu söngvararnir kynna dagskrána sjálfir. \nMiða má kaupa hér \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti-3/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/216498_1014886045472_5028_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141101T170000
DTEND;TZID=UTC:20141101T180000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140904T160620Z
LAST-MODIFIED:20141031T103033Z
UID:10000037-1414861200-1414864800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar Dúó Stemmu - sérstakur gestur Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona.
DESCRIPTION:Dúó Stemma leikur m.a  “ fimm lög frá Gautlöndum”  verk sem Snorri Sigfús Birgisson skrifaði fyrir þau.\n Frumflutningur á  verkinu „Árstíðirnar í húsinu”  eftir Tryggva Baldvinsson  við Hækur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og þá bætist Ingibjörg Guðjónsdóttir  sópransöngkona í hópinn.\nEinnig verða leikin þjóðlög í útsetningu Dúó Stemmu.\n\nDúó Stemmu skipa þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari. \n\n \nDúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari.\nSaman hafa þau leikið í rúmlega 10 ár og frumflutt mörg verk sem skrifuð hafa verið fyrir þau og haldið fjölmarga tónleika.\nAuk þess hefur Dúó Stemma sett saman efnisskrá fyrir börn sem þau kalla “Töfraveröld tóna og hljóða” og spilað fyrir börn í leikskólum og grunnskólum. Haustið 2010 tóku þau þátt í vestnorræna verkefninu “Listaleypurinn.”\nog spiluðu 20 tónleika fyrir mörg hundruð börn í Færeyjum og Grænlandi.\nDúó Stemma hlaut viðurkenninguna „Vorvindar“ frá IBBY samtökunum árið 2008 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi.\nHerdís Anna Jónsdóttir lauk prófum frá Tónlistarskóla Akureyrar 1983\, Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986 og Hochschule fur Musik und Darstellende Kunst Stuttgart 1992. Hún er fastráðinn víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands\nsíðan 1995 og hefur spilað með fjölmörgum kammerhópum á Íslandi m.a Kammersveit Reykjavíkur og Dísunum.\nSteef van Oosterhout lauk einleikaraprófi frá Sweelinck Conservatorium Amsterdam 1987. Hann starfaði í Hollandi með ýmsum kammerhljómsveitum m.a. Nederlands blazersensemble og lék með sinfóníuhljómsveitum þ.á.m. Consertgebouwhljómsveitinni í Amsterdam. 1991 var hann ráðin sem slagverks- og pákuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur leikið með ýmsum kammerhópum þ.á.m. Caput og slagverkshópnum Bendu
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-duo-stemmu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/2stemma-hannes-2_Fotor-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141109T160000
DTEND;TZID=UTC:20141109T180000
DTSTAMP:20260617T085202
CREATED:20140807T143405Z
LAST-MODIFIED:20141105T233403Z
UID:10000181-1415548800-1415556000@hannesarholt.is
SUMMARY:Frönsk saxófóntónlist
DESCRIPTION:Flytjendur: Guido Bäumer alt-saxófónn og  Aladár Rácz píanó \nEfnisskrá: \nFernande Decrück (1896-1954): \n8 pieces Francaises (1948) \n  \nEugéne Bozza (1905-1991): \n1. Scaramouche (1944) \n2. Pulcinella (1944) \n  \nClaude Pascal (f. 1921): \nSónatína (1947) \nStutt hlé \nDarius Milhaud (1892-1974): \nScaramouche (1937) \n  \nPaule Maurice (1910-1967):   \nTableaux de Provence (1955) \n  \n Lífshlaup flytjenda: \nAladár Rácz píanó \ner fæddur í Rúmeníu árið 1967. Hann stundaði fyrst nám í\npíanóleik við Georges Enescu tónlistarskólann í Búkarest en síðan\nframhaldsnám við Tónlistarháskólana í Búkarest og Búdapest. Einnig hefur\nAladár tekið þátt í mörgum námskeiðum í Evrópu og haldið\nmasterclassnámskeið fyrir píanónemendur. Hann hefur leikið á tónleikum\nvíðsvegar um heiminn\, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir\npíanóleik í alþjóðakeppnum\, m.a. á Spáni\, Ítalíu og í Tékklandi. Á árunum\n1999-2013 starfaði Aladár  sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur\,\nlék með ýmsum kórum og söngvurum á Norður- og Austurlandi (s.s.\nLeikhúskórnum á Akureyri og Kammerkór Austurlands). Hann var einnig um tíma meðleikari framhaldsnemenda við Tónlistarskólann á Akureyri. Aladár hefur leikið einleik í Salnum í Kópavogi og með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í píanókonsert nr.1 eftir Ludwig van Beethoven. Fyrir nokkrum árum lék Aladár  Goldberg-tilbrigðin eftir J.S. Bach á tónleikum vítt og breytt um landið (m.a. í Salnum í Kópavogi) og fékk mikið lof fyrir leik sinn. Aladár hefur verið búsettur í Reykjavík frá sumri 2013 og kennir við Tónlistarskólann Do Re Mi og er meðleikari í Söngskóla Sigurðar Demetz. Á þessu starfsári Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mun Aladár leika einleik með hljómsveitinni í píanókonserti nr.1 eftir Johannes Brahms. \nGuido Bäumer saxófónn \ner frá Norður-Þýskalandi og bjó á Dalvík frá árinu 2000 til vors 2005 en hefur síðan\nverið búsettur í Hafnarfirði. Hann stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi þar sem hann lauk kennaraprófum á bæði saxófón og þverflautu.\nFramhaldsnám stundaði Guido við Tónlistarháskólann í Basel í Sviss þar sem\nhann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State\nUniversity í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann lauk „Artist Certificate“. Í\nSviss kenndi Guido m.a. við Tónlistarskólann í Luzern og lék  á\nbarítón-saxófón í saxófónkvartettinum „mit links“. Á Íslandi hefur Guido\nm.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Caput-hópnum\, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (einnig einleik í saxófónkonsert eftir J. Ibert) og haldið spunatónleika með tölvubreyttum hljóðum. Þá hefur Guido frumflutt verk eftir íslensk tónskáld. Guido kennir við skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu og við Tónlistarskólann í Kópavogi. Hann er einnig barítón-saxófónleikari Íslenska saxófónkvartettsins. Guido og Aladár hafa starfað saman frá árinu 2001.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fronsk-saxofontonlist/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/Dienstag-14.-April-2009.jpeg
END:VEVENT
END:VCALENDAR