BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
PRODID:-//Hannesarholt - ECPv6.16.4.1//NONSGML v1.0//EN
CALSCALE:GREGORIAN
METHOD:PUBLISH
X-WR-CALNAME:Hannesarholt
X-ORIGINAL-URL:https://hannesarholt.is
X-WR-CALDESC:Events for Hannesarholt
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-Robots-Tag:noindex
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:UTC
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:UTC
DTSTART:20130101T000000
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140416T203000
DTEND;TZID=UTC:20140416T220000
DTSTAMP:20140409T001115Z
CREATED:20140407T171937Z
LAST-MODIFIED:20140409T001115Z
UID:10000016-1397680200-1397685600@hannesarholt.is
SUMMARY:„Talaðu lágt\, því að tíminn er naumur“
DESCRIPTION:Tónleikar með söngkonunni og píanóleikaranum Margréti Júlíönu Sigurðardóttur ásamt hljómsveit sem skipuð er gítarleikurunum Magnúsi R. Einarssyni og Eðvarði Lárussyni\,  bassaleikaranum Pétri Sigurðssyni og trommuleikaranum Karli Pétri Smith verða haldnir í Hannesarholti miðvikudagskvöldið 16 apríl klukkan 20.00.   Sérstakur gestur á tónleikunum er bróðir Margrétar\, Þórhallur Sigurðsson. \n \nÁ tónleikunum í Hannesarholti flytur Margrét eigið efni\, bæði frumsamin lög og eldri sem hér eru færð í nýjan búning\,  hljóðheim sem er í senn ættaður frá Hawai og Hornströndum.  Sungið er um mánafljótið\,  síðasta lag fyrir lokun og daga víns og rósa en í fjarska heyrist  hvíslað „Talaðu lágt\,  því að tíminn er naumur.“  \n \nMiða á tónleikana er hægt að kaupa á midi.is og við innganginn.\nAðgangseyrir 1500 kr  (1000 kr fyrir nemendur\, öryrkja og ellilífeyrisþega). \n\n\n  \n\n \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/taladu-lagt-thvi-ad-timinn-er-naumur/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Margrét-Sig.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140504T150000
DTEND;TZID=UTC:20140504T160000
DTSTAMP:20140423T003659Z
CREATED:20140410T152514Z
LAST-MODIFIED:20140423T003659Z
UID:10000017-1399215600-1399219200@hannesarholt.is
SUMMARY:TÓNAGULL heldur tónleika á BARNAMENNINGAR-HÁTÍÐ
DESCRIPTION:Perlutónleikar Tónagulls fyrir 0-3 ára börn í fylgd með fullorðnum \nTónagull heldur Perlutónleika á léttum nótum þar sem sungnar verða þekktar perlur og barnagælur. Tónleikagestum býðst að taka undir söng og taka þátt í flutningi með klappi og smáhljóðfærum. Lóunni verður fagnað\, riðið heim til Hóla og fé rekið úr móunum svo eitthvað sé nefnt. Tónlistarkennarar Tónagulls stýra tónleikunum og fá til liðs við sig Berglindi Maríu Tómasdóttur flautuleikara. Tónleikarnir taka mið af úthaldi mjög ungra barna. Listræn stjórnun: Helga Rut Guðmundsdóttir.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonagull-heldur-tonleika-a-barnamenningarhatid/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/04/Biribiribammbamm-e1397142441613.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140516T200000
DTEND;TZID=UTC:20140516T223000
DTSTAMP:20140509T104413Z
CREATED:20140509T104123Z
LAST-MODIFIED:20140509T104413Z
UID:10000168-1400270400-1400279400@hannesarholt.is
SUMMARY:Útgáfutónleikar My bubba
DESCRIPTION:Hljómplatan Goes Abroader með hljómsveitinni My bubba kemur út hjá Smekkleysu hér á landinu mánudaginn 12. maí. Í tilefni af því mun hljómsveitin halda útgáfutónleika í Hannesarholti föstudagskvöldið 16. maí. Um upphitun sér Snorri Helgason. Tónleikarnir hefjast kl. 20:00.\n\n\nMy bubba er skipuð hinni sænsku My og hinni íslensku Bubbu og var stofnuð fyrir 5 árum í Kaupmannahöfn þegar þær hittust fyrir helbera tilviljun. Síðan þá hafa þær ferðast saman um heiminn\, samið og flutt samtíma þjóðlagatónlist og tekið upp tvær breiðskífur og eina stuttskífu. Þær hafa komið fram á Iceland Airwaves\, Hróarskelduhátíðinni og hitað upp fyrir listamenn á borð við Matthew E. White og Nina Persson.\n\nMiðar eru seldir á www.midi.s\n\n\nhlekkir:\nwww.ohmybubba.com\nwww.hannesarholt.is\nwww.facebook.com/ohmybubba\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/utgafutonleikar-my-bubba/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/bubba-2-e1399631990731.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140521T203000
DTEND;TZID=UTC:20140521T223000
DTSTAMP:20140508T095159Z
CREATED:20140506T095635Z
LAST-MODIFIED:20140508T095159Z
UID:10000163-1400704200-1400711400@hannesarholt.is
SUMMARY:Lady sings the blues - Tríó Sigurðar Flosasonar
DESCRIPTION:Himnastigatríóið spilar Billie Holiday \nTríó saxófónleikarans Sigurðar Flosasonar\, Himnastigatríóið\, heldur tónleika í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, miðvikudaginn 21 mai kl. 20:30.  Tónleikarnir eru tileinkaðir söngkonunni Billie Holiday en hún hefði orðið 99 ára 7. apríl sl.  Á efnisskrá verða lög sem Billie hljóðritaði og tengjast henni sterklega.  Tríóið skipa auk Sigurðar þeir Eyþór Gunnarsson á píanó og danski kontrabassaleikarinn Lennart Ginman en hann kemur hingað til lands sérstaklega vegna þessara tónleika.Tríóið er stundum kennt við sinn fyrsta disk; „Himnastigann“ sem kom út árið 1999 og fékk frábæra dóma.  Tveimur árum síðar kom annar diskur; „Djúpið“ sem hlaut einnig mjög góðar vitökur.  Himnastigatríóið snýr aftur eftir langt hlé og einbeitir sér\, nú sem fyrr\, að túlkun klassískra jazzstandarda með áherslu á lifandi og ljóðrænt samspil.\nBillie Holiday\, sem hét í raun og veru Eleanora Fagan var fædd 7. Apríl 1915 og lést aðeins 44 ára gömul 17. Júlí 1959. Hún átti erfiða æfi og glímdi lengst af við áfengis- og vímuefnafíkn.  Bille er í hópi áhrifamestu söngkvenna jazzins. Hún er af flestum talin einn af persónulegustu og sterkustu túlkendum jazzsögunnar. Billie flutti bæði klassiska standarda og eins lög sem samin voru sérstaklega fyrir hana.  Tríóið mun flytja blöndu af hvoru tveggja.Miðverð er kr. 2.500. Miðar á midi.is og við innganginn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/lady-sings-the-blues/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/BillieHoliday.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140524T140000
DTEND;TZID=UTC:20140524T150000
DTSTAMP:20140521T113624Z
CREATED:20140515T121327Z
LAST-MODIFIED:20140521T113624Z
UID:10000171-1400940000-1400943600@hannesarholt.is
SUMMARY:Hljómar vorsins í Hannesarholti
DESCRIPTION:Margrét S.Stefánsdóttir sópran er fædd í Skagafirði og hóf tónlistarnám þar. Fór síðan í Tónlistarskólann í Reykjavik og stundaði nám hjá Rut Magnússon\, Sieglinde Kahmann og Alinu Dubik. Einnig stundaði hún píanónám hjá Jónasi Ingimundarssyni. Lauk einsöngs og söngkennaraprófi og hefur haldið einsöngstónleika víða um land. Margrét er kórstjórnandi og kennir við Tónlistarskóla Árnesinga. \nJane Ade Sutarjo fæddist i Jakarta í Indónesíu árið 1989. Hún hóf tónlistarnám ung að aldri\, fyrst á píanó og síðar á fiðlu. Píanónámið hóf hún hjá móður sinni\, Marthalenu Sugito en hlaut síðar kennslu hjá Vanda Tiodang og Fabiola Chianiago. Nám á fiðlu stundaði Jane hjá Grace Sudargo og Sharon Eng þar til hún flutti til Íslands haustið 2008. Jane hefur lokið einleikaranámi bæði á fiðlu og píanó frá Listaháskóla Íslands. Á fiðlu lærði hún hjá Guðnýju Guðmundsdóttir og á píanó hjá Nínu Margréti Grímsdóttir og seinna hjá Peter Maté. \nJane hefur haldið einleikstónleika og komið fram sem einleikari með hljómsveitum í Indónesíu og á Íslandi. Í janúar kom Jane fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands þar sem hún lék píanókonsert nr.1 eftir Chopin. Hún hefur tekið þátt í píanókeppnum bæði í Indónesíu og á Norðurlöndum. Nýlega tók Jane þátt í V. Píanókeppni EPTA og hlaut þar fyrstu verðlaun.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hljomar-vorsins-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/Margret-e1400545052784.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140525T160000
DTEND;TZID=UTC:20140525T180000
DTSTAMP:20140506T142641Z
CREATED:20140506T142641Z
LAST-MODIFIED:20140506T142641Z
UID:10000166-1401033600-1401040800@hannesarholt.is
SUMMARY:Listahátíð - Tríó Sírajóns
DESCRIPTION:Titill tónleika Tríó Sírajóns vísar í ljóð Jónasar Hallgrímssonar\, Gunnarshólma\, sem Þórður Magnússon tónskáld hefur samið tónlist við að beiðni tríósins. Verkið er skrifað fyrir fiðlu\, klarínett\, píanó og sópran og er frumflutt á Listahátíð.  \nEfnisskrá \nIgor Stravinsky:  3 lög fyrir einleiks klarinett \nIgor Stravinsky:  Saga dátans – svíta \nLeifur Þórainsson:  Áfangar \nÞórður Magnússon: Gunnarshólmi ( frumflutningur ) \nTónleikarnir hefjast á fjarlægum og dulúðugum tónum klarínettsins í einleiksverki Stravinskys frá dvalarárum hans í Sviss þegar heimstyrjöldin fyrri geisaði. Hann hafði hrist eftirminnilega upp í hinum vestræna tónlistarheimi nokkrum árum áður með Vorblótinu og sneri sér eftir það að verkum fyrir smærri hljóðfærahópa þar á meðal Sögu dátans fyrir sjö hljóðfæraleikara\, sögumann og dansara.  Verkið fjallar um ungan hermann og kölska sem lofar unga manninum gulli og grænum skógum í skiptum fyrir fiðluna hans. Stravinsky gerði síðar svítu úr sviðsverkinu fyrir fiðlu\, klarínett og píanó og verður sú gerð verksins leikin á tónleikunum. Í þessum tveimur verkum Stravinskys má heyra fyrstu tilraunir hans með jasskennda tónlist og ragtime. \nLeifur Þórarinsson hefði orðið áttræður í ár og því við hæfi að minnast þessa merkilega tónskálds á þeim tímamótum\, en hann var einn áhrifamesti tónhöfundur Íslendinga á síðustu öld. Tríó Sírajón leikur verkið Áfangar eftir Leif  á þessum tónleikum en það var samið undir áhrifum frá samnefndri mynd eftir náinn vin hans\, Kristján Davíðsson listmálara og tileinkað honum. \nFlytjendur: Tríó Sírajón og Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran \nTríó Sírajón skipa: Laufey Sigurðardóttir fiðla Einar Jóhannesson klarínett og Anna Áslaug Ragnarsdóttir píanó \nMiðar seldir á www.midi.is 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/listahatid-trio-sirajons/
LOCATION:Hannesarholt\, Grundarstígur 10\, Reykjavík 
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/T_print.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140611T200000
DTEND;TZID=UTC:20140611T220000
DTSTAMP:20140522T151202Z
CREATED:20140519T235112Z
LAST-MODIFIED:20140522T151202Z
UID:10000176-1402516800-1402524000@hannesarholt.is
SUMMARY:Sólin sæla - tónleikar tvíeykisins Funa
DESCRIPTION:FUNI er tvíeykið Bára Grímsdóttir og Chris Foster\, sem hófu samstarf árið 2001.  Síðan hafa þau keppst við að blása lífi í íslenska þjóðlagatónlist sem hefur leynst í gömlum upptökum og lítt þekktum bókum og handritum\, auk þess sem þau hafa bætt við nýjum lögum í þjóðlegum stíl.  Flest laganna voru sungin án nokkurs undirleiks áður fyrr en FUNI bætir hljóðfæraleiknum við og notar langspil\, Íslenska fiðlu\, gítar\, kantele og hammer dulcimer. Þau flytja kvæðalög\, tvísöngslög\, sálma og enskar ballöður\, útsetja allt sjálf og hafa haldið námskeið og komið fram á ýmsum hátíðum og tónleikum\, einnig í útvarpi\, hér heima og víða í Evrópu\, Norður-Ameríku og Kína. \nBára Grímsdóttir\, söng- og kvæðakona\, er einn virtasti flytjandi íslenskra þjóðlaga og nýtur einnig mikillar virðingar sem tónskáld.  Hún ólst upp við söng og kveðskap\, heyrði og lærði\, allt frá barnæsku\, kveðskap foreldra sinna og afa og ömmu í Grímstungu í Vatnsdal. Bára hefur lengi fengist við flutning á kvæðalögum og margs konar íslenskri þjóðlagatónlist\, bæði veraldlegri og trúarlegri.  Hún hefur unnið með ýmsum kvæðamönnum og tónlistarfólki og sem tónskáld og útsetjari hefur Bára iðulega nýtt sér íslensk þjóðlög sem uppsprettu eigin sköpunar. \nChris Foster ólst upp í Somerset á Suðvestur-Englandi\, þar sem hann kynntist fyrst þjóðlögum og hóf tónlistarferil sinn.  Hann er tvímælalaust frábær flytjandi enskrar þjóðlagatónlistar.  Síðastliðin 40 ár hefur Chris haldið ótal tónleika á Bretlandseyjum\, en einnig farið í tónleikaferðir víðsvegar um Evrópu\, Bandaríkin og Kanada.  Hann hefur gefið út sex plötur með eigin söng og gítarundirleik en einnig tekið þátt í mörgum samstarfsverkefnum. Lifandi tónlistarflutningur Chris einkennist af kraftmiklum söng og góðum gítarleik\, sem styrkist enn frekar af fágaðri fyndni hans og eldmóði.  Með þessu tekst honum að draga áheyrendur sína inn í sagnaheiminn sem hann skapar með söngvunum.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/solin-saela-tonleikar-tvieykisins-funa/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/05/CHRIS-AND-BÁRA-MAY-09-high-res-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140614T150000
DTEND;TZID=UTC:20140614T170000
DTSTAMP:20140610T204045Z
CREATED:20140604T173036Z
LAST-MODIFIED:20140610T204045Z
UID:10000177-1402758000-1402765200@hannesarholt.is
SUMMARY:Bartok og Brahms  - Reykjavík Midsummer Music
DESCRIPTION:Á fyrstu tónleikum laugardagsins höldum við í fræða- og menningarsetrið Hannesarholt á Grundarstíg 10\, og hlýðum á tónlist Bartóks og Brahms í flutningi Sayaka Shoji\, Amihai Grosz og Víkings Heiðars Ólafssonar.\nÍ tónlist Bartóks kemur allt saman. Í hljóðheimi hans mætir kraftmikil þjóðlagatónlist fágaðri tónsmíðatækni ný-barokksins\, náttúruhljóð blandast hljómi kirkjutóntegundanna – og þannig má áfram telja.\n\nÍ Sónötu fyrir einleiksfiðlu (1944) kannaði tónskáldið ungverska hversu langt væri hægt að komast með fjóra strengi og boga – og í ljós kemur að möguleikarnir eru endalausir. Fyrsti þáttur er í formi chacconu\, annar er þriggja radda fúga\, í þeim þriðja er eins og fiðlan syngi aríu við undirleik sjálfrar sín og síðasti kaflinn er æsilegt prestó – í heildina er verkið stórbrotið. Það er svo sérstök ánægja að fá að heyra japanska fiðlusnillinginn Sayöku Shoji leika sónötuna á Stradivarius-fiðlu sína\, ‘Recamier’\, frá 1729. \nÁ seinni hluta tónleikanna\, sem fram fara í Hannesarholti\, heyrum við svo fyrsta víóluleikara Berlínar-fílharmóníunnar\, Amihai Grosz\, leika aðra stórbrotna sónötu ásamt Víkingi Heiðari Ólafssyni: Víólusónötu Brahms í f-moll\, sem er meðal síðustu verkanna sem tónskáldið samdi á lífsleiðinni. \nMiðasala er í Hörpu og á midi.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bartok-og-brahms-reykjavik-midsummer-music/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/06/KAROLINA_THORARENSEN_POSTER_BRAHMSBARTOK_IMG_2944.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140813T203000
DTEND;TZID=UTC:20140813T220000
DTSTAMP:20140807T230317Z
CREATED:20140807T105655Z
LAST-MODIFIED:20140807T230317Z
UID:10000180-1407961800-1407967200@hannesarholt.is
SUMMARY:Til heiðurs meistara Chet Baker
DESCRIPTION:Chet klúbburinn heldur sína fyrstu tónleika miðvikudaginn 13. ágúst í Hannesarholti. Þetta er hópur tónlistarfólks sem sameinast í áhuga á tónlist sem Chet Baker flutti á ferli sínum og þeirri stemmningu sem einkenndi hann. í Chet klúbbnum eru Silva Þórðardóttir (söngur)\, Ragnhildur Gunnarsdóttir (trompet)\, Anna Gréta Sigurðardóttir (píanó)\, Þórður Högnason (kontrabassi) og Matthías Hemstock (trommur). Chet Baker var meistari í því að flytja tónlist á lágstemmdum nótum en jafnframt með mjög sterkri persónulegri túlkun. Lagaval hans var einnig í sérflokki þar sem hver jazzperlan rak aðra. Chet klúbburinn hefur þetta að leiðarljósi og hafa meðlimir valið uppáhalds lög sín fyrir þessa tónleika. Af efnisskránni má nefna lögin Every time we say goodbye\, Do it the hard way\, I´m old fashioned og My ideal.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/til-heidurs-meistara-chet-baker/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/ChetClub_trimmed-e1407408802608.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T140000
DTEND;TZID=UTC:20140823T150000
DTSTAMP:20140801T135936Z
CREATED:20140721T122918Z
LAST-MODIFIED:20140801T135936Z
UID:10000178-1408802400-1408806000@hannesarholt.is
SUMMARY:Semball í Hannesarholti
DESCRIPTION:Á menningarnótt\, 23. ágúst\, leikur Árni Heimir Ingólfsson á sembal í Hannesarholti\, Grundarstíg 10\, kl. 14. Á tónleikunum verður flutt áheyrileg barokktónlist eftir höfunda frá ýmsum löndum – Ítalíu\, Englandi\, Frakklandi og Þýskalandi – m.a. eftir Girolamo Frescobaldi\, William Byrd\, Antoine Forqueray og J.S. Bach. Árni Heimir mun segja frá tónlistinni og hljóðfærinu\, en hann leikur á hljóðfæri smíðað af Marc Ducornet í París (2011). Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. \nÁrni Heimir Ingólfsson stundaði píanónám við Tónlistarskólann í Reykjavík\, nam síðar píanóleik og tónlistarfræði í Bandaríkjunum og lauk doktorsprófi frá Harvard-háskóla 2003. Hann hefur komið fram á fjölda tónleika víða um heim sem píanóleikari og kórstjóri\, m.a. á Listahátíð í Reykjavík og tónlistarhátíðum í Bretlandi\, Frakklandi\, Svíþjóð og Þýskalandi. Þá hefur hann stýrt tónlistarflutningi á þremur hljómdiskum sem allir innihalda lög úr fornum íslenskum handritum. Árni Heimir er afkastamikill fræðimaður á sviði íslenskrar tónlistar. Hann hefur haldið fyrirlestra víða um heim og gegnt rannsóknarstöðum við háskólana í Oxford og Boston. Bók hans\, Jón Leifs – Líf í tónum\, kom út árið 2009 og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna sama ár. Árni Heimir var dósent í tónlistarfræðum við Listaháskóla Íslands 2005–2007 og tónlistarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2007–2011.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/semball-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/07/IMG_1206-e1405945546398.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140823T160000
DTEND;TZID=UTC:20140823T180000
DTSTAMP:20140803T012644Z
CREATED:20140801T115045Z
LAST-MODIFIED:20140803T012644Z
UID:10000179-1408809600-1408816800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ný íslensk dægurlagatónlist á Menningarnótt í Hannesarholti
DESCRIPTION:Arna Margrét Jónsdóttir\, Birgir Steinn Theodorsson og Marteinn Sindri Jónsson flytja ný\, frumsamin dægurlög við texta íslenskra ljóðskálda.\nÖll hafa þau stundað nám við tónlistarskóla FÍH\, Arna Margrét er útskrifuð úr jazzsöng\, Birgir Steinn lærir þar á bassa og Marteinn Sindri er útskrifaður á píanó.\nTónsmíðarnar eru allar eftir Örnu og Martein en ljóðin koma víða að. Hannes Hafstein á þó nokkur ljóðanna\, auk Huldu\, Snorra Hjartarssonar\, Davíðs Stefánssonar svo einhverjir séu nefndir.\n\nAllir hjartanlega velkomnir!
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ny-islensk-daegurlagatonlist-a-menningarnott-i-hannesarholti/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/hannes-e1406893545523.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140827T200000
DTEND;TZID=UTC:20140827T220000
DTSTAMP:20140819T215723Z
CREATED:20140808T151138Z
LAST-MODIFIED:20140819T215723Z
UID:10000184-1409169600-1409176800@hannesarholt.is
SUMMARY:Bartók - Brahms - DeFalla - Ravel
DESCRIPTION:Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir fiðluleikari og Julien Beurms  píanóleikari flytja fiðlusónötu númer 2 eftir Brahms\, rúmensku dansa Béla Bartók\, spænska svítu eftir Manuel de Falla og fyrstu fiðlusónötu Ravel. \nGeirþrúður Ása hóf fiðlunám ung að aldri og lauk nýverið framhaldsnámi frá Hartt School of Music í Connecticut í Bandaríkjunum. Geirþrúður Ása kemur reglulega fram á tónleikum og tónlistarhátíðum í Evrópu og Bandaríkjunum\, nú síðast í Scandinavia House í New York. Hún hlaut ýmsa styrki á námsárunum\, m.a  úr Menningarsjóði Valitor og Fulbright. \nJulien Beurms hóf píanónám sitt aðeins 7 ára gamall og útskrifaðist frá konunglega tónlistarskólanum í Mons undir handleiðslu Johan Schmidt og Yuka Izutsu með þrár meistaragráður í píanóleik\, meðleik og kennslufræði. Julien bauðst að stunda nám við New England Conservatory hjá Victor Rosenbaum árið 2011 og hlaut hann námsstyrk frá Fulbright vegna námsins. Þá gengdi hann einnig aðstoðarkennarastöðu við New England Conservatory í Boston á meðan námi stóð. \nGeirþrúður Ása og Julien hafa spilað saman frá árinu 2011 og í mars síðastliðinn héldu þau tónleika í Harvard University í Boston. \nMiðasala á midi.is \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/bartok-brahms-defalla-ravel/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/Tónleikar-Hannesarholti-web-.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140830T160000
DTEND;TZID=UTC:20140830T173000
DTSTAMP:20140829T154150Z
CREATED:20140825T104713Z
LAST-MODIFIED:20140829T154150Z
UID:10000027-1409414400-1409419800@hannesarholt.is
SUMMARY:Agnar Már Magnússon 40 ára - einleikstónleikar
DESCRIPTION:Agnar Már Magnússon\, jazzpíanisti ætlar að halda einleikstónleika í Hannesarholti í tilefni af fertugsafmæli sínu. Tónleikarnir verða á sjálfan afmælisdaginn 30. ágúst og hefjast kl. 16.00. Á efnisskránni verða að hluta til eigin verk\, þekktir jazz standardar og spuni. Þetta eru fyrstu tónleikar Agnars í Hannesarholti. \nMiða má kaupa á midi.is og við innganginn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/agnar-mar-magnusson-40-ara-einleikstonleikar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/DST_4245-Edit-2-e1408963581396.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140907T140000
DTEND;TZID=UTC:20140907T160000
DTSTAMP:20140905T134216Z
CREATED:20140902T221842Z
LAST-MODIFIED:20140905T134216Z
UID:10000029-1410098400-1410105600@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar - Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir og Anna Guðný Guðmundsdóttir
DESCRIPTION:Efnisskrá:\n\nLuigi Boccherini: Sellósónata í G-dúr\, G. 15\nAllegro\nLarghetto\nAllegro\n\nGeirþrúður Anna Guðmundsdóttir\, selló\nSigurgeir Agnarsson\, selló\n\nJohannes Brahms: Sónata í e-moll fyrir píanó og selló\, op. 38\nAllegro non troppo\nAllegretto quasi Minuetto – Trio\nAllegro\n\nHlé\n\nLudwig van Beethoven: Sónata í A-dúr fyrir píanó og selló\, op. 69\nAllegro ma non tanto\nScherzo: Allegro molto\nAdagio cantabile – Allegro vivace\n\nFrédéric Chopin: Polonaise brillante fyrir píanó og selló\, op. 3\n\nGeirþrúður Anna Guðmundsdóttir\, selló\nAnna Guðný Guðmundsdóttir\, píanó\n\n\nGEIRÞRÚÐUR ANNA GUÐMDUNSDÓTTIR fæddist árið 1994. Hún hóf sellónám 5 ára gömul undir handleiðslu Gunnars Kvaran. Árið 2008 hóf hún nám við Tónlistarskólann í Reykjavík þar sem hún lærði sellóleik hjá Gunnari Kvaran og Sigurgeiri Agnarssyni. Hún lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 2013 og stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 2012. Sem stendur er Geirþrúður nemandi Hans Jensen við Northwestern University\, þar sem hún mun hefja annað ár sitt í BA námi í haust.\n\n\n\nANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR  er fastráðin við Sinfóníuhljómsveit Íslands og starfar einnig sem píanóleikari við Tónlistarskólann í Reykjavík\, en þar nam hún píanóleik hjá Hermínu S. Kristjánsson\, Jóni Nordal og Margréti Eiríksdóttur.  Fyrsti kennari hennar var Stefán Edelstein við Barnamúsíkskólann\, en framhaldsnám stundaði hún við Guildhall School of Music í Lundúnum hjá James Gibb og Gordon Back.   Hún kemur reglulega fram á Listahátíð\, nú síðast á opnunartónleikunum 22. maí sl.\,  þar sem hún lék í verkinu Pierrot Lunaire með Kammersveit Reykjavíkur\, einnig lék hún heildarverk L.v. Beethoven fyrir piano og selló ásamt Sigurgeiri Agnarssyni.   Hún er eftirsóttur meðleikari hljóðfæraleikara og söngvara og hefur þannig lagt drjúgan skerf til íslensks tónlistarlífs síðastliðna þrjá áratugi.  Hún hefur hljóðritað um 30 geisladiska ýmist ein eða með öðrum listamönnum.  Anna Guðný hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin árið 2009 sem flytjandi ársins og var einnig tilnefnd í ár. \nSIGURGEIR AGNARSSON hefur gegnt stöðu aðstoðarleiðara sellódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2003. Hann hóf nám á selló hjá Gunnari Kvaran við Tónlistarskóla Garðabæjar árið 1984\, þá átta ára gamall. Hann lauk síðar einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1995 og hélt til frekara náms hjá David Wells og Laurence Lesser við New England Conservatory of Music í Boston. Þaðan lauk hann bæði Bachelor of Music og Master of Music gráðum. Síðan lá leiðin til Þýskalands þar sem Sigurgeir lærði hjá Prof. Johannes Goritzki við Robert Schumann Tónlistarháskólann í Düsseldorf þar sem hann útskrifaðist með Konzertexamen árið 2002. \nAllir eru velkomnir – enginn aðgangseyrir. \n  \n\n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-geirthrudur-anna-gudmundsdottir-og-anna-gudny-gudmundsdottir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Anns-Gudny+Geirþ.Anna_.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140921T180000
DTEND;TZID=UTC:20140921T180000
DTSTAMP:20140921T160622Z
CREATED:20140905T012709Z
LAST-MODIFIED:20140921T160622Z
UID:10000204-1411322400-1411322400@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti - Elmar Gilbertsson AUKATÓNLEIKAR
DESCRIPTION:Hannesarholt kynnir röð ljóðasöngstónleika í samvinnu við Gerrit Schuil\, sem munu ná yfir allan veturinn. Alls verða haldnir sex tónleikar í vetur í þessarri seríu\, þeir verða u.þ.b klukkustundar langir og munu söngvarar kynna tónleikana sjálfir. Elmar Gilbertsson flytur á  þessum fyrstu tónleikum lög eftir Robert Schumann\, sem allir eru með texta eftir Heinrich Heine.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/elmar......jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20140924T200000
DTEND;TZID=UTC:20140924T220000
DTSTAMP:20140915T193115Z
CREATED:20140904T164531Z
LAST-MODIFIED:20140915T193115Z
UID:10000038-1411588800-1411596000@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóð í tónum - gítar\, harpa og lýrískt slagverk
DESCRIPTION:Duo harpverk – Katie Buckley hörpuleikari og Frank Aarnink slagverksleikari ásamt Kristni Árnasyni gítarleikara frumflytja verk eftir Áskel Másson.\n\n„Það er ávallt heiður að fá að vinna með fólki eins og þeim Katie\, Frank og Kidda. Samstarf okkar að flestum þessum verkum má rekja minnst þrjú ár aftur í tímann. Hvert þessara verka hefur þó sínar eigin forsendur fyrir tilurð sinni og nefna má\, að verkin sem hér verða frumflutt eru annars vegar fyrsta verk sem ég skrifa fyrir Duo harpverk saman (Arabesques) og þriðja verkið sem ég skrifa fyrir slagverksmeistarann Gert Mortensen (B2B)\, en með flutningi þessum hefur Frank flutt þau öll á Íslandi“. Áskell Másson
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljod-i-tonum-gitar-harpa-og-lyriskt-slagverk/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/skell-másson-e1409848755500.jpg
ORGANIZER;CN="Duo Harpverk og Kristinn %C3%81rnason":MAILTO:http://duoharpverk.com
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141009T200000
DTEND;TZID=UTC:20141009T210000
DTSTAMP:20141001T232630Z
CREATED:20140904T175117Z
LAST-MODIFIED:20141001T232630Z
UID:10000039-1412884800-1412888400@hannesarholt.is
SUMMARY:Jazzspuni - Kristjana Stefánsdóttir og Kjartan Valdemarsson
DESCRIPTION:Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Kjartan Valdemarsson píanóleikari standa fyrir fernum spunatónleikum í Hannesarholti í vetur – tvennum fyrir jól og tvennum eftir jól.  Þau fá til sín góða gesti sem munu leika með þeim á tónleikunum.  Meðal viðfangsefna verða íslensk sönglög\, amerískir standardar\, Bítlarnir og svo þekkt rokk- og popp lög. \nTónleikarnir verða á fimmtudögum kl.20.00 og verða opnar æfingar í Hljóðbergi Hannesarholts sem verða auglýstar sérstaklega\, fyrir þá sem vilja fylgjast með listamönnunum að störfum. \nFyrstu tónleikarnir verða fimmtudaginn 9.október kl.20.00 og verður viðfangsefni þeirra amerískir standardar.  Gestur þeirra verður Richard Anderson. Seinni tónleikarnir verða 13. nóvember.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzspuni-kristjana-stefansdottir-og-kjartan-valdemarsson/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Kristjana-og-Kjartan_1150-e1409852856248.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141026T160000
DTEND;TZID=UTC:20141026T170000
DTSTAMP:20141024T165758Z
CREATED:20140905T014655Z
LAST-MODIFIED:20141024T165758Z
UID:10000213-1414339200-1414342800@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti
DESCRIPTION:Ágúst Ólafsson syngur Jóhannes Brahms í röð ljóðasöngstónleika sem Hannesarholt heldur í samvinnu við Gerrit Schuil. Á efnisskránni verða 9 Lieder opus 32 og 4 ernste Gesänge opus 121. \nAlls verða haldnir sex tónleikar í vetur í þessarri seríu. Tónleikarnir eru um klukkustundarlangir og munu söngvararnir kynna dagskrána sjálfir. \nMiða má kaupa hér \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti-3/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/216498_1014886045472_5028_n.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141101T170000
DTEND;TZID=UTC:20141101T180000
DTSTAMP:20141031T103033Z
CREATED:20140904T160620Z
LAST-MODIFIED:20141031T103033Z
UID:10000037-1414861200-1414864800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar Dúó Stemmu - sérstakur gestur Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona.
DESCRIPTION:Dúó Stemma leikur m.a  “ fimm lög frá Gautlöndum”  verk sem Snorri Sigfús Birgisson skrifaði fyrir þau.\n Frumflutningur á  verkinu „Árstíðirnar í húsinu”  eftir Tryggva Baldvinsson  við Hækur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur og þá bætist Ingibjörg Guðjónsdóttir  sópransöngkona í hópinn.\nEinnig verða leikin þjóðlög í útsetningu Dúó Stemmu.\n\nDúó Stemmu skipa þau Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari. \n\n \nDúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari.\nSaman hafa þau leikið í rúmlega 10 ár og frumflutt mörg verk sem skrifuð hafa verið fyrir þau og haldið fjölmarga tónleika.\nAuk þess hefur Dúó Stemma sett saman efnisskrá fyrir börn sem þau kalla “Töfraveröld tóna og hljóða” og spilað fyrir börn í leikskólum og grunnskólum. Haustið 2010 tóku þau þátt í vestnorræna verkefninu “Listaleypurinn.”\nog spiluðu 20 tónleika fyrir mörg hundruð börn í Færeyjum og Grænlandi.\nDúó Stemma hlaut viðurkenninguna „Vorvindar“ frá IBBY samtökunum árið 2008 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi.\nHerdís Anna Jónsdóttir lauk prófum frá Tónlistarskóla Akureyrar 1983\, Tónlistarskólanum í Reykjavík 1986 og Hochschule fur Musik und Darstellende Kunst Stuttgart 1992. Hún er fastráðinn víóluleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands\nsíðan 1995 og hefur spilað með fjölmörgum kammerhópum á Íslandi m.a Kammersveit Reykjavíkur og Dísunum.\nSteef van Oosterhout lauk einleikaraprófi frá Sweelinck Conservatorium Amsterdam 1987. Hann starfaði í Hollandi með ýmsum kammerhljómsveitum m.a. Nederlands blazersensemble og lék með sinfóníuhljómsveitum þ.á.m. Consertgebouwhljómsveitinni í Amsterdam. 1991 var hann ráðin sem slagverks- og pákuleikari í Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur leikið með ýmsum kammerhópum þ.á.m. Caput og slagverkshópnum Bendu
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-duo-stemmu/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/2stemma-hannes-2_Fotor-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141109T160000
DTEND;TZID=UTC:20141109T180000
DTSTAMP:20141105T233403Z
CREATED:20140807T143405Z
LAST-MODIFIED:20141105T233403Z
UID:10000181-1415548800-1415556000@hannesarholt.is
SUMMARY:Frönsk saxófóntónlist
DESCRIPTION:Flytjendur: Guido Bäumer alt-saxófónn og  Aladár Rácz píanó \nEfnisskrá: \nFernande Decrück (1896-1954): \n8 pieces Francaises (1948) \n  \nEugéne Bozza (1905-1991): \n1. Scaramouche (1944) \n2. Pulcinella (1944) \n  \nClaude Pascal (f. 1921): \nSónatína (1947) \nStutt hlé \nDarius Milhaud (1892-1974): \nScaramouche (1937) \n  \nPaule Maurice (1910-1967):   \nTableaux de Provence (1955) \n  \n Lífshlaup flytjenda: \nAladár Rácz píanó \ner fæddur í Rúmeníu árið 1967. Hann stundaði fyrst nám í\npíanóleik við Georges Enescu tónlistarskólann í Búkarest en síðan\nframhaldsnám við Tónlistarháskólana í Búkarest og Búdapest. Einnig hefur\nAladár tekið þátt í mörgum námskeiðum í Evrópu og haldið\nmasterclassnámskeið fyrir píanónemendur. Hann hefur leikið á tónleikum\nvíðsvegar um heiminn\, leikið inn á geisladiska og unnið til verðlauna fyrir\npíanóleik í alþjóðakeppnum\, m.a. á Spáni\, Ítalíu og í Tékklandi. Á árunum\n1999-2013 starfaði Aladár  sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Húsavíkur\,\nlék með ýmsum kórum og söngvurum á Norður- og Austurlandi (s.s.\nLeikhúskórnum á Akureyri og Kammerkór Austurlands). Hann var einnig um tíma meðleikari framhaldsnemenda við Tónlistarskólann á Akureyri. Aladár hefur leikið einleik í Salnum í Kópavogi og með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í píanókonsert nr.1 eftir Ludwig van Beethoven. Fyrir nokkrum árum lék Aladár  Goldberg-tilbrigðin eftir J.S. Bach á tónleikum vítt og breytt um landið (m.a. í Salnum í Kópavogi) og fékk mikið lof fyrir leik sinn. Aladár hefur verið búsettur í Reykjavík frá sumri 2013 og kennir við Tónlistarskólann Do Re Mi og er meðleikari í Söngskóla Sigurðar Demetz. Á þessu starfsári Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands mun Aladár leika einleik með hljómsveitinni í píanókonserti nr.1 eftir Johannes Brahms. \nGuido Bäumer saxófónn \ner frá Norður-Þýskalandi og bjó á Dalvík frá árinu 2000 til vors 2005 en hefur síðan\nverið búsettur í Hafnarfirði. Hann stundaði tónlistarnám í Bremen í Þýskalandi þar sem hann lauk kennaraprófum á bæði saxófón og þverflautu.\nFramhaldsnám stundaði Guido við Tónlistarháskólann í Basel í Sviss þar sem\nhann lauk einleikaraprófi með hæstu einkunn og við Bowling Green State\nUniversity í Ohio í Bandaríkjunum þar sem hann lauk „Artist Certificate“. Í\nSviss kenndi Guido m.a. við Tónlistarskólann í Luzern og lék  á\nbarítón-saxófón í saxófónkvartettinum „mit links“. Á Íslandi hefur Guido\nm.a. leikið með Sinfóníuhljómsveit Íslands\, Caput-hópnum\, Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (einnig einleik í saxófónkonsert eftir J. Ibert) og haldið spunatónleika með tölvubreyttum hljóðum. Þá hefur Guido frumflutt verk eftir íslensk tónskáld. Guido kennir við skólahljómsveitir á höfuðborgarsvæðinu og við Tónlistarskólann í Kópavogi. Hann er einnig barítón-saxófónleikari Íslenska saxófónkvartettsins. Guido og Aladár hafa starfað saman frá árinu 2001.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/fronsk-saxofontonlist/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/08/Dienstag-14.-April-2009.jpeg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141113T200000
DTEND;TZID=UTC:20141113T210000
DTSTAMP:20141105T233555Z
CREATED:20140904T175749Z
LAST-MODIFIED:20141105T233555Z
UID:10000040-1415908800-1415912400@hannesarholt.is
SUMMARY:Jazzspuni - Kristjana Stefánsdóttir og Kjartan Valdemarsson
DESCRIPTION:Kristjana Stefánsdóttir söngkona og Kjartan Valdemarsson píanóleikari standa fyrir fernum spunatónleikum í Hannesarholti í vetur – tvennum fyrir jól og tvennum eftir jól.  Þau fá til sín góða gesti sem munu leika með þeim á tónleikunum.  Meðal viðfangsefna verða íslensk sönglög\, amerískir standardar\, Bítlarnir og svo þekkt rokk- og popp lög. \nTónleikarnir verða á fimmtudögum kl.20.00 og verða opnar æfingar í Hljóðbergi auglýstar sérstaklega fyrir tónleika Hannesarholts fyrir þá sem vilja fylgjast með listamönnunum að störfum. \nGestur á þessum tónleikum er Jóel Pálsson.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jazzspuni-kristjana-stefansdottir-og-kjartan-valdemarsson-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Kristjana-og-Kjartan_1150-e1409852856248.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141115T160000
DTEND;TZID=UTC:20141115T180000
DTSTAMP:20141106T182009Z
CREATED:20141106T103745Z
LAST-MODIFIED:20141106T182009Z
UID:10000238-1416067200-1416074400@hannesarholt.is
SUMMARY:Maríus og vinir
DESCRIPTION:Maríus Hermann Sverrisson og söngskólinn Domus vox standa fyrir léttri söngdagskrá í Hljóðbergi.\nlaugardaginn 15. nóv. 2014 kl. 16.00\nTónlistarvinir Maríusar að þessu sinni eru söngkonurnar Hanna Björk Guðjónsdóttir og Matthildur Guðrún Hafliðadóttir ásamt dömukór Domus vox\, Margréti J. Pálmadóttur söngstjóra og píanóleikaranum Halldóri Smárasyni.\nAllir listamennirnir eru starfandi sem kennarar eða nemar við söngskólann Domus vox og njóta þess að skapa andrúmsloft leikhúss liðinna ára.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/marius-og-vinir/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/11/GetShowImage.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141116T160000
DTEND;TZID=UTC:20141116T180000
DTSTAMP:20141105T233905Z
CREATED:20140915T170125Z
LAST-MODIFIED:20141105T233905Z
UID:10000219-1416153600-1416160800@hannesarholt.is
SUMMARY:Tónleikar færeyska tríósins END
DESCRIPTION:Færeyska tríóið END eða Tríó Edvard Nyholm Debess skipa þrír reyndir tónlistarmenn frá Þórshöfn. Þeir Edvard Nyholm Debess – kontrabassi og söngur\, Finnur Hansen á píanó og Rógvi á Rógvu leikur á  trommur og slagverk. Sérstakir gestir eru Sigurður Flosason saxófónleikari og Agnar Már Magnússon píanóleikari.\nTónlistina semja bassaleikari og söngvari END og samanstendur hún af ómþýðum jazzlögum með svolitlu gospel- og þjóðlagaívafi. Einnig flytur tríóð ný færeysk lög í sama stíl.  \nTónlistarmennirnir þrír hafa spilað saman í mörg ár\, bæði sem hljómsveit og einnig sem undirleikarar fjölda söngvara og einleikara.\nÞeir hafa allir sótt Ísland heim og hafa leikið með bæði íslenskum og færeyskum listamönnum\, þar á meðal:. Tómasi R. Einarssyni\, Eivør\, Sigurði Flosasyni\, Jógvan Hansen\, Guðmundi Péturssyni\, Agnari Má Magnússyni\, Matthíasi Hemstock\, Kjartani Valdemarssyni og fleirum.  \nÞetta er fyrsta ferð þeirra til Íslands sem hljómsveit.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/tonleikar-faereyska-triosins-end/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/end_trio-e1410800426934.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141122T140000
DTEND;TZID=UTC:20141122T160000
DTSTAMP:20141113T101310Z
CREATED:20140904T150445Z
LAST-MODIFIED:20141113T101310Z
UID:10000034-1416664800-1416672000@hannesarholt.is
SUMMARY:Hahn og Strauss - afmælistónleikar
DESCRIPTION:Tónskáldin Reynaldo Hahn og Richard Strauss eiga bæði stórafmæli 2014 og af því tilefni ætla þær Hörn Hrafnsdóttir mezzosópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari að heiðra minningu þeirra með ljóðatónleikum. \n\n\nRichard Strauss á 150 ára afmæli en hann fæddist árið 1864 og lést árið 1949. Hann var eitt af stóru Þýsku tónskáldunum og var sérstaklega vel þekktur fyrir óperur sínar og ljóð. Þær munu flytja nokkur ljóða hans\, m.a. Zueignung sem er meðal hans þekktustu verka. \n Reynaldo Hahn á 140 ára afmæli en hann fæddist árið 1874 í Venesúela og lést árið 1947 í Frakklandi. Hann var franskt tónskáld\, en hann fluttist til Frakklands þriggja ára gamall og fékk franskan ríkisborgararétt. Hann er þekktastur fyrir ljóð sín og munu þær flytja nokkur af þeim\, m.a. hið undurfagra A Chloris. \n Hörn Hrafnsdóttir er lærð söngkona og hefur haldið fjölda tónleika ein og með öðrum. Hefur unnið til verðlauna og sungið í Carnegie Hall að því tilefni. Er stofnandi og framkvæmdastjóri Óp-hópsins sem sett hefur upp nokkrar sýningar á ári síðustu 3 árin (m.a. Systir Angelica e. Puccini og Hans og Grétu eftir Humperdinck).  Einnig er Hörn Verkfræðingur og vinnur hjá Verkís auk þess að vera aðjúnkt við HÍ og kennir þar Straumfræði I í Umhverfis- og Byggingarverkfræðideild. \nEva Þyri Hilmarsdóttir hefur lokið prófum frá Tónlistarskólanum í Reykjavík\, Det Jyske Musikkonservatorium í Danmöru og Royal Academy of Music í London. \nAuk fjölda einleikstónleika hefur Eva Þyri verið virkur þátttakandi í flutningi kammer- og ljóðatónlistar og hefur þar að auki frumflutt fjölda íslenskra verka. \nÞær stöllur hafa unnið saman um nokkurra ára skeið. \nMiðaverð 2.500 kr. 1.500 kr. fyrir eldri borgara og skólanema. \n 
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/hahn-og-strauss-afmaelistonleikar/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/Hörn+Þyri-e1409842928742.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141122T170000
DTEND;TZID=UTC:20141122T213000
DTSTAMP:20141117T152824Z
CREATED:20141117T145346Z
LAST-MODIFIED:20141117T152824Z
UID:10000052-1416675600-1416691800@hannesarholt.is
SUMMARY:Munch í myndum og tónum
DESCRIPTION:Athugið að um tvenna tónleika er að ræða. Þeir fyrri eru kl. 17:00 og þá verður sönghópurinn FJÓRAR KLASSÍSKAR í stóru hlutverki. Seinni tónleikarnir eru kl. 20:00 og þá munu Norðmennirnir eiga sviðið.\nMiðar á hvora tónleika um sig kosta 2.500 kr. og verða seldir við innganginn.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/munch-i-myndum-og-tonum-2/
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/11/MunchIslandPlakat-5.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141207T113000
DTEND;TZID=UTC:20141207T120000
DTSTAMP:20141127T185426Z
CREATED:20141127T185333Z
LAST-MODIFIED:20141127T185426Z
UID:10000054-1417951800-1417953600@hannesarholt.is
SUMMARY:Dúó Stemma í jólaskapi
DESCRIPTION:Tónleikhús þar sem flutt verður splunkunýtt ævintýri með Fíu frænku og vinum hennar. \nFía frænka er á ferðalagi með besta vini sínum\, Dúdda. Í fjallasal er rödd Dúdda stolið. Hver stelur röddum?\nÝmsir góðir vinir hjälpa til við leitina og að lokum kemur í ljós hver stal röddinni og hvort henni var skilað til baka. \nDúó Stemma eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari.\nSaman hafa þau leikið í rúmlega 10 ár og frumflutt mörg verk sem skrifuð hafa verið fyrir þau og haldið fjölmarga tónleika.\nAuk þess hefur Dúó Stemma sett saman efnisskrá fyrir börn sem þau kalla “Töfraveröld tóna og hljóða” og spilað fyrir börn í leikskólum og grunnskólum. Haustið 2010 tóku þau þátt í vestnorræna verkefninu “Listaleypurinn.”\nog spiluðu 20 tónleika fyrir mörg hundruð börn í Færeyjum og Grænlandi.\nDúó Stemma hlaut viðurkenninguna „Vorvindar“ frá IBBY samtökunum árið 2008 fyrir framlag þeirra til barnamenningar á Íslandi.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/duo-stemma-i-jolaskapi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/2stemma-hannes-2_Fotor-scaled.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141207T170000
DTEND;TZID=UTC:20141207T183000
DTSTAMP:20141119T160812Z
CREATED:20141104T161820Z
LAST-MODIFIED:20141119T160812Z
UID:10000235-1417971600-1417977000@hannesarholt.is
SUMMARY:Útgáfutónleikar - Ástvaldur Zenki
DESCRIPTION:Flutt verður tónlist af nýútkomnum geisladiski Hljóð. Þar er að finna frumsamda tónlist eftir Ástvald Zenki fyrir jazzpíanótríó. Tónlistin er einlæg í einfaldleika sínum og býður hlustandanum að líta inn á við og sameinast andránni. Tónsmíðarnar eiga sér sterkar rætur í djasshefðinni\, tónlistin er skapandi og óþvinguð; seiðandi lýrik og flæðandi rytmi. Innblástur er sóttur í Zen búddisma\, þar sem bent er á innsta eðli hlutanna á sem einfaldastan hátt. Fram koma\, ásamt Ástvaldi þeir Birgir Bragason bassaleikari og Matthías Hemstock trommuleikari.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/utgafutonleikar-astvaldur-zenki/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/png:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/11/stvaldur-Traustason-e1416412295644.png
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20141210T190000
DTEND;TZID=UTC:20141210T200000
DTSTAMP:20141206T002235Z
CREATED:20141128T075547Z
LAST-MODIFIED:20141206T002235Z
UID:10000056-1418238000-1418241600@hannesarholt.is
SUMMARY:Jólatónleikar Elligleði
DESCRIPTION:Styrktartónleikar til styrktar Elligleði\, sem er meðferð og afþreying fyrir fólk með minnissjúkdóma.  Davíð Ólafsson bassi og Stefán Helgi Stefánsson munu syngja jólin inn ásamt hressum númerum. Tónleikarnir eru haldnir þennan dag í tilefni af 6 ára afmæli Elligleðinnar. Veitingastaðurinn verður opinn fyrir tónleika og súpa og heimabakað brauð í boði. Borðapantanir í síma 511-1904 eða á hannesarholt@hannesarholt.is
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/jolatonleikar-elligledi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/11/Dav-stef1.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;TZID=UTC:20150104T170000
DTEND;TZID=UTC:20150104T181500
DTSTAMP:20150102T193449Z
CREATED:20150102T155146Z
LAST-MODIFIED:20150102T193449Z
UID:10000260-1420390800-1420395300@hannesarholt.is
SUMMARY:Rokktónlist í klassískum búningi
DESCRIPTION:Strengjakvartett undir stjórn Stefáns Arnar Arnarssonar sellóleikara mun leika þekktar perlur rokksögunnar í klassískum búningi sunnudaginn 4.janúar kl.17. Flytjendur eru Zbigniew Dubik og Magdalena Dubik á Fiðlu\, Roland Hartwell á víólu og Stefán Örn Arnarson á selló. Á tóleikunum munu áheyrendur þekkja verk Bítlanna\, Led Zeppelin\, Nirvana\, Metallica\, Pearl Jam og fleiri.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/rokktonlist-i-klassiskum-buningi/
LOCATION:Hjóðberg\, Grundarstíg 10\, Reykjavik\, Reykjavík\, 101\, Iceland
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2015/01/string-quartet-instruments.jpg
END:VEVENT
BEGIN:VEVENT
DTSTART;VALUE=DATE:20150118
DTEND;VALUE=DATE:20150119
DTSTAMP:20150114T134042Z
CREATED:20140905T014339Z
LAST-MODIFIED:20150114T134042Z
UID:10000206-1421539200-1421625599@hannesarholt.is
SUMMARY:Ljóðasöngur í Hannesarholti á sunnudag kl. 16:00
DESCRIPTION:Hallveig Rúnarsdóttir syngur lög eftir Hugo Wolf\, við texta eftir Eduard Mörike. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð sem Hannesarholt heldur í samvinnu við Gerrit Schuil. Alls verða haldnir sex tónleikar í vetur í þessarri seríu. Þeir eru klukkustundarlangir og munu söngvararnir kynna dagskrána sjálfir.\nMiðasala á midi.is.
URL:https://hannesarholt.is/vidburdur/ljodasongur-i-hannesarholti-2/
LOCATION:Hljóðberg
CATEGORIES:Tónleikar (Concerts)
ATTACH;FMTTYPE=image/jpeg:https://hannesarholt.is/wp-content/uploads/2014/09/MG_3514-Hallveig-ný-e1414602073290.jpg
END:VEVENT
END:VCALENDAR